Heimskringla - 08.06.1916, Qupperneq 7
WINNIPEG, 8. JÚNÍ 1916.
HEIMSKRINGLA.
*L<S. 7.
Hvað hjálpar Frökkum
við Verdun?
Eftir Herbert Corey.
Einhversstaðar á bak við Verdun
vorum vér 26. maí, en gátum ekki
tekið brautina til C —, því að Þjóð-
verjar voru að senda sprengikúlum
sínum eftir henni og yfir hana, eftir
])ví sem franski herforinginn, sem
fylgdi okkur sagði. — Vér verðum
að brúka mjög lélega braut til þess
að komast l>angað, sem þér ætlið,
sagði hann. En brautin, sem vér
vorum neyddir til að ferðast eftir,
var mjög hepplleg fyrir oss, því hún
gaf oss svo ljósa þekking og skilning
á hinni undraverðu verkhyggni
Prakka; og þetta er ekkert leyndar-
mál lengur, því eg býst við, að Þjóð-
verjar viti nú orðið alt um það fyr-
irkomulag næstum eins vel og sjálf-
ir Frakkar. Og þetta, sem Frakkar
hafa gjört er, að síðan slagurinn
mikli hófst við Verdun hafa þeir
þygt járnbrautir, akbrautir og gang-
stígi, langs og þvers og í allar áttir,
um alt svæðið á bak við Verdun,
sem eðlilega eru sameinaðir járn og
akbrautum landsins. Já, alt þetta
hefir verið gjört á síðustu fimtíu
dögum, og nú gengur allur aðdrátt-
ur svo greiðlega, að á fáum dögum
væri hægt að ausa Verdun í kaf með
vistum og vopnum.
En hví var þetta ekki gjört fyrri?
spurðum vér, eða áður en Þjóðverj-
ar byrjuðu aðsókn sína á kastala-
borg þesa, og svarið var: Af því að
Erakkar eru öilum þjóðum fljótari að
sníða sér stakk eftir vexti, eða með
öðrum orðum: að ráða fram úr því
óvænta, sem að höndum ber.
Sumir hafa undrast yfir, að Þjóð-
verjar skyldu ráðast á Verdun. En
sannleikurinn mun vera sá, að þeir
hafi verið búnir að njósna um, hvað
erfitt var að koma þangað næguUi
vistum og öðrum nauðsynjum hers-
ins, þar sem var að eins um tvær
járnbrautir að gjöra til allra að-
flutninga, og því hafi þeir álitið, að
Prakkar gætu ekki haldið út meir
en svo sem þrjá til fjóra daga. En
Þjóðverjar hafa að sögn ekki minna
en tólf járnbrautir til aðflutninga
sín megin við Verdun, og því varð
útreikningur Þjóðverja svona: —
“Vér hljótum að geta ausið Frakka
i kaf með sprengikúlum okkar á
tveimur til þremur dögum, og látið
þá flýja úr borginni”. — En hvernig
fór?
Bifreiðar brúkaðar til aðflutninga.
Strax og það varð yfirehrforingj-
um Frakka ljóst, að Húnar ætluðu
að gjöra aðsúg að Verdun, fóru þeir
að gjöra ráðstafanir til umbóta her-
gagna aðflutnings, og í dögun hinn
næsta morgun voru átján þúsund
bifreiðar, af ýmsri gjörð og lögun,
byrjaðar að flytja skotfæri og önn-
ur hergögn.
I fyrstunni var sagt í Parfs, að
það hefðu að eins verið fimm þús-
und bifreiðar við hergagna-flutning
þenna, en háttstandandi herforingi
sagði mér, að átján þúsund væri
rétta talan, og það er scnnilegra.
Fyrstu bifreiðarnar í þessari afar
iöngu lest voru hlaðnar mönnum,
svo sem akbrautafræðingum og ak-
brauta verkamönnum, véiameistur-
Um og eftirlifcsmönnum af öllum teg-
Undum. Því að á hverri mílu var
sett upp eins konar biðstöð (sta-
tion), og gæslumaður við hverja, til
að flagga og aðvara. Ef að bifreið
bilaði, var henni óðara velt út af
vcginum, þvl ekkert mátti stöðva
hinn stöðuga bifreiöa-straum til
Verdun.
—Þessir elskulegu naggarar, sagði
iylgdarmaður minn 1 aðdáunarróm,
benti um leið á einn af þessum
brauta-viðgjörðarmönnum, sem um
leið leit til okkar, og var augnaráð
han's all-biturt og andlitið sveitt og
þrútið af erfiði, og gramur í geði
var hann auðsjáanlega yfir því,
hvernig bifreiðarnar sópuðu mulda
krjótinu upp úr holunum og hjól-
förunum, jafnótt og hann fylti þær.
Eg sá hann hrista hnefann framan í
einn bifreiðarstjórann, um leið og
hann fór fram hjá honum og þeytti
hiulda grjótinu upp ú r holu, sem
hann var nýbúinn að fylla.
Alt af falla sprengikúlur óvinanna
á þessar brautir hér og þar, og búa
til nýjar holur; en þessir “elsku-
iegu naggarar” gefa sig ekkert að
bví, nema því að eins að sprengikúl-
hrnar falii alt of ])étt, l)á hætta þeir
bar til hríðinni iinnir, og leggjast
beir vanalega í grasið rétt utan við
brautina, og reykja þar pípu sína.
byrja svo aftur á ný, nöldrandi
yfir þessum “fjandans bifreiðum”
°k þessum “bölvuðu þýzku sprengi-
húlum”.
I*að vinna tugir bifreiða við að
iiytja möl á þessa vegi, og gengur
l'að stöðugt dag og nótt, og þungar
°k stórar eim-rúllur (steam rollers)
elétta og þjappa mölinni ofan í
brautirnar; en alt af rífa sprengi-
^ólurnar holur hér og þar, og þessi
stöðugi straumur hergagna flutn-
in-gs heldur látlaust áfram að eyði-
in&gja, svo alt af þarf að halda á-
fram að gjöra við, uppihaldsiaust
dag og nótt.
Þessar átján þúsund bifreiðar
höfðu nóg að gjöra fyrstu dagana,
því um leið og þær fluttu til Yerdun
ailar tegundir hergagna, þurftu þær
að flytja burtu úr borginni 22,000
manns.
En nú er farið að fækka bifreið-
unum, því nú er búið að leggja þess
ar bráðabyrgða járnbrautir um alt.
Þessar bráðabyrgða járnbrautir eru
léttar og fijótgjörðar eða lagðar, því
að teinarnir eru álíka að sverleika
og þyngd eins og teinar þeir, sem
brúkaðir eru á steintöku (quarries)
brautum í Ameríku. Gufuvélarnar,
sem renna eftir þessuin brautum,
eru af hæfilegri stærð og draga að
eins tólf vagna.
Manni sýnist í fljótu bragði, að
brautir þesvsar muni vera mjög svo
ótraustar, en reynslan sýnir annað,
því mjög sjaldan hlekkist þeim
nokkuð á.
Þessar járnbrautir liggja mjög
skamt frá fremstu röðum óvinanna,
og oft eru járnbrautaspou þessi rifin
upp af þýzkum sprengikúium; en
sjaldan hefir það komið fyrir, að
gufuvagnarnir, þessir litlu, eða lest-
ir þær sem þeir draga, hafi orðið
fyrir skotum óvinanna. En þegar
brautarsporið skemmist af spreng-
ingu, eru ætíð menn til taks til að
gjöra við það, og veldur svoleiðis
skemd því sjaldan meira en fárra
mínútna stans.
Vér mætturn mörgum eimlestum,
fullum af þessum brautabyggingar-
mönnum, með skóflur, broddaxir
(picks) og byssur sínar, og malpoka
á bakinu; voru þeir að ferðast þang
að sem þurfti að byggja nýjar braut
ir eða gjöra við gamlar. Einnig
mættum vér mörgum lestum fullum
af hermönnum, sem voru á ieiðinni
til skotgrafanna eða “bræðsluofns-
ins”, eins og þeir kalla það. Aftur
voru aðrir á leiðinni úr eða frá skot-
gröfunum, þögulir, forugir og dauð-
uppgefnir eftir sex sólarhringa stöð-
uga vöku og bardaga, og áttu þeir
nú að fá sex daga hvíld. Og alt þetta
gengur eins og góð stundaklukka,
skrykkjalaust og hvíldarlaust, sem
sýnir, að Frakkar kunna að stjórna,
og kemur það alt af betur og betur
í ljós.
Islandsfréttir.
Lögrétta, 3. maí.
Mislingar. 18. apríl fann héraðs-
læknirinn á ísafirði mann þar ný-
lagstan í mislingum. Hafði sá mað-
ur komið frá Noregi með Flóru. En
skipið var búið að koma í Vest-
mannaeyjar, Reykjavík, Patreks-
fjörð og Hólmavík og var þenna dag
á leið til Siglufjarðar.
Landlæknir gjörði þegar allar ráð-
stafanir til að hefta útbreiðslu veik-
innar. Isfirðingurinn, Eiríkur Guð-
mundsson, hafði sýkst meðan skip-
ið var hér (13.—15. f. m.), en verið á
ferli. Var rekinn ferill hans hér. —
Fim manneskjur hafa sýkst af Ei-
ríki hér, 15 á ísafirði, áður en lækn-
ir sá hann, og 5 farþegar, sem fóru
til Siglufjarðar og liggja nú þar. Er
allstaðar beitt fullum sóttvörnum.
Verður reynt af fremsta megni að
stöðva veikina.
Landsbankamálin. Það er nú á-
kveðið, að öll skjöl, sem farið hafa
m’illi landsstjórnar og bankastjórn-
ar út af gjaldkeramálinu og banka-
byggingarmálinu, komi út í Stjórn-
artíðindunum innan skamms. Um
bankabyggingarmáiið hefir mikið
verið rætt að undanförnu í bæjar-
blöðunum. Bankastjórnin viil nú
byggja hann neðan við Hafnar-
stræti, en landsstjórnin vill hafa
hann við Austurstræti, þar sem
Hótel Reykjavík var áður. Skyn-
samleg grein um þetta mál var í
Vísi nýlega eftir L. L., og mælir
hann með því, að bankinn verði
settur við Lækjartorgið, norður af
stjórnarráðshúsinu.
Nú hefir stjórnin látið dómkveðja
3 menn til þess að segja álit sitt um
lóðirnar tvær við Austurstræti og
Hafnarstræti og hafa orðið fyrir
því: Ásg. Sigurðsson konsúll, Einar
Erlendsson smiður og Jón Þorláks-
son landsverkfræðingur.
— Nathan og Olsen, stórkaup-
monn hér iiafa keypt Godthaabs-
lóðina með þeim liúsum, sem á
henni standa og kvað ætla að
byggja þar upp nú i sumar. Verður
það þá önnur brunalóðin frá í fyrra,
sem upp er bygð, en fyrstur til að
byggja upp varð Gunnar Gunnars-
son kaupmaður. Hann bygði þegar
í fyrrasumar stórt steinsteypuhús
við Hafnarstræti, og nú er hann
kominn nokkuð áleiðis með annað
við Austurstræti.
— SkilnatSargjöf. Jón Guðmunds-
son, sem verið hefir ráðsmaður Vífil-
staða hælisins sfðan það var stofn-
að, sagði því starfi af sér nú fyrir
skömmu og fluttist hingað til bæj-
arins. Bæði læknir og sjúklingar á
Vífilsstöðum gefa honum bezta vitn-
isburð fyrir veruna þar. Sjúkling-
arnir sendu honum ávarp nú á sum-
ardaginn fyrsta, með þökk fyrir
framkomu hans við þá, og fylgdi á-
varpinu minjagripur, en það var
vandaður göngustafur úr íbenviði,
með handfangi úr silfri. Nafn Jóns
er greypt með gulli í viðinn, neðan
við handfangið, en þar fyrir neðan
er silfurhólkur og á hann grafið:
“Þökk fyrir 1910-1916, frá Vífilsstaða-
sjúklingum”.
— Tíðin. Umskifti eru nú orðin
til hins betra, og þó engin veruleg
hlýindi komin enn. Um miðja síð-
astliðna viku brá til sunnanáttar,
en í vikulokin var aftur kominn
norðan andvari. En heiðríkt er og
sólskin á hverjum degi. Fréttir úr
Dalasýslu.Húnavatnssýslu og Skaga
fjarðarsýslu segja, að jarðhnjótar
séu komnir þar upp til nokkurra
bóta, en í Eyjafjarðarsýslu og Þing-
eyjarsýslu er enn sagt jarðlaust
með öllu. Að norðan er sagt, að hey-
skorturinn sé ekki eins mikill al-
ment og af hefir verið látið hér;
hvergi hafi menn enn mist skepnur
eða fargað þeim hans vegna. Goða-
foss leggur á stað héðan í dag með
mikið af kornvöru til Norðurlands,
mest til Blönduóss og Sauðárkróks.
Þetta er alt tekið af kornmatar-
birgðum landssjóðs. Á Akureyri er
eitthvað af þeim fyrirliggjandi enn,
og einnig einhver slatti á Húsavík.
Þær ráöstafanir póststjórnarinn-
ar, að felia niður póstferð um Norð-
urland vegna heyleysis, þykja mörg-
um ástæðulausar með öllu og jafn-
vel ótækt úrræðaleysi; segja, að
landssjóðinn hefði litlu munað, að
kaupa upp af fóðrum einn eða tvo
gripi á póstleiðinni og borga fyrir
eins og upp hefði verið sett, heldur
en að láta póstferðina falla niður.
— Mannalát. Síðastl. laugardag
andaðist merkisbóndinn Þorsteinn
Thorarensen á Móeiðarhvoli í Rang-
árvallasýslu. Hann varð bráðkvadd
ur.
■ Hinn 10. apríl andaðist í Steinnesi
í Húnavatnssýslu frú Ingibjörg Guð
mundsdóttir, kona Bjarna Pálsson-
ar prófasts.
— Enskt herskip, hjálpar-beiti-
skip, kom hingað í gær og með því
E. G. Cable, ræðismaður Englend-
inga, sem hefir verið á Englandi um
tíma að undanförnu.
— “Mjölnir” í Lerwick. Englend-
ingar hafa nú haldið “Mjölni” í Ler-
wick eitthvað þriggja vikna tíma.
Var hann á leið með fiskfarm til
Noregs og hafði verið samið um
flutning a farmi þaðan aftur. Það
er ekkert smáræðistjón, sem útgerð-
arfélagið hér, “Kveldúlfur” verður
fyrir af slíkri töf.
Smávegis
það er sagt aö Gregory Ras-
putin, Spiritualista miBill, ráCi
ennþá mest fyrir Nikulási Rússa
keisara.
Þeim manni sem stekkur af
steikarapönnu hjónaskilnaöarins
niöur í eld hjónabandsins, er ekki
hægt aö bregöa um hugleysi.
Frægö, er kýmnis kver di, sem
krýnir þig meö lárviöarsveig, um
leiö og hún nælir “April fool,“
auglýsingu á bakiö á þér.
Aö hanga í treyjulafi manns sem
hefir ást á öörum kvenmanni,
hefir sama árangur sem þaö aö
hanga í skotti hunds þess ervanist
hefir á aö elta fiörildi.
Er þaö ekki skrítiö? aö sá
maöur sem getur bjaigaö tíu
manns úr eldsvoöa og slökkt
eldinn, án þess aö þykjast nokkuö
af því, en nái hann í tveggja
punda sólfisk á dorg sína, veröur
hann svo stór aö hann kemst
valla fyrir á heilli section af landi.
Af hverju kemur þetta?
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ um
heimilisréttarlönd í Canada
og Norðvesturlandinu.
Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu a?5
Já. efcur karlmaöur eldri en 18 ára, get-
úr tekiti heimilisrétt á fjórt5ung úr
section af óteknu stjórnarlandi í Mani-
toba, Saskatchewan og Alberta. Um-
sækjandi eröur sjálfur aö koma á
landskrifstofu stjórnarinnar, eöa und-
lrskrifstofu hennar í þvi héraöi. 1 um-
bo'ði annars má taka land á öiium
landskrifstofum stjórnarinnar (en ekki
á undir skrifstofum) met5 vissum skil-
yrtium.
SKYLDUR:—Sex mánatSa ábút5 og
ræktun landsins á hverju af þremur
árum. Landnemi má búa met5 vissum
skilyrt5um innan 9 mílna frá heimilis-
réttarlandi sínu, á landi sem ekki er
minna en 80 ekrur. Sæmilegt Iveru-
hús vert5ur at5 byggja, at5 undanteknu
þegar ábút5arskyldurnar eru fullnægð-
ar innan 9 mílna fjarlægt5 á öt5ru landl,
eins og fyr er frá greint.
1 vissum hérut5um getur gót5ur og
efnilegur landnemi fengit5 forkaups-
rétt, á fjórðungi sectionar met5fram
landi sínu. Vert5 $3.00 fyrir ekru hverja
SKYLDUR:—Sex mánatJa ábútS á
hverju hinna næstu þriggja ára eftir
atS hann hefir unnit5 sér inn eignar-
bréf fyrlr heimllisréttarlandi sínu, og
auk þess ræktað 50 ekrur á hinu seinna
landi. Forkaupsréttarbréf getur land-
nemi fengit5 um leit5 og hann tekur
heimilisréttarbréfit5, en þó met5 vissum
skilyrt5um.
Landnemi sem eytt hefur heimilis-
rétti sínum, getur fengit5 heimilisrétt-
arland keypt í vissum hérut5um. Vert5
$3.00 fyrir hverja ekru. SKYLDUR:—
Vert5ur at5 sitja á landinu 6 mánut5i af
hverju af þremur næstu árum, rækta
50 ekrur og reisa hús á landinu, sem er
$300.00 virt5i.
Bera má nit5ur ekrutal, er ræktast
skal, sé landit5 óslétt, skógi vaxit5 et5a
grýtt. Búpening má hafa á landinu í
stat5 ræktunar undir vissum skilyrðuin.
VV. VV. CORY,
Deputy Minister of the Interior.
Blöt5, sem flytja þessa auglýsingu
leyfislaust fá enga borgun fyrir.
™E D0M1NI0N BANK
Hornfl Notre Dome or Sherbrooke
Street.
HOfntfstóll npph...........$6,000,000
VaraaJOOur ............... $7,000,000
AUar elgntr...............$78,000,000
Vér óskum eftir vit5skiftum ver*-
lunarmanna og ábyrgjumst at5 gefa
þeim fullnægju. Sparlsjótfsdeild vor
er sú stærsta sem nokkur bankl hef-
ir i borginni.
Ibúendur þessa hluta borgarlnn&r
óska at5 sklfta vit5 stofnum sem belr
vita at5 er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygging óhlutlelka.
Byrjit5 spari innlegg fyrir sjálfa
yt5ur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, RáísmaSur
PHONE GARRY »4.50
223. Canadlan
i
Scandinavian
Overseas Battalion
Lieut.-Col. Albrechtsen O.C.
HEADQUARTERS: 1004 Union Trust Bldg., Winnioeg
Æðrí og Iægrí foringjar og hermenn verða Scandinavar
Sveitina vantar hermenn.
Skrifið yður í hana.
MARKET HOTEL
146 Prlncess Sfreet
á móti markat5inum
Bestu vínföng, vindlar og at5-
hlyning gót5. íslenkur veitinga-
mat5ur N. Halldórsson, leitibein-
ir íslendingum.
P. O’CONNEL, Eigandi VVinnlpegr
Sérstök kostabot5 á innanhúss-
munum. Komit5 til okkar fyrst, þit5
munit5 ekki þurfa at5 fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
593—505 STOTUK DAME AVENVE
TaUfml: Garry 3884.
Shaw’s
Stærsta og elsta brúkat5ra fata-
sölubút5 í Vestur Canada.
479 Notre Dame Avenue
GISLI GOODMAN
TINSSIIÐDR.
Verkstæt5i:—Horni Toronto St. og
Notre Dame Ave.
Phone Helmllls
Garry 2988 Garry 899
hlNASTA SKÓVIÐGERÐ.
MJög fln skó vlTSgerö á meUan þú
bíöur. Karlmanna skór hálf botn-
aólr (saumab) 15 minútur, gútta-
bergs hælar (don’t slip) et5a lebur,
2 mínútur. STEWART, 193 Paclfle
Ave. Fyrsta búb fyrlr austan abal-
strætl.
J. J. B/LDFELL
FASTEIGNASALI.
Vnlon Bank 5th. Floor No. 520
Selur hús og lót5ir, og annat5 þar &V
lútandl. Útvegar peningalán o.fl.
Phone Maln 2685.
PAUL BJARNASON
FASTBIGPÍASA1.I.
Selur elds, lifs, og slysaábyrgb og
útvegar penlngalán.
WYNYARD, - SASK.
J. J. Swanson H. G. Hinrikflson
J. J. SWANSON & CO.
FASTEIGNASALAR OG
penlnga mlOlar.
Talsimi Main 2697
Cor. Portage and Garry, Winnlpeg
Graham, Hannesson & McTavish
l.ögfræ:ðijigar.
215—216—217 CURRIE BUILDING
Phone Main 3142 AVINNIPEG
Arni Anderson E. P. Garland
GARLAND & ANDERSON
LÓGFR.EÐINGAR.
Phone Maln 1661
(01 Electrie Railway Chambar*
Talsími: Main 5302.
Dr. J. G. Snidal
TANNLÆKNIR.
614 SOMERSET BLK.
Portage Avenue. WINNIPEG
Dr. G. J. Gis/ason
Physlcian and Surgeon
Athygli veitt Augna, Eyrna og
Kverka Sjúkdómum. Ásamt
innvortis sjúkdómum og upp-
skurt5i.
18 South 3rd St., Grnnd Forkn, N.D.
Dr. J. Stefánsson
401 BOYD BUILDING
Horni Portage Ave. og Edmonton St.
Stundar eingöngu augna, eyrna,
nef og kverka-sjúkdóma. Er at5 hitta
frá kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til 6 e.h.
Phone: Main 3088.
Heimili: 105 Olivia St. Tals. G. 2315
Vér höfum fullar blrgblr hrein- Y
ustu lyfja og mebala. KomilS Á
meS lyfseSla ybar hlngaö, vér ”
gerum meSulin nákvæmlega eftir A
ávisan læknisins. Vér sinnum V
utansveita pöntunum og seljum Á
giftingaleyfl. : : : : T
COLCLEUGH & CO. *
Notre Dnme & Sherhrooke Stfl. f
Phone Garry 2690—2691 Á
A. 5. BARDAL
selur likkistur og annast um út- í
farlr. Allur útbúnaöur sá best
Ennfremur selur hann allskon
mlnnlsvaröa og legstelna. :
813 SHERBROOKE ST.
Phone G. 2152 WHNIP