Heimskringla - 18.06.1914, Blaðsíða 2
Bls. 2
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 18. JÚNÍ 1914
FYRIRSPURN.
Hver, sem veit um utanáskrift til j
Sigurlaugar Þórarinsdóttur, sem
kom frá Akureyri á Islandi síðast-
Bðið sumar er beðinn að senda á- j
ritun hennar til:—
Miss Sveinbjörg S. Flóensdóttir,
Sinclair P.O., Man.
RÁÐSKONA ÓSKAST
á gott íslenzkt heimili í smá hæ úti
á landsbygð. Upplýsingar um
kaupgjald og annað fást með því
að skrifa til
BOX 25
LANGRUTH, MAN.
Fréttir frá Islandi.
(Vísir).
Húsavík. 13. maí.
— Bezta veður hér í dag; sunn-
anátt og hlýindi.
— I gær vildi það slys til, að skot
hljóp úr byssu og varð manni að
bana. Hann hét Jóhannes, sonur
Þorsteins bónda Bjarnasonar í
Syðri-Tungu á Tjörnesi. Var hann
á sjó með unglingspilti. Hann féll
útbyrðis um leið og skotið reið af,
og náði pilturinn honum örend-
um. Jóhannes var kvæntur fyrir
tveim árum og átti heima í Syðri-
tungu hjá föður sínum, efnilegur
maður.
™§ DOMINION BANK
Hornl Notre Dame og Sherbrooke Str.
Höfuðstóll uppb. $4,700,000.00
Varasjóður - - $5,700,000.00
Allar eignir - - $70,000,000.00
Vér ósbum eftir viðskiftumverz-
lunar manna og ábyrgumst aí gefa
þeim fullnægju. /Sparisjóðsdeild vor
er sú stærsta sem nokuur banki
hefir í borginni.
íbúendur þessa hluta borgarian-
ar óska ad skifta við stofnun sem
þeir vita að er algerlega trygg.
Nafn vort er fulltrygging óhnlt-
leika, Byrjið spari innlegg fyrir
sjálfa yður, konu yðar og börn.
C. M. DENIS0N, Ráðsmaður
Phone tíarry 3450
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ
um heimilisréttarlönd í Canada
Norðvesturlandinu.
— Lausleg frétt hefir borist hing-
aj um það, að 70 fjár hafi hrakið
fram af sjávarhömrum á bæ einum
á Sléttu og týnst. — Líklega hefir
þetta verið í Leirhöfn, en þó er það
ekki sannfrétt.
Reykjavík 9. til 13. maf.
— Prófastur er skipaður í Húna-
vatns prófastsdæmi síra Bjarni
Pálsson í Steinnesi, í stað síra Hálf-
dáns, er flutti til Sauðárkróks.
— Síra Lúðvig Knudsen á Berg-
stöðum í Svartárdal er kosinn
prestur í Breiðab’ólsstaðar presta-
kalli með öllum greiddum atkvæð-
um. Aðrir ekki í kjöri.
— Dr. Guðm. Finnbogason og
ungfrú Laufey Vilhjálmsdóttir
kenslukona oru gefin saman heima
að Rauðá í gær af Þórhalli bisk-
upi Bjarnarsyni, föðurbróður brúð-
arinnar. Þau nýju hjónin fóru til
útlanda í gær með Botníu. Vísir
óskar þeim til hamingju.
— Skallagrímur kom inn í gær;
hafði fiskað 70 þúsund.
— í Hafnarfirði er ágætur afli, oft
30 kr. hlutur á dag að sögn.
Sérhver manneskja, sem fjölskyldu
hefir fyrir aö sjá, og sérhver karlmaö-
ur, sem ortSin «r 18 ára, hefir heimilis-
rétt til fiórtfun^s úr ‘section' af óteknu
■tjórnarlandi 1 Manitobe, Saskatche-
wan og Alberta. Umsækjandinn vert5-
ur sjálfur at5 koma á landskrifstofu
■tJórnarinnar et5a undirskrifstofu í því
herat5i. Samkvæmt umbot5i og metJ
•érstökum skilyrt5um má fat5ir, mót5ir,
sonur, dóttir, brótSur et5a systir um-
•ækjandans swkja um landit5 fyrir
hans hönd á hvat5a skrifstofu sem er.
Skyldur.—Sex mánatSa ábút5 á ári og
ræktun á landinu í þrjú ár. Landnemi
má þó búa á landi innan 9 mílna frá
leimilisréttarlandinu, og ekki er minna
en 80 ekrur og er eignar og ábútJar-
Jört5 hans, et5a föt5ur, mót5ur, sonar,
dóttur brót5ur et5a systur hans.
1 vissum hérut5um hefur landnemnn,
■em fullnwgt hefir landtöku skildum
■ínum, forkaupsrétt (pre-emption) aV
■ectionarfjórt5ungi áfóstum vit5 land
■itt. Vert5 $3.00 ekran. Skyldur:—
VertJur at5 aitja O mftnut51 af ftrl ft
landínu í 3 ár frá því er heimilisréttar-
landit5 var tekit5 (at5 þeim tíma met5-
ttfldum, er til þess þarf at5 ná eignar-
hréfi á heimilisréttarlandinu), og 50
•krur vert5ur at5 yrkja aukreitis.
Landtökumaöur, sem hefir þegar
notatS heimilisrétt sinn og getur ekkl
■át5 forkaupsrétti (pre-emption) á
landi, getur keypt heimilisréttarland
I •érstökum hérut5um. Vert5 $3.00 ek-
ran. Skyldur—Vert5it5 at5 sitja 6 mán-
ut5i á landinu á ári í 3 ár og rækta 50
r«isa hús $300.00 virt5i.
W. W. CORY,
Deputy Minister of the Interior.
SHERWIN - WILLIAMS •*
P
AINT
fyrir alskonar
húsmálningu.
!) Prýðingar-tfmi nálgast nú.
• • Dálftið af 8herwin-Williams
|) húsmáli getur prýtt húsið yð-
.. ar ntan og innan. — B rú k i ð
* • ekker annað mál en f>etta. —
S.-W. húsmálið málar mest,
enclist lengur, og er áferðar-
fegurra en nokkurt annað hús
mál sem búið er til. — Komið
“ inn og skoðið litarspjaldið,—
J CAMER0N & CARSCADDEN $
QUALITY HARDWARE
Wynyard, - Sask. í
LOKUÐUM TILBOÐUM árituTSum tll-
undírskrifatSs, og merkt “Tender for 1
Supplylng Coal for the Dominion
Buildings”, vertSur veltt móttaka á
skrifstofu undirritatSs, þar til kl. 4. e.h.
mánudaginn, 6. júlí, 1914, for the suppiy
of Coal for the Public Buildings
throughout the Dominion.
Up’.xlrættir, skýr.iiir og atSrar upp.
lýsingar, einnig eytSiblöB fyrir tilboB,
má fá á skrifstofu undirritaBs og um-
sjónarmönnum hinna ýmsu stjórnar
bygginga í Canada.
Engin tilboB verBa tekin til greina
nema þau séu á þar til prentuBum
eyBublóBum og meS elgln handar und-
Irskrift þess sem tilboSiS gjörlr, sömu-
leiBjs áritun hans og ISnaSargrein.
ViBurkend bankaávísun fyrir 10 p.e.
af upphæB þeirri sem tilboBiB sýnlr,
og borganleg tii Honourable The Min-
ister of Pubiic Works, verBur aB fylgja
hverju tilboBi, þeirri upphæS tapar svo
umsækjandi ef hann neitar aB standa
viB tilboSiS, sé þess krafist, eBa á
annan hátt ekki uppfyllir þær skyldur
sem tilboBiS bindur hann til. Ef til-
boBinu er hafnaS verBur ávísunin send !
hiutaBeigenda.
Ekki nauBsynlegt aB lægsta eSa
nokkru tilboSi sé teklS.
R. C. DESROCHERS.
_ . ritari.
Department of Public Works,
Ottawa, 2. júní, 1914
No. 38 |
— Botnía kom til Leith í morg-
un.
— Njörður kom í gær með 30
| þúsund.
— Þilskipin hafa verið að koma
inn þessa dagana; hafa fiskað mis-
jafnt, enda iil veðrátta á vertíð-
inni.
— Bragi kom í nótt, vel fiskaður.
— Hödd kom í nótt hlaðin, vest-
an úr jökuldjúpi.
— Dansk-Islandsk Handedstiden-
de heitir blað, sem byrjað er að
koma út í Kaupmannahöfn, og er
Sig. Johansen, fyrrum kaupmaður
á Seyðisfirði, ritstjóri þess. Blaðið
er skrifað alt á dönsku, en í ráði
þó, að hafa það að einhverju leyti
á íslenzku síðar meir. Það er í broti
á stærð við Vísi og mun eiga að
koma út einu sinni í viku. Árgang-
urinn kostar hér 4 kr.
— Mál dæmd í landsyfirdómi:
Árið 1910 voru 50 mál dæmd þar;
þar af 37 einkamál, 10 sakamál og
3 almenn lögregiumái. — Árið 1911
I voru málin 45; 36 einkamál, 7 saka-
j mál og 2 almenn lögreglumál. Árið
j sem leið voru málin 31; 26 einka-
I mál og 5 sakamál.
j
— Jón ögmundsson, sá er hestin-
j um stal, hefir verið sendur á Klepp.
J Þykir ólíklegt, að hann sé með
! réttu ráði og á Þórður nú að rann-
i saka hann.
— Sýning hefir verið undanfarna
í daga í barnaskóia Reykjavíkur. Er
þar sýnt hannyrðir teikningar og
smíðar barnanna eftir veturinn,
svo og skólaeldhúsið. Sýningin er
; í þrem stofum í suðurálmu hússins
og svo í eldhúsinu. Það er vel þess
vert, að líta inn á sýningu þessa
og ekki ætti neitt foreldri, sem á
börn í skólanum, að láta undir
höfuð leggjast, að sjá vinnu barna
sinna; það er svo uppörfandi fyrir
börnin, þegar verkum þeirra er
sint. — Hér getur að iíta útsaum
eftir börn frá 7 ára aldri; prjón,
kross-saum og ýmiskonar hannyrð-
ir, einkar nett. Svo eru teikningar
og málverk barna á ýmsum aldri
og smíðar þeirra á tré, raunar ekki
margbrotnar, en snyrtilegar. — Á-
nægjulegast er þó að líta inn í eld-
húsið, þar sem léttfættar smámeyj-
ar eru að matargjörðinni, og þjóta
fram og aftur við vinnu sína. Mat-
urinn sýnist ágætur. Hver mey hef-
ir sitt ákveðið starf og ekkert rekst
á. Þessu virðist prýðilega stjórnað.
— Landkortin, þessi góðkunnu
frá herforingjaráðinu hafa nú bæzt
við 13 talsins; mest úr Barða-
strandarsýsiu og suðurhluta
Strandasýslu. Eást hjá Morten Han-
sen.
— Merkjastöð fyrir skip hefir ver-
ið reistá Gróttu á Seltjarnarnesi.
Eru þar höfð flaggamerki, fjarlægð-
armerki með kúlum og keilum og sí-
valningum eftir alþjóðareglum. —
Gjald fyrir hverja merkjatöku er 75
au. og að auki venjulegt símskeyta-
gjald (venjulega 70 au.).
— Áfengisaðfiutningur átti sér
stað hér í bænum nýlega svo upp-
víst varð. Höfðu næturverðir kom-
ist á snoðir um, að eitthvað óvenju- j
legt (eða venjulcgt) var á seyði og
kölluðu til Þorvald lögregluþjón.
Hann brá fljótt við og rannsakaði
málið; höfðu verið fluttar úr Sterl-
ing 11 flöskur af ákavfti og 20 af
portvíni, keypt af britanum á skip-
inu. — Seljandi var sektaður um
500 krónur, kaupandi um 250 og
flutningsmaður um 133 kr.
# * *
"NONNI”,
hin ágæta saga síra Jóns Sveinsson-
ar, hefir selst mjög vel meðal þýzku-
mælandi þjóða (Þýzkaland, Austur
ríki og Sviss að nokkru), og í Baj-
ern er jafnvel f ráði, að hún verði
keypt handa öllum skólabókasöfn-
um ríkisins.
Hvarvetna, þar sem bókarinnar
er getið í blöðum, er lokið á hana
hinu mesta lofsorði, og einn merk-
asti höfundur á þýzka tungu, Hein-
rich Federer, segir, að torvelt muni
að finna betri og meira uppörfandi
bók fyrir unglinga.
Innan skams er von á tveim nýj-
um bókum um íslenzk efni eftir
síra Jón. — Það er mikið gleðiefni
fyrir oss, að eiga svo ágætan höfund
til að kynna oss erlendis.
• * *
LAUN OPINBERRA STARFS
MANNA Á ÍSLANDI 1914.
Stjórnarráðið:
Ráðherra ................10,000
Landritari............... 6,000
Dóms- og kenslumála-skrif-
stofa, 4 starfsmenn ... 7,000
Atvinnu- og samgöngumála
skrifstofa, 4 starfsmenn .. 7,800
Fjármála skrifstofa, 4 starfs-
menn.............. ...... 7,850
Dyravörður............. 1,200
Landsféhirðir............ 3,300
Aðstoðarstúlka............. 600
Hagstofan:
2 starfsmenn............. 5,500
Landsyfirdómur:
3 dómarar.................12,300
2 skipaðir málfærslumenn.. 2,000
19 málfærslumenn aðrir.
Landsdómur:
22 aðalmenn
24 varamenn.
Bæjarfógetar 5 ........... 5,000
Borgarstjóri í Reykjavík .... 4,500
Sýslumenn 17..............51,000
Hreppstjórar*)
Umboðsmenn 7.............. 3,827
Sýslunefndarmenn 205.
Póstmeistari.............. 4,500
Póstafgreiðslumenn 45 ... 35,500
Bréfhirðingarmenn 206 .... 7,873
Landsverkfræðingar 4......12,400
Landsímastjóri ........... 5,000
Símaverkfræðingur......... 2,800
Símstjórar og aðstoðarfólk 24 26,740
# * *
STÓRA NORRÆNA SIMA-
FÉLAGIÐ.
Reikningur félags þessa yfir hag
þess árið sem leið, er nýlega út
kominn. Tekjur þess námu meira
en 10 milíónum króna, en gjöldin
rúmlega 4 milíónum. Þar af gekk
hálf þriðja milíón til starfsmanna
félagsins.
Hlutaeigendur fengu 20 prósent,
eða samtals fimm milíónir og fjög-
ur hundruð þúsundir króna.
Félag þetta er hið langmesta
gró'ðafyrirtæki í Danmörku, enda
dregur það undir sig fé úr mörg-
um áttum. Jafnvel Islendingar fara
ekki með öilu varhluta af því, að
auðga pyngju þess.
Hlutaféð er 27 milíónir kr. í vara-
sjóði á félagið 43 milíónir og í öðr-
um sjóðum rúmar 9 milíónir. Eign
þess í símum er talin í bókum þess
30 milíón króna virði og í öðrum
símafélögum á það 15% milíón kr.
Erakneskir auðmenn eiga mest í
félaginu, en stjórnin er dönsk. —
Stjórnarmennirnir fá góðar 6,000
kr. á ári hver í þóknun “fyrir að
gjöra ekki neitt”, að því er Social-
Demokraten segir.
* * *
STEINOLÍUVERÐIÐ LÆKKAR.
Með Poilux komu til Fiskifélags
íslands 36 tunnur af mótor-steinolíu
— er það sýnishorn af tveim teg-
undum, og fara 2 tunnur til hverr-
ar dcildar Fiskifélagsins.
Hinn ötuli forseti Fiskifélagsins
hafði 1 utanför sinni síðustu gjört
samninga til 5 ára við þrjú stein-
olíufélg um, að selja félagi sínu eins
mikla sttinolíu og meðlimir þess
þyrftu á nefndu tímabili.
Er hér um að ræða ekki ein-
göngu mótor-steinolíu, heldur og
olíu til ljósa.
Samningarnir, sem verða í aðal-
atriðunum ekki birtir, eru svo góð-
ir sem framast verður hægt að
kjósa, og er olían um 5 kr. ódýrari
á þeim höfnum, sem hún er flutt á,
en sú olía, sem menn nú kaupa.
Sömuleiðis var gjörður samning-
ur um smurninga-olíu.
Þess má geta, að Fiskifélagið fær
þessa olíu eins ódýrt og hin mikia
Hamborgar-Ameríku lína fær í stór-
kaupum, svo hér hafa náðst veru-
lega góðir samningar.
*) Launin eru 50 au. fyrir hvern
innanhreppsmann, er hýr á 5 hndr.
og 50 au. fyrir hvern, er tíundar
fult % hndr. (minstu laun 24 kr.). I
(eftir Lögréttu)
Reykjavík, 13. maí.
— Jón Magnússon pæjarfógeti er
nýorðinn kommandór af St. Ólafs-
orðunni norsku.
— Guðmundur Hannesson pró-
i fessor er nú norður í Húnavatns-
sýslu að halda fundi með kjósend-
um sínum.
— Samningar eru nú gjörðir við
hollenzkan hanka um 600 þús. kr.
lán út á skip Eimskipafélags Is-
lands.
— Austri segir, að ráðgjörð sé
áímalagning út með Seyðisfirði að
norðan, frá kaupstaðnum út að
Brimnesi.
— Danskur prentari er nýkom-
inn til Akureyrar, að prentsmiðju
Odds Björnssonar, Georg Lohmann
að nafni.
— Nokkrir menn á Akureyri eru
að koma þar upp tunnuvcrk-
smiðju, og er það þarflegt fyrirtæki.
Þar á að vinna að smíðinni með
vélum, og gjört ráð fyrir 50 þúsund
kr. stofnkostnaði. Verksmiðjan á
að geta búið til um 25 Þús. tunn-
ur á vetri.
— Með Ask fara héðan í kveld
menn til að leggja síma frá Fá-
skrúðsfirði til Djúpavogs og frá
Vopnafirði til Þórshafnar.
— Vorið hefir það sem af er verið
óvenjulega hart og kalt, og fréttir
eru að berast um fjármissi úr ýms-
um áttum, og eru þó ekki nákvæm-
ar. Hey voru iítil og vond frá síð-
astl. sumri hér sunnanlands og
vestanlands, en norðanlands var
þetta í góðu lagi. En þar hefir vet-
úrinn verið mjög harður, einkum á
norðausturhluta landsins. Þar var
enn fyrir fáum dögum alt hvítt af
gaddi. Menn héðan komu þá á
botnvörpuskipi inn til Seyðisfjarð-
ar, og sást þar varla á dökkan díl
frá hafi til fjallatinda. Sama var
sagt nýlega úr Þingeyjarsýslum og
líkt frá Akureyri; þar voru grimd-
arfrost. En síðustu dagana hefir
skift um veður og hlýnað um alt
land, svo að gaddurinn mun nú
fljótlega hverfa úr bygðum og vor-
ið hrjótast til valda.
— Hafíslaust er nú sagt kringum
alt land, hafði að eins verið hröngl
við norðausturhornið, er Askur
sneri þar aftur fyrir nokkru.
— Vinnuhjúaverðlaun hefir Bún-
aðarfélagið í ár veitt 7 karlmönn-
um og 22 kvenmönnum. Eengu
karlmenn göngustafi, en kvenmenn
skeiðar, ef ekki var annars óskað.
— Botnvörpuskpið Njörður misti
mann útbyrðis 4. þ. m. fyrir aust-
an land og druknaði hann.Hann
hét Guðhjörn Guðjónsson, frá
Bræðraborgarst. 26 hér í bænum;
24 ára.
— Rfmur af Fjalla-Eyvindi, ortar
af Magnúsi Hj. Magnússyni, eru ný-
komnar út á Isafirði.
— Norðurland frá 10. apríl segir,
að þá sé nýkominn til Akureyrar
Hartmann Ásgrímsson, kaupmað-
ur í Kolkuósi, og hafi gengið á
skíðum að heiman frá sér og til
Akureyrar á 13% kl.stund. Hann
rendi sér á skíðum niður Heljar-
daisheiði, segir blaðið, og var 10
mínútur frá efstu hrún niður á
jafnsléttu.
— MANNALÁT. Þann 25. f.m. and-
aðist á heilsuhælinu á Vífilstöðum
Einar Jónsson frá Isafirði, hróðir
Kristjáns ritstj. Vestra og beirra
systkina, fæddur á Garðsstöðum í
ögurhreppi 10. okt. 1879; greindar-
maður og framtakssamur. Var með-
al annars formaður fiskifélagsins
Græðir á ísafirði og einn helzti for-
gangsmaður þess, að félagið fékk
sér botnvörpuskip.
Annar maður af Isafirði andað-
ist hér á spítalanum 10. f. m. úr
krabbameini, Valdimar Haraldsson
skipasmiður, 46 ára, dugnaðarmað-
ur og góður smiður.
Þann 7. f.m. andaðist á Sævar-
enda í Loðmundarfirði Finnur Ein-
arsson, hóndi þar, 52 ára, greindur
maður.
Nýlega er dáinn Páll Geirmunds-
son, hóndi á Desjamýri í Borgar-
firði eystra, 66 ára.
Á Brimnesi í Seyðisfirði andaðist
17. f. m. Kristjana Sigurðardóttir,
kona Jóns Þorgrímssonar íshúss-
stjóra.
Á Grýtuhakka f Eyjafirði er ný-
lega dáinn Þorsteinn Jónsáon, iengi
bóndi þar, 81 árs.
(ísafold, 20.—23. mai).
— Það eru ófagrar sögur, sem
herast nú víðsvegar að af landinu
um hin miklu harðindi og fylgju
þeirra: skepnufeilir. — Maður einn
fór frá Akureyri laust fyrir. síðustu
mánaðamót lpndveg suður og vest-
ur til Stykkiáhólms, einhesta. Hann
kveðst hafa verið í hinum mestu
vandræðum um gistingar, ekki sín
vegna, heldur vegna hestsins. Flest-
ir bændur svo heylausir, að eigi
máttu af sjá næturtuggu handa
klárnum. Þessi maður reið á hjarni
(Niðurlag á 3. sðu)
=BLUE RIBBON TE=
er sannarlega te fyrir fólk af Öllum stigum. Sala þess um
öll lönd sannar gæöi þess.
BLUE DIBBON
TEA
Sendu þessa auglýsingu með 25 centum fyrir ELUE
RIBBON MATREIÐSLUBÓKINA.
Skrifið nafn og ut-
anáskrift greinilega.
Hin*rétta
MAQNET
sem var á hverjum markaði í Norðvesturlandinu 1913.—
MAGNET-vindan, sem er hið mesta aðdráttarafl fyrir hvern’
þann, sem hugsar sér að hafa peninga upp úr mjólkurgripum.
“MAGNET”
Cream Separator
er skilvinda, sem ekki hefur nein horn
eða króka, holur eða gálmur er megi til
vandræða verða við að hreinsa eða renna
vélinni. Aðal kostir hennar eru óhrekj-
andi, því þeir sýna hina dásamlegu ein-
feldni og lipurleika vélar þeirrar. sem er
algjörlöga rétt smíðnr, hver einn einasti,
hver einn fíngjörðasti og minsti partur
hennar.—Hún er stöðug sem kletturinn og
það er engin önnur. Hjólasambandið er einfaldara en á nokk-
nrri annari vindu og getur aldrei japlað eða jagast eins og á liinum.
Og mannlegt vit hefir aldrei getað fengið betri og fnllkcmnari
aðferð að ná seinustu smjörögninni úr mjólkinni.
Heróp vort er að fullnægja og það gjörum vér hvað sem það
kostar,— Vér getum sannað hvert einasta atriði um yfirburði
“MAGNET” á búgarði þfnum—upp á okkar eigin kostnað.
The Petrie Manufacturing Co., Ltd.
Verksmiöja og aöalskrifstofa Hamilton, Ont.
Vancouver, Calgary, Regina, Winnipeg, Hamilton, Montreal, St. John
F A R B R É F
ALEX. CALDER & SON
General Steamship Agents
Ef þér hafið í hyggju að fara til gamla landsins, þá talið við oss
eða skrifið til vor.
Vér höfum hinn fullkomnasta útbúnað í Canada
633 MAIN STREET
PHONE MAIN 3260 WINNIPEG, MAN.