Heimskringla - 11.07.1914, Page 3

Heimskringla - 11.07.1914, Page 3
■WINNIPEG, 11. JÚLl 1914 HEIMSKRINGLA BLS. 3 11 M B U R SPÁNNÝR VÖRUFORÐI Vér afgreiöum yBur fljótt og greiBlega og gjörum yBur í fylsta máta ánægBa. SpyrjiB þá sem verzla viB oss. THE EMPIRE SASH AND DOOR CO., LIMITED... Phone Mam 2511 Henry Ave. East Winnipeg Tveir hlutir eru nauðsynlegir til þess að ná hámarki hagnaðar við smjör- ________________________________gjörð. Báðir eru þeir “búnir til í Canada”—og svo að segja við dyrnar hjá yður. Annar þessara hluta, er hið makalausa ræktaða fóður sem sérheimilegt er fyrir Vestur Iandið. Hinn er • “MAGNET” Cream Seperator “MA0NET” vélin er eins áreiBanleg og óskeikul í sinni grein eins og náttúru- öflin í sinni, er þaB þessvegna aö hún er svo tilbúin aB hún nái síBasta lóBinu af smjörfitu úr mjólkinni. Vélin er búin til í Canada af mönnum er æfilanga æfingu hafa haft viB þær smíSar. Þessi “square gear!’ kemur í veg fyrir ajlan hristinginn sem fylgir vélunum meB gamla laginu sem enn nota gorminn. HvaB hún er stöBug gjörir hana frábrugBna öllum öBrum þesskonar vélum í Vestur Canada. OrBtal vort er “gjörum alla ánægBa”—og þaö munum vér gjöra hvaB sem þaB kostar. Vér skulum yöur aB kostnaBarlausu og heima hjá yBur, sanna alla yfirburBi “MAGNET” vélarinnar yfir aörar ef þér viljiB. Thc Petric Mfg. Co., Ltd. VerksmiBja og aöalskrifstofa Hamilton, Ont. Vancouver, Calgary, Regina, Winnipeg, Bfcmilton, Montreal, St. John Fljót innheimta, með 300 útibú. FariB yfir verzlunar- bækur yBar og athugiö hve marga af skulda- nautum yBar vér getum ekki náB gegnum öll banka útibúin. ÞaB er ástæBan fyrir þvf hvaö oss gengur vel innheimtan öll. LátiB oss reyna. LOGAN AVE. OG SARGENT AVE., ÚTIBÚ A. A. WALCOT, Bankastjóri * —----------------------— ■ 4 “Breytið eins og Rómverji--- -----þegar þér eruð í Róm” En þegar þér eruö í Vesturlandinu þá fylgiö siöum vestmanna. DrekkiB BLUE DIBBÖN TEA þá fáið þér það besta te sem til er á markaðinum. Sendið auglýsingu t'essa með 25 centum til BLUE RIBBON LTD. Winnipeg, og yður verður send matreiðalubók. Er paC bezta matreiðslu bókin í Vestur Canada. Skrifið nafn og utanáskrift greinilega. Fréttir frá íslandi. Rvík, 3. júni. — 1 Sveinungavík í Þistilfirði hröpuðu 65 kindur fyrir sjóvar- hanira í hríð eftir sumarmálin. — hefði hver skepna farið, ef unglings piltur, sem var hjá fénu, hefði ekki fleygt sér flötum á hamrabrúnina, og getað með því stögvað féð. — Úr Húsavík nyrðra er Ingólfi ritað 25. mai: “Nú er loks komið hér sólskin og gott veður, og þykir mönnum mál til komið. Fénaður er enn i góðu standi og hefir hvergi drepist skepna úr hor í Þingeyjar- sýslu, það eg til veit. Aftur hafa drepist nokkrar kindur á Sléttu af óhollum þara. f sumum sveitum, einkum Núpasveit, eru enn til mikl- ar heybirgðir, en i Kelduhverfi og Húsavík eru allir að verða strá- lausir”. — Fríkyrkjusöfnuður er myndað- ur i Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, og hefir síra ólafur Stephensen i Grundarfirði verið kosinn forstöðu- maður hans og fékk sú kosning ráð- herra staðfestingu 30. f.m. ‘ — Maður féll út af vélarbáti ný- lega í önundarfirði og druknaði, Gestur Guðmundsson að nafni, sjó- maður frá Hnífsdal. — Hafís er nú mikill fyrir Vestur- landi, en þó ekki landfastur og hef- ir ekki hindrað skipaferðir. Jafnvel suður á móts við Reykjanes hefir hafís sést nýlega, en langt til hafs er hann. Af nálægð issins stafar ó- stöðugleikinn og kuldinn í veðrótt- unni. ■— Úr Stykkishólmi var Ságt i gær að skip þaðan öfluðu nú mjög vel. Af fsafirði einnig sagðor góður afli, fívík, 7. júní. — Þýzka stjórnin hefir nú ákveð- ið, að fara að dæmi Frakka og senda hingað dócent i þýzku. Mun þetta vera sérstaklega íslandsvin- inum próf. Heusler í Berlin að þakka. Til starfans er valinn fyrir næstu 2 ár ungur maður, Dr. Busse, sem nýlega hefir lokið yfirkennara- prófi í Berlin, og er hans von hing- að i júlímánuði í sumar. Hann hefir hlýtt á fyrirlestra próf. Heuslers i íslenzku og auk þess haft nokkra íslenzkutíma hjá Guðnnindi Hlíðdal verkfræðingi, meðan hann dvaldi í Berlín. — Heinrik Erkcs i Köln vill selja bókasafn sitt íslenzkt. Það eru hér um bil 4000 bindi alls; þar á meðal fjöldi fágætra islenzkra bóka, er hann hefir safnað á ferðum sínum hér á landi; auk þess því nær allar iær erlendu bækur, er snerta ís- land að nokkru. Verðið á að vera 20 þúsund mörk. — Á leiksviði Musík-háskólans i Berlin var nýlega leikinn þáttur úr skáldsögu einni eftir Anny Wotthe i Leipzig. Sagan heitir “Zauberru- nen’. Gjörist hún á íslandi og i Noregi, en aðalpersónurnar eru is- lenzkar: Þórður myndhöggvari og Gunna fóstursystir hans. Á leiksvið- inu var Gunna sýnd i islenzkum skautbúningi, og gjörður að þvi góður rómur; enda á hún að vera hvorttveggja í einu: éríð og göfug kona. — Nokkuð lýtir það söguna, hve nöfnin eru afskræmd, t. d. Jóm fyrir Jón, Gúmm fyrir Gunna, og Þórður og Björn kallaðir Selfossyn- ir, af þvi þeir eru frá bænum Sel- fossi. — Vigfús Grænlandsfari hélt hér fyrirlestra síðastliðið laugardags- kveld og sunnudagskveld um för leirra Kochs og félaga hans vestur yfir Grænlandsjökla, og sýndi jafn- framt fjölda skugggamynda úr ferð- inni, eða Magnús ólafsson ljósmynd- ari fyrir hann. Frásögnin var fjörug og skemtileg, og myndirnar góðar. Siðara kveldið voru áheyrendur margir, miklu fleiri en fyrra kveldið — svo að eigi fáir hafa að eins heyrt síðari hluta ferðasögunnar, en nokkrar af þeim myndum, sem heyra til fyrri hlutanum, voru sýnd- ar aftur seinna kveldið. Liklegt er, að fyrirlesturinn og myndasýningin verði endurtekin. Með myndunum var sýnt bæði iandslag og jöklar á Grænlandi, Eskimóar og bústaðir þeirra og bátar og gænlenzk dýr, og svo allur ferðaútbúnaður þeirra fé- laga, vetrarbúð þeirra á jöklinum að utan og innan o. s. frv. Frá einum Eskimóa sagði Vigfús, sem þeir fé- lagar heimsóttu, af því hann var talinn auðkongur mikill þar í land- inu. En afar fátækleg voru hibýli hans, að eins eitt lítið borð þar inni og tveir brotnir stólar. Auður hans var i þvi fólginn, að hann átti 500 kr. í sparisjóði. * * « Vnninn hvilabjurn noröur á Sléttu. Eftir sumarmálin rak hafishroða upp að Melrakkasléttd og Langa- nesi. Mánudaginn í annari viku sumars urðu menn þess varir i Raufarhöfn, að hvitabjörn hafði gengið á land um nóttina skamt frá húsunum og lá slóðin suðvestur í heiði. Þeir bræður Níels og Maríus Lund bjuggust að heiman með byssur og röktu slóðina nokkuð vestur í heið- ina. Sáu þeir þá, hvar björninn var að leika sér að fuglaræfli, er hann hafði fundið. Velti hann sér um hrygg og kastaði fuglinum í loft upp og í ýmsar áttir, einsog ketl- ingur, sem leikur sér að band- hnoða. Þega björninn sá til ferða þeirra, hætti hann leiknum og þrammaði í hægðum sínum á undan þeim stundarkorn, unz hann nam staðar við klett á holti einu, reis upp, steig öðrum hramminum á klettinn og skygndist um. En þá var mjög kom- ið að lokum hans lífsstunda, því að i sama bili lét Níels Lund skotið j riða; kúlan kom um bógana á hol j og björninn hneig niður. Var hann þó með lífsmarki og hleyptu þeir á | hann öðru skoti, en þá þurfti hann ekki fleiri. Rjörninn var all-stór og feitur mjög. Ekki hefir verið unnið annað bjarnardýr á Sléttu siðan árið 1888. Þá kom birna með tvo húna heim j að bæjardyrum að Rlikalóni á ný- [ ársdag. Heyrði bóndi, að rjálað var við bæjardyrum og stóð þá birnan | úti fyrir. Hann hafði byssu, skaut hana og síðan húnana báða. Sama árið, fimtudaginn 5. april, skaut Kristján bóndi Guðmundsson í Ytritungu á Tjörnesi bjarndýr á j is i ‘Barminum’. Krofið af því vóg 200 pund og var dýrið ekki full-1 vaxið. ,• -jp, -- " Rvík, 10. júni. >— Brynjólfur heitinn Jónsson frá j Minnanúpi var grafinn á Eyrar-; bakka þ. 26. mai við fjölmenni mik- ið. — Þessi kveðjuorð lét Br. .T. rita fyrir sig 9 stundum fyrir andlát sitt) — að því er sonur hans, Dagur, skýr ir frá i Suðurlandi: “Þetta eru min siðustu orð til Dags, og svo til allra, sem eg hefi meira eða minna kynst, og loks til allra þeirra, sem eg get talið trú- hræður mína, og það eru þeir, sem trúa því, að guð sé kærleikurinn. Eg er að fara, jafnan þó oss gleðj- um, því Jesús skipar sætum i sins föðurs höll. — Nú gleymi eg ljóðum, kvæðum og kveðjum, — kærleikans drotni eg fel ykkur öll. Brynjólfur Jónsson. — Þann 2. ágúst í sumar eru 40 ár liðin síðan Kristján 9. færði oss stjórnarskrána. — Heldur ætti þetta nýmæli að ýta undir höfuð- staðinn, að efna nú til myndarlegr- ar þjóðhátiðar þann dag. Illu heilli hafa þeir niður fallið, þjóðminning- ardagarnir, er hófu göngu sína með svo miklum gný kringum aldamót- in. - Nýja skáldsögu hefir Jónas Guðlaugsson nýlega fengið gefna út á Gyldendals forlag. Heitir hún Monica. — Hún fær eigi sérlegt hól i dönskum blöðum. — Hingað kom síðast á Botníu einn af helztu forvigismönnum Suðurjóta, M. Andresen, verksmiðju eigandi frá Aabenraa. Er hann hingað kominn til að kynna sér land og lýð. Þessi maður hefir um mörg ár verið í forustusveit þeirra, er halda vilja fast við þjóðerni sitt og tungu í Suður-Jótlandi, og er for- maður verndunarfélags Dana á Suður-Jótlandi. Hefir hann eigi far- ið varhluta af hnefaréttinum prúss- neska — orðið meðal annars að sitja 5 vikur í fangelsi fyrir þjóð ernisást sína. — Betri skilning virt- ist hann, eftir stuttu samtali að dæma, hafa á deilumálum vor og Dana, en títt er um landa hans, ___ og meiri samúð með þjóðernisvakn- *ng og sjálfstæðisframsókn vorri, en gjörist alment við Eyrarsund. Kjörkaup í sumarleyfinu Nú er skólafríið byrjað og þá er þörf- in á fallegum búningi. Þessi sérstaki ein- kennilegi “Fairweath- er búningur” með svo feykimiklum afslættr, hlýtur að draga fólkið að sýningasölum vorum og næstu dagana verða þeir ákaflega skemtilegir. KJÓLAR Serge skreytt með bláu taffeta og skraut borðam, kimona ermum, skrautlecum hvítum vestum oe kraga, pilsið skreytt leggi«<um og borðum. Vanaverð $45, nú $22.50 “ $30, nú $12.75 SUMARKJÓLAR Lingerie kjólar. einir 24 úr Voilea. einfalt og skraut röndótt crepe, skrett með handbriddingum og innsk«tum, Þetta era skraui klæði af bestn tegand En af því lítið eitt sér á einstciku þeirrsi er verðið sett niður. Vanaverö upp til 150.00 nú $10.95 KJOLFATNAÐUR Kjólar í tveim pörtum. pils og treyja úr Gaberdines, Serge og Novel- ty dúkum skreytt með Moire, Char- meuse. Fancy krögum og vestum. Vanaverð $60.00 nú $39.50 “ $50.00 nú $1 9.50 PILS-FATNAÐUR úr Serge og Novelty dúkum og eru sum þeirra með. hinu fegarsta sniði, «em til er á sýningarsölum vorum. Vanaverð $12.00 nú $6.75 HATTAR 30 skreyttir hattar látnir fara fyrir $2.95 hver 297-299 PORTAGE AVENUE Toronto WINNIPEG Montreal — Almenn prestastefna verður einsog vant er háð í Reykjavík sið- ustu dagana í þessum mánuði. Hún hefst þann 26. júni á hádegi með prédikun í dómkyrkjunni. Sira ó- feigur Vigfússon í Fellsmúla stígur stólinn.. Norðanlandsprestar ætla að koma saman á Akureyri undir forustu Geirs vígslubiskups þann 29. júni. ÞING MÁLAFUNDIR Húnavatnssýslu —Þingmenn Húnavetninga, Guð mundur Hannesson og Guðmundur ólafsson, háldu 5 þingmálafundi 1 Húnavatnssýslu í síðastliðnum mánuði á Hvammstanga, Stóru-borg Bólstaðarhlíð, Blönduósi og Skaga strönd. Á fundum þessum voru sérstak lega rædd þrjú mál, sem koma til þingsins kasta í sumar: stjórnar- skrármálið, konungsúrskurðurinn frá 20. okt. og fánamálið. Stjórnarskrármálið. Allir fund irnir töldu frumvarp sfðasta þings álitlega réttarbót, og vildu, að þing- ið í sumar samþykti það óbreytt Á Skagastrandarfundinum var sú viðaukatillaga samþykt, að “verði frumvarpinu breytt á annað borð, þá óskar fundurinn þess, að hinir 6 þingmenn, sem iandið alt á að kjósa til 12 ára.verði einungis kosnir til 6 ára og upplausn látin ná til jeirra eins og annava þingmanna.” Ríkisráðsúrskurðurinn. Mál *etta var rætt ítarlega á öllum fund- um og var það samhuga álit allra, að þeir kostir, sem hann býður, séu óaðgengilegir fyrir oss. Ef ekki æri um annað að gera, væri betra að setja aftur orðin “í ríkisráði” inn í stjórnarskrána. Kjósendur vildu ildu holda máli þessu til streitu og setu ekki fyrir sig, þó samþykt frumvarpsins kynni að dragast eitt- hvað fyrir þá sök. FánamáliS. Allir fundirnir sam- Tyktu í því svofelda tillögu: “Þó fundurinn telji ísiendinga eiga fullan rétt til siglingafána, á- lítur hann að eftir atvikum, megi að svo stöddu una við úrskurð kon- ungs frá 22. nóv.” Aftflutningsbannið. Fundurinn mótmælir því fastlega, að landssjóð- ur veiti nokkurt sérstakt fé til gæzl- u aðflutningsbannslaganna, en vill að hlýtt verði gæzlu lögreglunnar í landinu, jafnt i þeim lögum sem öðrum. Sérstaklega skorar fundur- inn fastlega á alþingi, að neita reglu Goodtemplara um allan styrk af landssjóði í þessu skyni. Eftirlaun ráftherra. Fundurinn skorar á alþingi í sumar að sam- óykkja og fá staðfest lög uin afnóm ráðherra eftirlauna og láta, ef unt er ráðherra skifti ekki fara fyr fram en slík lög eru í gildi komin. Símalína frá Blönduósi til Kálfs- hamarsvíkur. Fundurinn skorar á þingmenn kjördæmisins að reyna af ítrasta megni að fá því framgengt að lögð verði símalína frá Blöndu- ósi til Kálfshamarsvíkur, sem allra fyrst og að fé verði veitt til hennar í fjáraukaiögum á næsta þingi. Afnám landritaraembættisins. Fundurinn skorar á alþingi að af- nema landritaraembættið. Seyftisfirfti 1. júní —Veturinn hefir reynst allharður liér. Þó snjóléttur væri liann fram- an af, var tíð fremur umhleypinga- söm, og er fram 1 marzmánuð kom, gerðust snjóþyngsli mikil. Hefir um mörg ár eigi jafn mikill snjór fallið hér eystra. —Á Seyðisfirði var talinn fast að því eins mikill snjór og “Snjóflóða- veturinn” svokallaða, á jafnsléttu, en minni til fjalla og hlupu því að- eins smáflóð ein er lítt sökuðu. Sím- astaurar fóru á nokkrum stöðum algerlega á kaf, víðast var eigi manngengt undir símalínur. Yíða lagði skafla nærri jafnháa liúsum. —Á U'pp-Héraði var fremur snjó- létt. 1 Fljótsdal er nú alauð jörð fyrir nokkru síðan. 1 fjörðunum og á Út-Héraði er aftur á móti enn mikill snjór og fé að hálfu að gjöf. 1 Borgarfirði var aftaka snjór. Fóru margir hæir algerlega í kaf, svo að setja varð staura í snjóin yfir þeim, svo þeir urðu fundnir.—Á einum hæ er mælt, að hafi verið grafið 12 álnir ofan á heykoll. —Að lieyskorti eru eigi mikil hrögð, en talið horfa til vandræða allvíða, ef tíð eigi lilýni hráðlega. Loftkuldi er mikiil enn, og nú síð- ustu dagana hefir geysað hret með talsverðu frosti um nætur. —Heilbrigði er alment í hezta lagi hér eystra. Sjúkdómar og mann- dauði varla nefndur. Hettusótt hefir lítilsháttar gert vart við sig á suðurfjörðunum, en eigi hreiðst mikið út. , —-Framfarir í stórskerfum verða eigi taldar hér eystra, siðan raflýs- ing Seyðisfjarðar komst á.—Rafljós- in gefast ágætlega og eru alment notuð. Þykir liafa umskift til hins bezta. Eru rafljósin talin hjá fáum miklu kosnaðarineiri en steinolíu- ljós, að ómetnum þó öllum þægind- um og hreinlætinu, sem þeim fylgir. Eru Seyðfirðingar hæst ánægðir með þessa nýbreytni. Nokkuð hefir raflýsingarkostnaðurinn farið fram úr áætlun—svo sem mjög tlðkast— cr orðinn nálægt 80 þús. Talsvert afl hefir rafstöðin afgangs ljósunum, og er f ráði að nota það til suðu. 1 þrem húsum hefir raf- magnið verið notað til suðu í vetur og reynst mjög vel, er þó eitthvað dýrara en t.d. gas. Ráðgert er að auka við rafvélar- nar og veita rafmagninu þá til Yest- dalseyrar og nota það jafnframt al- ment til suðu. Er fjárskortur þessu helzt til foráttu, þvf lán kvað bærin ekki geta fengið með sæmilcgum kjörum, að sögn bæjarfógeta. Yfirleitt er talið. að Seyðisfjörður liafi stigið hið mesta heiliaspor með raflýsingunni.— Nokkrar símalagningar eru í ráði hér austanlands á þessu sumri. Meðal annars út með Seyðisfirði norðanverðum um Dvcrgastein að Brimnesi, ná þá símalínur iir því jafnlangt bygð beggja megin fjarð- arins. Á Seyðisfirði er verið að reisa fisk- mjölsverksmiðju, er taka á til starfa í sumar. Munu enskir peningar ]iar stýra framkvæmdum. Fiskiveiðar eru í þann veginn að Iiefjast á þessu sumri. Verið að setjaniður og útbúa hifvélabáta. Ufsi hefir veiðst að mun á Seyðis- firði í vetur og komið sér vel lijá mönnum og skepnum. Togarar ýmsra þjóða sækja til Seyðisfjarðar um þessar mundir. Kaupa þeir kol og vatn af kaup- mönnum, en kaupmenn aftur fisk af þeim. Skapar þetta eigi svo litla atvinnu enda er hagur bæjarhúa yfirleitt góður, um fátkt varla að ræða. Skaftafellssýslu, 1. júní Yeturinn sem nú er um garð geng- inn var hér einn með þeim erfiðari, þar sem liann byrjaði með allra fyrsta móti og var kaldúr út til enda, að undanskildum rúmum hálfum janúarmánuði. Vorið eitt með þeim verstu er menn muna. Á uppstigningardag dreif óvenjulega mikinn snjó hér, var útlitið þá og tvo næstu daga sem um hávetur væri, öllum fénaði er til náðist var gefið inni f 3 daga þar sem hey voru tiL

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.