Heimskringla - 07.07.1904, Qupperneq 1
XVIII. ÁR.
Nr. 39
WINNIPEGr, MANITOBA 7. JÚLl 1904.
PIANOS og ORGANS.
Heintxman & C«. Pianos.----Bell Orgel.
Vér seljom með mánaðarafborgunarskilmáium.
J. J. H' McLEAN & CO. LTD.
830 MAIN St. WINNIPEG.
*
$
NEW TORK LIFE
JOHN A. McCALL, president.
Síðasta skýrsla félagsins sýnir að á árinu 1903 hefír það gefíð út
170 þús. lífsábyrgðarskirteini fyrir að upphæð §326. miliónir doll.
Á sama ári borgaði fél. 5,300 dádarkröfur að upphæð yfír 16
miliónir doll., og til lifandi meðlima borgaði það fyrir útborgað-
áarlífsbyrgðir fullar 18 miliónir doll. Sðmuleiðis lánaði félagið
$32 þús. meðlimum út á iifsábyrgðarskirteini þeirra nær þvi 18
miliónir dollars. Einnig hefír félagið skift á milli meðlima sinna á
Siðastl. ári 5J mlión dsll., í vexti af ábyrgðum þeirra í því, sem er
$1,250,000 meira en borgaðvar til þeirra á árinu'1902, Lífsábyrgðir
i gildi hafa aukist á síðastl. ári um 191 millionir Dollars.
Allar gildandi lifsábyrgðir við áramótin voru §1,745 milionir
Ailar eignir félagsins eru yfír ...352J million llollars.
C. Olafson, J. H, Horgan, Manager,
AGENT. GRAIN EXOHANGB BOILDING,
W I JST 3ST I P =E <3-.
—rz.
BAKER BLOCK.
47o MAIN STREET.
Pritju dyr fyrir sunnan Bannatyne Ave., vest-
anveröu ó ACalstrætinu.
Phone 2085.
Við höfum aðeins fáar lóðir eftir
á Simcoe og Beaverly strætum.
Þeir, sem ætla sér að ná í lóðir þar,
ættu að gera f>að strax.
Lítið hús og lóð á Ross Ave., fyr-
ir vestan Nena St., $1.100.
Ágætar lóðir í FortRouge, nærri
Pembina St., á $150 hver.
Hús á ágætum stað f Fort Rouge
aðeins $1,250.
Lóð á Elgin Ave., fyrir vestan
Nena St,, á $250.
Eggertsson & Bildfell.
Tel. 2685 470 main street
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRlÐS-FRÉTTIR
Þær eru helztar, að daglegar stór-
orustur eru háðar í Manchuria, og
veitir Jöpunnm yfirleitt betur.
Sjóorusta mikil varð úti fyrir
Port Arthur þann 23. þ.m. Tutt-
ugu og fimm herskip Rússa á ýms-
um stærðum lögðu út úr höfninni
snemma þann dag og ætluðu að
halda suður til Kóreu, en Japanar
urðu þeirra varir og hófu strax
skothríð á skipin. Þar scikk eitt af
öflugustu skipum Rússa með 736
manns, en tvö önnnr skip urðu svo'
löskuð, að pað varð að draga f>au
inn á höfnina. Nokknr fleiri af
skipum Rússa skemdust f þessum
slag, og öll urðu f>au að hafa sig til
baka inn á höfnina undir verndar-
væng landvirkjanna. Sagt er að
floti Japana hafi ekki skemst, svo
teljandi sé, í þessari viðureign.
Það telja fregnritar Evrópublaða
að nú sé Port Arthur floti Rússa
svo lamaður, að hann sé einskis
nýtnr til að hjálpa málum þeirra
við þar evstra, og hafi þvf Japanar
lítið að óttast af hans völdum.
Stórbardagi hjá Kaiping sem
staðið hefir yfir nokkra daga milli
30,000 Japana og nokkru fleiri
Rússa, lyktaði svo, að Japanar
unnu sigur.
Þrfr stórbardagar voru sfðar háð-
ir f Norður Manchuria og stóðu
yfir í tvo sólarhringa. Japanar
unsu sigur í þeim öllum.
Og svo kemur sú frétt, að enn
eitt rússneskt herskip hafi eyði-
lagst, og er það talið að vera af
völdum Japana.
Alt bendir á, að Japanar hafi í
öllum höndum við Rússa, hvar
sem þeir mæta þeim. En seint
gengur þeim að vinna Port Arthur;
eru þeir ennþá sagðir að vera átta
mflnr frá aðal-bænum.
Stöðugar stórrigningar eru nú
daglegar þar eystra, svo að vegir
eru sem næst ófærir. Rússar telja
þvf líklegt, að Japanar haldi kyrru
fyrir fyrst um »inn og haldi ekki
liði sínu norður á bóginn.
Um 700 danskir, norkir, svensk-
ir og finrfskir vesturfarar, áleiðis
til New York, drukknuðu af gufu-
skipinu “Norge,” sem strandaði
við Rockal sker, 290 mflur vestur
frá Skotlandi, þann 28. f.m. Hvass-
veður var svo mikið, að ekki varð
ráðið við stjórn skipsins, og hafði
það farið út af réttri leið, er það
brotnaði. 800 manns voru á skip-
inu, en 100 komust lífs af, svo vitan-
legt sé. Þess er getið, að skipstjóri
Gundel hafi staðið á stjómbrú
skipsins, þar til það sökk í kaf og
hann með því og drukknaði þar.
— Fellibylur með miklu vatns-
flóði ajddi yfir hluta af Utah á
laugardaginn var, 2. þ.m., og gerði
mikið eignatjón í SaltLake Cityog
öðrum stöðum f rfkinu.
— Kona ein í Ashcroft, B. C.,
dóttir Cornwall dómara var 1. þ.m.
bitinaf höggormi í garðinum við hús
sitt. Hún beið bana af bitinu.
Walter Scott frá Yukon, með
tólf þúsund dollara í gulli, á leið
til Philadelphia, tapaði öllum fjár-
munum sfnum. Ræningjar höfðu
homist að þvf, að hann ætti skild-
ingana og tóku þá svo frá honum
meðan hann svaf f vagnlestinni.
— Þingmaður McLean í Ottawa
hefir komið fram með frumvarp um
að lögleiða,' að jámbrautir í Can-
ada megi ekki setja hærra gjald en
2c á hverja mflu, sem farþegar ferð-
ast. Brautarfélögin mótmæla þessu
sterklega.
— Vínbannsflokkurinn í Banda-
rfkjunum hefir á stórþingi, sem
haldið var í Indianapolis 30. f. m.
útnefnt Silas C Swallow frá Penn-
sylvania til að sækja um forseta-
stöðuna við næstu rfkiskosningar,
og Geo. W. Carroll, frá Texas, til
að sækja um varaforsetastöðuna.
Flokkurinn samþykti og að hafa
þessi atriði í stefnuskrá sinni:
1. Algert vfnbann í Bandarfkj-
unum.
2. Þjóðlegan gerðardóm í ágrein-
ingsmálum.
3. Kjörskilyrði skulu bundin við
siðfeiðis- og vitsmuna-ástand
kjósendanna.
4. Sameiginleg lög fyrir öll Banda-
rfkin og hjálendur þeirra.
5. Senators séu kosnir með al-
mennum atkvæðum.
6. Að réttlæti sé beitt gagnvart
öllum auð- og verkamanna fé-
lögum.
7. Að hjónaskilnaðarlögin séu end-
nrbætt.
8. Að f jölkvæni sé með öllu aftekið.
9. Að endurbót sé gerð á þvf fyrir-
komulagi, sem nú ra^Jur við
ráðningu stjórnarþjóna.
Flokkurinn á $11,000 í sjóði og
$16,000 var skotið saman á fundin-
um til að mynda kosningasjóð.
— Ágæt kol hafa fundist áVan-
couver eyju og gera menn sér góðar
vonir um vænan arð af þeimfundi.
— Æsingar miklar eru meðal
manna á Italfu yfir þvf, að maður,
sem myrti konu sína, var dæmdur í
aðeins 11 daga fangelsi og 20 doll-
ara sekt. Fyrir réttinum sannaðist,
að hann var mesti reglu og spar-
semdarmaður, en konan stórlynd,
lauslát og málóð. Hún skammaði
mann sinn án afláts fyrir vesaldóm
og tuskuhátt, þar til hann misti
vald yfir sér .og sló konuna, svo
hún dó. Blöðum landsins þykir
dómur þessi alt of vægur og heimta
að framvegis verði dæmt harðar í
slfkum málum.
— Stjórnin í Queensland, Ástr-
alíu, hefir sagt af sér af því hún
hafði aðeins 1 atkv. umfram við at-
kvæðagreiðslu í þinginu f máli,
sem henni fanst mikilsvarðandi.
— Rasouli, stigamannaforinginn
í Morocco, hefir fengið 70 þúsund
dollars til þess að sleppa þeim Per-
dicaris og Varley, sem hann tók til
fanga fyrir nokkmm tfma. Vel
hafði farið um þá meðan þeir voru
í hðndum stigamanna. En ilt er
það til afspurnar, að einn stiga-
maðnr skuli geta kúgað heimsins
stærstu þjóðir til þess að gjalda sér
offjár til að láta laust það, sem
hann stelur. Frakkar hafa nú samt
gert ráðstafanir til þess, að koma á
svo öflugu stjórnarskipulagi f Mor-
occo, að þetta geti ekki komið fyrir
framvegis.
— Adolph Perrault í Rat Por-
tage trúlofaðist stúlku þar í bænum
og fékk hjá henni þrjú hundmð
dollars til að kaupa fyrir húsmuni
til búsins; hann strauk með pen-
ingana, en lögreglan náði piltinum.
Hann var dæmdur f tveggja ára
fangelsi og að borga stúlkunni til
baka fé hennar.
— Tyrkja soldán hefir gefið út
skipun um, að greiða fullar bætur
öllum þeim Armeníumönnum, sem
hafa orðið fyrir ofsóknum af völd-
um tyrkneskra hermanna. Alment
er álitið, að þessi skipun sé gerð til
að koma í veg fyrir, að nokkrar
þvingunar ráðstafanir verði gerðar
af nefnd þeirri, sem kemur saman
í London þanp 29. þ.m., til að ræða
Armenfu málið.
— Kolanámi mikill er sagt að
sé fundinn í Klettafjöllunum, inn-
an 8 mílna frá Banff. Kolin em
sögð ágæt og mesta gnægð af þeim.
C.P.R. félagið hefir ákveðið, að láta
strax opna náma þennan og lofað
að selja kol framvegis, þegar það
er búið að koma námanum 1 vinn-
andi horf, miklu ódýrara en þau
hafa áðnr verið seld hér í Norð-
vesturlandinu.
— Það er á orði, að Dr. Mclnnis
í Brandon sæki nm Dominion þing-
sæti fyrir Brandon kjördæmið móti
Hon. C. Sifton við nœstu kosning-
ar. Conservatives þykjast vissir
um, að doktorinn vinni sigur f
þeirri viðureign.
— Tvær konur voru fyrir lög-
reglurétti í síðustu viku fyrir flæk-
ing og drykkjuskap. Þær hafa
báðar lengi átt heima f Winnipeg
og verið dæmdar yfir hundrað sinn-
um fyrir sömú sakir. Onnur hefir
í síðastliðin nfu ár alið sjö ár f
fangelsi, og er hún sjaldan úti úr
því nema fáa daga f einu, þar til
hún er tekin aftur fyrir flæking og
fyllirí. Hin konan hefirekki verið
eins lengi f fangelsi samtals, en
hælir sér af því, að hún hafi sætt
fleiri dómum.
ÍSLAND.
Eftir Norðurlandi, 28. mdí
Á Ströndum sögðu farþegjar
með “Skálholt” að horfur hefðu
verið illar; gaddur var þar ofan
að sjó. Samt er sagt, að fellir
verði þar hvergi.
Sfra Amór Ámason á Felli f
Strandasýslu hefir sagt af sér
prestsembætti.
Guðm® Björnsson cand, juris á
Klömbrum er settur sýslumaður í
Skagafjarðars/slu fra byrjun þessa
mánaðar.
Úr Húnavatnss/slu austanverðri
er skrif.að 18. þ. m.: Tfðin köld
og óstöðug. Sfðan á páskum má
heita að hafi verið neyðartíð.
Þó vona ég að Húnvetningar
komist slysalftið af með skepnur
sfnar, því víða er töluvert heyja-
ráð enn til, þó að sumir séu nú að
verða og orðnir Keylausir.
Úr bréfi frá Seyðisfirði dagsett
21 Maí 1904:
Það er eftirtektavert.hversu mjög
þetta síðasta vorhret virðist hafa
kveikt og eflt Ameríkuhug meðal
manna hér. Menn, sem ekki hef-
ir heyrst getið um, að fýsti til
Ameríku, taka sig nú upp í flug-
hasti og eru eftir sólarhrings um-
hugsunar og undirbúningstíma al-
búnir til brottferðar.
“Vesta” kom hér 19 þ. m. með
24 vesturfara; þar af höfðu 4 farið
á skip á Sauðárkrók, en 20 á
Akureyri. Hér bættust 12 við,
þar á meðal Andr. Rasmussen, fyrv.
kaupmaður hér á Seyðisfirði, með
konu og 2 böm. Vesturfarar létu
vel af Godtfredsen skipstjóra fyrir
umhugsunarsemi og nærgætni við
þá, og umhugað lét hann sér um
það hér, að gætt væri alla lögskip-
ana um útflutninginn. Vesta lét
héðan beint í haf, með þessar 3
tylftir tapaðra sona og dætra—tap-
aðra fyrir okkur. En okkar beztu
óskir fylgi þeim!
“Ceres” er væntanlegur hingað
á morgun og með henni munu all-
margir vesturfarar fara héðan.
Þessir eru tilnefndir meðal annara:
Steinþór bóndi Árnason fra Þor-
valdsstöðum á Langanes-strönd,
Stéfán bóndi Jónsson frá Leifs-
stöðum í Vopnafirði, Egill bóndi
Árnason frá Bakka í Borgarfirði,
þurrabúðarmennimif Guðmundur
Magnússon, Hallur Magnússon og
Guðjón Hermannsson frá Búðar-
eyri o. fl. Allir fara þessir menn
með fjölskyldur.
Það er sárt, hð missa fólkið þann
ig út úr landinu, þar sem vafalaust
er vinnukraftur, næst á eftir
gagnaukinni mentun og þekkingu,
er okkur vanhagar mest um. En
eins og það er vítavert að tæla
menn vestur um haf með oflofi um
Ameríku, eins væri það rangt og
ómannúðlegt, að láta menn ekki
sjálfráða í þeim efnum. Verum
vissir um það, að þetta lagast af
sjálfu sér, ef okkur gæti auðnast að
auka svo þekkingu okkar og
manndáð, að við yrðum færari
um að mæta óblíðu náttúrunnar
og færa okkur í nyt þau gæði, sem
landið og hafið umhverfis hefir
að bjóða. Að þessu á öll fram-
faraviðleitni okkar að stefna; þá
mun straumafl vesturfaranna smátt
og smátt hverfa inn f það afl, er
vinnur að hagsældum landsins.
21. maí,
Stofnunarkostnaður við klæða-
verks>: iðjuna með því nafni í Rvík
hefir orðið 78t4 þús. kr. Mikil
aðsókn er að verksmiðjunni nú
þegar vfðsvegar að, segir ísafold
svo talin er þörf á að bæta við 3
vefstólum, svo að þeir verði 6 als.
Höfuðstóll aukin í þvf skyni.
Sundlaug nýrri ætla Reykvíking
ar að koma sér upp við laugalæk-
inn. Skýli á að vera yfir henni
allri; nota má hana alt árið og 800
manns geta laugað sig á dag.
Kostnaður er áætlaður 4500 —
5000 krónur.
Kaupskipið “Ásta” frá Keflavík
syðra rak þar upp með alfermi af
útlendum vörum 4 þ. m. og brotn-
aði alveg. Mannbjörg varð.
Fiskiskútu^frá Stykkishólmi, er
“Ægir” hét, var hleypt t vor til
skipbrots upp í vörina á Látrum
við Látrarbjarg. Skipverjar kom-
ust á land þurrum fótum. Skipið
var nærri sokkið af leka.
Gaddavírslögin. Langt er víst
»íðan er nokkur lög hafa fengið
aðrar eins viðtökur hér í landi.
Enginn maður, er á þau minnist
opinberlega, virðist vilja mæla þeim
bót. Og mótspyrnan er alveg ó-
venjulega ákveðin. í viðbót við
alt það, sem áður er búið að skrifa
gegn þeim í blöðum vorum, flytur
ísafoldar frá 7 þ. m. mótmæli gegn
þeiníífrá 10 merkum mönnum vfðs-
vegar í landinu. Þar af bafa nafn-
greint sig: Jónas Eiríksson skóla-
stjóri á Eiðum, Eyjólfur Guðmunc
son á Hvoli í Mýrdal, síra Einar
Thorlacius á Saurbæ, Jósef Jóns-
son á Melum, Árni A Þorkelsson á
Geitaskarði, Björn Pétursson á
Hófsstöðum í Skagafirði, Zoph.
Halldórsson prófastur í Viðvík og
Ól. Sigurðsson dbrm. á Ási.
I nótt andaðist að Möðruvöllum
í Hörgárdalekkjan Jórunn Magnús-
dóttir, 74 ára að aldri, tengdamóðir
Stefáns kennara Stefánssonar.
Töluverðan snjó rak niður fyrir
hluta þessarar viku með vonzku-
veðri, og má nærri geta, hvernig
það hefir komið sér um sauðburð-
inn. Alment nokkuð kvartað um
heyskort. í hörðustu útsveitum
er víst jarðbönn enn. í dag er
hláka.
Hríð fékk siglufjarðarpóstur á
Reykjaheiði 20 þ. m., svo mikla
að hann fór ekki alveg rétt.
Regluboði Goodtemplara, organ-
isti Sigurður Eirfksson frá Eyrar-
bakka, kom hingað með “Evvfvu”
og ætlar að vinna að bindindis-
málum norðanlands um nokkurn
tíma.
Barnaskólanum hér í bænum
var sagt upp 14 þ. m., 110 börn
hafa notið kenslu þar í vetur,
Af þeim voru 13 fermd dagiun
eftir. 28 börn voru innan 10 ára.
Flest voru hér á skólanum í einu
104 böm og 35 mest f einni deild.
En ekki tóku vorpróf nema liðug
70 börn, vom mörg komin út f
sveit eða farin að gefa sig við
ymsum störfum hér f bænum.
Tfðarfar hefir verið ágætt þessa
viku, enda flestum þótt tími til
kominn að skifti um til batnaðar.
“Júlíus” fiskiskip, eignJ. V. Hav-
steens, hefir rekið á land á Horn-
vík. Menn björguðust.
Tvö hákarlaskip, “V íkingur” eign
Gudmanns Efterfl., hefir mist út
einn mann, og “Fljóta Vfkingur”
annan. Mennimir hétu Páll Her-
mannsson og Á. Björnsson,báðir úr
fljótum og báðir góðir smiðir.
“Fljóta-Vfkingur hafði eitthvað
skemst.
Til eins hákarlaskips, “Christ-
ians” eign Gránufél. og fl. hefir
ekki spurst. Formaður er Sigurð-
ur Halldórsson frá Grund í Svarf
aðardal, flestir eða allir mennirnir
munu vera þaðan. Menn eru
hræddir um, að það kunni að hafa
farist.
Um afla hefir það frézt, að
“Henning” og “Víkingur” hafi
komið á Patreksfjörð, “Henning”
með um 150 tnr. lifrar, og “Vík-
ing” með 60 tnr.
Safnaðarfundur
verður haldinn sunnudagskveldið
kemnr (10. þ.m.) eftir messu í sam-
komusal Únitara, Cor. Nena St. og
Notre Dame Ave. Allir hlutaðeig-
endur beðnir að mæta. •
Th, Borgfjörð, forseti,
pr. R. P.
Rit Gests Pálssonar
Vinsamlegast vil ég mælast til við
aila þá útsölumenn að ritum Gests
Pálssonar, sem enn eru ekki bnnir að
senda mór andvirði fyrsta heftisins, að
láta það ekki dragast lengur en til 1.
ágúst næstkomandi.
Winnipeg, Man., 10, júni 1904.
ARNÓR ÁRNASON,
644 Toronto St.
íslendingadagurinn
verður haldinn hátíðlegur í Winni-
peg 2. Ágúst næstkomandi í Elm
Park. Það var álitin heppilegasti
staðurinn, sem nefndin átti völ á
að fá fyrir hátíðahaldið á þessu
ári. I þeim garði eru öll þau tæki,
sem útneimtast til skemtunar og
þæginda öllum þeim sem sækja
hátíðahaldið. Ræðupallur. dans-
salur, hringreið og veitiugasalur
er í garðinum. Sömuleiðis rólur
og sæti milli trjánna, þar sem fólk
getur skemt sér og hvílt sig á ár-
bakkanum. 250 hringreiðar miðar
verða gefnir börnum þeim ókeypis,
er sækja hátíðarhaldið og yfirleitt
lætur nefndin sér ant um að hafa
allan undirbúning svo ágætan sem
frekast eru föng til.
Islendingar þekkja þennan
skemtistað svo vel, að ekki er þörf
að lýsa honum. Það nægir að
segja að hann er sá náttúrnfeg-
ursti blettur, sem fáanlegur er
nokkursstaðar í nánd við Winni-
pegogþóvfðar sé leitað, og fólk
getur átt víst að njóta þar ánægju-
legra skemtana.
Síðar verður auglýst program
dagsins ásamt með ræðum, kvæð-
um ogöðrnm skemtunum. Nefnd-
biður Islendinga að festa huga
sinn við daginn og að sækja hann
vel þann 2. Ágúst næstkomandi.
Nefndin hefir ákveðið að hafa afl-
raun á kaðli meðal annara skemt-
ana, 8 menn á hvora hlið, giftir
móti ógiftum. 20 dollara verð-
laun verða veitt þeim er vinna og
glaðning verður veitt þeim sem
tapa. Skrifari „Sports“-nefndar-
innar, herra Magnús Markússon,
gefur allar nauðsyidegfy upplýs-
ingar þessu viðvikjaudi. Nefndin
óskar að fslenzk heljarmenni taki
sig saman um að gera skemtan
þessa ánægjulega fyrir fólkið.
Kappsund verður «innig þreytt
og 2 verðlaun gefin fyrir það.
Nefndin óskar að ekki færri en 5
menn taki þátt f þeim kappleik.
Séra Oddur V. Gíslason frá
Icelandic River, biður oss að geta
þess, að 6. sunnudag e. Trinitatis
10 Júlf, embættar hann hjá söfnuði
sínum í Wild Oak og Big Point,
Man., ferðast þar um sem prestur,
trúboði og læknir.
Hann viðhefur “ Adkin’s ” að-
ferðina, sem fullnuma í Yitaology
o. fl. frá “lnstitute of Physicians
and Surgeons,” New York, sam-
kvæmt Diploma af 23. marz 1904.