Heimskringla


Heimskringla - 11.11.1915, Qupperneq 8

Heimskringla - 11.11.1915, Qupperneq 8
BLS 8. HEIMSKRINGLA. WINNIPEG. 11. NÓVEMBER, 1915 CAMP SEWELL Canadas Finest Military Production; showing The Pride of Canada; Western Canadian Soldiers preparing for The Great War. Four Reels of Action; also showing His Majesty The King reviewing The Fleet at Splithead. 4 DAYS ONLY NC'V. 16—17—18—19 Admission 15c. Children lOc. Ten per cent to Red Cross Funds--Be Early Fréttir úr Bænum. Mr. J. H. Johnson, fiskikaupmað- ur, frá Hove P.O., Man., var hér á ferð og fék leyfi fyrir fiskimenn að veiða hvítfisk í Landing Lake, 185 mílur norður af Pas, meðfram Hudsonsflóa brautinni. Vatn þetta er 30 milur á lengd og 3 mílur á breidd og er miðja vega milli Pas og Hud- sonflóans. Ekki hafa hvítir menn fiskað þar fyrri. Mr. Johnson ætlar að kaupa fiskinn af fiskimönnum. Hann var að úthúa 6 menn norður þangað. Aðrir 5 eða fi er búist við fari bráðlega þangað í sömu erind- um. Brautin til Hudsonflóans er nú komin nokkuð norður fyrir vatn þetta, og má því fá flutning á fiski með brautinni, en nokkuð mun það dýrt. — Mr. Johnson er nú að flytja til vetrarstöðva sinna við Manitobavatn, Amurant, Man., þar sem hann kaupir vetrarfisk eins og að' undanförnu. Hann gat þess, að uppskera hefði verið í betra lagi þarna í Hove. Af landi sinu fékk hann 37 bushel af ekrunni af góðu liveiti og um 60 af höfrum. En af stöku blettum varð uppskeran þó enn meiri. Mr. Kristmundur Sæmundsson hefir um langan undanfarinn tíma með heiðri og sóma gengt innköll- unarstarfi fyrir Heimskringlu á Gimli P.O.; en var orðinn þreyttur á því, og höfum vér nú fengið vin vorn annan í staðinn til að gegna því starfi. Það er Mr. Bergþór Þórð- arson á Gimli. Hann er af öllum þektur sem lipur og liðlegur maður, og vonum vér að hinir heiðruðu kaupendur hlaðsins sýni oss og hon- um sömu góðvild og fyrirrennara hans, og borgi hlaðið fljótt og skil- vislega. Það liggur hverjum manni á, að heimta inn sina skildinga á þessum dögum; ekki sízt oss, sem 1 erum að berjast um í borgunum nú. — Gleymið því ekki, vinir, að borga Heimskringlu sem atlra fyrst. Síra Guðmundur Arnason hefir nýsamið og gefið út litla bók, er lian nefnir “Mannlifsmyndir”. Er það samdráttur úr fyrirlestrum, sem hann hefir flutt við og við. Bókin er mjög laglega úr garði gjörð og snot- ur útlits. Höfundur hennar er þekt- ur að því, að halda ekki öðru fram, en því, sem eftir skoðun hans er sið- ferðislega fagurt og gott. Bókin er fróðleg og á góðu, almennu máli. — Hann talar um mentun og skáldskap, um kvonfang og réttindi kvenna, um listir, náttúrufegurð og þjóð- erni. Þar er sögukorn frá Mudtowfn. — Það er enginn efi á því, að það má margt læra af bókinni, og hver, sem auka vill og auðga hugmyndir sínar, ætti að kaupa hana. Hann gæti margt verra gjört ineð þessi fáu cent sem hún kostar, sem hann hefði ininni arð af en að kaupa bók þessa. Mr. Július Sólmundsson, kjöt- markaðsmaður, var á ferð hér í borg heimleiðis til sin að Gimli vestan frá Carnduff, Sask. Átti hann þar land og þreskti af þvi 4000 bushel afl hveiti; skrapp svo heim til sín, þegar búið var. Hann þurfti að fara vestur til að koma hveitinu á mark- aðinn. Sagði hann bændur nú ekki eiga þar óþreskt hveiti nema í slökkum, og ef tíð væri góð, myndi ]>resking búin að viku liðinni. — Hveitið svo mikið, að engar hlöður rúma það. Bændur slá upp borða- réttum stórum á ökrunum og hauga hveitinu í þær, inörgum þúsundum Lushela í stað. BorgiS Heimskringlu bændur— MuniS eftir Heimskringlu þegar þér seljiS uppskeru ySar þetta haust. — Þetta er líka uppskeru- tími hennar. Embættismenn barnastúkunnar Æskan fyrir yfirstandandi ársfjórð- ung eru: /E.T.: Inga Thorbergsson. V.T.: Kári Jóhanesson. Hitari: Kjartan Jóhannesson. Aðstoðarritari: Laura Johnson. Fjármálaritari: Pétur Lindal. Gjaldkeri: Kjartan Bjarnason. Kapelán: Emily Bardal. Dróttseti: Ruby Olson. Aðst. dróttseti: óli ólson. V.: Vilhjálmur Skaftfeld. Ú.V.: Sveinn Jóhannesson. F.Æ.T.: Olgeir Skaftfeld. Þar sem eg hefi látið af að þjóna Skjaldborgarsöfnuði, vil eg mælast til þess, að enginn biðji mig að vinna nein þau verk, sem á nokkurn hátt geta komið í bága við skólastarf mitt, því eg get ekki sint slíkum bónum. Winnipeg, 8. nóv. 1915. R. Marteinsson. Þess skal getið, eftir beiðni, að brúðkaupsvísur þær til Leifs Eiríks- sonar og Sigurlaugar Anderson, sem nú eru prentaðar í blaðinu, áttu að koma út í blaðinu fyrir 1 til 2 vik- um síðan, en vegna fyrirliggjandi ritgjörða, gátu þær ekki birst fyrri. Bitstj. (AÐSENT). Þess er getið frá samsæti þvi, er haldið var við íslendingafljót í Nýja íslandi 1. nóv. sl., í minningu um 40 ára afmæli fyrstu íslenzku bygðar- innar vestan hafs, og til heiðurs gamla vestræna islenzka leiðtogan- um, — að Siggi JÚI. hafi látið það ótvirætt í ljósi, að sér væri persónu- lega misboðið, er vinur sinn Galla- Jiingmaðurinn hefði ekki verið kall- aður til þessa fagnaðarmóts. Auk |>ess væri Jiingmanninum sýnd stór vanvirða með þessari glópsku, og væri ineð Jiessu sýndur islenzkur ruddaskapur. Talið er og, að Tómasi ráðgjafa muni hafa runnið í skap yfir þessari yfirsjón Fljótsbúa, þótt hann léti ekki á því bera; því betri meðferð- ar á goðanum, er hann gaf þeim, hafði hann búist við af Fljótsbúum. Ef yður langar til að sjá 10,000 hermenn og 3,500 hesta; ef Jiér haf- ið gaman af að sjá fylkingar riddar- anna þeysa fram á vígvöllinn; ef þér viljið sjá raðir* hermannanna, hvernig þær hlaupa fram móti óvin- unum, kúlnahríðinni og hinum log- andi eldtungum óvinanna; — ef þér viljið sjá, hvernig synir Kanada leggja líf sitt fram fyrir frelsið og hið brezka ríki, fyrir menninguna, fyrir helll og velferð Kanada sem annara landa; ef þér viljið fá rétta hugmynd um hina göfugu syni Kan- ada veldis; ef þér viljið fá hug- mynd um trölldóm þann og skelf- ingar, sem þeir verða á móti að ganga, hugmynd um hugrekki og djarfleik, sem þeir verða að sýna,— þá komið á Wonderland og sjáið hina fyrstu og tilkomumestu sýn- ingu, sem yður nokkurntíma getur auðnast að sjá á allri yðar æfi. Og það mun lyfta huga yðar upp til hins háleita, hetjulega og fagra, þar sem mennirnir meta meira hugsjónir, drengskap og göfuglyndi heldur en sitt eigið líf. KENNARA VANTAR fyrir Arnes-South skólahérað No. 1054. Kenslutími frá 1. janúar til 30. júní 1916. Kennari tiltaki æfingu við kenslu og kaup Jiað, sem óskað er eftir. Umsækjandi má ekki hafa lægra mentastig en Third Class Póo- fessional Teachers Certificate. Til- boðum verður veitt móttaka af und- irskrifuðum til 1. desember 1915. Nes, 2. nóv. 1915. fslciftir Helgason, Sec’y-Treas. Nes P.O., Man. Fáðu þér land til eignar IIOHGIST A 20 ARIM ef )>fi vllt. LandHS fn»f5ir |iík ojr klœ9- Ir ojr borjrnr fyrlr nhz njfllft um lelö. F> vkitnlkib fla»mi af fyrlrtakn frJA- Niimu landi er tll höíu I Ventur-Canada fyrlr ifisrt verA með g;6Sum Nkilmflium, |>etta frfl $11 tll $ÍIO ekran A búnafiar- liindum l>nr Hem nójrar eru rij?ningar ojr flveltulOndin $35 ekran.)Skllmfilari K-'ilnn tuttuKaHtl af verÍHnu borglnt tlt f hönil, hitt fl 20 firum. 1 flveltUHvelt- um mfl ffl lfln upp fl byjfj^inj^nr upp tll $2000. er elnnla; borj?ÍHt A 20 firum. I<eljcan fl Ifinl ]>vl er abelnn 0 per cent Nll er tæklfærlb »ö bæta vl?S nlg lOnd- um hinum næntu efia titvejca |>au handa vlnum nfnum ok nðjurönnum. Frekarl upPlýHÍng;ar fflst hjfi F. W. IIUSSELL. - - Land Agent Dept. of Xatural ReaourceH, C.P.R. DESK 3», C.P.R. DEPOT - WINNIPKG VANTAR.—Mrs. L. J. Hallgrímsson, að 548 Agnes St., vantar vinnu- konu. Mr. Björnúlfur Thorlacius málari var hér á ferðinni um daginn, og er nú nýfarinn heim til Ninette, Man. Hann hefir verið þar í sumar og verður þar í vetur að mála bygging- ar heilsuhælisins fyrir tæringar- \ eika. Leiðrélting. —, í dánarfregn Mrs., Abrahamsson í seinasta hlaði stend- ur að hún hafi verið 90 ára, en átti að vera 70 ára. “Hulda” biður að leiðrétta í vís- unni er stendur í seinasta blaði; þar átti að standa: “Klækja senn upp rifin rót”. Matthíasar afmæli. Samkoma verður haldin í Good- templararhúsinu i dag (fiintudag 11. nóv.) kl. 8 e. m., í tilefni af Jiví, að Þjóðskáldið Matthías Jochumsson i r áttræður. SKEMTISKRÁ. 1. Ávarp forseta Thos. H. Johnson. 2. Söngur: “Ó, guð Vors lands”. 3. Ræða: Likaböng Matth., síra B. B. Jónsson. 4. Kvæði: Stephán G. Stepháns- son. 5. Söngur: “Fósturlandsins freyja” 6. Ræða: Þýðingar Matth., síra Fr. J. Bergmann. 7. Kvæði: Magnús Markússon. 8. Einsöngur: Mrs. P. Dalman. 9. Upplestur: Magnús Matthíasson. 10. Ræða :Spámansandi Matth., síra R. Marteinsson. 11. Söngur: ‘Æggert ólafsson. 12. Upplestur: Árni Sigurðsson. 13. Ræða: Matthías og modurmálið, síra Rögnv. Pétursson. 14. Kvæði: Sig. Júl. Jóhannesson. 15. Söngur. Það hafði verið ágæt samkoma í Skjaldborg á þriðjudagskveldið 9. nóvember, Queen Esther. Það er söngleikur (Cantate) og fór fram í bezta lagi. Mr. Davíð Jónasson stýrði söngnum. Húsfyllir; allir mjög á- nægðir. Bandalag Skjaldborgar safnaðar ar, Bjarmi, hefir ákveðið að halda útsölusamkomu (Bazar) í Skjald- borg á föstudaginn og laugardag- inn 10. og II. desember. Verða þar margir eigulegir munir. Nánara auglýst síðar. HEIÐURSLISTI ISLENDINGA. 1 síðustu blöðum Heimskringlu er birt nafnaskrá yfir íslendinga, sem bl. veit um, að hafa gengið í Kan- ada herinn, og æskir blaðið eftir upp lýsingum hjá hverjum, sem veit um fleiri. Samkvæmt beiðni Heims- kringlu eru eftirfylgjandi upplýsng- ar sendar:: Wnnipeg blaðið Tribune 1. nóv. síðastliðinn auglýsti nafnaskrá af hermönnurn, sem heima eiga í Sel- ltirk (Selkirk Honor Roll). Á þeim lista eru 17 nöfn, sem að öllum lík- indum eru nöfn íslenzkra manna. Sá, sem þetta ritar, þekkir meiri hluta nafnanna. Má vera 1 til 3 séu Norðmenn eða Sviar; þó ólíklegt. Nöfnin eru þessi: Alex Jónsson. Walter Johnson. G. Finnson. Karl Anderson. Allan Stevens. Jack Swanson. Allan Sigurdson. W. Sigurdson. Arthur- Freeman. Mike Johnson. Einar Christianson. Herman Davidson. Siggie Freeman. Capt. Bergman. Joe Sigurdur. Alex Stevenson. F'red. Walters. Má vera, að Heimskringla hafi auglýst sum nöfnin, en hreint ekki öll. Þess vegna er listinn sendur blaðinu til yfirvegunar og birtingar. Iingin ástæða, að rengja blaðið Tri- hune, að það fari villur vegar með teðan nafnalista. Það er engum efa bundið, að fleiri fslendingar eru gengnir í herinn, en íslenzku blöðin vita um. Það er áreiðanlegt, að nú og síðar ganga margir íslendingar í Kanada herinn, ckki einasta um þvert og endilangt Kanada, heldur einnig íslendingar úr Bandaríkjunum. Þaðan eru þegar inenn > her Kanada. 1 vissum skilningi er það hirðu- leysi íslendinga að kenna, að láta íslenzku blöðin ekki vita um nöfn og hverra manna þeir eru, sem í her- inn ganga. Á komandi tima getur þetta haft stórþýðingu fyrir alda og óborna. F'yrst og fremst viðvíkjandi erfðamálum. Þar næst viðkomandi islenzku þjóðerni vestan hafs og sögulegri frægð og hreysti. Þjóðin i Kanada og stjórnin og sagan hefir mjög óljósa þekkingu um hluttöku íslendinga í stríðinu. Veldur því hirðuleysi Islendinga sjálfra, og nafnabreytingar hermannanna frá hreinum og fallegum íslenzkuin nöfnuin. 1 fyrra kom til máls að stofna ís- lenzka herdeild. Það mál dó strax í fæðingunni. Það mun hafa verið eðlilegt, að svo fór. Þvi skal ekki heint haldið fram hér, að íslend- ingar fari nú að stofna íslenzka her- deild. Fm því skal haldið fram, að íslenzkir hermenn, bæði austan og vestan hafs, ættu að mynda einingu á meðal sin. Og það sem allrafyrst, og engan undan draga. Þegar svo striðið er til lykta leitt, þá gengju Jieir, sem uppi i standa, í fylkingu fyrir landsstjórann í Kanada og sýndu, og læsu upp nöfn þeirra Is- lendinga, sem fallið hefðu á vígvell- ii.um, og Jjeirra, sem örkumlaðir eru. Væri sá sögulegi viðburður mikið meiri og sannsögulegri en all- ur annar félagsskapur, sem enn hefir dafnað á meðal Islendinga vestan hafs. Hann yrði aðal hyrningar- steinn undir sögu Islendinga i Vest- urheimi. Hann yrði Ijóslifandi eins lengi og saga Kanada verður lesin sf mannlegu auga. Með beztu óskum til allra íslenzkra hermanna. Myndi þeir sina sérstöku sögu sjálfum sér til virðingar, og fósturjörðinni til ódauðlegs heiðurs. Fregnriti Hkr. Bradbury vill mynda herdeild. Úr ótal stöðum koma nú tilboð frá hinum og þessum um að mynda her- deildír. Glen Campbell kveðst hafa heila Rattalion eða því sem nær til taks hvenær sem vera skal. Mr. Geo. Bradbury, þingmaður fyrir Selkirk kjördæmi, býðst til að inynda aðra Battalion af mönnum frá Sefkirk og F'ort Garry. (Battalion um 1100 manns). 90. herdeildin og 100. herdeildin (Grenadiers) vilja hvor fyrir sig mynda nýja herdeild. Og svo er um fleiri. Brúðkaups-samsæti. Að kveldi þess 27. október 1915 voru gefin saman í hjónaband, af síra N. Thorláksson, Mr. Páll Sveins- son, frá Wynyard, Sask., og Miss Minnie JOnína Vilborg Johnson, dóttir þeirra hjóna Mr og Mrs. W. G. Johnson, Madison St., St. James. Brúðkaupið fór fram á heimili foreldra brúðarinnar, Mr. og Mrs.W. G. Johnson, að viðstöddum nánustu ættmennum brúðhjónanna. Samsætinu stýrði Mr. W. G. John- son og kallaði hann fram bæði menn og konur til að segja nokkur orð eða flytja stutta tölu. Streymdu nú lukkuóskirnar yfir brúðhjónin, sem sátu þögul og hlustuðu á; tölurnar fóru fram yfir borðum, sem voru sett allrahanda góðgæti, sem yrði of sett allrahanda góðgæti, sem yrði of langt upp að telja. Snarræði varð nú að viðhafa í mesta máta, því tíminn var stuttur. Ofan til C.P.R. urðu brúðhjónin að vera komin klukkan hálf 12, því ferðinni var heitið vestur til Wyn- yard, Sask. Þar hefir Mr. Páll Sveins son átt heima i mörg undanfarin ár, cg verður þar framtíðarheimili ungu hjónanna. í lok samsætisins talaði Mr. W. (V. Johnson í viðkvæmum anda til brúðhjónanna og boðsgestanna, sem höfðu heimsótt hann þetta kveld. Nú var ekki til setu boðið, kl. var að verða 11, rúmlega hálfur timi eft- ir og leið nú ekki á löngu áður en all- ir voru ferðbúnir til C.P.R. Því ekki mátti skilja við ungu brúðhjónin fyrri en í vagni þeim, sem þau höfðu keypt sér far með vestur til Wynyard. Greiðlega gekk ferðin ofan til vagnstöðvanna, því bifreiðar eru sjaldan lengi á leiðinni, þegar á liggur. Að skilnaði var ungu hjónunum óskað fararheilla og langra lífdaga. Fór svo liver heim til sín glaður og ánægður yfir þessari skemtilegu kveldstund, og munu þeir, sem við- staddir voru, hana lengi í minnum hafa. Einn af gestunum. Þakklætis Samkoma 1 TJALDBÚÐARKYRKJU Fimtudagskveldið, 18. Nóvember, 1915. klukkan 8.30 að kveldinu PROGRAMME: Piano Duett—Miss Jacobs og Miss Peterson. Ræða—Síra Fr. J. Bergmann. Solo—Miss Downie. Recitation—Mr. Tait. Solo—Mrs. F. Patrick Ræða—Dr. S. J. Jóhannesson. Solo—Mrs. Alex Johnson. Instrumental Music. Solo—Miss Jacobs. Solo—Mr. Alex Johnson. Piano Dúett—Miss Ottenson and Miss Jónasson. FRÍAR VEITINGAR. ’ INNGANGUR 25c. Fyrirlestur á Garðar, N. D. Fyrirlestur, sem Þorsteinn Björns- son flutti hér í gærkveldi, átti betri aðsókn skilið, en raun varð á. Á- heyrendur voru á milli 25 og 30, og var ekki sem lakast, þegar um fyrir- lestur er að ræða, sem ekki fylgir öans á eftir. Efni fyrirlestursins var hið nú- verandi mannfélagsskipulag, gallar þess og hvernig úr þvi mætti bæta. F7fnið var of víðtækt til að geta áheyrilega rúmast í einum fyrir- lestri, og þess vegna varð hann að fara eins og strokuhestar, sem slökkva langar leiðir á milli þess, sem þeir finna grastó að kroppa, og giápa þar niður á meðan þeim er o- hætt fyrir eftirleitarmönnum. Samhliða auðsafn og örbirgð nú- tímans taldi hann undirrót hernað- arandans, sem nú sést í algleymingi, og glæpa, sem ein þjóð fremur gegn annari , og einstaklingar gagnvart liver öðrum. Mælti með algjörðu jafnrétti karlmanns og kvenmanns, og taldi jafnaðarmensku eina úrræð- iö til vellíðunar, sátta og samlyndis manna á milli. Afnám eignarréttar á þann hátt, að þjóðin ætti alt, en sæji hverjum manni og mannsbarni farborða til lífsviðurhalds og vel- megunar frá vöggunni til grafarinn- ar. — Þetta og annað eins lætur illa i eyrum sumra; en það er engin ný kenning, og hver veit til hvers hún leiðir, — “Þegar hver elskar hver einasta matin. Hver einasti maður er sanngjarn við náungann”, eins og Funar Hjörleifsson komst að orði. Þangað til er hætt við, að þúsund ára ríkið standi á völtum fæti, jafnvel í Sósíalista höndum. — Hugmyndin er í framþróun, og þjóð- cigna spursmálið — það að þjóðin cigi og haldi sérstökum landsnytj- um —• byggist á henni. Auðsafn heillar þjóðar í fárra n anna höndum er hættulegt; en það getur lika verið hættulegt í landstjórnar-höndum. Það er mjög sennilegt, að draumar Jafnaðarmanna rætist með tíð og tíma, og það er aldrei úr vegi, að kvnnast þeim skoðunum, sem að rnálinu lúta. Allar umbætur eru seinfara, en sígandi lukka er bezt.— Það þarf engan að erta, þó Þorsteinn lilaupi yfir eina eða tvo grasbletti; en það verður hann að gjöra á svo. langri leið, því efnið er nóg í marga fyrirlestra, og mál sitt getur hann flutt skýrt og skiljanlega. Gardar, N.D., 3. nóv. 1915. Jónas Hall. Sigvaldi Jónsson. frá Teigi í Vopnafirði. Dáinn 17. ágúst 1915. Þú sigldir hér vestur að vikinga sið, valdir þcr land til að bgggja; sjálfstraustið örugga lagði þér lið og hin langsæja fornmanna hgggja. Með ráðdeild og atorku ruddir þér braut og reistir upp sjálfur þitt merki; og þvi féll þér greiðlega gæfan i . skaut, þú gekst aldrei hálfur að vcrki. Fgrir þér vákti það leynt bæði’ og Ijóst, að lýsa’ upp og annast þitt heima; og ef að þú trggðir við einhverja tókst, aldreigi kunnirðu’ að gleyma. Það saknar þín hvcr þinnar samvist- ar naut, og sjá nú hvað eftir þig liggur; ráhollur vinur þii reyndist í þraut, réttskiftinn, sannur og tryggur. Með sóma var stríðið í heiminum háð; i heilögum friði mi blunda; Sigvaldi, þú vanst þitt dagsverk með dáð og drengskap, til síðustu stunda. Joseph Schram. BorgiÖ Heimskringlu og hjálp- i8 henni til að standa í skilum eins og vera ber. Sérstök kostabofi & tnnanhðaa munum. Komlð tll okkar fyrst, þlB munið ekkl þurfa att fara lengra. Starlight New and Second Hand Furniture Co. r,03—305 NOTRK DAME3 AVBNUB. Talnfml Garry S884. CARBON PAPER for TYPEWRITER—PENCIL—PEN Typewriter Ribbon for every make of Typewriter. G. R. Bradley & Co. 304 CANADA BLDG. Phone Garry 2899. Winnipeg Brúkaöar saumavélar mett hæft- legu vert51; nýjar Singer vélar, fyrlr penlnga út ( hönd etia tll lelgu. Partar I allar tegundlr af vélum; atSgjörtS á öllum tegundum af Phon- ographs á mjög lágu vertsl. J. E. BRYANS 531 SARGENT AVE. Okkur vantar duglega "agenta” og verksmaia. Bin persdna (fyrlr daglnn), $1.60 Herbergl, kveld og morgunverttur, $1.25. MáltítSlr, 35c. Herbergl, eln persóna, 60c. Fyrlrtak I alla statSl, ágæt vfnsölustofa f sambandt. Talsfmf Garry 2252 R0YAL 0AK H0TEL Chas. Gustafsson, efgandl Sérstakur sunnudags mttSdagsvertf- ur. Vín og vfndlar á bortSum frá klukkan eltt tfl þrjú e.h. og frá sez tfl átta atS kveldlnu. 2S3 MARKGT 8TRBBT, WINNIPBG NÝ VERKST0FA Vér erum nú færir um að taka á móti öllum fatnatSi frá yíSur til at5 hreinsa fötin þín án þess a$ væta þau fyrir lágt vert5: Suits Cleaned and Pressed.5©c Pants Steamed and Pressed... 25c Suits Dry Cleaned.......$2.00 Pants Dry Cleaned....~....50c Fáið yður verðlista vorn á öllum aðgjörtSum skófatnatSar. Empress Laundry Co --------- LIMITED ----------- Phone St. John 300 Cor. AIKENS AND DUFFERIN .------- V Hospital Pharmacy LyfjabúÖin sem ber af öllum öðrum. — Komið og skoðið okkar nm- ferðar bókasafn; nxjög ódgrt. — Einnig seljum við peninga- ávisanir, seljum frimerki og gegnum öðrum pósthiisstörf- um. 818 NOTRE DAME AVENUE Phone G. 5670-4474

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.