Heimskringla - 05.05.1910, Side 1

Heimskringla - 05.05.1910, Side 1
■5H5B XXIV. ÁR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 6. MAl 1910 NR. 31 Tvöfalt stærri er r e i ð h j ó la búð mfn nú en áðnr, og vörubyrgðir og verzlun að sama skapi. Bkant- fokd reiðkjól- in góðu hefi ég tilsölueinsog aðundanförnu með eins góðum kjðrum og nokk- ur annar getur boðið. — Einnig aðrar tegundir af nýjum reiðhjól um sem 6g sel fyrir SkO. og upp, með ”Dunlop Tires” og ”Coaster Brake”.—Allar aðgerðir og pant- anir afgreiddar íijótt og vel. — West End Bicycle Shop Jón Thorstcinsson, elgandi 475—477 Portage Avenue. TALSÍMI: MAIN 963o. Fregnsafn. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa — Manitoba stjórnin er að leggja talþráSalínu sína austur aö landa- mærum Ontario fylkis, til þess aö tengja talþráðakerfi fylkisins við Ontario og Minnesota og aðra hluta Bandaríkjanna. — þess var getið' fyrir nokkru hér í bdaðinu, að Sir Charles Mc- Laren hefði borið fram í brezka þinginu 8 lagafrumvörp, sem öll lytu að auknum kvenréttindum. Kú hefir hann borið fram nokkurs- konar löggildingarskrá kvenna, eða grundvallarlagaskrá, sem ákveður um réttindi þeirra. Einn liður í skrá þessari ákveður eignatilkall þieirra, annar liður ákveður, að þær skuli hafa rétt til að heimta vinnulaun af bændum sínum. 1 þeim lið er það tekið fram, að sú kon-a, sem ver cllum tíma sínum til húshalds og bústjórnar og til þess að annast börn sín oe bónda sinn, skuli liafa rétt til ákveðins hluta af inntektum manns síns meðan hann lifir, og til eigna hans eftir hans dag, og skal hún eága heimtin'gu á fullu lífsuppeldi af þeim eignum. Konukrafan skal miðuð við það kaup, sem bústýr- um sömu stéttar er ætíað, þegar þær vinna sem vinnukonur hjá vandalausum. Ekki skal konunni skylt, að annast að neimi leyti um lífsuppeldi bónda síns eða barna þeirra hjóna, nema hún hafi meiri inntektir en hún þarf til að lifa af. Konur, sem vinna sömu vinnu og bæjidur þeirra, skulu skoðast félagar og njóta j ífnra réttinda og monn þeirra. Feður og mæður skulu hafa jafnan rétt til barnanna. Konur skulu hafa frían aðgan.g að öllum háskólum og öðr um fnentastofnunum, sem njóta styrks af opinberu fé. Hegningar- lögum landsins skal breytt þannig að þeir menn., sem berja konur sín- ar, eða á annan hátt sýna þeim grimd og ójöfnuð, skulu sæta miklu þyngri refsingu en unddr nú- gildandi lögum. — slys vdldi til í kolanáma í Wales á Englandi, þann 27. apríl, að vélar þær, sem notaðar voru til að flytja verkamenn upp og niður 'í námann, brotnuðu svo, að ekki var hægt að nota bær. Fimm hundruð menn. voru niðri í nám- anum, þegar þetta vildi til. Náma- edgendur fengu þó bjargað mönn- unum mcð því, að koma þeim upp á öðrum stað í námanum, í hálfr- ar mílu fjarlægð frá hinum staðn- um. — Joseph Martin ætlar að heim- sæk ja kunningja sína í Britísh Col- umbia strax og brezka jtíngið hættir þingsetu, í næsta mánuði. — Síðan 1. janúar sl. hafa kom- ið til Canada 12,246 manns frá ítaliu, 16,751 frá Rússlandi, 778 frá Tyrklandi, 600 frá Tyrklandi í Asíu, alls 30>,375. — Vinir Hon. W. S. Fieldings, fjármálastjóra Canada, hafa safn- að yfir 100 þús. doll., sem þeir fetla að gefa honum í þakklætis- íkyni — fyrir hvað ? En merkilegt *r, að nöfnum gefendanna er hald- ÍS leyndum enn sem komið er. “tJti á reginhafi” (Geo. Peterson). — Ottawa þingdnu verður slitið þessa viku. — Washington stjórnin er óá- nægð yfir útfiutningi Bandaríkja- manna til Canada, sem á sl. ári var um 60 þusund manns. o~ á þessu ári er áætlað að verði langt yfir 100 þúsund, eða máske alt að 200 þús. tnanns. Eangfl.est af þess- um Bandaríkja innílytjendum kem- ur tdl að taka ókeypis búlönd i Vestur-Canada. Akuryrkjumála- ráðgjafi Bandaríkjanna hefir því á- kveðið, að gera alt, sem í hans valdi stendur til þess að stemma stigu ifyrir þessum vaxandi útflutu- ingi. — Björnstjerne Björnsson, norska skáldið mikla er látinn. — Louis Baulham hefir unnið 50 þús. dollara verðlaun fvrir loft- flug frá London til Manchester, 180 mílur vegar. Hann fór frá Lon- don kl. 520 að kveldi, en kom til Manchester kl. 5.30 að morgni. — Tyrkjum gengur illa að bæla niður uppreistina í Albaniu. Tutt- ugu þúsundir tyrkneskra her- manna eru umkringdir af 30 þús. uppreistarmönnum, sem þykjast vissir um sigur. En nú hefir stjórn Tvrkja sent mönnum sínum til hjálpar 16 stórar herdeildir frá Smyrna og Salonica. þeir menn hafa yfir fjöll að fara áður enn þeir geta komið hinum umsetnu mönnum til hjálpar. F.n uppreist- armenn hafa mikinn herafla í fjöll- unum, sein veita fyrirsát aðkomu- her Tyrkja, og sem vitaskuld gerir þeim feröina yfir fjöllin ógreáðari en ella, ef þoir annars komast nokkurntíma yfir þau. — þann 27. apríl féllu 5 þúsundir manna á víg- völlum í viðmreign þeirra, en sagt er, að uppreistarmönmim hafi veitt nokkru betur. Tyrk'jastjórn segir lítið um þennan bardaga, en hefir á ný sent aukið herlið móti uppreistarm’önnum, og gefið þvi þá skipum, “að drepa alla og hlífa engum’’. Stjórnin hefir og gætt þess vandlega, að senda engann kristinn hermann i þenna leiðang- ur, af ótta fyrir því að þeir mundu sýna óvinunum meiri mannúö, en hún telur rétt vera. — I Prins Alfciert Ghika, foringi upp- reistarmanna, er ötull maður og i hinti herkænasti, svo að með af- ] brigðum kvað vera. Með honum i eru tveir rændngjafiokkar, og telur j annar þeirra 4 þús. manns, en hinn nokkru fleiri. Uppredstarmenn liafa náð á sitt vald Mitrovitzka járnbrautinni, svo að Tyrkir geta hvorki fiutt menn né matvæli eða annan herútbúnað með henni. Upp- reistarmenn hafa eyðilagt þá hluta brautarinnar, sem þeim þykir tvi- sýnt um, að þeir geti haldið. Og þetta gerir Tyrkjum örðugra fyrir með alla flutninga. — Sir William Van Horn.e er að segja af séi stöðu þeirri, sem liann i um mörg ár hefir hftft, sem for- | maður stjórnarnefndar C.P.R. fé- | lagsins. Líklegt er talið, að Sir j Thomas Shaughnessy taki stöðu hans. | — Eldur kom upp í Wynyard bæ i fyrra sunnudag. Sterkur vindur var á austan og gerði slökkvitil- raunir örðugri en ella hefði verið. Bæjarbúar unnu alla nóttina við að slökkva eldiiin. Bænum varð bjargað, en nokkrir bændur mistu nokkuð af eignum sinum, gripi og kornvöru. —Eldur kom upp í gistihúsi í í Cornwall bæ í Ontario 29. apríl. þar týndu 11 manna l'ifi og eigna- tjónið varð 250 þús. dollara. — Kolanámamenn á Cape Bret- on í Nova Scotia, sem gerðu verk- fall í júlí sl., samþyktu nýlega á fundi að hætta verkfallinu, og að eins margir þeirra og gætu fengið vinnu í námunum taki bar aftur til starfa. Verkfalldð hefir staðiö yfir nærri tíu má.nuði, og margar f jölskyldur þar þess vegna að fram komnar af all.sleysi. — Aftur held- ur verkfallið áfram í Nova Scotia, sem þar hefir staðið yfir 9 mán- uði. Mennirnir báðu um launa- hækkun, en fengu ekki. þá gerðu þeir verkfallið. Námamenn kváð- ust þá ekki gefa neinum þeirra vinnu aftur, nema fyrir 10 prósent launalækkure við það, sem þeir höfðu áður en þeir gerðu verk- fallið. — Rússastjórn hefir látið her- menn sína reka 2500 Gyðinga fjöl- skyldur úr Kieff borg. Hermenn vaða inn á fóEið að næturlagi og reka það miskunnarlaust úr hús- um sínum, fáklært og allslaust, og hermenn eru látnir reka það gangandi, karla konur og börn, út úr borginni, hverja fjölskyldu til þess staðar, sem hún var í áður en hún flutti til borgarinnar. þeg- ar svo fólkið er komið á áfanga- staðina, þá er þar tekið móti þvi með somu hörku og það rekið á aðra staði. þessi ofsókn hófst þann 28. apríl sl. Gyðingar saka forsæ.tdsráðherra Stolypin um of- sóknir þessar. Sama fregn segir, að'þedr, sem ekki séu fænr um, að f.ylgjast með, þegar fólkið er rekið áfram, séu tafarlaust drepnir og látreir liggja meðfram vegunum þar sem þeir falla. Fólkið er rekið áfram með svipum og margir skaðmeiddir. — Tvö hveitikaupafé'ög hér í Vestur-Canada hafa nýlega verið sektuð’ alls $5,500. Port Arthur fé- lagið var unddr 5 ákærum um að hafa gefið stjórninni rangar skýrsl- ur um hvedti sitt og vaið að borga 500 dollara fyrir hvert brot. Empire Elevator félagið var sann- að að sekt um 6 lagabrot sama eðlis, og var einnig sekt.að $500 fyrir hvert brot. Consoliöated Ele- vator félagið varð og lítiilega sekt um lagabrot og borgaði stjórninni $50.00. Allar þessar sektir voru Royal Household Flour Til Brauð og Köku Gerðar Gef ur Æfinlega Fulbœging EINA MYLLAN í WINNIPEQ,—LýTIÐ HEIMA- IÐNAÐ SITJA FYRIR VIÐSKIFTUM YÐAR. borgaðar hér í Winnipeg þann 26. apríl og peningarnir sendir beint til Ottawa í ríkissjóðinn. — Einkenndlegt æfintýri hetiv ný- Lega skeð á Englandi. Mr. Barrie leikritaskáld komst fyrir nokkrunv tíma að því, að konu hans þótti alt o£ vænt um. ungan rithöfund, sem var aldavinur lians. Barric vandaði um þetta við konu sína, bað hana bafda trygð við sdg og bauð henni alt það, er hann gæti í té látið, svo hún mætti una hag sínum sem allra bezt. En korean reeitaði öllum tdlboðum hans, og þá sótti hann um skilnað og fékk hann. Eftir það gii’tist konan þess- um unga elskhuga sínum, og samt hélt Barrie fullri vináttu við þau bæði, og gaf þeim hús tdl íbúðar, og hann aðstoðaði brúðgumann við giftingar athöfnina. Auk húss- ins, sem hanre gaf þeim hjónum, og er það fínasta í bænum Farnham, ráðstafaði hann eignum sínuiti svo að korean skuli af þeim hafa $750 á ári meðan hún lifir. — Lögsóknari Ne'.v York borgar hefir um nokkurn undanfarinre tíma haft grun um, að tiregar stúlkur gengi kaupum og sölum þar í borg. Hann setti því út um- boðsmenn til þess að grafast fyrir það sanna i þvi máli. þessum um- boðsmönnum tókst að kaupa 2 eða 3 stúlkur (hvítar), þá elztu 18 ára. Iýn verðið var all-hátt. Seljandinn sagði, að fyrir nokkrum tíma befði vareaverðið verið 10 til 15 dollars. En vegna þess, hve mdkil áhæfcta fvlgdi verzlun þessari, væri verðið nú stdgið upp, svo að myndarlegar stúlkur seldust fyrir þúsund doll- ara stykkið. Hann setti Of það skilyrði með sölunni, að stúlkurn- ar væru iluttar úr borginni vestur í land, og skyldu þær hafa aðsetur á lauslætishúsum þar, því að í þeim tilgangi væru allar slíkar stúlkur keyþtar. þrír freenn hafa verið handteknir og .ein kona, öll kærð um mannsal. Búist er við, að íleiri verði við mál þetta bendl- aöir áður því er lokið. — Peary póJfari þáði vedzlu mikla af konureglega leikfélaginu í Lundúnutn á þriðjudaginn var. Og honum var þá aflient gulltnedalía félagsins í virðingarskyni fyrir af- rek hans að finna norðurheims- skaufcið. Peary fluttd þar fyrirlest- ur um norðurferðir sínar. — Gufuskipalína C.N.R. félags- ins befir tekið til stanta. Fyrsta skipið, “Royal Edward”, sigldi frá I.ondon til Bristcl þann 29. apfcil. Hon. Robert Rogers, ráð- gjafi opinberra verka í Manitoba, var um borð í skipi þessu. — John Ballairee í Seattle, for- maður félags nokkurs þar í borg, hefir fengið ednkarétt til þess, frá Louis Brennan, að mega nota edn- teins-járnbrautar uppfundning hans við járnbrautabyg.gingu í Alaska. þessari uppfundningu og því, hvernig járnbrautarvagrearnir geta haldið jafnvægi sínu með skopp- arakringlu- afii, á eintednsbraut, hefir áður verið lýst hér i blaðinu. En Bandaríkjamenn, sent ætíö eru fyrstir og fremstir til framkvæmda þegar um gagnlog nýmæli er að ræða, hafa myndað félae til þess að koma þessari Brennan upp- fundningu í vérklega framkvæmd. Félag þetta ætlar að byggja 100 mílur af eiuteins-járnbrautum í Alaska á komandd sumri, frá Mat- amiska kolareámunum til Fair- banks. Félagið telur, að kostnað- ur við byggingu slíkrar brautar fari ekki fram úr 3 þús. dollurum á hverja mílu, þar sem vanaleg járrebraut myndi ekki kosta minna en 20 þúsured dollara hver míla. — Mr. Brerenan hefir samið um, að búa til 2 vagna fyrir þessa nviiu braut til að byrja með. Félagið heíir séð .vagna með 60 manns fara eftir slíkri braut á tilraunastöð Brennans í Evrópu, með 26 tnilu i hraða á klukkustund. Og Ballaine varð svo hrifinn af þeirri sjón, að hanre keypti strax einkaleyfi fyrir Alaska. Hraðinn er sagt að geti orðið 100 mílur á klukkustund. — Félagið býst við að byggja bráð- lega ýmsar greinar út frá þessari 100 mílna braut sinni, ef hún reyn- ist eins vel og það telur vat’a- laust að verði. — Herra John D. Rockefeller, hinn yngri, hefir tjáð sig fúsan til þess, að gefa mikla fjárupphæð til þess að útbola úr landi þessu hinni svívirðilegu stúlknaverzlun, sem sannað hefir verið að edgi ser stað í New York borg og víðar. — það nýjasta í stúlknaverzlunar- málinu er, að tvær ungar stúlkur, 17 og 19 ara, sem dyrir skömmu hurfu frá forelsraliúsum í Wiscon- sin ríkinu, hafa nýlega funddst eft- ir að hafa verið seldar í bænum International Falls fyrir $150 hver. Sá, sem kærður er um að hafa tælt stúlkurrear að heiman, er maður að nafni James Vincent. — Einndg hafa fundist tvær ungar stúlkur, sem áttu heima í Mil- waukee. þær fundust 1. þ. m. í International Falls í Minnesota, og átti að flytja þær til Canada. þegar stúlkurnar fundust, livarf skjótlega maður sá og kona, sem þær voru lijá, og sem höíðu tælt þær að heáman í þeim til'>angi að selja þær hér í Canada. Lögreglur margra bœja leita nú þessara hjúa.- — það .er þessi verz.lun, sem rekin kvað vera all-víða, sem Rockc- feller vill atfnema með öllu og g.era ómögulega, og hann er viðbúinn í verja miklum auðœfum til þess að koma þessu í framkvœmd. Wall Plaster -'EMPIRE” veggja PLASTUR kostar ef til vill ðgn meira en hiuar verri tegundir, —en ber- ið satnan afleiðingarnar. Vé*" búum til: “Empire” NVood Fibre Plaster “Empire” Cement Wall “ “Empire” Finish “ “Gold Dust” Finish “ “Gilt Edge” Plaster of Paris og allar Gypsum vörnuteg- undir. — Eiqum vér nð senda £ yður bœkling vorn • BÚIÐ TIL EINUNGIS HJiC MANITOBA CYPSUM CO. LTD SKRIFSTOFUR OG ÍULLUR I Winnipeg, - Man.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.