Heimskringla - 07.09.1916, Qupperneq 3
WINNIPEG, 7.VSEPTEMBER 1916
HEIMSKRINGLA
BLS. S
Skemtiíerð og vinamót.
Iværi herra ritstjóri!
Mrs. Haiidóra Olson, frá W. Dul-
uth, Minn., hefir heðið mig þeirrar
systurlegu bónar, að rita fácin orð
í Heimsliringlu um komu sína hing.
að til vor vina og vandamanna. Og
þrátt fyrir það, þó forsjónin hagaði
því svo skringilega til, að láta hana
verða alsystur mína, þá er hún
samt ein allra merkasta islenzk
kona, sem vér eigum hér í flokki
vorum vestra; — öllu voru þjóðar-
broti til sæmdar, og sérstaklega
hverri íslenzkri konu og starfandi
kvenfélögum til stórsóina og fyrir-
myndar. Því eins og Halldóra er
stór kona og myndarleg í sjón — nú
orðin 62. ára að aldri — eins er hún
stór í öllu sínu lífsstarfi. Hún á
helzt enga smámuni til. Með frá-
bæru þreki og viljakrafti og trausti
á guði og sjálfri sér, hefir hún rutt
sér braut í gegnum alla erfiðleika,
og aldrei svo ægileg torfæra á veg-
inum, að henni hafi í augum vaxið.
Alt hefir verið yfirstíganlegt hjá
Dóru þótt öllum öðrum þætti ófært.
— Nú á hún verðmikla eign í West
Duluth, þar sem hún hefir sjálf
bygt fæðingarhús fyrir konur og
býr þar sjálf með stórri rausn. En
oft er hljóðasamt kringum Halldóru
þegar 5—6 og fleiri nýfæddir heims-
borgarar eru gólandi og galandi, að
lýsa óánægju sinni yfir ófrelsinu, að-
haldinu, sultinum og serimoníun-
um í þessum nýja sólarheimi, sem
þeir voru án als vilja og íhlutunar
drifnir inn í, úr kyrðinni, værðinnl
og hugsunarleysinu. Þar er svo und
ur gott að vera. Og nú er talan orð-
in hátt á þriðja þúsund, sem Hall-
dóra hcfir tekið á móti og leitt til
sætis á mannfélagsbekki Minnesota
rikis. Og engin kona, enn sem kom-
ið er, hjá henni dáið af barnsförum
eða í höndum hennar orðið nokk-
urt slys. Og líklega eina íslenzka
konan er leyfi hefir fengið til að nota
fæðingar-tangir og önnur verkfæri,
sem að cins læknum er heimilað.
Nú eftir inargra ára erfitt starf og
óteljandi vökunætur tók hún sér
þriggja vikna hvíld til að heim-
sækja okkur hér í Winnipeg og
Nýja íslandi, vini og vandamenn.
Og til að sýna, að Halldóra er eng-
in glingurs eða hversdagskona, þá
dreg eg hér fram í fáum dráttum
hennar ákvörðun á ferðalaginu, —
að sjá alt það mesta og merkasta.
Hún kom hingað til Winnipegi
laust fyrir "^jóðhátið vora 2. ágúst,
og var hér meðal vor Islendingadag-
inn, og lét vel yfir þeirri skemtun.
Að kveldi næsta dags fór hún niður
tii Árborgar, og siógumst við í för-
ina með Nikulás Ottinson f River
Park og kona hans Anna, systir
okkar, einnig eg og kona mín, og
var ferðinni heitið að Hálandi i
Geysir bygð. Þar búa Erlendur Er-
lendsson og Ólína systir okkar. Og
voru viðtökur ástrikar og ánægju-
legar í öllu. Þar vorum við við
messu að Geysir á sunnudaginn, að
viðstöddu fjölmenni að hlusta á
sira Jóhann Bjarnason, sem flutti
röggsamlega ræðu. Að þvi enduðu
var haldið heim að Hálandi aftur
og reis þar upp stór veizla, og að|
henni sátu 40—50 ágætis menn og!
konur úr bygð og nágrenni. Þar|
var söngur og gleði og ánægjubros á
hverju anditi. Allir iofuðu og virtu
heiðursgestinn, sem var Halldóra
systir og árnuðu henni allrar lukku
og báðu hana heimsækja sig, sem
hún gjörði eftir þvi sem tími og
kringumstæður leyfðu. Yið mágar,
Nikuiás og eg, gátum ekki eytt þar
i þessum fagnaði löngum tíma. En
þær konurnar voru þar meira en
viku og heimsóttu marga, bæði í
bænum Árborg og viðar. Kaupmað-
ur Sigurjón Sigurðsson ók með þær
konurnar allar í bifreið niður að
Eljóti (Riverton), og inn með vatnij
til baka, til Hnausa og Eyjólfsstaða
og heim aftur, og er það löng leið.
Og þótti Halldóru viða fagurt á að
líta, og allstaðar alúð og gestrisni
að mæta. Sérlega er Halldóra systir
þakklát kaupmanni Sigurðsson,
fyrir hans höfðinglegu liðveizlu, og
einnig Dr. Pálssyni, sem á aðra bif-
reið og létti þeim frúnum sporið. —
Og hlýja þökk og endurminning
kvaðst hún geyma um alla velvild
og rausn sér sýnda í Nýja íslandi.
Þegar liingað til Winnipeg var
aftur komið, var tekið til óspiltra
mála af Halldóru, að skoða alt það
merkasta, sem þöfuðborgin og
grendin átti til. Einn daginn fór
Dr. B. J. Brandgon með henni og
sýndi henni alla fæðingard§ild
ina hér við Almenna spítalann. —
Einnig skoðaði hún iðnaðar- og af-
urða sýningarhöllina hér í borginni,
og öll stórhýsi og mannvirki, og
fanst mikið til um þrifnað og feg-
urð þessa bæjar víða.
Sá dáðríki vinur vor, Sigfús mál-
ari Anderson — sem Halldóra ald-
rei gleymir— fór með hana einn dag-
inn í bifreið sinni niður að lokun-
um í Rauðá, — mannvirkjunum
miklu, sem settu eina gullstjörnuna
í frægðarhjálm Tomma Kelly, sem
nú er heiðraður og virtur af öllum
fylkisbúum fyrir dugnað og ráð-
vendni o. s. frv. — Annan dag tók
Mr. Anderson liana suður á búnað-
arskóla fylkisins og sýndi henni þar
alt og dáðist Halldóra mikið að
þeim byggingum og öllu þar, og
kvað verða fylkinu til ævarandi
heiðurs og framfara slík óviðjafnan-
lega fögur nauðsynja stofnun. Enda
eru launin ekki smá, sem sá maður
fær, sem inest og bezt vann að því,
að þessi skóli var bygður. Það á
nefnilega að reyna að koma vesal-
ings karlinum honum Roblin í tugt
húsið fyrir að hafa gjört bæði þessi
og önnur frægðarstrik.
Einn daginn fór Nikulás mágur
okkar með Halldóru ofan að Gimli,
því hún vildi umfram alt fá að sjá
gamalmennahælið “Betel, því þótt
hún sé borgari annars ríkis, þá hef-
ir hún látið þetta fagra nauðsynja-
mál okkar íslendinga til sín ná. —
Síðastliðinn vetur gaf hún hælinu
$25.00, og í sumar sendi hún því of-
urlítið af rúmfatnaði og fleiru, og
nú kom hún þangað til þess að
gleðja blessuð gömlu börnin með
nærveru sinni, og gaf þeim öllum í&-
rjóma og kökur.. Hún sagði, að alt
hefði þar verið hreint og fágað, og
lagði lofsorð á forstöðukonurnar,
sem lfklega verðugt er. — Fremur
þótti henni framkvæmdalítill bær-
inn Gimli, eftir svo langan aldur;
en fagurt fram á vatnið að líta.
Þann 19. þ. m. var henni haldin
stór og myndarleg skilnaðarveizla,
að River Park. Þar mun hafa verið
samankomið fult 40 manns, og var
það í alla staði ánægjulegt samsæti
og rausnarlegt, eins og æfinlega,
þegar mannfagnaður er þar hald-
inn og fjölda margir til þekkja.
Samsætinu stýrði Nikulás mágur
með fjöri og myndarskap og voru
margir ræðugarpar framkallaðir. —
En sökum þess, að eg varð fyrir
þeirri virðingu, að vera kallaður
fyrstur fram, og hafði því ekki
tækifæri til að geta etið neitt upp
eftir mér vitrari mönnum, þá varð
það alt tóm vitleysa og veizluspjöll.
Þá afhenti Nikulás Halldóru
skrautritað skjal af mestu snilli
með kvæði sem hér fylgir með ortu
af skáldinu M. Markússyni. Yfir
kvæðinu var skip Ingólfs landnáms-
manns, og stefndi það til íslands,
sem málað var til vinstri handar,
en nýji íslenzki þjóðarfáninn var
með réttum litum málaður til
hægri hliðar. Kringum alt kvæðið
var fagur bekkur dreginn, og átti
að tákna Biíröst. En neðan undir
kvæðinu var Gullfoss, brunandi á-
fram á bylgjum hafsins fyrir afli
gufunnar. Yfir höfuð var allur frá-
gangur á þessu verki prýðisfagur,
og var honum ágætlega lýst í Lög-
bergi, og sérstaklega skáldskapar-
gildinu, sem í því felst, að draga
slíkar hugsjónir saman; og var sem
vænta mátti unun á að hlýða, þeg-
ar Dr. Sig. Júl. Jóhannesson hélt
ræðu sina, því þessari list gat hann
ekki gengið fram hjá. Auk hans töl-
uðu B. L. Baldvinson, Sigfús And-
erson og fleiri, og sagðist mjög vel.
Og var margt hlýtt og virðulegt orð
sagt til heiðursgestsins. En bezt og
ánægjulegast af öllu er, að minni
hyggju, að Halldóra átti heiðurinn
og lofið skilið.
Sunnudaginn þann 20. fór Hall-
dóra héðan og fylgdum við henni
mörg á vagnstöðina. Þá komu þang
að nokkrar konur — af dætrum
Bretaveldis — úr Jóns SigWðssonar
féiaginu, og færðu Halldóru fagran
blómvönd. — Mér þótti sérstaklega
vænt um þessa gjöf fyrir systur
minnar hönd, í tvennum skilningi.
Það var yndislegasta og elskuleg-
asta gjöfin, sem hún gat þegið, frá
merku systrafélagi, sem hefir hátt
og göfugt markmið. Og það var
sómi fyrir þetta góða félag, að aug
lýsa nafn sitt og ganga ekki þegj
andi fram hjá merkri’ konu úr öðru
ríki, sem alla sina tíð hefir verið
stoð og styrkur kvenréttinda, og
hvar sem hún hefir verið við hjálp-
ar og líknarmál riðin, þá ætíð fyrst
á blaði með dugnað og fram-
kvæmdir.
“Eg á sjö börn í sjó og sjö á
landi”. Eg hefi verið 12 ár í Banda-
ríkjunum, og mér er svo hjartan-
lega vel við þjóðina. Frjálsa við-
mótið og óþvingaða brosið á and-
litunum og manndómlegu fram-
komuna, að eg þoli ekki, að -í nokk-
uru sé heiður þeirra skertur. En
eg elska líka þetta ríki, og aldrei
eins heitt og nú, síðan synir þess og
dætur hafa farið að leggja fram líf
og krafta á móti ofbeldi og rang-
sleitni, oss, sem hér búum, og öllum
heiminum til frelsis og blessunar.
í þessa átt vinnur Jón Sigurðsson
félagið. Heiður og blessun fylgi því
Og heiður og blessun fylgi hverjum
einasta íslending, sem tekur þátt í
þessari stóru baráttu! Og heiður og
blessun verði æfinlega yfir þessu
blessaða landi, sem hefir fætt oss og
klætt síðan hingað kom! Og guð
láti það verða sjálfstætt stórveldi
eins og blessuð Bandaríkin!
Lárus Guðmundsson.
Halldóra Olson
frá Duluth, Minn. KvæSi þetta var flutt og henni
afhent skrautritaS í samsæti hjá Mr. og Mrs.
N. Ottenson í River Park.
Þér heiSurs svanni hausts á degi blíSum
frá hjartans grunni vinir syngja óS,
og þakka fyrir fylgd á liSnum tíSum,
þitt fagra starf, er lýsti menta glóS.
AS rétta veikum hönd og göfugt hjarta
í hverju stríSi var þín löngun sönn,
þú gafst oss marga glaSa stund, og bjarta,
sem gleymist ei, þó freySi tímans hrönn.
Þú hefir stigiS stærri spor en fjöldinn
af sterkum vilja fpgru marki náS,
og þó aS löngum lítil væru gjöldin
þitt lífsstarf verSur helgri minning skráS.
HiS góSa pund af herrans hendi þegiS
varS hundraSfalt, þú grófst þaS ei í jörS,
og þegar alt er virt, og mælt, og vegiS,,
þaS varSar mestu handan tímans fjörS.
Þú göfga kona, stór -í raun og starfi,
er styrk í sæld og þraut oss hefir veitt,
þitt fagra dæmi aldir fá aS arfi,
þau andans blóm, sem fær ei grandaS neitt.
AS heil þú lengi megir meS oss vinna
er mál vors hjarta þenna glaSa dag,
viS haustsins skraut í skjóli vona þinna
sem skíni fram á hinsta sólarlag.
M. Markússon.
Æskulýðurinn.
Vor.
Eftir skólastúlku.
(Þýtt).
Þegar veturinn situr í veldisstóli,
reynir fólk að búa um sig sem þægi-
legast og hlýlegast, til þess að geta
veitt mótstöðu vetrar harðindun-
um. Með köflum rennir það hugan-
um til vorsins; en þegat það fer að
nálgast, kemur vorhugsunin í alla.
Fólk hugsar með gleði og eftir-
vrenting til vorsins, því það veit, að
)á sendir blessuð sólin ylgeisla sina
til að verma alt og endurlífga. Þá
koma sumarfuglarnir til að gleðja
alla með söng sínum, og þá springa
blómin út til að brosa á móti
manni og gleðja mann með fegurð
sinni. >
Hver gleðst ekki við að sjá fyrstu
merki vorsins? Þegar nepja og norð-
angjóstur verða að víkja fyrir sól-
hlýjuiri sunnanblænum, sem vermir
akra og engi, og vekur til lífs jurta-
gróðurinn, sem legið hefir í dvala í
vetrarhörkunum, undir svellum og
fönnum.
fsinn, sem haldið hefir öldum
vatnsins f fjötrum, bráðnar; öld-
urnar fara að dansa á yfirborði
vatnsins, hvítfextar; en árog lækir
fara að renna og hoppa á stall af
stalli niður hlfðarnar.
Það er unun að sjá, þegar hólar
og balar fara að grænka, og grasið
teygir sig smátt og smátt hærra og
hærra á móti ylgeislum sólarinnar.
Þá er undur skemtiiegt, að hjálpa
því til að vaxa, með því að hreinsa
frá því rusl, sem að öðrum kosti
heftir vöxt þess eða kæfir það nið-
ur. Fögur sjón er það, að sjá þann-
ig vel hirta, skrúðgræna bletti um-
hverfis bústaði fólks.
Vorið vekur, hressir og gleður. —
Jafnvel skepnurnar lála í ljósi fögn-
uð sinn, þegar þeim er slept f hag-
ann á vorin, eftir langa innivist að
vetrinum.
Á veturna eru trén ber og nakin.
Vetrarnepjan helkalda leikur kulda
iega um greinar þeirra. Svð kemur
vorið, þá fara laufin að myndast . í
fyrstu eru þau undursmá og fögur.
Síðar smástækka þau, unz skógur-
inn er íklæddur sumarskrúða. Svo
þegar undurþýður vorblær andar á
laufin, blakta þau og blika í sólar-
ljósinu eins og aragrúi af fánum. —
Þegar maður lítur lundinn græna,
fyllist maður aðdáun yfir hinum
undursamlegu öflum vorsins.
Stuttu eftir að grasið þekur jörð-
ina eins og grænt klæði, fara marg-
brotnari jurtir að þroskast. Þá fara
blómin að springa út með sínu
margvíslega litskrúði. Fyrst koma:
fifillinn, sóleyjan, fjólan og vatna-
liljurnar. Þá er einkar skemtilegt að
fara út í skóg til að lesa blóm, þar
sem þau brosa á móti manni. Það
lirífur viðkvæma strengi f brjósti
manns, að líta fjólurnar litlu og
dökkbláu, þar sem þær hneigja
niður kollana svo undur hæversk-
lega í skugga trjánna. Sú sjón minn-
ir mann á vísuna:
“Doxvn in a green and shady bed
a modest vioiet grewr.
Her stalk was bent she hung her
head,
as if to hide from view”.
Með vorinu koma sumarfuglarnir
og fylla skóginn með söng sínum.
Méð þeim fyrstu af söngfuglum
koma: rauðbrystingurinn, lævirkj-
inn, sólskríkjan og næturgalinn. —
Það er unun, að hlýð^ á söng þeirra
og sjá þá byggja hreiðrin sín og
annast um ungana sfna. Það er vel
þess vert, að fara á fætur um sólar-
uppkomu til að sjá skóginn fullan
af lífi og fjöri og heyra morgunsöng
fuglanna.
Þegar maður. andar að sér ilm-
ríkri og endurlífgandi vorgolunni
og veitir athygli öllum þeim miklu
og margvíslegu breytingum, sem
vorið hefir komið til leiðar, gjörir
maður sér fyrst fulla grein fyrir þýð-
ingu þess. öll lífsöfl leysast þá úr
læðingi og heimurinn virðist svo
fagur og bjartur eftir vetrarharð-
indin.
Maður iofar forsjónina fyrir öll
þessi dásemdarverk, og fagnar með
öllu sem lifir yfir dýrð vorsins. Þá
hverfur dimman og drunginn úr
huga inanns og gjörvalt lífið fær á
sig bjartari og hreinni blæ. Hugur-
inn lyftist frá öllu lágu og fölsku til
háleitari og göfugri hluta.
Þannig glæðir vorið öll góð öfl í
manninum, og kemur honum til
þess að gjöra sér grein fyrir öllu því
góða, sem hann gæti komið til leið-
ar, ef hann að eins beitti hæfileik-
um sínum og glæddi þau góðu öfl,
sem í sál hans búa. Hann fastsetur
sér, að beita þessum hæfileikum og
reyna hvað hann geti gjört, því vor-
andinn hefir tekið sér bústað í
huga hans.
Starfslöngunin er á meðal annars
góðs, sem vorið glæðir. Þá ganga
menn að verki með nýjum kröftum
eftir að vetrardvalinn og deyfðar-
drunginn hafa verið hraktir burt.
Sumarið, sem er bjargræðistími árs-
ins gengur þá í garð og fólk finnur
svo vel þá, að því ber að beita öllum
sínum kröftum til að afkasta sem
mestu. Sumir vinna á akrinum, aðr.
ir færa ýmislegt í lag á heimilinu og
prýða það með því' að rækta gras,
blóm og runna, með listilegri nið-
urröðun umhverfis íbúðarhúsið.
Þannig er vorið þrungið af endur-
lífgandi öflum. Þá ber mönnum að
kunna að meta réttilega það, að
vera færir um, að afkasta miklum
verkum. Aftur er það hraparlegt,
þegar hraust fólk lætur vorið og
sumarið líða, án þess að starfa eitt-
hvað þarflegt og uppbyggilegt, eða
þegar doði og dáðleysi nær svo
miklu haldi á því að það “eldist”
fyrir tímann. Vorhugur ætti ætíð
að ríkja í fólki á öllum aldri, þá
horfir það björtum augum fram í
framtíðina og ókvíðið. Lífið verður
þá gleðiríkara og fólkið afkasta-
meira.
Þegar vorið er búið að draga síð-
ustu drættina, cr sumarið gengið í
garð með allri sinni yfirnáttúrlegu
dýrð. Þá eru dagarnir heitir, bjartir
og sólríkir. Vorið veit, að allir bíða
þá með eftirvænting dýrðarljóma
sumarblómans, og eru tilbúnir að
hagnýta sér hann. Það er því vilj-
ugt að víkja fyrir honum. Þá eru
líka allir reiðubúnir að hrópa: “Far
vel vor! Velkomið sumar!
Tilkynning.
Hér með gjörist öllum kunnugt,
að sveitarstjórnin í Coldwell sveit
hefir með aukalögum No. 69 ákveðið
að aukalög No. 1, sem viðtekin vóíu
af skólanefnd Consolidated School
District of Norðurstjarria No. 1216 —
komi til atkvæðagreiðslu gjaldenda
í skólahéraðinu hinn 11. dag sept-
embermánaðar árið 1916, og skulu
atkvæðin greiðast frá því kl. 9 fyrir
hádegi þangað til kl. 5 eftir hádegi
á Norðurstjörnu skólahúsi.
Þessi aukalög skólanefndar-
manna ætlast til þess, að lán sé tek-
ið, sem nemi fimm þúsundum doll-
ara — $5,000.00 —, þannig að gefin
séu út skuldabréf er borgist árlega
á tuttugu árum og séu rentuber-
andi ....... á ári frá dagsetningu
bréfanna. Rentan greiðist árlega
hinn ...-- dag ...... á hverju ári.
Lánið er tekið til þess að byggja
skóiahús fyrir skólahéraðið.
Oddviti sveitarinnar verður á
skrifstofu sinni að Lundar hinn 1.
dag september mánaðar, til þess að
skipa eða tiltaka menn með og móti
aukalögum þessum eins og lög á-
kveða.
Skrifari og téhirðir sveitarinnar
verður á skrifstofu sinni að Lundar
hinn 12. dag septembermánaðar ár-
ið 1916, klukkan 2 e. m., lil þess að
telja saman atkvæðin, sem greidd
hafa verið með og móti ofangreind-
um aukalögum.
Dagsett að Lundar P.O. hinn 7.
dag ágústmánaðar 1916.
A. MAGNUSSON,
Sec’y-Treas.
MARKET HOTEL
146 Prlncm Street
á mótl markatiinum
Bestu vínföng, vindlar og aö-
hlyning góö. Islenkur veitlnga-
maöur N. Halldórsson, leiöbein-
ir íslendingum.
P. O’CONNEL, Eigandi Wlnnlpeg
KAUPIÐ
Heimskringlu
Nýtt Kostaboð
\
Nýir kaupendur að blaðinu, sem senda oss
fyrirfram eins árs andviröi blaðsins, oss að
kostnaðarlausu, mega velja um þRJÁR af
af eftirfylgjandi sögum í kaupbætir :
oylvia Lara
"Hin leyndardómsfullu skjöl” “Ljósvörðurinn ’
“Dolores” “Hver var hún?”
“Jón og Lára” ' “Forlagaleikurinn’
“Ættareinkennið” “Kynjagull”
‘‘Bróðurdóttir amtmannsins ’
BORGIÐ
Heimskringlu
Sérstakt Kostaboð
Hver áskrifandi blaðsins er sendir oss borgun upp
í skuld sína má velja um EINA SÖGUBÓK í kaup-
bætir fyrir hverja $2.00 er hann sendir, TVÆR
SÖGUBÆKUR fyrir hverja $4.00, þRJÁR SÖGU-
BÆKUR fyrir hverja $6.00, og svo framvegis.
Allar borganir sendist oss affallalaust.
Notið tækifœrið. Eignist sögurnar ókeypis
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N
N