Heimskringla - 31.07.1913, Síða 7

Heimskringla - 31.07.1913, Síða 7
HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 31. JÚLl 1913. BLS. 7 Agrip af reglugjörð dm heimilisréttarlönd í C a n a d a . Norðvesturlandinu. Sérhver manneskja, sem fjöl* •kyldu hefir fyrir aö sjá, og sér- hver karlmaöur, sem oröinu er 18 lára, hefir heimilisrétt til fjóröungs lár ‘section’ af óteknu stjórnarlandi í Manitoba, Saskatchewan og Al- berta. Umsækjandinn verður sjálf- ur aö koma á landskrifstofu stjórn arinnar eða undirskrifstofu í þvf héraði. Samkvæmt umboði og með eérstökum skilyröum má faöir, móöir, sonur, dóttir, bróðir eða systir umsækjandans sækja um landið fyiir hans hönd á hvaða ekrifstofu sem er. Skyldur. — Sex mánaöa á- búö á ári og ræktun á landinu i þrjú ár. Landnemi má þó búa á landi innan 9 mílna frá heimilis- réttarlandinu, og ekki er minna en 80 ekrur og er eignar og ábúðar- jörö hans, eða föður, móður, son- ar, dóttur'bróöur eða systur hans. I vissum héruðum hefir landnem- Lnn, sem fullnægt hefir landtöku skyldum sínum, forkaupsrétt (pre- emption) að sectionarfjórðungi á- löstum við land sitt. Verð $3.00 ekran. Skvldur :—Verður að sitja 6 mánuði af ári á landinu i 8 ár frá því er heimilisréttarlandið var tekið (að þeim tíma meðtöld- um, er til þess þarf að ná eignar- bréfi á heimilisréttarlandinu), og 60 ekrur verður að yrkja auk- reitis. Landtökumaður, sem hefir þegar notað heimilisrétt sinn og getui ekki náð forkaupsrétti (pre-emtion á landi, getur keypt heimilisréttar- land í sérstökum héruðum. Verð $3.00 ekran. Skyldur : Veröið að sitja 0 mánuði á landinu á ári i þrjú ár og rækta 50 ekrur, reisa hús, $300.00 viröi. W. W. COiT, Deputy Minister of the Interior. Borgið Heimskringlu! Hyað er að ? Þarftu að hafa eitt- hvað til að lesa? Hver sá sem vill fó sér eitthvaö nýtt aö lesa 1 hverri vikn,æt i aö gerast kaupandi Heiihskringlu. — Hán færir lesendum sinum ýmiskonar nýjan fróöleik 52 sinnum á Ari fyrir aöeins $2.00. Viltu ekki vera meöl Leitréttingar og svör. Herra ritstjóri. Viltu gera svo viel, að ljá rúm í þínu lieiðraða blaði nokkrum orðum til “Áhorfanda”. Heiðraði “Ahorfandi”. Kæra þökk sendi ég þýr fyrir leiðrétting- ar þínar á vísunum eftir Sigurð Bjarnason, sem birtar eru í Lögb. nr. 21 ; ég sendi vísurnar réttar, en 3 orð hafa misprentast, og varst þú íljótari til að leiðrétta þau en ég. Hvað margar vísur þurfti að leiðrétta aí fyrri vísun- um, sést ef þær eru bornar saman við þær, sem ég sendi, og vona ég þær verði átta. Éíg vona að bræð- ur Sigurðar, sem lifa hér vestan hafs, láti til sín hej-ra, ef nokkuð er skakt í vísunum, sem ég sendi, nema þessi 3 orð : fögnuðinn, sem á að vera fögnuð inn, og hin 2 orðin, með móðudauða, sem á að vera við, og angursboði glevmdi, fvrir baði, þau hafa aflagast við stilsetninguna. Níundu vísuna, sem þú segir að ég hafi skælt og afbakað svo eng- in vísumynd sé á henni, höfum við bæði rétta. Hún var fyrst ort eins og þú hefir hana, en af því oirðið “slæddist” þótti óviðfeldið var því breytt og haít svona: streymdi, og þar af leiðandi varð að breyta seinni hendingunni líka. Mér líkaði vísan betur, þegar búið var að breyta henni, og þess vegna sendi ég hana svoleiðis ; t.d. kann ég betur við þe,gar um rigning er tal- að, að segja, að rigningin streymdi úr loftinu, en að segja slæddist. Eg vona, þegar þú ert búinn að athuga vísuna vel, að þú verðir im'r samdóma. Mér þætti vænt um, að fá að vita það ivið tækifæri. Svo kveð ég þig með vinsemd og virðing. Til Péturs Pálssonar. þú sagir, Pétur, í Hkr. nr. 37, að tildrögin til þess, að þú hafir sent mér fallegu vísuna þína séu þau, að þú hafir lesið nokkrum sinnum frumsamdar vísur eftir mig í Lögb. og að þér hafi virst sumar þeirra ofurlítið gallaðar ; svo hafi vísan til ritstj. Lögbergs komið, og þá hafir þú orðið Hug- fanginn af linnastalla kenningvmni. Mér þæt-ti fróðlegt að vita, vísur það eru í Lögb., sem þú í- myndar þór að séu frumsamdar af mér, og svo galla þeirra. Ég man bara eftir einu stefi, sem ég sendi fvr.ir en vísuna til ritstjórans^ og efast ég ekki um, að þú finnir marga galla á því. En ég vona að þú bendir mér á vísurnar, sem þú hefir fundið eftir mig, eða ímynd- ar bér að séu eftir mig, því öðru- vísi getur það ekki vörið. þetta er stefið, sem ég man eftir : 1 Dak- ota griðargömul kona. Svo segist þii hafa tekið fyrir marga rímnaflokka, eftir ýmsa höf unda, mér skylst til þess að leita að kenning í liking við linna- stalla eða -eins, en liefir hvergi fundið nema beð, bæli, ból eða dýnu, eða því líkt. það er annað- hvort, að það eru aðrir rímna- flokkar en þeir, sem ég hefi yfir- farið, eða þá að ég er fundvísaði en þú. Eig hefi fundið í rimum : arma, hæð, hjall, stall, hlíð og brekku, og það finst mér mefra líkjast stall en bóli. Eg hey ætíð heyrt að or.majörð væri r-étt gulls- kennin-g, hverju nafni af jarðarteg- undum sem hún er nefnd. Og því til sönnunar, að fyrri tíð-ar skáld og hagyrðingar hafa álitið þ-að ré-tt vera, sendi ég íá-einar vísur, og um leið afsala ég mér þeim h-eiðri., að linnastalla kenningin sé nj'gervingur uppfundinn af m-ér. því sannleikurinn er sagna beztur. ' Eftirfarandi vísa er í Fertrams- rimum eftir S. Breiðfjörð : • Illir sitjá elds við glóð, en orma þvita niður tók að brvtja trölla þjóð. Trúi é.g þryti friður. þviti er steinn, orm-a-ste-inn : gullskenningin. þessi vísa er í Bæringsrímum eftir Sigurð Bjarnason : Bæring gæðum býtti þjóð, bezt á svæði virtur, hesta og klæði gaf hann góð gargans liæða mörgum rjóð. Gargan ormsheiti, ormahæð. þyssi er eftir hann líka í rím- um aí Píramus og Tispi : Eik vill finna auðgrund sinp, á sem minnast gjörði, og fá þar sinnis fögnuðinn fróns hjá linna njörði. þessi vísa er byrjun á ljóðabréfi eftir hann : Lag hið fríða skarta skil, Skaga lýðis geymir til, daga víðis bjarta hil brag að smíða þér í vil. Lj'ðir : ormur, ormaskagi. Ekki man ég í hvaða rímum þessi vísa er : Linna hjalla hirðir snjall í rómu lætur falla sóta sveit, sundur alla fylking skdt. Ekki man ég með vissu, hvort þessi vísa er í rímum af Sigurði Turnara : Snjallann inni ófeiminn einn hjá tvinna jörðu, stalla linna lárviðinn / leiðir finna -gjörðu. þessar vísur eru eftir Sölva Sölvason, sem eitt sinn lifði á Ilallson, N. Dak.: Vinnur drjúgum la-ga ljóð liunabrúar tiggi, kvinnum trúi ég mýkji móð minn Jósúa Siggi. Eftirfarandi tvær vísur eru eftir Agnar Jónsson á Illugastöðum, dótturson G. Ketilssonar ; Vekur fríðan fræðasöng, frekar blíðu kjörin, dreka (hlíðin) hæðaspöng hrekur kvíða svörin. (Dreki: ormur ; ormahæða-spöng — stúlkukenning). Fjalla g-yllir hringa hér, halla snilli sem að ber ; kallast illar auðgrundir allar spilla fyrir þér. (Hringur: ormsheiti ; ormafjall: gullsk-enning). Eftirfarandi vísa er fvrir mörg- um árum ort af laglega hagorðum bónda hér vestanhafs, en af því hann fer dult með ljóðagerð sína, vil ég ekki nafngr-eina hann : Gleður lýði björt á brá bráins hliðin stalla. Ekki stríða Önnii má, er það prýði valla. E-g man ekki eftir livern þessi vísa er : Lista —. banga—lítinn braginn linnadranga fvrir hlín, firna lang-a föstudaginn fór hún Manga vina þín. (Hlín er evjar-heiti). E-g kann margar vísvir þessum líkar bæði vir rímum og alþýðu- kve-ðskap. En þetta ætti að nægja til að sýna Pétri, að fleira er haft en ormaból og því líkt í guljs- kenningár. Svo ætla ég ekki að spjalla við liann framar. Ekki ætla ég nvi að biðja Hkr. um mikið rúm fvrir svar til J.J. D. Eg er helzt til mikið búin að níðast á góðvild og gre-iðvikni rit- st-jórans, sem ekki einungis hefir bæði fljótt og v-el léð riim í Hkr. þeim línum, sem ég hefi sent hon- um, heldur líka t-il mrnii leiðrétt stafsetningu -mína, sem er í rn-eira lagi ábótavant. Fvrir hvotttveggja sendi év honum hughlýjar þakkir. Til J. J. Daníelssonar. Ekki finn ég neina hvöt hjá mér til að þ-akka þér fyrir lesturinn eða gæðin, en til þess að við skiljr um ekki svo að skiftum, að ég þákki þér ekkert, vil ég senda þér þökk fyrir ský-ring þína á visunni “Ertvx systir Sigurðar”. það voru svo ma'rgir Sigurðar á 19. öldinni, sem færðu sitt frostaf-ar fram á svið skáldskaparíns, eins og þú skýrir það, og þeir af þei-m, sem á lífi eru, lialda því ’áfram enn. það er ekki hægt fyrir mig að vita við hvern þeirra þú átt, því eins og þú skilur ge-t ég ekki verið svstir þeirra allra, nema frá Adam, og von-a því að þú afsakir, þó ég ekki svari spurningu þinni. Eíg vissi vel hvað þú meintir, þen-ar þú sagf%r að ég þxettist vita betur en þeir G.K. og B.J., en ég hafði ástæðu til að rengja það, sem þeir sögðu, og þig líká. þér ftnst að ég hafi verið ill viö þig og h-eldur ég hafi reiðst þér. En svo var ekki. Mér finst eg hafi verið þér góð. Mér ofbauð, hvað þix barst h-iklaust fram ó- sannindi, og ætlaði að reyna að vekja hjá þér meðvitund vxm það. Sá er vinur, er til vamms segir. En nú síðan ég las síðustu -grein- ina f-rá þér til mín í H(i r., er ég vonlaus um, að mér takist það, og ætla mér því ekki að s-egja meir við þig nxi eða framvegis ; ne-ma eeina vísu vil ég senda þér að skilnaði, eftir Sigurö Bjarna- son. Hún er svona : Sem kristallus saivnleikann sj.á m-enn allan gagnskærann. það er fall að flekka liann og fly-tja galli blándaðan. Að endingu bið ég lesendur Hkr. að fyrirge-fa, hve mikið rúm ég hefi tekið upp i blaöinu f-rá öðru skemtilegra. Júlí 16. 1913. Gamla Dakota-konan. SHINGLE BLACK Kolsvartur, vatnshéldur ------------------------- þakspóns J 11 u r, s e m glansar enn meira við sólarhitann. Aðeins 50c gallónan í tunnunni. Kaupið það. — „ ShinglesQte/, Málara Creosotc —Tilhúið að blandast f alskonar liti,—40c gailónan f tunnunni. Mál os litir alskonar, og ódýrara en —-----—^--------HEILDSÖLUVERÐ FYRIR PEN- INGA ÚT I HÖND. Skrifið, símið eða finnið oss að máli,— CARBON OIL WORKS, LTD. 66 KING STREET WINNIPEG TALS. GARRY »10 THORSTEINSON BRO’S. & CO. BTGGINGAMENN OG FASTEIGNASALAR. Vér byggjum og seljum vönduð og góð hús og all- ar tegundir af byggingum, og seljum lóðir og Iönd, útvegum lán á byggingar og lönd og eldtrjgg-juim hús og stórbyggingar. Vér skiftum bæjareignum fyrir bújarðir, og bújörðum fyrir bæjareignir. Vér óskum, að Islendingar tali við okkur munnlega, bréfiega eða gegnum síma. 815-817 Somerset Bldg., (næsta bygging austan við Eaton). SKRIFSoFU SIMI MAIN 2892. HEIMILIS SIMI GARY 738. WM. BOND High Class Merchant Tailor Aðeins beztu efni á boðstólum. Verknaður og snið eftir nýjustu tízku. — VERÐ SANNGJARNT. Verkstæði : Room 7 McLean Block 530 Main Street )J-»-f-»-fj»'F-*-F-»-F-»-f-»-F-»F-»-fA-»'+-»-F-»-f-»-f-»-f-»-F-«-e»-f-»-f-»-f-»-f}£ ISJALFSTÆTT HEIMILII f + jafn ódýrt og útkjálka bæjarlóð. NIilt loftslag. Ekkert frost t * J á vetrum, engin sumarfrost. Ekkert ónýtt land. Liggur £ f að dyrum besta markaðar. Odýr fiutningur. t f * f ♦ f ♦ f t f ♦ f ♦ X- Skilmálar: yfir fjögur ár. Sendið t ftir stórri bók mcð myndum, — ókeypis Queen Charlotte Land Go. Itd. 401-402 Confederation Life Eldg. -- Wínnipeg. PHONlf flAlN 203. l • f»f»f»-f»-f»f»ff»-f»f*f»f*f»f*f»I»f* SIÐASTA LOTASALA I c. P. R. TRANSCONA Lóðirnar eru á sama stræti og beint á móti C. P. R. eigninni. Meira en HALF ÖNNUR MILION verður kostað til þar á þessu sumri. nEDAL fjárhyggjumaöur verður áð í North Transcona. “Subdivisions” C. P. R. eigninni, en ef til vill verður byggingalóðir. Eigndr vorar eru á Springfield Highw lét byggja fyrir menn sína. það er verið þær lóðir, sem vér höfum til sölu, eru Verksmiðja Manitoba Bridge and Iron $1,000,000, og gefur fjölda manns vinnu. sem verða settar á stofn í North Transco færi, en annarstaðar í úthverfum Winnipe Rafafls-vfrár Winnipeg borgar Hggja aflið mjög ódýrt. liugsa sig um, hvernig -bezt sé að ávaxta peninga eru á markaðnum og margar hverjar mjög nálægt langt þan-gað til, að þær allár verða notaðar sem ay, beint á móti húsum þeim, sem C. P. R. félagið að smíða tvo stóra “elev-ators” fyrir C. P. R., og vel settar fyrir heimáli C. P. R. vinnumanna. Works er stutt frá og er bráðum fullger, kostar þ-etta er að eins edn af þeim mörgu v-erksmiðjum, na, sem leiðir af því, að þar er bægar um flutninigs- g-borgar. gegnum þe-tta svæði, og þar af leiðandi verður raf- Fjölda margir menn fá vinnu í North Transcoma. NORTH TRANSCONA fer óðum fram. Innan 18 mán. verða 5 til 10 þús. manns þar í þjónustu járnbrauta og annara iðnaðarstofnana, og tala bæjarbúa verður 15,000 til 25,000 manns. Hjugsið yðtir hvaða áhrif þetta hlýtur að hafa á fasteignir. Lóðir, sem nú eru aðeins 5 til 10 dollara fetið, margfaldast í verði. þeir, er kaupa, fá þannig stóran gróða löngu áður en tími er til að mæta síðustu afborgunum. — Eignir vorar eru á Springfield Road, sem er eina strætið, sem liggur beina leið til Win nipeg, frá því svæði, sem liggur norður af C. P. R. eignunum, og sem meinar að það verður aðalstræti Transcona. Allar lóðirnar eru minna en 3 “blocks” og flestar minna en 1 “block” frá Springfield Highway. Vér höfum aðeins eftir eitt hundrað lóðir til sölu. Póstið þennan miða í dag W. A. ALBERT Á CO. 708 McARTHUR BLDQ., WINNlPga Herrar; Inulagöir eru $................ Íyr9ta borgau A............. lóöir í North Transcona á $........... fetið. Pér undirgangist hér meö, að láta mig fá beztu lóðimar sem þér bafið völ á. Nafn ; ...'.................... Aritau ; ...................... Þar eð þessi laiidspilda var keypt fyrir 6 árum, en er nú í fyrsta siani á markaðin- um, þá erum vór færir um að selja þessar lóðir á HALFU VERÐT samanborið við aðrar lóðir. og ef þér berið saman verðið þá munuð þér sanufærast, Þér getið þre- faldað peninga yðar á stuttum tíma Klippið úr þennan miða og sendið til vor. Phone riain 7323 og 2736 W. A. Albert & Co. . . . Winnipeg, Man. P.O. BOX 56 708 McArthur Building Umboðsmenn fyrir eigendur Póstið þennan miða í dag W. A. ALBERT & CO. 708 MeARTHUR OLÐO., WINNIPEG Herrar; Innlagðir eru ................. fyrsta borgum á .... .......lóöir 1 North Transcona á $........... fetið, Pér undirgangist hérmeð að láta mig fá beztu lóðirnaV sem þér hafið völ á. Nafn;.......................... Aritan;........................ -■ d... v

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.