Heimskringla - 19.05.1910, Síða 1
XXIV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 19 MAl 1910
NR. 33
Tvöfalt
stærri
er r e i ð h j ó la búð
xnfn nú en áðnr, og
vöru b y r g ð i r og
verzlun að sama
skapi. Brant-
ford reiðhjól-
in góðu hefi ég
til 8ölu eins og
aðundanförnu
með eins góðum kjörum og nokk-
ur annar getur boðið. — Einnig
aðrar tegundir af nýjum reiðhjól
um sem ég sel fyrir $80. og upp,
með "Dunlop Tires” og ”Coaster
Brake”.—Allar aðgerðirogpant-
anir afgreiddar fljótt og vel. —
West End Bicycle Shop
Jón Thorsteinsson, eigandi
475—477 Portage Avenue.
TALSÍMI: MAIN 963o.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
— JarSarför Edwards sál. Breta
Eonungs fer fram í Lundúnum
þann 20. þ.m.
— Y.M.C.A. félagiS í 'Toronto-
boirg skora&i íyrir nokkrum dögum
4 borg-arbúa, aS veita sér hálfrar
milíón dollara þéningastyrk til
byffgiug-a 0g starfskostnaSar. •—
SvariS var á þann veg, aS borg-
arbúar gáfu félaginu meS 9 daga
samskotum $685,803.04.
— Tvegigja ára gamall píltur í
Elkhorn bæ í Manitoba týndist á
sunnudagsmorguninn var meSan
íoreidrar hans voru í kirkju. þau
höfSu skiliS barniS eítir 'einsamalt
heima.
— Byggingafjör sagt meS mesta
móti í Montreal borg á þessu ári.
>TJm. 12 milíón dollara virSi í bygg-
ingum nú í smíðum.
— þann 5. þ.m. var fundur hald-
inn í St. Louis í Bandaríkjunum,
til þess aS ræSa um á hvern hátt
hægiist væri aS halda fólki á-
nægSu úti á landsbygSinni, svo
þaS ílyktist ekki inn 'í borgir og
ba&i landsins. Ríkisstjóri H. S.
Hadley hafSi boSaS til fundarins.
Hann hefir um mörg ár boriS mál
þetta fyrir brjósti, og hefir gert
tillögu um starfsaSf'erS þá, sem
aS hans dómi þurfi aS viShafast
til þess málefniS fái framgang.
Hann vill mynda þjöðlsgt land-
búnaSar heimilisfélag, og vill aS
mannvinir þjóSarinnar taki hluti í
því. FiélagiS á aS útvega 40 ekra
búlönd meS byggingum, ræktun,
áhöldum og kenslu í búnaSi fyrir
alla, sem vilja kaupa slík lönd og
búa á þeim. 1 stjórnarnefnd félags-
ins skulu vera menn lir hverju rílci
i sambandinu. HöfuSstóll sé ein
milíón dollara til aS byrja meS,
'og hver hlutur sé þúsund dollarar.
Landakaupin eru fyrirhuguS í Tex-
as, Missouri, Alabama og öðrum
ríkjum, þar sem land er enn ódýrt
en frjósamt, þrjátíu og tveir 40
ekra búgarSar skulu heita nýlenda
og hver nýlenda skal hafa miS-
eSa aSal-búgafS, sem sé undir yfir
ráSum lœrSs búfræSings, er hafi
yfirumsjón meS starfinu á öllum
búgörSum nýlendunnar. þeir, sem
vilja eignast slíka búgarSa, skulu
íá þá meS kostverSi og meS löng-
um afborgunarfresti, sé þess ósk-
aS. 1 hverri nýlendu sé landbúnaS-
arskóli, þar sem kend sé vísinda-
leg búfræSi. FélagiS skal sjá um,
aS fólkiS hafi nægar skemtanir,
svo því leiSist ekki, og svo þaS
kunni vel viS sig og fái enva löng-
til þess aS flytja til bæjanna. Svo
er áætlaS, aS 32 búgarSar kosti
30 þúsund dollara.
— Fimtán ára gamall piltur í
New York, sonur eins af lögreglu-
þjónum borgarinnar, varS niýlega
íyrir slysi, sem orsakaSi þaS, aS
hann misti annan fótinn um læriS.
Honum voru dæmdar $13,750.00
skaSabætur, og hann fékk skilding-
ana.
— Ekkjudrotning Ðreta á að
hafa 350 þúsund dollara á ári í líf-
6yri, frá þessum tíma til dánar-
Öægurs.
GEOEGE -V.
KZOTTTTnsra-TTEý, BEETA
— 106 ára gamall maSur í Mon-
treai datt út um glugga á húsi
sínu og féll 12 fet niSur á jörS og
beiS bana aí. Ekkja hans er nú
orSin 99 ára gömul.
— Taft forseti hafir veriS beðinn
aS hlutast til um, aS Bandarfkja-
þjóSin verji Nioaragua fyrir þeim
sífeldu uppreistarflokkum, sem þar
þjóta upp hvaS eftir annað og
ræna og skemnia eignir manna.
Nefnd auSmauna frá Nicargua er
aS undirbiia ferð til Bandaríkj-
anna til þess formlega að bera
fram þessa kröfu. Taft forseti
verSur beSinn annaShvort að
senda þangaS herflokk um stund-
arsakir eSa aS sjá til þiess, aS
Bandaríkin siái varanlegri verndar
hendi yfir lýSveldiS.
— Nefnd sú, sem ðlassachusetts-
rfki setti nýlega til aS íhuga or-
sakirnar til sivaxandi verShækk-
unar allra lifsnauðsynjia, segir í
skýrslu sinni, að orsakirnar séu
vaxandi gulltekja heimsins, 'eySslu-
semi almennings og stjórna og ó-
hóflegur herkostnaSur, — einnig
þaS fyrirkomulag, er miSi öjS því,
aS gera alla framleiSsluna sem
dýrasta, og eftirspurnina sem
mesta og framboSiS sem minst.
Hins vegar séu verkamanna sam-
tök og toll-löggjöf ekki beinlínis
völd aS þessu.
— Fregn írá Englandi segir, aö
báSir þingflokkar hafi komið sér
saman um, aS láta ágreining sinn
um lávarSadeildina liggja niðri
um árstíma aS minsta kosti, til
þess aS hinn nýji konungur þurfi
engan vanda aS hafa af því máli
aS svo stöddu.
— Tveir fiskimenn voru nýlega
fluttir til Halifax. þeir fundust i
áralausum smábát úti á hafi, og
voru aS fram komnir af kulda og
hungrí, — höfSu hvorki bragSaS
vott né þurt í 3 sólarhringa. þess-
ir menn höfSu orSiS viSskíla við
skip sitt í blind þoku, og meS því
aS þokunni létti. ekki og þeir voru
þarna áralausir, töldu þeir dauS-
an vísan sér, þar til þeir fundust
fyrir mestu tilviljun af fiskiskipi,
er var þar á ferS. Mjög var vont
í sjóinn, svo mennirnir voru hold-
Votir í bátnum, sem var hálffullur
af sjó, þegar þeim, var bjargaS.
— Stórkostlegir Éellibyljir hafa
gengiS í Japan undanfarna daga og
gert feiknatjón á eignum og lífi
manna. Margir tugir skipa hafa
farist, og 50 menn eSa meira
druknaS af þeim. TaliS víst aS
mörg hundruð manna hafi farist,
aS samaniögSu, hér og hvar með
fram ströndum landsins. Eitt
mannlhitninga gufuskip, sökk meS
öllu, sem á því var, og mistu þar
margir líf sitt. Menn óttast, aS
mörg slík skip hafi larist, þó enn
sé ekki frétt um þau.
— Prcéesson Osborne í Winnioeg
hefir veriS útnefndur af I.iberal
flokknum til þess að sækja á móti
Hon. R. P. Roblin í kjördæmi
lians viið næstu kosningar.
Verkamanna flokkurinn, sem
nú heldur völdum í Ástralíu, hefir
þetta á stefnuskrá sinni :
1. Verndartolla af innfluttum
varningi, meS því augnamiði,
aS efla iðnaS í landinu.
2. AS ríkisstjórnin ákveSi kaup-
gjald fyrir alla vinnu, sem
gerS er í öllum atvinnuvegum
landsins.
3. AS herþjónusta sé gerS aS
lagaskyldu.
4. AS herskipafloti fyrír Ástralíu
sé bygður af inntektum lands-
ins, án þess að fá lán.
5. þjóðei'gn allra opinberra nauS-
synja.
6. AS stigbreyting sé á sköttum
af landi.
7. AS lántökuréttur landsins sc
takmarkaSur.
8. ÁbyrgSartryg.ging gegn at-
vinnuleysi.
Kosningarnar í Ástralíu fóru
ifram þann 13. apríl sl. Konur
höfSu atkvæSisrétt og grieiddu yf-
irleitt atkvœSi um alt ríkið, og
tóku mikinn þátt í kosningunum.
Fjórir flokkar eru á þinginu, en
verkamannáflokkurinn er mann-
fleiri en hinir allir til samans.
Kosningar til efri málstofunnar
standa enn yfir, og sýna enn sem
komiS er, að verkamienn hafa þar
einnig yfirburSi í flestum héruSum
landsins. Fráfarna stjórnin hafði
þaS á prógrammi sínu, aS láta
ríkisstjórnina borga árlega til
hinna ýmsu fylkja 25 shillings fyrir
hvert mannsbarn, sem værí í fylkj-
unum. þessu andmæltu verkamenn
harSlega, og á því aSallega unnu
þeir kosningarnar.
— ísinn á Klondyke ánni í Yuk-
on héraSinu leysti þann 8. b.m.
Isinn hlóSst upp 10 fet vfir ár-
bakkana og tók nokkur hús aí
grunnum, on manntjón varS ekki.
— þýzkalands keisari gerði Col.
Roosevelt þann greiSa, aS lofa
honum aS sjá hermenn sína í upp-
gerðar burdaga. Keisarinn gat
þess, að þaS væri í fyrsta sinni,
sem slík viShöfn hefði veriS sýnd
prívat borgara.
— Feikna rigningar hafa veriS á
Frakklandi, ár hafa flætt lanvt yf-
ir bakka sína og Parísarbúar ótt-
ast stórskemdir í borginni oe um-
lig'gjandi hí'raSi. Nokkrar skemdir
hafa þegar orðiS.
— Allan línan er aS láta smíða
tvö gufuskip til mannflutninga á
milli Englands og Canada,,og eiea
þau aS vera hraSskreiSari en nokk
ur, sem riú ganga yfir Atlantshaf.
Royal Household Flour
Til Brauð
og Köku
Gerðar
Gef ur
Æfinlega
Fullnœging
pír EINA MYLLAN í WINNIPEG,—LÁTIÐ HEIMA-
IÐNAÐ sitja fyrir viðskiftum YÐAR.
— Tólf tmgmenni, piltar og
stúlkur, öll frá 16 til 18 ára göm-
ul, voru nýlega að skemta sér á
báti á smávatni einu í Pennsvl-
vanía. Piltarnir fóru aS rugga
bátnum til þess aS hræSa stúlk-
urnar, og þeim tókst svo vel, aS
þoir livolfdu bátnum, og druknuSu
8 af þeim, 6 stúlkur og 2 p ltar.
Alt voru þetta háskólanemendttr,
sem hefSu átt aS hafa næeilegt vit
til að stjórna sér skvnsamlega.
— Námaslys varð á Enríandi í
sl. viku, og varð það 137 mönnum
aS bana. EitthvaS sprakk í nám-
anum, svo a'ð jörS féll inn oe fvlti
göng þau, er lágu inn í námann.
AS eins fjórum mönnum varS
bjargaS, hinir allir 7137) er ætlaS
aS hafi kafnaS af gasi, sem var
í námanum.
— Hinn nýi konungur Breta hef-
ir neitað aS vinna sinn konunglega
eiS eins og hatm er orSaSttr í
handbítkinni. EiSstaínum hefir því
veriý' bteytt talsvert, svo aS hann
sé ekki alveg eins móSgandi fyrir
hina katólsku borgara ríkisins.
— Sir Charles Tupper sendi ný-
lega frá Englandi 506 dollara gjöf
til spítala í Amherst borg í Nova
Scotia, þar sem hann vann sem
læknir á fyrri árum sínum. Hann
gat þess um leiS í bréfi, að sökum
elli og heilsulasleika konu sinnar
telji hann tvísýnt, að hann muni
nokkurntíma framar koma til
Canada. ,.
— Kaupmenn í Lundúnum eru
aS gera dauSa konungsins að
gróSabragði. Á þeim strætum,
sem líkfylgdin fer ttm, er nú hin
mesta eftirsókn eftir sætum í
gluggum beggja megin strætanna.
Sumar btiðir og einnig prívat hús-
eigendur hafa nú þegar orSið að
auglýsa, aS allir gluggar sínir séu
leigSir. Hæst bjóða Bandaríkja-
menn í gluggasætin. Tíu Banda-
ríkjamenn borgttSu þúsund dollara
fvrir ofurlítið “Balcony” eSa sval-
ir á fvrsta lofti. Einn kaupmaSur
í Piccadilly stræti hefir neitaS
1500 doll. fyrir sæti viS glugga á
fyrsta lofti í húsi sínu. Hann vill
fá 2 þúsund dollara fyrir hvern
glugga. (Augun eru ekki alveg
tollfrí hjá þeim pilti). bað kostar
30 shillitt'gs fyrir manninn, að
mega standa uppi á húsþökttm til
aS geta séS þaSan cían í strætin,
en á efstu gólfum húsanna kostar
um þústtnd dollara aS liafa umráS
yfir ti'tsjón úr einum glugga. þaS
kostar nú tvöfalt til þrefalt meira
að komast aS til aS sjá líkfvlgd
Edwards sál., en þaS kostaði aS
sjá líkfvlgd Victoriu sál.
íslands fréttir.
BÚNAÐARSKÓLINN
ötutt námsskeiS verSur haft á
Manitoba BúnaSarskólanum frá
J óhannes J ósepsson glímukappi
hefir í Isafold, dags. 26. marz sl.
svaraS all-rækilega ákærum þcim
um óreglu og ragmensku og í-
þróttapretti, sem fyrri íélagar
hans tveir og herra Neve báru á
hann í ísafold 19. fobr. sl. Til
sönnunar sínum málstaS hirtir Jó-
hannes nokkur vottorS frá mönn-
utn, sem hann hefir unniS fyrir, og
sýnra þau veíþóknun á Jósepsson
og íþróttahæfiileikum hans. Eit:
af þessum vottorSum er þannig :
“Herra Paul Neve.
“Úr blaðinu ísafold sjáum vér
yfirlýsingu frá ySur, þar sem þér
haldiS því fram, aS þegar glímn-
llokkur yðar sýndi sig í Ilamborg-
ar Circus vorum, hafi hver srlímu-
maSur, er glíma átti viS Jóseps-
son veriS keyptur til aS falla.
“Vér verSum allra skorinorSast
aS hedSast þess, aS eigi séu slikar
rangar fregnir bornar út ai stofn-
un vorri. Oss hefir aldrei til hug-
ar komiS, aS múta glímumaniti,
og vér teljum þaS sérstaklega þeg-
ar viS Jósepson var að eiga al-
gerlega óþarft. MeS því aS esftir
vorri skoðun átti t.d. glímumaSnr
eins og Winzer, sem Jósepsson
glímdi við, alls enga sigurvon i
glímu, eftir orSum Winzers sjálfs.
“Vér getum eigi hindraS, aS þér
með ölltim meSuIum vinniS gegn
fyrverandi félaga ySar Jósepson,
I en verSum þó eindregið aS biSja
! ySur aS láta nafn vort ónotaS til
þess.
“VirSlngarfylst.
Stjórn Circus Busch. _
W. Schmidth”.
önnur vottorS eru í þá átt, að
hæla framkomu Jóhannesar og í-
þróttum hans.
Látin er á ísafirSi frú Jóhannd
Jónsdóttir, kona Torfa Magnús-
sonar, bæjarfógetafulltr. á ísafirSi,
móSir Magnúsar bæjarfógeta, séra
Richards, Péturs (í Chicago) og
þeirra systkina. Hún varS 70 árn
gömul.
AflabrögS dágóS fyrir Vestur-
landi, og síld befir fengist í lag-
net.
Mælt aS Lapplendingar ætli aS
kaupa hesta á íslandi og nota þá
til dráttar í stað hreindýra, seui
ekki þykja nógu þrekmikil.
FjárkláSi komiS upp í einttm hæ
í EvjafirSi og eins á einum hæ viS
Oilsfjörð í BarSastrandarsýslu.
HafíshroSi hefir sést snemma í
apríl tvær til þrjár mílur undan
Horni.
Oddur Thorarensen, lvfsali á
Akureyri er orSinn norskur kou-
súll, í staS FriSriks Kristjánsson-
ar sem hvarf fvrir skömmu.
14. júní til 2. júlí næstkomandi,
fyrir bændur og þreskimenn. I Til-
gan.gurinn er, aS gefa mönnunum
kost á aS kynna sér búnaSarvélar
og hvernig á aS stjórna þeim. —
Sérstök áherzla verSur lögS á, að
kenna mönnum aS stjórna gasoline
og gufuvélum, og meS því aS
þessi kensla fer fram á sama tíma
og illgresis-fundurinn stendur yfir,
þá veita járnbrautafélögin niSur-
sett fargjöld þeim, er sæta vilja
þessari kenslu. PrentaSar upplýs-
itiigar urn námsskedS þetta verSa
sendar hverjttm, sem æskir þess,
meS því aS skrifa eftir beim til
Manitoba Agricultural College,
Winnipeg, Man.
A. J. Johnson í Chicago hefir
gefiS Heilsuhælinu á Islandi 50 kr.
til minningar um móSttr sína,
ölöfu SigurSardóttur.
SkipiS Víkingur, eign Ásgeirs
kaupm. Péturssonar á Akureyri,
strandaSi nýlega fyrir norSan, —
'óvátrygt.
LagnaSarís er um mest allan
HrútafjörS (16. apríl). Mikil harS-
indi í Húnavatnssýslu, gengur á
hríSum öSru hvoru.
Ragnar Lundborg, Islandsvinttr-
inn sænski, hefir hafið samskot
meSal Lesenda blaSs síns til styrkt-
ar þeim, er biðu tjón af snjóflóS-
inu í Hnífsdai, og hefir sent þau
samskot tái ísiands, alls 165 kr.
($44.50). Enn hefir ekki sést, að
neitt hafi gefist á íslandi til hjálp-
ar því fólki.
Jóh. Jóhannesson ritar í þjóSólf
28. apríl um skattálögu ranglæti I
Reykjavík, tekur 4 dæmi : 1)
Gjaldanda, sem á 30—40 þús. kr.
eignir skuldlitlar, og hefir ákjósan-
legar heimiliskringumstæSur, cr
gert aS greiSa aö eins 10 krónur.
2) Gjaldandi, sem á gjörheilsu-
lausa konu og 2 börn, og er svo
blásnauSur, aS alt, sem, hann og
fjölskyldan heíir haft til aS draga
lífiS fram á í vetur, er þaS, sem
honum af nokkrttm mönnum hefir
veriS geíiS, og þaS af svo skorn-
um skamti, aS hann getur tæpast
rólfœr heitiS vegna megurSar, —
hanri á aS greASa 16 kr. í bæjar-
sjóS. — 3) Gjaldandi, sem á 25
þús. króna eign í bezta hluta borg-
arinnar og fjárhagslegar kringum-
stæSur í bezta lagi, hann á aS
greiSa 8 kr. — 4) Gjaldandi, sem
leggur fram aljpíkrafta sína til aS
verjast sveitarstyrks, — hann á
að borga 8 krónur, jafnt þeim stór
efnaða, sem fyr er talinn.— Jóh.
segiir, aS sltkan samanburð sem
þennan miegi finna í tugatali á
niSurjöfnunarskránni.
íslenzkt smjör hefir í aprtlmán-
uSi seist á Skotlandi 101J£ pd.
danskt fyrir 113 shillings.
Sæmundur Jóelsson féll út af
skipinu Seagull um miðjan apríl
sl., í ofsaveSri, og náSist ekki.
Hann var unglingsmaSur frá
Reykjavík.,
AflabrögS dágóS hjiá þeim, sem
stunda fiskiveiSi á opnum bátum,
sunnanlands.
Einmuna tíð sunnanlands í apríl
byrjun, logn og vorhlýindi og jörS
aS kalia auS, en 10. anríl gerði
norSanveður meS 7 stiga frosti, og
hélst það nokkra daga.
Wall Piaster
"EMPIRE” veggja
PLASTUR kostar ef til
vill iign meira en hinar
verri tegundir, —en ber-
ið saman afleiðingarnar.
Vér búum til:
“Empire” Wood Fibre Plaster
“Empire” Cement Wall “
“Empire” Finish “
“Gold Dust” Finish
“Gilt Edge” Plaster of Paris
og allar Gypsum vöruuteg-
undir. —
Eiqum vér að senda £
yður bœkling vorn •
BfilÐ TIL EINUNGIS HJÁ
MANITOBA CYPSUM CO. LTD
SKRIFSTOPUR og MILLUR I
Winnipeg, - Man.