Heimskringla - 06.07.1916, Blaðsíða 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. JÚLÍ 1916
Auction
Sale
Tax Sa/e
Hér með tilkynnist, að Tax Sale
Evenj Second (ind Fourth Saturday j Gimli bæjar hefir verið frestaí til
5. júlí 1916. Verður þá haldin í
ráðhúsi bæjarins kl. 2 e. h.
monthlt/ tvill be held at Clarkleigh
this yeur from 2 lo 0 p. m.
B. RAFNKELSSON.
Swan ManufacturingCo,
676 SARGENT AVE.
PHONE SHERBR. 494.
Býr til og selur hin velþektu SWAN WEATHER STRIPS.
Gjörir gamla húsmuni eins og nýja.
676 SARGENT AVENUE. WINNIPEG, MAN.
HALLDOR METUSALEMS.
SPARIÐ PENINGA ÞENNAN MANUÐ
EATONS
MIÐSUMARS-SALA HJÁLPAR
TIL ÞESS.
Markaðsprísar
á helztu bændavörum í Winnipeg
Þriðjudag 4. júlí 1916.
CANADA’S FINEST SUBURBAN THEATRE.
Miðvikudag og Fimtudag: —
tt
The Jockey of Death
Verið viss um að sjá þenna leik.
Föstudag og Laugardag: —
MARGUERITE CLARK í “MOLLY MAKE BELIEVE”
Mánudag og Þriðjudag: —
BLANCH SWEET í “THE SOWERS”.
Rússneskur leikur mjög spennandi.
1
m
Mörg Kjörkaup. Prísar mikið lœgri
en vanalega.
KVENNA- og Barnakjólar, Hattar og Nærfatnaður,
Karlmannaföt og alt þar að lútandi, Skófatnað-
ur, Húsbúnaður, Matvara, Gólfteppi, alt á lægri prís-
um, og alt sýnt með myndum í vorum nýja Miðsum-
ars-Sölu Verðlista. — Þessi Verðlisti er sérstaklega
gefinn út til þess, að segja yður frá þessum óvana-
legu kjörkaupum.
Þessi Miðsumars Verðhsti er nú tilbúinn og þér
getið fengið hann með því að eins að senda oss nafn
yðar og áritun. Bókin verður þá send með næsta
pósti, — póstfrítt. Skrifið strax, því tíminn fyrir
þessa sölu er takmarkaður og sumar vörur ganga
fljótt upp. Með því að senda strax eftir verðlistan-
um og panta svo strax það sem yður vantar, — er
minni hætta á, að þér verðið fyrir vonbrigðum sök-
um þess, að vörurnar séu uppgengnar.
(Eftir Grain Trade News og Produce
Record, Winnipeg).
—s ; ... j' :
Hveiti.
No. 1 Northern .... $1.13%
No. 2 Northern . 1.11%
No. 3 Northern 1.08V4
Hafrar.
Bezta tegund (2 C.W.) ... 0.45
Bygg.
Bezta tegund . . 0.72
Flax.
Bezta tegund 1.59%
Búpeningur.
Geldneyti (Steers) $ 8.00— 8.50
Tarfar og uxar , 5.50— 6.00
Kýr (feitar) 6.00— 6.40
Mjólkurkýr 65.00—80.00
Kvígur 6.50— 7.00
Kálfar 9.00— 9.50
Kindur 7.50— 8.00
Lömb 9.00—10.00
Svín 10.40—10.50
Smjör og egg
Esg .....' $0.23
Smjör (Creamery) $0.29—$0.30
Sinjör (Dairy) 0.20— 0.21
Til Leigu
hús á Sherburne St, 6 herbergi mod-
ern. Renta $18.00 um mánuðinn. —
Laust þessa dagana. Semja má við:
S. D. B. Stephenson,
skrifstofu Heimskringlu.
T. EATON
WINNIPEG - CANADA
Þetta ágæta tfmarit
# er nú uppselt hér
aftur í bráð; en um
miðjan júlí ætti eg að geta afgreitt
pantanir á ný, — ef upplag fyrsta ár-
gangs “Iðunnar” er ekki þegar þrot-
ið heima. En þeir, sem senda mér
pantanir í millitíðinni, sitja fyrir
og verða afgreiddir strax og eg fæ
ritið. Eftirleiðis kostar árg. $1.25.
Stefán Pétursson,
696 Banning Street, Winnipeg.
Lund, frú Hamilton, frú L. W. Leis-
ner og frú Holroyd
Foringi Víkinga meiddr
Fréttir úr Bænum.
| alt það prógram, sem þar verður
framflutt, bæði fyrir framan og inn-
an fortjaldið. — Komið öll.
Mrs. W. H. Adams, frá Bottineau, _
North Dakota, kom á mánudaginn
til borgarinnar og verður viku eða
tvær hjá föður sínurn, síra M. J.
Skaptason, Elsinore Apartments.
Hinn 13. júní andaðist á heimili
foreldra sinna á Ashham Point við
Manitobavatn, Aurora Anderson, 18
ára að a!<lri, dóttir Andrésar Árna-
sonar og Jónínu konu hans. Var
liún jarðsett 18. sama mánaðar.
Aðstandendur liinnar látnu biðja
Heimskringlu að flytja lijartans
þakklæti öllum þeim, er sýndu þeim
hluttekningu og aðstooð við þetta
sorgar-tilfelli. Hinnar látnu verður
nánar getið sfðar.
Málverk.
Allskonar litmyndir
(“Pastel’' og olíu-
málverk) fást
keyptar hjá l*or-
Mtelui 1*. I>orMteiuMMynÍ, 7.'L' McGee St..
—T«Imíiu 1 íi. 4DD7.— Ljósmyndum, bréf-
spjaklamyndum o. s. frv. breytt í stór-
ar litmyndir fyrir mjög sanngjarnt veró.
Efalaust eiga allir einhverja mynd
svo kæra, aó þeir vilja geyma hana
meó lífi því, sem höndin og litirnir
skapa, til minja í stofunni sinni.
. .Bréf á Heimskringlu : —
Miss Lina Gillics.
Guðrún Helgadóttir.
Sveinólfna Gíslason
Sam Sigurðsson.
Friðrik Svelnsson.
öskað er, að allar konur styðji
fyrirtæki jietta, sem ant er um her-
deildinaf og geta þær snúið sér til
elnhverra af fyrgreindum konum og
geta þær fengið lijá þeim allar upp-
lýsingar, er fyrirtækið snerta.
Aðgangur verður lOc og geta menn
fengið aðgöngumiða við hliðið eða
hjá herdeildinni. Ágóðinn gengur
til herdeildarinnar.
II.
223. herdeildin ætlar að hafa sam-
komu á VVonderland leikhúsinu,
Sargent og Sherbrooke strætum,
næsta sunnudagskveld. Samkoman
byrjar kl. 8.30. Þar verða sýndar á-
gætar hreyfimyndir; söngflokkur
verður ]>ar ágætur og beztu söng-
men nsyngja þar einsöngva. Allir
vinir deildarinnar velkomnir.
III.
Oss er skrifað frá I.undar, að þar
verði stórt leikfimls-samkvæmi á
laugardagfnn ]>ann 15. |>essa mán-
aðar, undir umsjón Grettis A.A.C.
öllum verzlunarbúðum verður lok-
að á Lundar l>ann dag, og búist er
við að mikið fjöhnenni verði saman
komið.
Aliskonar íþróttir fara fram fyrir
börn, fullorðna og gamla; einnig
Base Ball á milli Lundar, Eriksdale
og Pine Vicv/. Einnig f.adies’ In-
door Base Ball.
Munið eftir deginum og að fþrótt-
ir byrja kl. 10 f. h.
Næsta sunnudag, 9. júlí, verður
messað í Úriítarakyrkjunni á Glmli
ó venjulegum tíma.
.Ungmennafélag Únítara fer skemti-
ferð til KÍLDONAN PARK sunnu-
daginn kemur, 9. júlí.
Allir meðlimir félagsins og safnað-
arins og kunningjar ]>eirra, sem
vildu fara þessa ferð, eru beðnir að
mæta hjá Únítara kyrkjunni kl. 2
e. h.. Fólk er ámint um, að hver
verður að sjá sér sjálfum fyrir viður-
væri yfir daginn.
Meðlimir Ungmennafélagsins eru
einnig ámintir um, að koma á fund
í kveld (fimtudag, 6. júlí).
Fimtudaginn 29. júní voru ]>au
Henry Duplissa og Anna Steinunn
Goodman, bæði til heirriilis f Winni-
peg, gefin sarnan í hjónahand, að
493 Lipton St., af síra Rúnólfi Mar-
teinssyni.
“Bræðrakveld” í stúkunni Heklu
næsta föstudagskveld. Allir með-
limir, sem í borginni eru nú, eru á-
mintir um að vera þar, og láta það
ekki bregðast. Skemtiskráin verður
löng’og fjörug, ]>ví nauðsynlegt, að
allir komi snemma. Það borgar sig
fyrir ykkur, Goodtemplarár, að
korna á þetta Bræðrakveld, borða
með okkur fsrjóma og heyra og sjá
Duglfcg stúlka
sem kann að bri'rka Typewriter,
skrifar góða hönd og hefir haft æf-
ingu í Office vinnu gntur fengið
vinnu STRAX á skrifstofu Heirns-
kringlu. Umsækjandi sjái ráðsmann
Heimskringlu tafarlaust.
Frá 223. herdeildioni.
i.
Næsta föstudag 7. júlí heldur 223.
herdeildin skemtisamkomu á Ad-
anae Club, Broadway Ave., Winni-
peg. Verður skemtun sú inni og úti.
Þar verður fylkisstjórinn Sir Doug-
las ('ameron, Sir Jaines Aikins og
frú hans, frú H. N. Ruttan og frú
Geo. A. Carruthers.
Landslag er fagurt þar sem skemt-
unin verður haldin og verða þar
búðir margar með ýmsu til að
skemta og stýra þeim hefðarfrúr og
yngismeyjar borgarinnar. Leikendur
eiga einnig að skemta þar frá Pan-
tages leikhúsinu og Stuart Whyte’s
Versatiles.
Te verður borið uin í hinum stóru
herbergjum og kulsælu veggsvölum
klúbbsins. Þar verður McLaskys
Orchestra, Mr. Fred Dalmann, ung-
frúrnar Sweatrnan og aðrir fremstu
sönglistarmenn borgarinnar og
skemta mönnum með listum sínum.
Hinn skrautlegi og inikli borðsal-
ur klúbbsins verður notaður sein
danssalur. Verða ]>ar dansaðir ótal
dansar og margskonar, og dansar
þar almenningur alt kveldið.
Þar geta menn og skemt sér á bil-
liard-sölum klúbbsins, drukkið fín-
asta tc og etið hina gómsætustu
rétti fyrir sáralítið verð, frá kl. 6.30
og alia samkomuna út.
Þessar heiðursfrúr hafa tekið að
sér að stýra sainkomunni, tilhögun
og frainreiiðslu allri: Frú E. M.
Wood, frú Bedford Campbell, frú
E. Hansson, frú P. C. Schioler, frú T.
223. herdeildin gekk í hina Fyrstu
lútersku kyrkju, á horninu á Banna
tyne og Sherbrooke strætum síðast-
liðinn sunnudag. Síra B. B. Jónsson
flutti ágæta ræðu á ensku. Söngur
ágætur. Alt fór fram á enska tungu.
FUNDARBOÐ.
Sameinaður fundur Bændafélags
og Grain Growers félags Geysisbygð-
ar, Man., verður haldlnn laugardag-
inn 15. júlí í Geysir Hall. Til umræðu
verður stofnun á “Agricultural Soc-
iety”. Mr. S. J. Sigfússon verður á
fundinum og gefur upplýsingar.
Áríðandi er, að allir, sem pantað
hafa bindaratviuna í gegnum Grain
Growers félagið, sæki fundinn. Það
er árfðandi fyrir hvern einasta
bónda sveitarinnar að vera á fund-
inum.
Bjarni Jóhannsson,
ritari Bændafélags Geysir bygðar.
Valdimar Sigvaldason,
ritarí Grain Grower fél. Géysir-bygð.
Kvartanir bœnda undan
bönkum.
Bráðlega á að verða fundur hér í
Winnipeg og á að standa einn dag-
Þar mætast forkólfar bændafélag-
anna og helztu bankamenn. Á þess-
um fundi verður fjallað um öll ]>au
misklíðarmál, sem upp koma milli
]>ænda og bankamanna og vilja
mcnn reyna að komast þar að nið-
urstöðu þeirri, sern báðir þessir að-
ilar málanna geti felt sig við. Rit-
stjóri blaðsins Grain Growers
Guide hefir verið beðinn að lialda
þar fram málum bænda og bera
upp kvartanir þeirra, sem þeir
kunna að hafa á hendur bönkum
eða bankamönnum.
Það er nauðsynlegt fyrir alla
KJORKAUP A
KARLMANNA-FATNAÐI
100 KARLMANNA-FATNAÐIR, búnir til úr
Tweeds og Worsteds. Vanaverð 20 til 25
Dollars. Nú að eins .................
Aðeins 100 fatnaðir seljast á þessu verði.
KARLMANNA STRÁHATTAR. Vanaverð $2.00 til
$2.50. Nú að eins ......................
$9.85
$1.00
KAIÍLMANNA FLÚKAHATTAR. Léttir og góðir í
hitunum. Vanaverð $2.50. Nú að eins.
9 5c
Komið í búð vora meðan úr mörgu er að velja
SPARIÐ PENINGA!
Og
PALACE CLOTHING STORE
G. C. LONG.
470 MAIN STREET. WINNIPEG, MAN.
•**■
*
Alveg nýr hjólhestur (Perfect Bicycle) til sölu. Hefir “Coaster
Brake” og allar aðrar nýjustu umbætur. Vanalegt verð $65.00,
en verður seldur fyrir $45.00 gegn peningum út í hönd, eða á
$50.00 rneð niðurborgun og mánaðarborgun á afganginum eftir
samningi. Þetta er einhver bezta tegund hjólhesta á markaðn-
um. — Skoðið hjólið á skrifstofu Heimskringlu og semjið við
ráðsmanninn.
$20.00 grœðir sá, er hjól þetta fœr
menn að vita, hvernig bankarnir
koma fram, hvort þeir koma fram
bændum til hagnaðar eða ekki, og
þá hvað ]>eim sé ábótavant og
livort mögulegt sé að færa það í iag,
svo að samvinna og samhygð geti
komist á milli bankanna og bænda.
Hvereinasti bóndi, sem cr óánægður
með viðskifti sín bankana, ætti því
að koma fram og senda bréf til rit-
stjóra Grain Growers Guide og segja
alt um viðskifti ]>essi. Nafn hans
verður ekki uppi látið, en málið
borið upp á fundinum. Bréf þessi
ættu að sendast svo fljótt ,sem unt
cr til: Grain Growers Guide, Win-
nipeg, Man.
Ef eitthvað gengur að úrinu þínu,
þá er þér iang-bezt að senda það til
hans G. Thomas. Hann er í Bardals
byggingunni og þú mátt trúa því,
að úrin kasta ellibelgnum í hönd-
unum á honum.
KENNARA VANTAR
fyrir Geysir skóla nr. 776 fyrir 7 inán-
uði. Kenslutfmabil frá 1. okt 1916 tili
31. des. 1916, og frá 1. marz 1917 til 30. j
júní 1917. — Tilboðmn, er tilgroini
kaup, æfingu og mentastig, verður
veitt móttaka af undirrituðum til
10. ágúst 1916.
Th. J. Pálsson, Sec’y-Treas.
44) Árborg, Man. I
Frá Portage la Prairie kemur sú
fregn, að slys lmfi komið fyrir for-
ingja 197. herdeildarinnar (Víkinga)
á leiðinni til Camp Hughes frá Win-
nipeg. Capt. Cleven er dauður (háls-
brotnaðb, en Lt.-Cöl. Fopseca Og
Sergt. Kennedy mciddir og liggja á
spítalanum í Portage la Prairie.
Þetta slys kom fyrir um kl. 4.30 e.
m. á leiðinni frá High Bluff til Por-
tage. Vegurinn var vondur, en þeir
hafa hlotið að keyra nokkuð hart í
autóinu, þó að þeir segist ekki liafa
farið nema 20 mílna ferð á klukku-
tímanum. En alt í einu kemur þetta
fyrir, að autóið snýkt við, og segja
margir, að það hafi ]>risvar sinnuin
snúist við áður en það stansaði. Var
]>á Caj>t. Cleven liálsbrotinn og
steindauður, en þeir Lt.Col. Fon-
seca og Sergt. Kennedy meiddir og
meðvitundarlausir, alténd Kennedy-
Kennedy segir, að slysið liafi or-
sakast af því, að belgurinn rifnaði á
öðru afturhjólinu, og tók ]>á vagn-
inn stryk af lcið út í skurðinn. En
meira vissi hann ekki, því í þeim
svifunum varð hann meðvitundar-
laus. Þá vildi svo til, að þar bar að
bónda einn keyrandi og keyrði
hann ]>á til spítalans.
Capt. Cleven var Quartermaster
við 197. lierdeildina, sænskur maður
og bjó að 412 Toronto St., og lætur
eftir sig konu meö 4 börnum. Var
liann mjög vel látinn af hermönnun-
um í deildinni. Sergt. Kennedy kom
frá Vancouver f.vrir nokkrum mán-
uðuin. Col. Fonseea var á leiðinni til
Camp Hughes, að undirbúa flutn-
ing deildarinnar l>angað. Á þriðju-
dagsmorguninn fréttist, að Fonseca
væri á góðum batavegi og lítið
meiddur.
>Slysið vildi til á mánudaginn.
Drukknun í Isl.-fljóti.
Árborg, Man., 3. júlí.—Laugardags-
kveldið hinn 1. júlí voru stúlkur
tvær að baða sig f fljótinu hjá Ár-
borg og druknaði önnur, Guðný
Hallgrímsson, 16 ára að aldri. Þser
höfðu báðar farið svo langt út í
Fljótið, að þær botnuðu ekki, og
komst önnur þeirra til lands aftur
en hin ekki. Sú, sem í land komst,
kallaði undir eins á hjálp, og komn
inenn skjótlega þangað, en stúlkan
var druknuð og lík hennar fanst
ekki og slæddu menn þó Fljótið
fram á nótt.
ANNAÐ SLYS SKAMT FRÁ
ÁRBORG.
10 míluin frá Árborg var maður á
ferð með konu sinni í “buggie”, R°"
man Lisowick, og var að keyra yf*r
poll einn (slough), en djúpt var og
vildi hann snúa við, en þá hvolfdi
vagninum og varð konan undir og
druknaði áður en hann gæti bjarg-
að henni.