Heimskringla - 22.09.1904, Síða 3
HEIMSKRINGLA 22 SEPTEMBER 1904
TTLi
J. M. Bjarnasonar
Eftir
KrUtinn Stefáns«on
Sendi eg kveðju að sundi
Sónar frá Braga-lóni.
Trkis míns lof á arkar
Unnum mór barst að sunnan
Svörtum, þó sá eg hjarta, ,
Svip, lyndi hugarmynda,
Óðdfsar þinnar aðal
Einkenni’ á brjósti og enni.
Sólskin og vorið sæla
Sálin þín er og málið,
Gott alt og glatt, sem elur
Góðheimur ljóss í óði.
Herskár f víking herja,
Hvasst greipa sverð og hleypa
Fleyji úr friðar-lagi
Fýsir þig ei að rísa.
Syng þú og sönginn láttu
Sálar hljóma á álum,
Lífsins þar lognið fagnar
Léttum röddum og nettum;
Búðu um und, og baði
Beindu ljósa að rósum,
Næðings þá kaldur naður
Norðurs skríður af sporði.
llSLAND.
Kftir Heykjaolk frá 5. iil 26. ágúst
Ondvegistíð fréttist með Hólum
um að norðan og austan; gras-
vöxtur mikill.
— Fiskafli mikill og góður aust-
an Langaness, suður um Vopna-
fjörð og var að færsst suður með
landi.
— Sendimaður landsstjórnarinn-
ar norður á Vatnsnes, með ráðstaf-
anir út af mislingunum, kom aftur
4. ág. og segir þar enga mislinga
vera eða verið hafa nú.
— Fiskiskipin eru mörg að koma
um þessa daga og hafa aflað ýmis-
lega, þetta frá 18 upp f 26 til 28
þúsund. Sum af þeim hafa verið
fyrir norðan land, alt austur að
Skagatá.
— Ishrul að eins lítið eitt nú
sagt undan horni.
— Sfld komin á suðurfirðina
eystra (í Suður-Múlas/slu), en
porskafli ekki enn þá. En þorsk-
afli frá Langanesi suður fyrir
Vopnafjörð. bað er merkilegt að
engin þilskipin liéðan skuli halda
austuh fyrir Ihnd. Þar er þó lang-
stærstur þorskur hér við land, og
nú nægur.
— Einmuna-hitar nú síðustu
daga og þurkur góður, og var þess
þörf bæði fyrir hey ög fisk.
— Lærði skólinn: Settir eru þar
yfirk. Steingr. Thorsteinsson til að
gegna rektors-starfi, en cand. theol.
Jóhannes Sigfússon til að gegna
yfirkennara-embættinu. Jóhannes
fær til afnota rektors-íbúðina í
skólahúsinu, en greiðir hinum setta
rektor 400 kr. leigu. Cand. mag.
Bjarna Jónssyni, er skipaður hefir
verið fastur tfmakennari við skól-
ann undanfarin ár, er eftir tillögu
byskups og amtmanns vikið frá
þeirri stöðu fyrir hneyxlanlega
dry kk j uskapar-óreglu.
— Dáinn er Benedikt Pálsson
prentari 20. ágúst, vel hálfsjötugur;
hafði stundað iðn sfna yfir 50 ár og
var manna snjallastur í henni, vin-
sæll og rel látinn.
Eftir Ingitfi, 14. áyúst
Fimtfu þúsund §lös af Kfnalffs-
elixfr hefir Valdimar Petersen frá
Friðrikshöfn látið brugga f numar
austur á Fáskrúðsfirði. Er h»nn
nú sjálfur þar eystra til þess að
leggja blessun sína yfir seitilinn.
E.igan toll fær landssjóður af “bit-
ter” þessum nema vínanda þeim er
Iiann er blandinn.
— Eyjafjarðarsýsla erveitt Guð-
laugi 8ýslumanni Guðmundssyni.
Kftlr Pjóðviljanum, 27. júli til 24 ágúst
Um rektors-embættið sækja:
Geir Zoega, kennari; Jón Helga-
son, prestaskólakennari; Guðm.
Finnbogason, heimspekiugur; dr.
Jón Þorkelsson, landsskjalavörður;
Hteingrímur Thorsteinsson, yfir-
kennari við latínuskólann, og Stef-
án Stefánsson, gagnfræðaskóla-
kennari á Akureyri. Umsóknar-
frestur var útrunninn 16. júlí.
— Um kennaraembættið við lat-
fnuskólann, það er laust varð við
fráfall Björns Jenssonar, hafa sótt
þeir Ólafur Danfelsson, Sigurður
Thoroddsen, verkfræðingur, og Þor-
kell Þorkelsson, eðlisfræðingur.
— Mannalát: Aðfaranótt 3. júlf
þ. á. andaðist Jens Benjamínsson,
formaður og útvegsbóndi við Gull
húsá f Snæfjallahreppi f Norður-
ísafjarðarsýslu, eftir stutta legu
f lungnabólga, tæplega fertugur.
Hinn 28. aprílmánaðar þ. á. and-
aðist að heimili sínu f Hvassa-
hrauni Vatnsleysustrandarhreppi
bændaöldungurinn Einar Þorláks-
son, 79 ára gamall.
Hinn 3. maf þ. á. andaðist að
heimili sínu Stóra-Knararnesi á
Vatnsleysuströnd bændaöldungur-
inn Jón Ólafsson, 78 ára að aldri.
11. ág. andaðist Maguús Hann-
esson, gullsmiður f Reykjavfk, f.
1869.
16. þ. m. andaðist í Reykjavík
húsfrú Þuríður Magnúsdóttir, úr
tæringu.
12. þ. m. andaðist á Landakots
spítalanum húsfrú Kristfn, f .Thom-
sen, úr tæringu.
— Tvö landhelgisbrot. Her-
skipið Hekla handsamaði 25. f. m.
norska fiskiskútu, sem var að sfld-
arveiðum í landhelgi við Siglunes.
Skipið hét Elise og skipstjóri Sig-
urd Waage. Hekla fór með skút-
una til Sauðárkróks og var skipstj.
þar sektaður um 150 kr. Það kom
á daginn við yfirheyrsluna, að hann
hafði einnig brotið mislingasam-
göngubannið við Isafjörð, með þvf
hann hafði komið þar og tekið vatn.
Var því skipstjóri þessi fenginn f
hendur sýslumanni til frekari ráð-
stafana.
Daginn eftir, 26. f. m. höndlaði
Hekla botnvörpung, við ólöglegar
veiðar, úti fyrir Arnarfirði. Var
sá frá Hull á Englandi og heitir
“Paragon,” skipstjóri William Ma-
gara. Skipstjóri þrætti fyrst fyrir
brot sitt, en hér voru svo mörg
vitni að, að ekki dugði að bera af
sér, og sá hann sér því að lokum
þann kost vænstan að meðganga.
Flutti Hekla hann til Patreksfjarð-
ar, var hann þar sektaður um 2,000
kr., afli og veiðarfæri gert upptækt,
var liann hlaðinn fiski. Komist
hefir upp, að skip þetta hatí oft
verið staðið að ólöglegum veiðum í
Garðsjó.
Votnvörpungur s'.rauk nýlega úr
Reykjavfk, undan rannsókn út af
gömlu landhelgisbroti, einn af Ed-
inborgar-botn-mrpungum, Strathe-
den, skipstjóri Jas. We3terby.
— Manntjón: Seint í júlí fórst
norskur síldarbátur, eign Konráðs
kaupm. Hjálmarssonar í Mjóafirði.
Báturinn kollsigldi sig og druknuðu
hásetar allir, sex að tölu; voru það
alt Islenzkir menn.
— Settur sýslumaður f Rangár-
vallasýslu er cand. jur. Karl Ein-
arsson frá 1. ágúst, Cand. jur.
Sigurður Eggerz, sem fyrst var
settur, og fór þangað austur, undi
sér ekki í sveitinni, að sagt er, og
afsalaði sér þvf sýslaninni.
— Sólbráð og bezti þerrir sfð-
ustu daga, enda eru nú allir önnum
kafnir að hirða hey sitt, sem lá við
skemdum eftir mollurnar, sem ver-
ið hafa í margar vikur.
— Að kvöldi 15. ágúst þ. á. and-
aðist í ísafjarðarkaupstað, úr
lungnabólgu, eftir fárra daga legu,
ekkjan Guðrún Ásgeirsdóttir, um
áttrætt.
— Leystir frá embætti eru þeir
amtmennirnir Júlfus Havsteen og
Páll Briem, frá 1. okt., báðir með
eftirlaunum. Sinn krossinn hefir
og verið hengdur á hvorn þeirra,
liefír Havsteen fengið kommandör-
kross dannebrogsorðunnar, en P.
Briem dannebrogsmannakross.
— Bæjarbruni varð að Snorra-
stöðum f Laugardal 13. þ.m., brann
bærinn allur og varð litlu bjargað
af munum.
— Dáinn f júlí Sveinn bóndi
Bjarnasou f Þórisdal 1 Löui, f.1848.
Hann var bróðir séra Jóns Bjarna-
sonar í Winnipeg.
— Druknaði 24. júlf Þorleifur
Pálssott, bóndi f Holturn á Mýnun,
af hesti f Homafjarðarfljótum;
hafði riðið á sund.
— Þingmannaefni við kosning-
araar í næsta mánuðieru f Reykja-
2.") cents punds kanna
—3 verölaunainiöar í
hverri könnu.
PENINGAR
og Bökunarefni, Egg, Mjöl og
fleira sparast með því að nota
BUIE RIBBON BAklKG POWDER
sem ætfð hepnast vel. Engin
vonbrigði vib bökun, þegar
það er notað. Biðjið matsal-
ann um það.
the Blue Ribbon flfg., Co.
WINNIPEG. — — MANITOBA
vík tilnefndir, yfirdómari Jón Jens-
son og héraðslæknir Guðm. Björns-
son.
Kftir Norðurlandi, 20. ágúst
— Aukakosning til alþingis er
sama sem um garð gengin í einu
kjördæmi, Seyðisfirði, Þar var
ekki nema eiun frambjóðandi, Jón
Jónsson frá Múla.
— Ritstjóra Ingólfs, blaðs Land-
varnarmanna í Reykjavfk, héfir
ráðherrann sett frá stöðu sinni sem
aukakennara við lærða skólann, svo
hann missir þar af leiðandi þær
1600 kr., sem honum eru veittar í
fjárlögunum.
Verzlunarfréttir
HINN AQŒTI
‘T. L.’ Cigar
er laugt á undan, menn œttu ekki að reykja
aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá :
| Thos.
INMS'
WESTERN CIGAR FACTORY
Lee. eigaudi. WIIsnsriPEG.
Stökur
Vorull hefir hækkað í verði, hefir
nokkuð af beztu hvftri norðlenzkri
ull verið selt fvrirfram á 85 aura
pundið. Skagafjarðar- og Húna-
vatnss/slu ull á 78—78£ eyrir, vest-
firzk á 73 aura og sunnlenzk á 75
aura. Enn sem komið er, ekki út-
lit fyrir hærra verð. Fyrir mislita
vorull má fá 60 aura.
Saltfiskur stór er nú á kr. 67.00
skippundið, smáfiskur kr. 55.00, fsa
kr. 50.00 og hnakkakýldur stór fisk-
ur á kr. 72.00. Óvfst að verð þetta
lialdist lengi.
Sfld, feit sfld af meðal stærð á 26
krónur tunnan. Stór feit sfld 16
—18 kr. tunnan.
Lysi hefir lækkað f veröi. Sfð-
asta verð: hákarlslýsi 27 til 28,00,
sellýsi 32 til 33.00 og þorskal/si 24
til 26.00, alt pr. 210 pd.
Sundmagar, vel verkaðir, á 50
aura pundið.
Hrogn 52 kr. tn., 240 pd.
Æðardúnn 8 til 9 kr. pd.
Lambskinn hvít 40 til 45 aura
hvert, mislit 20 tfl 23 au. og gölluð
á 10 til 12 aura.
H a u s t v'ö r u r.
Saltkjöt. Af því er þegar nokk-
uð selt fyrir 47 til 48 kr. tunnan;
óvfst hvort það hækkar eða lækkar
þegar frá lfður.
Saltaðar gærur. Talsvert af þeim
hefir verið selt fyrir fram á 6 kr.
búntið, miðað við að hver gæra
vikti 8 pund þur, en tiltölulega
minna verð eftir þvf sem gærurnar
eru léttari.
Haustull. Á hana hefir enn ekki
verið sett verð, en haldið að hvít
óþvegin haustull muni verða á 52
aura pundið og mislit á 42 aura
pundið.
Tólg f lágu verði. Ekkigert ráð
fyrir hærra verði en 22 aurar fyrir
pundið. “Þjóðv.”
Verðlag á íslenzkum varn-
injri á Vesturlandi
Haustull, hvft, þvegin, 50 au.
Haustull, hvít, óþvegin, 40 au.
Haustull, mislit, óþvegin 30 au
Tog, 30 au. pd.
Æðardúnn, kr. 8 til 8.50 pd.
Lambskinn hvít, 25 au.
Lambskinn mislit, 12 au.
Sundmagi, 35 til 40 au. pd.
Vel saltaður þilskipafiskur, stór,
10^ au. fxf.
Vel saltaður þilskipafiskur, smár,
8^ au. pd.
Vel söltuð þilskipa ísa, 6 au.
Vel söltuð þilskipa langa, 8 au.
Vel söltuð þilskipa keila og upsi,
3 au. pd.
Sama verðlag verður óefað f öll-
um verzlunarstöðum á Vesturlandi
nú í sumarkauptfðinni. “Þjóðv.”
Leiðrétting
R. J. Davidson kvartar um prent-
villur f kvæði sfnu “ Fuglasöngur,”
sem prentað var f 47. nr. Hkr. Hún
biður leiðrétt f 3. erindi orðin
“sverð og glamur,” sem ætti að
vera sverðaglamur. í sfð-
asta erindi stendur “elfarnið,” sem
átti að vera e 1 f u n i ð. Fjórða
erindi biður hún endurprentað
þannig:
Þeir sungu um barnsins sælu, þeir
sungu um látinn hal.
Þeir sungu um mædda móðir, sem
moldin niðjann fal.
Þeir sungu um ástmey svikna, er
syrgir horfna stund.
Þeir sungu um sæla vöku, þeir
sungu um hinstablund.
Þú aldrei hefir stund mér st/tt,
Né stððvað tára flóðið;
Hræsnisfulla hjartað þitt
Hitar f mér blóðið.
Þú hefir marga stund mér stytt
Og stöðvað tára flóðið;
Himinboma hjartað þitt
Hreyfir f mér blóðið.
Þó harraarflir nýsti
Harmar oft nýsta þó hjartað sé ungt
Og holskeflna lemjandi sægur
Á lffssjónum brotna; ó, bölið er
þungt,
Og bölvaður heimurinn slægur.
I stríðinu látum oss standa með ró,
Því stríðið oss skylt er að heyja.
Gönguna þreyta, þó gatan sé mjó,
Og glaða í voninni deyja.
R. J. Davtdson
DOMINION HOTEL
523 JVC^ITnT ST.
Carroll ASpence, Eigendur.
Æskja riðskipta íslendinga, gisting ódýr, 40
svefnherbergi,—éafwtar móltíöar. Þetta Hotel
er genfift City Hali, hefir bestu lföng og Vindla
—þeir sem kaupa rúm. þurfa ekki nauösvnlega
aö kaupa máltíöar, sem eru seldar sórstatar.
Bústaður Heimskringld er sem
stendur að 727 Sherbrooke St.
Giftingaleyfisbrjef
selur Kr. Ásg. Benediktsson,
409 Young Street
S. THORKELSON,
751 Ronx Ave.,
selur alskonar mál og málolfu f smá-
sölu og heildsölu með lægra verði
en aðrir, og ábyrgist að vömrnar
séu að ölla leyti af beztu tegund.
MARKET H0TEL
146 PRINCESS ST.
á móti markaönum
P. O. CONNELL, eigandl, WINNIPEG
Beztu teaundir af vínföngum og vindl
um, aðhlyniiinR cóð og húsið endur-
b»tt og uppbúið að nýju
Kaupmenn á Isafirði kváðu loks
upp verðlag á íslenzkum varningi
28. júlf sfðastliðinn.og verðurverð-
lagið í Bumarkauptíðinni sem hér
segir:
Málfiskur nr. 1, 65 kr. skpd.
Málfiskur nr. 2, 40 kr. skpd.
Málfiskur nr. 3, 30 kr. skpd.
Smátískur nr. 1, 50 kr. skpd.
Smáfiskur nr. 2, 32 kr. skpd.
Langa nr. 1, 50 kr. skpd.
Langa nr. 2, 32 kr. skpd.
Isa nr. 1, 40 kr. skpd.
Isa nr. 2, 30 kr. skpd.
Isa nr. 3, 20 kr. skpd.
Urkast af smáfiski og löngu, 20
kr. skpd.
Upsi og keila, 20 kr skpd.
Þorskalifur, 45aur. kúturinn.
Vorull, hvtt, þvegin, 65 au. pd.
Vorull inislit, 45 au. pd.
Til íslenzkra skálda
í Ameríkn
Útgáfunefnd Heimskringlu hefir ákveðið að helga næsta
jólablað sitt íslenzkum skáldum í Amerfku. bæði Ijóðskáld-
um og sagnahöfundum. Tilgangnrinn er að láta Jólablaðið
flytja myndir þeirra og stutt æfiágrip, ásamt með sýnishorni
af ljóðagerð þeirra og einkunnarorðum sagnskáldanna.
Til dæmis vonar blaðið a*geta haft eina mynd af Hag
yrðingafélaginu f Winnipeg, en sérstakar myndir af skáld-
um þeim, sem búa víðsvegar í landinu, að svo miklu leyti
sem hœgt verður að ná til þeirra, eða þau verða fáanleg til
að sinna þessu ávarpi nefndarinnar: að senda af sér myndir,
æfiágrip og ljóð-8ýnishorn. S/nishom af ljóð-skáldskapn-
um þurfa að vera sem allra styzt, svo að hægt verði að koma
þeim öllum 1 sama blaðið.
Myndirnar þurfa að vera sem skýrastar, helzt“Cabinet”
myndir, þvf í blaðinu koma myndir bezt út með því, að þær
séu þar fremur minni en stærri en myndir þær sem gert er
eftir.
Allur sómi verður sýndur þessu máli f blaðinu og próf-
arkirnar verða lesnar af mönnum, sem glögt skyn bera á
bundið sem óbundið mál, svo að alt megi verða sem bezt úr
garði gert.
Jólablöð Heimskringlu hafa fengið gott bókmentalegt
orð á sig að undanförnu, og það er vonað að þetta verði með
þftim beztu, sem út hafa verið gefin.
Utgáfunefndin mælist þvf hér með til og skorar á öll
íslenzk skáld f Amerfku að senda blaðinu svo fljótt, sem
auðið er, og ekki sfðar en fyrsta desember næstkom-
andi, myndir af sér og stutt æfiágrip, sem þurfa að vera svo
stutt, ef mögulegt er, að þau taki ekki upp meira rúm f blað-
inu en 3 þuml. dálkslengdar, frá hverjum manni.
Bréf verða send út hið bráðasta til skáldanna, en með
því, að ekki er vfst, að bréfín n'i til þeirra allra og ekki
heldur vist, að nefndin viti af þeim öllum, þá eru þeir beðnir
að skoða þessa áskonin sem br 'if til sfn.
Bezt væri að geta fengið myndrrnar og æfiágripin, sem
allra fyrst, þvf þesslengri tfmi, sem gefinn er til inynda-
gerðarinnar, þess lx>tur niá vanda til þeirra. •
Félagsnefrul in.
»••*•••• ««»«0 90 •«•••••••••••««»•••
Department of Agricul-
ture and Immigration
MANITQBA.
TILKYNNING TIL BÆNDA:
Það koma nú daglega inn f þetta
fylki hópar af ungum mönnum frá
Austur Canada og Bretlandi, sem
vilja fá bændavinnu. Margir
þeirra eru æfðir vinnumenn og
aðrir óska að læra bændavinnu.
NÚ ER TÍMINN
til þess að útvega sér vinnuhjálf
fyiir komandi árstíð.
EF ÞÉR ÞARFNIST VINNU-
MANNA
1, 2 eða 3 menn, þá ritið tii undir-
ritaðs og segið hvernig vinnumenn
þér þarfnist, hvort heldur æfða eð&
óvana menn, og hvers þjóðemis,
og kaup það sem pér viljið borga.
Skrifið strax og forðist vonbrygði.
J. J. 60LDEN,
PROVINCIAL GOVERNMENTT IM-
MIGRATION AGENT,
617 Main St. Wiunipcg.
Woodbine Restaurant
Stærsta Billiard Hall í Norövesturlandin
Tlu Pool-borö.—Alskonar vín ogvindlar.
bennon A ilebb,
Eisrendur.
DISC ORILLS
Núeriíuinin 11 ■uuhh'plæcinga. Og
Hvo:sve»:ia .skvidud þé" þá ekki fá
JOHN DEERE oöa .violtne plójf og
spara yður óparta pi eytuijang ?
Sé land vðar mjóg líiukent. þá (refst
JOHN DEEKE Disc Pióijiir bezt. Þeir
eru léttir o< htealega notuðir og rista
eins bie'tt far uir hv*e>jum þóauast og
eru hinir beztu í snúningum.
Það eru beztu plógariur. sem nú eru
á tnarkaðuuiu.
C. Drummond-Hay,
IMPLEMENTS & CARRIAGES,
BELMOINT TVT A JST
Brauð
bökun
er einföld, en verður
samt að vfsindagrein
þegar árum er eytt til
þess að hafa hana ó-
breytanlega og jafna
dag eftir dag. Að-
ferð, efni og vand-
virkni gera
BOYD’S
BRAITÐ BEZT
BOYD’S
McINTYRE block
’PHONE 177
Qonnar & Hartley,
r>ögfræðingar og landskjalasemjarar
4*» naín Nt, -- ■ Winnipeg,
R A BONNlvH.
W L. IABTLMY«