Heimskringla - 29.03.1906, Side 2
29. marz 19065
HEIMSKRINGLA
Heimskringla
PUBLISHKD BY
The QeimskrÍDgla News & Publish-
ing '
Verð bl&ðsizi31 Cauada og Bandar.
$?!,00 nm áriö (fyrir fram borgaD).
Senttil Islands (fyrir fram borgaD
af kaupendum blaðsins hér) $1.50.
Peningar sendist P. O. Money Or -
der, Registered Letter eDa Expresa
Money Order. Bankaávísanir á aöra
banka en 1 Winnipeg aö eina teknar
meö afföllum.
B. L. BALDWINSON,
Editor Sc Manager
Office:
727 Sherbrooke Street, Winnipeg
P.O.BOX 110.
’Phone 351 2,
Kvongunar lífeyri
Jretta mál hefir um nokkurn
tíma verið rætt í blaðinu “Tri-
bune’, sem gefið er út í bæ þess-
um, nefnilega hvort mögulegt væri
að halda hús hér í bæ fyrir J18.00
vikulegar inntektir, eða öllu held-
ur, hvort hyggilegt væri fyrir ung-
an mann að kvongast, ef hann
hefði aðeins S18.00 kaup um viku
hverja.
Svörin, eins og vænta mátti,
hafa verið all-misjöfn, en þó yfir-
leitt neitandi. Fleiri karlmenn en
konur hafa svarað spurningunni í
blaðinu, og hafa flestir þeirra
haldið því fram, að ekki væri leggj
andi út í giftingarlífið með þessu
kaupi. þó hafa sjamir talið hætt-
andi á það, ef konan væri sérlega
sparsöm, héldi nákvæma búreikn-
inga ^g gerði ekki of háar kröfur
% til eigm fatnaðar eða skrautgripa.
En engum þeirra hefir dottið í
hug, að efast um eigin hyggindi,
lorsjálni eða sparneytni En svör
kvenna á hinn bóginn hafa lotið
fremur að því, að mögulegt mundi
að lifa sómasamlega hér i bænum
á $ 18.00 á viku, ef mennirnir væru
reglusamir og gættu fengins fjár.
íheild sinni hefir harla lítið ver.
ið á öllum Jfcssum svörum að
græða, og þó, ef nákvæmlega er
athugað, getur maður dregið út
úr þeim hina réttu ráðningu gát-
unnar, nefnil.: Að það sé komið
undir hagsýni og reglusemi manns-
ins og ráðdeild og stjórnsemi kon-
unnar, hv«ort $18.00 laun á viku
séu nægileg til viðhalds hjónum,
og það þó þau hafi eitt eða tvö
börn að forsorga.
Engir útlendingar hafa tekið
þátt í þessum umræðum. Hefðu
þeir gert það, þá er lítill efi á að
þeim hefði borið saman um, að
hægt væri að lifa sómasamlega á
$18 .00 vikulaunum. Saga landa
vorra í þessu landi er nægileg
sönnun þess, að hægt er að kom-
ast áfram og festa sér fasteign
með lægra kaupi en $18.00 á viku,
eða svo hefir það verið fram aö
allra síðustu tímum. Á fyrri árum
hér í bæ var það mögulegt fyrir
hjón, að leigja sér 2 herbergi, og
það er nægilegt húsrúm fyrir tvær
manneskjur, og halda sig sæmi-
lega fyrir $5.00 á viku yfir sumar-
tímann, að undanteknu þvi, sem
þau þurftu til fata. En á vetrum
varð kostnaðurinn hærri, því þá
þurfti meira til e.dsneytis. Síðan
Tiafa vitanlega lífsnauðsynjar og
húsaleiga hækkað að mun hér í
bæ, en þó ekÉi svo, að ekki megi
vel komast af með minna en $18
á viku fyrir 2—3 manneskjur.
þeir islenzkir vesturfarar, sem á
síðari árum hafa flutt út hingað
og sezt að hér í bæ, munu fæstir
hafa haft $18.00 á viku frá upp-
hafi vega sinna hér, og þó komist
vel af með allstórar fjölskyldur.
En vitanlega hafa þeir orðið að
halda spart á fé_ sínu og gera sér
gott af minna húsrúmi, heldur en
megandi fólkið innlenda mundi
kalla sæmilegt,
það mun láta nærri, að 5
manna fjölskylda, þ.e. hjón með 3
börn, geti fengið hér húsnæði fyr-
ir $10 um mánuðinn, eldivið fyrir
$3 og matvæli fyrir $25, þar með
talið mjólk og kjöt, sem hvort-
tveggja er þó nú tvöfalt dýrara,
en það var á fyrri.árum. Fatnað-
ur verður $10 um mánuðinn, að
meðtöldu skótaui, og ljps og vatn
52, — eða alls $50 um mánuðinn.
það eru $600 á ári, eða rúmlega
$11.53 á viku, eða sem næst $2.30
á viku fyrir hvern mann. En það
er nokkru minna en $9 á viku fyr-»
ir mann eða $18 á viku fyrir ein
hjón.
það er enginn efi á því, að það
er hægt að lifa á þeim upphæðum,
sem að framan eru tilgreindar, en
sparlega verður þó að halda á, og
engin óhöpp mega koma íyrir, svo
sem veikindi og annað þessháttar.
Og ekkert er gert fyrir lífsábyrgð-
argjaldi né skemtunum, sem hvort-
tveggja er nauðsynlegt innan viss-
ra hóflegra takmarka, og hið fyr-
nefnda — lífsábyrgðin — alls óum-
flýjanleg trygging konu og börn-
um, ef vinnandans missir við.
Vér teljum alveg áreiðanlegt, að
landar vorir vfirleitt hér í bæ hafi
ckkl haft rnciri árlcgar inntefctir.
að jafnaði hvrer fjölskylda, á liðn-
um árum fram að þessum tíma,
en $600 á ári. Sumar talsvert
minna, en aftur aðrar talsvert
meira, einkanlega á síðari árum.
Vitanlega er hér að ræða um það
aðeins, sem síst verður komist af
án, en ekki um það, sem æskilegt
væri að hafa til þess að geta lifað
í allsnægtum.
þess ber og að gæta, að í mörg-
um 5 manna fjölskyldum eru fieiri
en einn vinnandi, ogeru þá því
auknar inntektir við það, sem að
framan er áætlað.
En þrátt fyrir allar misfellurn-
ar, sem orðið hafa á atvinnuveg-
um og kaupgjaldi landa vorra á
liðnu árunum, þá hefir þeim þó
blessast búskapurinn eftir öllum
vonum, og hefði sjálfsagt blessast
hann ennþá betur, ef húsbændurn-
ir hefðu í öllum tilfellum verið
strangir reglumenn og miðað út-
gjöld sin við lífsnauðsynjarnar. —
Óreglan og óhófleg eyðslusemi er
fátækum verkamönnum alls ófyr-
irgefanleg, og þó einhleypu karl-
mennirnir hafi jafnan þá afsökun,
að þeir hafi enga nema sjálfa sig
að annast og séu því frjálsir að
verja efnum sínum eins og þeim
gott þykir, þá er sú afsökun alls
ekki á valdi fjölskyldufeðranna, er
getá alls ekki talist. eins og vér
áður höfum tekið fram, fjár síns
ráðandi, — siðferðislega skoðað —
þar sem uppeldi konu og barna
hvilist á inntektum þeirra.
það er því meira en lítið sárt,
að sjá hér í bæ sumar drykkju-
stofurnar troðfullar frá morgni til
kvelds, 6 daga viku hverrar, mest-
megnis af íslendingum, giftum og
ógiftum, eyðandi tíma og efnum í
skaðvæni, en fjölskyldurnar svo
afskifta og allslausar heima fyrir,
að kvenn og liknarfélög landa
vorra mega hafa sig öll við, að
hafa með samskotum saman þann
styrk, sem oröið hefir að veita,
til að fyrra þær frostij nekt og
sulti fyrir vanspilun og ræktar-
leysi húsfeðranna. því fer betur,
að þetta eru fremur undantekning-
ar en almenn regla, en langt of
mikið er þó farið að kveða að
þessu á síðari árum, einmitt síðan
atvinna varð næg fyrir alla og
kaupglald hátti Hærra miklu, en
því viti svarar, sem þeir menn, er
hér er sérstaklega átt við, hafa
haft til að meðhöndla réttilega
vinnulaun sín.
Að þessi ljótu dæmi séu alt of
mörg og sárgrætilega tilfinnanleg
og vansæmandi fyrir þjóðflokk
vorn, það vita bezt, auk fjölskyld-
anna, sem hlut eiga að máli, þær
konur og þau félög, sem af mann-
úð og meðaumkun gefa út tíma
sinn og starfsþrótt til þess að
bæta böl hinna yfirgefnu og van-
ræktu allsleysingja. það er lífs-
nauðsynlegt, að ráðin sé bót á
þessu, ‘ þó enn hafi ekki meðul til
þess fundin verið. það verður að
finna einhver ráð til þess, að efla
sómatilfinningu þessara manna,
svo aö þeir sjái það og fmni til
þess, hve óendanlegur fögnuður og
ánægja mundi ríkja á heimilum
þeirra, ef sú fjárupphæð, sem lát-
in hefir verið ganga til hótellanna
hér í bænum úr vösum þeirra, —
væri árlega látin ganga til þess,
að bæta húsakynnin, auka hús-
búnaðinn, klæða konu og börn og
bæta borðhaldið. í raun réttri
áttu þéir alls ekki með aö verja
fé sínu á þenna hátt, fé sem í
raun réttri var eign konu og barna
sem þau áttu rétta heimtingu á,
að notað væri til þess að fæða
þau og klæða og gera þeim lífið
ljúft og ánægjulegt, eins og það á
og þarf að vera til þess aö sam-
búðin og heimilislífið geíi verið á-
stúðlegt.
það þarf að koma mönnum í á-
þreifanlegan skilning á því, að
með því að breyta réttilega við
fjölskyldur sínar auka þeir mann-
dóm sinn og fága, og vaxa við
það að virðingu í augum allra
rétthugsandi manna og kvenna og
verða vel metnir, hvar sem þeir
fara, eru eða verða, en að undÍT
núverandi ástandinu geti þetta ó-
mögulrga orðið.
Heimurinn er ekki þannig gerð-
ur, að hann gangi beint framan
að mönnum þessum og segi þeim
afdráttarlaust, að þeir séu mann-
hrök, sem fvrir sakir varmensku
og ódygða ættu að vera í fang-
elsum landsins svo þeir væru úti-
lokaðir frá því, að geta saurgað
ungdóm þjóðarinnar með illu eft-
dæmi, sem allir vita þeir gcfa.
Svona talar heimurinn ekki, —'
hann er orðinn alt of fínn og fág-
aður til þess að lýsa skoðunum
sínum með svo berum orðum. En
hann hugsar þetta og hugsar það
hátt, þegar sá er fjarlægur, sem
um er rætt, og nábúar slíkra
manna nota nöfn þeirra eins og
grýlu við börn sín, til þess að
hræða þau frá vegum vansæmdar
og vansældar. þeir eru að verða
margir, alt of margir, landarnir
vorir, sem gefa tilefni til þessara
hugsana. Og þetta er því sorg-
lcgra, sr.m þaö cr víst, aö cf þdr
legðu fram krafta sina til þess að
njóta þeirra hagsælda, sem yfir-
standandi árgæzka fiytur í skauti
sínu, þá gætu þessir sömu menn
drjúgum aukið efni sín og ’á þann
hátt búið sig undir að geta mætt
og þolað hver þau áföll, sem fyr-
S ir kunna að koma í framtíðinni.
það þarf að finna einhver ráð
j til þess, að gera þessum veikluðu
j löndum vorum það tvent skiljan-
: legt, að reglumaðurinn hefir mesta
ánægju af hóflegum nautnum lífs-
, ins, miklu meiri og varanlegri á-
J nægju heldur en óreglumaðurinn
getur með nokkru móti hlotið í
sínu óhófi; og eins hitt, að það er
bæði synd og vanvirða og glæpur
móti öllum þeim, sem honum ber
að annast, að nota ekki tímann
svo vel, að efni hans og ánægja
hans og þeirra, sem með honum
eru, geti farið því meir vaxandi,
sem betur læt<ir i ári og meira er
um atvinnu og hærra er kaup-
gjald.
það er hverju orði sannara, að
heilmikill fjöldi af fólki voru skil-
ur þetta eins og það á að skiljast
og breytir samkvæmt þeim skiln-
ingi. Allir slíkir menn geta boriö
j þess vitni, að velgengni og ánægja
lífsins er ekki svo mjög komin und-
ir því, hvort kaupgjald manna er
hærra eða lægra en $18.00 á viku,
en miklu meira undir hinu, að vel
sé nieð það farið, hvort sem það
er mikið eða lítið.
Frumbúar landsins
það er ekki oft, sem blöðin ó-
maka sig, að segja mikið um frtim
búa þessa lands. þeir eru venju-
lega nefndir Indíanar, með háll-
gerðum fyrirlitningar keim í rómn-
j um. Samt er því ekki að leyna,
1 að Indíánar eiga siðvenjur og sögu
til, sem aðrir þjóðflokkar. Kn hún
er hulin og gleymd bæði þeim og
öðrum, að mestu leyti. þeir voru
ekki skriftlærðir, karlarnir, eins >-g
íslendingar. þessvegna er nú saga
þeirra gleymd. þar að auki skift-
ast þeir í flokka. sem sífelt lagu
í illdeilum hver við annan, og voru
sífelt á faraldsfæti, frá eir.u vaini
til annars, og út um merkur. þeir
lífðu mest á veiði úr vötnum og
skógum. það má kanske sigjn, ð
það sé ekki stórt tap fyrir heim-
inn, þó menn þekki ekki ýtarlega
sögu þessara olbogabarna sið-
menningarinnar. En hvað sem því
líður hafa ýmsir fræðimenn í
seinni tíð gefið sig við að grubla
UPP °g færa samaní kafla fögu-
brot og siðvenjur og amiað :1> ira
þessara frumbúa.
í fyrra lét prestur að naini Gil-
fillan prenta sögu um Indíána. —
Sagan er sögulega sönn að s.unu
leyti, en skáldsaga að nokkru
leyti. Hún hljóðar mest um þann
kynþátt Indíána, sem Ojibway er
nefndur, og hafðist ❖ið norðast í
Norðvesturlandinu og norðan með
MacKinzie fljótinu, og þar norður
í fjallendi og öræfum. Hann segir
þár frá siðvenjum þessa Ojibway
flokks, þegar höfðingjadætur dóu,
og annað stórmenni. Sagan um
jarðarför dóttir Yellow Thunder
(Gula þruman) hefir gengið mann
frá manni og hvergi breyzt. Hún
er á þessa leið:
þegar dóttir Yellow Thunder
var dáin, komu nágranna konurn-
ar og vöfðu líkið í ábreiðu. þar
næst sóttu þær næfur stórgerSur,
og vöfðu þar utan yfir, og saum-
uðu saman með. finum tágum. —
þær saumuðu líkinu uæfur þar. tii
að þær voru vissar um, að regn
og bleyta náðu ekki að komast
að líkinu. Hjá líkinu innan næfra
lögðu þær járn og tinnumola, en
með þeim hlutuia slógu Indíánar
eld í þá daga. Ennfremur kvenöxi,
burðarband, og önnur dagleg á-
höld, sem kvenfólk þurfti í þá
daga. það var trú þeirra, að hún
þyrfti allra þessara tækja hini’m-
megin við hvelið, í nýju heimkynn-
unum. Dauðinn var skoðaðnr
fiutningur til annara bústaða, þar
sem flest væri nauðsynlegt og
gagnfegt, sem hérna megin væri
það, til framlengingar hinu síðara
lífi. Og þó konurnar vissu, að
dauður líkaminn flytti ekki þessa
búshluti yfir til hinna nýju bú-
staða, þá trúðu hinir lifendu, að
framliönir gætu haft þeirra andfeg
not.
þegar klukkutími var liðinn frá
því, að stúlkan gaf upp andann,
þá voru náskyldurnar búnar, og
konumar höfðu ei meira að gera.
þá gekk Yellow Thunder fram og
kvaddi dóttur sína í hinsta sinni.
þar næst hófst líkfylgdin ttpp á
Háa hólinn (hæstu hæðina við
vatnið. þaðan var fallegt útsýni
um vötn og skóga. óbrotinn hvíltt-
staður var búinn úr föllnum trjátn
og standandi allhátt yfir jörðu, og
þegar hann var orðinn nógu
traustur til að standa um fleiri ár,
þá var líkið lagt til hinstu hvílu í
þenna skógarkastala. Næfrin hlífðu
því frá að vökna, vörðu það fyrir
hrxfuglum og flugum. O/ grafrcit-
urinn var hafinn svo hátt, að villi-
dýr gátu ekki náð að skemma lík-
ið, og var það líka einnig varið
fyrir ormum og yrmlingum, sem í
jörðu búa, og nagað hefðu það, ef
í moldu hefði grafið verið.
Af þessu sést ljóslega, að Ojib-
way Indíánar hafa borið um-
^yg§ju °S virðingu fyrir þeim
dánu, fyrst þeir höfðu jafn fyrir-
hafnarsama og eftir föngum velfrá-
gengna hauglagningu og hér er um
að ræða. Ennfremur var skilin eft-
ir þriggja daga fæða handa mær-
inni. það var nesti hennar þar til
hún kæmi í sálarsali.
Hauglagning þessi fór fram í
vorbyrjun (í maí) og voru dægur
köld. þessvegna var eldur kyntur,
á hyllu meðfram hvílustað ungfrú
Yellow Thunder.
Hverjir sem dóu af þessum kyn- j
þætti Indíána, sem hér er nefhdur,
var sýnd hin mesta og 'bezta útfar
ar viðhöfn, sem auðið var, og graf-'
helginni mátti enginn misbjóða, og,
vissar serimonittr fylgdu hverri1
greftrun. þótt “rómantiskum” og!
ókuflliugum áhorfanda hefði þótt
greftrunarsiðir Ojibway flokksins j
skringilegir og hjárænulegir, — þá
hefði honum ekki dulist virðingar-
lot og umönnun hinna lifjpdi.
Ýmislegt er eftirtektavert af sið-
venjum þessara skógar og vatna
barna. Fyrir sögufróða og vellesna
menn, er ekki svo lítið að græða
á háttum og siðum þeirra þjóða,
sem viltar eru nefndar, og hinn
siðaði heimur brýtur undir yfirráð
sín, oftast með stórkostlegum
blóðsúthellingum og grimd.
Ef til vill minnist ég meira á
þetta efni síðar. — það er enginn
efi á, að Islendingar hafa búið með
Indíánum í fyrri daga. það sýna
örnefni og orð í fyrri alda máli
Indíána,
K. Ásg. Benediktsson.
-------+-------
Binciindis villan
þann 15. febr. sl. birtist grein i
Heimskringlu um bindindi, eftir hr.
Hjálmar Gíslason. það er ekkioft,
að greinar um það efni birtast í
Hkr., og efalaust er þessi grein
eftir H.G. bygð á eins góðum rök-
um eins og búast má við frá því
sjónarmiði. Og að minsta kosti
hefi ég ekki heyrt bindindismenn
færa betri sannanir, ef sannauir j
má kalla, en hann færir fyrir s’rtt
málefni.
Enginn heilvita maðttr gctur ^
neitað því, að máfefni þetta sé af-
ar þýðingarmikið, þareð ofdrykkj-
an leiðir af sér ómælilegt tjón á
óteljandi heimilum, þar sem bæði
konur og karlar líða eymd og sorg
og hverskonar annað mótlæti, scm
oft endar með hryllilegum < ía p-
um. Og er það j*ví eðlilegt, ; ð
þeir sem hafa tilfinningu fyrir ann-
ara kjörum, og máske sjálfir hafi
orðið að líða fyrir annara drykkju
skap, vilji alt til vinna, sem í
þeirra valdi stendur, til þess, að
uppræta þetta böl, og þessvegna
hafa myndað bindindisfélög.
En það er þó ekki Jtar með
sagt, að aðferð bindindismanna
hljóti að vera rétt, jafnvel þó hún
virðist auðveld. Vér gleymum ein-
att, að margt það, sem oss virð-
ist auðveldast að framkvæma, það
reynist einatt hvað örðugast, og
þá finnttm vér, að sú aðferðin, er
oss sýndist rétt vera, er í raun j
réttri öfug við það sem vera ætti. j
Til dæmis:
það virðist í fljótu bragði ycra
mjög auðvelt, að rétta sívalan j
stálás með því að berja á bung-
una, en slíkt er alls ekki tilfellið,
og er gágnstætt reynslu vélasmiða
sem vanir eru við að þráðrétta
stálása í rennibekk. þó ótrúlegt
þyki, þá er aðferð þeirra að berja
á bugðunu en ekki á bunguna á
ásnum.
í fyrsta lagi verður kenning vor
bygð á óbifandi grundvelli, og á
þeim rökum, sem innifela engar
mótsagnir. Hún verður að hvíla
á þeirri vissu, sem eigi verður
hrakin. Grundvallar ástæður vor-
ar verða að vera óbifanlegar.
Nú vil ég taka hér til greina j
þær undirstöður, sem hr. H. G.
byggir á. Hann segist ekki geta
séð, að vinbannslög séu að mun
ófrjálslegri en öiinur lög. Með
þessu er viðurkent, að mörg lög
séu ófrjálsleg, en að samt geri
það ekkert ilt, að bæta fleiri ó-
frjálslegum lögum við, og þar af
leiðandi er ófrelsi gott og þræl-
dómur hollur. þar fyrir er með
því viðurkent, að vínbannslög eigi
svo að hefta frelsi annara, etir
því, hvað vínbannsmenn álíta liolt
fyrir þá að njóta. það er að segja
þeir vilja fá vald yfir öðrum til
J>ess aö geta neytt þá til að lilýða
sínum boðum. En hver hefir ekki
misbrúkað það vald, er honum
hefir verið fengið og með því unn-
ið meira illt en gott ?.
Höf. álítur, að lög séu bygð á
því, a5 metír. ssu ekki eius góðir
eða fullkomnir eius og þeir ættu
að vera. þetta virðist mér alveg
öfug skoðun. Veit ekki hr. H. G.,
að lög eru bygð á því, er menn
kalla rétt annara, og að þar fyrir
álíta menn rétt að handtaka og
hegna Jieim, er skerða ]>eirra rétt ?
Hvað er stjórnarskrá Bandaríkj-
anna nema undirstöðu atriði þess,
er menn álíta vera þeirra með-
fæddan og helgan rétt ? Eru ekki
lög gegn þjófnaði bygð á því, að
vér álítum að menn hafi rétt til
þess, er þeir fratnleiða Vitaskuld
kemur það undarlega fyrir, kð vér
tejjum það ýmist rétt eða rangt,
sem löglegt er eða ólöglegt, en
sem svo oft er gagnstætt réttvísi.
En sú skoðun á rót sína í því ó-
eðlilega fvrirkomulagi, er vér lif-
um undir, hvar sannur eignarrétt-
ur er blandaður röngum eignar-
rétti.
Ef vér göngttm út frá því sem
fullvissu, að eihstaklingurinn (ekki
heildin) hefir meðskapaðan rétt,
þá er það skylda vor, að skerða
ekki hans rétt; því með því að
skerða annara rétt, setjum vér
vorn eigin rétt í hættu og komum
því illu til leiðar. Hvers manns
réttur er að gera alt sem hann vill
að svo miklu leyti sem það skerð-
ir ekki annara rétt til að gera hið
sama. Sá, sem gengur út fyrir
þetta tákmark, hann beitir aðeins
hnefavaldi og brýtur með því jatn-
réttis lögmálið.
Höf. segir: “þaö er hægt að
taka fram fyrir hendur þeirra, sem
það gera” (þ.e. búa til og selja
vín). En nú er spursmálið, er það
rétt ? þeir mega ekki gleyma, að
það eru til aðrir flokkar með svip-
aða kenningtt, sem vilja fá vald
til að “taka fram fyrir hendttr
þeirra”. það eru til menn, alls
ekki fáir, sem álíta alt ketmeti
banvænt, og vilja láta banna það.
það er hér trtiarflokkur, sem álít-
ur ÖIl meðul skaðleg og alt tóbak
banvænt; sá flokkúr hefir þegar
myndað bæjarþorp út af fyrir sig,
þar sem bæði tóbak og meðul er
bannað með fögum. Ef einn flokk-
ur hetir rétt til að banna víntil-
búning og sölu, því skyldi þá ekki
annar flokkur hafa rétt til að
taka fram fyrir hendur þeirra og
banna bæði kjöt, meðul og tóbak ?
Og aftur á sama hátt, ef einhver
flokkur þættist hafa ftilla reynslu
fyrir því, að vín sé holt, ef það er
tekið í vissum skömtum, Jjví
skyldi sá flokkur ekki hafa rétt til
að koma á lögum, er leyfi að búa
það til og selja það ? Haí 1 mciin
ekki rétt til að borða kjöt eða að
brúka meðul, ef þeim íiiist Jiuð
gera sér gott ? því þá að banna
öðrum að brúka tóbak, ei' henum
finst það vera sér til bóta ?
það er áform bindindismanna,
að “taka fram fyrir 1 endttr ’ afc’i a
þeirra, er búa lil c.g selja vín, :<f
því þeim finst menn ekki liafa
neinn rétt til þess. Kfalaust verð-
urur þeim ekki bannað að borða
sykur, eða að éta vínber, eða að
drekka vatn. En vínbannsmenn
vilja gera það að glæp, að blanda
saman skri, vínberjalegi og vatni,
og öllum verður fyrirboðið, að
neyta þessara efna, ef þeim er
blandað saman, en fráskilin hvert
öðru mega allir neyta þeirra og
selja þau. Og til þess að þessum
lögum verði hlýtt, verða lögreglu-
þjónar að rannsaka hvert einasta
híbýli og hverja smugu, þar sem
liklegt er að menn geti geymt vín.
Sumir vínbannsmenn halda því
fram. að Jjeir hafi rétt til að taka
framm fyrir hendur þeirra, sem
þeim finst, að ekki uppfylli skyld-
ur sínar við þá, er ]>eir hafa ivrir
að sjá.
En er það ekki hvers manns
skynsemi og samvizka, sem segir
honum hverjar hans skyldur ' séu ?
því hvar á að draga línuna, sem
sýni, hvar annara skyldur byrja
og enda ? Öllum er kunnugt, lt\ e
misjafnar skoðanir manna eru við-
víkjandi skyldum, bæði í trúar og
siðferðislegu tilliti. þess vegna
verður hver að gcra sér grein fyr-
ir því og sæta sjálfur Jjeirri hegn-
ingu. er hlýst af því að vanrækja
skyldur sínar. Alt, er vér getum
gert og höfum eðlilegan rétt til
að gera, er að nota lögregluna
til þess að vernda rétt vorn gagn-
vart JAim, er leitast við að skerða
hann á einhvrn hátt. það er að
segja, að meðalið við ofdrykkju
er frelsi, það frelsi, sem aðeins sé
takmarmað við annara frelsi að
gera hið sama.
En menn munu spyrja á hvern
hátt frelsi geti læknað ofdrykkju
og alt það illa, er af henni leiðir.
Til þess að geta sannað jtossa
kenningu, er nauðsynlegt aðbenda
á þá aðalorsök, er veldur drykkju
skap. En hún er: trakteringa van-
inn. það er ]>essi vani, sem leitt
hefir flesta út í það. þeir, sem
taka eftir og íhttga munu íallast á
þessa skoðun. Trakteringar eiga
sér stað algerlega fyrir það, að
víniö er dýrt, og vín er dýrt vegna
þess, að háir tollar og há vínsölu-
leyfi eru sett á það. það er þetta,
sem gerir vínið að kostbæru efni,
og J>ar fyrir vilja mena bjóoa öðr-
um það sem trakteringu. Fáum
dettur í liug að traktera aðra á
því, sem ódýrt er og auðfengið.
Væri allttr tollur og alt söluleyfi
tekið af víninti, þá yrði það svo
ódýrt, að engum dytti f liug, að
bjóða öðrum upp á drykk, sem
kostaði nær því ekki neitt. Og þá
yrði vínið líka óblandað því eitri,
sem það nú er blandað með bein-
línis vegna tollsins og vínsöluleyf-
isins.
þessi skoðun er alls ekki ný. —
Hún er skoðun hins fræga hag-
fræðings Henry George. þeir, sem
alls ekki geta fallist á þessa kenn-
ingu, verða að muna það, að með
því að banna tilbúning og sölu
víns, verða þeir að vera við því
búnir, að taka á móti “banni”
annara flokka, er segjast hafa lík-
an rétt til þess, að “taka fram'
fyrir hendur þeirra” og banna
þeim alt það, er þeim finst þeir
eigi að láta ógert.
Chicago, 23. marz 1906.
Magnvs C. Brandson
-----_4-------
NYR POSTULI
það er sumra manna mál,
mun það sannleiks hafa rætur,
að nú hafi annan Sál
Ananias reist á fætur.
Nú er sagt frá Sigfúsi
svífi í hæðir bæna-stuna.
Hann sem áðttr ofsótti
alla helgu þrenninguna.
Undrun vekur óllum hjá,
ef iðrunar í tárum fli'tuc;
síst þá fyrir syuja ;r.á
um síðir verði hrafnian hvitttr.
liagnheiður J. Davíðson
Dr. 0. Stephensen
Skrifstofa:
121 Shcrbrooke Street. Tel. 3512
(í Heimskringlu byggingunni)
Stundir: 9 f.m., 1 til 3.30 og 7 til 8.30 e.m.
Heimili:
643 1Í088 Ave. Tel. 1498
H. M. HANNESSON,
Lögfræðingur
Room 5<Í2 Northern Bank,
horni ^ortage ave. og Fort street,
Winnipeg
Central
Bicycle
Shop...
560 Notre Dnme W.
(rétt fyrir vestan Young St.)
Ný og brúkuð
hjól til sölu
Allskonar aðgerðir fiiótt og vel
afgreiddar gegn sanngjörnu verði
— Gamlir skiftavinir beðnir að
muna eftir staðnum.
Bárður Sigurðsson
& Mathews.
% i
♦-----------------------
rogramme
á samkomu í skólasal Fyrstu lút-
ersku kirkjunnar mánudags-
kvældið 2. april.
1. Piano solo, Miss HelgaBjarna
son.
2. Recitation, Miss FannyThom-
as.
3. Piano solo, Miss C.Thorlak-
son.
4. Recitation, Miss V. Finney.
5. Vocal solo, Mrs. S. Hall.
6. Ræða, W.H.Paulson.
7- Piano duet, ,Miss L. Thorlak-
son & E. Johnson.
8. Ræða, Hjörtur Leó.
9. Vocal solo, Th. Clemens.
10. Recitation, Miss Enajohnson.
11. Recitation, Miss Thora John-
son.
12. Piano solo, Miss HelgaBjarna
son.