Heimskringla - 23.06.1904, Síða 4
HEIMSKRINGLA 23. JÚNÍ 1904.
TEGUND SÚ SEM MJÖLKUR-
BÚAMENN NOTA.
Sumt fólk hefir þá skoðun, að De La-
val skilvindurnar séu dýrari en aðrar rjóm-
asKÍlvindur vegna þess, hve langt þær taka
öllum öðrum vindum fram að gæðum.
Þetta er skökk skoðun. Verðið á De
Laval vindum er ekki hærra, en aðgerðar-
kostnaður margfalt minni en á lakari teg-
rindum.
Skrifið eftir upplýsingabæklingum til:
THE DE LÁVAL SEPARATOR Co.
248 McDermot Ave. 9 — Winnipeg, Man.
^MONTREAL TORONTO NEW YORK CHICAGO PHILADELPHIA SAN FRANCISCO '
West End - =
Bicyde Shop,
477 Portage Ave.
Páreru seld þau sterkustu og fallegustu
hjól, sem til eru i Canada, meö 10 pcr cent af-
slœtti, móti peningum út i hönd. Einnig móti
niöurborgunum og mánaöarjafborgunum. Göm-
ul hjól keyptog seldjfrá$10 og upp. Allar aö-
geröir leystar af hendi fljótt og vel. Líka fœst
i>ar alt sem fólk þarfnast til viöhalds og að
geröar á hjólum sínum.
Jon Thorsteinsson.
WiIlnipe»,.
Bústaður Heimskeinglu er sem
stendur að 727 Sherbrooke St.
— Sextíu og íjjfim Islendingar
komu frá austur og suður Islandi
á laugardagskveldið var. Einnig
komu 38 á mánudaginn var.
Síðari hluta næstliðinnar viku
voru steikjandi sólskinshitar á
degi hverjum. Sprettutíð f>vf hin
ákjósanlegasta.
Herra Tryggvi Thorsteinsson,
Tantallon P.O., kom hingað til
bæjarins í síðustu viku, að leita sér
lækninga við fingurmeini. Hann
lætur vel yfir kringumstæðum
manna í sfnu bygðarlagi. Gras- og
uppskeru-horfur góðar.
Rev. Richard W. Boynton, prest-
ur frá St. Paul, Minn., og skrifari
Unitarian Conference í Minnesota,
prédikar í íslenzku únitara kirkj-
unni hér í bænum á sunmudaginn
‘*kemur, kl. 3 e.h. Allir velkomnir.
Klukkan 7 að kveldinu prédikar
hann í ensku únitara kirkjunni,
Sons of England Hall, Portage
Avenue.
W. G. Simons, Glenboro, og B.
Josephson, Baldur, voru hér á ferð
1 síðustu viku. Þeir létu mæta vel
af líðan landa í Argyle og kváðu
uppskeruhorfur þær beztu, sem
hugsast geta. Björn var á ferð að
fylgja systur sinni, sem er að flytja
til Fishing Lake 1 Assiniboia, en
bl’óst við að komast hingað aftur
innan fárra daga.
Herra Guðmundur Einarsson,
frá Kaupmannahafnar háskóla, kom
hingað til bæjarins í vikunni sem
leið. Hann ætlar að dvelja hér
vestra um tvo mánuði. Hann hefir
verið hér vestra áður og dvaldi þá
mest af tímanum í Chicago. Hann
'gekk í gegnum latínuskólann í
Reykjavfk og sigldi sfðan til há-
skólans í Kaupmannahöfn og hefir
lesið þar guðfræði í síðastliðin 3
ár, ogtnun halda þvf námi áfram.
Hann bregður sér hingað vestur í
sumarfríinu, og er það mannlega
gert, og svo ættu fleiri að gera, og
mundi f>eim reynast f>að hagur en
ekki óhagur.
Nokkurar stórsölur hafa verið
gerðar þessa viku bæði á löndum
og bæjareignum. Bandarfkjamenn
sýnast nú lfta ákafar eftir löndum
og lóðum hér í miðbænum, en þeir
hafa gert um undanfarinn mánuð.
Aftur er lítið um smáhúsasölu enn
þá. Verkamenn hafa litla eða
enga peninga að svo komnu, og
festa f>ví kaup f lóðum, byggja síð-
an hús og veðsetja þau, en láns-
félögin lána að mun minna á hús
en síðasta ár. Bendir alt á, að
kostir sumra verði þröngir, þegar
alt er komið f kring. Einnig er
f>að mælt, ai nokkur hús, er bygð
voru f fyrra sumar, séu nú að falla
ínn til lánsfélaganna aftur.
íslendingadagsfundur var hald-
inn í Tjaldbúðarsalnum á föstu-
dagskveldið var. Reikningar voru
lagðir fram fyrir sfðasta ár, sem
sýndu, að nú væri í sjóði rúmlega
$114.00. Fundurinn samþykti, að
Islendingadagshátfðin skyldi hald-
in 2. ágúst í sumar, og ný nefnd
var kjörin til f>ess að annast um
hátíðahaldið. Þessir hlutu kosn-
ingu:
B. L. Baldwinson ... .68 atkv.
Joseph, B. Skaptason.64 “
• Einar Ólafsson......57 “
Magnús Markússon ..52 “
Teitur Thomas.......51 “
Ámi Þórðarson.......50 “
Sigfús Anderson.....48 “
Loftur Jörundsson.. .45 “
Jon Thorsteinson ... .44 “
Að loknum kosningum var fundi
slitið.
Það mun mega íuliyrða, að nefnd-
in sé svo vel skipuð, að landar vor-
ir í þessum bæ megi liafa ástæðu
til að vænta góðra skemtana á Is-
lendingadaginn. Alt verður gert,
sem stendur í valdi nefndarinnar,
til þess, að hátíðahaldið geti orðið
sem ánægjulegast og þjóðflokki
vorum til sóma. Til þess vonar
nefndin að allir þjóðrœknir Islend-
ingar í þessum bæ íeggi henni
hjálp og aðstoð.
Landi vor, Vilhjálmur Stefáns-
son, sem um nokkur ár hefir stund-
að nám við Harvard háskólann í
Cambridge, Mass., hefir hlotið
hæztu vérðlaun, 450 dollars fyrir
þekkingu í mannfræði. Um f>essi
yerðlaun keptu margir móti Vil-
hjálmi, en hann hrepti sjóðinn pg
ætlar að nota hann til Islandsfarar,
til að kynna sér mentunarástandið
og aðra þjóðarhagi. Hann lagði
af stað í þessa ferð frá New York
11. þ.m. Hann fer gegnum Eng-
land og þaðan til Danmerkur, og
sfðan upp til Islands. Áritun hans
verður fram f september næstkom-
andi: Hotel Island, Reykjavík.
Þann 12. þ.m.giftust f Minneota,
Minn., prófessor Steingrfmur Hall,
frá Garðar, N. D., og ungfrú Sigríð-
ur A.Hördal, frá Winnipeg. Ileims-
kringla óskar þessum ungu hjónum
til heilla og hamingju.
I síðasta blaði Heimskringlu var
sagt, að gengið hefði verið á skfð-
um á Akureyri 20. f.m., en átti
að vera Seyðisfirði.
HÚS TIL SÖLU
Ég hefi hús og lóðir til sölu
víðsvegar f bænum. Einnig út-
vega ég lán á fasteignir ogtek hús
og húsmuni í eldsábyrgð. Office
413 Main Street. Telephone 2090.
M. MARKÚSSON.
473 Jessie Ave. Winnipeg.
Fagnaðarkveðj a
—TIL—
lirkjuþingsmanna, nýkom-
inna vesturfara og annara
íslendinga.
Um leið og ég býð landa mfna
aðvífandi velkomna til borgarinnar
leyfi ég mér að tilkynna þeim, að
ég hefi ásett mér að selja allar gull-
og silfurvörur mfnar með mikið
niðursettu verði frá þessum degi
fram yfir rfkissýninguna, sem hér
4 að haldast í sumar.
Ekta $4.00 gullhringir á $2.50.
Ekta $6.00 gullhringir á $4.00.
$3.50 úrfestar nú á $2.00.
$8.00 alþektu og áreiðanlegu
verkamanna úrin nú seld á $6.00.'
Armbönd og alt annað gullstáss
með tilsvarandi afslætti.
Þó ótrúlegt megi virðast, þá hefi
ég nú svo góðan útbúnað í verk-
stæði mfnu, að ég get smfðað hringi
og afgreitt viðgerðir meðan við-
skiptamenn mfnir bíða.
Ég ábyrgist allar úr- og klukku-
aðgerðir um 12 mánaða tfma.
Ég hefi ánægju af að sjá gesti í
búð minni, og vona að allir íslend-
ingar komi ekki svo til bæjarins að
þeir ekki skoði vörur mínar og at-
hugi verðið.
G. Thomas,
596 Main Street Phone 2558
Guðmundur Símonarson, sem
búið hefir að Brú P.O., Man., biður
þess getið, að hann sé nú alfluttur
með fjölskyldu sfna til Glenboro.
Allir þeir, sem eiga bréfaviðskifti
við hann, eru beðnir að árita bréf
hans þannig:
W; G. SIMONS,
Glenboro P.O., Man.
Hús til sölu
Ég hefi nokkur ód/r, ný hús í
suðurparti bæjarins til sölu með
góðum skilmálum og ódýrt Cottage
á Elgin Ave., austan við Nena St„
með 6 herbergjum, góðum skil-
múlum. Mikið af ódýrum en góð-
um lóðum f Fort Rouge. Ef þið
viljið ná góðum kaupum, þá gerið
það strax.
K. Á. BenediktssoSl
409 Young St.
Ny Dagsbrún
Á hinu únitariska kirkjuþingi,
sem haldið var í Winnipeg f fyrra
sumar, var ákveðið að ráða bót á
þeim skorti á únitariskum ritum,
sem hefir átt sér stað sfðan “Dags-
‘brún” hætti að koma út. Til þess
að framkvæma þetta voru þeir sett-
ir í útgáfunefnd: Skafti B, Brynj-
ólfsson, Jóhannes Sigurðsson, Jó-
hann P. .Sólmundsson, Rögnvaldur
Pétursson og Albert E. Kristjáns-
son.
Fyrir áeggjan nefndarmanna, og
sumra áhúgamikilla únitaia, sem
sumir hafa þegar lagt fram fé
þessu til styrktar, hefi ég nú ráoist
í að bæta úr þessum langvarandi
skorti af þessu tagi.
Þetta útgáfumál er nú komið svo
langt á leið, að “Ný Dagsbrún,” er
langt komin f prentsmiðju hins ný-
löggilta Gimli Printing and Pub-
lishing Co.
I hinu fyrsta hefti þessa rits
verða: tíðindi frá únitariskum
kirkjuþingum, lög hins únitariska
kirkjufélags, fyrirlestrar frá kirkju-
þingum, myndir og æfiminningar
þeirra séra Bjöms Péturssonar og
Þorvaldar Þorvaldssonar, o. fl.
Rit þetta á að verða ársfjórð-
ungsrit, um 20 arkir á ári og kosta
$1.00. I þetta sinn verða væntan-
lega gefnar út 8 til 10 arkir eða
sem svarar þvf, sem ætti að koma
út á tveimur ársfjórðungum. Þeir
sem vilja vera vissir um, að fáþetta
fyrsta hefti ættu sem fyrst að skrifa
mér um það, að Gimli, Man., því
upplagið er haft lítið til að byrja
með.
Það er vonandi að velunnendur
hins únitariska kirkjufélags, greiði
sem bezt götu þessa rits.
Ekkert boðsbréf verður sent út
þessu riti viðvfkjandi annað enn
auglýsing þessi og þær aðrar aug-
lýsingar, er ég síðar kann að birta.
Staddur 1 Winnipeg, 13. júnl 1904.
J. P. Sólmundsson
Aths.—“Ný Dagsbrún” er gefin
út á Gimli og er innheft bók. Þeir
Winnipegbúar, sem vilja skrifa sig
fyrir ritinu, geta snúið sér til mín,
ef þeim sýnist svo.
Einar Olafsson,
699 Ross Street
Bending.
Telephone númer mitt er 2842.
Búðimar eru 591 Ross Ave, og
544 Young St.
G. P. Thordarson.
Gosdrykkjasla«;ui og
Áldinaljóð
(Verður sunginn, kveðinn og
mæltur af munni fram hvern vírk-
an dag alt þetta yfirstandandi,
blessaða sumar í aldinabúð Jónasar
Jónassonar, á suðausturhorninu á
Pembina og Corydon strætum, í
Fort Rouge).
Innga n.gur f r f.
Veitingar seldar.
Allir velkomnir,
Með sínu lagi.
Einn:
Þangter líf í hitanum, þegarsólin skín,
þá er rétti tíminn að koma’ og vitja mín,
líkamlega’ og andlega svölun fyrir oent
sel ég öllum þjóðum, og gef það út á
prent.
Allir:
Og út í Park ef að ætlar þú
minn ungi herfti og kæra frú,
þá stöktu af “carinu” og komdu inn
og kúffyltu blessaðan munninn þinn
Ljúfíengustu gosdrykkir, ljúffengasta
brauð,
ljúffengustu aldini og berin sæt ograuð,
ljúffengasti ísrjómi, ljúffengasta öl.
ljúffengasta “caudy” sem bætir sorg og
kvöl.
Hjartstyrkjandi dropar og heimsins
elixír
heiðna gerir kristna og sjúkdómurinn
flýr.
m jaðarsortir ótal og munngát. Heyrðu
nú!
mjólkin feit, sem rjómi úr þrílitri kú.
Barnagull, sem sandur á sjáfarströndu
fást,
cigarar og tóbak, sem aldrei neinum
brást,
bónorðssykur franskur með rauðum
orðum á;
allir verða “skotnir,” sem bragð af hon-
um fá.
Allir:
Og út í Park ef að ætlar þú, osfrv.
J. JÓNASSON
I. O- Gr T.
Stúkurnar Hekla og Skuld halda
í sameiningu útbreiðslu fund á
North West Hall miðvikudaginn
29. þ. m.
Þar fer fram samsöngur, sólós,
hljóðfærasláttur og ræður fluttar
af kunnum og ókunnum ræðu-
mönnum.
Nefndin, sem vinnur að þessari
samkomu, óskar að fólk vildi fjöl-
menna, svo að ekkert sæti verði
autt í salnum.
Byrjar kl. 8 e. h.
Síðustu tímar
eru yfirstandandi tíð til
að eignast fagrar húsalóðir á
Rauðárbökkum. Það eru að-
eins fáar lóðir, sem við höfum
ráð á að selja, og leyfum vér
oss því, að benda þeim, sem
elska fegurð náttúrunnar, á að
tapa ekki tækifæri þessu.
Hver einasta af þessum
fögru lóðum hefir stóreflis eik-
arogelmtré, sem maður getur
hvílt augað á eftir erfiði og
þunga dagsins,
Vér seljum lóðirnar bæði svo
ódýrt og með svo góðum kjör-
um, að það getur hver maður,
sem vill keypt þær.
Stærð lóðanna er: 50 fet á
breidd og 250 fet á llengd.
Verð : $500
ODDSON, HANSON & VOPNI
55 Tribune Blk. Phone 2312
McDermott Ave., Wpeg.
PALL M. CLEMENS,
B YGGIN GAJMEIST ARI.
408 llain 8t. Wfnnlpejf.
BAKER BLOCK. FHONE 26 85. !
gtmrnttmfwmn mtttmmmmm^
| HEFIRÐU REYNT? f
£ dpfwpv’s - |
IREDW00D LAGER |
EDA
EXTRA P0RTER.
Við ábyrgjustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og beztu,
og án als gruggs. Engin peningaupphæð hefir verið spöruð við til-
y- búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA og
J LJÚEPENGASTA, sem fæst.
| Biðjið um það hvar sem þér eruð staddir Canada,
B Edward L. Drewry - - Winnipeg,
» Manntactnrer & tmporter,
TMumMmiu Mmmumi
u HIРELSKULEGASTA BRAUД
“Ég fékk þá elskulegustu brauðköku með þvf
að nota ROYAL HOUSEHOLD MJÖL, það
gat ekki hafa orðið betra,—svo hvítt, létt og
gott sem mögulegt var.” Þetta er kafli úr bréfi
frá einum notanda
Ogilvie s “Royal Household Mjol
Vér höfum ýms samkyns bréf. Oss þætti mjög
vænt um, að þér vilduð reyna þetta mjöl og rita
oss svo álit yðar um f>að. Sérhver notanði
þess verður góður auglýsandi að ýmsu leyti, þó
ekki sé nema með þvf að tala við náungann um
áhrif þess. Matsali yðar selur það.
Öoój
p'AQ
CÓO(0
^0(0
O)o (p
0)0(0
go(o
Soto
o)o(o
Wo(o
ghg:
£o(o
íloiiiiiionwealtli SIiof Store
ÓYANALEG KJÖRKAUP
Karlmanna Kálfsskinn Skór
reimaðir, vanaverð ..$1.50
Fyrir...............$ 1.00
Karlmanna Dongola Skór
reimaðir, vanaverð $1.75
Fyrir...............$1.545
Drengja Kálfsskin Skór
reimaðir, vanaverð $1.50
Fyrir................$1.00
Kvenn Dongola Skór reim-
aðir, vanaverð $1.75
Fyrir...............$1.25
Kvenn Kálfsskin Skór reim-
aðir, vanaverð $1.75
Fyrir...............$1.25
Stúlku Dongola Skór reim-
aðir, vanaverð $1.65
Fyrir...............$1.10
MUNIÐ EFTIR
STAÐNUM
Galloway & Co.
##*m>*HK**m*******************
*
*
*
*
#
*
*
*
*
*
#.
*
#
#
#
#
Vinnur þú á Point Douglas?
Ef svo er, þá getur þú ekki gert annað betra, en að
kaupa þér lóð austan við Louise brúna. Við höfum þar 2
spildur rétt við veginn til Birds Hill, ágætis lóðir; fárra
mínútna gangur frá Louise brúnni. Gjafverð og með góð-
um skilmálum.
Skrifstofa okkar er opin á kveldin frá kl. 8—10.
Lewis, Friesen & Potter,
392 Main Street,
Room 19
Phone 2864
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
.#
#
#
#
#
#
4»#######tttt#tt#* ###########*
J3alace^ loth i ng^to re
458 MAIN STREET,
Gagnvart Pósthúsinu.
Aðal-fatakaupabúð Islendinga. Selur allan Maf-
mánuð karlmanna alfatnaði með 30 % afslætti. Al-
fatnaðir vanalegt verð $12y2, nú $9,00.
Hattar, húfur, hálsbönd, skyrtur og alt annað, sem
klæðir menn og drengi, alt með afslætti í Maí.
Q. C. Long