Heimskringla - 04.01.1917, Page 3
WINNtPEG, 4. JANÚAR 1917
HF. ÍMSKRINGLA
BLS. 3
Er varanlegur friður mögulegur ?
Eftir
Professor STEPHEN LEACOCK.
Eg hefi áður talað um ráðgátuna
um varanlegan frið á umliðnum
tímum og sýnt, að frá upphafi hafa
menn barist, maður móti manni,
< sn kynflokkurinn á móti öðrum,
• ;i þjóðin á móti annari, og það
iiefii' litið svo út sem Jietta hlyti
Jiannig að vera.
Og ekki batnaði, þegar mentunin
fór að vaxa hjá þjóðunum. Bardaga
aðferðin breyttist; það var nú alt.
1 staðinn fyrir kylfuna og axirnar,
komu byssur og kanónur. En stríð-
in héldu einlægt áfram. Uppfynd-
ingar manna miðuðu til þess, að
gjöra stríðin hættulegri og flóknari.
En stríðin sjálf voru jafn tíð og
áður.
Þá kom nítjánda öldin, mesta
framfaraöld mannkynsins, sem þá
hafði verið, og var hún frábreytileg
öllum öldum á undan. Þá kom
gufuvélin og gufuskipin og þá
fleygði iðnaði svo fram, að við það
breyttust og umsköpuðust öll kjör
mannkynsins. Það leit svo út, sem
maðurinn væri orðinn herra nátt-
úrunnar. Þessar nýju vélar hundr-
aðfölduðu mannsstarfið. Samgöng-
urnar breyttu hugsunarhætti þjóð-
anna og gjörðu þá nágranna, sem
lifað höfðu f hundrað mílna fjar-
lægð. Lýðveldisstjórnin fór að breið
ast óðfluga út um heiminn. En
verzlunin tengdi þjóðirnar saman
svo að einn varð hagur tveggja. —
Strfðin fóru að verða svo voðaleg
og hryllileg. Menn álitu, að þau
væru leyfar villimanna-eðlis fyrri
tíma og ættu aldrei og gætu aldrei
lcomið fyrir aftur. Það væri svo
mikil heimska að vera að eyðileggja
löndin og deyða mennina. Og þá
spruttu upp friðarpostular af
hverri þúfu. Nú voru dagar stríð-
anna um garð gengnir. “Það getur
aldrei komið fyrir”, skrifaði friðar-
postuli einn enskur árið 1913, “að
nokkur einn einasti hermaður í hin-
um feikna stóra þýzka her lifi þann
dag, að sjá hleypt af einni einustu
fallbysau í stríði". — Þessar og því-
líkar voru skoðanir og trú manna í
byrjun tuttugustu aldarinnar.
En svo kom stríðið, grimt og voða
legt og náði að meira eða minna
leyti yfir allan heim, eyðandi og tor.
tfmandi meira en nokkurt annað
stríð síðan heimur bygðist. Og
hvað kemur svo á eftir? Ætli að vér
göngum um skuggadali strfðsins
inn í aðra heima, þar sem sól frið-
arins lýsir upp brautir manna til
eilífra tíða, eða inn í eitthvert enn
þá hryllilegra myrkur haturs og
manndrápa? Það hefir verið furðu
útbreidd hugsun, einkum í byrjun
stríðsins, að J>essi ófriður og mann-
vfg væru sönnun fyrir því, að ein-
mitt þetta strfð myndi gjöra enda
á öllum styrjöldum. Mannkynið
myndi ekki líða það eða láta það
viðgangast, að þjóðirnar færu í
aðrar eins voðalegar hreður og þessi
væri. Við lok stríðsins myndu allar
hinar stóru þjóðir heimsins ganga
í eitt bandalag, svo sterkt að engin
þjóð myndi verða svo djörf, að fara
að ráðast á aðra, því að þá kæmu
hinar á móti henni. Upp frá þessu
myndi verða farið með öll ágrei'.-
ingsmál milli þjóðanna eins og
hvert annað mál manna, sem kem
ur fyrir lög og dóm. Þjóðirnar settu
náttúrlega upp dómstól til að
dæma J>essi mál og þá myndu þess-
ar deilandi l>jóðir hlýða undir eins.
— Mönnum hættir alment við, að
hugsa sér Bandaþjóðir Evrópu og
Bandaríki Ameríku sem sitjandi á
rökstólum til að dænia mál þjóð-
anna og ögna þeim til að hlýða og
hafa ]>á í huga Þjöðverja að velii
lagða og yfirunna og Austurríki
sunduriiðað í ótal smærri ríki.
Það er enginn efi á, að slíkar hug-
myndir og vonir koma heim við
alt það, sem er bezt og göfugast í
hugum manna, og vér viljum vona,
að þessu takmarki verði náð ein-
hverptíma á komandi öldum. þó að
langt verði þangað til Það skeður
og sá tími sé þoku vafinn fyrir sjón-
um vorum. Alheimsfriður er ekki
hugsaniegur, nema með samkomu-
lagi allra heimsins þjóða. Þeir dag-
ar eru nú liðnir, þegar einhvern
voldugan konung eða höfðingja
var að dreyma um, að leggja undir
sig heim allan og koma þannig friði
á. Þegar Alexander mikli “grét af
því, að hafa ekki fleiri heima til að
leggja undir veldi sitt”, þá var hann
í rauninni ekki búinn að leggja
undir sig meira land en Saskatche-
wan er nú. Og allur heimurinn, sem
Rómaborg lagði undir sig, var ekki
stærri en Norðvestur-fylki Canada.
Og öll saga mannkynsins sýnir oss
það svo skýiaust, að enginn maður
getur efast, að friður sigurvegar-
anna getur aldrei verið varanlegur.
1 öskurústum hinna sigruðu landa
lifa glæður haturs og ófriðar mann
fram af manni.
Ef friðurinn kemur nokkurn
tíma varanlegur yfir heim þenna,
þá hiýtur hann að koma með sam-
þykki og vilja manna. Og það er
eins og mannkynið hafi eitthvert ó-
ljóst hugboð um þetta. Allir erum
vér orðnir “fullkomleikamenn” (per-
fectionists). Yísindin valda því. Vér
hugsum oss ekki, eins og forfeður
vorir, að alt gangi í eilífri hringrás
frá góðu til ills og aftur frá illu til
ills og aftur frá iilu til góðs. Eram-
fara hugmyndin er oss ósjálfráð.
Vér hugsum að allir hlutir fari og
eigi að fara batnandi. Vér erum
sannfærðir um, að fátæktin og
pestin og plágan og óþrifa-holur
stórborganna eigi og liljóta að
hverfa, svo að ekkert af þessu
sjáist framar. Vér erum börn Jiess-
arar nýju aldar og treystum því, að
framfarirnar muni afmá fátæktina
og sópa burtu úr heiminum pest-
inni og sultinum og hryllingum
stríðanna.
Þannig hugsar mikill mciri hluti
manna. Hér og hvar heyrðum vér
samt gagnstæðar skoðanir eða að
stríðin lyftu mönnum upp og
gjörðu J>á göfugri, fremur en nokk-
ur hlutur annar og þess vegna
mættu þau ekki missast úr heim-
inum. Þetta voru skoðanir þýzku
prinsanna; þeir héldu þeim fram
með sperringi og reigingi, er þeir
riksuðu um með guilspengur um
hið fátæka heilabú sitt, sem hanar
blásnir upp af stolti yfir eigin dýrð
sinni. Þetta voru skoðanir prúss
nesku barónanna og landeigend-
anna, sem sáu, að f stríðinu fengu
þeir tækifæri til rána og gripdeilda,
til áð svala fýsnum sínum og girnd-
um. Það voru og skoðanir margra
hinn þýzku prófessora og fræði-
manna þjóðarinnar, sem þóttust
dýfa rithönd sinni í blóðelfurnar
til axlar, en blóðið var þá prent-
sverta ein. Þessar skoðanir léku
lausum hala fyrir stríðið, en þegar
stríðið byrjaði var þeim lokið. —
Sorgarstunur og angistarvein alls
heimsins hafa þegar risið hátt yfir
ropa þeirra, svo hann hefir kafnað
í kverkum þeirra, sem þannig töl-
uðu og hugsuðu.
Það er því friður og ekki stríð,
sem vér á endanum vonum og
treystum að verði hlutskifti mann-
kynsins; og enginn sigurvegari get-
ur valdboðið þennan frið: — hann
verður að fást með samkomulagi.
Það verður að vera samkomulag
milli hinna stærstu ríkja heimsins,
svo að ]>au vinni saman sem ein
heild eða einn maður, til að fá
þessu framgengt og til þess verða
þau að leggja fram alt sitt afl og
veldi. Þessu augnamiði hlýtur hver
skynjandi mannleg vera að vera
samþykk. En hitt aftur stórt spurs-
mál, hvort þessi friður og samlélag
þjóðanna sé mögulegt sem stendur
eða þegar stríð þetta hið mikla er
nýafstaðið. Það er ekki og getur
ekki verið mögulegt. Og að byggja
á því stefnu og gjörðir ókomna tím-
ans hlýtur að enda með skelfingu.
Yér mættum eins vel setja lávarð
Halfdane í embættið aftur, sem her-
málaráðgjafa, svo að hann gæti
aftur sungið oss vöggusönginn um
hið friðgjarna og saklausa Þýzka-
land, eða iáta hinn elskulega Mr.
Birreii sitja með prjóna sína við
uppreistar-vöggu íranna.
Þcir eru alt of fáir, sem verulega
hafa hugsað út í þýðingu þessa fé-
lagsskapar þjóðanna og friðarins
um allan heim, eða hina mörgu
annmarka og snaga þá alla, sem
mál þessi kunna að festast á. Það
er ofur létt, að gjöra uppkast af
því. Hver 12 ára skóladrengur getur
gjört það. Vér látum þessi ríki öll
til dæmis ganga í félagið: Bretaveldi
um heim allan, Bandaríkin í Norð-
ur-Ameríku, Erakkland, Rússland,
ítalíu og Japan, og í pílsfaldi þeirra
har.ga svo hin minni rfki og þjóðir.
öll minni ríkin, svo sem Holland og
Svíþjóð, verða að gjöra það, sem
þeim er sagt. Um Þýzkaland og
Austurríki og Tyrkland tölum vér
seinna. Menn geta gjört hvort sem
þeir vilja: hugsað sér þau í félag-
inu eða utan við það; en núna
fyrst er bezt að hugsa sér þau utan
við. Þetta alheimsfélag hefir svo
sérstakan dómstól, er öll félagsmál
koma fyrir, líkt og friðar-dómstóll-
inn í Haag, en miklu æðri og veg-
legri. Og lendi einhver þjóð í deil-
um við aðra og tapi hún máli sínu
fyrir dómstól þessum, þá verður
hún að sætta sig við dóminn og
gjöra eins og henni er sagt.
Þetta virðist nú vera svo einfalt
og bjart og ljóst sem dagurinn. En
ætlið þér virkilega, að það myndi
reynast svo, þegar til þyrfti að
taka? Setjum svo, að Japan hefði
borið kröfur fram fyrir dómstól
þenna og heimtað, að Bandaríkin
létu Japana hafa fullan rétt til að
set.iast að í Bandaríkjunum og
kaupa þar löm: og eignir aðrar;
eða setjum sv:>, að dómstóliinn
hefði skipað Bietum, að veita jap-
önskum innflytjendum rétt til að
setjast að í A cialíu og taka þar
fullan borgararétt. Eða að dóm-
stóllinn hefði úrskurðað, að Spánn
um þá óska, ao ver hefðum með oss
atkræði Hottentottanna og yrðum
að treysta á ráðvendni og réttlæti
fulitrúanna frá Moc;uito strönd-
inni.
deyddu, — þessi núlifandi kynslóð
hefir hlustað á hljóðin og veinin
fanganna undan svipum böðlanna;
hefir heyrt óminn af angistarveini
hinna druknandi kvenna og barna,
Því betur og vandlegar, sem menn og no spyrium ver. Getur hún,
hugsa út í þetta, því toiveldara og
óhugsanlegra verður það í fram-
ætti Gibraltar, og hefði skipað ‘ kvæmdinni. Vér getum ekki einu
Bretum að skila Spánverjum þess-
um dýrmæta kastala. Eða að dóm
stóllinn hefði farið að skifta upp
Afríku, og hefði látið Rússa fá þar
góða sneið og mikla. Eða þá að
dómstóll þessi hefði gefið þann úr-
skurð, að hver einasta Evrópuþjóð
sem lond og ríki á í Afriku, skyldi
hafa sig á burtu þaðan með alt sitt;
því að allar þessar þjóðir hefðu upp
haflega fengið iandið með ráni. —
Eða að 200 milíónir Inda hefðu
komið fram með bænarskrá og beð-
ið um fullkomið sjálfsfonæði. Eða
að dómstóllinn hefði skipað Banda-
ríkjunum, að pakka sig tafarlaust
á burtu úr Filipseyjum.
Eða með öðrum orðum: efað dóm
stóllinn gjörði einn eða annan úr-
skurð gagnstæðan velferð einnar
eða annarar af þjóðum þessum, —
svo gagnstæðan, að hann hlyti að
æsa upp reiði og hatur hvers ein-
asta manns af þessari þjóð, — ætlið
þér virkilega, að þessi eða þessar
þjóðir myndu leggja niður kalann
og láta þetta gott heita? Aldrei —
aldrei, nema þær væru neyddar til
þess.
— Vandræðin við þessa penna-
postuia eru og hafa ^gfinlega verið
þau, að þeir ímynda sér og búa til
í huga sínum ótal dæmi um deilu-
efni, sem eru lítils eða einskis virði.
Þessi hin smávægilegu atriði og
deilumál má æfinlega semja um
fyrir slíkum dómstóli og ótal öðr-
um gjörðardómum. Þessi og þvílík
mál hefir málamyndar-dómstóllinn
(Dummy Tribunal) í Haag verið að
gjöra út um í tuttugu ár.
Það er raunar satt, að á liðnum
tímum hafa smávægileg og ómerki-
leg atriði oft hleypt þjóðunum
saman í stríð af því að þær gátu
ekki komið sér saman um þau. Eng.
land og Rússland voru elnu sinni
nærri komin í stríð út af landamær
um Afghanistan’s, og England og
Bandaríkin út af því, hvar forar-
fióarnir í Venezuela enduðu og
skógarnir í British Guyana byrj-
uðu. Út af þessum og þvflfkum
málum fara íbúar borganna oft f
æsing, — feitu mennirnir, sem ekk-
ert vita, hvað stríð er, þeir hlaupa
í landabréfin og stafa sig fram úr
þeim með hörmung og þrautjim;
verða svo allir á lofti og heimta
strfð og blóð. Það lá nærri, að
svona færi í Canada út af landa-
mærum Alaska. En nú hirðir eng-
inn um það og minnist aldrei á
það.
Til þess að semja um og úrskurða
í slíkum deilum væri þessi alþjóða-
dómstóll ágætur. En þegar spurn-
ingin er um líf eða dauða þjóðar-
innar, ekki einungis sorg eða gleði,
frelsi eða þrældóm, þá er dómstóll-
inn sjálfur þýðingarlaus og einskls.
virði. Hann getur ekki komið að
gagni, nema hann hafi afl á bak
við sig, sem neyði menn og þjóðir
til að hlýða úrskurðunum. Þarna
er lykillinn að öllu þessu. Þetta er
hið eina óhjákvæmilega skilyrði tii
þess, að dómstóllinn sé til nokkurs
nýtur. Ef að þjóðirnar vilja stofna
dómstól, sem hlýtt verði, þá verða
þær að láta hann hafa meira vald
en þær sjálfar hafa. Það er þýðing-
arlaust fyrir þær, að lofa því að
eins eða skuldbinda sig til þess, að
styðja dómstólinn og úrskurði hans
með öllu sínu afii og fylgi. Það
væri að eins að leggja til körfu fulla
af pappírsrusli í staðinn fyrir mark-
lítinn pappírsmiða. Og ef að nokk-
ur þjóð færi að leggja niður vopn
sín og senda hermenn sína heim og
eyðileggja herskipaflota sinn, þá
væri hún sek í þeirri fásinnu og
flónsku, sem fljótlega hlyti að
verða henni að fótakefli.
En setjum nú svo, að dómstóll
þessi hefði vopnað lið af öllum
þjóðum og herflota svo mikinn, að
hann væri meiri og sterkari, en her
og floti nokkurrar einnar af þjóðum
þessum, — svo mikill, að hann æti
neytt hverja eina þjóð til að hlýða
boði sínu, og raunar þyrfti hann að
hafa meiri her og flota en hverjar
tvær eða fleiri þjóðirnar, sem kynnu
að leggja saman, — þá væri nú alt
fengið, kynnu margir að segja.
En þetta er ekki nóg, ef menn
hugsa út í málið vandlega. Því að
þá kynni vel að fara svo, að fleiri
oða færri þjóðirnar legðu saman til
að hefja stríð móti sjálfum dóm-
stólinum og valdi hans. Stríðið
yrði eins konar uppreist til þess að
brjóta niður þetta vald og setja upp
annað nýtt, sem þessum þjóðum
væri geðfeidara.
En ef að menn skyldu fara að
gefa þessum dómstól svo mikið vald,
að ómögulegt væri á móti að standa
— þá væri það sjálfsmorð þjóðanna
hverrar fyrir sig (national suicide);
öll framtfð, cigur, frelsi og líf væri
í höndum nefndar einnar og væru
suinir nefndarmenn hvítir, aðrir
gulir, rauðir og blakkir. Vér mætt-
sinni borið traust til sjálfra vor. í
seinustu 200 árin höfum vér lært
það, að komast svona einhvernveg-
inn af irringalítið við nábúana af
vorum eigin kynflokki, með at-
kvæðagreiðslu f almennum málum.
En býsna oft vill þó snurða koma á
vinabandið, og ekki er það æfin-
lega, að vér verðum ánægðir með at-
kvæðagreiðsluna, eins og sýndi sig
í málum Ulster-mannanna á Ir-
landi. Og ætli menn að láta at-
kvæðagreiðsluna fara að ráða um
heim allan, þá verður það langa
hríð að eins draumur einn, þegar
til framkvæmdanna kemur. Hver
eítir allar þessar hörmungar og öll
þessi eiðrof, lagt nokkurn trúnað á,
að Þýzkir muni fremur halda skrif-
uð eða eiðsvarin loforð hér eftir, en
þeir hafa gjört hingað til.
Menn geta það ekki; það er ó-
hugsandi. Kynslóð fram af kynslóð
á komandi tfmum eru öll afskifti
eða samband við Þýzkaland og
Austurríki óhugsandi, nema vér
sjálfir höfum undir höndum vopn-
að lið og flota; svo mikinn herafla
oss með bandalagi við skyldar og
vinhoilar þjóðir. Vér getum hugsað
oss bandalag milli Englands, Rúss-
lands, Frakklands og Bandaríkj-
anna í Norður-Ameríku; bandalag,
sem alténd næsta mannsaldur hefði
nægilegt afl til þess, að halda jafn-
vægi og friði við í heiminum. En þó
að ailar þessar þjóðir gengju í því-
líkt félag, þá megum vér aldrei láta
oss henda það, að vanrækja að
halda hernum og flotanum við í
svo stórum stýl, sem vér erum færir
um.
Menn kunna nú að segja, að þetta
sé skuggalegt útlit. Og það virðist
lítt þolandi, að eftir öll þessi út-
gjöld, allar þessar fórnir stríðsins í
á sjó og landi, að vér getum malað | ^ °S blóði, þá skuli hinn mentaði
heimur neyðast til að leggja á herð-
ar sér hinar feiknaþungu byrðar
friðarins undir vopnum. En það
virðist enginn annar vegur vera til.
Ef að vér leggjum niður vopin, þá
stofnum vér oss f hættu þá, sem
vér höfum haldið að horfin væri
þá uirdir oss undir eins og þeir rísa
upp til hefnda.
Sannleikurinn er sá, að heimur-
inn er ekki við því búinn, að táka
á móti almennum borgaralegum
rétti; en einmitt á því ætti þetta al-
getur ábyrgst oss ráðvendni og heimsfélag að byggjast. Og stríð
réttsýni fulltrúanna? Hvernig get- þetta hefir fært tímann og takmark með hinum viltu og barbarisku
um vér fengið vissu um, að þeim sé' þetta fjær oss, en ekki nær. Vér höf- ^ó®um Jortiðarinnar; en Þjóðverj-
ek-ki mútað; þeir séu seldir og ' um að vísu öðlast vináttu, Erakka, j r
keyptir eins og gripahópur, eða að : innilega, hreina og heita, sem hin
eitthvert leynifélag þjóðanna sé að ! heitustu lijartaslög blóðtengdra
brugga oss vélræði og muni steyp- J bræðra. En til sumra annara þjóða
ast yfir oss með ómótstæðilegu afli j skilur stríðið eftir i hjörtum vorum 1
áður en oss gða nokkurn annan j að nokkru leyti helgan arf haturs
varir; eða kanske alþjóða-flotinn sé og. fyrirlitningar. Og hvað hinn
hluta heimsins snertir, þá höfum
vér fengið hina hátíðlégustu aðvör-
kominn í hendur samsærismanna,
sem svikul óvinaþjóð er búin að
kaupa til að eyðileggja oss. Áður en j un um það, að þegar ógæfan eða
stríð þetta byrjaði, hefði mönnum j voðinn stendur fyrir dyrum, þá
ekki komið slíkt til hugar og talið j muni enginn verða til þess, að veita
slíkt heilaspuna tóman. Menn hefðu oss lið.
farið að halda hrókaræður um ráð-
vendni, ærlegheit, skyldur og
bræðralag mannfélagsins, ef að
nokkur maður hefði látið í ljósi að
þetta gæti komið fyrir. En nú vit-
um vér betur. Vér erum búnir að
sjá það — þó að sorglegt sé — að
aflið er hið eina, semtreysta má, og
aflið er ónýtt, nema það sé albrynj-
að, alvopnað upp á nýjustu tízku á
láði og iegi, í lofti og í djúpi hafsins.
Og hvernig á svo að fara með hin-
ar barbarisku og viltu þjóðir, —
Búlgara, Tyrki, og þó ennfremur
við Austurríki og Þýzkaland? Þessi
núlifandi kynslóð hefir horft á,
hvernig hermannavaldið þýzka,
blóði drifið til axla, hefir pressað
blóð og tár af hinum saklausu
Belgum og lagt þrældómsokið á
herðar Serba þeirrra, sem þeir ekki
Það er að vísu mjög líklegt, að á
eftir stríði þessu komi iangur frið-
artími. — Jafnvel sigurvegararnir
verða uppgefnir á því og heimur all.
ur verður sjúkur og leiður á lykt-
inni af elfum blóðsins. Og öll lík-
indi eru til þess, að enginn þjóð-
skörungur eða stjórnvitringur muni
fyrst um sinn eggja þjóð eina eða
aðra til að brjóta undir sig aðrar
þjóðir og ræna löndum þeirra.—
Menn verða fúsir til að leggja deilu-
mál sín í gjörðardóm. En það er
ekki stöðugur varandi friður, held-
ur einn þáttur í sögu mannkynsins.
Og reyndin verður sú, að hið eina,
sem vér getum treyst að striðinu
loknu, er það, sem vér hefðum átt
að treysta á áður en stríðið byrjaði,
— að vera vel vopnaðir og vel undir-
búnir. Svo gætum vér líka styrkt
ar hafa nú sýnt að er engu minni
eða óverulegri, heldur miklu voða.
legri, en á hinum viltustu tímum
mannkynsins.
Niðurstaðan á öllu þessu verður
þá sú, að stígur framfaranna er
miklu brattari og erfiðari, en vér
hugðum, og l>að tekur mannkynið
miklu lengri tíma til að feta sig eft-
ir honum, en vér héldum. Varan-
legur friður verður eðlilega mark-
mið það, sem mannkynið, gjör-
breytt og endurfætt, á einhvern-
tima að ná, en í marga mannsaldra
enn og kynslóð fram af kynslóð
hlýtur það að verða draumur einn.
Þegar þú hagnýtir þér
kjörkanp sem anglýst
eru í Hkr., þá gettu um
það við afgreiðslumann
MARKET HOTEL
14« PrlBMM Street
& mótt markaðtnum
Bestu vínföng, vtndlar og aö-
hlyntng góö. Islenkur vettlnga-
maöur N. Halldórsson, lelöbein-
tr Islendingum.
P. O'CONNKL, Elgandl Wlnnlpeg
KAUPIÐ
Heimskringlu
Nýtt Kostaboð
Nýir kaupendur aö blaðinu, sem senda oss
fyrirfram eins árs andvirði blaðsins, oss að
kostnaðarlausu, mega velja um þRJÁR af
af eftirfylgjandi sögum í kaupbætir :
• *p 1 e M
oylvia
“Hin leyndardómsfullu skjöl’
“Dolores”
«• T r | r »*
Jon og Lara
‘ ‘Ættareinkennið’ ’
‘Bróðurdóttir amtmannsins”
• v / »»
Lara
‘Ljósvörðurinn”
‘Hver var hún?”
‘Forlagaleikurinn’
‘Kynjagull”
Sögusafn Heimskringlu
Eftirfarandi bækur eru til sölu á Heimskringlu, — meS-
an upplagið hrekkur. Sendar póstfrítt hvert sem er:
Sylvía ............................. $0.30
Bróðurdóttir amtmannsins .............. 0.30
Dolores ....--....................... 0.30
Hin leyndardómsfullu skjöl............. 0.40
Jón og Lára ........................... 0.40
ÆttareinkenniíS........ 0.30
Lára................................. 0.30
Ljósvörðurinn......................... 0.45
Hver var hún?.......................... 0.50
Forlagaleikurinn...................... 0.55
Kynjagull ........................... 0.35