Heimskringla - 04.05.1905, Blaðsíða 1
«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS ♦
♦ lglenzknr kanpmaOur ♦
♦ selur Ii«»l ok Eldivid ♦
Afgreitt fljótt oe fullur mælir. X
♦ 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦
• ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
T. THOMAS, kaupmasur
nmboössali fyrir ýnos verzluoarfélög
1 Winnipeg og Austnrfylkiunnm, af-
treiöir alskonar pantanir íslendinga
r nýlendunum, peim aö kostna&ar-
lausu. Skrifiö eftir npplýsingum til
537 Ellice Ave. - - - Winniþeg
♦
♦
t «
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦d
XIX. AR.
WINNIPEG, MANITOBA 4. MAÍ 1905
Nr. 30
Ami Eggertsson
671 ROSS AVENUE
Phon.e 3033. Winnipeg.
Hér er tækifæri fyrir mann með
$2000.00-^48
Ég heíi til sölu 320 ekra búgarð,
30 mílur frá Winnipeg og einamflu
frá járnbrautarstöð. 100 ekrur eru
plægðar á landinu og 40 ekrur beiti-
land. Nú sem stendur eru 75 ekr-
ur búnar undir sáningu. A land-
inu er 7 herbergja cement-steypu
hús (concrete) og byggingar yfir 75
gripi og 10 hross. Heyskapur er
nógur skamt frá, ágætis vatn og 6-
takmarkað frjálsræði með gripb —
Kirkja og skóli er þar rétt hjá, og
alt eftir f>vf pægilegt. 'Verðið er
$22 ekran og $2000 niðurborgun.
Einnig eru gripir hæns og svfn til
sölu. Til frekari upplýsinga skrifið
eða finnið.
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blb
Telephone 8864
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRÍÐS-FRETTIR
Engar áreiðanlegar fréttir af
stríðinu hafa borist að austan í sl
mánuði og þó er orustum haldið
áfram norður frá Mukden svo að
segja daglega, en allar eru þær f
smáum stíl, svo að tæpast er orð á
gerandi. Sú sfðasta var háð þann
29. aprfl hjá Tunghusiang. Rússar
segjast hafa borið þar sigur úr být-
um. En herforingi Japana hefir
sent stjórn sinni í Tokio þá frétt,
að í orustu þeirri hafi lið sitt tapað
38 manns, en Rússar hafi eftir-
skilið 200 á vfgvellinum. Lfklegt
þykir, að þessi frétt sé áreiðanlegri
en hin.
En yfirleitt mun mega telja, að í
sl. mánuði hafi flokkarnir staðið
svo jafnt að vfgi, að hvorugur hafi
eiginlega unnið nokkum verulegan
sigur á hinum.
Um sjóflota Rússa má pað segja,
að skipin, sem nú teljast alls milli
50 og 60, eru að sveima um sjóinn
þar eystra. Þrjátíu af skipunum
sáust í Honkohe vfkinni á fimtu-
daginn var, en um flota Japans
manna hefir ekkert frézt í langan
tfma, og virðist enginn vita, hvar
hann er. Er nú talið, að flotar
beggja þjóða séu sem næst jafnir
að skipatölu og styrkleika. En
frá Tokio er sagt, að Japanar séu
hvergi hræddir við afleiðingamar,
hvenær sem flotanum lendir saman
Rússar hafa tekið 50 millfónir
dollara lán til að halda áfram jám-
brautabyggingu, sem þeir urðu að
hætta við, þegar strfðið byrjaði.
Rússneskir auðmenn lánuðu það
fé og buðu fimm sinnum hærri
upphæð en stjórnin þáði. Hefði
fénu átt að verja til hergagna-
kaupa, er talið vfst, að lánið hefði
ekki fengist.
Japanskir fangar í höndum
Rússa segja, að Japanar skipi nú
liði sínu á þennan hátt:
1. General Nodzu hefir lið sitt á
svæðinu milli Tie Pass og
Kayman.
2. Gen. Oku frá Tie Pass vestur
frá járnbrautinni.
3. Gen. Kuroki frá Pie Pass aust-
ur frá járnbrautinni.
4. Gen. Nogi, frá Fakoman til
Changatufa, og
5. Gen. Kamamura, norðaustur
frá Mukden.
Yfir 20 þúsund særðir Riissar eru
nú í bænum Irkutsk og daglega
eykst tala þeirra. Oll skólahús og
skemtihús hafa verið gerð að spít-
ulum og matvæli eru þar sögð af
skornum skamti.
Annað ekki markvert að svo
stöddu. __________________
Innflutningur til Canada á níu
mánuðum, til 31. marz sl., var 71,-
120 manns, þar af voru 25,240
manns frá Bandaríkjunum.
— Johan Hock, hinn marggifti,
er fyrir dómstóli í Chicago um
þessar mundir, kærður um að hafa
gifst um 30 konum. Og nú, meðan
mál hans stendur sem hæzt, hafa 2
konur, sem menn ekki vissu um áð-
ur, gefið sig fram, og segjast líka
vera konur hans. Nokkrar af kon-
um hans eru daglega í dómsalnum
að lilusta á gang málsins.
— 16,521 heimilisréttarlönd voru
tekin f norðvestur Canada á fyrstu
8 mánuðunum af þessu fjárhagsári
rfkisstjórnarinnar. Það er 648
fleiri en á sama tfmabili í fyrra. —
Innflutningur til Canada fer stöð-
ugt vaxandi með hverju ári og lönd
hækka stöðugt í verði.
Nóttina milli þtíss 25. og 26. f.
m. brutust pjófar inn í Merchants
Bank of Canda í Lancaster, Ont.
Einn af þjónum bankans, sem svaf
f húsi aftan við bygginguna, vakn-
aði við það, að 4 menn með skamm-
byssur stóðu yfir honum. I stað-
inn fyrir að gefast þegar upp náði
hann í skammbyssu sfna, sem var
undir koddanum og skaut einu
skoti áður en ræningjarnir áttuðu
sig og réðust á hann. Bankaþjónn-
inn, sem heitir Hermann Von-
metzke, varðist hraustlega, og svo
fóru leikar, að þjófarnir flýðu, enda
var þá bankaþjónninn orðinn mjög
sár og móður, og liggur nú fyrir
dauðanum af sárum. Um morgun-
inn fanst lfk eins ræningjans á
járnbrautarstöðinni, 400 yds. frá
bankanum, en hinir hafa ekki náðst
enn. Þjófarnir gátu engu stolið.
— Þorpið St. Andre de Kamour-
aska, Que., brann svo að segja til
kaldra kola f>. 26. þ. m. Des Jar-
dins verksmiðjurnar, sem búa til
allskonar smfðisgripi og áhökl úr
jánii, eyðilagðist algerlega, auk
margra fbúðarhúsa. Skaði metinn
$50,000; eldsábyrgð mjög lftil.
— Þingið í British Columbia
samþykti nýl. lög, sem voru mjög
óvilhöll f garð Japana. Ottawa-
stjórnin hefir nú synjað lögum þess-
um staðfestingar.
— Það er siður í Austurrfki, að
keisarinn einn vissan dag á árinu
ber mat og drykk fyrir 12 af hin-
um elztu og fátækustu mönnum,
sem til eru í Vínarborg, og sem eru
svo emir, að hægt er að koma þeim
til hallarinnar; einnig skal hann
f>vo fætur þeirra. Athöfn þessi fór
fram f ár á fimtudaginn 20. f. m.
að viðstaddri allri keisara hirðinni,
ásamt sendiherrum stórþjóðanna
og öðrum stórmennum.
— Að kveldi þess 26. f. m. héldu
nokkrir af hinum atkvæðameiri
Liberals fOntario sjálfum sér veizln
í Ottawa. Undir borðum varð Mr.
D. Salaberry, merkum lögmanni
frá Hull, og Mr. Major sundurorða,
unz Major greip vatnsglas, sem stóð
á borðinu, og henti þvf af afli að
mótstöðumanni sfnum. Glasið hitti
Mr. I^alaberry á gagnaugað ogskar
f sundur æð, svo blóð spýttist f all-
ar áttir. Læknunum gekk mjög
erfitt að stöðva blóðrásina, og var
maðurinn fyrst talinn af, en sfðustu
fréttir segja, að hann sé á batavegi,
ef ekkert ófyrirsjáanlegt komi fyrir
því til hindrunar.
— Mr. Frank G. Bigelow, for-
stöðumaður eins stærsta bankans í
Milwaukee, Wis., og formaður hins
volduga banka-eigenda félags í
Bandaríkjunum, gerði nýlega þá
játningu á fundi stjórnenda bank-
ans, að hann hefði dregið undir sig
og sóað einni millfón og 400 þús.
dollars af fé bankans. Hann kvaðst
að eins eiga 300 þús. dollara virði í
prívat eignum upp í [>etta. Hann
skýrði meðstjórnendum sínum einn-
ig frá, hvernig hann hefði farið að
því, að falsa bækurnar til þess að
dylja stuldinn. Hann segist hafa
tapað þessum peningum á ýmsu
gróðabralli, mest á hveitikaupum f
New York. Stjórnendur bankans
voru lengi að bræða með sér, hvort
þeir ættu að láta taka þennan mikla
mann fastan eða ekki, en það varð
ofan á, og situr hann nú í fangelsi.
Síðan hefir það komið upp, að
skuldir eða stuldir Bigelows muni
nema milli 2—3 miljónir dollara,
sem skiftist á milli ým6ra stofnana,
er trúðu honum fyrir framtfð sinni.
Það sannast hér sem oftar hið forn-
kveðna: “Svo brégðast krosstré*
sem önnur tré.”
; Ein af stúlkunura ” og
Lögberg No. 14.
I 14. tölublaði Lögbergs þ. á.
birtist mikil og merkileg grein frá
“Ein af stúlkununv'. Grein þessi
á auðsjáanlega að vera svar á móti
grein minni í Baldri. sem út kom
29.marz sfðastliðinn, með fyrirsögn-
inni “Yfirlit”.
Að vfsu er þessi áminsta Lögb.
grein byrjuð á þann hátt, að efi
getur verið á, hvort hún er ætluð
að vera til mín, þar sem nafnið er
byrjað með “C”, í staðinn fyrir að
mitt nafn byrjar með “G”. En ég
tók það fyrir að vera Lögbergs rétt-
ritun að eins.
Ætla ég f>ví að fara fáeinum orð-
um um þessa áminstu grein, þó það
séu margir af Baldurs mönnum fær-
ari til þess en ég, enda býst ég við,
að það verði gerðar athugasemdir
við þá grein af fleirum af Baldurs
aðstandendum.
Þessi “stúlka” er í grein sinni að
gefa það í skyn, að biéf herra Ket-
ils Valgarðssonar, er birt var í
Baldri sfðastliðinn vetur, hafi verið
rangfært, stafsetningunni hafi ver-
ið breytt af Baldurs mönnum. Ég
vil skjóta þessu máli til herra K.
Valgarðssonar sjálfs. Hann getur
bezt borið um það, hvort stafsetn
inguuni á bréfi hans hafi nokkuð
verið breytt. Svo hefi ég ltka enn
vel geymt handritið. Er þvf hægt
að gera samanburð, ef f f>að fer.
Um hinn manninn, “sem átti að
eins þrjú orð f greininni sinni eftir
að búið var að birta hana f Baldri”,
veit ég ekkert um, en þætti gaman
að fá að vita, hver hann er, og væri
það þvf ekki nema siðferðisleg
skylda af “henni”, að láta nafns
hans getið. og sanna, að nokkrum
parti, með því sögu sfna.
Ég sleppi alveg að svara sumu
af þvf, sem þessi “stúlka” ber
borð fyrir lesendur Lögbergs, þar
eð ég hefi nú þegar svarað því í
Baldri nr. 14 f>.á.
Það er annars merkilegt, hvað
þær eru nauðalfkar greinin hennar
I. J. P., sem út kom f Baldri 29
marz þ.á., og þessi áminsta grein í
Lögbergi. Maður gæti vel hugsað,
að þær væru systur, eða að minsta
kosti, að þær hefðu báðar fæðst
sama bæ.
Hvað meinar þessi “stúlka” f>ar
sem hún minnist á grein sinni
“Leikritið Piltur ogstúlka”? Mein
ar hún, að f>að sé til “leikrit” með
f>essu nafni? Ef svo, hver er höf-
undurinn og hvar er það fáanlegt?
Mér er ant um, að fá keyptar sem
flestar nýjar bækur og rit. Skal
ég þvf borga “einm af stúlkunum”
vel fyrir snúð sinn, ef hún sendir
mér eitt eintak af þessu “leikriti”.
Hvernig á að skilja seinustu lfn-
una í fyrsta dálki á 3. sfðu, og fjór-
ar fyrstu lfnurnar í öðrum dálki á
f>riðju sfðu Lögbergs no. 14 f>.á.?
Það er einhver sérstök fræði, sem
ég vil leita mér upplýsingar um.
Ritstjórinn liefir að lfkindum verið
að lesa próförk af fyrsta dálki á
annari sfðu, þegar þessu var rent f
gegn að lioiuun fornspurðum.
“Ein af stúlkunum” segir í þess
um pistli sínum til “C-ísla”, að þær
hafi “orðið að sauma og setja upp
tjöldin sjálfar”. Það er alveg ré.tt.
Þær báðu um leyfi að mega gera
það. og jafnframt að mega æfa leik-
flokkinn f fundarhúsinu tvisvar eða
þrisvar áður en leikið yrði, og var
þeim hvortveggja veitt. Þær höfðu
samkomusalinn til fullra umráða
heilan dag áður en samkoma þeirra
átti að verða, þ. 21. marz sl., og svo
meira að segja notuðu þær salinn
í sfnar þarfir daginn eftir samkom-
una, og var ekkert talað um það af
þeim, sem höfðu yfir salnum að
ráða.
“Ein af stúlkunum” gefur það f
skyn 1 byrjuu greinar sinnar, að
hún hafi ekki séð það til neins, að
senda Baldri þessa grein sína, af
því hún hafi verið hrædd um, að
stafsetningin yrði ekki sem bezt,
mundi kannske verða breytt. Hafi
hún ætlast til, að greinin hennar
birtist á prenti, eins og hún kom út
f Lögbergi, þá hefir hún gert alveg
rétt. Baldurs menn hefðu naum-
ast getað látið hana koma út jafn-
skemtilega vitlausa og Lögbergi
tókst að gera, þvf hún er þeim mun
verri, en bréf herra K. Valgarðs-
sonar var, og var það nógu örðugt
viðfangs að láta það koma út sam-
kvæmt handritinu, og ef það hefði
verið öllu verra, þá hefði það ekki
verið hægt.
Er ég svo þessari “Ein af stúlk-
unum'’ þakklátur fyrir hennar góða
vi„ia á, að vilja segja eitthvað. Ég
tek viljann fyrir verkið.
í sambandi við greinina hennar
“I.J.P.”, sem kom út í Baldri nr-
13 þ.á. og greinina hennar “Ein af
stúlkunum” í Lögbergi nr. 14 þ. á.,
dettur mér í hugþessi skrýtla:
“Ég flýti mór að láta þig vita, að
ég hefi eignast tvíbura; meira í
næsta skifti. Þinn V.”
Mér finst þetta geta átt vel við
að sumu leyti.
Vinsamlegast,
Gísli P. Magnússon.
PIANOS og ORGANS.
Hefntzman «V Co. Pinnos.-Kell Orgel.
Vér seljam með mánaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H- McLEAN & CO. LTD.
53Ð MAIN St. WINNIPEG.
NEW Y0RK
Insurance Co.
LIFE
Jobn A. McCall,
PRESIDENT
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upþhæð
$342,212.569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón-
um meira, en nokkurt annað Iffsábyrgðarfélag hefir selt
á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millíónir dollara
var borgað fyrir 8000 dánarkröfur. Yfir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini
þeirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um 8-J millfón. — Sjóður þess hækkaði um 38
millíónir, er nú $390,660,260.—Lífsábyrgð í gildi hækk-
aði um $183,396,409. Öll lífsábyrgð 1 gildi 1. Jan. 1905
$1,928,609,308.
CHR. OLAFSSON,
AGENT.
WlNNIPEG
J G. MORGAN,
MANAGER
Neitað um meðraæli.
Nokkrir meðlimir úr stúkunni
Heklu nr. 33 komu sér saman um,
að reyna að koma á fót n/rri Good
Templara stúku hér í bænum, og
báðu þeir fslenzku stúkurnar um
meðmæli til stórstúkunnar með
nýrri stúkustofnun.
En allar stúkumar létu sig henda
það hneyxli, að neita um
meðmælin, og jafnvel, að ein þeirra
gengi svo langt að gera áskorun til
þessara áður umgetnu manna um
að vera ekki þau dauðans flón, að
láta sér detta f hug að stofna nýja
stúku.
Við þessa neitun er margt að at-
huga. Fyrst er það. að neita með
mælum með sllkri stofnun, er sama
sem að vinna á m ó t i bindindis
málinu og Good Templar reglunni.
Neita mönnum um að vera f bind-
indislegum félagsskap. Að neita
um svona löguð meðmæli, er alveg
sama og ef að kæmu góðir og heið-
arlegir menn og bæðu um inntök,u
í stúkuna og þeim væri neitað um
beiðnina, að eins af þeirri ástæðu
að þeir ætluðu að starfa að bind-
indismálinu!
í fám orðum sagt, þessi neitun
stúknanna er alveg gagnstæð og
þveröfug við anda og starfsemi
Good Templar reglunnar og bind-
indismálsins.
Að svona starfsemi vinnur ís-
lenzka Good Templar reglan
Winnipeg!
Von er að henni gangi vel!
Að ný stúka væri stofnuð ætti
að vera hinum stúkunum meira
gleðiefni en svo, að þeir gerðu stór
hneyxli fyrir eigin hagsmuna sakir
eins og þær hafa gert með áminstri
neitun.
Þótt það væru þeirra eigin með-
limir, sem stúku vildu stofna, gerir
ekkert til, því eftir þvf, sem fleiri
stúkur eru, eftir því eru fleiri menn
starfandi f reglunni. Það er lítið
fengið með þvf, að stúkur geti talið
tvö, þrjú til 4 hundruð meðlimi, og
af þeim starfa svo sem 30 til 40,
hitt alt dauðir meðlimir. Betra að
stúkan telji ekki nema 50 meðlimi
og þeir séu allir starfandi.
Enn fremur, ef stúkur eru marg-
ar, telur reglan fleiri meðlimi, því
þessi stúka fær menn inn f regluna>
sem hin fær ekki osfrv.
Með mörgum stúkum fást marg-
ir til að ganga f regluna og starfs-
svið reglunnar stækkar og breiðist
út, og við það eykst henni kraftur
og magn. En ekki með þeirri lúa-
legu og öfugu aðferð, sem fslenzku
stúkurnar hér brúka til að hrinda
bindindismálinu áleiðis.
Á þessari neitun stúknanna sést
að starfsemi þeirra er peninga-
spursmál, og til að sýnast. Að láta
það berast út um heiminn. að þær
telji svo og svo mörghundruð með-
limi, sem allir séu góðir og kær-'
leiksrfkir bindindisvinir' og vinni
með trú, von og kærleika að biiul-
indismálinu með því að r:eita bræðr-
um sfnum um meðmæli með þvf,
að stofna nýja bindindisfélagsdeild
í viðbót við þær sem áður eru. Slfkt
er nú áhugi, trú, von og kærleikur!
Það er víst eins dæmi í sögu Good
Templar reglunnar, að hennar eigin
meðlimir neiti hvorir öðrum um
tækifæri til að efla og útbreiða
regluna.
Hverri stúku ætti að þykja það
stór heiður, að hennar eigin með-
limir yrðn til þess að stofna nýja
stúku; þvl með því sýnir hún það,
að hún á starfandi meðlimi, og lfka
stuðlar hún til þess, að fleiri gangi
í regluna, því það verða alt af fleiri
meðlimir f tveimum stúkum en
einni.
Eg ætla ekki að vera fjölorður
um þetta mál f þetta sinn; en ég
vildi óska, að svona lagað hneyxli
eða nokkurt annað ætti sér ekki
stað í stúkunum framvegis, þvf mér
er of vel við Regluna til þess að ég
óski eftir, að hún geri
löguð glappaskot.
Að endiingu skora ég á stúkurn-
ar, að taka þessa neitun t a f a r -
1 a u s t til baka og veita meðmælin
og hjálpa til eftir megni að stofna
nyja stúku. Því eins löguð neitun
og áður er sagt er meira hneyxli,
en nokkur einasta Good Templara
stúka ætti að vera þekt fyrir að
gera. Agúst Einarsson.
Winnipeg, 1906
* Búland J
til sölu
f
Ég hetí 240 ekrur af
góðu búlandi, 48 mílur suð- T
vesturfrá Winnipeg.skamf
frá Glenboro - brantinni,
sem ég get selt eða skift
fyrir eignir hér f bæn-
um.
Þeir, sem vildu
þessu, snúi sér til
J. T. Bergman
680 Sherbrooke St.
f
& '<A
T
sinna *
T
"i»
f
•i?
VEGGJA-PAPPIR
KVRIH
Hálfvirði
Við erum bráðum útseldir
af mörgum sortum af pappír,
eigum að eins eftir fyrir eitt
herbergi (ekki mjög stórt) af
mörgum tegundunum; sumt
mjög fallegur pappír, sem við
sel.ium fyrir hálfvirði og það-
an af minna.
Bekkja og loft pappír sam-
svarandi líka til sölu.
Veggjapappír
fyrir
hálfvirði
ANDERSON & GOODMAN
m RO«S AVE.
FastÉMsala
Afbragðs land, með stóru góðu
húsi, og fjósi yfir 40 gripi, og
ágætu vatnsbóli, f Pine Valley, er
boðið til skifta móti d&góðu húsi
og lóð. Eigandinná yfir $1,000 í
oft 8Vona eigninni, er hann lætur upp í hús-
eign hér f bænum. Bæjareignin
verður að vera f suðurparti bæjar-
ins. Tækifæri fyrir þá, sem vilja
komast á ágætt land.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
Skrifstofa: 21» Mclntyre Block.
Teleplione 2986.