Heimskringla - 29.03.1906, Blaðsíða 1
4
'Q. Johnson.
Verzlar meö “Dry Goods'
og Karlmannafatnaö.
Suðv. horn. Ross oe: Isabel
WINNIPEG
—i
bel St I
Q. Johnson.'
Hvaö sem ykkur vantar aö kaupa
eöa selja I>4 komið eða skrifiö til mín.
Suðv. horn. Ross ok Isabel St.
WINNIPEG
XX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 29. MARZ 1906
Nr. 25
Arni Esprtsson
Land og Fasteignasali
Útvegar peningalán og
tryggir líf og eignir
Skrifstcfa: Roorn 210 Mclutyre
Block. Telephone 3364
Heimili: 671 ítoss Avenue
Telephone 3033
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Hon. C.H.Campbell, dómsmála-
stjóri Manitoba, er um þessar
mundir aö ferSast um Ontario og
Quebec fylki til þess aS fá fylki
þau í liö með Manitoba til þess
að heimta af Ottawa stjórninni
fjflkja-umráð vfir telefónes innan
sinna takmarka. það er talið víst
að bæði Ontario og Quebec og
máske önnur fylki muni gera
sömu kröfu til Ottawa stjórnar-
innar um umsjón og eignarráð taf-
þráða.
— Sú frétt kemur frá St. l'aul,
að James J. Hill, förseti Great
Northern járnbrautarfélagsius, haf.
gert ráðstafanir til þess að l.yggja
um 3 þús. mílur af járnbrautuin í
Canada í nálægri framtíð. Sagan
segir, að hann ætli að byggja til
Portage la Prairie og Brandon og
frá Havre í Montana til 3jfedicine
Hat, og þaðan til Edmonton snið-
braut til Calgary. Hann kvað og
hafa ákveðið, að byggja til Reg-
ina og Winnipeg, og til nokkura
staða i British Columbia. Mælt
er, að Canadian Northern félagið
og J.J.Hill vinni saman að þess-
um framkvætnduin í Vestur Can-
ada, enn engin vissa er enn fengin
fyrir því, að svo sé.
— C.P.R. félagið hefir pantað i
þús. 30 tonna flutningsvagna til
viðbótar á brautakerfi sínu hér í
ríkinu og kosta þeir ails nær mill-
íón dollara.
;—1 Fjögur hundruS fjörutíu og
fjórar bæjarlóðir í Regina vroru
seldar við opinbert uppboð þann
16. og 17. þ.m. þær seldust fyrir
$186,223.00. þeir peningar runnu í
bæjarsjóð.
— Stærsta te-verzlunar félag á
Rússlandi hefir nýlega orðið gjald-
þrota. Skuldir þess eru taldar um
13/4 millíón dollara. þetta er tal-
in ein af afleiðingum Japan stríðs-
ins.
— þrettán ára gamall piltur, er
bjó ineð móður sinni 12 mílur
norður frá Toronto, sló föður sinn
með exi í höfuðið svo hann beið
bana af. Maðurinn hafði verið í
vinnu inni í borginni, en fór á túr
og hélt svo heim til sín og mis-
þyrmdi konu sinni svo inikið, að
Sonurinn þoldi ekki að horfa að-
gerðarlaus á leikinn.
— Tekjur C.P.R. félagsins þetta
ár eru áætlaðar 60 milKónir, doll-
ara. Félagið hefir nýlega aukið
innstæðufé sitt um 40 millíónir
dollara.
— Stjórnin í Japan hefir sam-
þvkt lög um að kaupa- allar járn-
brautir í ríkinu fyrir 250 millíónir
dollara og gera þær að þjóðeign.
Lög þessi voru samþykt i þinginu
með 243 atkv. gegn 109.
— Japan stjórn hefir auglýst,
að maður í Japan að nafni Kim-
ura, hafi fundið vipp telefón aðferð
án þráðar. Menn geta talað sam-
an langar leiðir og heyrt hvor til
annars, án nokkurs þráðar sam-
hands. þessi uppfundtring hefir áð-
ur gerð verið af ungum pilti í
Bandarikjunum, og sýndi hann að
tnenn gætu heyrt hvor til annars
meir en milu vegar, án þess að
nota þráð.
— Rússakeisari hefir ákveðið að
senda einn af náfrændum sínum
til Japan í heiðurs og vinsemdar-
skyni við gömlu óv-inina. Japanar
hafa og samþykt, að ser.da keis-
aralegan erindsreka til Rússlands,
til þess að færa keisaranum sátta-
kveðju sína. Eftir það skijða
þessar þjóðir hvor aðra sem vina
þjóðir.
— Bandaríkja og Canada auð-
menn hafa mvndað félag og key-pt
300 þús. ekrur af landi í Vestur-
Canada fyrir 3 millíónir dollara
Löndin liggja fratn með vegi þeiin,
er G.T.P. járnbrautin á að liggja
um.
— Ottawa stjórnin hefir tilkv.nt
Lord Strathcona í Lundúnum, aö
hér eftir borgi hún fiutninga lél
$5 fyrir hvert mannsbarn yfir 18
ára, er þau flytji til Canada, o
$2.50 fyrir hvern farþegja innan
18 ára. þetta er nokkru hærra en
áður hefir viðgengist.
— Stjórnin á Ungverjalandi heí-
ir auglýst, að alt samskotafé, er
komi frá Ameríku til styrktar
pólitiskum flokkum þar í landi,
verði gert upptækt og látið renna
í rikissjóðinn. það eru margír
ungverskir þjóðvinir í Bandaríkj
unum, sem á liðnum árum hafa
tekið mikinn þátt i landsmálum,
þjóðar sinnar með því að senda
stórar peningagjafir til pólitrskra
flokka, til þess að koma vissum
mönnum á þing. En þetta á nú
að aftakast með öllu.
— Walter Rothchild, einn <af
brezku þingmönnunum, sagði ’
London þinginu þ. 15. þ.m., að
allir þeir, sem flúið hefðu til Eng-
lands undan ofsóknum Rússa slj,
og ekki fengið ati dvelja þar, en
orðið að snúa heim aftur, heiðu
tafarlaust, er þeir komu heim,
verið skotnir án dóms og laga.
Hann kvaðst hafa gildar sannanir
fvrir þessu.
— Kappraun á ritvélar var liald-
in í Chicago þann 20. þ.m. þcir,
sem unnu, skrifuðu á vélína;
1. 4627 orð á 30 mínútum
2. 4238 orð á 30 mínutum
3. 4085 orð á 30 mínútum.
þriðji keppinauturinn var kona og
hafði hún aðeins 50 ritvillur í
skjali sínu.
— Stjórnendur New York I.ife
lífsábyrgðar félagsins hafa höfðað
mál móti Andrew Hamilton. dóm-
ara, til ]>ess, að knýja hann til að
gera grein fyrir því, hvernig aann
hafi varið því félagsfé, sem honum
hefir \<erið trúað fyrir. Sama frétt
segir, að hann muni verða látinn
standa ábyrgð á orðum þeim, er
hann hafði um stjórnendurna ný-
lega frammi fyrir rannsóknar-
nefndinni, og sem getið var um i
þessu blaði.
— Spánarstjórn hefir sagt af
sér embættym.
— Allmikil grunsemi er vöknuð
meðal ýmsra lífsábyrgðarfélaga
út af fjölgandi sjáífsmorðum hér
í landi. Og svo kveður mikið að
þessu, að eitt félag, “The Wood-
men of the World”, fer fram á, að
það verði framvegis tekið beint
fram í lífsábyrgðarskjölum þessa
félags, að erfingjar þess, er sjálfs-
morð fremur, fái ekki lífsábyrgð-
arféð útborgað, nema þeir sanni
fyrir dómi, að hinn látni hafi tek-
ið líf sitt í brjálsemi,— verið vit-
stola. það er skoðun félaganna,
að ýmsir af þeim, er sjálfsmorð
fremja, geri það til þess, að erf-
ingjar þeirra fái ábyrgðarféð, og
að þeir hafi fult ráð og rænu, er
þeir fremja verkið.
— Fimmtán menn með hlaðnar
skammbysstir og sprengikúlur óðu
inn á banka í Warshaw á Rúss-
landi og heimtuðu alt það fé, sem
í bankanum væri. þeir hótuðu að
sptengja upp húsið með öllu, sem
i því væri, ef nokkur mótspyrna
væri veitt. Mennirnir náðu ’ 438
þús. dollurum. þeir kváðust þurfa
féð til þess að herja á móti lands-
stjórninni. Enn hefir enginn þeirra
náðst.
— Bærinn Saskatoon ætlar að
biðja þingið um löggildingu sem
borg. það er ákveðið, að bærinn
byggi sitt eigið vatusfeiðsluverk
Og ljósakerfi, og öll önnur opinber
nauðsynja tæki. það er og gert
ráð fyrir, að bærinn haldi 3 laun-
aða menn, sem annist um öll bæj-
arstörf eða ráðsmensku þeirra^
— Rannsóknarnefnd sú. er Dom-
inion stjórnin setti nýlega til þess
að athuga, og opinbera fyrir al-
mennirtgi starfsaðferð liinna ýmsu
lífsábyrgðarfélaga í Canada, hefir
lcitt í ljós það, að yfirskoðun á
bókum félaganna, gerð af embætt-
manni ríkisstjórnarinnar, er harla
lítils virði og langt frá því að
vera fullnægjandi. þetta hafa og
sjálfir yfirskoðtinarmennirnir játað
það hefir og sannast, að félögin
hafa varið peningpm sínum í efa
söm fyrirtæki, en bein rangindi
hafa enn ekki verið sýnd að ættu
sér stað í meðferð fjársins. Rann-
sóknarnefndin hefir fundið það, að
íélögin verja of iniklu af tekjum
sínum í Bandarikja stofnanirr en
ininna mikfu í Canada en vera
ætti. Vörn félaganna er sú, að þau
geti betltr ávaxtað fé sitt í Banda-
ríkjunum en í Canada. Og \^c við
situr.
— New Brunswick stjórnin hef-
ir samþvkt þýðingarmikil lög utn
takmöfl^^n á sölu víntegunda. —
Meðal annars er þar bannað, að
selja nokkurt vín Yil neyzlu í þeim
landshlutum, sem samþykt hafa
vinbann innan takmarka sinna. —
Sektir fyrir brot gegn þessu laga-
ákvæði eru fyrir fyrsta, annað og
þriðja brot $50, $100 og $200, og
þessutan má afnema vínsöluleyfi
hvers þess manns, sem gerir sig
sekan í þessu.
— það komst upp i lögreglu-
rétti í Toronto þann 22 þ.m., að
þær eða nokkuð af þeim réttfærðu
bókum York Ckunty Loan & Sav-
ings félagsins, sem fyrir nokkrum
mánuðum varð gjaldþrota, höfðu
verið brcndar, en falskar bækur
lagðar fram í réttinn, sem áttu
að sýna starfsemi félagsins á sl. 3
árum. Bækur þessar voru svo ný-
legar, að dómsmálasóknarinn tók
eftir því og við það komst upp
hiö sanna um afdrif hinna réttu
bóka. Mr. George Burt, ráðsmað-
ur félagsins, játaði fyrir réttinum
að bæktirnar hefðu verið brendar
lteima á sínu eigin heimili.
— Málið móti 13 ár i gamía
piltinum í North Bav, Ont., sem
hjó fÖður sinn til I.ana með evi
fyrir fáum dögum tll þess að
vernda inóður sína fyrir misþyrm-
ingum föður síns, hefir endað svo,
að kviðdómendur liafa sýknað
piltinn og telja föðurinn réttdræp-
ann íyrir þrælmensku hans við
konu sína. þessi úrskurður dóm-
endanna mælist einkar vel f^^rir,
og hann er í fullu samræini við
skoðanir almennings þar í ná-
grennittu.
— Manntalsskýr.slur þýzkalands
sýna, að þar búa nú 6o]£ millíón
manna og konur eru þar fieiri en
karlmenn svo nemur 870 þús.
— Susan B. Anthony hefir í
erfðaskrá sinni gefið aleigu sína,
10 þús. dali, til þess að efla -rétt-
indi kvenna í Ameríku. þrjú af
sky'ldmenntim hennar eru sett til
að hafa umsjón eignanna og sjá
um, að þeim sé rétt varið.
— Tvö hundruð og fimmtfu þús-
und ítalir fiuttu til Ameríku á sl.
ári, en það er tíundi hver maður
úr þeim héruðum, sem flutning-
arnir aðallega voru frá. Talið er
liklegt, að eins margt fólk flytji
þaðan á þessu ári og að fjöldi af
því setjist að í canadiska Norð-
vesturlandinu.
— Aðmiráll Dewey fór á fttnd
þingnefndar f Washington þann
20. þ.m. til þess að hvetja þing-
menn til þess að fá stjórnina til
að by&gja aS minsta kosti 2 her-
skip svo stór og öflug, að engin
finnist bfctri f heiminum. Hann tel-
ur þetta algerlega nauðsynlegt,
og einnig vill hann láta þjóðina
by&gja stóran flota köfunarbáta.
Hann leggur og það til, að nú-
verandi herskip Bandarfkjanna sé
ekki sífeldlega hiifð í siglingum,
heldur séu þati höfð á höfnum
inni langan tíma á ári hverju. —
Telur hann, að við það spari
þjóðin afarmikið fé á árlega, með
þvi að vélarnar endist betur og
tniklu færri menn þurfi á skipun-
tim þann tíma. Með slíku fyrir-
komttlagi segir hann megi spara
svo tnikið,, að nægi til að borga
fyrir hin nýju skip og þau, sem
hér eftir verði bætt við flotann.
— Kolarthma verkfall er í vænd-
um í Indiana ríkinu í Bandaríkjun-
um innan skams tfma. Kaupsamn-
ingar ]>eir, sem námatnenn gerðu
við eigendur námbnna, eru út-
tunnir þ. 31. þ.m., og lieimta nú
námamenn hærra kaup. 225 þús-
undir manna eru í félaginu og
segjast þeir hefja verkfall þann 1.
apríl, ef nántaeigendur gangi ekki
að kostum þeirra.
— Fjörutíu þúsundir kolanáma-
manna hafa gert verkfall á Frakk-
landi. þeir heimta kauphækkun.
Námaeigendur segja, að með hfið-.
sjón af því voða líftjóni, sem
kolanámamenn hafi orðið fvrir
þar í landi á þessu ári, þá séu
þeir fúsir til að bæta 10 prósent
við laun neðanjarðar námamanna,
en 5 prósent við þá, er vinni und-
ir beru loíti. Iirin er óvíst, hvort
þetta boð verður þegið.
—Sérlega sorglegt atvik vildi til
í Toronto i sl. viku. Nokkrir ung-
ir piltar réðnst með snjókasti á
gamla konra fáein fet frá húsdyr
tun hennair. Svo var snjóbolta-
drffan áköf, að konan varð að
flýja undan, og er hún gekk yfir
járnbrautarspor á leið hennar,
rann vagn fram á hana og varð
henni að bana.
— Wm. McKenzic, forseti Can-
adian Northern járnbrautarfélags-
ins, hcflr keypt 10 námalóðir í
Alaska héraðintt, þar sem kallað
er “Windy Ann”, nálægt “White
Horse”. Verðið er 5 riiillíónit
doflara, og má af því marka, að
landið þar er álitið meira en lítið
máltnauöngL Peningarnir haía
þegar verið borgaðir. Lóðir þess-
ar voru áður keyptar fyrir 160
þús. dollara af auömanna félagi,
en áðttr en það félag hafði borg-
að fyrir þær, var það búið að
finna 5 millíón dollara kaupanda.
það gra'ddi því heldur vel á þess-
um kauptnn.
— British Coltimbia stjórnin
heiir sent út hóp manna^til að
fastsetja 12 millíónir feta af timbri
sent enn er ósagað, af því hana
gúmar, að viöuriun eigi að send-
ast til Bandarfkjanna til að sag-
ast þar. En það er á móti lögum
fylkisins, að flytja British Colum-
bia við ósagaðann út vr fylkinu.
Hugmyndin er að láta fylkisbúa
njóta hfcgnaðarins af þeirri vinnu,
sem sögunin hefir í för tneð sér.
— Síðustu fregnir frá Formosa
eyjunni segja, að 1087 man^ts hafi
látið lífið af jarðskjálftum þar á
eynni og 6163 manns meiðst meira
og minna. Ennþá er ekki frétt
um öll slys eða liftjón, sem orðið
hafa. Keisari Japana hefir sent
menn til Eormosa til þess að at-
huga ástand hinna nauðstöddu og
að hjálpa þeim. Eignatjónið er
metið 45 millíónir dollara.
— Japanar hafa þegar flutt alla
hermenn sína- út úr Manchuria,
undir fo^ustu marskálks Kodama,
scm nú er þar æðstur herforingil
En Rússar. fara hægar í sakirnar,
og hafa fátt inanna flutt þaðan
ennþá. þvkir Jöpunum, sem þeir
ha-fi verið illa gabbaðir, en láta
þó við svo búið sitja að sinni.
— Stjórnin í NýfundnalanVli hef-
ir sett nefnd til að athuga, hvort
tiltækilegt sé að koma á lögum
þar í fylkintt utn ellistyrk, og skal
nefndin hafa 12 mánuði til að
lúka því starfi. Stjórnin telur, að
200 þús. dollarar mnni nægja til
ellistvrks veitingu á eyjunni, ef á-
kveðið verður að.lögleiða hana.
— Hungursneyðin í Japan, sent
áður var getiö um í Heimskringltt
er í rénun fyrir hjálp, sem send
hefir verið frá Bandaríkjunum og
Canada.
— Svo er að sjá, sem kosningar
til þings á Rússlandi hafi gengið
illa. Stjórtiarþjónar voru við alla
kjörstaði til þess að hræða bænd-
ttr frá að greiða atkvæði, og þar
sem það 'ekki dugði, þá að hóta
hörðu þeim, sem ekki kysu þann,
er stjórnin tilncfndi. Á þenna hátt
náðtt einkum prestar og auðugir
landeignamenn kosningu og ekki
nema örfáir úr flokki verkamanna.
— Elding sló prest einn í stóln-
um í kirkju hans í bænum Carson,
Iowa, á sunnudaginn var. Elding-
ttnni sló niður í kirkjttna um há-
messu tfmann, og ljósastjaki yflí
höfði prests leiddi rafmagnstraum-
inn í höfuð honum, svo hann dó
Innan klukkustundar. Engan ann-
an, sem í kirkjunni var, sakaði
neitt.
— Japanar tóku nýlega 200 mil-
líón dollara lán, en alt var féð
fengið frá auðmönnum innanlands,
nema einar 5 millíónir, sem feng-
ust í Lttndúnum.
— Tveir menn, 8 hestar og naut-
gripur brunnu til bana í járn-
brautar flutningsvagni hjá vagn-
stöðinni í Gardner, N.D., á sunnu-
daginn var. Mennirnir höfðu lokað
vagndyrunum, en höfðu lampa í
vagninum, sem sprakk og kveykti
í heyi, sem var í vagninum. En
þá gátu mennirnir ekki opnað
d\rrnar og létu því lífið þar.
— Dominion stjórnin hefir aug-
lýst sölu á nokkrutn skólalöndum
í Saskatchewan fylki. Lægsta boð
sem þegið verðttr er frá 10 til 20
dollara ekran, eftir áfstöðu land-
anna. Má af því sjá, að þau lönd
eru mikils metin, cnda eru nú bú-
lönd allstaðar í Norðvesturland,-
inu að hækka mjög í verði.
— Nokkrar bæjarlóSir voru seld-
ar í Saskatoon þorpi þ. 24. þ.m.
Svo var eftirsóknin mikil,, að
sumir biðu við húsdyrnar í 5 kl.-
tíma til að komast fyrst inn; 5
lóðir s-eldust fyrir $3,000 og síðar
fyrir $5,000.
Bærinn Wrangel í Alaska
brann til ösku á laugardaginn var
Aðeins ein sölubúð og fáein íbúð
arhús standa ósködduð.
Merkismaður látinn
þess hefir áður verið getið hér
í blaðinu, að látist hafi 13. marz
þ.á. Hjörleifur Björnsson, bóndi í
Arnesbygð í Gimli-sveit. Hjörleif-
ur var fæddttr að Garðakoti í Dyr-
hólasókn í Skaftafellssýslu hinn
26. marz 1841, og skorti því 12
daga til að hafa náð 65 ára aldri,
er hann andaðist. Foreldrar hans
voru: Björn Marteinsson, ættaður
úr Múlasýslum, og Oddný Guð-
mundsdóttir. Bjuggti þau á Garða-
koti til dattðabags og ólst Hjör-
leitur þar upp. Árið 1865 tók hann
við búinu og gekk þá að eiga ung-
frú Ragnheiði Árnadóttur Hjart-
arsonar, bónda að DyThólum. þau
f).ÍuSKu aS Garðakoti þangað til
1872, en fluttu þá að Litluhólum
í sömu sókn og bjuggu þar í 4 ár,
þar til 1876, cr þau brugðu búi
og fluttu vestur um haf. Eins og
flestir, sem það ár komu frá ís-
landi, flutti hann til Nýja íslands
og tók sér bólfestu í Árnesbygð,
og í þeirri bygð bjó hann síðan til
dauðadags, — var einn af þeim 6
búendum í Árnesbygð, sem sátu
eftir, þegar allir flúðu Nýja ísland
á árunum 1879 til 1881.
þeim hjónum varð 8 barna auð-
ið. Af þeim dótt 2 í æsku, en 6 eru
á lífi, öll uppkomin, þessi: Hjör-
feiftir, ókvæntnr, bóndi í QuillLake
héraði í Saskatchewan fylki, Björn
ókvæntur, er nú teklir við búi for-
eldra sinna, Elin, gift Eggert Jó-
hannssyni í Winnipeg, Guðrún, gift
J. Magnúsi Bjarnasyni, skólakenn-
ara að Marshland í Manitoba,Odd-
ný, gift James Lee, hótel-eiganda i
Saltcoats í Saskatchewan, og Ing-
veldur, gift Arthur Harkness í
Winnipeg.
Hjörleifur var mikill maðttr að
vexti og þrekmikill, en þjáðist hin
síðari árin af sívaxandi brjóst-
veiki, og til þess sjúkdóms átti
banamein hans eflaust rót sína að
rekja. Skólamentun fékk hann alls
enga, en gáfttr hafði hann miklar,
las meira en fjöldi bænda gerir, —
má með sanni segja, að hann hafi
lcsið allar íslenzkar bækur og ís-
lenzk rit, setn út hafa komið síð-
an hann flutti af Islandi og sem
borist hafa vestur um haí. það
eru sjaldfengnir þeir menn meðal
íslenzkra bænda, sem jafnskemti-
legt er að tala við um öll þau
samtíðarmál, sem rædd hafa ver-
ið og ritað hefir verið nm á ís-
lenzkti, því skilningur hans var
skarpur, minnið sérlega gott, og
skoðanir hans fastar og ákveðnar.
Búmaður var hann góður, starf-
samur og liagsýnn, enda komst
hann vel af, jafnvel á frumbýlings
og vandræða-árunum fyrstu, þeg-
ar alt gekk öndvert, og skildi eft-
ir mjög myndarlegt bú.
Vini átti hann marga og enga
óvini. Hann var of gætínn maður
til þess að gera sér alla að vinum
í þess orðs réttu merkingu, ’ en
hann var svo réttsýnn og svo laus
við hlutdrægni, að cnginn sýndi
honuin óvináttu, heldur þvert á
móti. Við fráfall hans missa ná-
grannarnir staðfastan og góðan
vin, sem öllum vildi vel. þeir hafa
ástæðu til og hafa þegar sýnt, að
þeir taka' þátt í sorg ekkjunnar
og barnanna.
Útförin fór fram hinn 19. þ.m.,
að viðstöddum tiltölulega miklunr
flölda fólks. Séra J.P.Sólmunds-
son flutti likræðuna á heimili hins
látna og þaðan var líkið flutt við-
stöðulaust og lagt í síðasta hvílu-
rúmið í Árnes grafreit. 1 því sam-
bandi er vert að geta þess, að
skólakennarinn að Árnesi, Miss
Christopherson, tók mjög fallegan
þátt í þeirri sorgarathöfn. þegar
líkfylgdin fór fram hjá skólahús-
inu, stóð htin hjá börnunum
göngubúnum, úti íyrir skólahús-
inu, og lét þau fylgja hinum látna
til grafar og beið þar með hóp
sinn meðan verið var að jarð-
setja.
Aprfl
^^Apríl
ÚNlTARA SÖFNUÐURINN
hefir ákveðið að halda
Tombolu
í samkomtisalnum undir kirkjnnnf,
cor. Sherbrooke st. og Sargent av.
næstkomandi
Þriðjudagskv. 3. apríl.
það hefir þegar verið *svd
Vél tilvandað þessarar Tom- »
þólu, að nefndin, sem fyrir
henni stendur, vonast til að
enginn þurfi að fara óánægð
ur neim. Og m^ til dæmis
benda á, að nú þegar hefir
verið safnað ý-msum drátt-
um, sem eru frá einum til
fjögra dollara virði, og eng-
inn dráttur verður minna en
25C virði. — Á «ftir Tomból,
unni fara fram ýmsir leikir,
“Promenade” og annað, og
verður góður hljóðfæraslátt-
ur við þá skemtun.
Allir, sem koma á saffl-
komúna, fá einn drátt ó-*
keypis.
kafíi og brauð verður til
sölu á samkomustaðnum
Tombólukveldið.
Inngangur 25C. Aðgöngu-
miðar til sölu víðsvegar um
bæinn.
Apríl
3
Aprfl
Skínandi
Veggja-Pappír
Ég leyíi mér aö tilkynna yöur aö ég
hefi nú fengið inn moiri byrgöir af veggja
pappír, en nokkru sinni áöur, og sel ég
haun 4 svo léu veröi, aö sllkt er ekki
dœmi til í sögunni.
T. d. hefi ég ljómandi góöan, sterkan
ag faUegan pappír, á 3V*c. rúlluna og af
öllum tegundum uppí 80c. rúlluna.
Allir prísar hjá mér 1 ár eru 25 — 30
prósent lægri en nokkrulÍnni áöur.
Enfremur hefl ég svo miklu úr aö
velja, aö ekki er mér annar kunnur I
borgioni er meira hefir. Komiö og skoö-
iö papplrinn — jafnvel þó þiö kaupiö
ekkert.
Ég er sé eini íslendingur í öllu land-
inu sem verzla meö þessa vöruteguud.
S. Anderson
651 Bat natyce Ave. 103 Nena St.
e> ®a öllu fé sfnu f fatnað er lanti
081 l .“Orss sinn síðasta pening fyrii
vasabók, án þess aðhafa hennar þörf
Með^ þvi móti að kanpa föt af okkni
spa>ið þið svo mikið fé. að þið getið fyli
vasabók yðar með afslættunum.
Gætið dagblaðanna.
Hyndman & Co.
Fatasalar Þeirra Manna
Sem Þekkja Sitt
The Rialto. 480y2 Main St.