Heimskringla - 20.05.1915, Page 3

Heimskringla - 20.05.1915, Page 3
WSNNIPEG, 20. MAf 1915. H K I M S K H I N G I BLS. 3 Fólkorustan á Clontarf e?a Bríans bardaginn 23. apríl, 1014 1. Uppgangur Bríans konungs Þegar írland var í hers höndum fyrir veldi Austmanna, sem höfðu bygt borgir og bæi á öllum fjörðum landsins, tekið undir sig búgarða í kringum þær, rænt landið og lagt á það skatta og kvaðir, þá reis upp Brian Borumha, konungur í norður- hiuta Munster rikisins, og með Dal- cassíum, sem voru ættkvísl hans, hóf hann styrjöld gegn Austmannaveld- inu, og innanlands flokkadeilum íra. Hernaður hans endaði með bardaganum við Glenmama, þar sem Brían sigraði algjörlega Maelmordha konung í Leinster og Sigtrygg Silki- skegg, Norðmanna konung í Dýfl- inni, og víkingaherinn frá Leinster árið 998. Maelmordha var tekinn á flóttanum, og fluttur hertekinn til Kinnkóra, aðseturs Bríans i Munst- er. Sigtryggur Silkiskegg var útlæg- ur gjör fyrir endilöngu írlandi. Eft- ir 3 mánaða útlegð gekk hann á vald Brians konungs. Brían tók honum vel, gaf honum aftur kon- ungdóm i Dýflinni og gifti honum dóttur sína. Maelmordha fékk aftur konungdóm yfir Leinkter. Maelsechlainn II., varð yfirkonung- ur (ardrí) í Tara í Meath. Þar sat jafnan yfirkonungurinn á írlandi. Maelsechlainn tók Dýflinn 980 og refsaði henni svo, að ólafur Quár- an (1) fór þaðan og dó í klaustri á Icolmkill 981. Barátta hans við Bri- an endaði með þvi, að Maelsechla- inn var settur af yfirkonungdómi 1002, en Brian tók upp titilinn, og gjörði alt írland skattskylt sér, nema Donegal; sendi skattheimtuher til Skotlands, Englands og Wales, og mörg héruðin svöruðu skattinum. Frá 1002—13 var friður á Irlandi. Brían bygði brýr, kastala og vegi, og keypti bækur frá útlöndum, í stað bóka, sem víkingar höfðu eyðilagt. Hann studdi listir og visindi og sér- staklega skáldskap. Hann var sig- ursæll í ófriði. 1 friði var hann Forn-írum hinn góði, mikli og gamli maður. Njála álítur hann helg- an mann, þegar hann er fallinn. 2. Kormlöð drotning og uppreistin gegn Brían. Kormlöö, Gormflaith, eða Gorm- laith kalla írar hana, var dóttir Mýr- kjartans Mac Finn(2) konungs í Leinster; hann lézt 972. Hún getur ekki verið fædd síðar en 973, og er þá fimtug, þegar orustan varð á Clontarf. Hún var systir Maelmord- ha konungs af Leinster. Hún giftist ung ólafi Quáran konungi í Dýflinni og átti með honum Sigtrygg konung Silkiskegg. Maelsechlainn gjörði Dýflinn skattskylda 980, og hefir J)á gengið að eiga ekkju ólnfs eftir dauða hans. Þau áttu ekki börn svo menn viti nú. Þegar jarl Maelse- chlainn var drepinn í Dýflinni 987, þá hefir losnað um Kormlöðu i yfir- drotningarsessinum i Tara. og hún stokkið það,an til Dýflinnar með Sigtrygg son sinn. Ilann verður konungur í Dýflinni 991 í fyrsta sinn og hefir móðir hans ráðið mestu um með honum. 997 kemur Gunnlaugur Ormstunga til Dýflinn- ar, og flytur Sigtryggi kvæði. Af orðum sögunnar má ráða, að Korm- löð drotning hafi þá verið J)ar, og líklegast sem forráðamaður með syni sínuni. 998 gaf Brian Sigtryggi Silkiskegg aftur konungdóm í Dýflinni, og gifti honum dóttur sína. Jafnfram álíta menn, að Sigtryggur hafi gift Brían móður sína Kormlöðu, sem Brian liefir séð í Dýflinni nokkru áður. Aldur Donchads, sem var sonur Jjeirra, bendir til Jiess, að gifting Jíeirra hafi ekki borið að síðar.(3j Giftingar Kormlaðar voru ekki öf- undslausar á írlandi, um það ber visan um Kormlaðar stökkin vitni. Ilún giftist tveim hvorum eftir annan, sem voru báð- ir á lifi samtimis. Það, sem hvorki Irar, né jafnvel Njála geta fyrirgef- ið henni, er að hún varð Brían að falli. Maelmordha konungur af Leinst- er færði Brían skatt vorið 1913, og hafði þegar hann kom til Kinnkóru mist silfurhnapp af gulldreglaðri silkikápu, er Brían hafði gefið hon- um. Hann bað Kormlöðu systur sina að festa hnapp á kápuna. Hún kastaði kápunni á cldinn, og ávít- (1) Quáran er Cuáran á írsku og þýðir: Ilskór. (2) Faðir Melkorku, sem dó hér á landi, var Mýrkjartan sonur Ni- all's Glundubhs, sem mestur var Irakonungur á undan Brian. (3) Tigernacs annálar telja dánar- ár Kormlaðar 1030. Annálar hinna 4 meistara, taka upp vísu um hin 3 stökk Kormlaðar, sem engin kona ætti að gjöra. liitt til Atha-Cliath (Dýf)innar). Annað til Teamhar (Tara) og þriðja til gullkaleiksins í Cashel. Konungarnir í Munster voru konungar í Gashel, þótt Brían sæti lengst í Kinkora við Shannon fljót-1 i*. aði hann harðlega fyrir, að þola Brían Jirælkun og ánauð. Hvorki faðir þeirra né afi hefði nokkru sinni J)olað það. Murchad, elzti son- ur Brians, brígslaði konunginum um flótta hans úr orustunni við Glenmama. Maelmordha fór burtu ákaflega reiður, og byrjaði uppreist gegn Brían og öllu hans veldi í fé- lagi við Sigtrygg Silkiskegg. Þeir frændur forðuðust alla höf- uðbardaga uin sumarið. 9. septem- ber settist Brían með óvigan her um Dýflinn. Borgin varð ekki unnin; en Brían hjó upp og brendi Þórs- skóg milli Liffey og Tolku, og hjó brautir i hann fyrir norðan Clon- líxri.(i). F’yrir jól þrutu allar vistir umsáturshersins, og þeir feðgar héldu heim aftur. 3. Liðsafnaður Kormlaðar og Sig- tryggs. Kormlöð er þá i Dýflinni, er um- sátin er hafin, og yfirvegar og veg- ur, hvað þurfi til þess að etja kappi við Brían og koma honum í hel. Njálaé57 lýsir henni svo: “Hon var allra kvenna fegrst, ok bezt at sér orðin um þat alt, er henni var ó- sjálfrátt. Enn ]>at er mál manna, at henni hafi alt verit illa gefit, þat er henni var sjálfrátt”. Þau mæðgin sendu nú menn til allra víkinga- bygða á frlandi. An'efa liafa þau þá eða síðar sent menn til Maelsechla- inn, en hann að likindum svarað tvíræðu. Þau hafa sent til Norman- dí, Frakklands, Wales, Englands og Skotlands. Þaðan, sem Austmenn eða Norðmenn voru fyrir, var helzt liðs von. Þau hafa sent til eyjanna fyrir norðan Skotland, og að likind- um til Noregs og Danmerkur. Hvar sem Dýflinnar menn hittu sækon- unga, eða víkinga, hafa þeir borið þeira orð Sigtryggs og Kormlaðar. Alt aðkomulið átti að vera komið til Dýflinnar í síðasta lagi á Pálma- sunnudag'TOH. Kormlöð eggjaði mjög Sigtrygg son sinn til að drepa Brían konung, segir Njála. Sigurður jarl Hlöðvis- son hafði almannaróm á sér fyrir harðfengi og sigursæld. Þangað sendi Kormlöð Sigtrygg son sinn. Hann þurfti að vinna til atlögunnar. Þegar Sigurður jarl setti það skil- yrði, að hann fengi konungdóm á frlandi, og Sigtryggur gifti honum Kormlöðu, ef þeir feldi Brian, og Sigtryggur hét honurn því, lofaði hann að ganga í málið. Konung- dómurinn, sem um var samið, hlýtur að hafa verið yfirkonungdómur Brí- ans, og svo verið litið á, sem hann væri heiinanmundur Kormlaðar. Kormlöð lét sér vel líka, að gift- ast Sigurði jarli, en kvaö Sigtrygg þó skyldu draga að meira lið. Sig- tryggur spurði, hvaðan Jiess væri von. Hún sagði, að fyrir vestan Mön lægju þeir Bróðir (6) og C- spakr með 30 skipa, 2,000—3,000 manns, alt hið harðfengasta lið, og lagði fyrir hann, að bjóða hvað sem þeir mæltu til. Sigtryggur fór til Manar, bauð Bróður móður sina og konungdóm á Irlandi. Það stóðst hann ekki og gekk i málið. Það fylgdi, að Sigurður jarl mátti ekk- ert vita um samninginn. Njála segir ckki ofsögur af fegurð Korndaðar. 4>ó hún sé fimtug kona, stendur eng- inn af sér, þegar honum er boðin hönd Korinlaðar, þótt þeim sé þver- nauðugt áður um alla liðveizlu. Lýsing Njálu á Bróður er svo: “Bróðir hafði verið maðr kristinn, ok messudjákn at vígslu. Hann hafði kastat trii sinni ok gerðist guðníð- ingr ok blótaði nú heiðnar vættir, ok var allra manna fjölkunnugastr. Hann hafði herbúnað Jiann, er eigi bitu járn. Ilann var bæði inikill ok sterkr, ok hafði hár svo mikit, at hann drap undir belti sér. Þat var víkingsins liggur linunum af lýsingunni. — á útlitinu mun vera rétt. Síðuhallsson sá bæði Bróður og Kormlöðu daginn eftir orustuna. 4. Atburftir fyrir bardagan. Sigurður jarl koin til Dýflinnar á Pálmasunnudag með allan her sinn. 1 liði hans voru Orkneyingar og Skotar af Katanesi. Þar var Þor- steinn Síðuhallsson, Halldór sonur Guðmundar hins rika á Möðruvöll- um, og 15 menn, sem verið höfðu að Njálsbrennu. Alls voru 17 fs- lendingar með honum. Færeyingar voru sömuleiðis með jarli, þótt Er- lingur af Straumey muni hafa verið frá Stroma i Orkrteyjum. Bróðir var l>ar kominn með öllu sínu liði. 1 sama mund dreif að skipalið frá Normandi. írskir annálar nefna meðal kappanna, sem komu, Carlus og Ebric (Elbric), tvo sonu Frakka- konungs, eða konungsins af Loch- (4) Clontarf eða Cluanatarbh þýð- Uxavellir. (5) Njála. Rvik 1894, hls. 418. (6) Bróður kalla Irar Brodar eða Briotor. yfirkonungum svart”. Vaskleiki í fyrstu Lýsingi n Þorsteinn ir: Joffre, hershöfÖingi Frakka Fréttabréf. Yfirforingi Frakka, Breta og Belga á Frakklandi. Hann kvaftst viss um sigur á endanum nú fyrir skömmu, og sama sagði hann er strítHtS byrjatSi. lann (7). Annálarnir geta um Goist- j ilín Gall og Amond, tvo konunga frá Waterford; Amond mun vera Á- mundi hvíti, sem Njála talar um. Þeir nefna ennfremur fjóra ríkiserf- ingja Austmanna: Dubhgall ólafs- son, Gillaciarain son Gluniarainds ólafssonar, Donchad sonarson Herj- úlfs og Ólaf son Lögmanns Goðröðs- sonar. Annálarnir nefna fjóra höfð- ingja, sem stýrðu sínu skipinu hver, og tvo jarla frá Jórvík, sem ef til vill eru söniu inennirnir sem Bróð- ir og Úspakur. Þess utan telja irsku annálarnir fjölda af nöfnum á for- ingjum innrásarhersins, sem erfitt er að gizka á, hvaðan hafi verið, og hvort þeir liafi komið til orustunn-[ ar. f Njálu er margt óljóst og rang-! hermt, sem snertir fra, en það sem sagt er af Norðmönnum rétt. í írsk-! um annálum er margt óljóst og rang- j hernit, sem snertir Austmannaher- inn, og Austmenn, en Jiað flest rétt,' er snertir fra, og fraher, nema hvað írskar frásagnir að jafnaði segja of- sögum um sín eigin hreystiverk, og mannfallið af Austmönnum. Njála segir, að Sigurður jarl liafi komið til “Dýflinnar” á Pálnia- sunnudag. Sigurður jarl, Bróðir og fleiri aðkomumenn, sefn komu sjó- leiðina, hafa tekið höfrt fyrir norð- an Höfða; þar er fiskiskipalægi nú! og lega góð. Aðkomumenn hafa leg- j ið á fjörunum i norðanverðum Bæj-! arflóa, einsog irskir annálar gefa í j skyn, því Jiar lágu skipin á Jiurru j um fjöru, og var ekkcrt lægi, einsog sjá má af sögunni af ólafi Pá, þegar, hann kom J)angað ókunnugur til að ( heimsækja Mýrkjartan “með leður-1 kápuna” afa sinn. Þegar þeir komu hafa þeir sent til Dýflinnar, sem Njála kallar “borgina”, og látið vita um komu sina, en þangað hefir J)á Maelmordha komið með Leinster- herinn, og yfirfylt hvert herbergi og hvern garð í bænum með mönnum j sínum. Brían hélt liði sínu frá Munster og Connaught, norður vfir I.iffey ána langt fyrir ofan Dýflinn. Hann lét ána vera milli sín, borgarinnar, og Leinstermanna. Þegar hann kem- ur nálægt Dýflinni, fær hann vissu fyrir, að allir Leinstermenn eru farnir að heiman, og sendir Don- chad (8) son sinn með flokk Dal- cassia til að ræna í Leinster. Með því að fara fyrir norðan Liffey, á Brian hægra með að sameina sig við Maelsechlainn, sem kemur norðan frá Tara. Herinn slær tjöldum á Fin- glas-sléttunni, svo langt frá Dýfl- inni, að hægt er að vera búinn að fylkja liði, áður en útrásarher frá borginni er kominn norður þang- að. öll herferðin er farin eftir ný- tízku hernaðarreglum, nema það, að senda Donchad burtu með liðsflokk hans, rétt áður en herirnir mætast. Maelsechlainn kom um sama leyti að norðan. Hann hélt her sinuin fyrir sig, og Brían trúði honuin illa. Báðir eru þeir komnir til Finglas miðvikudagskveldið fyrir skirdag. Innrásarherinn erlendi lá í tjöld- um fyrir ofan Höfða, og upp undir Clontarf. — Fimtudags morguninn fréttu þeir að Brian væri kominn með óvígan her til Fliglas. Irar segja, að aðkomnu höfðingjarnir, sem óttuðust efurefli Brians, og hreysti Dalcassia, hafi boðist til að reisa möstur á skipuui sinum, og leggja burtu, ef hann vildi lofa því að ræna hvorki né brenna á F*n- glas-sléttunni. Irar segja, að innrás- (7) I.ochlann þýðir Norðurlönd. arliðið hafi vcrið komið niður á Höfða uni kveldið, en J)á sáu þeir brennurnar á Firtglas og sneru upp eftir aftur. Hvort sem þetta er satt eða ekki, J)á sannar það, að frar hafa vitað, að skip innrásarhersins lágu fyrir neðan Höfða, en ekki á fjörunum fyrir sunnan Clontarf og ströndina þar fyrir ofan og neðan,| einsog sumar lýsingar þeirra af or- ustunni vilja láta vera. Njála seg- ir: “Bróðir reyndi til með forn- eskju, hvernig ganga inyndi orustan. En svá gekk fréttin — ef á föstu- degi væri barist, at Brjánn konung- ur mundi falla ok hafa sigr; enn ef fyrr væri barizt, þa myndi J)eir allir falla, er i móti honum væri”. Þá sagði Bróðir, að á föstudaginn skyldi berjast. Kormlöð kom sjálf frá Dýflinni til innrásarhersins a fimtudaginn, og hefir talað kjark i foringjana. Njála scgir svo: “Fimtu- daginn reið maðr at þeim Korm- löðu á apalgrám hesti ok hafði í hendi pálstaf. Hann talaði lengi við ]>au Bróður ok Kormlöðu”. Hvert erindi J)essa manns var veit sögu- maðurinn (Þorsteinn Siðuhallsson) ekki, en af því sem gjörðist með Ir- um má ráða í það með töluverðri vissu, að maðurinn var sendiir til þeirra Kormlaðar frá Maelsechlainn og hu.«i þau orð að flytja, að Mael- sechlainn nnindi ekki fara til orustu með Brían koungi. Maelsechlainn sat á svikráðum við háða, og ætlaði að raoast á þann herinn, sem biði ósigur. Á fimtudagskveldið valdi innrásarherinn sér vígstöð milli sjávarins og tjarnarinnar rétt fyrir neðan Clontarf-kastala; liar varð siður komist að óvörum í opna skjöldu á her þeirra, vegna tjarnar- innar, sem J)á hefir verið stærri og dýpri en nú. Herinn, sem velur víg- stöðina, hefij- álitið sig hafa minna lið. Staðurinn er hyggilega valinn. Brían fékk sömuleiðis aðvörun nóttina fyrir bardagann. Þjónn Bri- ans sá sjón mikla. Honum þóttu klerkar margir koma til berbúða Bríans, fara með sálmasöng og lest- ur. Hann spurði, hverjir færu J)ar. “Hér er Stí Sennan frá eynni Scat- tery”, svöruðu klerkarnir. “Þvi fer hann burt frá kyrkju sinni?” — “Skuld Brians veldur því”. (Brian hafði saurgað klaustrið á yngri ár- um). “Hann er kominn til að heimta skuld sína”. “Hann þyrfti ekki að koma hingað til þess”, svaraði þjónn Bríans, “skuldin verður greidd Sti Sennan heiina”. — “Hún fellur í gjalddaga á morgun”, svaraði klerk- urinn, “Sti Sennan verður að fá skuld sina”. — Eftir Jiað fóru þeir á braut. Þjónnin sagði Brian frá sjón sinni, en konungurinn varð hugsjúkur, og J)ótti fyrirburðurinn hoða dauða sinn næsta dag. Njála segir. að Brían hafi ekki viljað berj- ast á föstudaginn. Hafi það ekki verið vegna sjónarinnar, sem nii var sagt frá, þá gæti það verið vegna l)ess, að Donchad sonur hans var ekki kominn til hersins úr ránsferð- inni til Leinster. Eftir frásögn lra fór her Dýflinnar og Leinstermanna niður á Clontarf, þegar Brían tók að brenna búgarðana i Finglas á fimtu- dagskveldið. Á fimtudagskveldið gekk Aust- maður, sem lrar kalla Plait, fram fyrir herinn, og skoraði á hólm þeim manni af Iraher, sem þyrði að berjast við sig. íra mcgin gekk fram Domnall Eimhinsson, og þáði ein- vjgiS af liendi írahers. (Framh.). (8) Hann er Dungaður i Njálu. en talinn fyrstur liklega af því hann varð konungur eftir Brian. írar kalla hann Donogh. Spanish Fork, Utah, 5. maí 1915. Herra ritstjóri Hkr.! Það verður eiginlega ekki rétt mikið, sem eg hefi til að segja þér í fréttum, þvi hér ber ekkert stór- kostlegt til tiðinda, sem í frásögur sé færandi. Þii mundir varla fara að telja það með fréttum, þó eg segði að veturinn væri liðinn, en sumarið byrjað, því allir vita það. En geta mætti þess, að siðastliðinn vetur var einnnma góður, og vorið, það sem af því er liðið, hefir einnig ver- ið mikið gott. Það koni samt dálít- ið áfelli niina um mánaðamótin, sem nú lítur út fyrir, að sé hér um hil á enda. Því fylgdi bæði snjór og regn, og dálitið frost, sem gjörði þó ekki skemdir til muna, eftir þvi sem frézt hefir. Heilsufar er gott og útlitið yfir- leitt fremur bærilegt; en daufir eru tímar, og lítið um atvinnu fyrir verkalýðinn; en það vonar maður nú að lagist, óg rætist fram úr með timanum. Það gjörast engin sérstök tíðindi á ineðal landa vorra; þeim liður flestum þolanlega, og klóra furðan- lega i bakkann með að lifa og kom- ast af, í þéssum daufu stríðs- og Demókrata timum. F7n lítið lield eg þeir séu að hugsa um heimferðir með Gullfossi; samt mun öllum það sönn gleði og ánægja, að heyra og sjá, hvað þetta þýðingarmikla fram faraspor þjóðar vorrar er nú vel á veg komið. Vér óskum Eimskipafé- laginu af hjarta til allrar lukku, og vonum, að það megi aukast og efl- ast, og breiða sig um allan sjóinri, — öll höfin, væri máske heppilegra að hafa það. Byggi síðan járn- brautir um alt ísland, og leggi síðan fréttaþráð beina leið til Ameriku! Þá yrði nú gaman að lifa; og þá fyrst yrðu íslendingar það, sem réttir og sannir íslendingar ættu að vera. Jæja, þetta munt þú nú kalla rugl, svo það er bezt að snúa við blaðinu og tala um eitthvað annað. Seint í apríl -— mig minnir þann 18. — lézt á sjúkrahúsi í Salt Lakc City, einn af lönduin vorum Vilhelm IV. Thomsen að nafni, nær 70 ára að aldri, og ókvæntur. Um ætt lians og æfiferil er oss lítið kunnugt, ut- an að faðir hans var danskur, en móðir íslenzk og að hann var fædd- ur á fslandi, einhversstaðar á Vest- urlandi, — liklega Dýrafirði, þar sem faðir hans var búsettur og eitt- livað riðinn við verzlunarstörf. Thomsen þessi, sem eg er að tala um, var eittsinn í Vestmannaeyjum, og fékst þar við verzlunarstörf; en fór þaðan og flutti til Ameriku sjálf- sagt fyrir 40 árum siðan, eða jafn- vel meir. Hann dvaldi fyrst austur í ríkjum, cn hvar veit eg ekki. Kom til Utah fyrir rúmum 20 árum; hélt til i námaþorpinu Winterquarters, um nokkur ár, svo í Spanish Fork. og síðast í Salt Lake City, hér um bil i 12 ár, og var hann þar i þjónustu hjá járnbrautarfélaginu Denver and Rio Grande, þar til hann lézt; ogjiar var hann grafinn. Systur eina og bróður minnir mig hann ætti. Er bróðurinn dáinn, en systirin lifandi, það eg veit, ein- hversstaðar á Vestfjörðum, og mun vera kölluð Madama Möller (?) Þetta verður mi alt sem eg hefi að segja um þenna landa vorn, í ætt- fræðislegu tilliti. Eg þekti Thomsen heitinn vel, og álit að hann hafi verið geðugur karl, dugnaðarmaður í starfsemi, trúr og áreiðanlegur i viðskiftum, eu dálit- ið skritinn í lundarfari. Hann var vel að sér í bókleguin fræðuni, bezti skrifári og ágætlega reikningsfróð- ur. Hann sýndist einlægt koinast allvel af í lifiriu; en auð átti hann engan. Og litur því helzt út fyrir, að um hann mætti scgja, einsog marga fleiri, að hann hafi ekkert grætt og ekkert mist á því að vera til. Friður sé með lionuni og þökk fyr- ir góða viðkynningu og samveru! Einar II. Johnson. THE CANADA STANDARD LOAN CO. A8al Skrlfatofa, Wlnnlpes $100 SKULDABRÉF SELD Tilþæglnda þeim sem hafa smá. upp- hættir til þess ah kaupa, sér i hag. Upplýsingar og vaxtahlutfall fæst á skrifstofunni. J. C. Kyle, rá8ama8or 42H Maln Street, Wlnnlpe*. Rafmagns heimilis áhöld. Hughee Rafmagns Eldavélar Thor Rafmagns Þvottavélar Red Rafmagns Þvottavélar Harley Vacuum Gólf Hrelnsarar “Laco” Nitrogen og Tungsten L&mp- ar. Rafmagns “Fixtures” “Universal” Appliances J. F. McKENZIE ELECTRIC CO. 283 Kennedy Street Phone Maln 4064 Wlnntpes VltSgJörtSlr af öllu tagl fljótt og v.l af hendl letstar. D. GEORGE & CO. General House Repairs Cablnet Makera and Uphotaterera Furnlture repaired, upholstered and cleaned, french pollshlng and Hardwood Flnlshlng, Furnl- ture packed for shlpment Chalrs neatly re-caned. Phone Garry 3112 360 Sherbrooke St. BrúkatSar saumavélar metl hœfl- legu vertSt,; nýjar Stnger vélar, fyrlr penlnga út 1 hönd etla tll lettgu Partar t allar tegundlr af vélum; attgjörts á öllum tegundum af Phon- nographs á mjög lágu vertSt. J. E. BRYANS 531 SARGENT AVE. Okkur vantar duglega “agenta” og verksmala. Ein persóna .(fyrir daginn), $1.50 Herbergi, kveld og morgunveróur, $1.25. MáltíÓir, 35c. Herbergi, ein persóna, 50c. Fyrirtak í alla staói, ágæt vínsölustofa í^sambandi. Talsíml Garry 2252 R0YAL 0AK HOTEL Chas. Gustnfsson, eigandl Sérstakur sunnudags miódagsveró- ur. Vín og vindlar á boröum frá klukkan eitt til þrjú e.h. og frá sex til átta aó kveldinu. 283 MARKET STREET, WINNIPEG Isabel Cleaning and Pressing Establishment J. W. QUINN, elgandl Kunna manna bezt aö fara meS LOÐSKINNA FATNAÐ VttSgertSlr og breytlngar á fatnatSl. Phone Garry 1098 83 Isabel St. hornl McDermot * Getið þess að þér sáuð aug- lýsinguna í Helmskringlu. Bretar búast við að stríðið standi eitt ár ennþá. Fjármálaráðgjafi Lloyd George, hýst við að striðið standi eitt ár enn j þá, því í fjárlaga frunivarpi sinu, er ; hann lagði fyrir þingið nýlega, gjör- ir hann ráð fyrir útgjöldum til striðs ins alt fjárhagsárið 1915—1916. Fjárinálaráðgjafinn gjörir ráð fyrir, að stríðkostnaðurinn nemi 85,682,170,000 — fimm billiónir, sex S hnndruð áttatin. og tvier milliónir og hudrað og sjölíu þiisund dollara fyrir komandi fjárhagsár. En ef j stríðið stæði ekki nema se\ mán- uði, þá yrði kostnaðurinn $3,952,-1 290,000, og mun flestum þykja það j fullmikið; enda svo liá tala, að færri geta gjört sér ljósa hugmvnd! I ' [ um hana. H.JOHNSON Bicyle & Machine Works Gjörlr við vélar og verkfærl relðhjól og mótora, skerpir skauta og smfðar hluti 1 bif- relðar. Látið hann sltja fyrlr viðskiftum ykkar. Alt vel af hendi leyst, og ódýrara en hjá öðrum. 651 SARGENT AVE. Coiumbia Grain Co., Limited 140-44 Grain Exchange Bldg. WINNIPEG TAKIÐ EFTIR! Vér kaupum hveiti og aðra kornvöru, gefum hæsta verð og ibyrgjumst áreiðanleg viðskifli Skrifaðu eftir u oplýsingum. TELEPHONE MAIN 3508

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.