Heimskringla - 08.06.1916, Qupperneq 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 8. JÚNÍ 1916.
Auction
Sale
Every Second and Fourth Saturday
monthly wilt be held al Clarkleigh
this year from 2 to 6 p. m.
B. RAFNKBLSSON.
Mr. C. J. Wopnford, málari, er
fluttur frá 066 Maryland St., að 673
Agnes ,St.
Höfðingleg gjöf til Red Cross.
Ágófii af samkomu í Mikley, sem
kpnur bygóarinnar stófiu fyrir, sent
af Mrs. Th. S. Erlendsson, $63.75.
T. E. Thorsteinson,
féh. ísl. nefndarinnar.
Fréttir úr Bænum.
Á laugardaginn kemur, 10. þ. m. |
verður hið árlega PICNIC Únítarai
sunnudagaskólans, að ]>essu sinni
norður í KILDONA"N PARK. Kom-
ið verður saman í kyrkjunni upp úr|
hádegi, og er svo tii ætlast, að fariö
verði ]>aðan kl. 1 e. h. Börn skólans
liafa heimild til að bjóða þeirn
kunningjum sínum — börnum á
svipuðum aldri — með sér, er ]>au
vilja, og er mælst til, að ]>au öli geti
verið komin til kyrkjunnar ekki
seinna en kl. 1. Þá verður lagt af
stað með ]>au f bifreiðum norður og
verður olnhver til eftirlits með
hverri bifreið. Vonast er eftir, að
]>að af safnaðarfólki og meðlimum
Ungmennafélagsins, er hægt eiga
með að komast, verði samferða með
strætisvögnunum. Kildonan garður-
inn er einn með beztu skemtigörð-
um borgarinnar. Bezt væri, að ]>cir
eldjá hefðu með sér eitthvað til
hressingar fyrir sig og þá yngri. unz
farið yrði heim aftur að kveldinu.
Gott prógram verður þar úti í gai ð-
inum, og er öllum yngri sem eldri
boðið að koma og taka þátt í skemt-
ununum.
Mr. W. G. Simmons kom vestan úr
Argyle inn til borgarinnar. Lét hann
vel yfir öllu þar vestra. Menn voru
búnir að sá nokurnveginn eins
miklu og vant er. Heldur minna
hveiti þó. En veðurlagið fyrirtak og
kemur kornið ágætlega upp á ökr-
unum. Heilsa manan hin bezta. Mr.
Simmons fer heim eftir helgina, og
með honum Valdís móðir hans.
Kvenfélag Tjaldbúðarsafnaðar hef-
ir til sölu heimatilbúið kaffibrauð í
búð Mr. B. Árnasonar á horni Vic-
tor og Sargent stræta, á laugardag-
inn kemur eftir hádegi. Verður þar
margt gómsætt á boðstólum, svo
sem Vínarterta, Kr.vddkökur, Jóla-
brauð, Brúnbrauð, Pæ og margt
fleira til hvítasunnunnar.
Skáldið okkar og málarinn Þorst.
X>. Þorsteinsson, sem allir lesendur
blaðsins þekkja, auglýsir nú í blað-
inu, að hann máli og stækki myndir
af mönnum og iandslagi, og hverju
sem vill, fyrir svo sanngjarnt verð,
sem hægt er að hugsa sér. Hann er
fæddur málari Þorsteinn og er mörg-
um kunnur bæði fyrir skrautritun
sína og myndagjörð. Menn geta séð
málverk oftir hann í húsgagnabúð
Halldórs Metúsalemssonar á Sar-
gent Ave. Og hér á skrifstofu Heims- j
kringlu höfum vér prýðisvel gjörðaj
mynd eftir hann af Gullfossi. Þeir;
sem smekk hafa fyrir litmyndun eðai
vilja láta stækka myndir af einum
eða öðrum, a'ttu að koina og sjá
myridirnar hans Þorsteins og-sjá og
tala við hann s.iálfan.
Gleymiö ekki sainkomunni, sem
barnastúkan ÆSKAN heldur fimtu-j
dagskveidið í þessari viku, 8. júnf.
Börnin keppa þar hvert við annað,i
og ef gainan er að nokrum kapp-j
leikum, ]>á er gaman að þvf að horfa
á börnin. Það er hin komandi kyn-|
slóð, sem þarna er að byrja að koma;
frarn, og ef áð vér fylgjum ]>eim í hug
anum, sem ]>arna koma fram, ]>áj
getum vér gjört oss hugmynd um,j
hvernig ]>au muni korna fram í líf-|
inu seinna, ]>egar vér crum fyrir
löngu koinin undir græna torfu. —
Eins getum vér í huganum rifjað j
uj>p hina fyrri tfma og hugsað oss,
hvað vér vorum að gjöra á þeirraj
reki, og getur þetta þá vakið heilan
sæg af hugmyndum hjá oss, og
hvort sem vér lítum fram eða aftur,
þá geta börnin lyft huga vorum
svo, að vér förum glaðir heim af
skemtun þessari. Samkoman er aug-
lýst á öðrum stað hér í blaðinu.
Svo biður Mrs. Guðrún Búason
oss að geta þess, að á laugardaginn
heldur barnastúkan Æskan “Pic-
nie” úti í City Park, og biður hún
börnin öll að koma saman hjá sér,
á laugardaginn, að 564 Yictor St., kl.
2 og 15 mín. e. m. Þaðan fer hún svo
með þau út í skemtigarðinn.
Gleymið ekki auglýsingunni um
Wonderland, hið ágæta leikhús á
Sargent og Sherbrooke, þar sem
myndirnar renna með undrahraða
fyrir augum manna og segja söguna
skýrara en með orðum verði lýst,
þvf men nsjá l>ar alla tilburði Jeik-j
éndanna, eins og menn horfðu á at-j
burðinn gjörast, og geta því séð ogi
skilið tilfinningar og ástríður, sorg!
og gleði, hrekkvísi og lireinskilni, j
sem sýnir sig í svip og ttlburðuin
leikendanna. Þar verður ljómandi
jirógram á föstudag og laugardag
og opið til kl. 12 að kveldi.
Málverk.
Allskonar litmyndir
(“Pastel” og olíu-
málverk) fást
keyptar hjá I»«r-
Mteint 1». I»or*tetn»»yiil, 715- Mciíee St.,
—TnlMfinl (i. 49J>7.— Ljósmyndum, bréf-
spjaldamyndum o. s. frv. breytt í stór-
ar litmyndir fyrir mjög sanngjarnt vert5.
Efalaust eiga allir einhverja mynd
svo kæra, að þeir vilja geyma hana
me5 lífi því, sem höndin og litirnir
skapa, til minja í stofunni sinni.
í kvæðinu “Hólarnir mínir”, sem
prentað var f 34. nr. þessa blaðs, hef-
ir næst síðasta hending í síðasta
versinu misprentast; hún átti að
vera þannig: —
lýsa um hallar og hálar.......
Mr. Jón Hjaltalín Daníelsson gekk
í Army Service Corps hinn 26. apríl
sl. Hann er sonur Jónasar Daníels-
sonar hér í Winipeg; fæddur 12. des-
ember 1896.
Opið bréf
til íslenzkra lestrarfélaga vestan
hafs.
Lestrarfélögin eru einn þátturinn
í þjóðernisbaráttu okkar Vestur-
íslendinga. Mér hefir leikið forvitni
á að vita, hvernig sá félagsskapur
hefir blessast yfirleitt, og get hugs-
að mér að svo kunni að vera um
fleiri.
Vilja formenn allra íslenzkra lestr-
arfélaga vestan hafs, sem lesa þessar
línur gjöra svo vel að svara eftir-
farandi spurningum, og senda bréf-
lega svör til undirritaðs?
1. Nafn félagsins og heimilisfang?
2. Hvenær stofnað?
3. Hversu mörg bindi f safninu?
4. Meðlimatala nú?
5. Hversu inargir eru ]>að hlutfalls-
lega af þeim, sem þú álítur að
gæti verið óg ætti að hafa jafna
hvöt, til þess að vera í félaginu?
6. Hæzta og lægsta meðlimatala?
7. Er félagaið á framfara- eða
linignunarskeiði?
8. Hversu mikil hefir þátttaka
]>eirra verið, sem eru fæddir hér
landi, eða aldir liér upp frá
barnsárum?
9. Álftur þú nokkra samvinnu
æskilega og hugsanlega milli
vestur-íslenzkra lestrarfélaga, og
ef svo — hverskonar?
Bregðist menn vel við þessari
málaleitun, mun eg síðar birta í
blöðunum heildaryfirlit eftir skýrsl-
um þeim, sem mér berast á ]>enna
hátt. Engin nöfn, hvorki félaga né
formanna þeirra, skulu birt, ef þess
verður óskað.
Virðingarfylst.
Baldur, Man., 27. maí 1916.
Jónas Þorbergsson.
Þorlákur Jónsson.
Eæddur í maí 1913; dáinn í septem-
ber sama ár.
Þessi tvö stef mynduðust ]>á er eg
gekk heim frá gröf lians, sem var
síðasta barn mitt, er lagt var í hina
köldu ættjarðar mold.
Bliknaði ]>riðja blómið mitt,
burtu þau öll voru hrifin.
Á haustin fölna öll frækorn og blóm
Eins fórst þú minn ástkæri drcngur
Horfinn þú ert mér og hvílan er tóm,
liver hjarta míns titrar strengur, —
eg sé þig ei, sónur minn, lengur.
En gott er að vita’ að guði’ ertu hjá;
get eg þar fundið minn drenginn.
Saman við munum svífa þá,
sðng-hörpu knýja strenginn.
Þar söknuður svíður enginn.
Fréttabréf.
(Frá fréttaritara Hkr.).
Markerville, 29. maí 1916.
Hér hefir vorið verið eitt af ]>eim
köldustu, sern hér hafa komið um
mörg ár; fyrri hluta þassa mánaðar
þurrviðri og stormbyljir og oft næt-
urfrost. Svo brá til votviðra, með
kulda, sjaldan hlýviðri, svo teljandi
sé, til nálægs tíma. Sumstaðar hafa
akiar skemst af frosti, sem sneinma
voru sáðir; en vfða hefir bleyta og
kuldi haldið gróðri til baka. Útlitið
er því fremur dauft enn sem komið
er.
Skepnuhöld eru alment góð, því
fóður var hér alment nóg og gott.
Alment er hér nú heilbrigði og góð
líðan. A. K. Sigurðsson járnsmiður,
sem fyrr var getið að lægi hættulega
veikur, var tekinn undir holdskurð
við botnlangabólgu, og er nú sagð-
ur á batavegi eftir vonum.
Eins og auglýst hafði verið kom
dr. Guðm. Finnbogason hingað til
Markerville að kveldi þess 21. þ. m.
Fylgdarmaður hans var herra W.
H. Paulson. Næsta dag flutti dr. G.
F. fyrirlestur í samkomuhúsinu á
Markerville, að viðstöddu fjölmenni.
Eins og vænta mátti, var erindi
]>etta snildarlega flutt: tajaði hann
um nauðsyn á viöhaldi íslenzkrar;
tuhgu og þjóðernis og sýndi fram á,
hve göfugt móðurmál vort er og hve
þjóðernis-hæfileikarnir væru stórir;
sýndi fram á, hve skaðlegt það væri
fyrit Vestur-íslendinga að glata
þessu meðan annars væri kostur. —
Framsetningin var hvorttveggja ljós
og skemtileg; rökfærslurnar óhrekj-
andi. Það er sannur andlegur gróði,
að hlusta á dr. G. F.. Bezta |>akklæti
til hans fyrir hingað komuna.
Hr. K. Halldórsson.
Paddling Lake, Sask.
Sem svar upp á athugasemd þína
í Heimskringlu vil eg segja:
Hvar hafa l>essir þrír Islendingar
lönd, sem þú getur um að eg hafi
slept úr tölu landa vorra þar vest-
ur frá?
Eg og Oscar sonur l>inn, vorum
spurðir að, hvað væru margir land-
ar, sem hefðu tekið upp lönd þar
vestur frá og sögðum við: við tveir,
og værum við báðir í hernum. Nú,
en svo segir Oscar, að faðir sinn og
yngsti bróðir lifi á landi bróður
síns þar vestur frá.
Ef þú getur kallað þetta missögn,
þá tek eg athugasemd ]>Ina góða.
En þar sem þú getur ekki sagt
rétt frá, í hvaða herdeild Jón sonur
þinn er, þá er engin furðað þó fleira
sé rangt sem þú skrifar. Jón er í 44th
Battery en ekki Battalion. Svo fór
hann frá Winnipeg 21. febrúar, en
ekki í marz, eins og þú segir.
Eg vona, að hr. K. Halldórsson at-
hugi betur, hvað hann setur í blöð-
in næst.
Th. Tsfjord.
Winnipeg, Man., 3. júní 1916.
Fréttir frá stríðinu.
Þjóðverjar einlægt að sækja fram
við Verdun, en vinna ekkert á.
— Rússar hrekja Þjóðverja á Rúss
landi sunnan við Pripet flóana og
taka 13,000 fanga, og segir fregnin,
að lveir hafi hrakið þá á löngurn
kafla alla leið suður undir Rúmen-
íú, en það hlýtur að vera 200 mílna
svæði eða meira. Ef l>að skyldi satt
reynast, ]>á hljóta Rússar að hafa
þar afla mikinn. En mest voru ]>ar
Austurríkismenn á móti þeim, og
hafa ]>eir reynst léttari fyrir en Þjóð
verjarnir.
— Austur af Mosul við Rivandovo
í Tígrlsdalnum er sagt að bardagi
liafi verið milli Rússa og Tyrkja.
Tyrki&réðust á, en Rússar hröktu
þá af sér. En eftir þcssu eru Tyrkir
svo sterkir þar, að þeir geta tafið
fyrir Rússum. Einnig liafa bardagar
verið sunnan við Erzingan og við
Mamakhatun í Litlu-Asíu og stancla
Tyrkir þar nokkuð fastir fyrir.
— Seinustu blöðin staðfesta fram-
sókn Rússa á 250 mílna svæði á
Rússlandi, eða frá Pripet flóunum
og alla leið suður til Rúmeníu. Þeir
sækja ósleitilega fram á öllu þessu
svæði og mjög víða, ef ekki nærri
allstaðar hafa óvinir þeirra orðið að
láta undan. Þeir ætla sér óefað að
beygja aftur ]>ennan fylkingararm-
inn Þjóðverja og má nú búast við
tíðinduin bæði þaðan og annars-
staðar frá.
Vér vorum áður búnir að geta um
Grikki; en seinustu fregnir um inn-
rás Búlgara í Struma-dalnum segja,
að Grikkir hafi varisf Búlgörum í
fyrstu eina 3 klukkutíma í Rupel-
virkjunum. En ]>á komu til þeirra
rafskeyti frá Konstantín Grikkja-
konungi, og skipaði hann þeirn að
gefa upp öll vígin og allan Strum-
nitza dalinn og koma heim. Þetta
gjörðu Grikkir, en óvíst er nú, hvað
úr þessu verður.t
— í Trent-dölunum hefir slagur-
inn verið harðari milli ítala og
Austurríkismanna. Sjö sinnuin —
segja blöðin — að Austurríkismenn
hafi gjört áhlaupin á þá; en stór-
skotalið þeirra gjörði svo þéttar
hríðar yfir höfuð þeim, að þeir
mynduðu eldhaf að baki þeim, sem
engu kvikindi var fært yfir, og gátu
þeir því enga hjálp fengið, hvorki
menn né skotfæri. Eldhaf þetta
(Wall of Fire) verður þegar sprengi-
kúlurnar springa svo þétt á einum
eða öðrum stað, að það verður alt
sem logandi.
Italir voru þarna á bröttum hæð-
um eða fjallahrygg, og þegar skot-
færin fóru að bresta, tóku þeir það
ráð að velta stórum björgum og
steinum ofan á Austurrfkismenn.
Þetta gekk um hríð og tafðist Aust-
urríki.smönnum uppgangan all-
lengi; en þegar Austurríkismenn
bjuggust til að ráðast á ]>á í sjö-
ynda sinni, ]>á héldu þeir undan.
Á Monte Maggio og Spitz Tonezza
var Alpine sveitum ítala elcipað að
halda stöðum ]>essum f 24 klukku-
tíina. En ]>eir hóldu þeiin í 48 kl.-
tíma; þá var þeim loks sagt að
halda undan, Segja sjónarvottar, að
bardagarnir þar hafi verið ákaflega
harðir og grimmir.
Yuan Shi Kai látinn.
Kínverski höfðinginn, byltinga-
maðurinn og um stund forseti, Yu-
an Shi Kai, er dauður og kominn til
feðra sinna. Hann var vitur maður,
harðskiftinn og ekki barn við að I
eig8, og voru hejl héruðin eða rétt-1
ara ríkin í Kínaveldi búin að gjöra
uppreist á móti honum, sem hann
ekki gat sefað. Mörgum, sem þekkja
Kína og háttu manna þar, verður
grunsamt um dauða hans, og þætti
ekki ótrúlegt, ]>ó einliver segði, að
honum hetoi verið hjálpað til að ná
hinum hinstu bústöðum. Sjálfur
var hann oft ódeigur að aðskilja
höfuð og boli vina sinna og óvina,
og þurfti sjaldan langan umhugsun-
artíma. — En hvaða áhrif þetta hef-
ir á Kínaveldi, getur enginn sagt
fyrri en tímar líða.
Vináttan á völtum fæti
Fyrir helgina var talið úti um all-
mesta vinskapinn milli Grikkja og
Bandamanna. Grikkir voru nýlega
búnir að fá 118 milíónir dollara að
láni í Ameríku: áttu þær- að koma
frá grískum banka í New York, en
komu í rauninni frá þýzkum mönn-
um ]>ar (German-American Group).
Þegar Búlgarar byrjuðu árásina á
Grikki í Strumadalnum og óðu yfir
alt land suður að sjó, þóttust Grikk
ir svikum beittir. Er því allur tang-
inn austur að stöðvum Banda-
manna við Salonichi á valdi Búlg-
ara. En þennan skika fengu Grikkir
af löndum Tyrkja í seinasta Balkan
strfðinu. Grikkir ætluðu að verja
Búlgörum landið, en þá kom skip-
anin frá konungi þeirra, að sýna
enga vörn, en gefa alt upp og hafa
sig burtu. Búlgarar fóru svo um
landið og eyddu því, rændu gripum
öllum, brendu hús og bæji og drápu
fólkið, ef það hafði nokkuð á móti
þessu.
Irlandsmálin.
David Lloyd George fenginn til að
koma á friði og samkomulagi á
írlandi.
Það hefir komið svo oft fyrir, þeg-
ar Bretar hafa komist í vandræði í
stríði þessu, þá hefir verið leitað til
Lioyd George. Hann kom fjármálun-
um í lag; hann var fenginn til að
koma lagi á vopnabúnaðinn, þegar
Bretar féllu í hrönnum fyrir skot-
færaleysi; hann kom herskyldunni
á, og nú þegar írlands-uppreistin
kom, þá verður hann að skreppa frá
vopnasmíðunum og bregða sér yfir
til írlands til að koma því í verk,
sem enginn maður hefir nokkurn-
tfma getað, að fá írana til að- lifa í
friði og samlyndi.
8agt er að Lloyd George hafi undir
eins kvatt á fund þá Carson, Jolin
Redmond, Herbert Samuel, John
Dillon og Joseph Devlin, og lialda
þeir fundi fyrir luktum dyrum fyrst
um sinn. En allir treysta því, að von
bráðar komist alt í gott lag á ír-
landi.
Aðsent til Lögbergs
Ilefði ekki vísan ]>ín í síðasta Lög-
bergi farið betur svona?:
Fyr var Lögberg breiðaból
beztu inanna og þinga,
nú er það orðið skálkaskjól
skamma og svívirðinga.
Nú er Heimskrngla sjálf farin að
skrifa í sjálfa sig, segir Lögbergs rit-
stjórinn. — “Smásaman fer dengja
mínum fram”, sagði kerlingin; “í
fyrra sagði ’ann ‘bandinn, bandinn’,
en nú segir hann svo skýrt ‘fjand-
inn, fjandinn’.”
Tímaritið “Iðunn”.
Sfðasta (4.) hefti I. árg. “Iðunn-
ar” er nú loksins komið hingað
vestur, og verður sent kaupendum
tafarlaust. Einnig hefi eg fengið
nokkiir eintök af öllum árganginum
og get afgreitt pantanir. Kostar $1.00
sem fylgi pöntun.
Stefán Pétíirsson,
696 Banning Street, Winnipeg.
Hospital Pharmacy
Lyfjabúðin
sem ber af öllum öðrum.---
Komið og skoðið okkar um-
ferðar bókasafn; mjög ódfjrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávísanir, seljum frímerki og
gegnum öðrum pósthússtörfum
818 NOTRE DAME AVENUE
Phone G. 5670—4474
CANADA’S FINEST SUBURBAN THEATRE.
Föstudag og Laugardag: —
BESSIE BARRISCALE í
The Cup of Life
Einnig önnur heil saga af “GRAFT’ : THE PATENT
MEDICINE SWINDLE”.
OpiS kl. 2 til 12 e. m. — Seinasta sýning byrjar kl. 1 0 e. m.
,— ViS fáum allar “Paramount” myndir. Sjáið þser
hér og sparið peninga.
Silver Medal Elocution Contest
■— og Concert .....——
HEFIR BARNASTÚKAN ÆSK.AN NR. 4, I.O.G.T.
I GOODTEMPLARA HOSINU
Fimtudagskveldið 8. Júní, 1916
Á prógramminu verða:
1. Piano Duet.Inga Thorbergsson og Emily Bardal
2. Contestant......................Number 1.
3. Solo......................Rannveig Bardal
4. Contestant......................Number 2.
5. Söngur ........................ Sex stúlkur
6. Contestant......................Number 3.
7. Tableau ..........Vetur, sumar, vor og haust
4 litlar stúlkur.
8. Contestant...................... Number 4.
9. Violin Solo................Violet Johnston
10. Contestant......................Number 5.
11. Söngur........................ Sex stúlkur.
12. Upplestur..................Th. G. Búason
13. Piano Solo ............... Fred Magnússon
14. TableaAi ....... England, Frakkland, Belgía,
Serbía, Rússland og Italía.
15. Tableau ........... ísland, — Bena Johnson
Byrjar klukkan 8 e. h. Inngangur 25 cents
BORÐVIÐUR MOULDINGS.
Við höfum fullkomnar byrgðir
al öllum tegundum.
Verðskrá verður send hverjum, sem
æskir þ.ess.
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Telephone: Main 2511
ÍSLENDINGADAGURINN.
Þau íslenzk íþróttafélög, er keppa
vilja um verðlaún á íslendingadeg-
inum í sumar, eru beðin að til-
kynna það til ritara íþróttanefnd-
arinnar fyrir 15. júnf næstk. Allar
upplýsingar þar að lútandi fúslcga
gefnar.
S. P. B. Stephanson.
729 Sherbrooke Street, Winnipeg.
Auction Sale
)
Það ‘verður uppboðssala á öllum jf
innanstokks-munum í
?
Hvert Stefnir ?
♦
♦
♦
♦
♦
:
:
:
í
fyrirlestur eftir síra Frið-
rik J. Bergmann. 68 blað-
síður þéttprentaðar á góð-
an pappír. Verð í bandi 50
cents. Til sölu hjá undir-
skrifuðum og bóksölum ísl.
hér vestra.
Ólafur S. Thorgeirsson.
X 678 Sherbrooke St., Winnipeg
♦-
♦
Hotel Como, Gimli \
17. Júní
næstkomandi; byrjar kl. 2. e. h.
Salan fer fram í hótelinu, og ah
verður að seljast, svc sem:
12 “bar-room” stólar.
14 pör “Lace Curtains”. /.
Gólfdúkar. / 7 f
Alt Leirtau.
Borstofu Stólar og Borð...
Borðdúkar.
Rúmfatnaður.
Eldastó.
Myndir.
“Cash Register.
Vínglös.
Gluggablæjur.
Olíulampar.
“Toilet Ware ’.
Rúmstæði og Svefndýnur.
Kommóður.
Og margt fleira, sem oflangt yrði
upp að telja..
Allar frekari upplýsingar fást hjá:
HULL, SPARLING & SPARLING
325 Main St., Winnipeg.