Heimskringla - 25.08.1904, Qupperneq 3
HEIMSKRINGLA 25. ÁGÚST 1904
brautir eru nú lagðar frá Reykja-
vfk austur yfir þvert Suðurlands-
undirlendið, til Þingvalla og víða
annarsstaðar, bæði áNorður-, Aust-
ur- og Vesturlandi. En fyrir þrjá
tíu árum voru brýr eða upphleyptir
vegir ekki tíl, aðeins vegaslóðar
illfærir fyrir hesta, þó svo þeir
væru ruddir eða stærstu steinum
kastað úr götunni 5—8 hvert ár.
Þá komum vér næst að atvinnu-
vegunum, sem vér getum skift í
landbúnað, fiskiveiðar, verzlun og
iðnað.
Vér höfum heyrt kvartað um það
sfðustu árin, að landbúnaður væri
í afturför, sem stafaði af því. að
fólk þyrptist til sjávarins, og er það
að nokkru leyti rétt, því að margar
jarðir leggjast í eyði, en það kem-
ur af þvf, að fiskiveiðar taka fijót-
ari framförum enn landbúnaðurinn,
svo í hlutfalli við þær fer honum
aftur, en í virkilegleikanum hefir
hann tekið miklum framförum, sem
sýnir sig bezt á því, hve miklar
jarðabætur hafa verið gerðar á
þessu tfmabili. Áður fyrri datt
engum í hug að slétta tún sín, en
nú er mjög víða búið að slétta þaú
öll. Vatni er veitt á mýrarnar með
áveituskurðum og blautar mýrar
þurkaðar upp. Heyhlöður eru nú
orðnar algengar um alt land, og það
sparar vinnukraft sem svarar |
manni á 15 hundraða jörð. Ibúðar-
hús eru nú vfða úr timbri, klædd
með járni, og öll gripahús, og hirð-
ing og meðferð gripanna er mikið
betri. Auk þess er nú búið að
setja á stofn smjörgerðarhús í mörg-
um sveitum, og sfðasta ár fékst
þétt að þvf eins mikið fyrir íslenskt
smjör á Englandi eins og danskt
smjör, sem bezt er álitið um allan
heim. Á mörgum stöðum er farið
að nota plóg og herfi til jarðabóta
og sláttuvélar, þar sem hægt er að
komaþeim við,en því miðurerþað
ekki vfða. Skdvindur eru nú næst-
um á hverjum bæ. Þetta eru mikl-
ar framfarir á þrjátíu árum, en þó
hafa fisjiiveiðarnar tekið meiri
framförum. I staðinn fyrir að róa
til fiskjar á smábátum, einsog sið-
ur var, sem aftur gerði það að verk-
um, að ekki var hægt að sækja sjó-
inn nema í góðu veðri, fiska menn
nú á þilskipum víðast hvar, og að-
eins f Reykjavík og grendinni eru
milli 60 og 70 slík fiskiskip með 18
til 20 manns “undir lfnu,” sem sjó-
menn kalla, að jafnaði. Islending-
ar eru jafnvel farnir að reyna að
fiska á gufubátum með botnvörp-
um, sem þó var fyrst byrjað á fyr-
ir 20—25 árum á Englandi, en
hvort þeim hepnast' það vel eða
það borgar sig fyrir landið er ekki
fullreynt enn. Það má heita, að
fiskiveiðarnar séu komnar f eins
gott horf hjá oss og flestum öðrum
þjóðum.
Verzlunin hefir einnig tekið
miklum framförum þessi síðustu
ár, einkum að því leyti, að láns-
verzlunin hefir minkað, og sum-
staðar, t. d. Reykjavfk, hætt með
öllu. Allir kaupmenn verða nú að
búa f landinu sjálfu, en áður voru
flestar verzlanir eign útlendra
prangara, svo allur ágóðinn af þeim
fór út úr landinu. Verð á vörum
liefir batnað afarmikið, af þvf að
samgöngur eru nú betri og sam-
kepnin meiri, en einkum sökum
þess, að lánsverzlunin er afnumin.
Iðnaður hefir ekki verið mikill á
Islandi á sfðustu öldum og er enn
á fremvir lágu stigi, en þó hefir
hann tekið uokkrum_ umbótum,
einkum á síðustu árum. Það sem
oss rfður mest á, er að geta unnið
ullina f landinu sjálfu, þvf það
borgar sig illa, að senda hana til
Ameríku og kaupa aftur ullarvöru
frá Englandi og Þjóðverjalandi.
Til þess að bæta úr þessu hafa ull-
.arverksmiðjur verið settar á sfcofn
bæði á Norður- og Suðurlaiuli og
klæðaverksmiðja hjá Reykjavík
Klæðavefksmiðjan var reist síðast-
liðið ár og lftur út fyrir, iið hún
ætli ,að hepnast mjög vel. Sauina
vélar og prjónavélar, sem nú eru
orðniir algengar um land alt, þekt-
ust naumast fyrir þrjátíu árum,
osfrv.
Er vér lítum á menningarástand-
ið í landinu, sjáuin vér einnig þar
stórkostlegar framfarir á þessu
þrjítfu ára tímabili, ekki svo að
skilja, að vvr höfum meiri aiullega
hæfilegleikamenn nú, en vér höfð-
um áður, þvert á móti voru slfk
mikilmenni uppi á fyrri helming
slðustu aldar, að engir þeir, sem
nú lifa, geta jafnast á við þá. Þá
lifðu stærstu skáld landsins. Þá
byrjar Jón Sigurðsson hið mikla
starf sitt, stjórnfrelsisbaráttuna,
sem hann að nokkru leyti fékk lok-
ið 1874, Enn það er alþýðument-
unin, sem hefir tekið framförum,
áður þótti rneir en nóg að læra að
lesa, allur þorri manna kunni
naumast að rita nafnið sitt eða
reikna einfalt reikningsdæmi. Nú
ganga næstum öll börn á bama-
skóla. Auk þess hefir fjöldi af al-
þýðu gengið annaðhvort á búnað-
arskóla eða gagnfræðaskóla og
fengið þar nokkuð meiri mentun;
en lftið var um slíka skóla fyrir
þrjátfu árum. Nú era þeir 6 áland-
inu. Barnaskólar voru ekki marg-
ir heldur fytir þann tfma, en nú
eru góðir barnaskólar íöllum kaup-
túnum eða þar sem þéttbýlt er.
J afnvel hærri mentastofnanir lands-
ins hafa breytt kenslunni til batn-
aðar, þ.e., leggja meiri áherzlu á
það “praktiska” eða það sem getur
orðið að notum f lffinu, t. d. lifandi
mál, náttúrufræði og landafræði,
en minni áherzlu á það, sem síður
verður notað í lífinu, t. d. gömlu
dauðu málin. Svona er það á
lærðaskólanum og í sömu átt hafa
hinir skólarnir breyst.
Auk als þessa mætti nefna mikl
ar bæði andlegar og verklegai; Iram-
farir, en þessi dæmi nægja til þess
að geta gert sér grein fyrir hvort
landið á framtíð eða ekki, en þó
ber að yfirvega eitt atriði enn ná-
kyæmar af því það á svo mikinn
þátt f framförum sérhvers lands, og
það er sjálfur liugsunarháttur þjóð
arinnar.
Hugsunarháttur Islendinga hefir
tekið miklum breytingum á þessu
tfmabili eins og sést greinilega
hvað viðvíkur hjátrú og hleypidóm-
um og skoðun manna á vínnautn.
Fyrir þrjátfu árum síu menn vof-
ur, drauga og afturgöngur bæði að
degi og nóttu og víða var ekki á-
li ið fært út, er rökkva tók, fyrir
þessu illþýði, sem flæktist fyrir
fótum manns eða gerði manni ann-
an óskunda. Huldufólk bjó í
hverjum hólog áhætta var að skilja
ungbörn eftir ein, þvf huldufólkið
gat þá m'iske komið og skift á
biirnunuui. Nú eru þesskonar
hindurvitni horfin með öllu vfðast
hvar. Áður þótti gott og sjJfsagt
að drekka áfenga drykki, sá var,
ekki álitinn maður með mönnum,
sem ekki gat eða vildi “vera með,”
sem kallað var, en nú er það álitin
minkun að drekka og vottur um
lágan hugsunarhátt eða lítilmensku
ef maður drekkur sig drukkinn.
Gleðilegt er þó það, að traustið
á landinu sjálfn hefir aukist hjá al-
þýðu sfðustu árin, þrátt fyrir marg-
ar tilraunir, sem gerðar hafa verið
til þess að svifta hana þvf. Til
allrar hamingju er þjóðin sjálf orð-
in svo andlega þroskuð, að hún er
fær að dæma um sjálfa sig og vega
Efialtesana á rétta vog og finna þá
léttvæga.
Er vér nú liöfum séð slfkar fram-
farir í allar áttir skulum vér yfir-
vega hvers vér megum vænta á
næstu þrjátfu árum.
Áður en þau eru liðin getur
maður gert ráð fyiir, að fólkstalan
verði um' 100,000 manns að minsta
kosti. því að fólki fjölgar því meir,
því betur sem þjóðinni líður, og
auk þess verður vesturflutningur
vafalaust mikið minni á næstu
þrjátfu árum, enn hanu hefir verið
á síðustu þrjátíu árum, þvf að eftir
10—15 ár verður hann varla telj-
andi, ef nokkuð er að marka útlitið.
Að fáum árum liðnum hættir nefni-
lega Canadastjórn að halda úti
agentum til þess að smala fólki
hingað, j>vf að landið eða það bezta
af því fer að verða bygt að mestu
leyti og þá er líklegt að þeim þyki
ekki bót f að f stóra skara af inn-
flytjendum inn í landið úr því, og
fyrir innflytjendurna sjálfa verður
lítill fengur að koma hitigað, ef þeir
ekki geta lengið dágott land. En af
því hlvtur að leiða, að Islatid tajiar
færri af sonuin sínuui og dætruni
liingað vestur um haf. Áður langt
um líður munu og allir sjáogskilja
að Island getur veitt börnum sín-
25 cents punds kanna
— 3 verölaunamlöar i
hverri könnu.
PENINGAR |
r: .lanHHHDMHataaHKaHBM ^
og Bökunarefni, Egg, Mjöl og
fleira sparast ineð þvf að nota =2
iíi i k hii:iío\ nuiJH! rmvoeK I
sem ætfð hepnast vel. Engin -«
vonbrigði vib bökun, þegar ^
það er notað. Biðjið matsal-
ann um það.
' » Blue Ribbon Hfg., Co.
WINNIPEG. — — MANITOBA
‘T. L,’ Cigar
er laugt á undan, menn ættu ekki að reykja
aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá :
WESTERN CIGAR FACTORY
Tho*. Lee, eigandi. AA7~TT\T TsTTT^Tr1. CT
um það, sem önnur lönd geta veitt
þeim, og það framyfir, að þau finna
að þau eigi þar heima, en era ekki
útlendingar eða gestir án heimilis
á sfnu eigin heimili.
Hvort stjórnarfar Islands tekur
miklum umbótum á þessum tíma,
er ómögulegt að segja, en mikils
má maður vænta af þessu nýja
stjórnarfyrirkomulagi, ef það full-
nægir þeim vonum, sem landsmenn
hafa gert sér um það, allur þorriim
að minsta kosti, og lfklegt er að það
geti, ef ráðgjafinn er sfnu starfi
vaxinn, sem ennþá er ekki hægt að
segja neitt um hvorki af eða á.
En hitt er gefið að samgöngur,
einkum á sjó, hljóta að taka afar-
miklum framförum, þvf að fyrst
nú er Samkepni að byrja milli gufu-
skipafélaga um ferðir og flutning
til Islands. Vel gæti ég líka trúað
því, að járnbraut yrði komin yfir
landið áður þrjátfu ár eru liðin hér
frá, enda þótt vér sem stendur höf-
um lítið við járnbrautir að gera,
er vér getum notað sjóinn til flutn-
jnga og ferða. Innan fárra ára
verðum vér og búin að f4 ritsíma
til annara landa.
Sama er að segja um allar at-
vinnugreinir, þær stfga stór skref í
framfaraáttina næstu árin. Vér
förum að nota meir vélar og nátt-
úruöfl en spara mannsaflið. Nú
sem stendur er mikil áherzla lögð á
að reynaað endurbæta búnaðarverk-
færin, svo þau verði hentug fyrir
Island, og vonandi er búið að end-
urbæta svo sláttuvélina að vér get-
um notað hana á sléttum túnum,
sem ekki hefir verið liægt hingað
til, og ef svo reynist eru það svo
þyðingarmiklar umbætur fyrir Is-
land, að ekki er hægt að gera sér
greinlega hugmynd um það.
Hvað viðvfkur sjávarútveg era
allar líkur til að vér fylgjumst þar
með öðrum þjóðum f öllum fram-
förum og umbótum sem kuuna að
verða í framtíðinni.
Iðnaðurinn er enn í barndómi,
en þar eð liann er byrjaður að
þroskast og öll slfk fyrirtæki hepn-
ast vel, er óhætt að fullyrða. að
hann verður kominn í gott liorf áð-
ur þrjátíu ár eru liðin, Þá verður
farið að nota fossana, sem nóg er
af, til þess að knýja með vélar, lýsa
upp bæi, osfrv.
Þá eru fjöllin okkar. Nú er það
áreiðanlega víst, að dýrir málmar
eru til f landinu, og fyrst svo er
má maður þó vona að það felist
málmæðar f þeim, sem máske finn-
ast áður mörg ár eru liðin, þótt
þær séu nú huldar sjónum vorum.
Þannig er það svo óendanlega
margt, sem bendir oss á að Island
á dýrðlega framtfð fyrir höndum.
Laudið hefir fyr meir getað fætt
fleiri enn á því búa nú, og það get-
ur [>að enn, já eftir nokkur ár get-
ur það fætt margfalt fleiri, en til
þess útheiuitist vinna þar eins og
annarsstaðar.
Bagan sýnir oss að þjóðiu hefir
ætfð elskað land sitt, frægð og
tungu, og hefir þrátt fyrir miklar
þrautir og marga ertiðleika tekist
að varðveita alt þetta til þessa
dags. En hitt er einnig ljóst af
sögunni, að allar andlegar lireyf-
ingar eru seinar að festa rætur í
hjörtum þjóðarinnar og seinar að
hverfa aftur, er þær einu sinni liafa
fest rætur, þessvegna nuindi það
vera óeðlilegt, ef Islendingar nú
fremur en endrarnær gr pu strax
við liverri nýbreytni, hvort heldur
hún er góð eða ill. V' r verðum að
láta 033 skiljast |>að. að aðeins
hugsaðar og yfirvegaðar endurbæt-
ur geta fengið inngöngu í landið
og þessvegna verðuun vér tiltölu-
lega seinni í framfaraáttiqa enn
margar aðrar þjóðir, sem grfpa við
öllu nýju með fegins hendi.
Þeir af yður, sem elska ættland
sitt, frægð þess og tungu, ættu að
muna að vér heima eigum við
marga erfiðleika að berjast og þó
vér höfum nú sigrast á mörgum
þeirra eru margir enn að berjast
við, svo þér ættuð aldrei að letja
neinn í baráttunni eða hvetja til
að hlaupa undan merkjum; það er
ætfð svo auðvelt og girnilegt að
draga sjálfan sig f hlé í stríði og
hvetja aðra til þess að gera það
sama, en þeir sem gera það ættu
að muna, að það sem þeir flýja
hlýtur óumflýjanlega að lenda á
öðrum. Reynið lieldur að hvetja
menn til drengilegrar framgöngu
og leggið sjálfir hönd f bagga með,
til þess að þér getið verið glaðir
við meðvitundina um að þér hafið
gert ykkar til að reisa við þetta
kúgaða land og geynia eftirkomend-
unum dyran gimstein: ísland með
sögu þess og tungu.
Lengi lifi Island !
ÍSLAND.
Þjóðviljin frain að 19. Júlí flyt-
ur eftirfylgjandi fréttir.
Blaðið Norðurland skiftir um
ritstjóra. Herra Einar Hjörleifsson
sleppir ritstjórninni á komandi
hausti, en bróðir hans Sigurður
Hjörleifsion kemur f lians stað, og
afsalar sér f því skyni, læknis em-
bættinu í Höfðahverfi. Sigurður
er talin vel ritfær maður og fróður
um landsmál.
Hákarlaskipið “Kristian” frá
Akureyri er sagt að hafa farist í
uppstigningar hretinu, með 12
manns, alla úr Svarfarðardal f
Eyjafjarðarsýslu. Skipstjóri Sig-
urður Halldórsson, bóndi á Grund
kvæntur; stýrimaður Sigfús Björns-
son frá Brekku, kvæntur. Hásetar
voru þeir Arngrfmur Sigurðsson
á Grund, Halldór Þórarinsson og
Sigurður .Jónsson báðir frá Syðra
Garðshorni, Jón Jónsson og Stefán
Jónsson, báðir frá Miðkoti. Rögn-
valdur Jónsson frá Skeggjastöðum,
kvæntur; Jón Jónsson á Ytra
hvarfi, Sigfús Bergsson frá Hofsá,
Björa Björnsonfrá Hóliog Magnús
Jónsson frá Upsum, flest r'iskir
menn á bezta aldri.
Prestaþingið haldið í Reykja-
vfk 28. Júnf s. 1. Meðal atinars
var þar rætt um það að prestur
einn var í S/nódus rétti dæmdur
f 10 króna sekt fyrir að hafa
gefið saman f hjónaband persón-
ur úr öðru prestakalli.
Fyrirlestrar um biblfu rann-
sóknir og um sameinun milli
presta og safnaða, voru þar
r;eddir. svo var og rætt um
þverrandi notkun altarissakrament-
isins á Isiandi.
Endurskoðarar við Islands
Banka eru: JuliuXHhvsteinn amt
maður og Indriði revisor Einar-
son, með 500 króna þókimn hvor.
8. Júlf i veðrátta fremur storma-
söiii og hlýjulítil nema þar sem
sólar nýtur. Grasspretta samt
viðast orðin í bezta lagi suimaii-
lands.
Skæð burnaveiki hefir gengið f
Snæfellssýslu. Nokkur börn hafa
dáið úr/henni.
Þeir. sem vilja eignast ritið "Ný
Dagsbrún”, geta iiantað það hjá
niér.
Einar Olafsstni,
699 Iíoss stnet
Mr. Guðmundur Sigurðsson, frá j
Seyðisfirði, N.-Múlasýslu, nýkom-
inn til Winnipeg, óskar að fá að
vita hvar faðir hans, Sigurður Sig-
urðsson frá Björgvin á Seyðisfirði,
á nú heima. Skrifið til Guðin. Sig-
urðssonar, 644 Beverley St., Wpeg.
HERBERGI TIL LEIGU, 584
Sherbrook St.
Veðrátta er blaut, stormasöm og
hvikul, fólki er þess vegna hætt
við köldu,kvefi, hæsi og brjóstsjúk-
dómum. Beztu meðidin eru Dr.
Eldridge hóstameðulin. Þau bregð
aát aldrei, séu þau tekin í tfma.
Þau fást hjá Kr. A. Benediktssyni
409 Young st.
FYRIRSPURN
um hvar Olafur Gunnar, sonnr
Kristjáns sál. Sigurðssonar Back-
manns er niðurkominn.
Kristján sál. faðir Olafs mun
hafa flutt frá Meðalheimi á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð til Ont.,
Canada, og þaðan aftur til Nfja Is
lands, Man., á fyrstu árum land-
náms þar, og svo þaðan hmgað
suður í Vfkurbýgð, N. Dak., og dó
hér síðastl. ár og lét eftir sig tals-
verðar eignir, og er ég gæzlumaður
þeirra á meðan þessi meðerfingi
er ekki fundlnn, eða þar til skyl-
yrði laganna er fullnægt.
Sé því nokkur, sem veit um
þennan Olaf Gunnar. óska ég hann
geri svo vel og láti mig vita það.
Mountain, N, D. 28. Febr. 1904.
ELIS THORWALDSON.
Giftingaleyfisbrjef
selur Kr. Ásg. Benediktsson,
409 Youug Street
Tveir kenearar
óskast — annar með fyrstu ein-
kunn, helzt karlmaður, og liinn
með aðra einkunn, helzt kvenn-
maður. Kensla býrjar 1. sept-
ember, 1904, og endar 30. júnf,
1905, 10 mánuði.
Umsækjendur tiltaki kaup, er
þeir óska, og greini frá æfingu,
er þeir hafa sem kennarar.
Tillxjðuni veitt móttaka til 20.
ágúst næstkomandi og sendist
til undirritaðs.
B. B. OLSON,
ritari og féhirðir,
Oirnli S. D. No. 5H5
Kennara
vantar við Árnes skóla No. 586
frá 15. september til 15. desem
ber næstkomandi, og frá 1. jan-
úar til 1. april 1905. Umsækj-
endur tiigreini hvaða mentastig
þeir hafi og æfingu við kensluna,
einnig hvaða kaup þeir vilji fá.
Tilboðum veitt móttaka til 30.
ágúst næstkomandi af undirrit-
uðum.
Irnes, 16. júlí 19A4.
77/. Thorvaldsson,
ritari og féhiröir
Kennara
vautar við Ilecland skóla 1 10 mán-
uði, frá 1. september næstkom-
andi. Yerður að hafa heimildar-
skjal. Umsækjendur snúi sér til
undirritaðs.og tilgreini hvaða kenn-
ara stig }>eir hafa og nvaða laun
þeir vilja f
C. Christianson.
Sccr*»tary-Treasurer
Marshland P. O., Man.
Coronation Hotei.
523 MAIN ST.
Carroll áJpence, Eigendur.
Æskja viöskipta íslendinga, gisting ddyr, 40
svefnherberKÍ,—ágætar máltíöar. Þetta Hotel
er gengrt City Hall, hefir bestu v lföng og Vindla
—þeir sem kaupa rúm. þurfa ekki nauðsynlegra
aö kaupa méltíðar, sem eru seldar sérstakar.
Department of Agricul-
ture and Immigration
MANITOBA.
TILKYNNING TIL BÆNDA:
Það koma nú daglega inn í þetta
fylkn hópar af ungum mönnum frá
Austur Canada og Bretlandi, sem
vilja fá bændavinnu. Margir
þeirra eru æfðir vinnumenn og
aðrir óska að læra bændavinnu.
NÚ ER TÍMINN
til þess að útvega sér vinnuhjálj
fyrir komandi árstfð.
EF ÞÉR ÞARFNIST VINNU-
MANNA
1, 2 eða 3 menn, þá ritið til undir-
ritaðs og segið hveraig vinnumenn
þér þarfnist, hvort heldur æfða eða
óvana menn, og hvers þjóðerais,
og kaup þuð sem pér vilj ið borga.
Skrifið strax og forðist vonbrygði.
J. J. GOl/DEN.
PKOVINCIAL GOVERNMENTT IM-
MIGRATION AGENT,
617 Hain St Winnipcg.
Woodbine Restaurant
Stærsta Billiard Hail 1 Norðvesturlandin
Tlu Pool-borð.—Alskonar vín ogvindlar.
Lennon A Hebb,
Eigeadur.
DISG DRILLS
Nú er tíiuinn t 1 6umarplæi/inga. 0<f
Hv e'sveva skvldud þér þa ekki fá
JOHN DEERE edn Moline plóg og
spara yðar óþarfa þioytu«aua?
Sé lard v<i»t mjog liiukent. þá gefst
JOtíN DEEKE Diaii P.ógur brzt. Þeir
eru léttir O/C hteglega notaðir os lista
eius bieitt. far ug hveijuui þókuast og
eru hiuir beztu í snúuiuguur.
Það eru beztu plógariur, seni nú eru
4 inarkaduuui.
C. Drummond-Hay,
IMPLEMEHTS & CARRIACES,
BELMONT
Brauð
bökun
er einföld, en verður
samt að vfsindagrein
þegar árum er eytt til
þess að hafa hana ó-
breytanlega og jafna
dag eftir dag. Að-
ferð, efni og vand-
virkni gera
BOYD’S
BRAUÐ BEZT
BOYD’S
McINTYRE BLOCK
’PHONE 177
Bonnar & Hartley,
ijögf'æðjngrar og landskjalasemjarar
494 flain St, - - Winnipeg.
ft A BON'S’F.ft T. I.. HARTIKV.