Heimskringla - 07.07.1904, Blaðsíða 2
HEIMSKRINGLA 7. JTJLÍ 1904
Heimskringla.
PUBLISHED BY
Tb Heimskringla N'ew^i Pablishing Co.
Verö blaösins í Canada og Bandar. $2.00 um Arið
(fyrir framborgaö). Senttil íslands (fyrirfram
borgaö af kaupendum blaösins hér) $1.50.
Peningar sendist í P. O. Money Order Registered
Letter eöa Express Money Order. Bankaévís-
Onir á aöra banka en 1 Winnipeg aö eins teknar
meö afföllum-.
B. L. BALDWINSON.
—i Editor & Manager ^
OFFICE :
727 Sherbrooke St., JVinnipeg
P. O. BOX 116.
Stefnufesta
Stefnufesta ber ætfð vott um
lunderni mannsins og staðfestu 1
karakter, og þykir hið bezta ein-
kenni á mönnum, félögum, flokk-
um og f>jóðum. Stefnufestan ber
og vott um skarpskygni, framsýni
eða hagsýni, eða hvað sem menn
vilja nefna það. Þegar maður tek-
ur sér fastákveðna stefnu í ein-
hverju máli, þá er jafnan svo, að
hann hefir hugsað pað mál til hlýt-
ar og komist að ákveðinni niður-
stöðu í því, og samkvæmt þeirri
niðurstöðu hefir hann svo myndað
stefnu sína og ásetning að vinna
henni braut til sigurs. Og f>að fer
einatt svo, að f>egar stöðugt er unn-
ið að sama marki, fá verður til-
ganginum náð fyr eða síðar. Fólk
lærir að þekkja og meta hvem
þann, er svo vinnur; lærir að bera
traust til hans og virðingu fyrir
honum. Slfkum mönnum græðast
vinir úr óvæntustu áttum og fylgi
þeirra vex því meir, sem þeir eru
lengur, meira og betur f>ektir.
Þetta eru áreiðanlegu mennirnir,
menn vita ætfð, hvað f>eir em og
hvar f>á er að finna, En f>eir þar
á móti, sem þekktir eru að hringl-
anda hætti og stefnuleysf, hvorki
ná nö verðskukla tiltrú og virðingu
meðbræðra sinna. Stefnuleysi
þeirra lýsir jafnan karakterleysi,
hugsana sljóleik og lævfsum hugs-
unarhætti eða þankagangi. Slíkir
menn berast eins og lauf fyrir
vindi; þeir eru liér í dag og þar á
morgun; enginn veit með neinni
vissu, hvenær eða hvar þá er að
finna f nokkru máli. Þeir vita
sjálfir ekki vilja sinn stundu leng-
úr. Slíkir menn era í engu áreið-
anlegir. Það sem gildir um ein-
staklinga, gildir og um flokka í
þessu efni.
í Canada eru aðeins tveir stór-
flokkar, sem hér skal getið. stjórn-
málaflokkarnir, sem skiftast á um
völdin í ríkinu:
Conservative - flokkurinn hefir
eina stefnu, verndartolla stefnuna,
sem hann telur óumflýjanlega fyrir
vöxt og viðgang rfkisins, þvf sú
stefna virtnur tvent í einu: I fyrsta
♦
lagi veitir liún rfkinu á hagfeld-
astan hátt f>ær inntektir, sem nauð-
synlegar eru til f>ess að liægt sé að
auka árlega og bæta opinber al-
menn þarfa fyrirtæki, svo Sem
skipaskurði, hafnbætur, herafla,
járnbrautir, póstflutninga og fleira.
Og í öðru lagi hefir stefna sú það
til sfns ágætis, að hún verndar og
eykur iðnað í landinu, sem miðar
til þess að auka atvinnu íbúanna
og launa þeim hæfilega fyrir starfa
sinn. En undir þessu tvennu:
nægum inntektum, lögðum á í rétt-
um hlutföllum við gjaldþol ein-
staklinga, og sfvaxandi atvinnu-
vegum, er gefi sívaxandi fjölda
fólks stöðuga vinnu með sæmileg-
um launum, er komin öll vellíðan
og framför hverrar þjóðar.
Engin þjóð hefir skilið þýðingu
og ágæti þessarar stefnu betur en
Bandaríkin, og engin f>jóð hefir
tekið meiri framförum en hún á
sfðasta aldarfjórðungi.
Þessa sömu stefnu hafa og Con-
servativar f Canada jafnan haft og
hafa enn. Þeir hafa aldrei breytt
frá henni og breyta ekki frá henni,
þegar þeir fá völdin næst. Flokk-
urinn stendur og fellur með henni,
og fbúar ríkisins vita upp á hár
hvemig stefnan hefir gefist hér í
Canada og annarstaðar, þar sem
hún hefir verið viðtekin og þeir
vita einnig, hvernig hún muni gef-
ast undir Conservative-flokknum,
þegar hann tekur næst við rfkis-
stjórn. Það er gersamlega þýð-
ingarlaust, að lialda því fram, áð
verndartolla stefnan auki verð
hlutanna, því f>að er sannreynt, að
svo er ekki, nema að mjög litlu
leyti og sú hækkun er meira en
bætt upp með hækkuðum vinnu-
launum. Aldrei hefir t. d. verið
dýrara að lifa hér f Manitoba held-
ur en einmitt nú, þegar frjálsverzl-
unar-stjórnin situr að völdum, og
engin verzlunarvara er að tiltölu
dýrari liér í borg en eldiviður, sem
þó er tollfrf, eða því sem næst.
D/rleiki lffsnauðsynja fer als ekki
eftir því, hve hár eða lágur tollur
er á hverri sérstakri vörutegund,
heldur eftir innanlands samkepni
á eina hlið, sem jafnan hefir þær
afleiðingar, að færa verðið niður á
lægstu tröppu, og verzlunar samtök
kaupmanna á hina hlið, sem ætfð
miðar að þvf, að halda vörunum í
sem hæðstu verði. En verndar-
tolla stefnan hefir þann aðaltil-
gang, að auka iðnað og atvinnu í
landinu, og að halda innfluttum
keppi-varningi í því verði, að hann
ekki eyðileggi innlenda iðnaðinn,
en verðið miðað við framleiðslu-
kostnað og sá kostnaður bygður á
því principi, að verkalýðurinn hafi
jafnan sæmileg laun fyrirverk sitt.
Þetta er f>að sem nefnt er adequate
protection, eða nægileg tollvernd.
Þetta er og hefir ætíð verið stefna
flokksins, óbreytanleg og ævarandi,
eamsvarandi ríkjandi stefnu Banda-
ríkjanna.
Hinn svo nefndi frjálslyndi
flokkur, eða frjálsverzlunar flokk-
urinn í Canada, hefir þar á móti
ekki síðan hann varð til, haft neina
fastsetta stefnu f stjórnmálum.
Þeir herrar hafa hringlað frá einni
stefnu til annarar og haft ýmist
nýja eða mjög breytta stefnu frá
þvf, sem óður var, fyrir hverjar
kosningar.
Til dœmis má geta f>ess, að Sir
Wilfrid Laurir var tollverndunar-
maður fyrir árið 1878. Svo breytti
hann skoðun sinni og hélt fram ó-
takmörkuðum vömskiftum við all-
ar þjóðir og írjálsverzlun á megin-
landi Ameríku. Þessa stefnu hélt
hann við um tfma, en f>ó varð hún
skammlíf f huga hans, og f>á tók
við frjálsverzlunarstefnan eins og
hún er á Englandi; en sú stefna er
f>annig samsett, að það eru inn- og
útflutningstollar og beinir skattar.
Með f>essari stefnu á fána sínum,
og dauðadópisákvæði yfir tollvernd-
unarstefnunni, vann flokkur hans
kosningar 1896. Sfðan hefir stefn-
an breytst, svo að nú er liún f raun
réttri orðin vemdartolla stefna, en
þó svo laus og óákveðin, að engin
trygging er fyrir {>vf. að hún verði
að gagni. Sir Wilfrid Laurier
sagði f fyrra, að hann væri hvorki
tollvemdunar- né frjálsverzlunar-
maður og að hann væri alt af að
verða meira conservative með aldr-
inum, og er það eðlilegt, eftir þvf,
sem hann vex að lífsreynslu og
hags/ni. En á þessu yfistandandi
þingi sagði hann fyrir fáum dög-
um: “Yér höfum breytt stefnu
vorri samkvæmt þeim örðugleikum,
sem hafa komið upp.” A ensku er
þetta svo í Hansard: “We have
altered our policy according to the
difficulties that arose.” þetta er
hin þægilegasta stefna, sem nokk-
ur flokkur getur haft, sú að sí-
breyta stefnu sinni eftir því, sem
flokkurinn telur sér happadr/gst í
það og p>að skiftið; en þessi stefna
er í sannleika ekki annað en 'stefnu-
leysi. Og svo hefir það jafnan
verið fyrir Liberal-flokknum, að
hann hefir enga fastákveðna stefnu
haft í ríkismálum frá {>ví fyrsta, að
hann var til alt fram á þennandag,
og því er öll framtíðar stefna þess
flokks óviss í hæðsta máta. Það
eina, sem er algerlega áreiðanlegt,
er það, að aðal-liður í stefnuskrá
þess flokks, frjálsverzlunarstefn-
an, er nú algerlega yfirgefin og í
hennar stað tekin upp tollverndun-
arstefnan, einmitt það, sem Con-
servatives hafa ætíð barist fyrir.
En með þessari breytingu er játað,
að frjálsverzlunar hugsjón Liberals
á liðnum árum hafi verið á sandi
bygð. Hún var handhægt meðal
til að beita meðan flokkurinn var
ábyrgðarlaus í þinginu, og til að
kasta því sem ryki í augu almenn-
ings. En með ábyrgðinni, sem
völdunum fylgir, hefir sú reynd
á orðið, að Free Trade er í fram-
kvæmdinni eins ómöguleg, eins
óg hugsunin, sem hún er bygð á,
er óhagsýn. Þó má vænta þess, að
flokkurinn haldi áfram að kalla sig
frjálsverzlunarfiokk eða framfara-
flokk, ekki vegna þess, að {>að nafn
sé 1/singarorð á stefnu flokksins,
heldur vegna þess, að orðin eru að-
laðandi og hæna að sér fáfræðinga
og ósjálfstæða vesalinga, sem hægt
er að nota á kjördegi.
Enda mun flokknum ekki af
veita við næstu kosningar.
Atriðia
Lítill efi leikur á þvf, að ríkis-
kosningar í Canada verði látnar
fara fram í haust. Það eru allmörg
atriði, sem að því lúta, að heppi-
legt sé að bera það undir þjóðina,
liverja stefnu hún vilji viðtaka í
ráðsmensku ríkisins, og undir þeim
úrskurði er það komið hvor flokk-
urinn situr framvegi# að völdum.
Grand Trunk Pacific brautar-
málið er að svo miklu leyti útkljáð, ]
að allur þorri manna skilur mis-1
muninn á stefnu flokkanna í f>ví. j
Conservatives heimta, að þjóðin
byggi brautina á eigin kostnað og ]
eigi hana og ráði starfsemi hennar. j
En Liberals vilja liafa hana eign
prívat félags, f>ó ríkið leggi fram i
alt nauðsynlegt fé til að byggja;
hana. Hér er munurinn svo Ijós,
að engum f>arf að missýnast, og
það mun óhætt að fullyrða, að all- ]
ur þorri landsmanna sé með þjóð-
eignarstefnu Conservative-flpkks- ]
ins.
Nýjasta, ljótasta og, ef svo mætti j
að orði kornast, glæpsamlegasta at-
riðið f stefnu Liberal-stjómarinnar ]
í Ottawa eru afskifti hennar af ]
hermáluin ríkisins. Hermálin eru i
viðurkend að vera f>ess eðlis, að
flokkshagur ætti ekki að ráða f>ar
lögum. Varnartæki landsins eru
þess eðlis, að þau eru einkis flokks
sérstaklega, heldur allrar þjóðarinn- j
ar f heild sinni. Þessvegna eiga
þau mál öll að vera í hðndum her-
foringja, sem hafa þekkingu á f>eim
málum, og án afskifta stjórnarráð-
herranna. En nú hefir yfirherfor- ]
inginn í Canada kvartað opinber- ]
lega undan því, að hann fái f>vf
ekki ráðið, að koma hermálum rfk-
] isins í viðunanlegt horf, vegna af-
j skiftasemi ráðgjafanna, sem láti
j flokksfylgi ráða í veitingum em-
| bætta og veiti fleiri embætti í hern-
j um, heldur en f>örf er á, f>vert ofan
í vilja herforingjans og aðeins til
f>ess, að veita vinum sínum dálitla
dúsu.
Þannig hefir herforinginn skýrt
frá f>vf, að við myndun einnar her-
deildar, sem nefnd er 13. Dragoons
herdeildin, hafi Laurier-stjórnin
j veitt eftirfylgjandi embætti:
7 Lieut.-Colonels,
3 Majors,
6 Captains,
4 Lieutenants,
27 Storekeepers and Armorers
5 Staff Sergeants og
29 Sergeants
j en almennir hermenn aðeins 34 í
j þessari herdeild.
) Herforinginn segir blátt áfram,
] að slfk embættaskipun finnist ekki
] í úeinni annari herdeild í heimi.
Þriðja atriðið er óánægja sú, sem
orðið hefir yfir afskiftum stjórnar-
innar af verkum herra McDougalls,
yfirskoðara rfkisreikninganna. Hr.
McDougall hefir haft f>etta starf
á hendi yfir 20 ár og ætfð f>ótt hinn
hæfasti, en Liberals álíta hann of
strangan í reikningsfærslunni, og
hafa f>ví bundið svo starfsemi hans,
að hann er f þann veginn að segja
af Sér embætti. Honum er sér-
lega ant um, að allir reikningar séu
sem réttastir og að allar penínga-
sakir fari formlega fram; hann vill
ekki, að nein útgjöld séu gerð nema
þau, sem rfkið fær eitthvað fyrir.
En ráðgjafarnir eru á öðru máli, og
út af f>ví er óánægjan. Þeir segj-
ast liafa vakl til að haga útgjöldun-
um eftir eigin höfði, en hann telur
f>au háð ákveðnum lögum, sem ekki
megi út af breyta, og telur {>að
skyldu sfna að varðveita rfkissjóðj
inn gegn ágangi flokksvina stjórn-
arinnar, en fær engu ráðið í þá átt,
og telur f>ví f>ann kost beztan, að
hætta starfinu.
Fjórða atriðið er um ráðningu
verkfræðinga í sambandi við Gr. T.
j P. brautina. Jíannsókn hefir verið
hafin í þvf máli vfðscegar hér í
i Norðvesturlandinu og f>að sannað,
að yfirverkfræðingar brautarinnar
hafa látið Bandarfkjamenn sitja
fyrir öllum bezt launuðu stöðunum
í landmælinga- og verkfræði-deild-
unum; þeir hafa bréflega lýst yfir
því, að þeir yrðu að fá alla vits-
muni og þekkingu að sunnan (Im-
port American brains), en hafa
stungið undir stól tilboðum hæfari
manna, er voru brezkir þegnar, og
neitað að veita peim stöður. Að
vísu hafa þeir játað það fyrir rann-
sóknardómaranum, að f>etta hafi
verið rangt af sör. En það hefir
ekki minkað óánægjuna yfir þvf,að
láta utanríkismenn sitja fyrir at-
vinnu og launum af því fé, sem að
miklu leyti er tekið úr rfkissjóði.
Mönnum finst, að ríkisfé ætti að
vera varið svo, að landsins eigin
f>egnar hefðu þess sem mest not,
en ekki að útlendingar séu látnir
skipa öll bezt launuðu embættin í
sambandi við J>essa brautarbygg-
ingu.
Hver breyting kann á þessu að
verða hér eftir, er ekki hægt að
segja; en komist Conservatives að
völdum, þá verða brezkir borgarar
látnir sitja fyrir öðrum við f>etta
verk.
Sagt er, að 15 Bandaríkja verk-
fræðingar verði látnir fara heim
aftur sem afleiðing af þessari rann-
sókn, og að Canada menn verði
látnir skipa þær stöður, sem þeir
höfðu.
Annars eru öll J>essi 4 atriði
þannig vaxin, að þau kasta hinum
mesta skugga á ráðsmensku núver-
andi stjórnar og hljóta að veíkja
tiltrú þjóðarinnar til hennar að
miklum mun.
Afstaða Socialista
í Japan gagnvait Japan-
Rússa stríðinu
Socialista blöðin í Amerfku taka
hvert eftir öðm eftirfylgjandi grein:
Afstaða Socialista í Japan gagn-
vart ófriðnum við Rússa hefir verið
ákveðin neitandi frá upphafi. Þeir
hafa verfð og eru á móti ófriði,
ekki aðeins við Rússa, heldur og
við allar aðrar J>jóðir. Það er má-
ske í fyrsta skifti, sem eins öflug
og alrnenn mótmæli gegn strfði
hafa heyrst í Japan. Socialistar
hófu þar róm sinn hátt og snjalt
mót strfði þessu. Sumir félags-
bræðurnir, sem unnu við eitt af
stærstu dagblöðunum í Tokio, höf-
uðborg Japans, yfirg&fu stöður sín-
ar út af þessu atriði Þeir hafa
síðan stofnað nýtt vikublað, sem er
ákveðið móti strfðinu og meðmælt
alsherjar friði meðal allra þjóða,
Blað þetta er að n& mikilli út-
breiðslu og er það vottur þess, að
stefna þess eigi við alþýðu hæfi.
Ennfremur halda Sócialistar opin-
bera andmælisfundi gegn þessurn
ófriði, bæði í Tokio og í grendinni,
og fá marga áheyrendur. Inngang-
ur að þeim fundum kostar 5 cents,
og veitir það nægar inntektir til að
bera kostnaðinn við þá, svo sem
húsaleigu og auglýsingar. Fyrsti
fundur var haldinn f Y. M. C. A.
byggingunni og varð þar húsfyllir.
Nokkrir voru þar meðmæltir strfð-
inu. Þeir reyndu að ón/ta fundinn,
en gátu {>að ekki. Blöð og fólk
landsins alment undrast yfir því,
live vel öocialistum gengur að
halda máli sínu á lofti, því margir
hugðu, að þeir hefðu ekki afl til
þess og mundu ekki þora J>að á
þessu sérstaka tímabili, af þvf að
hernaðar hugurinn er svo rfkjandi
hjá mestum fjölda pjóðarinnar.
Socialistar í Japan hafa sömu
stefnu og lagsbræður fæirra á
Þýzkalíffidi höfðu meðan stóð á
stríðinu milli Frakka og Þjóðverja.
Sú stefna hefir verið rædd og aug-
1/st á öllum fundum Socialista f
Japan og samþykt af {>eim.
En að því er snertir afleiðingar
{>essa stríðs fyrir verkamanna flokk-
inn, þá er það víst, að japanskir
verkamenn munu vakna til meðvit-
undar um, að þær verða allar f>eim
f óhag. Margir J>eirra vita, að
hemaðurinn við Kínverja færði
{>eim enga blessun í bú. Að vísu
er {>að satt, að strfð þau, sem, Jap-
anar hafa háð, hafa miðað til þess,
að auka atvinnu pjóðarinnar. En
samt sem áður hefir barát.ta peirra
fyrir daglegu brauði harðnað með
ári liverju og er nú miklu örðugri
en áður en strfðið við Kínverja
hófst. Japan fékk miklar skaða-
bætur frá Kínaveldi, en það bætti
ekki hag verkalýðsins. Þeir verða
að framleiða miklu meira en áður
til að viðlialda auknum herafla og
sjóflota. Margir verkamenn lialda
því fram, að hrísgrjón liækki í
verði vegna stríðanna, en að verka-
laun liækki ekki að sarna skapi
fyrst um sinn, nema ef vera skyldi ]
aðeins {>eirra, sem eru í beinu sam-
band, við herinn. Það er öllum
kunnugt, að í stríðinu við Kfna, {>á
voru það japanskir verkamenn, sem
börðust, en launin og lieiðurs-
merkin fyrir vinninginn gengu til
þeirra, sem ekki börðust.
Verkamenn og Socialistar and-
mæla núverandi strfði við Rússa
af þessum ástæðum:
1. Það eru verkamenn eingöngu,
sem vinna að undirbúningi
hernaðarins á sjó og landi og
sem halda hernum við. Flestir
japanskir hermenneru úr flokki
verkamanna.
2.1 stríðinu verða það flestir
verkamenn sem falla og þeirra
flokkur bfður mestan skaða af
því.
3. Að enduðu stríðinu verða f>að
verkamenn, sem verða að erfiða
fyrir þeim kostnaði, sem stríðið
bakar þjóðinni, og, ef til vill,
einnig fyrir frekari aukning
hersius með öllum {>eim kostn-
aði, sem því fylgir.
4. Japanskir verkamenn verða að
berjast móti rússneskum verka-
mönnum, sem þeir eiga ekkert
sökótt við.
Hernaður þessi fer fram á ómann-
úðlegan liátt. Eg er á móti {>essu
strfði, en sem japanskur borgari
vil ég ekki vita Japan bíða ósigur
fyrir Rússum, sem að undanförnu
hafa ofsótt Gryðinga í Kishineff,
eins og öllum heimi er kunnugt, og
sem á yfirstandandi tíma breyta
við Finnland á hinn ómannúðleg-
asta og ofbeldisfylsta hátt, og sem
hafa f>að fyrir fasta reglu, að skjóta
niður verkamanna flokkinn á tfm-
um verkfalla. Umfram alt óska
ég, að stríð þetta megi enda sem
fyrst, og ósk mín er, að verkamenn
beggja landanna geti opnað augu
sfn fyrir hinum sönnu afleiðingum
hemaðarins, og að þeir megi taka
höndum saman til að andmæla
gerðum og áhrifum auðflokks
stjórna þeirra, sem eingöngu er or-
sök allra stríða.
Sen. Katayama (Voice)
Lárus minn oe land-
námabók
Lárus minn Gruðmundsson í Dul-
uth hefir skrifað langt mál í Hkr.
um Landnámabók Vestur Islend-
inga. Eg er þess fullviss, að marg-
ir lesa f>að. Nokkurir munu lasta,
en aðrir mæla, að vel megi þetta
svona vera. Þetta er eitt af als-
herjarmálain Vestmanna, og er þá
vel, ef rætt er af þekkingu og sögu-
ást. Ekki beini ég f>ví að Lárusi
mfnum, að hann ræði málið af
þekkingarleysi, eins langt og hans
þokking nær. Ég hefi lesið rit-
smíðið í flaustri og flýti. Það horf-
ir svona við mér: Lárus minn
vill rita um rnálið og styðja J>að af
megni. Hann vill lfka eiga hlut
að máli um meðferð sögu stíls. Og
vænst þætti honum um það, að
ráða menn til starfans. Og hvl
skyldi hann ekki mega gera það,
ef alt fer með feldu. Eg er f>ví
samþykkur, að Lárus minn megi
annast þetta alt saman, og fá að
hafa alt eftirlit með prentun, út-
gáfu og sölu. Auðvitað er ég um
leið sjálfsagður til að vera með því,
að það megi eins margir Lárusar
og Ameríka á til, á íslenzka vfsu,
gefa út sína Landnámabókina liver.
En J>að get ég sagt Lárusi nifnum f
Duluth, að það verður engin Land-
náma skrifuð á næstu fimtíu áriim,
að einu eða öðru lík Landnámu
Ara prests hins fróða. Það er samt
svo sein ekki stórir Þrándar í göt-
unni. Aðeins fáfræði framundan
og félaga spilling á bak við. Heil-
skygnir menn sjá dæmin í brotum
framan við sig, á því litla, sem um
það efni hefir verið ritað. Og læt
ög svo fulltalað um Landnámabók
Lárusar míns að f>esSu sinni.
En einu varnaryrði vildi ég
skjóta inn fyrir Ara prest liinn
fróða í þetta sinn, því karlinn ligg-
ur nú of fjarri til svara. Lárus
minn sýnir fram á rithátt Ara með
dæmum. “Skýtst þó skýr sö.” í