Heimskringla - 04.01.1917, Side 8
BLS. 8
HEIMSK RINGLA
WINNIPEG, 4. JANCAR 1917
Ben. Rafnkelsson
CLARKLEIGH, MAN.,
selur alla laugardagana í des-
emher næstkomandi afgang-
inn af vörum úr buð sinni.
Fréttir úr bænum.
Mr. Sigurður Sigurðsson úr Win-
nipeg er nýkominn norðan frá Eif-
ros, Sask. þar sem hann hefur verið
nálægt ár við smíða vinnu. Lætur
prýðilega af öllu þar, mönnum og
öllu óskandi og sendir kunningjum
sínum kæra kveðju sína fyrir góða
viðkinningu og skemtilega vist sem
hann átti þar hjá þeim. Býst við
að hverfa norður aftur í þessum
mánuði.
Yér vildum benda mönnum á
hina ágætu ræðu Lárusar Guð-
mundssonar, sein hann fluttr á
fundi hinna íslenzku dætra Breta-
veidis. Ræðan er þrungin af eld-
heitum áhuga, brennandi þakklæti
og virðingu fyrir starfsemi og fram-
komu kvennanna ýngri og eldri í
“Jón Sigurðsson" félaginu. Vér vilj
um allir taka undir með Lárusi og
leggjaóskir vorrar og vonir og traust
við óskir hans og vonir. Fylgi
félagskonum þessum heill og ham-
ingja á komandi ári og láti stöðuga
blessun fylgja starfa þeirra. En
Lárus hafi heill og þökk fyrir orðin.
Ljóðmæli Kristins Stefánssonar
eru fyrir nokkru komin út, og hefir
eftirspurn verið all-mikil. En hvergi
meiri né verið almennari sala á þeim
en f Víðinsebygð í Nýja Islendi, þar
sem höf. bjó í síðustu ár. Yfir Nýja
Island er nú búið að selja hátt á
annað hundrað eintaka, og sýnir
það eitt með öðru, að íslendingar í
Nýja fslandi eru ekki sfztir landa
vorra hér vestra, er til lesturs nýti-
Iegra bóka kemur.
Ef eitthvað gengur að úrinu þínu,
þá er þér lang-bezt að senda það til
hans G. THOMAS. Hann er f Bar-
dals byggingunni og þú mátt trúa
því, að úrin kasta ellibelgnum f
höndunum á honum.
Hinn 19. des. sl. feldi yfirrétturinn
(l’he Court of Appeal) dóm í mál-
inu: Brynjóif?=on gegn Oddsson.
Mál þetta hefir verið fyrir dómstól-
unum í nærfelt tvö ár, og reis út af
samningi, er þeir Brynjólfsson og
Oddsson gjörðu milli sín um múr
og steinsmfði í hina miklu “apart-
ment bloek”, sem Oddsson heíir
bygt á Burnell St. og kallast:
‘Thelma Mansions”. Brynjólfsson
lögsótti Oddsson um rúmar 15,000
dala og vildi fá lögtak (lieu) f eign-
inni, en Oddsson mótmælti rétti
hans til lögtaks (lien) og gagnsótti
Brynjólfsson um 42,000 dali fyrir
vanhöld á stærð byggingarinnar.
Dómur undirréttarins var sá, að
gagnsóknarkrafa Oddssons yrði
eigi tekin til greina, að Brynjólfs-
son skyldi fá dómkröfu sfna að
fullu; en dómurinn taldi Brynjólfs-
son ekki hafa rétt til lögtaks (lien)
f eigninni. Báðir málspartar skutu
dómi þessum fram til áfrýjunar-
réttarins, Bi-ynjólfsson til þess að
fá rétt sinn til lögtaks viðurkend-
an; Oddsson til þess að fá dóm fyr-
ir gagnkröfu sinni. Afrýjunarrétt-
urinn dæmdi, að Brynjólfsson ætti
rétt til lögtaks í eigninni fyrir allri
fjárkröfu sinni, svo og málskostnað;
en gagnsóknarkrafa Oddssons var
ekki tekin til greina. Þeir Garland
og Anderson fóru með málið fyrir
Biynjólfsson, en fyrir Oddsson þelr
Rothwell, Johnson og Bergman.
$300.00 í líknarsjóð
Mr. Páll Reykdal, Lundar, ritari
hjálparnefndarinnar fyrir Belgiim
relief fund kom nýiega upp hingað
með $300.00 f beinhörðum peningum
og færði konsúl Belga til að styrkja
og hjálpa hinum hugrökku og kúg-
uðu og bjargar vana Belgum. Alt
þetta var arður af samkomu cuini
sem þeir héldu á Lundar. Þetta
er rausnarlega gjört af nýlendubú-
um. Fyrir fáum árum var þarna eyði
land og fhúarnir voru úliar og refir
ug skógardýr og kannske einn eða
tveir Indiánar eða kynblendingar á
hverjum 10-20 ferhyrndum mílum. en
nú eru þar blómlegar bygðir manna
mest af íslenzku kyni. Og þeir hafa
vissulega hjartað á réttum stað,
hvorki í hálsi uppi og ekki heldur í
buxum niðri. Þeir geta fundið til
með þeim sem bágt eiga og hjörtu
þcirra blæða af hörmungum Belga,
mannanna, sem hraktir eru af eign-
um og óðulum, of sóktir, rændir,
kvaldir og í þrældóm dregnir. Þeir
höfðu verið fjörugir að gefa Lundar-
búar á samkomunni. Þar var
kassasala, menn keyptu kassa með
einhverju af góðgæti í til að fá að
sitja hjá stúlkunum meðan snætt
var úr “boxinu” og fóru margir
kassarnir á 20 dali og þar um. Einn
maður gaf lambið óborið úr ánni
sinni, svo var farið að bjóða í lamb-
ið og loksins fékk hann það sjálfur
fyrir 20 dali eða meira. Þetta og
annað eins er sýnishorn hinna
beztu íslendinga, þeir eru viðkvæm.
ir, kærleiksrfkir og þola ekki annað
að sjá eða heyra. Þessvegna spara
þeir ekki skildingana þegar um
hjálp er að ræða. Því að gjafir
þessar koma allar frá hjarta og hug
þeli þeirra. Farnist þeim sem bezt
og lifi þeir sem lengst.
Spnrning.
Hvað þýðir orðið Þjóðerni
Sumir halda fram að það þýði að-
eins ætt og alt sem ættfræðilegt má
telja. Aðrir slá því föstu að þjóð
erni þýði einnig alla siðháttu þjóð
anna, og mætti þá segja að sameig-
inlegir siðir t.d.m. Vilhjálms þýzka-
iandskeisara við íslenzka siði og
venjur sýndi það, að hann væri af
íslenzku þjóðerni. Hvar rennur
strikið milli þessara tveggja stað
hæfinga?
Fáfróður.
SVARID kemur f þessu og næstu
blöðum. Flefri hafa spurt.
Bölblinda.
Ofan í seilast álas hyl
ekki’ eru hellu gæðin;
hugar veilu heyra til
heims ádeilu kvæðin.
Margir hafa myrka trú
moldum grafar handan;
leyst úr vafa sál er sú
sól þá stafar andann.
J.G.G.
KENNARA VANTAR
fyrir NorðurJStjörnu skóla No. 1226
frá 1. febri'iar 1917 til y. ágúst 1917
(og lengur, ef um semur). Umsækj
endur þurfa að hafa 2. eða 3. kenn-
arastig. Tilboðum, sem tilgreini æf-
ingu við kenslu, og kaup, sem ósk
að er eftir, verður veitt móttaka af
undirrituðum til 15. jan. 1917.
Stony Hill, Man., 23. des. 1916.
G. Johnson, Sei’y-Treas
RAVMHNn 9t«m«v»lir OK Smtloaml
n./* I munu Skll vlu<lu partar
tll sölu hjá
Daminion Sewing Machine Co.
Dept. 8. WINNIPEG.
KENNARA VANTAR
við Diana S. D. No. 1355 (Manitoba)
frá 1. februar næstk. fyrir fult skóla
ár eða 200 kensludaga. Umsækjandi
verður að hafa 3rd Class Profession-
la Certificate eða meir, og hafa haft
æfingu sem kennari. Grein frá kaupi
þvf, sem óskað er eftir og send um
sókn sem fyrst til undirritaðs.
Magnus Tait, Sec’y-Treas.,
Box 145, Antler, Sask.
Guðmundur Johnson
FLUTTUR
frá 500 Ross Street tfl 696 SARGENT AVENUE.
Vegna plássleysis í hinni nýju búS minni, fc*á verS eg a8
minka vöruforða minn a8 stórum mun, og til fc>esa að gjöra
fc>að á sem allra stytztum tíma, fc>á gef eg STÓRKOSTLEG-
AN AFSLÁTT á öllum vörum næstu daga. TO dæmis:
FYRIR JÓLIN: —
Lawn og Silk Kventreyjur á...... $1.25 til 3.00
Karlmanna Skyrtur, nýjustu tegundir á.75c til$1.50
Mikið úrval af Karlmanna Hálsbindum.
Flóka-Skór, hneptir og reimaðir, langt fyrir neðan heild-
söluverð.
Hvítar Stífaðar Skyrtur, drengja og karlmanna, — vana-
verð 75c til $1.50 ................. 50c
Nokkur pör af Slippers eftir, —notið tækifærið!
Þetta er að eins sýnishorn af prísum í búð minni. KomiS
ag sjáið fyrir ykkur sjálf. Hjálpið mér að Iosast viS vör-
umar, — og sparið ykkur peninga á sama tíma. MuniS
eftir að nefna Heimskringlu, fc>aS borgar sig.
GUÐM. JOHNSON,
Dry Goods Verzlun 696 Sargent Ave.
A. McKellar
The Farmers’ Market
241 Main Street. WINNIPEG
Bœndur? takið eftir!
Vér kaupum allar tegundir FUGLUM, EGG, SMJÖR o. s.
frv. Einnig SVÍN, lifandi eða dauð, sem vigta frá 80 til 300 pd.
hvert. Hæsta markaðsverð æfinlega borgar, og peningar send-
ir um hæl. .
Skriftið við velþektan og áreiðanlegan mann, og maðurinn
er: MacKELLAR.
Kaupið Te beint frá
w _ Vér verzlum með beztu tegund-
ir af TE, KAFFI, COCOA, BAK-
1111UUI ICI ING POWDER, EXTRACrS,
* JELLY POWDER o. s. frv. Vér
kaupum beint frá framleiðendum og spörum því alla milli-
liði og óþarfa kostnað. Getum því selt beztu vörur á rými-
legu verði.
Þetta félag er myndað og stjórnað
af afturkomnum hermönnum
Mönnunum, sem búnir eru að gjöra sitt í stríöi þessu, og
eru nú að reyna að byggja upp vcrzlun og ná f veiðskifta-
vini, — með þvf að selja ósvikna vöru með sanngjörnu verði.
FÓNIÐ OKKTTR 1 DAG um það sem yöur vanhagar um.
Menn vorir munu þá koma, og ef þér eruð ekki alveg ánægð-
ir, — þá skal peningunum skilað aftur tafarlaust.
RETURNED S0LDIERS TEA C0.
708 Boyd Building. Phone: Main 4042
TEES’ MUSIC STORE
206 Notre Dame Ave
Selur beztu tegundir af:
TySf'.',- WfcKyw Pianos og Organs
GRAMOPHONES o g RECORDS.
Agcntar fyrir CECILIAN PLAYER PIANOS Hin beztu í heimi.
J. M. TEES ráðsmaður um alt, er að hljóðfærum lýtur. Hefir starfað að því í Winnipeg í full 30 ár.
HÚÐIR OG SKINN.
Seljið ekki húðir og skinn
heima hjá yður; þér fáið ekki hæsta verð. Eg
borga frá 17—24c fyrir pd. eftir gæðum. Biðjið
um frían verðlista og shipping tags.
F. W. KUHN,
908 Ingersoll Street. Winnipeg, Man.
Reyndur og áreiðanlegur skraddari fyrir unga og gamla
Islendinga.
H. GUNN & CO.
NÝTÍSKU SKRADDARAR
öll nýjustu snið og nýjustu fataefni ávalt á reiðum höndum.
370 PORTAGE AVE. WINNIPEG, MAN.
Fluttur frá Logan Ave. Phone: Main 7404
&
HÆTTU AD VINNA
sa
Láttu hænurnar gjöra það. Þú ættír
að hugsa, láta heilann vinna. Til hvers
er það að vera að vinna þegar þú þarft þess ekki ? Ef þú átt lítinn
búgarð í British Colnmbia og stjórnar honum, þá geturðn grœtt stórfé
með því að vinna sárlítið.
J»egar eg er aÖ skrifa þessar línur hefi eg fyrir framan mig blaðið “Vancouver World” frá 15. nóv-
ember 1916, og er eg að lesa lið fyrir lið vöruverðskrána.
Ný egg eru 80 cent tylftin.
Til hvers ertu að vinna, þegar fc>ú getur látið hænurnar gjöra það fyrir þig?
Það er viðurkendur sannleikur, að það kostar ekki yfir 20 cent að framleiða eggjatylftina að með-
altali; ef þú selur þau fyrir 80 cent, þá græðirðu 60 cent á hverri tylft. Ef þú seldir að eins eina eggja-
grind á dag með 30 tylftum eggja, þá græddirðu $ 18.00 á hverjum degi.
Slátraðir fuglar seljast fyrir 35 cent pundið í Vancouver. Auk hænsnaræktar geturðu ræktað kart-
öflur. Þær seldust í Vancouver í nóvember í haust: $2.00 hundrað (100) pundin, eftir markaðsskýrsl-
um. Vér höfum hér hjá oss sönnun þess, að fólk ræktar yfir tíu tunnur á ekrunni. Það eru $400.00 af
ekrunni.
Auk hænsnaræktarinnar kostar eldiviður þig mjög lítið, og þú þarft enga leigu að borga, ef þú átt
einn þessara litlu búgarða, sem þú getur keypt fyrir $100.00 út í hönd og afganginn með vægum skil-
málum. Alls kostar búgarðurinn að eins $375.00.
Ef þú hugsar þér að ná í einn fcæssara litlu búgarða, þá þarft þú að gjöra fc>að tafarlaust. Það væri
betra fyrir þig að koma inn á skrifstofu vora og sjá þessar tölur þar með eigin augum og kaupa hænsna-
ræktar tímarit. Lærðu sjálfur.
Það þarf mjög litla peninga til að kaupa einn af þessum litlu búgörðum, og fc>eir eru í hjarta heil-
næms lands, þar sem er bezti jarðvegur. Þar er þéttbygt, talsímar, skólar, kyrkjur og búðir.. Komdu
inn á skrifstofu vora og fáðu frekari fræðslu. Vér erum þar frá kl. 9 f. h. til kl. 9 e. h.
Opið á kveldin og allar upplýsingar fúslega gefnar.
SCOTT, HILL & CO.
22 Canada Life Bldg., Cor. Portage Ave. and Main St.
Dept. H WINNIPEG.