Heimskringla - 12.11.1914, Blaðsíða 5
*
WINNIPEG, 12. NóV. 1914.
HEIMSKRINGLA
BI>S. 5
TIMRIÍR • • Spánnýr
1 1ÍTI D U IV Vöruforði
Vér afgreiöum yður fljótt og greiðilega
og gjörum yöur í fylsta máta ánægða.
Spyrjiö þá sem verzla viö oss. i-:
THE EMPIRE SASH AND DOOR CO. , LIMITED
Phone Main 2511 Henry Ave. East Winnipeg
ir sig Paris. En þótt þetta brygðist
•rkaði það engu um vöruverð eða
hrag daglegra athafna. Vöruverð
▼ar hið sama þegar Bragi fór frá
►ýzkalandi, einsog þegar hann kom
þangað.
Ýmsar verksmiðjur urðu að hætta
við starf sitt. Við sumar var þó unn-
ið, en skortur var á járni til smíða
frá Suður-Þýzkalandi. Fjöldi ungra
aianna, er eigi voru herskyldir,
gekk í sjálfboðaliðið.
Þýzka stjórnin tók nýlega ríkis-
lán, er nam hálfum fimta miljarð
■tarka. Þetta fé safnaðist á örstutt-
um tíma með hægu móti. Stjórnin
kærði sig ekki um meira en þetta
að sinni. Hamborg ein lánaði hálfan
MÍIjarð (500 millíónir marka).
Matvæli kváðust Þjóðverjar eiga
■óg fram á næsta sumar. Sigling
hélst til landsins óhindruð frá Nor-
*gi vestan við Jótland. í Eystrasalti
haldast viðskifti við Dani og Svía.
Betra var lslendingum að hafa sig
ekki mikið á framfæri, enda héldu
þeir mest kyrru fyrir, þar sem þeir
höfðu athvarf. Ella voru þeir tekn-
ir sem njósnarmenn. Oft kom það
fyrir, að einstakir menn voru skotn-
ir, ef þeir hlýddu ekki tafarlaust
boði og banni lögreglunnar. Ellefu
menn voru skotnir þannig í Bremer-
hafen, flestir eða allir þýzkir, sem
höfðu sýnt einhvern mótþróa eða
skeytingarleysi gegn fyrirskipun-
um varðmannanna. — Visir. ..
Fréttabréf.
(Frá fréttaritara Hkr.).
Markerville, Alta., 31. okt.”14.
Eigi verður annað sagt, en að tíð-
is síðastliðið sumar væri að mörgu
leyti góð og hallkvæm. Grasspretta
▼ar í rýrara lagi, cn samt vanst vel
að heyskap, því tíðarfarið var löng-
um þurt til septembermánaðarloka,
svo nýting heyja varð góð og hey-
afli í meðallagi. Akrar spruttu al-
nent, varla í meðallagi, og þar við
hættist, að næturfrost komu nokk-
uð snemma í ágúst, sem skemmdu
víða, cinkum bygg akra, sem urðu
lítt nýtir; kornuppskera mun yfir-
Ieitt ekki hafa náð meðallagi. Með
þessum inánuði brá til óstiltrar veð-
uráttu, með talsverðri úrkomu,
bæði regni og snjó; kom það illa á,
því meiri hluti akra var óhirtur;
urðu því nokkrir að taka í stakk
eða til þreskingar miður þurt en á-
kjósanlegt var. Nú seinni hluta
þessa mánaðar hefir verið stilt veð-
urátta og blíðveður og útlit fyrir
sama framvegis. Þresking er búin
hér um slóðir, liefir unnist fljótt;
stráið er víða lítið, og margar vélar
að vinnu, fleiri en nokkru sinni áð-
ur. Mikið er nú unnið á ökrum, að
plægja og herfa, og verður í haust
■íikið búið undir sáningu næsta vor.
Hér hefir alment verið góð heil-
brigði og vellíðun manna um lang-
an tíma. — Nýskeð vildi hér til það
slys, að ung stúlka, dóttir Jósefs
bónda Stefánssonar, féll af hest-
baki og handleggsbrotnaði.
Markaður á nautgripum var hér
all-góður á þessu hausti. Fyrir pd.
í lifandi stýrum, tveggja ára og
eldri, 5—6c; sumir seldu fullorðna
stýra fyrir $70—$75 hvern; kvígur
•g kýr geldar, 4—4%c pd.; árs-
gamlir gripir voru seldir fyrir $30
—$35; venju fremur urðu menn fyr-
ir prettum og samningsrofum af
gripakaupmönnum; er það mikið
fyrir þá sök, að eigi er hér enn sölu-
félag, og engin samtök með söluna,
og veitir þá gripakaupmönnum hæg-
ara að hrekkja og svíkja hvern ein-
stakan, og spara það ekki, nær þeim
ræður svo við að horfa. Svín eru nú
í óvanalcga lágu verði, 5—6c pd. líf-
vigt, og cr langt síðan þau voru svo
lág. Egg eru nú seld hér tylftin: 25
—30 cts.; heimatilbúið smjör 22c
pd.; Facture Butter 25c pd.; hefir
verið 24—25 cents i alt sumar.
Innkaup á nauðsynjavörum bænda
hafa versnað að mun nú í seinni tíð.
Hveitimjöl er nú $3.75—$4.00 (Pur-
ity); sykur er alt að þriðjungi dýr-
ari nú en vanalega, og fleira er likt
þessu. Kenna menn um þessa dýr-
tíð hinu blóðuga Norðurálfustríði,
sem ekki á sinn Iíka í veraldarsög-
unni. Hvcnær skyldi hinn svokallaði
mentaði heimur ná því menningar-
stigi, að semja um sin ágreinings-
mál með friði og mannúð, en ekki
með stáli og blóði millíóna sak-
lausra manna? Aldrei! Til þess
þyrfti öll menning og siðfágun að
gjörbreytast. Það, sem sýnist mestu
ráða, er valdafýkn og fjárgræðgi,
sem nú eru markmið valdsins, og
þess gjalda miliónir manna, og sem
yfir tckur, að þessir kvalarar þykj-
ast gjöra þetta í guðs nafni og með
hans aðstoð. Þetta er nú siðmenn-
ing, kærleiki og sanngirni hinna
mentuðustu þjóða heimsins!
Mér er ánægja að segja með sann-
færingu, að Heimskringla er að
verða eitt hið bezta og skemtileg-
asta blað, sem við höfum á íslenzku
máli; nú í seinni tið hefir hún flutt
mestmegnis það, sem bæði er skemt-
un og gagn að lesa. Ritstjórnargrein-
in um skólann og íslenzkuna er með
því allra bezta, sem liún hefir nokk-
urntíma haft í ritstjórnardálkum
sínum. Þá eru stríðsfréttirnar sagð-
ar eins vel og reglulega og unt er;
en það hlýtur að vera okkar allra
áhugamál. En af öllu, sem hún flyt-
ur nú, þykir mér vænst um Ferða-
lýsingar ritstjórans; þær eru bæði
skemtandi og fræðandi, og eg
myndi endast til að lesa þær í viku
hverri árið um kring. Heimskringla
ætti að vera keypt og lesin á hverju
einasta íslenzku heimili vestan hafs.
— Um Lögberg er það að segja, að
mér líkar það miklu fremur vel en
illa, undir hinum nýja ritstjóra þess.
Að menn kappræði áhugamál sín og
rökstyðji þau eftir föngum, er sjálf-
sagt, en gjöra það mannúðlega og
án þess að seilast persónulega í
mótstöðumann sinn; og þessa gæta
ritstjórar islenzku blaðanna hér nú.
—En aftur finst mér alls óþarft, að
eyða dálkum lítilla blaða undir
suinar óviðurkvæmilegar deilugrein-
ar, einsog t. d. þeirra Jónasar og
Theódórs, sein engum voru til fróð-
leiks eða skemtunar, og náðu eng-
um tilgangi sinum, komu aldrei
nærri aðalkjarna inálsins.
Eg býst nú við, að þér, ritstjóri
góður, þyki eg orðinn nokkuð orð-
margur; en svo afsakar þú það,
þegar eg, einsog góðu börnin, lofa
að gjöra það ekki mjög oft.
Með beztu hamingjuóskum til þin
og Heimskringlu.
Winnipeg, 10. Nov. 1914
Hr. Guðmundur Davíðsson og
kona hans, frá Antler, Sask., voru
hér í bænum í síðustu viku. Vellíð-
an og heilsufar segir hann í góðu
meðallagi. Sumarið nokkuð þurka-
samt; en uppskera með betra móti
yfirleitt. Bændur fengu frá 14—22
bush. af ekrunni. Verð á heviti und-
anfarið hefir verið frá $1.04—$1.07.
IJafra-verð gott, 50c og yfir. Gripa-
verð frá 4%—5%c pd. (lifandi
vigt). Heyföng i góðu meðallagi.
Guðmundur Daviðsson koin hing-
að til að sitja á fundum Grain Groiv-
ers Grain Co., sem stóðu yfir vik-
una er leið. Hann er meðlimur þess
félags.
Félag þetta var stofnað fyrir nær
7 árum. Það nær yfir 3 fylki: Mani-
toba, Saskatchewan og Alberta. Það
átti ervitt uppdráttar i byrjun. Því
hveitikaupmanna félögin ætluðu að
sprengja það. Þau hafa boðið bænd-
um hærra verð en markaðsverð, oft
og tíðum. Hafa sumir glæpst á. Geng-
ið á agnið. En samt hefir þetta korn-
yrkjufélag bænda dafnað og þrosk-
ast og stendur nú í miklum blóma.
Yfirstandandi ár fjölguðu meðlimir
þess um 2000. Upphaflega kostaði
hluturinn $25.00; nú er hann stig-
ÞaíS er yfirhafnar tími. Hvenaer aetlar þú aíS kaupa þína. ?
Ef þig vantar að hafa fullt not af dölunum, þá komdu
inn og skoSaðu okkar fullkomnu vörubyrgðir af Vetrar Yfir-
höfnum meS niSursettu verSi ofan í
$15.00; $17.00; $22.00 til $25.00
White & Manahan Ltd. 500 Main Street
inn upp í $35.00. Nú er hveitiverð í
Fort William til bænda, einsog að
! ofan er sagt, $1.04—$1.07. — Það-
an fá bændur, sem hluthafar eru,
með næsta pósti að austan 75 pró-
sent af hveitiverðinu, og afganginn
þegar búið er að selja alt úr vögn-
unum. Þetta er mikil framför frá því
sem áður var. Þetta bændafélag sel-
ur nú meðlimum síninn ýmsar vör-
ur, hvar sem þeir eru, með heild-
söluverði. Það er undirbúið að fá
fult lagaleyfi frá ríkisstjórninni í
Ottawa, að selja meðlimum sínum
allar nauðsynjar framvegis, eftir
lægsta verði í innkaupum. Og segir
Guðmundur, að þar verði mikill
peningasparnaður, frá því sem áð-
ur var og nú er.
Guðmundur segist hafa verið stór-
hissa, að mæta enguin íslendingi á
þessum fjölmenna fundi (um 400
erindsrekar), nema A. Johnson, frá
Sinclair, Man. (úr sömu bygð).
Hann æskir feginshugar eftir, að
íslenzkir bændur. jafnt sem annara
þjóða menn, vildu kynna sér þetta
kornyrkju-bændafélag, meir en ver-
ið hefir. Hann staðhæfir hiklaust,
að félagið eigi mikinn og góðan
framfaravöxt i vændum; dafni og
þroskist og láti til sín taka i kom-
andi tíð, ekki einasta i verzlunar-
málum, heldur einnig í landsmálum
i Canada.
Þes skal einnig getið, að Guð-
inundur talaði all-mikið um yfir-
standandi strið i Evrópu. Er hann
hinn einlægasti og áhugasamasti
brezkur þegn. Vill alt í sölurnar
leggja til þess að Bretum og sam-
bandsþjóðum þeirra gangi sem
greiðast að sigra og útkljá þá voða-
styrjöld. Hann kennir i brjósti um
þá menn, sem gjöra sig að andmæl-
endum síns ríkis og hlakka yfir ve-
sælum og ómannlegum vinningum
Þjóðverja og Austurrikismanna. Er
það gamall og góður norrænn-
íslenzkur drengskapur, að reynast
drengur í hvívetna, — allra helzt þá
á reynir, sem nú.
Fregnriti Hkr.
TILBOÐ UM MATVÖRU.
TILBOD í lokutSum umslögum, sér-
stök etía í einu lagi, stýluti til
undirritatis og; nefnd Tenders for
Supplies vertSa met5tekin í deild op-
inberra verka, Parliament Buildings
Winnipeg, til hádegis þritijudaginn
17. nóvember 1914 fyrir at5 láta get5-
veikrahælinu í Selkirk í té og af-
henda þar, í eitt ár, frá 1. desember
1914 til 30. nóvember 1915, vörur
þær er hér segir:
I,—Grooerlen
‘2.—Kjöt af ýmMum tegnndiim.
!{.—Smjör o« rgg.
-4.—Rraut5.
Nákvæmar upplýsingar, áætlun
um hve mikils þarf af hverju fyrir
sig og prentutí tilbot5s eyt5ublöt5 fást
ef um er bet5it5 hjá umsjónarmanni
et5a “Bursar” þessa nefnda hæl-
is, et5a i stjórnardeild opinberra
verka í Winnipeg.
Vit5urkend bankaávísun at5 upp-
hæt $100.00 vert5ur at5 fylgja til-
bot5inu, sem vert5ur eign hins opin-
berra, ef sá, hvers tilbot5i vert5ur
tekit5, neitar et5a vanrækir at5 upp-
fylla samninginn, eða, eftir at5 hafa
byrjat5, uppfyllir ekki öll skilyrði
hans.
Stjórnin skuldbindur sig ekki til
að þiggja. lægsta eða nokkurt til-
boð.
C. H. DANCER,
Deputy Minister of Public Works
Winnipeg, 10. nóvember, 1914.
Victor Anderson hefir herbergi til
leigu; uppbúið og vel hitað, með
öllum þægindum. Rétt við hornið
á Sherbrooke og Sargent Ave.
630 Sherbrooke Street. Talsími
Garry 270.
Styrjöldin.
Miðlað er mála
manni hverjum
austur í ragnarökkri:
„y Traustum tönnum
" þá tyggur hel,
eða heila hvomar.
öLD íram af öld bíða þjóðirnar morgunsins mista
— morgunsins fyrsta, er stálhríðin lamdi og drap.
Styrjöldin heggur í hjartastað vísinda og lista,
heimurinn seint mun að fullu það bætt geta tap.
Vorgióður landanna: auðmagn hins unga og sterka
ónýtis þroska, og framkvæmdum gengur á mis.
Gáfurnar, hugvitið: aflið til orða og verka
eyðilegst framtíð, og sofnar í hermanna dys.
Faxahaus þjóðbrota úr uppblásnum aldanna haugum
yfirborðs leitar, - þar naðran sú skaðvæna býr.
Spádómur völvunnar, séður með örlaga augum,
Oddi frá Norðlöndum rætist sem gamall og nýr.
Valdhafar landanna þyrstir í fjárhlut og framan,
fengnum gegn blóði og tárum síns kúgaða lýðs,
þjóðflokka æsa — sem hundum þeir siga þeim saman —
siðmenning breyta í logandi helvíti stríðs.
Harðstjórum landanna —lávörðum ófriðarheima
lýtur hin klafaða, fallandi, deyjandi öld.
Kolsvart blóð ofurdrambs ættanna steinrunnu geyma
Evrópu titlarnir: — guiís náð og konungsins völd.
Oflætis guðsdýrkun — ástin á mannvitsins skorti:
“lch und Gott!” “Gott mit uns!” —“Vive la France!” —
“God save the King!”
ómar sem náklukkuhringing frá helvígðu porti
heilögum friði, sem stjórnendur brjóta og þing.
Drapseðli --- lögmorð, hjá drengjum er fóstrað í skólum,
darraðarljóð eru kveðin í barnanna sál.
Sjálfstæði þjóðanna hangir í hervaldsins rólum,
heiður og ættjarðarfrelsi, er sverðsegg og bál.
Ungtíð og forntíð á orsakir ljósar og duldar
ófriðsins mesta, sem veröldin þekti og sá.
Stríðs þessa endir, er hulinn í húmríki Skuldar:
hrikaleiks sannreynd, er víkur burt gizkun og spá.
Yrði sú skálmöld, sem nú ætlar alþjóð að nista,
nauðráðið hinsta að lagfæra misklíð og tap,
þá myndu þjóðirnar bættan fá morguninn mista
— morguninn fyrsta er stálhríðin lamdi og drap.
Okt. 1914.
Þorsteinn J>. Þorsteinsson.
ÞJÓÐRÆKNISSJÓÐURINN.
Áður auglýst........................................$1,539.20
Einar Jóhannesson, Antler, Sask......................... 5.00
Magnús Tait, “ 5.00
Bergvin Johnson “ 5.00
Jón Thordarson “ 5.00
Miss Fríða Samson “ 2.50
Guðm. Davídson “ 5.00
Jóhann Abrahamson, Sinclair, Sask....................... 5.00
Kristinn Abrahamlson, “ 5.00
L. F. Beck, Beckville................................... 2.00
Bob Kjartanson “ 2.00
S. Gíslason, Winnipeg................................... 2.00
Hólmfríður Gíslason. Gerald, Sask...................... 3.05
Samtals . ..................$1.585.75
Ódýr, Næringar Fæða
Oven, Flour
Teshng Lilioi'
•tory
Hvítt hveiti er billegasta og
næringarmesta fæða sem til er.
Samanburður frá peningalegu
sjónarmiði sýnir hveiti hafa 10
- sinnum meiri kraft en kjöt.
PURIT3S PLOURei reynt
í ofni viS millunna, sameinuð
kunnátta efnafræðings og hveiti-
hveitimölunnar manna hefir
veriö notað til þess a'ö gjöra PURITY besta hveiti sem búiö er til í
Canada. Þessi sérstaka varúö er húsmóöirinni fullvissa þess a'ö
hún fær óblandaöa og heilnæma vöru.
PURITy FLOUR
More Bread and Better Bread
KRÉTTIll AF AIIIMIIKM
Hr. Arinbjörn Bardal kom í gær-
dag. Fór á kolaskipi, sem kallast
Cuba til Methel, á móti Leith. Skeyti
þá komin til Islands, aS ekkert skip
mætti fara austur fyrir land. Þar
var honum haldið í 48 klukkutíma,
áður hann fékk að lenda. En hann
bjó út simskeyti til Cameron fylkis-
stjóra Manitoba um að leysa sig.
Og þegar hann sýndi þeim það og
önnur skeyti, til að sýna, hver hann
væri, þá var hann laus látinn.
Með honum var Jóhann S. Björns-
son og stúlkur tvær íslenzkar, önnur
Jórunn Thorsteinsson frá New York
og hin Steinunn Barnes frá Chicago.
Jóhann varð að senda simskeyti
til utanríkisráðherra Breta i Londom
— þá fengu þau loks að komast í
land, eftir 2 sólarhringa. Þaðan fóru
þau til Glasgow. Glasgow er í myrkri
á kveldin og varla sést nokkur mað-
ur þar brosa. Fjöldi Belga þar undir
vernd Skota. — Var Bardal þar 4
daga; fór svo með Numidian, 22.
ára göinlu skipi, sem er aðeins 5000
ton. öll beztu skip línunnar tekin í
stríðið. Eftir að þeir vor i rétt komn
ir frain hjjá Victoria eyjunni norð-
ur af írlandi, fengu þeir loftskeyti
um það, að skip hefði verið sprengt
í loft upp á s :u línu og þau voru
á. Tundurduflin lögð 60 mílur út
frá eyjunum. Næsta kveld á eftir, i
grenjandi óveðri, stansaði vélin og
skipið hraktist undan vindi í 10 kl.-
tima. Úr þvi gat það aldrei farið
fulla ferð, svo þeir voru 14 daga á
leiðinni til Quebec, seinustu 3 dag-
ana í liríð. Satt kvað það vera, að
sprengivélar hafi verið lagðar alla
leið frá Skotlandi til íslands.
Skelti nefið af konunni sinni meÖ
tönnunum.
maður einn, Malloy að nafni, hafði
fundið eitthvað af dropunum rauðu,
þar sem þeir áttu ekki og máttu ekki
vera, og tók þá til sín. En þeir voru
girnilegir og fór hann að gleðja sig
á þeim og hressa upp á samvizkuna.
F'ór liann svo kátur vel heim til
konu sinar, en út úr því varð þeim
eitthvað sundurorða og fóru i hár
saman. Litur út, sem bónda hafi
veitt miður, því að hann tekur það
úrræði, að bíta meira eða minna
framan af nefi konu sinnar. Honum
hefir fundist hann eiga nefið einsog
konuna og geta gjört við það hvað
sem han vildi. eða hún hefir verið
spör á kjötinu við hann.
En svo kom þetta fyrir dómarann,
sem tók afan í við mannætuna og
gaf honum ársvist í tukthúsinu og
skyldi hann þar að auki Ihýðast
strax 8 vandarhöggum, en 7 þegar
hann færi. Sagt er að Malloy hyggi
ekki vel til heimkomunnar. Þetta
skeði hér i Winnipeg 3. þ. m.
Tilboð um eldsneyti
Tl lilioii í lokut5um umslögum stýl-
u?5 til undirri».at5s og nefnd “Ter»ders
ícr Fi.al”, verfca meótekin i leild op-
inbera verka, jParliamcnt BuUdings,
Winnipeg, til hádegis miðvikudaginn,
18. nóvember, 1914 fyrir að láta geð- •
[ veikrahælinu í Selkirk í té og afhenda
j þar 1500 tona «f Steam Coal, Sereeneil.
Viðurkend bankaávísun að uppha>t5
10 prósent af tilboðs upphæðinni verð-
ur a?5 fylgja tilbot5inu, ef Rá, hrers til-
boði ver?5ur teki'ð, neitar eða vanrækir
að uppfylla samninginn, eða, eftir að
hafa byrjað, uppfyllir ekki öll skil-
yrði hans.
Stjórnin skuldbindur sig ekki til
að þiggja lægsta eða nokkurt tilboð.
Þeir eru sumir farnir að verða
hræddir um að það fari að koma upp
nýjir siðir hérna. Brennivínsgæzlu-
C. H. DANCER,
Deputy Minister of Public Works
Winnipeg, 11. nóvember, 1914.
Columbia Grain Co. Ltd.
GRAIN EXCHANGE WINNIPEG
TAKIÐ EFTIR:
Við kaupum hveiti op aðra koinvöru. pefuni
hæsta prís og áb} rpjumst áreitanh j: við»kííti.
Skrifaðu eftir upplýsinguni.
« «
« LeiÖbeining til almennings »
«
«
«
«
«
a
«
«
a
«
«
«
«
«
«
«
«
::
«
«
jj Talsími: Sherbr. 2935.
«
anaannanaan ««««««««« ««««««««« «««««««««
Hérmeð gefst heiðruðum almenningi til vitundar að eg rek
frainvegis undir minu eigin nafni klæðskurðarstofu þá sem vér
hr. ög. Sigurðsson höfum átt í félagi, með því að hann hefir
gengið út úr félagsskapnum eins og sjá má á öðrum stað í blað-
inu.
Vinnustofa mín er að 698 Sargent Avenue. Vænti eg þess,
að hinir heiðruðu viðskiftavinir láti mig njóta hinnar sömu
velvildar og fyr.
Enda hefi eg nú betra húsnæði og úr meiru að velja.
Virðingarfylst,
«
»
«
a
::
a
«
::
«
♦♦
«
n
n
«
«
HELGI JÓNSSON,
698 SARGENT AVE.
fít»N __
JWIOÍM
yrírnor
HundruðJAnnara Bænda
14
hafa sannað að
geta selt vagnhlass þitt af Korni með mestum
hagnaði.
Þú getur einnig fengið betra verð á því sem þú þarfn-
ast til bússins með því að kaupa í gegnuin Sameigin-
lega og Véla Dcildina af The Earmer’s Own Company—
tildæmis:
No. 3 Bnb nlrSI, 5 ft. 3 1». mflílar, brmta tfoi CC
teBnnd af hvlta elk, f.o.b. Wlnnipegr. .
The
Ltd.
kWINNIPCG
»
«::«««««