Heimskringla - 20.05.1915, Blaðsíða 8
BLS. 8.
H E I M S K H I N G L A
WINNIPEG, 20. MAÍ 1915.
1
Úr Bænum
Yér viljum leiða athygli manna
ali bréfinu frá Kolskeggi Thorsteins-
*yni, er hann skrifar móður sinni
írá spítala einum á Englandi, þar
sem hann hefir legið í sárum. Það
er einsog margur hugsi sér þá kjökr-
andi, drengina héðan, og skjálfandi
s»f ótta fvrir Þjóðverjum. Bréfið frá
Kolskeggi sýnir eitthvað annað.
l»ar er ekkert víl eða væl; hann
gengur kátur og glaður til víganna;
hann brosir að sárum sínum; hann
hlakkar til þeirrar stundar, að kom-
ast á vigvöllinn aftur. Hann átti dá-
Htið eftir: — að sigra Þjóðverjana,
bamamorðinujana, sem eitri blása.
Og svo mun um fleiri landana þar.
Fréttaritarar, sem oft hafa hreður
©ghcrferðir séð, segja, að aldrei hafi
þeir séð aðra eins menn og Canada-
niennina, sem bornir eru hurt særð-
ir og hálfdauðir. Þar er eínn hugur
alira: að koma aftur til leikanna;
þeir þrá þá stund, að þeir hressist,
svo þeir geti hvrjað aftur.
“ÖH stríð eru góð”, segir Hindú-
inn; “en þetta er himnaríki.l” En
Canada-maðurinn hugsar dálítið á
aðra leið: “Þó að þetta sé helvíti,
þá verð eg að halda það út til að
hnekkja brennuvörgunum, barna-
jnorðingjunuin og þeim, er rjúfa orð
ogeiða!” Þeir berjast fyrir réttlæt-
inu og frelsinu.
Mrs. Jón l.axdal, frá Mozart, Sask.,
sem verið hefir hér í bænum til
lækninga síðan í febrúar sl. og geng-
ið undir þrjá uppskurði, fór héðan
heimleiðis á miðvikudagskveldið.
Hún hefir fengið nokkurnveginn
bot meina sinna.
Mrs. Laxdal biður Heimskringlu
að flytja íslenzku læknunum, l)r. B.
J. Brandson og I)r. Jóni Stefánssyni.
er stunduðu hana af inestu alúð og
umhyggju, sínar beztu þakkir, og
einnig þeim hjónum Mr. og Mrs. .1.
Bergmann, 772 Ingersoll St., sem
hún dvaldi hjá þegar hún ekki var á
sjúkrahúsinu.
S. Á. Johnson prentari hiður Hkr.
að geta þess, að dregið var um
hjólið hans á mánudaginn var, eins
og til stóð, og hlaut það S. P. Sig-
urðsson, er keypt hafði nr. 230.
Djáknanefnd Fyrstu lútersku
kyrkjunnar heldur hjálparsamkomu
í Goodtemplarahúsinu á þriðjudag-
inn 25. maí, kl. 8 síðd. Til skemt-
ana verða 4 valin inusik stykki;
einnig segir hr. A. S. Bardal ferða-
sögu sina.
S. B. Stefánsson, B.A., sem nú út-
skrifaðist af Manitoba University,
fór á mánudaginn var til Zant P.O.,
Man., til þess að kenna þar. — Vér
hálfsjáum eftir að missa hann héð-
an, þvi vér höfum kynst honuin dá-
litið og þó stuttan tíma; en óskum
honuin til lukku, hvar sem hann fer.
VANTAR UNGLING
át á land, 14—16 ára ganilan. Upp-
lýsingar á skrifstofu Heimskringlu
*kki seinna en næsta mánudag.
Takið eftir auglýsingu um Piano
fíecital, sem Sigríður F. E’riðriksson
heldur með nemendum sinum í
Goodtemplarahúsinu 20. þ. m. Það
er æskan, sem þar verður, og þar
koma fram hinir komandi borgarar
lands þessa, piltar og stúlkur. Það
vcrður óefað skemtilegt fyrir alla þá
sem að æskunni hneigjast.
LElDfífiTTING á missögn í and-
fátsfregn Jórunnar sál. Einarsson,
Hekla, Ont.: Börn þeirra Jakobs og
Jórunnar sál. Einarssonar, til heim-
His við ofangreint pósthús, voru !):
þrir piltar og sex stúlkur. Stúlkurn-
ar lifa allar en einn drengur er dá-
ínn.
Coneert verður Tialdið á l.undar,
föstudagskveldið 28. maí. Þeir, sem
taka þáU i þvi verða: Mrs. S. K. Hall,
soprano, Mr. Fred Dalman, cellist,
og Mr. S. K. Hall, pianist.
Aðgangur 35c
BIBI.fU-FYBIBLESTUB
í Good Templara húsinu (neðri
salnum), Cor. Sargent og McGee,
fimtudagskveldið 20. maí kl. 8 síðd.
— Efni: Vitrunin í Daniels 7. kap.
Hver eru hin fjögur dýr sem þar
nefnast? Hinn mikli andstæðingur
guðs, hver er hann?.— Myndir sýnd-
ar fyrirlestrinum til skýringar. Inn-
gangur ókeypis. Allir velkomnir.
Davið Gtiðbrandsson.
Samkoma á Bræðraborg
við Foam I.ake, verður haldin
jiann, 28. maí. Program skemtilegt,
og dan.s ó eftir. Fólk er vinsamlega
beðið að fjölinenna á þessa sam-
komu hún er haldin til þess að
hjálpa góðu málefni áfram.
Inngangur 25c, og 25c f.vrir dansinn.
J. A.
V er'SIaunaglíma.
Sleipnir félagið ætlar að hafa verð |
launaglímu núna. Það inuna víst
margir eftir glimunum jieirra i vet- i
ur. Það var fult hús og vér hyggjum
að hver einasti maður, karl og kona,;
sem þar var inni, liafi álitið jiað ;
hina beztu skemtun að horfa á þá
strákana. Þeir voru býsna hvat- j
legir.
Nú er seinasta tækifæri í bráð og |
bezt að nota það. Þarna verður I
glímd enska, rómverska og íslenzka !
glíman, hnefaleikur Breta sýndurl
og ótal fleiri íþróttir aðrar, og svo
sungið og spilað. Þeir eru að heilsa j
sumrinu, drengirnir,; og ef að nokk
uð gleður hjarta karls og konu jiá er j
það að sjá vasklega drengi og
hrausta takast fangbrögðum og sýna |
frækleik sinn og hreysti. Það er
stórum betra en þessi ensku leik-
spil, eða hvað það nú kallast, sem
margir eru af fhVnsku sinni að gefa
fé til að sjá. ,
Einn íslendingurinn af þeim sjö,
sem héðan fóru með 27. herdeild-
inni þann 12. þ. m., var Friðrik
Brtjnjólfur ólafsson Vopni, 18 ára
gamall, og var i hornleikaraflokki
herdeildarinnar. Foreldrar hans eru
—: ólafub Vopni, Karlstone Block,
Suite B., 537 Victor St., Winnipeg;
en móðir Stefanía Ingibjörg Árna-
dóttir, dáin fyrir 7 árum síðan. Pilt-
urinn á ’ systkyni á lífi; 2 systur
hans giftar hérlendum mönnum, 2
systur ógiftar og |irir hræður upp-
komnir.
Vér viljum enn biðja foreldra eða
frændur jieirra, sem í stríðið fara,
að gefa oss nöfn þeirra, og eins væri
gott að fá fregnir af þeiin, er þeir
skrifa heim.
BAZAAR.
Þeir sein ætla að taka þátt í sam-
sæti fyrir Thos. H. Johnson verða
að láta nefndina -vita eða kaupa að-
göngumiða ekki siðar en á fimtu-
dagskveldið.
Hra. Swain Swainson er til heim-
ilis að 605 Sargent Avenue, en ekki
Irigersoll Street, eins og var i sið-
nstu Heimskringlu.
Verðlaunaglíma
verður þreitt af íþróttafélaginu
Sleipnir, nú á
Laugardagskveldið
22 þ.m.
í Goodtemplara húsinu á Sargent
og MeGee St. Ásamt fleiri skemt.
unum og dans ó eftir. Aðgangur
25c. Byrjar kl. 8.
Kvenfélag Cnítara er að undir-
búa Bazaar, sem verður haldinn í
samkomusal safnaðarins 27. til 28.
þ. m. Um mörg undanfarin ár hefir
félagið haldið Bazaar á þessum
tima og æfinlega haft góða muni að
bjóða fyrir lágt verð. í þetta skifti j
verður engu síður vandað til Baz- j
aarsins en að undanförnu, og von-
ar félagið að viðskiftavinir og kunn-
ingjar frá fyrri, árum heimsæki sigi
enn á ný. Ýmislegt smávegis og
fatnaður verður þar á boðstólum;]
alt traust og vandað, og alt mjög;
ódýrt.
Fundur í Ungmennafélagi Únítara j
fimtudagskveldið í þessari viku.
Meðlimir eru beðnir að mæta.
Umræðuefni í Únítara kyrkjunni
næsta ^sunnudagskveld : Hátið and-
ans, — hver er þýðing hennetr? —
Allir velkomnir.
B0ÐSKAPUR
um Eatons Bindara Tvinna Verð
IN MÁNÍTÖBA .:
SASKÁTCkÉWAN
ANDALBERTA
Hér fyrir neðan eru sýndir Eaton’s Bindara Tvinna prísar fyrir árið 1915. Þessi tvinni er
algjörlega bezta fegund sem búin er til úr ekta manilla. Hver hnikill jafnar sig upp með 550 fet
í hverju pundi.
Það eru aliar ástæður sem benda til þess að þetta ár verði meiri eftirspurn eftir tvinna en
nokkurn tíma áður í sögu vesturiandsins. Þessvegna, ef þig vantar að hagnýta þér og ábatast af
Eaton’s prísum þá er áríðandi fyrir þig að panta strags, vegna þess að upplagið á þessu verði end-
ist ekki lengi.
Það er nauðsynlegt að senda $5.00 niðurborgun með hverri pöntun, afgangurinn borgast C.O.D
Þessir prísar sem hér eru sýndir eru prísar á tvinnanum á næstu járnbrautarstöð við þig.
MANÍT0BA
iooTbs. $9.10
SASKATCHEWAN
Per
100 lbs. $9.45
Skrifið eftir verði á vagnhlassi.
ALBERTA
$9.75
Per
lOOlbs.
<*T. EATON C?1MTED
WINNIPEG - CANADA
Hátíðarguðsþjónustur í Skjald-
borg.
*
Á hvítasunnu, kl. 11 f. h., guðs-
þjónusta og ferming ungmenna.
Að kveldinu, kl. 7.30, guðsþjón-
usta og altarisganga.
ÍSLANDSFARAR MEÐ GULL-
FOSSI.
Fóru héðan á miðvikudagskveldið
milli kl. 9 og 10; komu til New York
Taugardagsmorguninn.
Aðalsteinn Kristánsson og kona hans
Mrs. Lára BjarnaSon
Mrs. G. Paulsson
og Mrs. Kr. Halldórsson (háðar
systur frú Láru)
Mr. og Mrs. Haraldur Andersen
Friðr. Bjiirnsson, tinsmiður.
Daniel Sigurðsson, póstur.
ólafur Bjarnason og kona hans.
Haraldur Alex Möller.
Mrs. Bósa Gíslason frá Grafton.
Báturinn átti að fara á laugardag-
inn, en beið til inánudags; þá fór
hann.
Bréf á Heimskringlu.
Þorleifur Hansson, yfirsmiður, frá
Akureyri.
Kristján Snæbjörnsson, frá Pat-
reksfirði.
Mrs. Guðrún Hermann, Winnipeg.
2 bréf.
Konan mín fékk köldu, með verk
S bakið
#g i höftíinu. Hún haföi verki um sig
alla. ÞatS byrjatSi atS morgni, um há-
degi var hún komin í rúmitS og farin
atS taka inn
Dr. Miles’ Nervine
»g Anti Pain Pills eins og rátSlagt.
Eftir einn etSa tvo daga var hún al-
bata, og vltS erum viss um aö ef hún
neftsi tekiö Dr. Mile’s Nervine strax
og hún kendi veikinnar þá heftSi hún
varist hennar.
REV. E. B. BLADE,
Manhattan, Kan.
Köldu sjúklingar eru vanalegá
mjög eftir sig vegna jiess að hitaveik
in og verkirnir draga mjög úr lífs-
kröftunum. Til þess að taugakerf-
ið nái sér aftur eftir þessa veiki er
ekkert því líkt eins og Dr. Mile’s
Nervine.
Selt með þeirri ábyrgð að pening
nnum verði skilað aftur ef fyrsta
ilaskan bætir ekki.. Hjá öllum lyf
sölum.
Tilboð um að byggja
skóla.
Tilboðum um, að byggja að öllu
leyti og leggja til efni í tveggja her-
bergja skóla, að Lundar, Man., verð-
ur veitt móttaka af undirrituðum til
24. maí næstkomandi. Plans and
specifications til sýnis hjá Paul M.
(ilemens, Winnipeg og undirrituð-
III!I.
Einnig er óskað eftir tilboðum í
bygingu skólans, “plastering”, máln-
ingu, “concrete work”, hitun og
efni, hvert i sinu lagi.
Ekkert eða lægsta tilboð nauð-
synlega jiegið.
D. J .Líndal, Sec’y-Treas. j
I.undar, Man.
Á þriðjudaginn eftir hvítasunnu
heldur Bjarmi sérstakan fund til að
fagna fermingar ungmennunum.
Páll Ásgeir Ingvason, nú í Minne-
apolis, hefir fengið veitingu fyrir
námsstyrk frá AmeriCan Scandina-
t}ian Foundation. Hann verður við
búfræðisháskóla í Californiu (Ber-
key). Hann ætlar að leggja fyrir
sig vatnsveitingar. Er útskrifaður
frá búnaðarskólanum á Hólum.
Þann 8. maí voru eftirfylgjandi
meðliinir settir í embætti i barna-
stúkunni Æskan, I. O. G. T.:
Æ.T.—Inga Thorbergsson.
V.T.—Bína Johnson.
Rit.—E'ríða Long.
Aðst.-Rit.—Elsie Pétursson.
F.-Rit.—Clara Johnston.
Gjaldk.—I.aura Johnson.
Kap.—Muriel Oliver.
Dróttseti—Violet Johnston.
Aðst.-Dr.—Friða Olson.
Vörður—Alex Oddleifsson.
Ú.-V.—Einar G. Johnson.
F.Æ.T.—Lily Goodnian.
Meðlimir nú 110 börn og 15 full-
orðnir. Fundir haldnir í Good-
templarahúsinu á hverjum laugar-
degi og byrja kl. 3.30 e.m.
FLUTTIR
Hérmeð tilkynni eg almenningi
að eg hefi flutt mig í stærri og
betri búð, þar sem öll viðskifti
geta gengið mikið greiðar en
áður.
Nýja búðin er að:
572 Notre Dame Ave.
aðeins þreinur d.vruin vestar en
gamla búðin.
Central Bicycle Works
S. MATTHEWS
eigandi.
TELEPHONE - GARRY -121
Kvenfélag Skjaldborgar safnaðar
hefir ákveðið að halda Bazaar mánu
daginn 31. þessa mánaðar. Gætið
nánari auglýsingar i næsta blaði.
Söngsamkoma verður haldin 1.
júní næstkoni. Standa fyrir hcnni
nokkrir karlmenn (sex manna flokk
ur). Vandasainir kórsöngvar verða
sungnir, á svensku, íslenzku og
ensku; þar á meðal hið heimsfræga
Sextet from Lncia, Donezelti í ís-
I lenzkri þýðingu (Nóttin kallar).
| muna menn eftir því númeri, sem
sóttu söngsamkomuna í Skaldborg í
fyrra vetur. Solo, Duel ogTrio inn
milli kórsöngva. Nákvæmari aug-
lýsing og prógram í næsta blaði.
Skýring
1 tölublaði Heimskringlu, sem út
kom 6. þ. m., er æviminning Sess-
elju Haldórsdóttur i Akra bygð i N.
Dakota. Seselja er þar ættfærð til
Þorláks blskups Skúlasonar á Hól-
um, ásamt fleiri nafnkendra manna.
Ættfærslan endar á þesari setningu;
“En kona Þorláks biskups var
Steinunn dóttir Guðbrands biskups
Þorlákssonar”.
Þeta er dálítið vilt meðfarið. —
Steinunn, laundóttir Guðbrandar
byskups, er fædd 1572. Það sama
ár gekk Guðbrandur byskup að eiga
Halldóru Árnadóttur frá Hlíðarenda.
Steinunn byskupsdóttir er gefin 18
vetra (1590) Skúla Einarssyni Þór-
arinssonar frá Bólstaðahlíð. Þau
Skúli og Steinunn bjuggu að Eiríks-
stöðum í Svartárdal. Þau áttu mörg
börn. Einn sonur þeirra var Þor-
lákúr. Hann var fljótt gott manns-
efni. Lærði í Hólaskóla. Fór þris-
var sinnum utan, og lærði við há-
skóla erlendis. Han var gleðimað-
ur og latínuskáld. Hann var kosinn
biskup 1628. Hann hafði áður ver-
ið prestur og skólameistari. Hann
1629. Síðar sama ár giftist hann
Kristínu Gísladóttur lögmanns (Há-
konarsonar sýslumanns, Árnasonar
í Klofa á Landi). Þorlákur byskup
og Krisín giftust í Bræðratungu.
Þeirra börn voru: Gisli (byskup á
Hólum 1657—1684); Skúli (prest-
ur), Guðbrandur, Þórður (gradittm
magisterii, uice-byskup 1672, bysk-
up í Skálholti 1675, næst eftir Brynj-
ólf Sveinsson); Jón (sýslumaður),
og Elín.
Bróðir Kristinar, konu Þorláks
bj’skups, var Vigfús Gíslason, sýslu-
inaður á Hvoli (d. 1647). Hann átti
Katrínu Erlendsdóttur, svark mik-
inii, harðlynda og peningaskýggna.
var vígður til byskups í Danmörku
Það er þvi engum blöðum um það
að fletta, að Steinunn var móðir en
ekki “kona” Þorláks byskups. Má
margt fleira tilfæra.
K. Ásg. Benediktsson.
Lærið Dans.
Sci lexfur icera yflor
fullkomna o«r koatar
»5.00 — PIUVAT tll-
Nii^n elnMleica.—
Komin, Nímin, akrlflO
Prof. ogr Mra. E. A.
WIRTH, 30S Kena-
Ingrton Dlock. Tal-
Mlml M. 4582.
Vér viljum benda á auglýsingu
j hr. Jóns H. Árnasonai um samkom-
una á Bræðraborg við Foam I.ake,
sem nú er auglýst hér í hlaðinu.
I Menn ættu að sækja hana. — Þó að
vér segðum eitthvað um grein Jóns
um daginn, þá álitum vér hann vera
dreng hinn bezta og vel skýran og
liann er að gefa sig út fyrir fagnrl
málefni og gott, sem sannarlega er
þess vert, að menn styrki fremur en
j margt annað, sem menn eru að
) fleygja peningum til.
FUNDARB0Ð
Gjaldendur í Bifröst sveit. Takið eftir!
Aukalög sveitarinnar Nr. 113 hafa farið í gegnum fyrstu og
aðra umræðu og eru nú fyrir yður til að greiða atkvæði um.
Fer sú atkvæðagreiðsla fram hinn 9da júní, n.k., eins og sjá
má á auglýsingum sem sendar hafa verið út um sveitina. Auka-
lög þessi leyfa sveitarráðinu, að taka $52,500.00 lán með sölu
skuldabréfa sveitarinnar fyrir þessari upphæð. Lán þetta skal
endurborgast á 30 árum með 5J/2 prósent vöxtum. Lántaka þessi
er til vegabygginga víðsvegar um sveitina.
Til þess að ræða þetta mál er hérmeð ákveðið að fundir
verði haldnir á eftirfylgjandi stöðum:
Víðir Hall, Miðvikudag 26. maí, kl. 2. e.m.
Okno, Fimtudag, 27. maí, kl. I I f.m.
Framnes Hall, Föstudag 28. maí, kl. I I f.m.
G. T. Hall Árborg, Föstudag 28. maí, kl. 4 e.m.
Fyra Skólahúsi, Laugardag, 29. maí, kl. I I f.m.
Geysir Hall, Föstudag 4. júní, kl. 2 e.m.
Riverton Hall, Laugardag, 5. júní, kl. 2 e.m.
Mikley, Hecla Hall, Mánudag, 7. júní, kl. I I f.m.
Hnausa Skólahúsi, Mánudag, 7. júní, kl. 4 e.m.
Á öllum fundunum verður oddviti og skrifari, annarhvor eða
báðir,* sveitarinnar og innleiða og útskýra málið. Þetta er mjög
þýðingarmikið málefni fyrir sveitarbúa og því óskandi að þeir
sæki vel þessa fundi.
Hnausa, 14. maí, 1915.
B. MARTEINSSON