Heimskringla - 08.09.1910, Page 2
2 Blft WINNIPEG, 8. SEPT. 1910.
HEIMSJUINGLA
______
Heimskrmgia
Published every Thursday by The
Verö blaösins f Canada og Bandar
fí.00 nm árift (fyrir fram borqrafi).
Bent til Islands $2.U) (fyrir fram
borgaö af kaupendum blaösins hér$1.50.)
B. L. BALDWINSON
Editor & Manager
Office:
729 Sherbrooke Street, Winnipeg
P. O. BOX 3083. Talsfmi 3512,
Fréttir.
— 2 f>ús. kaupamenn frá aust-!
ustu fylkjunum komu til Winnipeg
einnd agfsl.viku, frá þeim fylkjum
hafa nú komið 9 pús. manns í sum-
ar til þess að vinna að uppskerunni
1 Vestur-Canada, auk allra f>eirra
þúsunda sem komið hafa frá Ont-
ario, Alls er talið að um eða yfir
20 þús. kaupamenn hafi sókt bænda
vinnu hingað vestur á f>essu sumri
og má það teljast mikill fjöldi þeg-
ar til f>ess er tekið að uppskeran í
f>e8su fylki er miklu minni en þeg-
ar l>est gerist þó hún hinsvegar sé
tals vert betri en útlit var fyrir að
verða mumdi, fyrir nokkrum vikum.
— Col. Roosevelt hefir auglýst
srefnu sína f stjómmálum Banda-
rikjanna og skipað sér á bekk með
framsóknar mönnum Republicana-
flokksins. Stefna hans er f 18
liðum.
þús. fleiri en tekin voru á tilsvaT-
andi tfmabili f fyrra. í Júlf voru
tekin 4,260 heimilisréttarlönd, af
þeim tóku Bandaríkjamenn nálega
f>úsund, meira hluta þeirra tóku
menn frá Dakota og Minnesota.
— Nýlega var kona ein f Medi-
cine Hat, Alta dæmd í 9 mánaða
fangavist fyrir meinsæri. Hún
liafði tekið heimilisréttarland og
svarið að hún væri ekkja er hefði
fyrir fjölskyldu að sjá. En stjórn-
in komst að f>vf að hún átti mann
á lífi austur f Bandarfkjum, að hún
hafði yfirgefið hann fyrir þrem ár-
um og að eina barnið.sem þau hjón
áttu, var í umsjá föður síns. Kon- j
an var þvf hvorki ekkja nö bafði j
fyrir fjölskyldu að sjá. Bóndi
hennar kom fram í rétti, og bar
móti henni og bar henni fremur
illa sögu.
— Georg Callath, féhirðir Err-
sahasaloa í Ungverjalandi strauk
þaðan nýlega með 12 þús. dollars
af borgarfé. Hann var tekinn fast-
ur f New-York f sl. viku og verður
sendur heim til sím í f>essum mán-
uði til að standa fyrir máli sínu f>ar |
:— Séra L. S. C. Brown í Kansas
U. S., drap 2 konur f sl. viku og
svo sjálfan sig á eftir.
— I ráði er að Laureir stjórnin
láti framlengja Inter Colonial jám-
brautina frá Quebec til Toronto
með 200 miljón dollars tilkostnaði.
Vegalengdin um 500 mílur kostn-
aður því f 40,000 á mfluna.
Einhver kunningi Heimskringlu
hefir sent blaðinu eintak af “The
Prince Rupert Optimist,” dags 20.
águst sl. og sé honum þökk fyrir.
Þetta er sérstök 24 sfðu útgáfa með
myndum af mönnum húsum ofl og
er fragangur yfirleittgóður. “Fram-
fara og tækifæra útgáfa”, er eintak
þetta nefnt og með f>ví er efni rit-
sins lýst sem er lysing á Prince
Rupert borg og framförun f>ar og
gróða möguleikum. Af myndunum
að dæma er útsýni far fagurt og
hús mörg skrautleg og svo sýnir
myndin af sj.ötta stærsti að frurn-
býlingútlit sé þar ekkert. Ekki
sézt á blaðinu að neinir Islending-
ar sem þar í atkvæða stöðum, og
er það tæpast von. þvf f>areruekki
svo vér vitum nema 2 eða 3 landar,
það er leitt að hvorugur þeirra
hefir fusdið köllun hjá sér til f>ess
að rita Isl. bl(>ðunum hér, svo mik-
ið sem eina línu um bæ þann eða
landið þar umhverfis því það gæta
þeir gert, sér að kostsaðar litlu og
mundu slfkar greinar verða vel
f>egnar af lesendunum því miklum
fjölda Islendinga leikur hugur á að
fá ljósar fregnir af Btaðnum, ásig-
komulagi öllu þar, að vinnuvegum
og framfara vonum. Það er lftill
efi á að nokkrir íslendingar flýtji
þangað f nálægri framtfð og væri
þá vel ef f þeim hópi yrði einhver
sem fyndi hjá sér menningu og
nenningu til f>ess með penna að
varpa ljósr yfir bæ f>ann og ásig-
komulagið þar.
1. ) Að nema burtu öll pólitfsk á-
hrif auðfélaga landsins.
2. ) Fullkomin og fullnægjandi
opinberun á starfsaðferð allra auð-
félaga.
3) Lagabann gegn notkun á fé
auðfélaga til afskifta f stjórnmálum.
4. ) Umsjón stjórnarinnar á höf-
nðstóls myndun allra félaga sem
xeka millirfkjastarf.
5. ) Að stjórnendur og ráðsmenn
auðfélaga beri persónulega glæpa
ábyrgð gerða sinna.
6. ) Aukið vald þeirra nefnda eða
stjórnardeilda sem eiga að hafa
tilsjón með auðfélögum og milli-
ríkja verzlun.
7. ) Endurskoðun eða breyting
tolllaganna samkvæmt tillögum sér-
fræðinganefndar sem stjórnin setji
til að íhuga þau mál.
8. ) Stigbreytilegir inntektaskatt-
ar og dánarbússkattar.
9. ) Endurskipun á fjármálum
landsins á þann hátt að komið verði
f veg fyrir það hræðsluæði sem
grípur þjóðina á ýmsum tímum út
af fjármálum hennar.
10. ) Að nota þjóðarauðæfin til
þarfa alls fólksins.
11. )Viðhald nægilega mikils land-
og sjóhers til þess að tryggja frið
við aðrar Þjóðir,
12. )Að auka starfssvið akuryrkju-
máladeildarinnar bæði f alríkinu og
í hinum ýmsu sérstöku rfk,jum og
að byggja Búnaðarskóla og til-
xaunastöðvar er fjalla um allar
starfsgreinir sem landbúnaði fylgja
13. ) Að gera ákvæði um vinnu-
samninga og vinnuskilyrði með
vinnulaunalöggjöf og löggjöf er
takmarki vinnu barna og kvenna,
og ákvæði um strangari tilsjón
með hreinlæti á vinnustofum og
umbætur á öllum útbúnaði til varn-
-ar meiðslum á verkamönnum áverk-
stæðuin og við vöruflutninga yfir
alt ríkið.
14. ) Akveðin skiftingá valdi sér-
stakra rfkja og alríkisins.
15. ) Akvæði um útnefningafundi,
í sambandi við kosningasvika lögin.
16. ) Að auglýsa gjafir til kosn-
ingasjóðs ekki aðeins fyrir kosnig-
ar, heldur einnig að þeim afstöðn-
um.
17. ) Að reknir séu úr þjónustu
rfkisins allir óhæfir og svikulir
þjónar.
18. ) Bann gegn þvf að rfkisf>jón-
ar veiti milliríkjaverzlunarfélögum
mokkra þjónustu eða að þeir þyggi
laun frá þeim.
Öllu þessu vill Koosevelt koma f
framkvæmd og að pvf kveðst hann
setla að vinna af öllum mætti.
— 33,416 heimilisréttarlönd hafa
verið tekin 1 vestur Canada á fyrstu I
6 mánuðum þessa árs, f>að eru 11
— Þeir Bryan og Roosevelt hafa
báðir auglýst að þeir ætli ekki að
sækja um forsetaembættið í Banda-
rfkjunum við næstu forsetakosn-
ingar En þð eru mikil líkindi til
f>ess að Roosevelt komist ekki hjá
að sækja og að hann verði næsti
forseti Bandarfkja.
— Fyrir 35 árum var fbúatala
Toronto borgar 70 f>ús., nú er hún
370 f>ús. manns
— Gæslumenn á vitfyrringahæl-
inu 1 Quebec eru um f>essar mund-
ir fyrir rétti kærðir um grimdar-
lega meðferð á sjúklingunum. Einu
sjúklinganna hefir dáið af barsmfði
gæslumanna. Við líkskoðnnina
kom í ljós að 7 rif voru brotin og
að eitt brotið hafði rekist inn í
lungað. Aðrir sjúklingar hafa og
verið sfór meiddir af þrælum þess-
um, sem nú eru sakaðir um morð.
— í ráði er að lyfta Bandarfkja
herskipinu „Main”, sem sprakk 1
Havana höfn og sökk þar fyrir 12
árum. O. Rourke verkfraiðinga-
félagið hefir gert Bandarfkjastjórn
tilboð um að taka að sér verkið.
Formaður þess félags segir vel mega
lyfta skipinu fyrir það fé 8300,000,
sem Cengress veitti til þess. Mað
þvl að Bandaríkjast jórnin hjftlpi til
með þvf að leggja til gufudráttar.
báta og menn og aðra hjálp. Taft
forseti hefir rætt mál f>etta við fé-
lagið og hefir stefnt formanni þess
á sinn fund f lok þessa mánaðar f
þeirri von að geta f>á komist að á-
kveðnum samningum við hann.
Taft er sérlega ant um að verkinu
geti orðið hraðað svo að hægt sé
að sigla skipinu inn á liöfn 1 Banda
rfkjunum á Nýársdag n. k. og vcrði
þá skipið einskonar nýársgjöf ti!
Bandarfkjaþjóðarinnar.
— “Spaulding,” nýjasta lierskip
Bandaríkjanna, hefir reynst a3
vera hraSskreiðasta skip í heitni;
fer 32 mílur á kl. stund og getur
aukiö þann hraða um 'eina mílu á
kl. stund ef þörf gerist. Skipið er
ætlast til að spilla tundþrbátum
óvinanna í Iiernaði. það brennur
olíu í stað kola.
— Iloldsveikiu, sem að þessum
tíma hefir reynst ósigrandí vtð-
fangsefni læknisfræðinnar er nú í
þann veg að blíða ósigur fyrir vís-
indalegum rannsóknum.
Úr bænum
Lesendur ag velunnarar Heims- j
kringlu eru beðnir að taka eftir j
T. Baton Co. aug'lýsingunni í j
þessu blaði, og að skrifa sem allra
flostir og sem allra fyrst eftir
gjaia bók félagsins. Með því
vinna þeir það tvent að fá bókina
og láta felagiið sjá að Heámskring-
la er lesin. Getið blaðsins er þér
skrjfið.
Svo hafa sakir jafnast með Múr-
steinsleggjurun og bygginga sam-
kundunni hér í borg að Múrsteins
leggjarar, sem verið höfðu atvinnu
lausir 1 sl. 1 vikur, tóku aftur ti
starfa á mánudagiu var.
Herra Jóhannes Einarson, frá
Lögberg, P.O. Sask. var hér í borg
1 sl. viku að selja gripi. Hann
sagði nýlátin, Arngrím Kristján-
son bónda í Thingvalla bygð, einn
af elstu ísl. bændum þar. Hann
var fimtugur að alðri og lætur eftir
sig ekkju og 3 syni.Akra segir hann
þar góða vestra og von um mikla
uppskeru. Smjörgerðarhúsið í
Churchbridge sem er bænda eign,
hefir á 3 mánuðum f sumar fram-
leitt yfir 15 þús. pund á mánuði og
er enþá starfandi. I júnf og júll
var bændum borgað 20c fyrirlivert
pund af smjörtitu í rjómanum þeg-
ar rjómin var sóktur heim til þeir-
ra en 22c. pd. til hinna sem fluttu
rjóman sjálfií að smjörgerðarbús-
inu þetta smjörgerðarhús hlaut f
sumar á Iðnaðarsýningunni hör í
Winnipeg Gull Medalfu fyrirbesta
smjör sem sýnt var, sömuleiðis
diploma og tvö fyrstu verðlaun.
Mrs. J. Péturson, frá Elfros,
Sask, sem hér hefir dvalið 6 vikna
tíma og gekk hér undir uppskurð
hjá Dr. Brandson fór heimleiðis í
sl, viku —heil-heilsu.
Herra Jóhannes Gillis, frá Vita,
j P.O. Man, var hér í borg í sl. viku
| og lét vel af ástandinu og uppskeru
liorfum f bygð sinni. Hann kvað
j Bandarlkja auðmenn hafa nýlega
i sétt á fót afar mikið verkstæði f
: Vita, til þess að reka þar algerlega
| nýja attvinnugrein. En hún er sú,
að vinna upp alt það nálgresi sem
vex þar í fenum og á votlendi f
grend við Roseau Ave. og gera úr
bindara tvinna og dýra mottur og
annað þess háttar, málgresi þetta
hefir engum áður hugkvæmst aó
til nokkurs yrði notað. En nú er
sýnt að það er auðsuppspretta
þegar réttilega er notað. Gras
þetta er sfvalt, stinnt ogoddarþess
fram mjóir eins og nálar, það vex
frá 2 til 4 feta hátt og er vfðast þar
sem flóar og votlendi eru. Mr.
Gillis sagði landgæði svo mikil þar
sýðra að hann undraðist að ekki
væri þar hvert land fyrir
löngu til ábúðar og víst taldi
hann að þess yröi ekki lángt
að bfða að landið tækist
alt upp og væri þá vel að land-
ar vorir næðu mestu af þvf.Landið
er um 60 mílur suður frá Winnipeg
og 30 mílur austur.
Frá Churchbridge voru hér á
ferð í sl. viku þeir bændur Jón
Arnason og James Johnson.
í
Safnaðarfundur Foam Lake safn-
aðar þann 17. júlí sl. fundargjöm-
ingur frá sfðasta fundi lesinn upp
og samþiktur.
Bréf frá ritara Tjaldbúðarsafnað-
ar iesið og tekið til umræðu tillaga
frá J. Einarsyni studd af G. E.
Guðmundsyni að rítara safnaðar-
ins sé falið að svara bréfi ritara
Tjaldbúðarsafnaðarins er fundur-
inn hefur nú rætt viðvfkjandi mið-
lunar umleitun kirkjufélagsins á
þann hátt að Foam Lake söfnuður
sjái sér ekki fært Bem stendur að
senda fulltrúa á fund þann er boð-
aður er f Tjaldbúðinni 3. águst
næst komandi á hmn boginn sér
söfnuður þessi ekki að miðlun geti
átt scr stað í þessu máli svo fram-
arlega sem báðar hliðar telja sann-
leikann sfn megin hvor fyrir sig,
leggurhann þvf til að stefnunum
sé haldið framvegis og málin skfrð
á siðprúðann hátt eftir göngum
hinna starfandi flokka,
Breytingartillaga frá C J.Helga-
syni studd af J, Einarsyni að öllu
úr uppástúngu J. Einarsonar eftir
orðin 3. águst næstkomandi séskpt
og í þess stað sett að þessi söfnuð-
ur álfti æskilegt að samkomulag
kæmist á með báðum málspörtum
svo framarlega sem minnihlutinn
þarf ekki að láta af sanngjörnum
kröfum sfnum samþykt með öllum
atkvæðum.
TJppástúnga frá S. Sigurðsyni
st. af J. Einarsyni að presti sé
borguð þau umsömdu laun samþ.
Uppástúnga frá J. Einarsyni
studd af G. E, Guðmundsyni að
skrifara sé falið á hendur að birta
þennan fundsrgjöming í fslenzku
blöðunum s. þ,
G. Bildfell.
James R. Kerr, gamall hermað-
frá Englandi nýlega komin til
Canada með konu, og börn, var f
sl. viku sendur f 2 mánaða fangelsi
fyrir að berja konuna sfna, Hún
hafði beðið hann að kaupu brauð
fyrir^börn sín. En hann svaraði
með þvf að slá hana á vángan.
Dómarin kvað mann þennan vera
Jlreska hernum til vanvirðu og
hann kvast mundi sjá til þess að
har.n yrði sendur til baka til Eng-
lands þegar hann kæmi út úr fang-
elsinu. Karl bað að losast undan
fanga vist af því að hann tapaði
eftirlaunum í hernum ef bann færi
í fangelsi. En þeirri bón var ekki
sinnt.
Til bæjarins kom í síðustu viku
J. V, Austmann — Skyttan fræga.
750 manns képtu að skotspæni f
Ottawa. En svo var veður ilt
meðan þeir voru þar að þeir liefðu
ekki eins vel og í Toronto skot-
kappinu, þó vann Austmann nokk-
ur smá verðlaun þar og varð þar
jafn Lieut Blackburn, Engin
Vestanmanna gerði reglulega vel
af því veður var svo svart að tæpast
sást í markið. Austmann for til
Xiagara fossins til að skoða liann
og þókti mikið til hans koma.
Ekki var hann hrifin af
Ottawa borg. Þókti strætin mjó
og byggingar engu betri en hér
vestra að undanteknuin þinghúss.
byggingunum, sem honum þóktu
fagrar. Einnig dáðist hann að
skipalokun um þar, sem taldar eru
þær mestu sinnar tegundar í lieimi,
Nýlega er látin í Gardar bygð
N.D. Gestur Kristjánson.einhleyp-
nr maður 36 ára gamali'. Hafði
dvalið þar í bygð um nokkur ár og
var vel kyntur maður. Ekki er
þess getið hver sýki varð honum
að bana.
Iíerra Sveinn Björnson, lö<ríræð-
inigur írá Presho, SuSur Dakota,
kom.til borparinnar í þessari viku.
Ilann ætlaói í kynnisför vestur í
Saskatchewan nýlendur. Herra
Bjömson lauk lagaprófi við Há-
skóla í Indiana ríkinu á síSasta
ári.
í síðasta blaöi uröu tvær villur
í frejfngrein frá Argyle nýlendu.
1. Joseph Samuelson, átti aö vera
Danielsoni; 2. Kirkjan. að,Brú kost-
aði nær 5 þús., ekki 15 þús. dol-
lars. þetta eru lesendur beÖnir
að athuga.
Þessi mynd sýnir Winnipeg-búB.
T. EATONI69.
WINNIPEG
LIMITED
CANADA
pér getið keypt allar nauðsynjar yðar frá þess-
ari búð með lægsta verði. Sendið nafn yðar og
fáið gefins verðlistabók. Bókin er 275 blaðsíður
sýnir yður verðið á og myndir af fatnaði, mat-
reiðslu og hitunar stóm og öllum varningi sem
þér þarfnist til haust og vetrar nota.
RITIÐ NAFN YÐAR OG
NAFN ÁRITUN.......
ARITUN............
i
SUCCESS BUSINESS C0LLEGE
HORNI PORTAGE AVE. & EDMONTON ST. WINNIPEG.
Kenoir samhv. nýjustu aöferönm alskyns verzlunar fræöi og Bankastörf. Einnig
hraörkun ojr stylrítun. Betri verzlunarskóli ekki til 1 Vestur-Canada.
kenslu stofur þar finst 1 borginni. Nemendur geta byrjaö hven-
ar sem þeir óska. En kenslu tíma biliö birjaö 1. Sept í dag,
Skriíið eftir upplýsingum eða símið MAIN 1 6 6 4.
BUÐIN Á SARGENT.
UAI TÍMA SEL EG
L5 steina karlmanna vasa úr fyrir $5,00 ólik-
legt að slíkt tœkifæri haldist lengi.
Ábyrð fylgir hverju Ori.
G. TH0MAS
674 Sargent Ave.
Gull og Silfur
Smidur
Phone Sherb. 2542
|H|
WINNIPEG BUSINESS GOLLEGE.
STOFNSETT 1SS2
'Helsti hraðritunar, Stylritunar og verzlunar
skóli í Canada.
Hlaut. 1. Verðlaun á St. Louis Sýninguni fyrir
kenslu aðferð og sýnishorn vinnu.
Dag og nátt skóli
og sérstök tilsögn—Atvinna útveguð hæfum nem-
endum. Tilsögn veitt með pósti, ef óskast.
------ Skrifið oss eða Símið Main 45 --
WINNIPEG BUSINESS COLLEGE.
HORNl PORTAQE AVB. OO FORT ST. WINNIPEO, MANITOBA.
íl»jMEM|MlMl«|Ml»|M|MlMlM|M|M|M|M|MlMlMTMrMTMrMlMlMl»l«lMl«lMl«lMlMlMlMlMlM
□□□□□□
Anderson & Garland,
LÖGFRÆÐINGAR
35 Merchants Bank Building
PHONE: main 1561,
Dr. M. Hjaltason,
Oak Point, Man.