Heimskringla - 20.05.1915, Page 4
BLS. 4
H E I M S K R I N G L A
WINNIPEG, 20. MAÍ 1915
Heimskringla H°n. Thos. H. Johnson.
(Stofnutt 1HS6)
Kemur út á hverjum flmtudegl.
trtgefendur og eigendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
VertS blatSsIns I Canada og
Bandarikjunum $2.00 um árlt)
(fyrirfram borgatS)
Sent til Islands $2.00 (fyrlrfram
borgatl)
Allar borganir sendist rátSs-
manni blatSsins. Póst etSa banka
ávisanir stýlist til The Vlking
Press, Ltd.
Ritstjóri:
M. J. SKAPTASON
RátSsmatSur:
H. B. SKAPTASON
Skrifstofa.
;!9 Shfrhrookf Strort. Wjnoiper
Box 31T1 Talnlml Garry 4110
Stjórnarskiftin.
1 fimtán ár hafa Liberalar verið
að berjast við, að ná sætum þessum,
sem þeir nú skipa. Það hefir verið
harður bardagi oft og tíðuin. En
þeim fór einsog öllum, sem þraufa
við það og gefast ekki upp; þeir
náðu takmarkinu á endanum og nú
sjáum vér þá sitja á rökstólum fylkis
þessa.
Persónulegu þekkjum vér j)á ekki
og ekki foringja þeirra, Mr. Norris,
að öðru en því, að hann hefir verið
foringi Liberalflokksins um hríð og
heldur nú stjórntaumunum, er Mr.
Roblin hafði áður. Hinn fráfarandi
stjórnarformaður, Mr. Roblin, gaf
honum bezta vitnisburð og vonaði,
að undir stjórn hans mundi fram-
hald verða á vaxandi velsæld fylk-
isins og ibúa þess. ()g undir þá ósk
ættu allir íbúar fylkisins að taka,—
hverrar skoðunar sein þeir eru. Það
er gömul sögn, að mennirnir geti
verið farsælir undir hvaða stjórn
sem er, hvort sem |iað er einveldi
eða lýðveldi, ef vel og réttilega er
stjórnað; og hún mun enn sönn sú
kenning.
Mr. Norris tekst á hendur ábyrgð
mikla. Hann hefir að sætinu komið
gegnum boða og úfinn sjó pólitiskra
mála, og andstæðingar hans víkja
úr sætum, svo að hann geti fengið
nieirihluta á þingi. — Það er enginn
vafi á því, að það er mikill vandi,
sem hann tekur við. Liberalar voru
búnir að lofa, að koma fram ýms-
um velferðarmálum, sem öllum er
nauðsyn á að fram gangi. Og nú
hafa þeir völdin og geta hagað fram-
kvæmdum öllum eftir sinu höfði.—
Það er svo langt frá þvi, að vér vilj-
um kveða up nokkrar hrakspár, að
vér óskum Mr. Norris og Liberölum,
að þeir geti komið öllum sinum og
fylkisins velferðarmálum fram: Að
þurt verði í fylkinu, svo að enginn
vieti skó sína eða góm í flóðinu, sem
brennir; að konurnar fái jafnrétti,
svo að þær verði ekki lengur undir-
okaðar og kúgaðar og sviftar rétti
sinum; að fjárdráttur alls konar
verði úthrakinn og óhelgur gjörður,
svo að engin steli úr annars vasa,
hvorki vina sinna eða annara. Alt
þetta er oss ant um, og að heiðri
fylkisins sé á lofti haldið, og at-
vinnuvegir efldir, og þvi fyrri, sem
þeir gjöra það, og þvi betur, sem
þeim lukkast það, því fastar setjast
þeir í sessi, og því meiri hylli fá
þeir hjá aiþýðu inanna.
I
Þau eru komin stjórnarskiftin,
sem vér bjuggumst við að hlytu að
verða, eftir að annar flokkurinn var
búinn að sitja jafn lengi að völdum
— og vér erum ekkert um það að
fást. En eins viljum vér geta, én það
er það, að alténd einum þeirra get-
um vér mjög vel unnað sætis
þess, sem hann skipar; það er landi
vor Thoinas H. Johnson lögmaður,
nú Hon. Th. H. Johnson. Hann hef-
ir lengi barist í flokki Liberala, og
vér erum sannfærðir um það, að ef
að hann hefði ekki verið útlending-
ur, þá hefði hann staðið nærri því,
að skipa foringjasætið. Þrátt fyrir
alla mótspyrnu hefir hann rutt sér
brautina til sætis þess, sem hann nú
skipar. Og þó að stundum hafi hnút-
ur flogið um borð, þá kunnum vér
ekki að finna það til saka. Hon. Th.
Johnson á þetta sæti og vér ætlum,
að hann muni fylla það og treystum
;því. Og einsog hinn fráfarni stjórn-
t arformaður óskaði eftirmanni sín-
I um allra heilla og að fylkið njóti
hagsælda og velliðunar undir stjórn
hans, eins getum vér ekki minna
gjört, þó af mótflokki séum, en ósk-
að samlanda vorum, Hon. Th. H.
Johnson, góðs gengis, og að störf
j hans beri mikinn og góðan afrakst-
ur og verði happasæl fyrir land og
lýð.
Free Press.
Yér höfum óskað þeim til ham-
ingju forsprökkunum i hinni nýju
stjórn í Manitoba fylki, Mr. Norris
| og landa vorum Mr. Th. H. Johnson.
j Vér teljum hann forsprakka eða for-
j ingja, því að í stjórnarbaráttunni
' hefir enginn staðið honum framar,
og vér viljum taka það fram, að vér
j skitjum þá frá í því, er hér fer á
eftir.
Það var fimtudaginn 13. maí, er
hún kom út greinin í Free Press hér
i í bænum um stjórnarskiftin. Vér
I lásum hana og ætluðum ekki að
j trúa vorum eigin augum, og lögðum
liana til síðu. Vér tókum hana aft-
ur seinna og sáum að þetta var alt
verutegt, og vér ætluin að geyma
í liana sem annað sýnishorni en setja
um svartan ramma.
Þessi ritstjórnargrein í liberal-
j hlaðinu Eree Press er svo svört og
j skítug og níðingsleg og heiftug, að
það er engu líkara en þarna sé kom-
j inn “Vilhjálmur blóð”, eða böðull
1 hans, innhlásinn hans anda. — “Vel
I er nú sungið, sonur sa'll”, er Gott-
skálk biskup grimmi látinn segja,
i við Gatdra-Loft, þegar Loftur var aðí
særa frá honum Gráskinnu í Hóla-I
kyrkju forðum. Loftur var rprédik-
unarstól, ineð rykkilín og hökul, og
snöri Faðirvori og Blessunarorðun-
um upp á djöfulinn og var nær vit-
laus orðinn; en svipur Gottskálks
glotti framan i Loft með Gráskinnu,
galdrabókina, undir hendinni og
vildi æsa I>oft, svo að hann hamað-
ist, en kyrkjan sykki með öllu sam-
an. — Þessi saga kom oss í hug, og
er hún einhver hin sóðalegasta af
öllum islenzkum sögum. En likingin
milti I-ofts og ritstjóra Free Press
hreif oss áður en vér vissum af.
■ Og það er enginn efi á því, að al-
þýðan, fólkið í fylkinu, viil gjarnan
fá umbætur á svo mörgu; og svo
mun það verða kynslóð fram af kyn-
slóð, ef vér megum dæma af sögu
tiðinna tima. tin þetta kemur af
hinni einföldu ástæðu, að ein umbát
in leiðir til annarar. Hver umbót
er sem þrep í stiga; en það tekur
eitt þrepið við af öðru og einlægt
hækkar.
j Það er nokkuð liart af stað riðið
og malur bónda hatri futlur, ef að
framhaldið verður svona, einsog
Free Press og Lögberg, málgögn Lib-
eral flokksins, fara á stað. Og ef að
LiberaJ flokkurinn samþykkir þessa
stefnu, þá litur út fyrir, að hún
verði nokkuð flekkótt æfin. Ef að
alþýða manna er þessu samþykk, að
þannig sé byrjað og þannig áfram-
haldið, þá er fólk hér í Ganada alt
annað, en vér höfum ætlað það að
j vera, bæði æðri og lægri. Vér höf-
Og það er meira, sein vér óskum:
Vér óskum, að þeir safni að sér svo
góðum mönnum að þar sjáist hvorki
blettur né hrukka, og að atlar þeirra
framkvæmdir verði eftir því. Og
þó að þeir nái ekki inarkinu hinu
hæsta, þá skal það samt gleðja oss,
þvi hærra sem þeir komast.
Og ef að vér lýsum skoðun vorri
á gjörðum þeirra, þá viljum vér
gjöra það af góðum hug. Þeir vita,
sem vér, að enginn getur umflúið
dóma samtiðar sinnar.
: um ætlað að fólk hér væri gæ-tt frjáls
! lyndum, djarflegum, göfugum hugs-
j unarhíetti. Þeir gætu harist og sótt
l fast og látið hnútur fljúga. En ald-
rei hafði oss fvrri komið til hugar,
l að þeir væru slík kvikindi, — menn j
i re.vndar, á tveimur fótnm, en kvik-j
1 indi í eðli sínu.
Það er þoka ennþá yfir málum
þessum öltuni. Það er þoka yfir af-
skiftum Liberala af þeim. Það er
j þoka yfir landsstjóranum. Og þó
að bóli á kolli mjög djúpt inni i þok- j
| unni þá er það ekki kollur Sir H. P.
I Robtihs.
Hún er fallin stjórnin gamla, I
eða hún sagði af sér; og það er eins
og inenn ætli alveg að tryllast og af
göflum að ganga. Einsog stjórn hafi
aldrei i heiminum sagt af sér fyrri!
í Evrópu, sem lengst hefir notið
menningarinnar, er þetta alsiða. Á
Frakklandi skeður þetta stundum oft
á ári. Og er Frakkland þð talið
kannske lengst á veg komið i lýð-
veldisstjórn.
En þegar stjórn þessa fylkis segir
af sér, þá kveður við í hvoftum öll-
um, og formaður hennar, Sir R. P.
PiOblin,, er lagður í einetti; það er
hlaðið á hann öllum hugsantegum
skömmum og svívirðingum, án þess
að sanna eina einustu staðhæfingu,
og það með þvílíku motdviðri og
heiftaræði, að það er engu líkara, en
menn væru óðir og viti fjær, af ein-
hverjum ótta, eða lang-nærðu, nið-
urbyrgðu hatri og heift, sem nú loks-
ins fékk áræði til að brjótast út, þeg-
j ar kappinn var fallinn og hniginn í
valinn. Sanngirni, sannleiksást, sið-
gæði, virðingu, siðum mentaðra
manna er kastað fvrir l>orð. Hér-
Iendir menn mundu kalta þetta:
gutterwork — rennusteinsverk. Og
það því fremur, sem grunur leikur
á, að hvatir Mr. Roblins til þess að
segja af sér völdum á þessum tíma,
hafi verið svo göfugar, að það er
þýðingarlaust að skýra þær fyrir
mönnum þéim, sem fullir eru hug-
mynda þeirra, sem standa á bak vio
og fæða af sér greinar þær, sem
fram hafa komið á inóti Sir R. P.
Roblin.
Það er verið að reyna að telja
niönnum trú um, að alt sé einskis-
virði, sem Mr. Roblin hafi gjört, og
verra en einskisvirði. En hver
skyldi þá verða dómurinn að lok-
inni æfi þessara manna um þeirra
gjiirðir, ef að verk Mr. Roblins eru
einskisvirði ? Því að vér erum sann-
færðir um það, að enginn lifandi
maður hefir unnið eins vel og mik-
ið fyrir fylki þetta einsog einmitt
Mr. Roblin, ekki einungis nú um
stund, hetdur síðan fylkið myndað-
ist. Hann er fremstur allra, ötulast-
ur, einarðastur, drenglundaðastur,
vitrastur, og hefir unnað fylkinu,
frama þess og sóma langt um meira,
en sjálfum sér. Og þegar tímarnir
liða og vér liggjum undir grænni
torfu og þeir allir, sem nú vitja
draga húð og æru af Mr. Roblin,
þegar bein þeirra eru rotin og leiði
þeirra troðin fótum manna og dýra
og nöfn þeirra týnd og minning
þeirra glötuð, — þá verður nafn Mr.
Iioblins letrafí mefí slórum stöfum t
sögu fijtkisins og Canada, sem þess
I manns, er imnn fijlkinn og landinu í
lieild sinni heiðnr og sóma á allan
vcg, og nöfn hvolpanna, sem lágu í
hælum hans verða þá gleymd. Þau
skrifast aldrei á sögunnar spjald.
Vegalán Ný-Islendinga.
Vér höfum verið kunnugir Nýja
tslandi þessi 28 ár, sem vér höfum
verið hér i Ameríku og þektum þar
fyrrum nærri hverja þúfu, keldur,
forarpoll og flóa. Siðan vér vorum
þar fyrst, hefir stórmikið batnað,
enda var full þörfin. Seinna fórum
vér í aðrar nýlendur, þar sem vegir
voru harðir og góðir, og sáum mun-
inn.
Hið fyrsta skilyrði velferðar og
vellíðunar manna í sveitaruiagi
einu eru góðir vegir, — að geta
keyrt þungum ækjum um vegina.
hvernig sem á stendur. Það eru veg-
irnir, sem lyfta upp bygðinnj meira
en nokkuð annað. Hvergi í heimi
eru líklega jafn góðir vegir og á
Erakklandi. Napóleon inikli sá það
fljótt og hann byrjaði það, og því
hefir verið haldið áfram að bæta þá
einlægt siðan; svo að Frakkland
hið fagra er alt ein borg með hörð-
um steinlögðum strætum og bænda-
heimilum, sem eru lystigarðar. —
Hvar sem Rómverjar fóru um tönd-
in, þá lögðu þeir góða vegi, og f.yrir
veginti gátu þeir haldið löndunum.
Þegar Nýja fsland er orðið líkt og
Frakkland, — ein borg með stcin-
lögðum vegum, sem þola hvaða æki,
sem urn þá fer, þá fyrst er farsæld
og framtíð eftirkomendanna trygð;
því þeir lyfta öllu upp: búskapn-
um, félagsskapnum, samhygðinni;
menn verða einsog léttari, fjörugri
og ánægðari.
Þess vegna er þetta í vorum aug-
um hið snjallasta ráð, sem bændur
þar hafa tekið, að fá nægilegt lán
til veganna. Það marg-borgar sig.
Þeim verður alt léttara; löndin
hækka í verði, og sveitin og fólkið
vex stórmikið í áliti. Náttúrlega.
þarf að verja þessu fé vel, og hafa
það eitt fyrir augum, að gjöra veg-
ina nú verulega góða. Vér iiuinum
eftir því, er vér vorum þar nýlega,
að kunningjar vorir voru svo ánægð-
ír yfir vegunum, — það var nokk-
urn veginn þurt þar þá. Þeir voru
að segja, að nú ga'tu menn farið að
hafa þar autó. En þó var tæplega
hægt að fá lengri veg en 4 milna
spotta,- þar sem væri þolanlegur
Sfntó-vegur.
Þegar þessu er nú til kostað — 52
þúsundum dollara, og náttúrlega
meiru — þá dugar ekkert kák, ekk-
ert hálfverk, heldur að hugsa um
það eitt, að gjöra veginn vandaðan,
svo að hann dugi lengur en 5 eða (i
ár. Fara heldur yfir minna, en gjöra
það vel, sem gjört er. Hinir, sem á
eftir koma, geta-þá bætt við.
Vér óskum því hinum gömlu
kunningjum vorum til hamingju
með lánið og hina nýju vcgi. Vér
höfum oft verið að hugsa um, hvað
j það hefði verið skemtilegt, að fara
á hjóli ofan til þeirra, eftir endi-
langri b\gðinni. Skvldi það nokk-
urntíma verða?
Jón Olafsson.
Þér sjáið hér i blaðinu grein eina
— “Stórhugi og alvöruleysi” -— frá
Jóni ólafssyni, rithöfundi,*ritstjóra,
atþingismanni og skáldi. Greinin
hljóðar um orffabókina hina ís-
lenzku, sem hann er að semja. Vér
ætlum, að Jón ólafsson sé þektur af
meirihluta íslendinga í Ameríku, frá
hafi til hafs, bæði i Canada og
Bandarikjunum. Menn inuna eftir
starfi hans sem ritstjóra hér í Win-
nipeg; menn eiga margir kvæðabók
hans; hann var viðurkendur sem
hinn ritfærasti maður eða einn
hina ritfærustu á íslenzka tungu. —
Hinir voru þeir Síra Jón Bjarnason,
Gestur Pálsson og Einar Hjörleifs—
son. Meðan Jón ólafsson var hér,
var hann kunnur að því, hvað lipurt
og fagurt mál hann ritaði. En þeg-
ar vér vorum Jóni samtíða í skóla,
vissum vér að hann hafði mikið orð
á sér fyrir þekkingu sína á íslenzkri
tungu, og þegar hann kom fyrst í
skólann, hafði hann fengist við að
lesa og afrita skinnbókarhandrit, og
það gjöra engir, sem ekki eru vel
færir í málinu.
Og svo er orffabókin. Það er eng-
inn efi á því, að hún verðúr hin
fullkomnasta íslenzk orðabók. — En
l>á kemur spurningin: Þurfum vér
hana? Eða ætla menn sig fulinuma
í íslenzkunni? Eða eru menn svo
langt komnir að kasta henni, að þeir
hirði eki um það, hvað verður af
þessari litlu þekkingu, sem eftir
er?
Einir sextíu hafa skrifað sig fyrir
bókinni hér vestra. Einir 60 af segj-
um 30 þúsundum, því að svo margir
hljóta lslendingar að vera hér í
álfu. Ef vér hugsum til að halda við
íslenzkri tungu, þá er það hlægi-
legt. Menn geta sagt, “að þá láti
hátt í litlum vindi”, er vér i bliiðum
og á mannfundum erum að hrósa
oss af því, hvað vér höldum fast við
gamia málið fagra og elskum heitt
fósturjörðina gömlu og söguriku.
En vér ætlum, að þvi sé öðruvísi
varið. Vér ætlum að kaupa bókina,
— en ekki fyrri en hún er öll knmin
út; og það Iíða ennþá nokkur ár,
þangað til hún verður fullgjörð. —
Þetta er búmannsleg varasemi; vér
viljum ekki kasta peningunum út,
fyrri en vér höfum hlutinn, sem vér
kaupum, *í hendinni. Fjárhagslega
er þetta þjóðráð. — En þess konar
I framkoma drepur hvaða fyrirtæki,
sem fjárframlaga þarfnast. Það
sveltur fyrirtækið það og veltur út
af sem horgemlingar; kraftar allir
þverra við sultinn og framkvæmdir
1 deyja.
En séu nú allar þessar tilgátur
rangar, og þetta stafi alt af gáleysi,
— þá vonum vér að sem flestir lagi
það og panti nú bókina af kappi,
svo að farið verði að flýta fyrir út-
komu hennar. Hún verður áreiðan-
lega þess verði, sem menn borga
fyrir hana. — Og þeir sem unna
íslenzkri tungu og vilja stuðla að
viðhaldi henar hér vestra, ættu að
hvetja íslenzkan almenning til að
kaupa bók þessa.
Þegar seinasta blað var að fara af
stokkunum, barst oss svo mikið af
nýju efni, að vér urðum að ryðja úr
dálkum nokkrum, og varð því sumt
að bíða, sem vér ætluðum að hafa i
blaðinu. Eitt af því var það, að vér
ætluðum að minnast greinar þeirrar
er hr. Jón Jónsson frá Sleðbrójt
sendi oss “Gömlu landnemarnir” —
sem prentuð er í blaðinu. En vér
ætluðum að benda mönnum sérstak-
lega á hana; hún er svo eftirtekta-
verð. Hún er bæði vel hugsuð og
lipurlega rituð, og fer svo nærri
sannri sögu íslendinga hér, sem
hægt er að hugsa sér. Og hún er
þanig úr garði gjörð að öllu leyti,
að hver og einn getur iært af henni
og hefir gott af, ef að hann færir sér
hana i nyt. Og þó að menn séu
búnir að lesa hana einu sinni, þá
erum vér vissir um, að þeir verða
hvorki verri menn né heimskari, þó
að þeir lesi hana aftur.
-j- - — -Jc
DÁNARFREGN.
*-------------------------------*
Laugardaginn 8. maí ‘andaðist að
heimili sinu, 1439 Pembrooke St. í
Victoria, B. C., Giiffnin Arnfinns-
dóttir, kona ólafs Jónssonar; mesta
myndar- og sómakona, góðum he'Ci-
leikum gædd til sálar og líkaira, og
öllum kær, sem kynni höfðu af
henni.
Guðrún sál. varð 52 ára gomul.
Hún eftirskilur hér mann sinn, ölaf
Jónsson, og fjögur fullorðin og
mannvænleg börn og tvö systkyni,
og fjarverandi tvær systur: Mr. J. B.
Johnson, Prince Rupert, og frú Ás-
gerði konu Ágústs Þórarinssonar,
verzlunarstjóra í Stykkishólmi á
tslandi.
Faðir hennar var atorku og efna-
bóndi og bjó lengi í Vatnsholti i
Staðarsveit í Snæfellsnessýslu; nú
dáinn fyrir fáum árum hjá tengda-
syni sínum Ágúst Þórarinssyni i
Stykkishólmi; var ættaður úr Húna-
vatnssýslu. En móðir hennar var
Ingigerður Björnsdóttir frá Sauða-
felli í Dalasýslu og Ásgerðar Guð-
mundsdóttur yfirsetukonu, systur
Sigurðar Guðmundssonar á Heiði í
Gönguskörðum. Móðurbróðir Guð-
rúnar sál. mun vera einn núlifandi,
j Lárus Frímann Björnsson, í Norður
Dakota, nálægt Hallson.
Hin framliðna var góð kona og
j ráðvönd og hvers manns hugljúfi,
j sem kyntist henni. Var hún því virt
j og elskuð af eiginmanni, börnum og
j öllum, er nutu sambúðar hennar.
./. //. J. j
■ 1 Jón Thoroddsen: Feðra minni.
(Þjóðólfr XI. 91).
K VÆfíl ; Khöfn. 1871. Bls. 25—26.
j Viður ísanna brot drógu eikur á flot Midst ice ivreckage and roar, lunching vessels, of yore
vorir áar og létu frá strönd; Our sires set sail from their strands;
þá var hafjóum beitt, þá var hræfuglum veitt, Tben Ihe sea-steeds ivere sped, then were carrions fed,
þá var herskátt um eyjar og lönd. Then was war rife on islels and lands. V
Það var búkörlum böl, er þeir bikaðan kjöl H oe lo neatherds not weal eame when they a pitched keel
sau skjaldhúinn skriða um lá. Saw all shield-hederked sweep o’er the main.
Meður gullsjóðum grið, og með geirhriðum frið '1 hen good mercy with hoards, and sweei peace with barrd swords
urðu konúngar kaupa sér þá. hven sovereigns joyed to gain.
Yrði víkínga mót, flugu fleinar og grjót, feigum >treymdi úr æðunum blóð; hátt í gunnhlífum gnast, og þeir gengu svo fast gcgnuni fylking, að ekki við stóð. \nd amidst viking shocks, wcre hurled wcapons and rocks, Of the Iuckless forthflowed tlie lifc blood; Tben their byrnics loud elashed, and tlirouyh foemen they dushed With u dariny that nothing wilhstood.
t)g á skínandi skeið, yfir skeljúnga leið svifu hetjur í hernaðar önn, og þeir söfnuðu seim, og þeir sigldu svo heim þegar hlíðarnar huldust i fönn. On their shining ships they, o’er the sea-crealnres’ way, Hurried — heroes with war-aims aglow To hoard wealth they travailed, and then homeward they sailed When the hillsides were hidden in snow.
Eftir orustd tí;i, nuðan liávetrar hríð hristi skála, en dunaði sjór, stytti darrveðurs drótt hina dauflegu nótt, * drakk af hornum hinn styrkvasta bjór. At tlie sword-season’s elose, when chitl midwinter throes Hocked their halls, and the deep rnmbled drear, Amidst soldiers’ deliyhts, they diminished their nights, Drinking copious horn-draughts of beer.
Svo við geirhriða glaum og við gullhorna sfraum göfug feðranna æfi fram leið, unz að fenginni frægð og af fjárhiutum nægð fúsir kyrðar þeir settu upp skeið. So midst swords’ swirl and gleum and by gold-beakers’ stream 7 heir slaintess lives onward them borc, I ill with fnir fame attained and witli great booly gnined /■11111110/ qniet they set ships ashore.
ó, þér ættfeðra val! Yðar mlnningu skal lofa meðan að lönd eru bygð, yðar drengskap og dug, yðar hreysti og hug, yðar harðfengi, manndáð og trygð. O ye ancestral pride! Ye in praise shall ubide ff’en as long as men live npon earth, llnrdy, chivalrons, true, hearts that trammels ne’er kneiv, Our models. of manhood and warth! Skúli Johnson.
\