Heimskringla - 06.07.1916, Page 7

Heimskringla - 06.07.1916, Page 7
WINNIPEG, 6. JÚLÍ 1916 HEIMSKRINGLA. ^IA 7. ' Arabar gjöra uppreist gegn Tyrkjum. Loksins eru farnar að koma upp róstur og óeirðir hjá Tyrkjum. Upp- hlaup hafa orðið hér og hvar i borgum í Litlu-Asiu og þó mest í borginni Smyrna. Þar varð upp- hlaupið svo magnað, að sagt er að öll borgin hafi verið lögð í eyði. En Smyrna var einhver fegursta borg Tyrkja i — Au, verzlunarborg mikil vestantil á ströndum Litlu-Asíu. Er sagþ að Mahómetsmenn hafi ráðist móti herliði Tyrkja i borginni, og var mikið af því drepið niður. Og óeirðir urðu í mörgum fleiri borg- um. En ]>ó kvað mest að óeirðunum í Arabíu. Þar risu höfðingjar Araba upp og gjörðu reglulega uppreist á móti Tyrkjum, með því augnamiði, að losa alla Arabíu undan ríki þeirra. Þeir tóku Jiddah, eða Jed- dah, sjóborg við Rauðahafið, skamt frá hinni lieilögu borg Mahómets- mann^ Mecca. En furstinn og yfir- maðurinn í sjálfri borginni Mecca lýsti því yfir að Arabar segðu Tyrkj um upp allri hollustu og hlýðni. — Þetta var hinn 9. júní. Og óðara var hann búinn að fá með sér alla Ar- aba höföingja (sheiks) um alla vest- urströndina og í miðju iandinu. Þeir tóku svo borgina Taif, 65 mílur suðaustur af Mecca og herflokkar Tyrkja eða setulið gáfust upp í þess- um borgum. í Jiddali tóku Arabar 45 herforingja, 1400 hermenn og 6 fallbyssur. Borgina Medina tóku þeir 248 mílur uorðvestur af Mecca; er þar gröf Mahómets gamla, sem á hangendur hans árlega fara að vitja í hundrað þúsundatali. Þar eru krossgötur og liggja þaðan leiðir í allar áttir um Arabíu. Þessum leið- um öllum halda Arabar. Nú geta Bretar farið að verzia aft- ur við Araba, síðan Arabar náðu að- al hafnarborginni Jiddah á strönd- inni, og flutt þangað til þeirra vör- ur allar vopn og skotfæri; enda mun þess full þörf, ef að Tyrkir fá ráðrúm að snúast við þeim. Og nú geta þegnar Breta, sem Mahómets- trúar eru, aftur farið að fara píla- grímsferðir sínar til Meeea og Med- ina, bæði frá Egyptalandi og Ind- landi. Arabar voru farnir að verða ó- ánægðir með yfirráð Tyrkjanna. En þeir eru ekki nema rúm milíón, þeir Arabar, sein lutu Tyrkjum í Arabíu, og eru illa útbúnir f stríð þau, sem nú gjörast. En hraustir menn eru þeir og harðfengir og hefir jafnan reynst erfitt að sækja þá heim. Núna gripu þeir tækifærið, að rísa upp á móti Tyrkjum, og stafar það vafalaust af framgangi Nikulásar liins mikla i Armeníu og Persíu, og svo því að Bretar lialda Suez skurð- inum. Arabar eru hestamenn miklir, enda hafa þeir beztu hesta heims- ins. Vegir liggja þar allir um sanda og eyðimerkur, nema ])essi eina járn- braut að norðan til Medina og Mecca, sem mest er notuð af píla- grímunum. Og l>ó að Tyrkir hafi nokkurn afla á Gyðingalandi og Sýrlandi, ]>á munu þeir hugsa sig um, áðu’r en þeir leggja út á eyði- mörkina til að brjóta Araba undir sig. Að austanverðu, nálægt Persa- flóanum, eru allir höfðingjar Araba vinveittir Bretum, sem lengi liafa verzlað við þá. Þegar Þýzkir náðu Serbíu og kom- ust til Mikiagarðs og þeim voru all- ar leiðir opnar um Tyrkjaveldi, þá fór Aröbum að finnast þeir vera ráð- rlkir og sáu að þeir réðu öllum lög- um og lofum, og urðu allir að sitja og standa sem þeir vildu; og ef að ])eim líkaði ekki við Araba höfð- ingja, bæði á Sýrlandi og annars- stað þá létu þeir skjóta þá í hóp- um. Þessu undu Arabar illa og biðu eftir tækifærinu, sem þeir sáu að í vændum var, og þegar Nikulás hinn mikli barði á Tyrkjum í Armeníu og fór að stefna herskörum sínum niður með Eufrat og Tigris, og Bret- ar héldu upp frá Persaflóa, þá fóru beir á stað. Missa Tyrkir þarna stórt land og mikið og hermenn marga og riddara góða, sem nú snúast á nióti þeim. Og eru allar líkur til, að l>eir ráði aldrei Arabíu framar, og hafi það fyrir flónsku sína að fara nieð Vilhjálmi. Glæfraför. Eftirfarandi saga hefir nýlega ver- ið birt i ensku blaði og erhún tekin eftir rússneska blaðinu “Russkoye Slovo”. í her Rússa eru tveir bræður, Yus- ik og Yosik; eru þeir rússneskir í aðra ættina en pólskir í hina. Sveit sú, sem þeir voru í, lá í skotgröfum hjá Pripet-flóunum. Dag nokkurn varð eldra bróðurnum einhver skissa á og var honum stefnt fyrir herrétt næsta dag. Um morguninn voru báðir bræðurnir horfnir úr skotgröfunum. Höfðu þeir skiliö eftir kúlubyssur sínar en haft loð- kufla sína með sér. Þrem nóttum síöar komu bræð- urnir aftur til skotgrafanna og beiddust þess, að þeim yrði fylgt til yfirforingjans svo þeir gætu skýrt frá, hvérs vegna þeir hefðu liorfið. Meðan bræðurnir voru burtu, heyrðu Rússar miklar sprengingar bak við herlínu Þjóðverja og næsta morgun sáu flugmenn Rússa, að á einumstað hafði komið upp eldur og að þýzk flutningalest hafði sprungið f loft upp. ‘Bræðumlr voru leiddir fyrir yfir- foringja hersveitarinnar. Hann skip- aði að setja þá í varðhald og gaf þeim að sök, að þeir væru liðlilaup- ar. Foringjanum varð því orðfali, er bræðurnir skýrðu honuin frá, að þeir hefðu sprengt í loft upp skot- færaforðabúr Þjóðverja tveim nótt- um áður. Komu þeir ineð fjöl úr hurðinni til sannindamerkis. Yar skrifað á fjölina á þýzku: “Geymslu- klefi nr. 66 P — 6MK”. "En því fóruð l)ið leyfislaust úr ykkar stað?” spurði foringinn. — Yosik skýrði honum frá, að hann hefði verið hræddur uin, að herrétt- urinn mundi dætna sig í þunga refs- ingu fyrir yfirsjón ]>á, sem sér hcfði oröiö á, og kvaðst ]>ví liafa viljað gjöra eitthvað til þess, að fá fyrir- gefningu hersveitarforingjans. Hann nefndi þessa ráðagjörð við bróður sinn, og réði hann það með sér að faia líka, því annars, oins og hann sagði, mun mér verða hegnt fyrir að lofa þér að sleppa. Síðan skýrðu þeir frá, hvað þeir hefðu ratað í. Þegar þeir komu úr skotgröfunum, skriðu þeir í myrkr- inu inn í þéttan skóg, sem þar var nærri og komust þeir í gegnum her- línu Þjóðverja, án þess þeirra yrði vart. Þegar birta tók, voru l>eir komnir út í skógarjaðarinn hinu- megin, og sáu þar skamt f brott smálióla, sem þeim þóttu grunsam- legir. Þeir komust að raun um, að f liól- um þessum voru geymdar miklar skotfærabirgðir, sem Þjóðverjar áttu, enda var þar maður stöðugt á verði. Þeir leyndust í skógarjaðrinum um daginn, en þegar dimma tók skriðu þeir til hólanna, og er þeir sáu sér færi á, réðust þeir á varð- manninn og drápu hann, án þess að hann gæti gjört öðrum aðvart. Yosik sá hurð á einum hólnum og var hún ramlega læst; en þeim tókst að sprengja hana upp með byssustingjum varðmannsins. Þeg- ar inn kom, tóku þeir að þreifa fyrir sér, og vildi þá svo vel til, að annarr þeirra datt uin ljósker. Síðan kveiktu þeir á ljóskerinu og sáu þá, að í hólnum voru geymd feiknin öil af fallbyssukúlum og púðri. Síöan opnuðu þeir kassa og heltu olíu úr ljóskerinu í þá og kveiktu síðan eld í spítnarusli. Lögðu síðan þráð, vættan í olíu, frá eldinum til púðurkassanna og hlupu síðan sem fætur toguðu til skógarins. Þegar ]>eir höfðu skamt farið, ])á heyrðu þeir hræðilega sprengingu og virtist sem jörðinni væri kipt undan fótum þelrra, og í sama bili varð önnur sprenging, hálfu meiri en sú fyrsta. Kváðust bræðurnir ekki geta lýst henni, því þeir hefðu fallið f öngvit. Þegar þeir röknuðu úr rotinu, lágu þeir í lítilli gjá og skriðu það- an inn í skóginn. í dögun hittu þeir fyrir bóndabæ í skóginum og þar fengu þeir að vera um daginn. Faldi bóndi þá úti í skemmulofti. Um nóttina tókst þeim að komast fram hjá varðmönn- um Þjóðverjanna; skall þó oft hurð nærri hælum, að þeir yrðu teknir höndum. Þegar bræðurnir höfðu sagt sögu sína, báðu þeir foringjann að gjöra alt, sem í hans valdi stæði til þess að þeim yrði fyrirgefið. Saga þeirra reyndist rétt. Kom alt það sem þeir liöfðu sagt heim við það, sem njósn- armenn og flugmenn Rússa höfðu séð, auk þess sem borðið úr hurð- inni sýndi hvar þeir höfðu verið. Rættist nú betur úr fyrir bræðrun- um, en þeir höfðu búist við, því að þeir voru báðir sæmdir St. Georgs krossinum.—(Yísir). Hersöngur. Þeysuin fram á völlinn, vinir, veifum brandi’ i solarroð, fyrri til en allir hinir, er slíkt hreystimerkis boð. Látum þrumu-hólkinn hljóða, hyljum loft með púðurreyk. Gerum út til allra þjóða einn ]»ann mesta hildarleik. Munum eftir mætu fljóði, móðurást og föðurtrygð; spörum ei þótt spýtum blóði, spörkum burtu neyð og hrygð. Látum frægðar lúður gjalla, leikum frelsis gýgjustreng. Látum þræla þrjóska falla, þyrmum hverjum góðum dreng. Kanadiskir ajlir erum undir brezkri, frjálsri stjórn; sigurmerki á brjósti berum, bjóðum glaðir okkar fórn. Móti þýzku heiftar-helsi hreyfist fjörugt æðablóð. Berjumst fyrir fræði’ og frelsi Eram! Já, fram! í jötunmóð! Árgalinn á kvist fer kvaka hvellum rómi lúður hlær; í sólarroð því viljum vaka og vinna þar sem menning grær. Hádags geislar heitir, Ijósir lireyfa okkar æðaslag; en kveldsólar roðarósir rita okar hjartalag. Jón Stefánsson. Kveðjur. Menn heilsast og kveðjast á sama hátt í öllum löndum Norðurálfunn- ar, en aðrir þjóðflokkar lieilsast með ýmsu móti. Á Filipspeyjum lieilsast innfæddir menn á þann. hátt, að þair taka fót hver annars og þrýsta að andliti sér. Malajar lieilsast með því að nudda saman nefjum. Sumstaðar á Kyrrahafseyj- um taka menn í nefið hvor á öðrum og klappa á brjóstið með liinni hend inni. Á Andamaneyjum blása menn í hendur þess, sem heilsað er, og til er sá siður á Kyrrahafseyjum, að hrækja í lófa sér og núa því um nas- ir hinum. Kveðjuorðin eru margvísleg. — Grikkir segja: Yertu glaður. Austur- landabúar segja: Verði skuggi þinn aldrei minni; Svertingjar segja: Hvernig er húðin? Egyptar segja: Hvernig svitnar ]>ú? Indíánar við Orinoeo-fljót segja: Hvernig hafa mýflugurnar verið við þig? Hospital Pharmacy Lyfjabuðin sem ber af öllum öðrnm.--- Komið og skoðið okkar um- ferðar bókasafn; mjög ódýrt. — Einnig seljum við peninga- ávísanir, seljum frímerki og gegnum öðrum pósthússtörfum 818 NOTRE DAME AVENUE Phone G. 5670—4474 MARKET HOTEL 140 Prlnce»» Street á móti markaíinum Bestu vínföng, vindlar og at5- hlyning gót5. íslenkur veitinga- maöur N. Halldórsson, leiöbein- ir íslendingum. P. O’COXXEL, Eigandi Wlnnlpeg ----Kaupið--- Heimskringlu Nýjir kaupendur fá tvær af eftirfylgjandi sögum í kaupbætir: — i—WW- " Hin leyndardómsfullu skjöl. Bróðurdóttir amtmannsins. Hver var hún? Ljósvörðurinn. Ættareinkennið . Eorlagaleikurinn. Sylvia. Dolores ----Borgið--- Heimskringlu 223. Canadian Scandinavian Overseas Battalion Lieut.-Col. Albrechtsen O.C. HEADQUARTERS: 1004 Union Trust 8idg., Winnioeg Æðri og lægri foringjar og hermenn verða Scandinavar Sveitina vantar hermenn. ifið yði’r í hana. CISLI GOODMAN TIXSMIÐUR. VerkstæÖi:—Horni Toronto St. og Notre Dame Ave. Phone HeimiIIs Gnrry 20SS Garry S09 J. J. B/LDFELL FASTEIGJÍASAI.I. Tlnlnn Uank Sth. Flour Ni>. «20 Selur hús og lótSlr, og annaí þar atl Iutandi. ötvegar peningalán o.fl. Phone Mnlil 2685. PAUL BJARNASON FASTEIGNASAIiI. Selur elds, lífs, og slysaáhyrgtJ og útvegar penlngalán. WYNYARD, - SASK. J. J. Swanson H. G. Hinrlkpson J. J. SWANSON & CO. FASTEIGNASALAR OG penlnga mlblar. Talsíml Maln 2597 Cor. Portage and Garry, Winnlpeg Graham, Hannesson & McTavish L0GFRÆÐINGAR. 215—216—217 CURRIE BUILDING Phone Main 3142 WINNIPEG Arni Anderson E. P. Garland GARLAND& ANDERSON LÖGFRÆÐINGAR. Phone Main 1661 S01 Electric Railway Chamberi. Talsími: Main 5302. Dr. J. G. Snidal TANNLÆKNIR. 614 SOMERSET BLK. - Portage Avenue. WINNIPEG Dr. G. J. Gislason Physlclan nnd Surgeon Athygli veitt Augna, Eyrna og Kverka Sjúkdómum. Ásamt innvortis sjúkdómum og upp- skuröi. 1S South 3rd St., Grnnd For! s, N.D. Dr. J. Stefánsson 401 BOYD ÍILILDIXG Horni Portage Ave. og Edmonton St. Stundar ein*göngu augna, eyrna, nef og kverka-sjúkdóma. Er ab hitta frá kl. 10 til 12 f.h. og ki. 2 til 5 e.h. Phone: Main 3088. Heimili: 105 Olivia St. Tals. G. 2315 * * * Vér höfum fullar birgtSir hrein- V ustu lyfja og meöala. Komiö Á meö lyfseíla yöar hingaö, vér r gerum meöulin nákvæmlega eftir A ávísan læknisins. Vér sinnum t utansveita pöntunum og sðljum A giftingaleyfi. : : : : w COLCLEUGH <£ CO. * Xotre Dtimc A Sherlirooke St». ^ Phone Garry 2690—2691 ^ ii.'szizær. yrrnrr A. S. BARDAL selur Ukkistur og annast urn út- farir. Allur útbúnaSur sá bestl Ennfremur selur hann allskonnr minnisvarha og legsteína. : : 813 SHERBROOKE ST. ’l’imni* <i. 2152 WINNIFICG ÁGRIP AF REGLUGJö ) um heimilisréttarlönd í C; i.ida og Norðvesturlandiiai. Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu ah Já eour karlmatiur cldri en 18 ára, get- IIr .1*^ ^ hetmilisrétt á fjórhung úr section af óteknu stjórnarlandi í Mani- toba, Saskatchewan og Alberta. Um- sækjandi eríur sjálfur ah koma á landskrifstofu stjórnarinnar, eSa und- ■rskrifstofu hennar í þvi héraSi. 1 um- botSi annars má taka land á ölium landskrifstofum stjórnarinnar (en ekki á undir skrifstofum) met5 vissum skil- yrSum. SKYLDUR:—Sex mánaöa ábúS og ræktun landsins á hverju af þremur árum. Landnemi má búa með vissum skilyróum innan 9 mílna frá heimilis- réttarlandi sínu, á landi sem ekki er minna en 80 ekrur. Sæmilegt íveru- hús vertiur at5 byggja, atS undanteknu þegar ábútiarskyldurnar eru ftillnægti- ar innan 9 milna fjarlægtS á ötSru landi, eins og fyr er frá grein4.. Búpening má hafa á landfnu í statS ræktunar undir vissum skilyróuih. í vissum hérutSum getur gótSur og efnilegur landnemi fengitS íorkaups- rétt, á; fjórSungi sectionar metSfram iandl sínu. Vert5 $3.00 fyrir ekru liverja SKYI.nirit i—Sex mánatSa ábútS á hverju hlnna næstu þriggja ára eftir ao hann hefir unntts sér inn eignar- bréf fyrlr heimilisréttarlandi sínu, og auk þess ræktað 50 ekrur á htnu seinna landi. Forkaupsréttarbréf getur land- nemi fengit5 urn leit5 og hann tekur heimilisréttarbréfitS, en þó met5 vissum skiLyrótim. Lamlnerai sem eytt hefur heimilis- rétti stnum, getur fengitS heimilisrétt- arlanil keypt í vissum hérutSum/ VerS $3.00 fyrir hverja ekru. SKYI.DUR:______ VertSur ats sitja á landtnu 6 mánutSl af hverju af þremur næstn árum, rækta 50 ekrur og reisa hús á landinu, sem er- $300.00 virtSi. YV. YV. COIIY, Deputy Minister of the Interlor.. Blöti, sem flytja þessa auglýslngtt leyflslaust íá cnga borgun fyrir, .

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.