Heimskringla - 08.07.1915, Blaðsíða 1
RENNIE’S SEEÐS
-^HEADQUARTERS FOR SEEDS. PLANT^%
g) BULBS AND SHRUBS WJ
PHONE MAIN 3514 FOR CATALOOUE
Wm. RENNIE Co., Limited
394 PORTAGE AVE. - - WINNIPEG
Flowers telegraphed to all parts of
the world.
THE ROSERY
FLORISTS
Phones Main 194. Night and Sun-
day Sher. 2667
2K0 DOXALD STREET, Wl.WIPEG
XXIX. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 8. JÚLl, 1915.
Nr. 41
CHAMBERS HEITIR MAÐURINN SEM
MÓTI TÓK FIMTÍU ÞÚSUNDUM
ARA FYRIR HÖND
DOLL-
LIBERALA.
HOWDEN SVER I»AÐ, AÐ NORRIS HAFI VITAÐ AF OG SAMÞYKT
KAUPIN ÁÐUR EN PENINGARNIR VORU AFHENTIR.
‘EF ÞIÐ VERÐIÐ ‘GÓÐIR’, STRÁKAR, ÞÁ SKULUÐ ÞIÐ FÁ ÞAÐ
SEM EFTIR ER AF FlMMTfU ÞÚSUNDUNUM”.—HOWDEN.
stund leit svo út, sem þetta myndi gjört. En þá reis upp Robson
dómari og mælti: “Eg er líklega sá eini, sem er annars hugar; en
það er til mín kemur, þá heimta eg a5 nöfn þessi standi í skýrslun-
um. Þessi nefnd er ekki til þess skipuð, aÖ strika nöfn út úr vitna-
framburÖinum”.
Eftir nokkra stund féllust hinir nefndarmennirnir á skoðun Rob-
sons dómara. En þá óskaði Mr. Pitblado eftir, að nöfn þessara manna
væru ekki látin koma út á prenti. -En Mr. Justice Perdue kvaðst ekki
hafa vald yfir blöðunum.
CHAMBERS FÆR “KALDA FÆTUR”.
Það var hinn 29. marz, er Dr. Simpson lagði fram 50 þúsundin.
Síðan fékk Mr. Howden Mr. Newtor, 25 þúsund dollara af þessum
fimmtíu þúsundum, til þess að færa þau Mr. Chambers, sem hann og
gjörði í Carlton klúbbnum. — En eftir að stjórnin gamla sagði af sér
fór Mr. Chambers á fund Mr. Howdens og kvaðst vera orðinn kvíða-
fullur (got cold feet) yfir því, að þetta myndi alt komast upp.
Hinum 25 þúsundunum skilaði Mr. Newton til Mr. Howdens, en
hann aftur til Dr. Simpsons, sem læsti þær niður í peningahvelfing-
una. Og þar eru þessar þúsundir nú. ,
Þegar farið var að spyrja Mr. Howden aftur, þá kvaðst hann
hafa tekið þátt í “bralli” þessu vegna flokksins. Menn gjörðu margt
fyrir flokk sinn, sem þeim kæmi aldrei til hugar að gjöra sem prívat
menn.
Hann hélt, að það hefði veriö þess virði fyrir flokkinn, að
leggja fram peninga þessa, ef að þá hefðu allar sakir verið látnar
niðurfalla, því að þá hefði engar aukakosningar þurft hð hafa, og
stjórnin gamla hefði getað haldið áfram, þó að hún hefði lítinn
meiri hluta atkvæða.
Hér kemur þá sagan um fimmtíu þúsund dollara kaupm, sem
nokkrir hinir fremstu menn Liberala eru orðmr flæktir ínn í. Hún
kom út sagan, þegar Howden lögmaður, fyrverandi dómsmálastjóri
fylkisins, var yfirheyrður fyrir seinni rannsóknarnefndinni ( Fullerton
nefndinni, sem svo er kölluð). — Mönnum var farið að leiðast þól
þetta; og sumir voru farnir að hugsa að þessi fimmtíu þúsund doll-
ara saga væri uppspuni einn. Þær fundust hvergi þessar fimmtíu þús-
undir, og enginn eða fáir þóttust vita nokkuð um þær; og svo héldu
aðrir, að nokkuð væri nú komið, byrðin væri all-þung orðin, þó að
bögli þessum létti af Manitoba klárnum.
En þær voru ekki týndar, ekki grafnar og ekki gleymdar —
fimmtíu þúsundirnar þessar, sem áttu að borgast fyrir það að sleppa
öllum sökum.
Mr. Howden dróg William Chambers inn í málið, sem fulltrúa
(agent) fyrir Mr. Tobias C. Norris, stjórnarformann Liberala, og fleiri;
C. M. Newton, sem fulltrúa eða agent fyrir gömlu stjórnina, og Dr.
Simpson, sem mann þann, er lagði til féð; og auk þess þá Hon. Ed-
ward Brown, G. Worthington Prout og James H. Ashdown, sem nutu
góðs af, eftir sögu Chambers.
Mr. Howden sagði, að þegar samningarnir voru vel á veg komn-
ir, þá hafi hann fundið Mr. Norris að máli á Royal Alexandra Hotel,
og þó að hann (Mr. Norris) væri ekkert ákafur, að taka stjórnarsæti
þá stundina, þá hefði hann játað, að Chambers hefði umboð til þess
að semja fyrir Mr. Norris og vissa menn aðra sero Mr Hovden ekki
greindi nöfn á.
Mr. Norris hafði sagt, að sem flokkur vissu liberalar ekki um
kaup þessi, en hann sjálfur og nokkrir aðrir vissu um það, og full-
yrti, að Mr. Chambers myndi ekki gjöra aðra samninga en búið væri
að gefa honum fult leyfi til.
UPPÁSTUNGAN KEMUR FRÁ LIBERÖLUM.
Eftir því sem Mr. Howden segir, kom G. M. Newton að finna
hann, meðan hið seinasta þing stóð yfir, og kom á fundi milli þeirra
Newtons Howdens og Chambers, til þess að semja um uppástungu
frá hinni hliðinni áhrærandi málin út af kosninga-kærunum. — Þeir
komu allir á fundinn, og Chambers sagði að það væri hið fyrsta skil-
fyrir samningum þessum, að fimmtíu þúsundin — $50,000 — væru
sjáanleg (in sight). Ef að þeir (hinir liberölu) væru vissir um þess-
ar fimmtíu þúsundir, þá skyldu allar kosningakærur falla niður. —
Liberalar þyrftu skildinganna með, því að þeir væru illa staddir núna
— eftir seinustu kosningar.
FIMMTIU ÞÚSUNDIN KOMA.
Dr. R. M. Simpson lagði fram fimmtíu þúsundin og lét Mr.
Howden færa þau G. M. Newton. Nú var farið að semja aftur, og
var þá Chambers sagt, að þessi fimmtíu þúsund væru alt of mikið.
Helmingurinn væri nóg. “Eg sagði honum”, mælti Mr. Howden: “Ef
að þið verðið góðir, piltar, þá skuluð þið fá hinar 25 þúsundirnar”.
Chambers sagði honum, að 25 þúsundir væru alt of lítið; því
að af þeim þyrftu 6 þúsund að fara til G. W. Prout, 5 þúsund til Hon.
Edward Brown og eitthvað til James H. Asdown; því að hann hefði
lagt fram peninga til þess að koma ákærunum af stað. En ekki var
þá tilgreint, hvað mikið ætti að ganga til Asdowns, því að þá kom
upp deila milli þeirra um laga-atriði nokkur, og var hörð.
MR. PITBLADO VILL LÁTA ÞAÐ SJÁST EÐA SYNAST, AÐ MR.
CHAMBERS SÉ FRUMKVÖÐULL AÐ ÖLLU ÞESSU.
Þegar hér var komið vitnaleiðslunni, rís upp Mr. Pitblado, lög-
maður liberala og krefst þess fyrir þeirra hönd, a6 nöfn þessara
þriggja manna skuli ekki tilgreind, nema Mr. Fullerton haldi því fram
og geti sannað, að Chambers hafi verið fulltrúi þeirra. En Mr. Ful-
lerton vildi ekki lofa neinu um það, og svo væri það þýðingarlaust,
því að hann gæti ekki ráðið við, hvað vitnið segði. — Setti þá dóm- áIjhv,crium de«* cr meira mann-
nefndm ofan í við hann, og sagði, að hann yrði að sanna mál sitt [ tekið Meckensen fleiri vikur að kom
með öðru en sögusögnum annara (hearsay). í s,st norður til Warshau, því að ef fé-
^ I lagar hans við Bzura ána ekki geta
Mr. Justice Perdue sagði þa, að aður en Mr. Fullerton spyrði j hrakið Rússa þaðan, mun það tefj
Mr. Howden meira, yrði hann að kalla Mr. Norris sem vitni og þar,ast; en. l)a® er ljeinl vestur af War-
með sanna að Chambers hefði venð umboðsmaður Norris i mal- vcrið að þýzkir þrengi Svo á núna,
að Rússar verði að hörfa frá War-
shau, ef að þeir liinir þýzku sækja
nógu fast á báðum þessum köntum;
og þá hörfa Rússar ef til vill til
Brest Litowsk; en þar ættu þeir að
geta hahiið Þjóðverjum í missiri eða
tvö og þeir standa þar betur að
Stríðs-fréttir
Þær eru eiginlega smáar fréttirn-
ar af striðinu nú og þó heldur því
einlægt áfram. Rússar halda undan
á sumum stöðum; en Mackensen fer
á eftir, 4—-5 mílur á dag. En ekki
er það allstaðar, sem Rússar hörfa
undan, og ekki eru þeir enn búnir
að sleppa allri Galizíu.
Eitthvað 30 mílum rúmum austur
af Lemberg rennur áin Zlota (eða
Gnila) Lipa beint suður í Dniester,
á nálwgt 60 inilna svwði. Austan
við þessa Lipa á standa Rússar sem
bjarg fyrir Þjóðverjum alla leið-
ina mcð ánni og síðan á austur-
bakka Dniester fljótsins, þar til Dni-
ester fellur i Rúmaníu. En nyrzt við
upptök Lipa, eitthvað 10 mílur eða
þar um og nokkru vestar, sveigir áin
Bug norður, og halda Rússar austur-
bakka hennar, norður á Pólland. —
Stykki það, sem Rússar halda enn af
Galizíu er því um 50 mílur á breidd
austur og vestur, en nálægt 100 mil-
ur á lengd, þegar línan er tekin með
austan við Bug. Þarna hafa Þýzkir
ekkert getað unnið á Rússum enn
sem komið er; enda hafa Rússar þar
vigi gott austan við ár þessar báðar.
Þarna stendur því bardagalínan
Rússa og Þjóðverja ,bein frá suðri
til norðurs. En þegar lítið eitt kem-
ur inn í Pólland, i Lublin héraðið,
þá beygist bardagavöllurinn við, og
stendur nú nærri beint vestur á fast
að 80 mílum, yfir þvera Vistula og
um hérað það nær miðju Póllandi,
sem Kielce heitir.
Þarna er það, sein Mackensen er
að smáýta þeim norður og fer þetta
4—5 mílur á dag og oft ekki það,
þvi að Rússar sleppa engri gryfju,
eða hól eða árbakka, svo að þeir
berjist ekki; og verður þá þýzkum
tafsamt og víða liggja menn þeirra
dauðir, og oft hlaupa Rússar á þá.
um þessum”.
Mr. Fullerton hélt því fastlega fram, að hann gæti kallað hvaða
vitni, sem hann vildi, og í þeirri röð, sem honum sýndist. Urðu þá
deilur um þetta, og heimtaði Mr. Pitblado, að nöfn þeirra Browns,
Prouts og Asdowns væru strikuð út úr vitnaleiðslunni. — Og
um
vigi en þeir nokkurntíma hafa stað-
ið áður.
Sjóslagur milli Rússa og Þjóðverja.
Slag á sjó áttu Rússar við herskip
Þjóðverja fyrir helgina, í Eystra-
salti, einhversstaðar, milli Windau
norðantil á Kúrlandi og sænsku eyj-
arinnar Gautlands (Gothland eða
Gúlland). Var þoka mikil um morg-
uninn 2. júli er þeir hittust og lenti
þar í slag. Var þokan stundum svo
myrk að skipin mistu sjónar hvert á
öðru. Rússum veitti betqr og brutu
þeir svo eitt skipið Þjóðverja að það
rendi upp til lands þangað til niðri
tók og bjarg sér þannig frá að
sökkva. Segja sumir að það hafi ver
ið beitiskip brynjað (cruiser); aðr-
að það hafi verið skip að leggja
sprengidufl (minelayer). En niður-
Þar fékk hann sér leigt autó og lét
keyra sig til heimilis Morgans á
Matincock Point.
Gekk hann svo að húsinu og
hringdi dyrabjöllunni, og koin þá
þjónn Morgáns til dyra. — Kvaðst
Holt þessi þurfa að finna Morgan og
væru þeir vinir, en vildi ekki segja
nafn sitt; en þjónninn vildi ekki
hleypa honum inn.
Komumaður stakk þá skammbyss-
unni í kvið þjónsins, sem ætlaði
hann að skjóta, og varð þjónninn
hræddur og fór að hljóða. En hnn
tróð sér þá inn um dyrnar. Morgan
var þar nærstaddur og var á leið-
inni út. Hann kemur þar skjótlega
og spyr kvað á gangi; en undir
eins og hinn þýzki sér hann, sendir
hann Morgan skot og kemur það í
mjöðm hans og fellur Morgan niður
i stól, er þar var. En þegar morð-
inginn snöri bakinu við þjóninum,
þrífur þjóninn kolaskóflu og rekur
af afli i höfuð hans, svo hann bylt-
ist niður; en áður en hann datt var
hann búinn að skjóta öðru skoti á
Morgan og kom i brjóstið utarlega
og fór kúlan svo í handlegginn.
Þá stökk þjónninn á morðingjann
og brutust þeir um á gólfinu; en
þjónar fleiri heyrðu skotin og köll-
in og komu til hjálpar; gátu þeir
bundið þrælinn og keyrðu svo með
hann á lögreglustöðvarnar i autó
Morgans. Ekki vildi lnmn þá segja
nafn sitt, en kvaðst vera “Christian
gentleman’’ (kristinn höfðingsmað-
ur).
Læknir var þegar kallaður og með
fullu ráði var Morgan og hélt að
þetta væri ekk hættulegt.
Seinna fundu inenn tösku Holts
þéssa þar skamt frá, og var i henni
dynamit, er sýnir að hann hefir ætl-
að að sprengja upp bústað Morgans,
ef hann gæti ekki skotið hann.
* * *
Þegar búið var að taka Frank Holt
fastan, manninn, er banatiíræðið
veitti J. P. Morgan, þá koin það upp
að hann var einnig sá, er snrengivél
lagði undir Capitol byggipgarnar í
Washington, kveldinu áður en hann
skaut á Morgan. Hafði hann ætlast
til, að sprengihgin yrði um rnið-
nætti, og fór það nærri. því að liún
varð litlu seinna.
Svo kemur það og upp, að upphaf-
lega heitir hann Erich Muenther
(Eirikur Mynther). Hefir lært við
háskólann í Chicago; giftist og misti
konu sina 1906. Hann hefir verið
við Vanderbilt háskólanu og Cornell,
— fór til Texas og giftist þar aftur.
Kendi við háskóla i Nashville, Tex-
as, og nefndist þá Holt. Maðurinn
hefir því verið hámentaður, sem
kallað er.
Seinustu fregnir segjá að Morgan
liði vel.
Síðustu fréttir segja, að Frank Holt
hafi stokkið út um glugga á fanga-
klefa sínum, sem var 50 fet frá jörð,
og beðið bana.
Sprengd Capitol- höllin í
Washington.
Hinn 3. júlí, sama morguninn
og Holt reyndi að' drepa Morgan,
var sprenging mikil undir Capitol-
höllinni snemma morguns eða
skömmu eftir miðnætti. Hin mikla
bygging skalf og nötraði, en eink-
um skemdust salir þeir, er senat eða
efri málstofa þingsins situr i. Það
vildi til, að þetta var að nóttu til, svo
að manndauði varð enginn. — En
varðmaðurinn kastaðist sem togleð-
ursbolti úr stól sinum, og alt brotn-
aði, sem brotnað gat, gluggar allir;
cn vegglím og myndir hrundu úr
lofti og veggjum.
Ekki vita menn með vissu orsök
til þessa, en ætlað er verkið Þýzk-
um. Siðar er fullyrt, að ódæðismað-
urinn þýzki, sem veitti Morgan bana
tilræðið, sé einnig valdur að þessu
verki.
Þýzkir farnir a? sprengja upp verk-
smiðjur í Austur-Canada.
Sprengd upp verksmiðja í Beloil
í Quebec fylki senr bjó til sprengi-
vélar. Niu menn dauðir; 8 stór-
skaðaðir. Þarna var verið að smíða
cða fylla sprengivélar fyrir Canada
og Bretland. Þýzkir eru grunoðir
um verk þetta.— Enda kemur það
heim við fregnina sunnan yfir lín-
una, að hér sé um stórkostlegt sam-
særi að ræða meðal þvzk-sinnaðra
manna, einkum í Ba'udaríkjunum.
(Framhald á 5. bls.)
J. P. Morgan skotinn.
Það var að morgni hins þriða júlí
New York. Maður nokkur þýzkur
eða af þýzkum ættuin, Frank Holt
að nafni, reyndi til að bana J. Pier-
pont Morgan og skaut á hann 2 skot-
um. En Morgan er, sem menn vita,
einhver mesti auðmaður New Y’ork
borgar og um leið allrar Ameríku,
bankamaður og sonur gamla Pier-
pont Morgans, sem kunnur var um
heim allan, en er nú látinn fyrir
rúmu ári síðan.
Morgan þessi hinn yngri var full-
trúi Breta i fjármálum í Bandaríkj-
unum. Og fólu þcir honum að sjá
um hundrað millión dollara lán það,
sem þeir ætla að fá hér í Ameríku.
En Morgan er aðalmaðurinn í auð-
mannahóp miklum, og ætluðu þeir
að taka að sér lán þetta, og jafnvel
meira, tvö eða þrjú hundruð millí-
ónir. Undir eins og þeir voru búnir
að ákveða að sjá um lánið, þá barst
það út um borgina, og þá hcfir and-
inn komið yfir þenna þýzka mann.
Því að undir eins lagði hann af
stað og ætlaði að koma í veg fyrir,
að Bretar fengju lánið, með því að
fara nú þegar og drcpa Morgan. Þá
hélt hann að lánið myndi falla um
sjálft sig.
Maður þessi Frank Holt er af þýzk
um ættum; hefir verið í^Ithaca og
kennari í þýzku við Cornell háskóla
siðan 1912, er Bachelor of Arts (B.
A.) og því áreiðanlega mentaður
maður. ,
Að morgni hins 3. júní kom hann
með lestiilni til Glencove kl. 8.53.
Kosningarfundur Konservatíva í Winni-
peg kjördæmunum.
Konservatívar í Suður-Winnipeg ætla að halda fund til
þess að kjósa fulltrúa þá, er atkvæði skulu greiða fyrir hönd
þeirra á aðalfundi konservatíva hér hinn 14. og 15. júlí.
Fundur sá verður haldinn á miðvikudaginn kl. 8 e. m.
í Boyd Block á horninu á Portage Ave. og Carlton St., í her-
bergjum þeim, sem kjósendur í Suður-Winnipeg hafa skrá-
sett nöfn sín í.
Konservatívar í Mið-Winnipeg mæta á fundi í sama
gangi sama dag og stundu í Manitoba Hall.
til-
þenna fund eða þessa fundi mega konservatívar ekki und-
anfella. Það er enginn cfi á því, að aldrei nokkurntíma í sögu
fylkisins hefir verið stofnað til jafn merkilegs fundar, sem þessi
fundur eða flokksþing konservatíva hinn 14. og 15. júlí ætti
að verða. Og það er eingöngu undir mönnunum komið, sem
fundinn sækja og atkvæði greiða og málunum til lykta ráða,
hvort hann verður fylkinu og íbúum þess til sóma, eða ekki;
— hvort liann verður byrjun nýrra tíma, með nýjum hug-
myndum, nýjum málum, nýju lífi og fjöri, nýjum endurbótum,
nýjum framförum, hreinni pólitík, — með velferð almennings,
en ekki einstakra manna fyrir mark og mið.
Það er sagt, að landinn sé hávaðameiri en nokkur annar
þjóðflokkur hér í þessum nýju bygðum; — láti hann nú til
sín heyra og komi fram og láti til sín taka. Hann verður að
koma slnum mönnum inn á fund þenna. Landar voru með
hinum fyrstu að reisa borg þessa. Ef þeir ekki koma einum
eða fleiri af sínum mönnum inn á fund þennan, með rétti
til að greiða atkvæði, þá mættu þeir eins vel liggja grafnir
niðri í hinum djúpu skurðum borgarinnar, sem þeir í fyrstu
hjálpuðu til að grafa; þeir sökkva þá niður í skrílinn og rusl-
ið, sem nú hefir tekið við störfum þeirra. — Munið það, að það
verða kosnir 5 menn til að greiða atkvæði á aðalfundinum,
fyrir hvert kjördæmi, og það verða að vera góðir menn, sem
*vita, hvað þeir eru að gjöra, — beztu mennirnir sem þér hafið.
Og það er ekki nóg fyrir landann, að koma að einum manni
fyrir kjördæmi hvert, heldur fleirum, eða eins og þið getið;
og komið yður saman um þá áður en á fundinn kemur, ann-
ars er hætt við, að alt fari í handaskolum hjá yður. — Fáið
yður hreina, góða, staðfasta og skynsama menn. Þeir mega
gjarnan vera ungir og nýjir, því að nú ættu nýjir tímar að
fara í hönd.
Látið nú sjá, hvað í yður er! — Það verður fróðlegt að
heyra fundar-úrslit.
Munið eftir a'ð sækja fundina, hver í sínu kjördæmi, á mið-
vikudagskveldið í þessari viku, 7. þ. m.