Heimskringla - 23.06.1904, Blaðsíða 1

Heimskringla - 23.06.1904, Blaðsíða 1
XVIII. ÁR. Nr. 37 BAKER BLOCK. 47o MAIN STREET. Þriöju dyr fyrir sunnan Bannatyne Ave., vest- anveröu á Aöalstrœtinu. Phone 2685. Við höfum aðeins fáar lóðir eftir á Simcoe og Beaverly strætum. Þeir, sem ætia sér að ná í lóðir þar, ættu að gera f>að strax. Lítið hús og 168 á Ross Ave., fyr- ir vestan Nena St., $1.100. Ágætar lóðir f FortRouge, nærri Pembina St., á $150 hver. Hús á ágætum stað í Fort Rouge' aðeins 81,250. Lóð á Elgin Ave., fyrir vestan Nena St., á $250, Eggertsson & Bildfell. Tel. 2685 470 main street Fregnsafn. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. STRIÐS-FRÉTTIR Flotaforingi Skrydloff gerir alt, sem hann framast getur, að komast suður til Port Arthur, en hefir of- urefli liðs að etja, þvf Japanar eru miklu liðsterkari, svo litlar lfkur eru til pess, að honum takist fyrir- tæki sitt. Eftir þriggja daga orustu í Wa fang Kan urðu Rússar frá að hverfa. Sagt er, að þeir hafi mist þar 1500 liðsmenn og skilið eftir á vfgvellinum 52 stórskotabyssur. Þessi staður er 65 mílur frá Port Arthur. Mælt er, að Rússar hafi skotið á hermenn f sjónum, eftir að þeir ó- nýttu skijj þeirra. Þetta skeði ná- lægt Vladivostock, og mælist illa fyrir. Rússar leyfðu aðeins yfir- manninum upp á skip til sfn, af því hann er Breti. Því er haldið fram, að heklur sé að draga til vináttu og samkomu- lags með Rússum og Bretum síðan Bretar fengu bendingu frá æðsta embættismanni sínum í Kína og Japan, Earl Percy. En hún er svo hljóðandi, að það séu samn- ingar milli Kínverja, Rússa og Breta frá árinu 1898, að eins lengi og Rússar hafi herstöðvar í Port Arthur og aðsetur þar, þá megi Bretar hafa full umráð í Wei-ha- wei, en það eru aðalstöðvar þeirra f Kína. Nú vilja Bretar um fram alt halda þessum stöðvum, en missi Rússar Port Artliur, þá heimta Kínverjar stöðvarnar af Bretum. Blöðin halda því fram lfka, að Rússar og Englendingar hafi einn- ig koinið sér saman um, að taka höndum saman f Thibet, og standa hvor með öðrum yfirleitt f öllum austrænum deilum. Síðustu fréttir að austan segja Japana vera komna svo nálægt Port Arthur, að þeir séu nú aðeins 8 mílur frá bænum. Daglegar stór- orustur eru þar háðar og mannfall mikið á báðar hliðar, og það svo þúsundum skiftir, að sagt er. Rússar lmfa vfggirt staðinn 11 mflur út frá höfninni landmegin, en Japanar hafa náð og ónýtt virki þeirra á fyrstu 3 mílunum,' og eru stöðugt að þumlunga sig nær aðal- bænum. Rússar söktu 2 japönskum mann- flutningaskipum og drektu þar þúsundum japanskra hermanna. Aftur unnu Japanar mikinn land- bardaga hjá Kai Chaw og feldu þar yfir þúsund Rússa 1 einum bar- daga og náðu miklum hergögnum, þar á meðal mörgum fallbyssum. Þessi frétt hefir kastað ótta yfir Rússastjórn, sem jafnan hefir hald- ið því fram, að herdeildir sfnar væru óvinnandi. Allar fréttir bera vott um, að stórskotalið Japana sé öflugra en Rússa; en svo er að sjá, að Rússar beiti vel vopnum sínum og yfir- leitt er mannfall á þeirra hlið minna en hjá Japönum. Svo er að sjá, að lierskipafloti Rússa í Yladivostock hafi komist þaðan til Port Arthur, og um leið gert skipum Japana tvívegis all- mikið tjón, án þess að Japanar gætu unnið á þeim. — Lord Dundonald, yfirherfor- ingi í Canada, hefir komist í ónáð við Laurier - stjórnina og verið sviftur embætti. Herforinginn gerði sig sekan f þvf, að ásaka stjórnina um pólitiska hlutdrægni í embættaveitingum við sjálfboða- liðið, að hún hefði leynt köflum úr skýrslum sínum og breytt á ýmsan hátt þannig við sig sem herforingja, að hann liefði álitið rétt að opin- inbera það hnej7xli. Hann hefir mætt misjöfnum dómum f blöðum Breta fyrir þetta tiltæki. — Þjóðverji einn f Philadelphia hefir ótilkvaddur sagt lögreglunni að hann hafi myrt unga konu í Berlín á Þýzkalandi f febrúarmán- uði 1901. Hann gaf sig fríviljug- lega á vald lögreglunnar. J. A. Wilcox, sem ákærður var fyrir stórfeldan peningabréfa þjófn- að, var dæmdur í vikunni sem leið í sjö ára fangavist,. Hann framdi þjófnaðinn í Norðvesturlandinu, og var dæmdur af kviðdómi f Regina. — Stjórnin í Cuba hefir tilkynt stjórninni í Canada, að hún ætli ekki að framselja henni fjárglæpa- manninn Hamel, sem strauk frá Montreal til Cuba, eftir að hafa framið þar ýmiskonar fjárbrall og þjófnað. Ungur piltur í Alberta, reiddist svo mikið við föður sinn, sem var að misþyrma móðir hans, að hann hét að skjóta hann, ef hann' léti ekki konuna vera. Faðirinn skeytti þessu ekki en hélt áfram að berja konu sína sem hljóðaði æ þvf meir er hún var meira meidd, pilturinn þreyf þvf byssu föður síns og skaut hann til bana. — Á miðvikudaginn var varð hroðalegt slys nálægt New York. LystisnekkjaD, General Blocum, var á siglingu með 2,000 farþega; mest af þvf voru sunnudagaskóla börn, sem voru að njóta skemtnnar þeirrar, sem venja er f þessu landi, að sunnudagaskóla nefndir gleðji börnin með einu sinni á sumri. Eldur braust fram í skipinu, þegar það var lengst frá landi, og sást hann fyrst úr landi. Voru þá sett- ir fram björgunarbátar, sem að litlu eða engu liði urðu. Þegar skipstjórinn tók eftir eldinum, snéri hann óðar áleiðis til lands og sigldi alt sem aftók. Eldurinn þrengdi óðara að farþegum, sem þyrptust aftur á skipið. Fjöldi kvenna og barna fleygði sér í dauð- ans ofboði í vatnið á leiðinni að landi, og björguðust fáir. Af þess- um 2,000 farþegum druknuðu og brunnu um sjö hundruð, flest börn. Mælt er, að presturinn og öll hans familía hafi farist. — Laurier hefir lýst yfir þvf, að hann ætli að gera breytingar við kosningalögin í Manitoba. — Franskur maður að nafni Schaumann, skaut fyrir skömmu landstjórann á Finnlandi og sjálf- an sig á eftir. Landstjórinn var Rússi,og stóð í þinghúsdyrum, þeg- ar hann skaut hann. WINNÍPEG, MANITOBA 23. JtJNÍ 1904. PIANOS og ORGANS. Heintzinnii «Sfc Co. Píriiom.-Bell Orgel. Vér seljuni með mánaðarafborgunarskilmálum. J. J. H McLEAN &CO. LTD. 530 MAIN St. VVINNIPEG. NEW YORK LIFE JOEtN A. McCALL, president w Síðasta skýrsla félagsins sýnir að á árinu 1903 hefir það gefið út 170 þús. iífsábyrgðarskírteini fyrir að upphæð $326. miliónir doll. Á sama ári horgaði fél. 5,300 dádarkröfur að upphæð yfir 16 miliónir doll., og tii lifandi meðlima borgaði það fyrir útborgað- áarlífsbyrgðir fullar 18 miliónir doll. Sðmuleiðis lánaði félagið $32 þús. meðlimum út á lífsábyrgðarskírteini þeirra nær því 13 miliónir doliars. Einnig hefir félagið skift á mílli meðlima sinna á Siðastl. ári 5| mlión dsll., í vexti af ábyrgðum þeirra í þvi, sem er $1,250,000 meira en borgað var til þeirra á árinu 1902. Lífsábyrgðir í gildi hafa aukist á siðastl. ári um 161 millionir Dollars. Allar gildandi lífsábyrgðir við áramótin voru $1,745 niilionir Allar eignir félagsins eru yfir .352J million Dollars. C. Olafnon, AGENT. J. W. Horgan. Manager, GRAIN EXCHANGE BUILDING, W I flNT 3ST IPE Gr. — Ofsastormur og hellirigning gekk yfir Cuba snemma í síðustu viku. Svo var ofviðrið og úrfellið mikið, að sllkt er talið eins dæmi., A 5 klukkutfmum var regnfallið 14 þumlungar. Bæði fólk og fén- aður fórst og lönd og akrar lögðust í eyði, brýr og járnbrautir skoluð- ust víða burtu. Fregnþræðir og! málberar urðu ónýtir, og námarj urðu víða fleytifuilir af vatni, og) þarafleiðandi druknaði vinnulýðurj f þ(‘im víða. — Brenna mikil var í Rat Por- tage á föstudaginn var. Þar brunnu verkstæði og 13 fveruhús. Skaðirin metinn $140,000. — Michael Schiller, konumorð- ingi, var tekinn af í Columbia bæn- um f Ohio ríkinu á föstudaginn var. Aftakan fór fram moð raf- magnsstraum. Tvisvar sögðu lækn- arnir hann dauðann, en maðurinn raknaði við. I þriðja sinn var settur 1800-volts straumur á mann- inn, og var hann eftir eina mfnútu lýstur dauður. Fólk, sem við var statt, ætlaði að ganga af göflunum, þegar það kom upp í annað sinn, að fanginn var lifandi. oglá við upphlaupi. —- Sambandsstjórnin liefir í liyggju, að kaupa járnbrautarspotta austur frá, sem heitir Canada East- ern, og leggja hann við Inter- colonial brautina. Verðið er$800,- 000. Með þessu viðurkennir hún stefnu Bordens um þjóðeign járn- brauta, að hún sé ekki óbrúkandi að öllu leyti. — R. L. Borden, leiðtogi Con- servativ-flokksins í Canada, var 50 ára gamall á laugardagiun var. Vinir hans liéldu honum iriikia veizlu í Montreal og gáfu honum og konu hans borðbúnað úr skíru silfri. Leiðandi menn flokksins úr öllum pörtum rfkisins komu til að heiðra næsta stjórnarformann Canada. — Anarkisti í Svisslandi skaut og særði á höfði sendiherra Rússa þar þann 10. þ.m. Hann er rúss- neskur að ætt, en hefir víða farið og alstaðar komið sér illa. Árið 1901 var hann gerður útlægur úr Danmörku fyrir eitthvert lagabrot þar. Hann afsakar glæp sinn með þvf, að segja, að Rússastjórn hafi ranglega haft af sér allar eignir sfnar og haldið sér 40 mánuði í fangelsi án saka. — Rússastjórn liefir breytt lög- um þeim, sem bönnuðu Gyðingum að búa innan 12 mflna frá landa- mærum Rússlands, þannig að þeir mega hér eftir búa alstaðar innan takmarka ríkisins og njóta að ýmsu leyti jafnréttis við rússneska borgara. - Nýlega hefir einn af aðal- bönkunum í Osaka-borg í Japan orðið gjaldþrota. Ástæðan fyrir þessu er ekki ljós, en þó er það álitinn vottur um fjárhagslegan veikleika þjóðarinnar. — Formaður Forestersfélagsins, Dr. Oronhyatekha, kom til St. Catherines í Ontario þann 17. þ.m. og fékk þar góðar viðtökur. 450 manns gengu í félagið á þeim fundi. — Nokkrir drengir voru að leika sér í bænum Pretolea, Ont., í síð- ustu viku. Þeir tóku einn dreng- inn og settu snöru um háls honum og hengdu hann upp í hálfa mín- útu; drengurinn beið bana af. — Allar baðmullar stofnanirnar f Austur-Canada ætla að loka verk- stæðum sínum yfir júlímánuð, og sumar um lengri tfma. Eigend- urnir segja, að iðnaðurinn borgi sig svo illa, vegna skorts á toll- vernd, að óvíst sé, að hægt sé &ð halda vinnu áfram svo hún borgi sig. Þúsundir manna tapa atvinnu við þetta. ÍSLAND. Eftir Eeykjarík 6 Maí. Lausn frá ombætti frá 1. Okt. samkvæmt ósk sinni hefir rektor Björn M. Olsen Dr. phil. fengið sakir bilaðrar heilsu. Frá s. d. er hr. rector B. M. 01- >n útnefndur prófessor (13 tignar- * ‘4 ) Settir 8/slumenn: cand. jur. Páll V. Bjarnason í Eyjafjarðar.s. og bæjarf, á Akureyri 19. marz; cand. jur. G.Björnsson í Skagafj.s. 25. apr — báðir frá 1. maí að telja. 18 Maí Gapaslys vildi til fyrir helgina hérna fyrir innan bæinn. Tveir menn komu inn á veginn og reið annar þeirra ofan á stúlku, sem var að koma úr laiigum. Stúlkan féll um koll, fór hesturinn yfir hana og virðist hafa stfgið á herðarnar á henni. Mennirnir flengriðu áfram og skiftu sðr ekkert um stúlkuna, Hún er sfðan mikið lasin. Nýdáinn hér f bænum 13. þ. m. eftir skamma legu cand. pliil. Ei- i'kurSigurðsson Sverrisen, freklega hálf fertugur að aldri, f. 23 des. 1867. Hann var sonur Sig. sál. Sverrisen, sýslumanns í Strandas. Hann var kvæntur Hildi Jóns- dóttur, prests Bjarnasonar Thorar- ensen frá Stórholti. Hún lifir inann sinn. Kaldhryssingslegt nú sfðustu daga, snjóað f fjöll. •‘Fjallkonan” er nú fullyrt að sé seld frá næsta nýjári, auðvitað eiuhverjum utanbæjarmanni. > * 1 Eftir Tagólfi, 11 raaí Valgarður Olafsson Breiðfjörð kaupmaður lést eftir fárra daga legu úr lungnabólgu á leið hingað til lands með póstskipinu 16. f. m. og liafði liann komið fársjúkur á skipið í Leith, en læknir sá er skip- stjóri hafði fengið til þess að vitja hans þar, gerði ekkert úr því að hann væri veikur, og kvað óhætt að hann væri á ferli. Var það sami læknirinn er vitjaði séra Ólafs Helgasonar áður en hann dó. Eftir Þjóðviljanum, 3. Maí. Á hvalveiðastöðinni á Patreks- firði er áformað, að bygð verði kirkja á komandi sumri, og á það að verða steinsteypuhús. Kirkjan verður bygð fyrir sam- skotafé, og að nokkru fyrir lánsfé, er sparisjóður á Patreksfirði veitir. Danska varðskipið “Hekla” náði n/ skeð við Vestmannaeyjar í enskan botnverping, er kærður hafði verið fyrir botnvörpuveiðar f landhelgi, og var skipstjórinn sektaður um 900 krónur. Cand jur Páll Bjarnason Vída- lín hefir verið settur s/slumaður f Eyjafjarðars/slu og bæjarfógeti á Akureyri frá 1. maf þ. á. Frá sama er cand. jur. Guðm. Bjíirnsson settur sýslumaður í Skugafjarðars/slu. 9. maí 20 Marz síðastl. kviknaoi í fjósi hjá sfra Vigffisi Þórðarsyni á Hjalla stað og köfnuðu allar kýr prests- ins, 3 að töl*, sem og reiðhests- efni er þar var. Próf. Einar Jónsson í kirkju-bæ sendi sfra Vigfúsi að gjöf eina af kúm sfnum, jafnskjótt og hann frétti tjónið. 23. april síðastl. andaðist í Kvfg- indisdal í Barðastrandar.-ýslu upp- gjafapresturinn Magnús Gfslason prests Ulafssonar í Sauðlauksdal, 84 ára að aldri, fæddur 23. des- ember 1819. 5. þ. m. gerði loks hlfindi, og blíðviðri, og hefir síðan oftast haldist sunnanátt, svo að jörð lifnar nú óðum, ef lík veðrátta helzt. “ Ábyrgðarmenn sparisjóðsins á Seyðisfirði liafa ályktað, að sam- eina sparisjóð sinn, sem þar er; við væntanlegt útibú frá hluta- félagsbankanum. Þetta kvað hafa verið ályktað er bankastjóri Emfl Scliou var nýlega staddur þar eystra. Nú er mælt, að seðlar hluta- félagsbankans verði ekki fullgerðir erlendis, fyr en l.júnf næstk., svo uð bankinn geti ekki byrjað fyr en um miðjan júní. 14. Maí Úr strandasýslu (norðanverðri) er “Þjóðv.” ritaði 1. Maf: “Tfð er hér fremur slæm, og menn því komnir f vandræði með skepnur sfnar, því nú er lieyruddinn, og komið, að þrotum lijá all-mörgum en ekkert hefir enn orðið vart við haffs, og lifa menn þvf í voninni um betri tfma. Strandauppboð var haldið 15. apríl síðastl. á hinu strandaða gufuskipi “Kong Inge”, og var skipsskrokkurinn seldur Thore félaginu fyrir 3150 kr. Meistarapróf f stærðfræði tók í f aprfl síðastl. við liáskólann 1 Kaupmannahöfn Olaf ur Dan. Daníelsson. 28. aprfl síðastliðin andaðist að Hnina í Árnessýslu ekkjufrú Sig- rfður Stefánsdóttir Briem, ekkja síra Jólianns sáluga Briem, er lengi var prestur í Hruna. Tíðarfar hefir verið einkar blítt og fagurt þessa vikuna, svo að tfin eru nú víða ögn farin að litkast. U(an úr skógi I. ÚTI í SKÓGI Úti’ þessum eyðiskóg Öndveg skipar kyrð og ró. Varla hingað vindblær nær. Vetrardvöl hér er mér kær. Skógarbeltin skýla vel Skörp þó komi frost og él. Ýtum finst hér útlegð næst, Er elska borgarlffið glæst; En hér við skógarbeltin breið, Sem bezt ég uni minni leið; Hér við laufgan limgarð minn Ég líf og djúpan unað finn. Seilast bjarkir sólu mót; Samt er mýri þarna ljót. En kringum þetta forarfen Falleg standa espitrén. En þvf breyta í engiblett Ætti’ okkur hér að veitast létt. Grafðu þar sem þörf er á, Það eitt dugnað sýna má; Hikaðu’ ei við höftin breið. Harðsótt er liver frægðarleið. Feni snúðu í fagran völl, Fúnu hreysi í glæsta höll. Þ/tur um skóginn þýður blær, Þjóðkært vorið iærist nær, Með öll sfn fögru blóm og blöð, Börn, sem elska, frjáls og glöð, Og jafnvel öldin ellimædd, Sem er við ljós og frelsi hrædd! Sumarblfðan signir grund, Sólin skfn á grænan lund. Laufskrúð þetta lfkar mér; Lifandi guð! það er frá þér. Var Edengarður fegri fold, En frjósöm þessi kjörlandsmold? Heyrist þrusk og þungur gnýr, þruma nú í lofti býr; Ómur hennar, eimrödd þung, Öflin vekja djörf og ung I minni sál. Það mærðarlag Mínumjyftir hug í dag. Yndi felst í ógnaleik, Oft er sál mfn treg og veik, Og þó er henni hættan kær; Minn hugur dýpsta svölun fær, Þá lff mitt næst er dauðans dör, Sú dirfð mér veitir sálarfjör! Hring mér, Kári, hrygð úr söng; Hring þú skógar Lfkaböng, Sjafnar-orð þitt Suðri kær Sál mína’ ætfð lffgað fœr; Og, Norðri, einnig ávörp þfn; En oft þau skemma blómin mín. Þótt mér lfki land mitt hér Og laufgir skógar geðjist mér, Samt ég þrái fjöllin frfð, Frón mitt, þína Barnahlíð, Fossa þfna, firði og nes; Fegurð þfna bezt ég les. Jön Kjærnested. Rit Gests Pálssonar Vinsamlegast vil ég mælast til við alla þá útsölumenn að ritum Gests Pálssonar, sem enn eru ekki búnir að senda mér andvirði fyrsta heftisins, að láta það ekki dragast lengur en til 1. ágúst næstkomandi. Winnipeg, Man., 10, júní 1904. ARNÓR ÁRNASON, 644 Toronto St.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.