Heimskringla - 11.05.1905, Page 4
HEIMSKRINGLA 11. MAÍ 1905
WEST END
BICYCLE
477
SHOP
477
Portage Ave.
Portage Ave.
Par eru seld þau sterkustu og fegurstu
hjól, sem fáanleg eru 1 Canada og langt um
ódýrari en hægt er aö fá þau annarsstaöar 1
b« þessum, ýmist móti mánaðar afborgun-
um eöa fyrir peninga út 1 hönd gegn rifleg-
um afslætti. Brúkuö hjól keypt og seld.
Allar aögeröir á hjólum fljótt af hendi leyst-
ar og vel og traustlega geröar. Einnig er
selt alt, sem filk þarfnast til viöhalds og
aögeröar á hjélum. fíleymiö ekki staönum.
477 Portage Ave.
JON THORSTEIXHSOS
WINNIPEG
Vegna ófyrirsj&anlegra hindrana
getur ekki ný saga fylgst með
þessu blaði; hún byrjar með næsta
blaði, ef mögulegt verður. Kaup-
endur eru beðnir að bfða rólegir.
Herra Jónas Pálsson, söngfræð-
ingur og organ-leikari við Tjald-
búðarkirkju, lagði af stað í s. 1.
viku austur til Toronto, til undir-
búnings við útskriftar próf írá
“Ontario College of Music.”
.Tónas hefir staðist fyrri ára próf-
in ágætlega, en sfðasta prófið er
örðugast og krefst lengst undirbún-
ings, og taldi hann þvf nauðsyn-
legt að gera þann undirbúning þar
á staðnum. Hann ætlar að taka
próf í pfanó og pípu-orgelslætti og
f “harmony,” «
Aður en hann fór austur, voru
honum haldin 2 lieiðurssamsæti.
Hið fyrra af ntmendum er notið
hafa tilsagnar hjá honum, og var
honum þar gefin dýrindis gull-
penni; hið síðara var haldið af
s/ingflokk Tjaldbúðarsafnaðar, og
var honum þar gefinin gullbúinn
“ebony”-göngustafur. Það sama
kveld var og haldin söngsamkoma
sú, í Tjaldbúðinni, sem áður var
auglýst hér f blaðinu.
Kirkjan var troðfull áheyrenda,
og mun söfnuðurinn hafa grætt
yfir hálft annað hundrað dollars við
þaðtækifæri. Margir vinir Jónasar
fylgdu honum á vagnstöðvarnar er
hann fór auKtur, og árnuðu honum
góðs gengis við prófin.
Dr. Moritz Halldórsson kom til
Winnipeg um síðustu helgi, kallað-
ur af Rev. Einari Vigfússyni, til
konu hans. Fór strax aftur suður
sakir anna heima tyrir, f>ar á með-
al 17 íslenzkir sjúklingar f Park
River og 2 f Grafton.
Guðni Runólfsson f Fort Rouge
varð fyrir þvf óhappa slysi, um sfð
ustu helgi, að hestur sló hann svo
hann fótbrotnaði, og verður því
frá verkum nokkurn tfma. Árni
bróður Guðna, hefir legið rúmfast-
ur f marga mánuði, svo að vinnu-
kraftur fjölskyldunnar er þrotinn
itm stund, og kringumstœður henn-
ar f>ví sem vœnta má ali örðugar.
Sigurður Bárðarson biður alla j
þá, sem hann hefir lánað bækur,
að gera svo vel og skila f>eim hið
allra fyrsta, heim til hans, að 545
Elgin Ave. Þvf þótt hann viti
hvar þær eru niðurkomnar, óskaí
hann eftir að þurfa ekki að ómaka
sig heim til hvers eins sem heldur
f>eim; þvi ekki má minna vera fyr- j
ir lánið en að þeim sé skilað.
Messað verður f samkomusaln-
um undir Únítara kyrkjunni, á
sunnudagskveldið kernur kl. 7 e.h-
Allir velkomnir.
Skrásetning atkvæðaskránna
fyrir Gimli kjördæmi, fer fram f
St. Laurent f>ann fyrsta júnf n. k.;
en endurskoðun þeirra fer fram
á Gimli undir umsjón Myers dóm-
ara nokkru sfðar, og mun það verða
auglýst hér f blaðinu.
Tveir velf>ektir landar vorir
hafa byrjað fasteigna verzlun hér
f bænum. Féiagið heitir “The
Olafsson Real Estate Co.” Lesið
auglýsingu þeirra á öðrum stað hér
f blaðinu.
Til athungunar ísl. 1 Grunna-
vatns- og Alptavatnsnýlendum, og
öðrum stöðum, skal þess getið að
herra William Logan, að Clark
leigh P O., hefirumboð til að selja
lönd Saskatchewan Valley Land
félagsins, og til að selja heyleyfi
á þeim. Landar vorlr í téðum ný-
lendum geta f>ví snúið sér til hans
í þessum efnum.
Talsvert snjófall varð hér að-
faranótt s.l. sunnudags, og regn á
sunnudaginn, svo að slabbsamt er
á strætun og akvegum f fylkinu.
En væta þessi er holl fyrir jörðina,
og eykur vöxt á ökrum bænda og
engi. Vorið hefir að pessum
tfma verið kalt, og vonumst þvf
eftir hlýindum úr þessu.
Hópur vesturfara lagði af stað
frá Akureyri með “Vestu” þ. 17.
þ. m„ eru því væntanlegir hingað
með byrjum næsta mánaðar.
Dánarminning eftir kyrkjublaðið
“ VERÐI LJÓS!” er nýlega kom-
in út og fæst hjá Styrkári V. Helga-
syni 555 Sargent Ave., Winnipeg.
Ritdómur um bækling þennan mun
birtast innan skams f einhverju
helzta blaði Islendinga hér vestra.
HEniHKRIHfiLl og TVÆR
skemtilegar sögur fá nýir kaup
endur fyrir að eins S>5í.OO.
Frá Selkirk.
Þann 6. f>.m. gaf séra St. N. Thor-
láksson saman f hjónaband, þau,
hra. G. F. Jóhannsson og Mrs.
Jóhönnu Magnus, bæði til heimilis
f Selkirk. Veizla, mikil og fjöl-
menn, var haldin við það tækifæri,
að heimili brúðurinnar, og nutu
gestir þar veglegs beina og góðra
skemtana. Séra Steingrímur
mælti fyrir minni brúðhjónanna og
tókst það vel. En viðeigandi hefði i
það verið, ef hann f pvf sambandi'
hefði talað nokkur hlýleg orð fyrir
minni systur brúðurunnar, Miss
Johnson, fyrir f>á framúrskarandi
hjálp og aðstoð er hún hefir veitt
systur sinni, yfir allan þann tfma,
sem hún hefir f einstæðings ástandi
sínu, alið önn fyrir börnum sfnum
4 eða 5 að tölu; og endaði hjálp
sfna með þvf, að láta byggja handa
henni ágætt íveruhús. Þær munu
vera fáar, ungu stúlkumar, sem
veita skyldfólki sfnujafn mikils-
verða hjálp.
Mrs. Júlfana Sigurðsson, sem
verið hefir hér f bæ sfðan um s. 1.
jól, og orðið að þola að láta taka
af sér hægri hendina hér á spftal-
anum, hefir beðið Heimskringlu
að votta búendum f Háland skóla-
héraði, innilegt þakklæti sitt fyrir
$33.25 peninga gjöf, sem konur
héraðsins sendu henni nýlega.
Þessi styrkur kom sér einkar vel
og gerir konunni mögulegt að
borga mest-árfðandi 6kuldir sem
hún hefir komist f við spftalann, og
sem endilega urðu að borgast strax,
Konan er nú á sæmilegum bata-
vegi.
Hvar er hann?
Fyrir nokkrum árum síðan fór
ungur piltur, héðan úr bænum, suð-
ur til Mountain N. D., í vinnu til
hra. Jóns Hilmans. Þar var hann
nokkurn tíma. Það hefir sfð-
ast fréttst til hans fyrir tveim ár-
um síðan, að hann hafi þá farið
frá N. Dakota til Duluth, Minn.
Skyldmennum hans í Winnipeg
er ant um að hafa upp á honum.
Þeir, sem kynnu að vita hvar j
Thorsteinn þessi er niðurkominn, j
eru vinsamlegast beðnir að tilkynna
>að á skrifstofu Heimskringlu.
Stefán kaupm. Sigurðsson frá
Hnausa P.O. kom til bæjarins í
fyrradag úr ferð sinni til Silver City,
Mexico, og með honum kona hans
og ungfrú Gróa Sveinsson. Sonur
þeirra hjóna, sem var þar til lækn-
inga, var andaður 2 dögum áður en
Mr. Sigurðsson komst alla leið suð-
ur. Allir vinir peirra hjóna sam-
hryggjast þeim innilega í þessari
þungu sorg þeirra.
Stúkan “Island” nr. 15 heldur
fyrstu afmælishátíð sfna fimtu-
daginn 11. maf næstk. Ágætt
prógram og hressandi veitingar.
Allir Góðtemplarar velkomnir.
lnngangur ókeypis. Byrjar kl. 8
F u n d u r,
Únftara safnaðar-fundur verður
haldinn eftir messu, í samkomu-
salnum undir kirkjunni, næsta
sunnudagskveld 14. þ, m. Allir
safnaðarlimir eru fastlega ámintir
að sækja þennan fund.
Wm. Anderson, forseti.
Westfold, Man., 1. maí 1905
Þann 20. apríl var haldin skemti
samkoma f Hálands skólahúsi að
tilhlutun kvenna í skólahéraðinu
til arðs fyrir Mrs. Jóhönnu Sig-
urðsson, sem hefir dvalið áalmenna
spítalanum í Winnipeg sfðan 18.
desember sfðastliðinn.
A samkomu þessari voru haldnar
ræður, söngurog upplestur á ensku
og fslenzku, ásamt öðrum skemtun-
um. Þar var einnig “rafflað” kind
með tveimur þriggja mánaða göml-
um lömbum, sem þau heiðurshjón-
in Kr. Vigfússon og kona hans
gáfu til þessa fyrirtækis. Kindina
hlaut Mr. Joe Emms, sem lét selja
hana við uppboð og gaf svo verðið
($6.00) í sjóð samkomunnar. Arð-
urinn af samkomu þessari varð
$33.25.
Naudungar
f SALAf
$5,000 virði af FATNAÐAR-
YÖRIJM verður að seljast með
GJAFYERÐI innan 60 daga.
STAKA
Ef að gæði gefast lífs
gleymast mæðu tárin,
enn pegar hræða hretin kífs
harma blæða sárin.
Hjálmur Arnason.
EINN MÁNUÐUR aðeins er nú eftir af “nauðungar-sölu”
mammmmimm^mmmmmmmmmmm—^m tímabilinu. Til þðSS að þóknast Skifta-
vinum mínum sel ég nú $3.50 buxur fyrir$1.50 að eins. meðan upplagið
endist. Áðrar vörur með líkum afföllum. Þú ættir því að kaupa hér alt
sem þú þarft, því þetta er er engin “humbug”-sala, — ALT VERÐUR
AÐ SELJAST, því oss er sagt upp húsnæðinu og vér getum enga sæmi-
lega sölubúð fengið að svo stöddu. Oss er því nauðugur einn kostur að
selja, selja, — og vort tap verður yðar gróði Þessi mikla sala byrjar á
laugardagsmorguninn; komið því með fjöldanum og. takið þátt í þeirri
mestu kjörkaupasölu, sem verið hefir í þessum bæ. — Bara hugsið hvað
það þýðir að geta fengið nýjan $15.00 alfatnað eða yfirhafnir fyrir að
eins $9 75; $20 fatnaður fyrir $|2; $13 fatnaður fyrir $8.90- Yfir
100 alfatnaðir með sérstöku verði: $10, $12 og’ $15 virði fyrir $g_ Vér
ábyrgjumst að spara yður 25 úl 50 prócent á öllum kaupum yðar í
búð vorri. Komið meðan mest er úr að velja.
Palace Glothing Store
G. C. LONG. eioandi
458 Main Street - - - Winnipeg
Er ódýrt og endist lengi
BLUE RIBBON
BAKING POWDER
Biðjið um Blue Ribbon, fylgið reglunum
PALL M. CLEMENS)
BYGGINGAMEISTARI.
470 llain Ht. Winnipeg.
BAKER BLOCK.
Giftingaleyfisbrjef
selur Kr. Ásg. Benediktsson,
488 Toronto Street
Woodbine Restaurant
Stœrsta Billiard Hall 1 Norðvesturlandin
Tln Pool-borð,—Alskonar vln ogvindlar.
I.ennon A Hebb,
Eieendur.
The OLAFSSON
Real Estate Co.
VV I N N I P E G
(Yflr búð^
ANDERSON & THOMAS)
í)«r. Main & Jamwt Streeta.
Verzlar með fasteignir í bænum og utan
liæjarins. Útvegar lánsfé gegn fasteignar-
veði og setur hús og eignir í eldgábyrgð.
Sérstðk kostakjðr á nokkrum húsum og lóðnm í
vesturhluta bæjarins þessa dagaua. Bújarðir ná-
lægt Pine Valley og á ýmsum öðrum stöðum.
Sumar þeirra fást í skiftum fyrir einnir í bænum.
Komið oe hittið oss að máli
EINAR OLAFSSON - JOHN STEPHANSON
J. J. BILDFELL,
505 MAIN STREET
selur hús og lóðir og annast þar að lút-
andi stðrf; útvegar peningalón o. fl.
Tel.: 2685
A. G. McDonald & Co.
Gas og Rafljósaleiðarar
417 iflain St. Tel. «14«
Þeir gera bezta verk oe ódýrt og
óska eftir viðskiftum Íslendínga
Doiiiíiiíoii Bank
Höfuðstóll, »5,000,000
Varasjóður, $5,000,000
Allskonar bankastörf af hendi leyst
SPARISJÓDS-DEILDIN
tekur á móti dollars innlagi eða
meira í einu ok borgar hæztu
banka-vexti af.
NOTRE DAME Ave. BRANCH Cor. Nena St
T. W. BQTLER, Manager
’PHONE 3668 Smáaðgerðir fljóttog
vel af hendi loystar.
fldams & Main
PLUMBINC AND HEATIHC
473 Spence St. W’peg
DUFF & FLETT
PLUMBEBS
Gas & Steam Fitters.
004 Notre Dame Ave.
Telephone 3815
OFDBYKKJU-LŒKMIHC
ódýr og áreiðanleg fæst
með því að rita eða finna
MagnuK Borgfjord,
781 William Ave., Winnipeg
flonnar & Hartley
Lögfræðingar og landskjalasemjarar
494 fflain St, - - - Wjnnlpeg
R. A. BONNBR.
T. L. HARTLBY,
SWIWWWWWff
HEFIRÐU REYNT ?
nppwpv’s -
REDWOOD LAGER
EDA
HINN AGŒTI
‘T. L»’ Cigar
er laugt á undan, menn ættu ekki að reykja
aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá :
WESTERN CIGAR FACTORY
Tliom. I.ee, eigandi. WINNIFEG.
EXTRA PORTER.
Við ábyrgjustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og beztu,
og án als gruggs. Engin peningaupphæð hefir verið spöruð yið til-
búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA og
LJÚFFENGAST4, sem fæst.
Biðjið um það uvar sem þér eruð staddir Canada,
| Edward L. Drewry - - Winnípeg, I
flaitniRctnrer & Enifiorter, -S
fmmmm mmmmK