Heimskringla - 01.04.1915, Blaðsíða 1
RENNIE’S SEEDS
HEADQUARTERS FOR SEEDS, PLANTS,
BULBS AND SHRUBS
PHONE MAIN 3514 FÖR CATALOGUE
Wm. RENNIE Co., Limited
394 PORTAGE AVE. - - WINNIPEG
Flowers telepraphed to &11 parts of
the world.
THE ROSERY
FLORISTS
rhonpN Mnin 194. Niffht and Sin-
day Sher. 2«67
2S9 DONALD STREET, WIFTNIPE6.
XXIX. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 1. APRÍL 1915.
24. MARZ.
Bandamenn lenda hersveitum á
tangann vestan við Hellusund. Og
þenna sama dag fóru herskipin líka
að skjóta á kastalana og um leið
fóru duggur Jjeirra að sópa sjóinn
og draga eftir sprengivélum. En
Rússar koma að nor'ðan og halda
Bota sínum við mynni Sæviðar-
sunds; taka flutningsskip Tyrkj.i og
skjóta á vigi þeirra, þó að ekki hafi
þeir enn lagt inn í sundið.
1 Miklagarði er fólk alt hrætt við
▼oðann bæði að sunnan og norðan,
og flýr nú þaðan hver, sem komist
getur, allir yfir til Asíu.
ltalir eru farnir að harðna. Tóku
þeir 29 vagna lest eina, sem átti að
fara til Krupp verksmiðjanna; var
á þeim graphit og brennisteinn og
annað fleira til fallbyssugjörðar og
sprengiefna. Þessa lest tóku þeir við
Luino, norður undir landamærum
Svissaralands. Alt þetta hafði verið
keypt á ltaliu.
ltalir neituðu einnig Þjóðverjum
að fara yfir lönd þerra i Afríku,- á
leið til Abyssiniu. Lá grunur á, að
menn þessir væru sendir til þess að
hleypa Svertingjuni upp á móti
Bretum.
Flugmenn Bandamanna.
Fimm flugdrekar lögðu upp frá
Ounkirk þenna dag og héldu norð-
ur með sjó. Veður var dimt og kom-
ust þeir ekki alla leið; en hinir
komust til Antverpen eða Hoboken,
þar rétt hjá. Þar voru Þýzkir að
smíða neðansjávarbáta. Vist tveir
flugmennirnir náðu þangað, rendu
sér niður, svo þeir voru aðeins 1000
fet í lofti uppi og steyptu niður 20
sprengikúlum; og cr sagt þeir muni
hafa brotið 2 neðansjávarbátana,
en kveikt i verksmiðjunum; þvi að
þar var alt í báli, er þcir fóru. Hjá
öðrum þeirra bilaði vélin, svo að
hann varð að renna niður í Hol-
tandi og situr þar. Hinir komust
-allir hcim.
Rússar fóru vel með sigur sinn.
er Przemysl gafst upp. Þeir sýndu
taersveitum Austurríkismanna allan
taeiður; leyfðu þeim að senda alla
særða menn til Austurríkis og borg-
arbúum að fara eða vera, eftir þvi
sem hver vildi, og enga fangana
ætla þeir að senda til Siberíu. Var
þar mikið af Ungverjum.
Þarna losnar um 200,.000 rúss-
neska hermenn, er vcrða undireins
sendir til Cracow. Og er búist við,
að borg sú eða kastalar standi ekki
eins lengi fyrir Rússupi og þessi. —
Enda var þarna mikið af bcztu lier-
sveittum Ungverja.
Þjóðverjar lialda allstaðar undan
þarna austurfrá. Við Ossowiets hafa
þeir hangið lengst. Er það kastali
við Bobr norður og austur af War-
shau. En aldrei unnu þeir þar á;
og nú er sagt að þeir hafi haldið það
an heiin á leið. En Rússar eru auð-
vitað á hælum þeirra.
Ottawa þingiÓ samþykkir her-
kostnaÓ.
er nemur hundrað milliónum dala.
Allir hinir skattarnir til stríðs-
kostnaðar koma í gildi 15. april.
25. MARZ. —
Austurríki ógnar Italíu.
Austurríki sendir hverja herdeild-
ina á fætur annari suður á landa-
mærin i Alpafjöllum, einkum í
Trent héraðinu norður af Garða-
vatninu; það er sunnanvið Tyrol.
Þar eru mest ítalir og flýja allir, sem
geta suður í Po-dalinn. Þorp og
bæjir standa því auðir; en Austur-
ríkismenn sprengja upp húsin og
hlaða þar viggarða og grafa skot-
grafir. í Tyrol er borg, sein Rov
eredo heitir; en þar er nú slétta
ein, svo gjörsamlega hefir öllu ver
ið sópað burtu, nema húsum þeiin,
sem Jieir treystu og gjörðu að fali
byssugörðum. Skógarnir J>ar í kring
eru stráfeldir.
Nær hálf millión inanna er nú
komin þar suður af lierliði Austur-
rikismanna. Þessir dalir eru cigin-
lega Jiað eina hlið á Alpafjöllum, og
er þó þröngt. En þarna hafa lier-
flokkarnir og skárar þjóða þeirra
farið um, er komið hafa að norðan
og austan og ráðist inn i ftalíu.
lbúa þá, sem fyrir eru, fara Aust-
urrikismenn með sem óvini; berja
|>á sem hunda með svipum og byssu-
bógum. Er því ekki að furða, þó að
fólkið flýji undan suður til frænda
sinna.
Tyrkir ætluÓu að gefa upp Mikla
garS.
Fullyrt er, að Bretar og Frakkar
hefðu getað farið i gegnum Hellu
sundin, ef að það hefði ekki verið
fyrir hinar fljótandi vélar. Og dag
inn sem þeir tiipuðu skipunum þrem
ur, eyðilögðu þeir svo kastalana, að
þeir voru orðnir litt nýtir. Og þó
að Tyrkir reyni að bæta upp það,
scm brotið er, þá er sagt að þeir
séu svo illa af sér gengnir, að ilt
sé við að gjöra. Og þá voru Tyrkir
fast að því komnir að gefa upp
bæði Miklagarð og Hellusund; en
þýzkir foringjar gátu komið í veg
fyrir það.
Austurríkismenn eiga erfitt.
Undir eins og Rússar náðu Prze
rnysl, sem þeir nú eru búnir að
SANDRINGHAM.
skýra Pedmysl,, þá fóru þeir að
þjappa að Austurríkismönnum enn
meir. Á 50 til 80 milna svæði fóru
þeir á stað, og héldu nú með mikið
lið i gegnum I)ukla skarðið á fjöll-
unurh nærri beint suður af Tarnow.
Þeir héldu þar nú 15 milur niður á
Ungverjaland og víggirtu sig þar og
breiddu sig þar út, og á skörðin öll
leituðu þeir suður til Uszog skarðs,
sem er eitthvað 50 mílum sunnar.
En vestur af Bukowina halda nú
Austurrikismenn skörðunum. Þarna
er bær, sem Barifa heitir, suður af
Dukla; og þarna og alla leiðina suð-
ur er nú hinn grimmasti bardagi.
Er sagt, að þeir ætli þangað nú báð-
ir nafnarnir, Nikulás stóri og Niku-
lás litli (keisarinn), og má þá við
tíðindum búast, einkum ef Nikulás
stóri fer þangað. Og það merkir
það, að þarna verður barist, þang-
að til Rússar komast að höfuðborg
Ungarns Budapest, hvort sem ])að
tekur lengur eða skemur.
Er nú hætt við, að Rúmenar geti
ekki setið hjá mikið lengur. En þvi
lengra, sem Rússar komast þarna,
því hættara er herliði Austurríkis
manna, sein situr í syðri skörðun
um i Karpatha fjölluin eða í Buko
wina.
Betur satt reyndist.
Lloyds ábyrgðarfélagið enska seg-
ir að stríðið verði búið 30 septem-
ber í-ár. ,
— Enn þá einu sinni kemur fregn
frá Danmörku, að Dr. Liebknecht
hafi verið skipað í stríðið. Hann
átti að vera kominn í það í hausti
og stundum var sagt, að hann liefði
verið skotinn. llann var að minsta
kosti lifandi núna nýlega á þingi
Prússa.
— Þjóðverjar halda inn á landa-
mæri sín á Rússlandi hér um bil
allstaðar norður af Warshau; en
cyða bygð alla þegar þeir fara. —
Þannig brendu þeir Suwalki borg-
ina, skamt austur af landamærum
Austur Prússlands; skildu við hana
i björtu báli, er þeir fórn, og var
það allmikil borg.
Sandrlngham cr hin skrautlega sveitahöll Georgs konnngs og Marfu ðrotn-
,ntaar 4 Englandl. Þangati stefndu Zeppelin flugsklp ÞJóSverJa einu sinni og
•tlutlu aB eyöileggja hana me® sprengikúlum og helst konung meh. Þeir
n,ttu ekkl höllina en deyddu flmm menn i JArnamötiu og eytsilögtiu stórmlkiti
byggingum
20. MARZ. —
Nú eru Norðmenn farnir að
kvarta undan Þjóðverjum. Neðan
sjávarbátar þeirra hafa sökt skip-
um Norðmanna; en nú bætist það
við, að flugmenn þeirra eru farnir
að senda flutningaskipum Norð-
inanna stálörvahríðir hátt úr lofti.
Það var norska gufuskipið Diana,
sem fyrir þessu varð, er það skreið
,Tit úr Ermarsundi. Þýzkir flugmenn
flugu yfir þvi hátt nokkuð í lofti og
sendu niður örvadrífu. Skipshöfnin
öll flýði undir þiljur og meiddist
ekki, en örvarnar klufu þilfarið á
mörgum stöðum.
í Bukowina voru Austurríkismen
með alhniklu liði; en þar kom
Rússar á þá að norðan og austan c
fóru sumar hersveitir þeirra fyr
austan en sumar vestan við höfu;
borg Bukowina Czernowits. Austu
rikismenn stóðu það ekki og flýí
úr borginni. Rak þá helmingi
Rússa flóttann, en hinir settust
borgina.
( fjöllunum suðvestur af Przcmysl
er Dukla skarð þar rétt hjá, fyrir
sunnan er Laboreh skarð og skamt
fyrir sunnan það I.upkow skarðið.
Rússar höfðu farið suður um Dukla
og Laborch skörðin suður í ungarn
og búist þar um 15 inílur sunnar á
sléttu einni nálægt Barifa eða Bar-
field á sumum kortum. En nú hröktu
þeir Austurrikismenn á undan sér i
Lupkow skarðinu og héldu þar öll-
um skörðum. Eitthvað 30 milum
sunnar er Uszok skarð, 30 milum
sunnan við það Wyszkow og enn 30
mílum sunar Jablonitza skarð hér
um bil beint vestur af Czernowitz.
I gegnum þessi skörð verða Aust-
urríkismenn að komast; en Rússar
verða nú einlægt á hælum þeirra;
og er liætt við að sumstaðar vei ði ó-
greið yfirferðin. En vinni P.ússar
nokkurn sigur þarna suður undan
Dukla, þá eru Austurríkismenn
nauðbeygðir að leita heim. Og kein-
ur nú enn fram herkænska Nikulás
ar, að lofa þeim að halda gegnum
syðri skörðin til Jiess að geta sett
skrúfuna á þá síðar meir. Þegar
suður fyrir Jablonitza kemur tckur
við Bukowina; Jiar eru föllin ill
fær, þangað til að kemur suður und-
ir Rúinaniu; þar eru skörð i þeim:
Kirlibaba, Rodna o^ Borgo skörð.
En nokkuð suður af Dukla skarði
og Lupkow er borg ein á sléttunum
við Bukowina; þar eru fjöllin ill
Kaschau heitir. Þar nálægt búast
menn við því, að Jicir fari að eigast
við fvrir alvöru.
Unghvar og Muncacs eru og borg-
ir nálægt á sléttunum þar fyrir sunn-
an og austan.
Reyndar er nú barist af kappi all-
staðar á hinni löngu linu þar eystra
alla leið norður að sjó við Tilsit og
Memel.
29. MARZ. —
Afram lieldur slagurinn i Karp-
atha fjöllum. Rússar hafa nú sópað
Austurríkismönnum úr Lupkow
skarðinu, og halda þvi öllum norð
urskörðunum. Þeir smábreiðast út
um hæðirnar og slétturnar sunnan
og vestan við fjöllin. Vestur komu
])eir til Svidnik; sunnan við Bart-
feld (Barifa eða Barfa á sumum
kortum) tóku þeir hæðir nokkrar á
30 mílna breiðu svæði. Þeir munu
komnir suður undir Muncacs og
Stry, og einlægt streyma þeir i gegn
uin skörðin. Bæði Þjóðverjar og
Austurríkismenn safna óðum liði,
þvi að nú er alt Austurriki i voða,
ef að Rússar ná fótfestu á sléttun-
um og gcta safnað nógu liði þang-
að; og óðum eru nú Austurríkis-
menn að snúa heim úr Bukowina,
með Rússa stöðugt á hælum sér. 1
sctu’iði Austurríkismanna voru hóp
ar af Czeckum, er gáfust upp, og nú
eru þeir hamslausir að fá að berjast
ineð Rússum móti Austurrikismönn-
um og Þjóðverjum.
í HcIIusundi eru Bretar að sækja
fast á aftur, og er nú í dag von á 8
bryndrekum í viðbót við þá sem fyr-
ir voru til Bandamanna. Bretar cru
farnir að lenda hermönnuin á Dar
danella skaganum; enda er sagt að
þar séu minst 100,000 tyrkneskra
liermanna. Verður þar ef til vill
harður leikur áður en lýkur.
Á Katalóns völlum, gamla bar-
dagastæðinu Atla Húnkonungs 450
e. Kr., er hann barðist við Rómverja
og Gauta og beið ósigurinn mikla
fyrir þeim Aetius og Þiðriki (af
Bern). hafa verið stöðugir smáslag-
ir. I Champagne héraðinu þar ná-
lægt á Frakklandi voru 28. marz 11
þúsund dauðir Þjóðverjar teknir úr
víggröfuin þeim, er Frakkar unnu
eftir 20 daga bardaga, og er talið,
að þenna þriggja vikna tíma liafi
Þjóðverjar tapað á því svæði af
dauðum og særðum og herteknum
einum 50,000 mönnum; og hafa
Þýzkir þar látið 2 menn fyrir hvern
einn Frakka.
1 Vosges fjöllum hafa Frakkar náð
fjallatindi einuin, er kallast Hart-
mannsweilerkopf, 15 milur norð-
vestur af Muhlhausen og 3—4 mílur
frá borginni Thann. Hafa þeir bar
ist lengi um tind þann og báðir
viljað halda, þvi hver sem hefir
hann ræður landinu og borgunum í
kring.
1 orustum þessum hefir inargt af-
reksverkið verið unnið. Má nefna
stórskyta (gunner) einn frnaskan,
Vandal að nafni. Hann var liættu-
lega særður og félagi hans Jacques.
Einn sveitungi hans ætlaði að fara
að hjálpa honum og binda um sár
hans. “Skiftu þér ekki af mér, eg er
særður til ólífis, en hjálpaðu hon-
Jacques”, sagði Vandal; og er her-
(Frainhald á 5. bls.)
Eins cents stríðsskattur á bréfum. .
Eins cents striðsskattur hefir lagð |
ur verið á hvert bréf og bréfspjald, I
sem í pósttösku fer til staða í Gan-
ada, til Bandaríkjanna og Mexikó og
á öll bréf, sem fara til landa i veldi
Breta, eða hvar sem tveggja centa
burðareyrir hefir verið í gildi. —
Þessar fyrirskipanir ganga i gildi
liinn 15. april 1915.
Striðsskattur þessi borgist ineð
striðsfrímerki * (War Stamp), sem
scin til sölu verður hjá ölluni pc)st-
stjórum.
Hvar sem hægt er, skyldu menn
nota stríðsfrimerki þessi; en séu
þau ekki fáanleg, má hafa venjuleg
frímerki.
Striðsfrimerki þetta skal límast a 1
hægri handar liorn bréfsins, ofar- |
lega, fast hjá hinu vanalega fri-j
inerki.
Ef sá, er bréfið sendir, gleymir
eða vanrækir að greiða striðsskatt
þenna eða lima stríðsfrimerkið á
bréfið, þá verða öll þau bréf eða
póstspjöld tafarlaust scnd á skrif-
stofu hinna dauðn bréfa.
Það cr áriðandi, að iill póstgjcild
greiðist fyrirfram með hinum vana-
legu frímerkjum.
Striðsfrímerkið verður ekki tekið
gilt í neinu tilfelli sem fyrirfram
borgað póstgjald.
Nr. 27
Meiri peningar
Eimskipafélag fslands hefir i
dap senl hraðskeyti hingað
vestur og biður hlutasölunefnd-
ina hér, að borga sér þann 15.
apríl, eða innan tveggja vikna
1500 dollara umfram þau 4 þús-
dollars, sem áður var um sam-
ið, eða alls 5500 dollars. Eim-
skipafélagið getur þess, að það
verði að kaupa heilan skips-
farm af vörum, oþ að það sé
nauðsynlegt, að það geti feng-
ið þessa fjárupphxð hér.
Hlutasöluncfndin hér gelur
ekki neitað þessu, og mælist
þcss vegna til að allir hluthaf-
ar i Eimskipafélaginu gjöri sitl
itrasta til þess, að borga það af
hlutaborgunum sínum, sem nú
er fallið i gjalddaga, og ef þeim
er mögulegt, einnig það, sem
enn ekki er falið i gjalddaga,
og sendi peningana til féhirðis
nefndarinnar hér, svo snemma
að það sé til hans komið fyrir
15. þ.m. (april).
Winnipeg, 30. marz 1915.
Ft. L. BALDWINSON.
Telegram til Heims-
kringlu.
Hr. Carl Eymundsson í Fort Mc-
Murray, Alberta, sendi oss eftirfylgj-
andi hraðskeyti, dags. 26. marz:
“McMurray komið i frétta-
þráðasamband. Fond Du Lac
námurnar auðugar.
C. Eymundsson’’.
Aths.-— Hraðskeyti þctta á við
silfurnámur þær hinar auðugu, sem
rétt fyrir skömmu fundust við
Fond Du Lac, austan við hið mikla
Athabaska vatn. Fort McMurray er
við Athabaska fljótið í Alberta, nær
miðju 57. breiddarstigi, þar sem
Clearwater áin fellur i Athabaska.
Þaðan rennur Athabaska fljót beint
norður í vesturendann á Athabaska
vatni. Vatnið Iiggur til norðausturs,
en þegar kemur til Saskatchewan-
fylkis, liggur löng vik austur i
landið og fellur fljót i víkina; það
er Fond Du Lac og eru Hudsons-
flóa félags stöðvar (Hudson Bay
Post) þar. Þar hjá eru silfur nám-
ur þessar, sem kannske eru hinar
auðugustu i heimi, ef að ekki hefir
því meira verið logið um þær. En
Það ber flestum saman um, að lönd-
in þar norður, bæði í Alberta og
Saskatchewan, séu full af málmum
og kolum og námum af öllu tagi.
Vér þökkum hr. Eymndssyni fyr-
ir hraðskeytið.
Farið að leita að
Vilhjálmi Stefánssyni.
Hann er frá Seattle, Wash., mað-
urinn, sem er að leggja upp í norð-
urför til að leita að Vilhjálmi Stef-
ánssyni. Það er kapteinn Louis
Lane frá Seattle. Hinn 21. marz ætl
aði hann að sigla morguninn eftir.
eða 22. marz þaðan, á norðurfara-
skipinu Polar Bear.
Mr. Lane er alvanur íshafsferð-
um og ætlar að verja sumrinu til
þess að fara um höfin norður af
Ameríku og Behringssundi og leita
allstaðar þar, sem nokkrar líkur eru
til, að þeir Vilhjálmur og félagar
hans hafi farið. Um leið ætlar hann
að skutla hvali þá, sem á leið hans
verða og rostunga og ísbirni. Helzt
vill hann ná nokkrum ísbjörnum
lifandi. Hann fer bæði meðfram
Bankslandi og Viktoríulandi og von-
ar að koma til Bankslands í byrjun
ágústmánaðar. Þangað ætlaði Vil
hjálmur að halda, er hann lagði út
á isinn seinast, hinn 7. april 1914,
með tveimur félöguin sinum. Þeir
höfðu kynstur inikii af skotfærum
(400 rounds) og nesti fyrir 2 mán-
uði. Tjald eða segldúk höfðu þeir,
sem þeir gátu strengt svo í sundur,
að það varð sjófær bátur. Bjóst þá
Vilhjálmur við, að geta komist til
Bankslands á 15 dögum, ef að hann
kæmi ekki þar að landi aftur, sem
hann fór frá. En daginn eftir að
hann lagði út á isinn. kom stórhríð-
arbylur og veður mikið. Hrakti þá
ísinn frá landi, svo að þeir hurfn
sjónum með isnum.
Vilhjálmur sagði, að ef hann kæmi
i upp á Banksland, þá myndi hann
í byggja vita á Nelson höfða, sem
kallaður er. En í sumar sem leið
| kom kapt. Lane þangað á þessu
skipi — Polar Beár —, en varð þá
I ekki var við nein merki þess, að
Vilhjálmur hefði þar komið.
Kapt. Lanc a'tlar þó ekki að gefa
upp leitina, þvi að hann þykist viss
um, að Vilhjálmur sé einhversstað-
ar á kreiki. og vandi.nn sé aðeins að
finna hann. ,
Með sér hefir kapt. Lane ágæta
skipshöfn, menn sem eru aivanir
íshafsferðum. Stýrimaður er Gon-
zales frá San Francisco og hefir
hann verið 16 ár á hvalaveiðum þar
norður í íshöfunum. Alls verða 12
menn á skipinu, er það leggur út.
Kapt. Lane býst við að koma aftur
til Seattlc í októbermánuði næst-
komandi. ,
Frétt þessi var send í afklippum
úr ensku blaði frá Seattle, og var
dagsetning á miðanum 21. marz. ..
Heimskringla þakkar fyrir fregn-
ina.
Ekkert höfum vér heyrt um til-
raunirnar austur frá til að búa tií
flugskip eða flugdreka til að leita
Vilhjálms. Væri oss stór þökk, ef
einhver gæti frætt oss um, hvernig
það gengur.
J
Fljótandi Sprengivél.
Fljótandi sprengivél rekur á strönd upp á Knglandi. t*essar vélar hafa
mesl veritS notafiar f NorHur-s.lónum og hafa valdfð miklu tjóni á lífi raanna
og Hkipum.