Heimskringla - 19.05.1910, Síða 3
HEIMSKÍIN GEA
WINNIPEG, 19. MAÍ 1910.
Bls. 3
ATSDGASEKID.
Kæri ritstjóri.
í blaöi yöar fyrir ekki, löngu s'íð
an var bré£ frá hr. Gísla E.
Bjarnasyni, frá Hrífunesi, hvar í
hann fer tneöal annars að finna að
alþýðuútg'áfunni af íslenzku sögun-
um, sem og að trúarbragðaskoð-
unuum, sem hafa komið út í Hkr
við og við.
þessar aðfinningar við útgáfuna
á sögunum, bera einkenni eiginleg-
leika höfundarins á sér í mjög
greinilegum stíl, því það vita allir,
sem nokkura mentunarlega þekk-
ingu hafa, að útgáfurnar, sem al-
þýðu útgáfa þessi er tekin eftir,
eru verk þíédrra manna, sem
standa á hæsta stigi bycði skyn-
semis og mentunar. Mér eru skýr-
ingarnar mikilsvirði, bví bað-vant
ar mikið á, að ég skilji allar vís
urnar gersamlega, heldur eru það
mjög fáar, sem ég skil. En án þess
að skilja þær get ég ekki séð,
hvernig nokkur getur haft fult
gagn af sögunum. þessi alþýðuút-
gáfa af sögunum er að mínu áliti
mikið góð og nauðsynleg.
Aðfinningar herra Bjarnasonar
við þær trúarbragða. ályktanir,
sem hafa verið í Heimskringlu,
eru fremur illa grundaðar, og þar
sem hann fer að svara þeim, sem
ritað hafa, um heimsku, þá er
það ekkert ibetra. því satt að
segja, þá eru sterkar ástæður til
að trúa, að herra Bjarnason þekki
ekki einngang aðal og mest áríð-
andi trúaratriði, sem kend eru í
kirkju þedrri, sem hann skrifar sig
með. í kirkju þeirri er það að
styðja að sundrung hjóna, koma
inn hatri á milli þeirra, eða að
ljúga á milli foreldra og barna, á-
litið að ganga næst morði, og í
bibfíunni, bæði gamla og nýja
sáttmálanum, er þess háttar álit-
in dauðasök. En herra Bjarnason
svnist að álíta alt þess háttar
höfðingsskaip, sérstaklega þegar
það færir stórgjafir, veizlur, heim-
boð og aðrar virðingar.
Einn af vitringum síðust aldar
sagði, að eitt af aöokdnkennum
skynsams manns væri að “hann
veit hvað hann veit, og veiit að
hann veit þaö”. En á hinn bóginn
sagði hann að það væri margir,
að “ef þeir vissu tíunda partinn
af því, sem þeir þykjast vita, þá
vissu þeir oft tíu sinnum, meira en
þeir gera”,
ÖIl trúarbrögð hafa gott inni
að halda, og sum mikið gott. En
þar sem þau eru svo mörg og
margbreytt, þá geta ómögulega
öll verið rétt. þess vegna, ef trú-
arbrögð eru pokkurs verð, sem
þau óefað eru, því alt, sem leiðir
til góðs, er mikilsvert, En að
standa í þjarbi út af trúarbrögð-
unum, væri mikið betur ógert, því
þess háttar leiðir oftar til ills
heldur enn góðs, af því það er
jafmaiðarlega háið illa, sem verið er
að velba fyrir sér. 1 staðinn fyrir
að leita að því, sem er gott og
betra, er þessi og hin trúarbrögð
hafa inni að halda. því ef það
væri gert, þá yrði áður en langt
um líður öllu þvi bezta úr öllum
trúarbrögðum safnað í edtt. Og
þá, þegar svo væri komdð, að alt
hið bezta, sem þekt er, vœri alt í
einu lagi, þá gæti það varla ann-
að en verið fullkomið. beir, sem
taka þátt í hvaða helzt röksemda-
Ieiðslu sem er, ættu ekki aðleitast
svo mikdð við að leiða í ljós vill-
una hjá öðrum, heldur enn að
sýna, hvað gott það ,er, sem þeir
hafa.
Menn skyldu alt af hafa það
hugfast, að hver einasta mann-
eskja, karl og kona, hefir eðlilega
fullan rétt til að trúa hverju þ\ í,
sem honum eða henni þykir mest
trúanlegt, og það er náttúrleg
skyldai hvers helzt sem er, að
standa með öðrum í þessum rétt-
indum, og með því að gera það,
þá verða afleiðingarnar oftast
góðar. því að breyta svo við
aðra eins og maður vill að aðrir
breyti við sig, sýnir bæði skyn-
semi og réttlæti, hvorutveggju,
sem eru ekki einungis mannlegir
eiginleikar, heldur líka guðlegir.
þar sem á hinn bóginn að gera
öðrum rangt til, og svo að bæta
illu á ilt ofan, er í orðsins fullri
meiningu djöfuUegt, heimskulegt
og óguðlegt í alla staði. það get-
ur hverjum helzt sem er, orðið á,
að gera rangt og leggja öðrum
rangt til. En sá, sem er skynsam-
ur og hetja, er oftast fljótur til
að sjá það, meðkennast það, og
eftir megnd bæta úr því. En heer
sá, sem getur aldred séð og með-
kent sín feil, er bæði bleyða og
heimskingi, og verður sér alt af
tdl skammar fyrr eða seinna. það
var merkismaður, sem sagði : “Af
þeirra ávöxitum skuluð |kr þ-ekkj i
þá”, og samkvæmt þeirri reglu,
þá eru þedr, sem alt af eru að
safna saman hinu illa, sem þeir
finna í fari annara, og sjá ekkert
gott í fari neins nema sjálfs síns
og nánustu vina sinna og vanda-
manna, ekki til að reiða sig á til
mikils góðs. því tdl þess að vera í
tölu vina þeirra, verða menn að
lúta honum, sem sagði : “Alt
þetta vil é\g gefa þér, * ef þú fellur
fram og tilbiður mig”.
Að endingu vil ég benda til þess
að þar sem eru svo margir Ks-
chin.es, þar eiga að vera nokkrir
Demosthenes.
John Thorgeirsson,
Tihistle, Utah.
Fáar línur til Hkr.
I.andar hér hafa verið að spyrja,
hvenœr þeir fád að sjá línu frá mér
næst í Kriniglunni. Að vísu tek ég
það sem gaman af þeim, sem ég
veit að eru mikiö pennafærari en
ég, sérstaklega hr. E. H. Tohnson,
sem hér er orðinn niafnfrægur fyrir
sína mentun og lipurmensku. Ég
álít það mjög heiðarlegt, þegar
m©nn menta sig að öllu leyti1 sjáll-
ir. Hann talar og ritar tvö eða
þrjú tungumál fyrir utan móður-
mál sitt, og stýrir hér laglegri
skriifstofu fyrir mjög öflugt félag.
Hann hefir einnig mikla trjáverzl-
un og segdr og sýnir hériendum
mönnum, hvernág edgd að nlanta
þeim og fleira, sem sannar að hann
hefir rannsakað og lært þessa liluti
betur en þeir.
íslendingar eru álitnir hér sem
duglegur þjóðflokkur, þeir eru iðju-
samir, námfúsir og flestir fremur
öðrum áreiðanlegir. Samt held tg
að við sem aðrir höfum okkar
part af þeim aumustu fáráðarræfl-
um, sem mögulegt er að hugsa
sér, sem alt þykjast vita on- vera
hámentaðir, en þegar vel er rann-
sakað, þá er það bara , skrum, —
sem ýmsir gleðimenn kalla vís-
dómsvind náttúrufræðinnar. það
er kenniteikn þessara fáráða, að I
cegar þeir ætla að segja manni
eitthvað rangt, annaðhvort hreysti
sögur um sjálfa sig við betri part
mannkynsins eða niður á við um
náungann.
Eg varð alveg hissa, þeear ég
las í Heimskrdnglu um póiinn og
lleira eftir Jón þorgeirsson. Hví-
líkur vísdóms'-vindbedgingur! Ein-
ar H. Johnson var spurður fyrir
nokkru síðan, hvort hann ætlaði
ekki að svara, og kvað hann nei
við, sagðist ekki kalla annaðeins
svaravert. Samt er Einar óverð-
skuldað meiddur í nefndri rrrein af
jaumingja Jóni, sem auðsjáanlega
er með því að borga E. fvrir mat
og aðra góða hluti, sem. hann var
að gefa Jóni,. þegar hann var á
sínu flakkara-rangii.
Yegna þess, að nefndir landar
eru hér alþektir, bæðd af löndum
og fleirum og ég er þeim persónu-
lega nauðkunnugur, líka þessvegna
að Jón gefur í skyn ait aðrar á-
stæður en sannar viðvíkjandi Ein-
ari, — finst mér, að gefnu tikfni,
ég ekki alveg geta látið það hlut-
laust). Fyrir 30 árum síöan kom
Jón, sem annar flakkararæfill út-
sópaður frá náttúrufræðisskólan-
um í Caliifornia, til min, og var
hjá mér einn vetur, sem aldrei
skyldi verið hafa, og síðan hefi ég
þekt liann að öllu öðru en góðu,
— og þekkja mættu fleiri landar
hér, einkum þedr, hverra hörn hann
hefir svívirt. Eitiar hefi ég þefet
medr en 20 ár og það að góðu
einit,. Hann er maður stórartugur
og hinn mesti höfðingi og þau hjón
heim að sækja með sína gestrisni,
en Jón þvert á mótd. Einar unnir
öllum sannmælis, en Jón smánar
alla í ræðum og ritum, sem hanu
veit að hafa gott mannorð og eru
elskaðir og virtir af öllum sem þá
þekkja. Yedzlur þær, sem J. segir
að E. haldi, er það rétta : að
landar kjósa alt af E. sem for-
stjóra, þegar gleðd-samsæti er haid
ið, e£ þeir geta fengið hann, sem
sannar þá tiltrú og álit, sem
hann hefir hjá þeim að verðugu,
því maðurinn er skemtinn, kurteis
og binn þægilegasti. En þeir kjósa
aldrei Jón. það sárnar honum svo
afskaplega, því hiann vill vera virt-
ur meira en Einar og aðrir, — en
auðnuleysis vegna hefir hann. ald-
rei komist af sinni skítugu þúfu.
Hvað því viðvíkur, að Einar
reyni að niðra Mormónum, þá er
þíið alveg rangt. Allir vita það
hér, sem þiekkja til. Að Tón hefir
smánað Mormóna, og helzt núver-
andi lieiðara þeirra Joseph F.
Smith, iþað vita menn líka. Allir
geta -séð, siern lesa grein Einars,
að bann á við einn mann, sem Iík-
ist eða komist nœst spámanni að
viti, nefnilega John Thorgedrs-
son. Eg veit ekki af öðrum, sem
hefir halddð fyrirlestur um pólinu
og reynt að telja fólki trú um, að
þar væru þær týndu ættkvíslir ísr-
aels, — og meira, niefnilega aldin-
garðurinn Eden, náströnd, visnað-
ir slönguskrokkar og fieira1 og fi.
Og einniig landafræðislega sýnt
fólki fram á, hvaða veg það tvnda
fólk hefði farið. þetta hefir hcr
vakið hina mestu eftirtekt og að-
hlæigi.
Eg vil ráða Jón-i til að fara hæg-
ara, annars mætir liann máske
þeim gamla Hrífunes Gísla.
Spanish Fork, Utah.,
7. maí 1910.
Gísli E. Bjarnason.
Þakkarorð.
þegar við hjónin urðum, fyrir
því óvœnita og tilfinnanlega tjóni
snemma í apríl mánuði, að missa
allar þær 5 mjólkurkýr, sem við
áttum, og stóðum þá uppi alger-
lema mjólkurlaus og ráðþrota með
8 börn okkar í heimili, — þá gerði
nábúi okkar, herra bóndi Jóhanu
Guðmundsson á Reynistað í Fljóts
bygð það góðverk, að gefa okkur
eina af mjólkurkúm sínum, og
herra bóndi Jón þorláksson á
H'eyitanganum norður í Isaioldar-
bygð, lánaði okkur góðfúslega
eina af sínttm mjólkurkúm fram til
næsta hausts. Fyrir þessa höfðing-
legu gjöf Jóhanns ocr vdnsamlegú
hjálp Jóns, vorum við hjónin fær
um að framfleyta börnum okkar
þolanlega. þessir tveir bændur,
sem báðir eru fátækir, hafa jafnan
síðan við komum í bygð þedrra,
reynst okkttr sem beztu bræður
og létt á ýmsan hátt þá örðug-
leika, sem írumbýlingsbúskap okk-
ar hjóna var samfara.
Fyrir þessar mannúðlegu vel-
gerðir þeirra vottum við þeim
okkar inndlegasta þakklæti og með
þeirri ósk, að. hú þeirra megi
blómgast og blessast og þeir báð
ir njóta þeirra launa, sem góð-
verk þeirra verðskulda.
Icelandic River, 24. apríl 1910.
Ármann Jónasson,
ósk Jónasson.
* * »
Aths.— Nokkrar konur hér i
borg hafa beðið Hkr. að geta þess
að Mrs. ösk Jónasson sé nú kom-
in hingað til borgarinnar, til þess
að vinna sér inn nokkra dollar.t
fyrir fatnað handa börnum þeirra
hjóna og aðrar heimilisnau8synjar,
og að vel væri, ef einhverjir vildu
víkja henni góðtt. Hún vinnur nú
á Fort Rouge Hotel og þangað
mætti senda styrkvedtingar eða til
IoeJandic River P.O., Man.
Ritstj.
The Evans Gold Cure
229 Balmoral St. Sími Main 797
Varanlegl kning viö drykkjuskap á 28
dögum án nokkurrar tafar fré vinnueftir
fyrstu vikuna. Algerlega prívat. 16 ár
t Winnipeg. Upplýsingar í lokuöum
umslógum.
Dr. D. R. WILLIAMS, Hxain. Phys
J. L. WILLIAMS, Manaeer
SVAR. — Vér teljum það áreið-
anlegt, að A. verði að borga alla
áfallna skatta á landi hans, að
öðrum kosti má >ganga að því með
lögum og selja það fyrir áföllnum
skuldttm og rentum af þeim. —
Skattarnir eru lagðir á landið og
landið stendur fyrir -þeim, án til -
lits til þess, hver eigandinn er.
Vér ráðum A. tál þess að borga
skólaskattskröfuna. Ritstj.
Fyrirspurn.
Herra ritstjóri Heimskriniglu, —
gerið svo' vel að svara eftirfylgj-
andi spurningum í næsta blaði :
B. hefir haít umboðsmanninn M.
til að selja vörur og kaupa rott-
ur. M. hiður menn að lofa sér að
sitja fyrir rottu-kaupunum fyrir
það bezta verð, sem aðrir bjóði,
og fi.'kk loforð fyrir þeim. Aðrjr
komu og buðu 60c, en þeim var
neitað til að efna loforðið við M.
sem þá' var gert aðvart um tilboð
hinna. M. keypti rotturnar fyric
65c, en gat ekki borgað fyrr en
hann fyndi B., sem hann kvaðst
hafa skriílegt umboð frá, að bjióða
þetta í rotturnar um ákveðinn
t'ima, hvort heldur fyrir vörur eða
peninga. M. gaf kvitteringu undir
sínu nafni fyiir rottutölunni og
peningaupphæðinni, reiknað með
65 centa verði. M. flutti rotturnar
til B., sem þá kvað verð þeirra
falMð niður í 50c.
SPURNINQAR.
Á síðasta kirkjuþingi var frum-
varp saínaðarlaganna nýju lagt
yfir til næsta þings, og átti að
sendast til lútersku safnaðanna til
þess þeir gætu falið þingfulltrúuin
sínum að samþykkja eða hafna
þar einhverju af lögum þessum á
næsta þingi. Haia söfnuðirmr
fenigið þau? F. Finnsson.
S)VAR. — þiessari spurningu ætti
að beána til skrifara kirkjufélags-
ins og mun hann svara henni.
1. Á ég ekki heimtingu á þeim
65c, sem mér var lofað og gef-
in kvittering fyrir.
2. Að hvorum á ég gjaldið.
3. Er ég skyldugur að taka þátt
í því, þó sú vörutegund falli í
verði, sem ég er búinn aö
selja ? Fáfróðtir.
SVAR. — 1. þú átt heimtingu
á, að íá það v.erð, sem þér var
lofað fyrir vöru þína.
2. þú átt aðgang að bcim, setn
þú seldir.
-R08LIN HOTEL
115 Adelaide St. Wionipeg
Bezta $1.50 4-dae: hús í Vestur-
Canada. Keyrsla ókeypis inilli
vajtnstöóva oe hússins á nóttu og
degi. Afhlynuinig hins bez-a. Við-
skifti Igleriditiga ó«kast. ÓLAFUR
O. ÓLAFSSON, íslendlngur, af-
KreiOir yöur. Ileimsækjið hann. —
O. ROY, eigandi.
A S. BAKDAIi
Selur llkkistur og annast um átfarir.
AJlur útbúnaöur sá bezti. Eufremur
selur hauu al skouar minnisvaröa og
legsteina.
12lNöDaSfc. Phone 80B
HFiJR»9iltin<JI.(i og TVÆR
skemtilesar sögur fá nýir kaup-
endur fvrir að «1118 OO
Giftingaleyfisbréf
selur: Kr. Ásg. Benediktsson
486 Simcoe st. Winnipeg.
THR-
66
Arena
99
Þessi vinsæli skautaskáli
liér f vesturbænum er nú
opinn. Isinn er ágœtur.
18da Mounted Bifles
Band Spilab á Arena.
KARLM. 25e.—KONUK l5c.
Chas. L. Trebilcock, Manager.
JIMMY’S HOTEL
BEZTD VÍN OGYINDLAR.
VlNVKITARI T.H.FRASER,
fSLENDINGUR.
Jamcs Tharpe, Eigandi
A. S. TORBERT ’ S
RAKARASTOFA
Er 1 Jimmy’s Hótel. Bosta vark, kgmt
vorkfæri; Rakstnr I5c en 'Hárskuröur
25c. — Óskar viöakifta íslendinga.—
MARKET HOTEl
146 PUINOESS ST tíÆU™
P. O'CONNELL. elgandl, VHNNIPH
Beztu teeuodir af vi'ifönttu u o*
am, aðblynnlns «6ð hú-i end h
Ritstj.
A. kaupdr land af B. og borgar
að fullu umsamið verð, og fær lög-
legt edgnarbréf fyrir því. Sama ár
borgar A. vegabóta- og skólagjald
af þessari nýju edgn sinni og tekur
kvittun fyrir og hefir svo eignina
skuldlausa. B. flytur í annað ríki.
Næsta ár íær A. skólaskattskröfu
fyrir það ár, og jaifnframt reikn-
ing fyrir tveimur gömlum skóla-
gjöldum, . tveggja og þriggia ára
gömlum, sem á eigninni hvíla, á-
samt 10 prósent rentum frá því
gjöldin féllu í gjalddaga.
Er A. skyldur að borga þessa
gömlu skuld, eða hefir skólatiefnd-
in rétt til að taka nokkuð af eign-
inni til lúkninigar á skuldinni, ef
hún er ekki borguð ?i Fáfr.
3. Nei.
Frúin : því ertu að spegla þig
með hattinin minn á höfðdnu ?
Vinnukonan : Eg vildi sjá,
hverrng hann liti út á laglegu
höfði.
Auglýsing. — Tveir karlmenn,
eða, ef þeir fást ekki, tveir skradd-
arar geta fengið húsnœði hjá — —
Prósfessorinn : Hvað myndir þú
gera, ef einhver væri sprengdur í
loft ujip með púðri?
Wessel : Bíða þangað til Jiann
kæmi niður aftur.
Woodbine Hotei
466 MAIN ST.
Sfemísca Billiard Hall í Noröv©stnrlau'«
Tiu PooTborö.—Alskonar vfn o* vindl»»
Gistin* og fæöi: $1.00 ó dag og þar yfir
LFnnii'
Eisrendnr.
Á beztu heimilum
hvar sem er f Amerfku, l\ar
munið þér finna HEIMiá-
KRINGrLU lesna. Hún
er eins frððleg og skemti
leg eins og nokkuð annað
íslenzkt fréttablað í Canada
258 SÖGUSAFN HEIMSKRINGLU
“ö, all-vel”.
“Jiá., ég kanniast við lítillæti þitt, vinur minn.
þú átt skilið, að njóta eins mikillar virðingar fyrir
það eins og þekkingu þína. þú fæ-rð auðvitað
fyrstu einkunn”.
“Ekki held qg það, .... prófessorinn var ledður
yfir því, að ég hafði ekki hlustað á fyrirlestra hans".
‘'‘Fyrirl'Ostra”, sagði Albert gramur, “annað eins
bannsett rugl. — Eins og öll sáluhjálp sé undir því
komin, að skrifa upp og læra alla heimskunia, seru
þessir hávitru herrar préddka í kennarastólnum. Mér
verður flökurt af að hugsa ttm það......' Komið þið
nú”.
þiessir unigu mienn fóru nú út og leiddust, til þess
að fá sér kvöldverð á einhverju matsöluhúsinu i
Uppsölum.
III.
Erfðaskráin.
það var snemma morguns, dagtnn eftir samræð-
urnar, sem getið er í síðasta kapítula. Sólin var
ekkj komin upp, en samt vor Mórdtz seztur Við starfs-
borðið sitt, og lá böiggullinn, sem hafðd að geyma
eriðaskrá föður hans, fyrir framan harvn.
Innsiglið var enn þá óbrotið. Einhver dularfull
tilfinning hamlaði honum frá aö snerta það, í hvert
sinn, sem hann rétti hendina eftir því. Máske hafði
þetta skjal að geyma einhver stór umskifti í lífi lians,
— ef til vdll hafði það að geyma upplýsingar, sem
breyttu öllum skoðunum hans, siðvenjum og áform-
unij
FORLAGALEIKURINN 259
Höndin nötraði og skalf, þegar hann loksins tók
þennan dularfulla böggul og opnaði hann.
það fyrsta, sem liann las, var eítirfylgjandi vott-
orð :
“Hinn 29. marz, árið 18 ..., hefir undirritaður,
samkvæmt öllum lögskipuðum venjum, gefið saman í
hjónaband hávelborinn herra gred'fa Claes Henrik
Stjernekrans í öðinsvík í Wermalandi og jónafrú
Ágústu Friðriku, dóttur garðyrkjumannsins Jóhanns
Jóhannssonar í G.... sókn, W.... stifti, sem samkvæmt
bedðni er hér með vottað.
G.... prestssetri, 23. marz 18...
Gustav Ilultberg, sóknarprestur”.
Móritz ýmist roðnaði eða fölnaði, þegar hanu
las þetta vígsluvottorð. “Stjernekrans í öðinsvík”,
tautaði liann við sjálfan sig. ,lþaö er engum efa
bundiið..... Eg er bróðir þess manns, sem deyddi
móður mína — sína eigin stjúpu — þess manns, sem
ég hefi þreskt fyrir gegn lágu kaupi, og á hvers land-
eign ég hefi í æsku átt beima í lélegum kofa..... C,
i'orlög, forlög. Enuþá einn a£ dutlungum ykkar”.
“lín ég verð að lesa meira”.
Næsta skjalið, sem Móritz leit á, var skírnar-
vottorð hans sjálfs, undirritað af sama presti og
staðfiest af tvedm bændum í sókn þeirri, sem móðir
hans var fædd í, sunnarliega í Svíþjóð.
“Eg get þá nær ssm er sannað, að ég sé Stjerne-
krans greifi”, sagði Móritz við sjálfan sig, “ég cr
fæddur til að vera einn þessara höfðingja, sem ég
sór að hata óafmáanLega, þegar ég var barn, .........
hamángjan góða, það er ednkennilegt”.
Nú var að eins eitt skjal eftir, en það var nokk-
uð stórt. Móritz opnaði það og las :
260 SÖGUSAFN HEIMSKRINGLU
“ Móritz, sonur minn. Ef þessi skjöl komast
nokkurntíma í þínar hendur, þá eru þau kveðja föður
þíns frá heiinkyntium dauðans, því ef ég lifi þá stund
sem þér ber að þekkja innihald þoirra, þá eru þau
óþörf, því þá get ég sjálfur sagt þér frá því, sem í
þau er skriíað.
“ En þar eð dagar lifsins eru stundum stuttir og
óákveðnir, þá ætla ég að skilja eftir í geymslu móð-
ur þinnar þcssar up'plýsingar um samband okkar,
setn ég álít skyldu mína að fræða þig um.
“ Lestu þá, til að byrja með, þessa stuttu lýs-
ingu á því sem skeði áður en þú fædddst.
“ Ég hafði verið giftur áður en ég sá móður
þína. Fyrri kona mín var dáin, en með lienni átti
ég einn son. Hann færði mér sorg og óánægju.
Uppalinn við allsnægtir og sjálfræði, dekrað við aí
ástríkri en kjarklausri móður, tældur af umgengni
falsks oh kærulauss vinar, sem skemti sér við að
eitra hugsauár unglingsins, stóð hann brátt á barmi
glötunarinnar, sem ég reyndi árangurslaust að hrifa
liann frá. Hann trássaðist við aðvörunum mínum,
sýndi skipunum minum óhlýðni og fyrirlitndngu.
Skemtandr voru hans æðsta góða. Æðsta ósk haus
vár sú, að ná í auð þann, sem ég átti, til þess að
geta óhindrað fleygt sér ú faðm nautnanna.
“ Eg var neyddur til, að geía þér þess lýsingu
af eldra syni mínum, svo að þú getir skilið, hvers
vegna ég hefi veitt þér það uppeldi, sem þú hefir
fengið.
“ Undir eins eftir dauða fyrri konu minnar, ferð-
aðist iég um suðurhluta Svíþjóðar. Eg gladdist af
því, að vera intvan um almvtgann, dylja stöðu mína
og auð, klæðast skramtlajusum fötutn og taJca þátt i
saklausu sveitagleðinni, sem unglingarnir áttu með
scr á sunnudagskvöldutn. Engatin grunaði, ltver ég
var, enginn vissi, að ríkur og mikilsvirtur aðalsmað-
FORLAGALEIKURINN 261
ur duldist undir grófgerða fatnaðinum, sem ég klaedd-
ist, þar sem ég sat á meðal verkamannanna og reykti
í krítarpípu, eða tók þátt í damsinum kringum vor-
gleðisúluna með æskulýðnum. Eg óerðaðist um-
kring og undir annarlegu nafnd, var af sutnum álit-
inn listamaður og af öðrum skikkanlegur iðnaðar-
maður, sem leitaði að vinnu.
“Ég lofaði þeim að halda hvað þeár vildu. Heil-
næma sveitalífið átti við mig, ég var oröinn þreytt-
ur á vonda loftinu í borgunum og glíngrinu í gest-
gjaf i húsunum.
“ A þessu ferðalagi kom ég eitt kvöld í miðjum
juní til G.... sóknar, eitt af íegurstu landsplássunum,
sem til er í övíþjóð. Sóknarpresturinni hafði verið
félagi minni við háskólann. Við vorura góðir vinir
um það leyti, sem við stunduðuin nám í Uppsölum,
°g þó ég hefði ekki séð hann í mörg ár, bjóst ég
við að finna santa traustið og trygðina hjá honutn
og til forna.
“ fig fór þess viegna beina leið til prestssetursins.
Vinur minn, sem var ekkjumaður og barnlaus, veitti
mér hinar alúðlegustu viðtökur. Eg sagði hontim
frá, að ég vildi ekki láta vita hver ég var, og hverja
ánœgju ég befði af því, að rangla um á meðal al-
mcmtings, íaka þátt í skemtunum hans, kynnast sið-
um hans, venjutn og heimilislífi.
“ Ég skal þegja yfir þinni sönnu stöðu” sagði
vinur minn. brosandi, “en nú verður þú að dvelja hja
mér fá.edna daga. Við skultim ferðast um þetta
fagra hérað, og svo verðurðu með við Jónsmessu
dansdnn hérna. Ilefixðu nokkuð á móti því?"
“ Mér líkaði uppástunigan vel og lofaði að vTer.t
kyr að minsta kosti frant' yfir Jónsmessuna.
“ Á Jónsmessukvöld kom unga fólkið í héraðinu
saman í hátíðabúningi sínum á grænu völlunum. —-