Heimskringla - 18.06.1914, Blaðsíða 8

Heimskringla - 18.06.1914, Blaðsíða 8
Bls. S HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 18. JÚNÍ 1914 Þekkir þú á Piano? Þú þarft ekki ac5 þekkja á verS- lag á Píanóum til þess aS sann- færast um aS verSiS er lágt á hinum mismunandi Píanóum vorum. B. LAPIN HLUSTIÐ KONUR Nú erum vjer aöselja vorklæönað afar ódýrt. Niöorsett veröáöllu. Eg sel ykkur í alla staöi þann bezta alklæönaö fáanlegan, fyrir $35.00 til $37.50 Bezta nýtizku kvenfata stofa ViSskiftamenn eru aldrei lát- nir borga okurverS í verzlun McLean’s. Þessi velþekta verz- lun er bezt kynt í síSastl. 30 ár fyrir aS selja á bezta verSi hér í borginni. Piano frá $235 til $1500 j> v/ Vr 'i $ & O? LIMITEO' J. W. KELLY, J. R. EEDMOND, W, J. ROó’S: Einka eigendur. Wínnipeg stærsta hljódfærabúð Horn; Portage Ave. Hargrave St ÚR BÆNUM. Hkr. var afhcnt af Mrs. Margrétu Hjálmarsson, frá Akra, $50.00 gjöf til heilsuhælisins á Vífilsstöðum við Reykjavík. Gjöfin er frá Kvenfé- lagi Vídalíns-safnaðar í N.-Dakota. Þökkum vér gjöfina kærlega fyrir hælisins hönd, og skulum vér sjá um, að peningarnir komist til réttra viðtakenda það allra fyrsta. Hr. Jóhannes Einarsson, frá Churchbrigde (Lögberg P.O.), Sask. var hér á ferð í byrjun vikunnar. Segir hann góða líðan meðal fólks 1 Þingvalla bygð, en all-mikla hita undanfarandi, suraa daga nær 100 stig Fahrenheit. Grasspretta góð og akrar í bezta lagi. Hr. Guðm. GuSmundsson, frá Mary Hill, og sonur hans Björgvin komu hingað til bæjar á laugar- daginn var. Voru þeir feðgar í landtöku erindum. Engar S^rstak- ar fréttir þaðan að vestan. Hra. Jón Sigvaldason, frá íceland- lc River, kom til bæjarins á fimtu- daginn var, og taföi hér til mánu- dags. Hann er ttinefndur kjörstjóri við í hönd farandi kosningar í Gimli lcjördæmi. Nöfn þessara innffytjenda hafa fallið úr nafnaskránni í síðasta blaði, þar sem upp voru taldir þeir, scm að heimau komu þann 4. júní sl.: Páll Björnsson úr Húnavatns- sýslu. Friðrik Sigurðsson, sonur Sigurð- ar Jónssonar á Þórarinsstöðum við Seyðisfjörð. Júlíus Jóelsson, fósturson síra Björn Þorlákssonar á Dvergasteini. Hr. Sveinn Thompson, aktýgja- sali frá Selkirk, var staddur hér í bænum á föstudaginn var. Hann var f verzlunar erindura og hélt heimleiðis sama dag. Á laugardaginn var andaðist að heimili föður síns, 400 Lipton St. hér í bænum, stúikan Sigríður Soffía Gunnarsdóttir Einarssonar, nær 30 ára gömul. Banamein henn- ar var tæring. Hún var jarðsett á mánudaginn var, og fór jarðarförin fram kl. 2 e.h. Tveir albræður hinn- ar látnu eru til heimilis hér í bæn- um, og faðir og hálfsystir. Aðra hálfsystir átti hún, er býr vestur f Pipestone bygð. ,Sigrfður heitin var raesta myndarstúlka. HÓttU. Ungmennaféiag Únítara er að undirbúa skemtiíerð með skemti- ferðaskipinu “Lockport” niður að St. Andrews flóðiokunurn 4. júlí næstkomandi. Þessf ferð verður ef- laust sú langbczta sera fslendingar hér í bæ eiga völ á á þessu sumri. Ferðin niður ána 10 raflur er ein sý skemtilegasta, sera ant er að fá hér næriendis, og flóðlokurnar eru stærstu mannvirkin, se*n menn eiga nokkursstaðar kost á að sjá í Telephone Garry 1982 392 N0TRE DAME AVENUE Fimm Prósent afsláttur AUar matvörutegundir sem þið þarfnist þar á meðal ágætis kaffi sem svo margir pekkja nú, og dáðst að fyrir æ mekk og gæði. fást í matvöru búð B. Arnasonar, á horni Victor St, og Sargent Ave. Svo er aðgæzluvert að Arnason gefur 5% afalátt af doll. fyrir cash verzlun. Phone Sher. 1120 B. ARNASON gtend við Winnipeg. Ferðin verður nánar auglýst í næsta blaði. Ungmennafélag Únítara heldur næsta fund sinn fimtudagskveldið í þessari viku, 18. júní, á venjuleg- um stað og tíma. Meðlimir eru á- mintir að sækja fundinn. Næstkomandi sunnudagskveld vcrður ekki messað í Únítarakyrkj- unni, sökum kyryjuþingsins, sem þá stendur yfir. Á fundi Fyrsta lúterska safnaðar hér í bænum voru eftirfylgjandi fulltrúar kosnir á tilvonandi kyrkjuþing, er haldið verður að Gimli þann 26. þ.m.: Halldór S. Bardal, Jón J. Bíldfell, Árni Egg- ertsson og Jónas Jóhannesson. Til vara voru kosnir: S. W. Melsted, Dr. ólafur Stephensen, Guðm. Thordarson og Brynjólfur Árnason. Á miðvikudagsmorgunin var voru gefin saman f hjónaband að heimili brúðarinnar Hra. Egill J. Skjöld lyfjafræðingur frá Winnipeg og ungfrú Pálína Thorvaldsson, dóttir Stigs kaupmanns Thorvaldssonar á Akra, N.D. Brúðhjónunum óskum vér ailra framtíðar heilla í bráð og lengd. Kyrkjufélag Únítariska kyrkju- félagsins íslenzka vcrður haldið út við Lundar, dagana 19—22 þ. m. frá Únítara söfnuðinum hér, hafa þess- ir verið kosnir til þess að mæta á þinginu: Björn Petursson, ólafur Petursson, Stefán Petursson, Elín Hali, Hlaðgerður Kristjánsson, Mrs. S. B. Brynjólfsson, Friðrik Sveinsson Jóseph B. Skaptason, Stefán Á. Bjarnason. Til vara voru kosnir Gunnar J. Goodmundsson, Mrs. Magnus Peterson, Mrs. Anna Gísla- son, Gísli Magnússon, Þórður Ás- geirsson, Guðm. Ásgeirsson og Mrs. J. B. Skaptason. Á laugardagsmorguninn var kom hingað til bæjar hr. Björn H. Hjálmarsson frá Akra, N. Dak. Með honum kom móðir hans, Mrs. Mar- grét Hjálmarsson, og systkini hans. Fór hann alla leið á bifreið og var rúma 5 kiukkutíma á leiðinni. Er Það greiðari ferð, en J)ótt farið væri með járnbraut. Björn gjörir ráð fyrir, að leggja heimleiðis aftur nú í vikunni; en Mrs. Hjálmarsson tefur hér eitthvað; gjörir helzt ráð fyrir, að fara norður á sumarbú- stað systur sinnar, Mrs. Ólafar Goodman, og dvelja eitthvað hjá henni þar neðra. Gott útlit sögðu þau með uppskeruhorfur þar syðra og almenna vellíðan. Gísli Sigmundsson og Jón Thorar- insson frá Geysir P. O. ,voru hér á ferð í bænum um helgina, og fóru heimleiðis þann 17. Vellíðan og gott útlit þar neðra. Til Sölu eða Skifta “Livery, Feed og I)ray”starf raeð húsi og lóð á GiirilibHe. Ágætt tækifæri fyrir réttarj marin. Frekari atriði og upplýaingar fásl hjá George Shortreed, Gimli, eða B. N. FRASER 6Lo M Intyre ILIoídt, \Vwinif>eg Phone Main 2585 eða Sher. 4040 Hra. Þorsteinn Þorkelsson frá Oak Point var hér á ferð um síð- ustu helgi. Er hann fyrir skömmu kominn úr langferð vestan frá hafi og hafði margt og skemtilegt í íréttum að segja. Friðbjörn Sigurðsson, verslunar- maður að Becksville P. O., og Sveinn sonur hans voru hér um miðja viknna. Sprettan góð á ökrum og engi, og líðan góð þar vestra. TIL QIMLl Skemtiferð Good Templara . til Gimli Föstudaginn 26. Júní/14 Prógram dagsins sem er sameiginlega undirbúið a£ stúkunum Heklu og Skuld í Winnipeg og stúkunni Vonin í Gimli, fer f.ram í skemtigarði bæjarins. Hlaup og aðrar íþróttir byrja kl. 11 Lm. Ræðuhöld, frumsamin kvæði og söngur hefst kl. 2 e.m. stundvís- lega. Glfmur og sund eftir kl. 4. Hljóðfæraflokkur spilar við og við allan daginn. Góð verðlaun verða veitt öllum þeim er skara framúr. Farið verður með C.P.R. kl. 8.30 að morgni, og frá Gimli kl. 9 að kvöldi. Fargjald $1.10 og 55c. fyrir fullorna fyrir börn Islendingar! Fjölmennið á tilkomumesta Picnic-ið á öllu sumrinu. Fimtudaginn, 4 júní s.l. voru gefin saman að heimili séra H. W. Kahre, 26 Cobourg Ave., Miss Mabel Helen Seymour, dóttir Mrs. Elizabetar Seymour og Mr. Herbert William Kahre sonur séra Kahre. Hjóna- vixluna framkvæmdi faðir brúð- gumans. Óskar Heimskringla þess- um ungu hjónum allra heilla f fram- tíðinni. Gordon Alex Paulson og Magnea Guðrún Bergman voru gefin saman 10. júní að 259 Spence St. af séra Fr. J. Bergman. Þessum ungu og efnilegu hjónum óskar Hskr. allra framtíðarheilla. Næstkomandi Mánudags-kveld 22. hefur Bandaiag Tjaldbúðarsafnaðar sinn síð. fund fyrir sumarleyfið; verður það opin fundur, vandað prógram og seldar veitingar svo sem kaffi, Ice cream og skyr. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Ættu allir, sem tilheyra Bandalaginu að vera l)ar. Komið og fáið góðan spón af skyri og góða skemtan fyrir lítið verð. Frá Miðskólum í Minnesota rík- inu hafa þessir Islendingar útskrif- ast nú eftir mánaðarmótin síðustu: 1 Minneota, Minn. 8. júní, 1914 Ólöf S. Anderson Haraldur M. Askdal Margrét I. Johnson Anna S. Jónsson Soffía Ólafson í Duluth, Minn., 12 júní, 1914 Svava Johnson Súsan Johnson Martha Thorsteinsson Öllu þessu íslenzka námsfólki óskum vér til frægðar og frama í framtíðinni. Næstkomandi Laugardag 20sta. hefir sunnudags-skóli Tjaldbúðar safnaðar sína vanalegu sumar- skemtan í River Park. Börnin látin kjósa um hvert þau vildu heldur vera í City Park, en fleiri vildu vera í River Park. Allir, sem taka þátt í skemtaninni eru beðnir að vera við kyrkjuna klukkan eitt, er þá lagt af stað þaðan, vonandi verður margt af fullorðnu fólki í garðinum. Skemtiferð til Selkirk hafa Sunnu- dagsskólar og Ungmennafélög fyrsta lútherska safnaðar og Skjaldborg- arsafnaðar ákveðið að fara þann 20. þ.m., júní. Fargjald fram og til baka kostar 75c. fyrir fullorðna og 50c. fyrir börn 5 til 12 ára, sem ekki tiiheyra öðrum hvorum sunnudags- skólanum. En öil börn þeirra skóla beggja fara frítt. Þeir sein geta farið með aðal-hóp- num Jiurfa að vera komnir norður að St. Johns vagnstöðinni kl. 9.30— 9.45 f.m. og er sérstaklega óskað eftir, að sem allra flestir foreldrar gætu orðið börnunum samferða með aðal-hópnum. Þegar til Sel- kirk kemur verður þar til staðar sd.-skóli og Bandalag Selkirk safn- aðar, sem skemtir sér um daginn með fólkinu héðan. Margskonar skemtanir verða um hönd hafðar um daginn í skemti- Wonderland Áeæti*sýnintfrá hverjum degi—sýaingar úr LUCILLE L0VE hvern föstudag: K0MIÐ SNEMMA Sfðasta sýnlDg lir Lucille Love er sýnd kl. ío 30 að kveldinu, að eins einusinni. GÓÐ SKEMTUN X LAUGARDÖGUM garðinum í Selkirk, sem er hentug- ur og fallegur,—og verðlaun gefin þeim, sem hlutskarpastir verða. Farbréf bau sem börnin og aðrir, hafa til sölu, verða tekin gild á hverri lest sem til Selkirk fer, og frá Selkirk til baka til Winnipeg þann dag, og er búist við fólki sem vinnur aðeins til hádegis með lestinni kl. 1.30. Foreldrar barnanna eru beðnir að hafa með sér nesti handa þeim, og sjá um að þau komist á St. John stöðina á tilteknum tíma. “Ice Cream Cones” verða börnunum gefnir af skólunum. Takið börnunum og öðrum sem bjóða yður farbréf (Tickets) vel, og kaupið þau. Einnig verða þessi “Tickets” til sölu hjá H. S. Bardal á Sherbrooke Street, og B. Methú- salemssyni á Sargent Ave. Fjölmennið! og gjörið daginn á- nægjulegan fyrir börnin. Nefndin Knattleikadeild “íslenzka fálk- ans” (Falcon Club) hefir nú unnið í miðflokkki íþróttafélagsins hér í bæ — 5 knattleiki af 6, sem þeir hafa tekið þátt í. Eftir núverandi útliti að dæma, ættu þeir hæglega að geta náð hæstu mörkum í í- þróttadeild sameinuðu íþróttafé- iaganna hér. Nú eru þeir á undan öllum öðrum, — og er það vel að verið. FÆÐI OG HERBERGI. Skilvísir og reglusamir menn geta fengið fæði og húsnæði á góðu íslenzku heimili, með vægum kjör- um, $4.75 á viku, með því að snúa sér til, 568 Simcoe St. Hr. Vigfús Þórðarson, frá Hove, Man., var staddur hér í bæ um miðja viku. Alt tíðindalítið það- an að vestan. íþrótfcanefnd fyrir Islendinga- dagshátíðina er óðum að undirbúa sig fyrir leikmótin, sem þá eiga að fara fram. Verður vel til þeirra vandað. * * * Tennie-flokkiv félagsins skemtisér mæta vel á laugardagskveldið var. Auk Tennis-leikanna fóru fram veitingar, ísrjómi og fleira * * * Trúlega verða sýndar sann- íslenzkar glimur íslendingadag- inn. íslendingar úr bygðunum verða að undirbúa sig, ef þeir ekki eiga að fá skelli. Menn kunna að glíma hér og bjóða öllum út, sem þora. Æfið ykkur vel áður en á staðinn er koraið. Þegar þú þarfnast bygginga efni eða eldivið D. D. Wood & Sons. --- Limitcd ="■ - • Verzla meö Sand, möl, mulin stein, kalk stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre” plastur, brendir tígulsteinar, eldaðar pípur, sand steypu steinar, “Gips” rennu- stokkar, “Drain tile,” harö og lin kol, eldiviö og fl. SKRIFST0FA: Cor. R0SS & ARLINGTON ST. FUNDARBOÐ. Hér með au^lýsist að “Conservative Con- vention” verður haldin að Wynyard, Sask., kl. 2.30 eftir miðdag fimtudaginn þann 25. Júní í leikhúsi bæjarins. Verður þar kosin framkvæmd- arnefnd með forseta, skrifara og féhirðir og rædd flokksmál o. s. frv.. Á sama fundi verður útnefndur maður til að sækja um kosningu fyrir hönd Conservativa í Quill Plain kjördæmi við næstu fylkiskosningar, og er mjög áríðandi að sem flestir kjörstaðir kjör- dæmisins sendi fulltrúa sína á útnefningarfundinn með erindisbréf undirskrifað af forseta og skrifara þeirrar kjördeildar sem þeir eiu frá. Kiukkan 8 að kvöldinu verður opinn fundur. —Ágætir ræðumenn. ALLIR VELKOMNIR. JOHN VEUM, President, Quill Plain Conservative Association. AFMÆLISHÁTIÐ. Það er vegiegur íslenzkur siður, sem hefir lengi tíðkast heima á Fróni, að æskumennin halda upp á afmæli sín. Einsog fjölmargt ann- að háíslenzkt hefir sá siður komist hingað vestur yfir Atlantsál, og er ósjaldan tíðkaður meðal yngri kyn- slóðarinnar, sem hér er uppvaxin, en af íslenzku bergi brotin. Dæmin eru þess mörg deginum Ijósari, að æskulýðurinn íslenzki hér hefir næma og göfga jijóðernisrneðvit- und, þrátt fyrir ofurmegn enskra áhrifa á öllum sviðum. Þessi þjóð- armetnaður æskulýðsins, að heita íslendingar, og vilja bera nafnið meira en í orði, heldur og í raun og veru, lýsir sér einna bezt í því, að til er hér í Winnipeg ungmenna- félagskapur á þjóðlegum grund- velli, — félagsskapur, sem hefir sér að markmiði ötula, frjálshuga menningu, andlega sem líkamlega. Féiagið heitir Ungmennafélag Úní- tara, en er þó alls ekki einskorðað við safnaðarmeðlimi, heldur er í fé- laginu fjöldi fólks utan safnaðar. Nú fimtudagskveldið 11. júnf hélt félagið mannfagnað í minningu um 5 ára tilveru sína. Afmælishá- tíðin var haldin í samkomusal Úní- tara safnaðarins. Var þar fjöl- breytt skcmtun og góðar veitingar. Forseti félagsins, Mr Stefán Bjarnason, stýrði samkomunni og hélt afmælisræðuna; lýsti vexti og viðgangi félagsins, og gat framtfð- arvonanna: að félagið yrði bráð- þroska atgjörvis unglingur, lfkt og Magni Ásaþórs. Því næst söng söngflokkur fé- lagsins 3 lög undir stjórn hr. Brynj- ólfs Þorlákssonar, og fór söngurinn mjög vei. Þá kom síra Guðm. Árnason fram í ræðustólinn og flutti skipulega og góða ræðu um samræmislegan þroska, — samstarf huga og hand- ar, en það væri takmarkið, sem fé- lagsheildin þessi kepti að. Setti liann enska orðið “cfficiency”, sem cinkunnarorð fyrir stefnuskrá fé- lagsins. Að endaðri ræðunni söng Miss E. Hall einsöng við enskan texta. Æ>ví næst stóð hr. Skapti B. Brynjólfsson fram og flutti sköru- lega, bráðskemtilega ræðu um sam- bandið milli skáidskapar hæfileika íslondinga og ýkjur í frásögu, seM kallað væri lýgi. Fórst honum þetta svo vel, að allur salurinn bergmálaði af hlátrum áheyrenda, og var honum að vonum drjúgum kiappað lof í lófa. Þá var lesið upp blað. félagsins, er “Ar” nefnist. Var har í snoturt kvæði til þeirra lijóna Tilly og Hannesar Péturssonar. Kvæðið var eftir Eggert Árnason, bróður síra Guðmundar. Síðan lék hr. Brynjólfur Þorláks- son undurfagurt söngverk á orgel- ið. Miss Fjóla Marteinsson söng ein- söng og dáðust áheyrendurnir að söng hennar. Þegar ræðum þessum og söng var lokið, bað forseti alla að ganga niður í samkomusalinn og setjast að borðum. Og meðan fólkið gæddi sér á kaffi, ávöxtum, ísrjóma og þess háttar, skemtu Jirír landar með fiðlu-samspili. Svo fór samkoma þessi fram, og féiagið heldur inn á framtíðar- brautina stutt öflugum starfs- kröftum og ötulum, og glöðum vonum um glæsileg þroskaár. Gestur. Stúkan Skuld, No. 34 taldi við síðasta ársfjórðungs skifti 300 felaga. Þessir gegna nú embættum stúk- unnar: Æ.T.—Friðrik Björnsson, V.T.—Sigurfinnur Cain G.U.T.—Rannveig Blöndal Ritari—Guðm. Sigurjónsson F.R.—Gunnlaugur Jóhannsson Gjaldkeri—Heldi Jónsson Dróttseti—Rósa Halldórsson Kap.—Sigurborg Benson V.—Gísli Árnason U.V.—Jóliann Jóhannsson A.R.—Benedikt ólafsson A.D.—Gerða Halldórsson F.Æ.T.—Skuli Bjarnarson í sjúkranefnd stúkunnar eru: R. Tii. Ncwland, Gísli Ámason, St. Stefánsson, Helgi ólafsson, Ingi- björg Jóhannsson og Sigurbjörg Benson. Guðm. SHgurjónsson

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.