Heimskringla - 06.07.1916, Side 5

Heimskringla - 06.07.1916, Side 5
sprengivélar ir.eð sdr, ef að einhver óvinurinn væri á ferðinni. Þeir ætl- uðu ekki, landarnir, að iáta það fara sem fyrri, að óvinir ]>eirra tækju þar land, og mundu nú orð Einars Þveræings, er hann sagði, að þar mætti hafa her manns og fæða um lengri tíma og taka landið hve- nær sem menn vildu. — Svo héldum við til Skagafjarðar, yfir Drangey; þar var ein stöðin flugdrekanna. Og nú langaði mig til að sjá Vatns- dalinn. Hann vai' fagur fyrrum, en ekki síður nú; þar var flóðið iiorfið, en alt eitt vatnsveitinga-engi. Þar höfðu árnar verið stýflaðar fremst i dalnum, heggja megin Grímstungu; önnur á Skútaeyrum, en hin neðan við Forsæludal, og náðu þeir þar afli miklu. Þar höfðu vaxið upp bæjir við aflstöðvarnar sem annars- staðar, og þótti mér nú dalurinn ennþá fríðari en áður fyrri. Landstjóri Canada. Hertoginn af Connaught kom hér til borgarinnar sem ákveðið var sl. fimtudag seinni hluta dags. Var með honum hertogafrúin og dóttir þeirra Patrieia jjrinsessa. Var mikill fjöldi fólks samankominn á brgutar stöðvunum til að mæta þeim. Var það að eins með strangri gæzlu tím- ans, að hertoginn gat komist yfir að gegna þeim hátíðlegu störfum, sem honum voru fyrirbúin. Pyrst var hersýning setuliðsins; þar næst að opna spítala hermanflanna, og svo að yfirlíta sveitir hinna ungu “Boy Scouts”. En á strætunum þyrptist saman múgur og margmenni, svo að hin breiðu hliðargöng voru ]>akin af fólki. ðlenn vissu, að þetta myndi að líkindum verða í seinasta sinni, sem hertoginn og fólk iians vitjaði Win- nijteg. En þau voru öll svo liugl)ekk borgarbúum og vildu þcir láta hin- um kæru gestum ást sína og virð- ingu í té. Hvar sem þau fóru fylgdu þeim allra augu. Fánarnir blöktu á hverri stöng og gluggar ailir voru fullir af fólki, hvar sem þau lögðu leið sína um strætin. Á mínútunni kl. 5 e. m. kom lest- in með gesti þessa inn á C. P. R. stöðina, og var þá alt til reiðu að taka á móti þeim. Stóð þar fremst heiðursfylking hermannanna frá 223. herdeildinni og hélt liún hópun- um aftur, svo að troðningur yrði ekki. En á móti heiðursgestunum tóku: Sir Dougias Cameron, stjórn- arformaður Norris, borgarstjóri Waugh, Colonel Ruttan og margir herforiiigjar, höfðingjar og fulltrúar hinna mörgu og margbreyttu félaga borgarinnar og fylkisins. Lék þá hornleikaraflokkurinn “God Save the King", en liertoginn og fólk hans stóð kyrt á meðan. Þar næst kom hersýningin, og gekk hertoginn á milli fylkingarað- anna með foringjasveit sinni. Leizt honum prýðisvel á sveitir þessar og lauk lofsorði á, hvað mennirnir bæru sig vel, og seinna lýsti liann því yfir við herforingjana. Þaðan fór hertoginn til Deer Lodge, að opna hermannaspítalann. Var leiðin lögð um Portage Avenue og um St. James og mátti scgja, að leiðin væri fánum ])akin beggja vegna, en bogi reistur yfir strætið og á hann letraðar fagnaðaróskir. Þeg- ar til Decr Lodge kom, voru þar fyr- ir hinir heimkomnu særðu hermenn og stóðu í fylkingu á grasfletinum. Hertoginn gekk til þeirra og heiis- aði þeim og spjallaði við ])á um stríðið. Var þar margur hraustur drengur og báru sumir fleiri en eitt heiðursmerki á brjósti. Þar voru og nokkrir af Pricess Patricia herdeild- inni, og virtist hertoginn snúa sér mest til þeirra og tala mest við þá, enda voru þeir úr sveit prinsessúnn- ar dóttur hans. Þá var það, að einn þeirra, Pat- rick Noian, gekk fram með blóm- vönd fagi an 1 liendi og voru alt rós- ir, sem nú kallast “Pátricia rósir”. Þennan blómvönd færði hann svo prinsessunni frá sveitungum sínum. Einnig fékk prin^essan annan ró?a- vönd frá frú Biown og enn annan frá hinum frönsku frúm Rauða- krossins. C. W. Rowley bauð gcstina vel- komna, og í ræðu sinni gat hann þess að á spítalanum myndi skóli lialdinn í einu lierbergjanna og kend þar undirstöðufræði, bók- færsla, typewriting og handverk eða iðnaður margskonar. Einnig myndi akuryrkja kend þar á landi spítal- ans, fuglarækt og mjólkurbúskapur. Hertoginn lýsti lofsorði á stofnun spítalans og áhuga fylkisbúa á mál- um þessum, er þeir hefðu af frjáis- um vilja safnað miklu fé til að koma stofnun þessari á fót. — Svo gengu gestirnir um herbergin; og að því loknu héldu þeir heim til borg- arinnar, og litu yfir Boy Scouts fiokk all-mikinn á leiðinni. Spjallaði hertoginn við þá og hældi þeim fyr- ir áhuga sinn. — Næsti landsstjóri Canada á að verða Hertoginn af Devonshire, og er hann mjög vel látinn á Englandi. En sagt er, að hann muni ekki koma til Canada fyrri en að tveim- ur mánuðum liðnum. Kafli úr bréfi frá Gimli. Það er í raun og veru fátt um stórtíðindi frá höfuðstað Ný-lslend-j inga Gimliborg. Þar hefir tíðarfar og almenn afkoma verið svipuð og annarsstaðar í Norður-Manitoba. — Að undanfornu og nú cru sumar- staðir að fyllast. Tíðin hefir verið köld og votviðrasöm, svo Winnipeg búar hafa ekki verið í hasti að flytja þangað fram að þessum tíma. En nú eru hitarnir að færast yfir. Ferða- menn og þeir, sem vilja dvelja þar um stundarsakir, eiga völ á ágætu gistihúsi hjá herra Jóni Thorsteins- syni á Lake View hóteli. Þar er ágæt bygging og fullkominn viðurgjörn- ingur, sem í góðbæjum í Kanada. Jón og fólk hans er afar lipurt og fljótt til afgreiðslu. Enda gista þar og búa sú tegund af fólki, sem sum- arþæginda vill njóta um. stundar- sakir á Giinli, og ekki á þar hús. Þar er hægt að fá alt hið sama að snæða og drekka og gleðjast við, sem á hót- elum í Winnipeg, og þó ennþá full- komnaia, því ekkert hótel í Winni- peg hefir leikhús fast við hótelin. En það hefir Jón Thorsteinsson á I.ake View Hotel, Gimli. Og svo kyngikröftugan Goodtemplara bjór, að liann stekkur í jötunmóð upp úr glösunum. Og þar eru svo ilmandi andi vindlar að mælt er að ilmur- inn leggi alla leið upp til Selkirk, og liafi áorkað sótthreinsun í herbúð- unum hans Geo. Bradbury. Það vita allir að er kraftaverk. Jæja, eg ann Gimli. Þar er fagur og fallegur staður. Goðin ginnhelg og Alvaldur sé með þeim alt til ver- aldarinnar enda. Gestur Farandi. TIL NIKULÁSAR OTTENSON er hann hafði skrautritað iand- náms-ávarp til fyrv. þingm... Sigtryggs Jónassonar sfðastl. vetur. Þér eru málin menta kunn, Af Mímis drukkin liorni, Njörvaður fræði náms úr brunn Nikulás inn forni. Islenzk tunga menta mæt Má þér heiður sýna. Skrauti vafin skrift fágæt Skreytir minning þína. K. Ásg. Benediktsson. Fréttabréf. Nome, Alaska, 11. júnf 1916. Heiðraði ritstjóri Heimskringlu! Rétt til málamynda, eins og til að láta yður og lesendur yðar vita, að t>g er enn í heimi hérvista, lieill heilsu og að öðru leyti við góða líð- an, sem eg lofa þann fyrir, sem alt gott kemur frá, — rita eg þessar fáu línur, Blað yðar Heimskringla hefir að vanda verið sein í förum í vetur; hefir legið í geymslukofum Uncle Sams meiri hluti hennar þar til ]). 4. ]). m., að fyrsta skip flutti stóran hluta af vetrar-upplaginu; en lestr- artfmi er nú takmarkaður, og getur því ekki að góðum notum komið. En eftir að lfta fjlótlega yfir inni- hald nokkurra blaða og sérstaklega yfir ])að, sem þér hafið að segja um stríðið, kemst eg að þeirri niður- stöðu, að þér óneitaniega talið víða mjög vel og réttilega um skyldu ])á, er hvílir á fósturjorð og þjóð, og um réttlæt^ og mannúð 1 sambandi við stríð ]>etta. Ekkert er markvert að frétta liéð- an, fremur en vant er. Tíðarfarið hefir í fám orðum verið eins og hér segir: Gamla árið (1915) endaði frostavægt og þannig byrjaði nýja árið líka með um og yfir 20 stigum fyrir ofan zero; en óstöðugt var veð- urlagið, storma- og snjóasamt yfir- leitt; þann fimta skrapp mælirinn niður í 20 fyrir neðan zero, en það var að eins í tvo daga; að þeim liðn um komst mælirinn upp í liér um bil sama stigatal fyrir ofan zero, og það varaði til þess 17., og var suma daga alt að því frostlaust. En ])á kom kaldur kafli, þetta frá 20—30 stig fyrir neðan zero; en endi mán- aðarins og byrjun febrúar sýndu fá stig fyrir ofan zero. Frá 8. til 18. var alt af fyrir neðan zero (kaldast 25 stig); en þá kom frostvægur kafli, svo að suma daga var aiveg frost- laust, en þrfr sfðustu dagarnir voru kaldir. Yfirleitt voru þessir tveir mánuðir snjóa- og stormasamir. Marzmánuður var, að undantekn- um mjög fáum dögum, allur kaldur, stöðugt fyrir neðan zero, og líkur að veðurvonzku og hinir tveir, og þann ig byrjaði apríl; en svo kom all- góður kafli, stilt veður en fremur köld, lítið eitt fyrir neðan zero, með að eins tveggja daga undantekn- ingu; en í sex síðustu dagana var stigatalan frá 6 fyrir ofan til frost- leysu. Maí var allur meinhægur en frem- ur kaldur yfirleitt; þetta frá 6—40 fyrir ofan zero (hér um bil einn þriðji af inánuðinum sýndi frá 2—8 stig fyrir ofan frostmark), og kalsa- regn í þrjá sfðustu dagana. Tvo fyrstu dagana af júní setti niður snjó, sem að morgni þess 3. var á jafnsléttu einn þuml. á þykt; en þegar fram á morguninn koin var um 8 stig fyrir ofan frostmark og hvarf því snjór sá fljótt. En síðan hafa að eins vei'ið tveir dagar, sem sýnt hafa fá stig fyrir ofan frost- mark, en hinir allir fáar gráður fyr- ir neðan frostmark. Og útlitið er alt annað en gott; vetrarsnjór er meiri en nokkru sinni áður hefir þekst á þessum tfma árs, og alt bendir á stutt sumar. Sjávarís er með lang-mesta móti, og þó skip liafi komist í gegnum hann, ])á samt er liann afar mikill enn, og um ein míla af landföstum fs hér enn frammi fyrir; en ])ó svo veikutn, að stór hætta er að ferðast mikiö eftir honum, og voru því vandræði á, að lenda fárþcgum í gær og í dag: skipin þurftu að fara þrjár mílur austur með ströndinni til að koma þeim á iand. Þann 4. júní kom strandvarnar- skipið “Bear”. ísinn var ])á nógu sterkur og fögnuður fylti alla yfir fyrstu skipakomu, og svo yfir að fá póst (bréf, blöð og tímarit), sem Jónatan gamli liafði haft i geymslu fyrir fólkið yfir vetrarmánuðina, og sein nam 12 tonnum. Það var flutt f land á hnudasleðum fljótt og skil- víslega. f gær kom skipið “Umatilla” með 300 farþega, og snemma í morgun kom skijiið “Senator’ með 111, og í kveld er skipið ‘Victoria’ áætlað aö koma með 354 farliega. svo það vcrð- ur margt um manninn hér fyrir táa daga að minsta kosti, og eftir útliti um allan þennan mánuð; það geuir varla breyzt svo snögglega, að náma- vinna byrji til muna fyrri en í julí. Krist (Kristján) Guðmundsson var mestan part vetrarins á kaup- ferðum norður í heimsskautalönd- um; fór norður fyrir Point Barrow. Hann var í grávörukaupum og hafði góða lukku yfirleitt; en hart var ferðalagið með köflum, þvf langt var á milii liýbýla, og varð liann því oft að liggja úti; í einum áfanga varð hann að iiafast við á gaddin- uin í fimm sólarhringa samfleytt, og í eitt skifti varð liann og hundarnir að vera án fæðu í þrjá sólarhringa, og sá aldrei neitt til að skjóta allan þann tíma, og var iiann ])á og hund arnir alveg staðuppgefinn; hann sá reyk í fjarlægð, en gat ekki fengið hundana til að halda áfram. En í sama bili sá hann hérahóp og imgði gott til veiða; en svo var hann ó- styrkur, að liann gat ekki liitt neinn hérann, hvernig sem liann reyndi. Hann lagðist því fyrir í svefnpoka sínum og svaf af til næsta morguns. En þegar hann reis upp, sá liann hérana ennþá í nágrenni við sig, og fór þá alt vel; hann skaut þá og hafði af góða máltíð fyrir sig og hundana, og var svo að litlum tíma liðnum kominn heim að kofa þeim, er hann sá reykinn frá kveldið áður. 1 fleiri harðar kring- umstæður komst liann, þó þessar væru með þeim verstu. Á ferðinni tajmði hann 11 hundum, og af þeim hundum, sem hann fór með, kom hann að eins með tvo heim. 1 öðru blaðinu hér er þess getið, að Mr. Guðmundsson hafi verið í þessum kaupferðum fyrir mann nefndan Mr. Joseph Uhlman í New York. — Kristján lagði upp í ferð þessa með um 12 þúsund dollara og keypti yfir 2000 skinn af öllum teg- undum, og auk ]>ess keyi>ti liann mikið af ýmsum fáséðum Eskimóa fornmenjum, sem hann varð að skilja eftir og fá með skipum eint í sumar. Hann hyggur, að land þar norðurfrá sé auðugt af ýmsum náma-afurðum; ‘erude’-olíu sá liann í ríkum mæli, heiiar tjarnir af lienni og góð og mikil kolalög sá hann og ýmsa málma í klettum hæðanna sá hann líka, og hafði sýnishorn af flestu þessu. 1 sumar ætlar Kristján með félaga sínum að vinna “quarts”-námu, sem þeir eiga og mala steininn með vél, sem kölluð er “crusher”. Þeir hat'a 6 feta lag af þessum “quarts”, sem er verðlagður á frá 32 dollurum og upp tonnið. Þeir iiafa því góða von um, að vinna sér inn góð daglaun í sumar við þessa námavinnu. Fyrir næstum ári síðan kom frá Seattle (með Kristjáni) Islendingur að nafni Pétur Pálsson; liann er frá sama plássi á íslandi og Kristján og á skyldfólk í Seattle; hann héit tii hér í vetur; en fyrir hér um bil mán- uði síðan gafst honum tækifæri á vinnu, sem er nokkuð á annað hundrað mílur héðan og tók Krist- ján liann ])angað og verður hann þar sainkvæmt samningum í sumar. Það er nú vika síðan eg skrifaði línur þær, sem hér með fylgja, og í kveld, þann 17., fer fyrsta skip á- leiðis til Seattle. — Tíðin heldur á- fram að vera köld, alt að því frost á hverri nóttu, en að öðru leyti stilt og gott veður. S. F. Björnsson *-------------------------------* Islands fréttir. *-------------------------------* Lögrétta, 7. júnf. — Kyrkjumálafréttir. Prestvígðir voru af byskupi á uppstigningar- dag kandídatarnir Friðrik Jónas- son, settur prestur á Útskálum, og Jón Guðnason, sem veitingu hefir fengið fyrir Staðarhólsþingum. — Síra Kjartan Kjartansson í Grunna- vfk er settur prestur að Sandfelli og síra Ásm. Guðmundsson í Stykkis- hólmi að Helgafelli; en síra Árni Þórarinsson er settur prófastur í Snæfellsnessprófastsdæmi. — Lausn frá prestsskap hefir sfra Gísli Kjart- ansson á Sandfelli fengið, vegna van lieilsu. — Synodus liefst hér í bæn- um sunnudaginn 2. júlí næstk. — Ný ættarnöfn. Þeim fjölgar óð- um, sem taka sér ættarnöfn. Harald- ur Níelsson jirófessor hefir fengið lögfest fyrir börn sín ættarnafnið Haralz. En ættarnafnið Ivvaran hafa þau tekið sér systkinin Einar rithöf. H.iörleifsson, Sigurður lækn- ir, Tryggvi. stud. theoi og Guðlaug og börn þeirra Einars og Sigurðar og Jóseps sál. bróður þeirra. Svafar Sigurbjarnarson verzlunarfulltrúi hefir lögí'est sér ættarnafniö Svaf- ars. — “Á heimleið", skáldsaga frú Guðrúnar Lárusdóttur, er að koma Út á dönsku í “Hjemmets Biblio- tck”, þýdd af síra Magnúsi Magnús- syni f Bregning á Jótlandi. — Bæjarverkfræðingur Reykjavík- ur er hr. Þórarinn Kristjánsson orð- inn frá 1. þ. m. — TJtanfararstyrkur guðfræðinga. öll þau 65 æfiár prestaskólans okk- ar nutu lærisveinar hans þrír ölm- usna eða 600 kr. námsstyrks árlega af kommuniteti Khafnarháskóla. Nú hefir þessum styrk, sem gjört hefir verið ráð fyrir hér úti að félli niður við stofnun háskóla vors, cft- ir tillögu háskólaráðs Kliafnarhá- skóia verið með úrskurði kyrkju og kensluráðaneytis Dana (dags. 9. marz 1916), breytt í utanfararstyrk til framhaldsnáms við Khafnarhá- skóla lianda einum guðfræðikandí- dat héðan ár hvert. Háskóli vor veitir styrkinn eftir tillögu guð- fræðideiklar. — Þessi kandídata- styrkur verður nú í þessum mánuði veittur í fyrsta sinn. Eiga umsóknir um hann að vera komnar til forseta guðfræðideildar fyrir 25. ]).m. — Heimavistarfélag liafa nemend- ur Hvftárbakkaskólans næstkom- andi vetur. Þeir, sem vilja selja fé- laginu ýmsar matvörutegundir, snúi sér til skólastjórans á Hvítárbakka, sem annast innkaup öll og aðdrætti fyrir félagið. Hjá lionum geta ung- menni fengið allar nauðsynlegar upjilýsingar um fyrirkomulag og reglur félagsins. Einnig hjá stjórnar- mönnum þess: Bergsveini Ólafssyni, Ólafsvík, Snæfellsnessýslu, Ivr. Júl. Kristjánssyni, Grundum, Barðastr.- sýslu og Magnúsi Auðunnssyni, Segi búðum, Snæfellsnessýslu. — Vélbátur frá Noregi. Nýlega er okminn hingað 30 lesta vélbátur fra Bergen í Noregi, smíðaður þar fyrir þá bræðurna Helga Heigason verzl- unarstjóra hér og Magnús Thorberg símstjóra á fsafirði. Báturinn fór hingað frá Bergen á sex sóiarhring- um. Skijistjóri er Andrés Gíslason. — Kvæða úrval eftir Bjarna Jóns- son frá Vogi er nýkomið út á kostn- að Gunnars Sigurðssonar frá Sela- læk, tekið úr eldri kvreðabókum Bjarna og upp úr blöðum þeim, er hann hefir skrifað í eða gefið út, 160 bls. 8vo., með mynd höfundarins, og kostar í bandi kr. 2.50. — Mannalát. Þann 8. maí andað- ist í Khöfn Johan Olivarius, fulltrúi í innanríkisráðaneytinu danska, sonur Olivariusar áður sýslumanns á Eskifirði og Þorgerðar Hallgrfms- dóttur frá Hólinum í Reyðarfirði. Sjóinaður liéðan úr bænum, Ás- geir Bjarnason, féll nýluga út af vél- báti við Vesturiand og druknaði; maður á bezta aldri. — Þann 30. maí dó hér í bænum Andrés Andrésson verzlunarmaður, lengi við utanbúðarstörf lijá Bry- des vcrzlun, vinsæll maður og vel þektur hér í bænum, en hafði verið heilsulítill síðustu missirin. Lætur eftir sig konu og mörg börn, flest upp komin. Verður iians nánar getið síðar. Vísir. . TJtan af landi símfréttir 28. maí. Ágætt veður í Haganesvík og ná- grenni í hálfa aðra viku og hlákur. 1 Vestur-Fljótum er snjólítið, en í Austur-fljótum mikill gaddur, þó nokkur kinda snöj). stæðingar hans. En þingtíminn hafði verið fluttur til, annars hefði ekki komið til mála, að þeir sætu fleiri regltileg þing en þrjú. — Þá mun sýslumaður Sunnmýlinga hafa fylt flokk þeirra manna, sem héldu því fram, að þingmennirnir ættu réttmæta kröfu til þingsetu meðan kjörtímabil þeirra, 6 ár, entist. Hákarlaskipin eru að koma og er aflinn ágætur. Lifrartunnan er 50 kr. og hlutur- inn 500 kr. — Sýsluma'ður segir af sér. - Guð-I mundur Eggerz, sýslumaður í Suð-j urmúlasýslu, hefir’ sagt af sér em-j bætti. Tildrög til liess eru all óvenjuj leg, og ber hann því við, að stjórn- arráðið hafi móðgað sig. Svo er mál með vexti, að Guðm. j Ásbjörnsson, fríkyrkjuprestur þar eyst’ra, liafði verið kosinn sýslu-| nefndarmaður fyrir Eyjafjarðar-1 hrepj) á manntalsþingi, er lialdiðl var sfðari hluta júnímánaðar 1910. Kjörtímabil sýslunefndarmanna er 6 ár og skulu þeir kosnir á mann- talsþingum. — 1 vor var þing hald- ið hér um bil mánuði fyr en gjört liafði verið árið 1910 og sýslufundur ákveðinn 2 dögum síðar. Á þing- inu var kosinn sýslunefndarmaður í stað Guðmundar, svo sem vera ber; en er á sýslufund kom, reis upj) ágreiniligur um ]>að, livor fulltrúinn! ætti að sitja hann fyrir Eskifjarðar-j hrepp, sá nýkosni eða Guðinundur. Gjörði liinn síðarnefndi kröfu tilj ]>ess, að fá að sitja fundinn, vegna þess að kjörtímabil hans væri ekki útrunnið, enda liefði hann setið aðj eins á 5 sýslufundum. Var máliðj iagt undir atkvæði fundarins <g fundarseta Guðmundar samþyktj með 6 atkvæðtun gegn 5 (sýslu-l manns og fjögra annara). Frestaðij sýslumaður þá fundi til næsta dags. I En er á fund var komið daginn eft- ir, las sýslumaður upj) úrskurð, þar sem hann feldi úr giidi samþykt1, fundarins og úrskurðaði, að hinn nýkosni fulltrúi skyldi taka sæti áj fundinum. Líklegt er því að sýslumaður átti sig á málinu og taki aftur þessa Tas’- gjörð sína. Og tfma fær liann til umhugsun- ar, því ófonnleg hafði lausnar- beiðnin verið, — átti að stílast “undirdánugstst” til konungs, envar alt annað en “undirdánug" og stíl- uð til stjórnarráðsins. — íslenzku kolin. Eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, hafir sænskur kolanámuverkfræð- ingur rannsakað kolin úr Stálfjalli og fullyrt að þar væri um steinkol að ræða. — Það er aftur á móti al- kunnugt, að jarðfræðingar neita því, að steinkol geti verið liér til, vegna þess, hve iandið sé ungt. — Blaðamaður einn við Berlingske Tidende hefir átt tal við helzta eér- fræðing Dana á þessu sviði, Dr. phil. Hartz og hefir þetta eftir honum: “Að vísu er eg ókunnugur stað- háttum á þessum slóðum; en eg þori ])ó að fullyrða, að það séu ekki steinkol, sem þar hafa fundist, held- ur hljóti það að vera brúnkol. Því steinkolin stafa frá því tímabili í sögu jarðarinnar, sem nefnist Stein- kolatfmabilið, langt aftur í öldum; en brúnkolin eru frá tertíæra tíma- bilinu, sem er ínikið yngra. Og það er áreiðanlegt, að engar jarðmynd- anir eru til á Islandi eldri en frá tertiæra tínjabilinu; - |>ess vegna geta kol þau, sem þar finnast, ekki verið steinkol í venjulegri merkingu orðsins”. Af ókunnugum manni að ver^, er hann furðu kunnugur hér, þessi maður. Þessum úrskurði sýslumanns á- j frýjaði Guðmundur til stjórnarráðs-j ins, en það feldi liann úr gildi og símaði sýslumanni l>au úrslit máls-j ins á ])á ieið, að úrskurður hans mundi vera lögum andstæður. — En þá símsvaraði sýslumaður umj liæl á ]>á ieið, að.liann ætlaði ekki að gefa stjórnarráðinu fleiri ta>ki- færi til að móðga sig, og segði því af! sé rembættinu frá 1. okt næstk. í sambandi við ]>etta munu mennj minnast ]>ess, að fyrir skömmu sfð- an (1911) var niikið deilt um ]>að, hvort skipa ætti nýja konung-j kjörna þingmenn fyrir þingið það ár. — Lauk því máli svo, að þáver-i andi ráðherra lét gömlu þingmenn- ina sitja. vegna þess að kjörtímabil j þeirra var ekki útrunnið er ])ing varj sett og var það þó fjórða reglulegal ])ingið, sem þeir sátu og þcir and-! LOKUÐUM TILBOÐl’M mej utaná- skriftinni: “Tender for Supplying Coal to the Dominion Buildings” ver'ður veitt móttaka á skrifstofu þess- ari þar til kl. 4 e. m. á miðvikudaginn 8. júní 1916, til þess a'Ö birgja aö kolum hinar opinberu byggingar í Canada. EyÖubloÖ fvrir tilboöiö geta menn fengiö hjá stjórnardeild þessari og meö því aö skrifa eftir þeim tll jmsjónar- manna hinna ýmsu opinberu tygginga. Engin tilboÖ veröa tekin til greina, nema þau séu gjörö á hinuni prentuö i eyöublööum, sem stjórnín leggur til og undirrituö meö eiginhandar-nöfnum frambjóöanda. Hverju tilboöi veröur aö fylgja viö- urkend ávísun á áreiöanlegan banka, sem borgast skuli eftir fyrirskipun ráö- gjafa hinna opinberu verka, og hljóöl ávísunin upp á tíu af hundraöi (10 pró- sent) tilboös-upphæöarinnar, og tapar frambjóöa-ndi upphæö þessari, ef aö hann neitar aö uppfylla loforö sín, þeg- ar hann er til þess kvaddur. eöa full- gjörir ekki samninginn. En veröi til- boöiö ekki þegiö, veröur ávísunin send til baka. Eftir skipun, R. C. DESROCHERS, Secretary. Department of Public Works, Ottawa, 7. júní 1916. Fréttablööum veröur ekki borgaö fyr- ir auglýsingu þessa, ef aö þau prenta hana án leyfis stjórnardeildarinnar.— 75985. ♦♦ ♦ ♦ • Sögusafn Heimskringlu Eftirfarandi bækur eru til sölu á Heimskringlu, — með- an upplagið hrekkur. Sendar póstfrítt hvert sem er: Sylvía ......................... $0.30 Bröðurdóttir amtmannsins ........ 0.30 Dolores .... .................. 0.30 Hin leyndardómsfullu skjöl........ 0.0 Jón og Lára ................... 0.40 Ættareinkennið................... 0.30 Lára ............................ 0.30 Ljósvörðurinn ................... 0.43 Hver var hún? ................... 0.50 Forlagaleikurinn................. 0.55 Sérstök Kjörkaup Ef pantað er fyrir $1.00 eða meira, gefum vér 10 prósent afslátt. Og ef allar bækurnar eru pantaðar í einu, seljum vér þær á — að einsþrjá dollara ($3.00). Borgun fylgi pöntunum. ♦ •f •♦• •f ♦■ ♦■ T f ♦ ♦ ♦ X ■f 4- f l B0RÐVIÐUR MOULDINGS. ViS höfum fullkomnar byrgSir al öllum tegundum. VerSskrá verSur send hverjum, sem æskir þess. THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Telephone: Main 2511

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.