Heimskringla - 17.08.1905, Page 4
HEIMSKRlNGrLA 17. AGÚST 1905
WEST END
8ICYCLE
Par eru seld þau sterkustu og fegurstu
hjól, sem fáanleí? eru í Canada og langt um
ódýrari en hægt er aö fá þau annarsstaóar i
bæ þessum, ýmist móti mánaöar afborgun-
um eöa fyrir peninga út í hönd gegn rífleg-
um afslætti. Brúkuð hjól keypt og seld.
Alíar aðgerðir á hjólum fljótt af hendi leyst-
ar og vel og traustlega geröar. Einnig er
selt alt, sem f Slk þarfnast til viðhalds og
aðgerðar á hjólum. Gleymið ekki staðnum.
477 Portage Ave.
JO\ THOKNTDINSSOSr
WINNIPEG
Verðlaun fyrir bezt frumsamin
sönglög send Islendingadagsnefnd-
inni blutu:
1. verðl. Gulinsteinn Eyjóls-
son............$10.00
2. “ Hjörtur Lárusson. 5.00
Dómendurnir sendu nefndinni
svohljóðandi dómsákvæði:
“We, the undersigned, after
careful study, have found tbe
following named compositionS
to show the most originality anc
best musicianship:
No. 2 l'irst Prize
No. 1 SSecond Prize.
Steingrímur K. Hall
Gísli Jónsson.”
En lögin voru tölusett f hendur
dómendanna, eftir f>eirri röð, er
þau bárust nefndinni, svo að verð-
launin féllu eins og að framan er
sagt.
Islendingadagsnefndin v o 11 a r
hérmeð þakklæti, öllum f>eim, er
nendu lög til samkepni, og vonar
að þeir allir unni dómendunum
þess sannmælis, að þeir hafi dæmt
eftir beztu vitund og þekkingu.
Stór flokkur innflytjenda kom
hingað 6 sunnudagskveldið var;
þeir voru hátt á annað hundrað
talsins, flestir frá Bretlandi og Sví-
þjóð og nokkrir Gyðinear. Aðeins
20 manns urðu hér eftir, hinir
héldu áfram vestur til Battleford,
Regina og Sidney. Þeim leist mjög
vel á landið eða það af f>ví, sem
þeir þegar höfðu augum litið. I
vikunni sem leið munu hafa komið
hingað um 200 innflytjendur. Þeir
héldu einnig tafarlaust áfram,lang-
ar f löndin vestra.
Presturinn Th. Fossum, frá Du-
luth, Minn., heilsaði upp á oss
núna f vikunni. Hann er norskur
maður og hefir dvalið f Amerfku í
25 ár, en brá sér heim til fóstur-
jarðarinnar fyrir 5 árum síðan.
Hann er mjög á glóðum út af á-
standinu heima á fósturjörð sinni
um þessar mundir, en vonar, að
Norðmenn geti algerlega losast
undan Svíum, því að þeir hafi, um
allan þeirra samverutfma, eigi haft
annað en ilt eitt af sambandinu við
þá, enda séu f>jóðirnar, þótt gamal-
skyldar séu, einkar ólíkar, bæði að
þvf, er kemur til skapferlis og lifn-
aðarhátta. Hann telur það mjög
nauðsynlegt, að Norðmenn og Sví-
ar skilji í bróðemi, því að það sé
þeim báðum fyrir beztu, og úr því
engin hætta á, að nokkur misklfð
rísi á milli þeirra, þegar hvor -þjóð
in fyrir sig fái að búa að sínu.
Hr. Sigurður Jónsson og sonur
hans Sigurður, frá Hallson, N. D.,
voru hér á ferð í vikunni sem leið.
Þeir dvöldu hér í bænum yfir ís-
lendingadaginn og brugðu sér svo
norður til Nýja fslands að heim-
sækja frændur og vini. Þeir héldu
heimleiðis aftur þann 8. þ,m.
G. Thomas
selur nú Gullstáss, Úr o.fl.
ódyrar en nokkur annar
Hvert laugardagskveld sel ég á uppboði, en svo þess
á milli með sama verði og mér býðst á uppboðinu
Vekjaraklukka, áður $1.25, nú. 6«c
Áttadaga slag-klukka,
áður $4.50, nú »2.25
Verkamannaúrin alþektu, með
Waltham verki, áður $8, nú 4.50
Gullhringa, áður $4.00 nú...... Oö
“ “ $3.00 “ ...... 1.50
Úrfestar, áður $3.50, nú...... 1.50
Silfur kökudiskar, áður $5, nú 2.50
Og alt annað eftir sama hlutfalli
Ég þarf að flytja ekki síðar en í september, en heíi
$12,000 virði af vörum, er ég þarf að losa mig við
Q. THOriAS - - 596 Main Street
Herra Páll M. Clemens, bygg-
ingameistari, kvæntist þann 15. þ.
m., Miss Laufeyju Goodman, bæði
til heimilis hér í bæ. Bróðir hans,
séra Jón Clemens, gaf f>au saman
1 hjónaband að heimili foreldra
brúðgumans. Þau héldu sfðan
sama dag af stað í skemtiferð suð-
ur í tíki. Heimskr. óskar hinum
ungu hjónum allrar hamingju.
Fáeinir af þeim, sem unnu verð-
laun á íslendingadeginum 2. ágúst
hafa enn ekki vitjað þeirra til mín,
og vil ég biðja þá, eða foreldra
þeirra barna, sem í hlut eiga, að
sækja pessi verðlaun, sem allra
fyrst. Eg er æfinlega heima kl. 7
til 8 á kveldin.
M. Pétursson,
787 Notre Dame Ave.
Þann 20. júlf voru gefin saman í
hjónaband þau hr. Ólafur Frfmann
og Miss Guðrún Johnson, frá Clark-
eigh P.O. í Álptavatnsbygð, Man.,
af séra Rögnv. Péturssyni.
Einnig þann 30. f. m. voru f>au
ar. Einar E. Einarsson og Miss
Þóra Margrét Kristjánsdóttir Ey-
:brd, frá Pine Valley, Man., gefin
saman f hjónaband í kirkju Únftara
safnaðarins hér f bænum, af séra
Rögnv. Péturssyni.
Heimskringla óskar báðum þess-
um hjónum allra framtfðarheilla.
Munið eftir auglýsingu hr. G.
Thomas, sem er prentuð á öðrum
stað í blaðinu. Það er enn hægt
að komast að mjög góðum kjör-
caupum hjá hr. Thomas, þrátt fyr
ir hina miklu aðsókn, er hann hefir
á hverjum degL
Hr. Magnús Ólafsson í Lundar
P.O. kom hér á skrifstofuna í fyira
dag. Hann hefir dvalið hér við
vinnu í bænum f 3 mánuði og held-
ur nú heim, til pesa að sinna hey-
skap á landi sfnu.
Þann 4. þ.m. setti umboðsmaður
stúkunnar Heklu Mr. S. Vigfússon,
eptirfarandi meðlimi í embætti fyr-
ir komandi ársfjórðung:
F.Æ T., P. S. Pálsson; Æ. T.,
Wm.Anderson; V.S., MissA. Jóns-
dóttir; G. U.T., G. Árnason; R.,
I. Nordal; A.R., Jóh. Sveinsson;
F.R., B.M Long; G., S.Björnsson;
K , Miss G. Kristjánsson; D., Miss
S. Jóhannesson; A. D., Miss A.
Oddson; V., Mr. L. Thomson; U.
V., Mr. H. Bjering.
Núverandi meðhmatala stúkunn-
ar er 351.
Paul Creighton, unglingspiltur,
einkasonur móður sinnar, sem er
ekkja hér í bænum, druknaði í
Winnipeg-ánni, þar sem nefnt er
White Mud River á miðvikudag-
inn var, Hann hafði tekið sér
skemtiför þangað f sumarfrfinu.
5r þetta því tilfinnanlegra fyrir
>að, að hér er gamla sorgarsagan,
sú, að þessi piltur var einkasonur
móður sinnar, sem er ekkja.
Maður nokkur, John Ferrier, að
nafni, dó á laugardaginn var á al-
menna spítalanum hér af áverka,
er hann fékk við það að detta nið-
ur stiga f Dingwall Block, hér í
uænum, fyrir viku síðan. Lfkið
var flutt til Portage la Prairie. Þar
átti þessi maður heima og var þar
í heldri manna röð.
í kveld (fimtudag 17. þ.m.) kl. 8
talar hr. Sigurður Sigvaldason í
í sunnudagsskóla-salnum í 1. lút-
ersku kirkjunni á Nena stræti hér í
bænum. Allir eru hjartanlega vel-
komnir og beðnir að hafa með sér
fslenzkar sálmabækur. Fjölmenn-
ið nú Islendingar!
Steinhleðslumenn hér í borg-
inni gerðu verkfall á mánudaginn
var. I broddi fylkingar gengu þeir,
sem vinna áttu við steinlagningu
í C.P.R. hótelið nýja. Aðrir koma
að líkindum á eftir. Vanséð um
málalok.
Tveir drengir, annar 10 en hinn
12 ára, stórmeiddust um hádegis-
bilið á laugardaginn var. Þeir
voru að kasta púðurkerlingum hér
niður á Notre Dame Ave. Þeir
voru biðir fluttir á spítalann og er
tvísýnt um lff peirra. — Góð við-
vörun fyrir fslenzku drengina hér,
að fara varlega í þessu efni, og
allra bezta viðvörunin þð fyrir ís-
lenzka foreldra, að gefa börnunum
sínum aldrei cent til þess að kaupa
þetta hættulega leikfang.
Hveitikaupmenn og bankamenn
leggja af stað héðan úr bænum
hinn 19. þ.m. til pess að líta yfir
uppskeruna og semja um kornkaup
í öllu Manitobafylki og Norðvestur-
landinu.
Talsverður áhugi er nú í mönn-
am, að vita, hvernig þeirri ferð
reiðir af, þar eð þessir menn gefa
skýrslur um tvent: Vöxt uppsker-
unnar í sambandi við gæði korns-
ins og þar að auki verðið á hveit-
inu.
E. H. Rodgers, bygginga-um-
sjónarmaður hér í bæ, telur, að
byggingaleyfi séu nú veitt fyrir 8
millfón dollars virði af húsum hér
í borginni. I fyrra, um þetta
leyti, námu það að eins 7 millfón-
um dollars.
1 eða 2 þægileg herbergi eru til
leigu að 789 Beverley Street.
Húseigendur á Gertie St. hér í
bænum, og par f grendinni, sporna
af alefli móti f>vf, að George M.
Jackson veitist leyfi til, að setja
upp vínfáng á heildsöluhús þar,
eins og hann hefir sótt um. Þeir
segja, að sig langi ekki til að sjá
“Central Park” svívirtan með því,
að þarliggi fullir dónar með brenni-
vfns pitlurnar sfnar. Það muni
fæla alla heiðvirða menn, konur og
börn frá, að heimsækja þennan
stað, sem annars sé svo unaðs-
legur.
Það er blindur maður hér f borg-
inni, sem venjulega kemur hér á
hverju sumn. Hann stóð á laugar-
daginn kl. 8 um kveldið niður á
James og Main strætum og beidd-
ist ölmusu á vanalegan hátt. Það
gekk dræmt nokkuðað fáá diskinn.
En þá gengur þar að blaðadrengur,
sem ekki hefir nema aðra hendina,
fer ofan í vasa sinn og lætur 25c
á diskinn. Þá varð uppi fótur og
ftt á öllum, sem nærstaddir voru.
Allir létu nú eitthvað af mörkum
og þessi eini peningur vesalings
blaðadrengsins bæklaða varð til-
efni til þess, að blindi maðurinn
fékk rúma 12 dollara á diskinn
sinn á stuttum tíma.
Á laugardaginn var vildi það
óhapp til f einu hótelinu hér í bæn-
um, að stúlka ein f Sáluhjálpar-
hemum fékk billiard kúlu beint
framan í sig í sama bili, er hún
kom inn, til þess að selja blöðin
sfn. Stúlkan féll strax í rot, firjár
tennur brotnuðu í henni og hún
var strax flutt nálega meðvitundar-
laus burtu. Rúmföst liggur hún
ennþá af þessum áverka. Stúlkan
heitir Miss Scott.
Á laugardaginn var fældist hest-
ur úti fyrir dyrunum á búð hr. W.
J. Boyd, brauðsala, á Aðalstrætinu.
Það sem fældi hestinn voru nokkr-
ir sjálfhreifivagnar (Automobiles).:
Hann sleit sig lausan og stökk upp
á gangstéttina. Fjöldi manna stóð
þar á horninu, sumir gátu forðað!
sér, en aðrir féllu niður. Tvær:
konur meiddust lítið eitt, en ann-
ars varð hræðslan meiri en meiðsl-
in, og einstakt lán, að ekki varð 1
meira úr.
Keyrara vantar.
Stöðug atvinna og gott kaup.
Menn snúi sér sem allra fyrst til
S. Thorkelsson,
738 Arlinfjton Street.
_________________ í
Fáein pund af góðum æðardún
eru til sölu hjá Skúla Skúlasyni,!
659 Alverstone St., Winnipeg, á;
$4.00 pundið.
K W KUHIV
C'ontractor A Itnililer
364 iíoss Ave. TVinnipeg
Leggur gangstéttir og tyrfir fyrir
fratnan hús; girðingarsérstaklega
31. ég.
Kennara vantar
við Laufásskóla, No. 1211, frá 15.
September til 15. December 1905.
Tilboð, sem tiltaka mentastig og
æfingu sem kennarar, ásamt kaupi,!
sem óskað er eftir, verða meðtekin |
af undirrituðumtil 25. Ágúst næst- j
komandi.
Geysir P.O., 15. Júlí 1905
BJARNI JÓIIANNSSON,
17 8 ritari.
i f
Steingrimur K. Hall
PIANO KENNARI'
#
701 Victor St, Winnipeg
Thorsteinn Johnson,
Ffólíns-kennari - 543 Victor St.
1-12 tf
Woodbine Restaurant
Stærsta Billiard Hall 1 Norðvesturlandin
Tíu Pool-borö.—Alskonar vín ogvindlar.
teunon & Hebb,
Eieendur.
Avarp
TIL FISKIMANNA.
Eg hefi jafnan miklar byrgðir hér i
Winnipeg af góðum, þungum blýsökk-1
um til að selja yður, fyrir 3J cents pd. |
Ég borga einnig 4 cents fyrir pundið í
gömlum rubber-skóra og stígvélum, 8
cents fyrir pundið af koparrnsliog 2cts.
fyrir pundið af ullartuskum. Það borg-
ar sig að verzla við rnig.
B. Shragge,
396 Princess St., Winnipeg,
Hið bezta gerpúiver er eflaust
BLUE RIBBON
BAKING POWDER
Fylgið reglúnum nákvæmlega. — Og
geymið verðlauna-miðana. — 3 miðar
í hverjum punds-pakka. — Verðlaun-
um er iitbýtt á King St., Winnipeg.
Hyersvegiia
farið þér niður í Aðalstræti til þess að kaupa járnvöru
ÞEGAR pér getið notið hagfeldari viðskifta hjá
G
lenwright Bros.
587 Notre Dame Ave.
Fullar byrgðir af ]>eim orðlögðu
Sunlight Stoves og Ranges 8Zhjið„ís
ásamt allskonar járnvarningi öðrum. Einu umboðsmenn fyrir
Winnipeg og Vesturlandið.
ggffgfftgfgff—
Oddson,
Hansson
& Vopni
Tel. 2313
55 Tribnne Bldg.
Agnes Street
40 feta breiðar lóðir að eins
$575-oo
Beztu kaup í borginni!
Alfhan Place
lóðir á $65. $10 niðurborg-
un, afgangurinn eftir samn-
ingi. Rentulaust í eitt ár.
fef
n
11
11
i
ocoooccoo»ooc90ooi>coooootocee»c«ieoe»»ooeoooooooo
oocooeooewweeeoeoooooooooeoooeoo
00000000 «000woea
FREDERICK BDRNHAM,
forseti.
GEORGE D. ELDRIDGE,
varaforseti ok tölfræðingur.
Mutual Reserve Life InsuranceGo
OF NEW YORK.
Mikil frainför f auknum ábyrgðum árið 1904:
Abyrgðarsjóður í höndum New York Ins. deildarinnar
(á hvert ábyrgðar-skýrteini) 3. jan. 1905 ;.$ 4,397,988
N/ ábyrgð tekin og borguð árið 1903 .......... 12,527,288
Ný ábyrgð tekin og borguð árið 1904 .......... 17,868,353
Aukning borgaðra ábyrgða................ $5,335,065
Aukning trygðra ábyrgða fgildi árið 1904 .... 6,797,601
Aukning trygðra ábyrgðarhafa 1904 ....... 5,833
Aukning nýrra ábyrgðar-iðgjalda 1904 ..... $128,000
Lækkun borgaðra dánarkrafa 1904 ................ 119,296
Borgað alls til meðlima og erfingja...........$61,000,000
Hæfiv menn, vanir eða óvanir, geta fengið uraboðsstöður með beztu
kjörum. Ritiðtil “ AGENCY DEPARTMENT”,
_ Mutual Reserve Bldg., 307—309 Broadway, New York
^••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••mS
í
*
*
*
t
t
*
R. L. RICIIARDSON
forseti.
R. II. AOUR
varaforseti
CHAS. M. SIMPSON
ráðsmaður
► w
The IVinnipeg Fire /nsurance Co. J
\
|
l
>•
Aðalskrifstofaj ^INNIPEG, MAN.
Félag þetta vill fá íslenzka uraboðs-
menn í ö'lum nýlendum íslend-
inga i Canada.
L. H. MITCHELL,
Secretary.
spmmnmmm mmmmmmrrr
| HEFIRÐU REYNT ?
£ DPF.WPV’.S -
IREDW00D LAGER
EDA
EXTRA P0RTER.
Við áb.yrgjustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og beztu,
og án als gruggs. Engin peningaupphæð hefir verið spöruð við til-
búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA og
LJÚFFENGAST4, sem fæst.
Biðjið um það uvar sem þér eruð staddir Canada,
Edwurd L. Drewry - - Winnipeg,
Slanntactnrer A Importer,
mmmmi immmm
mmmm muiiiiiummm