Heimskringla - 11.01.1917, Side 5
WTNNÍPPEG, U JANI'-AR, 1917
REIMSKRINGLA
BIS. $
ast þegar eg sé blöðin.”
Þá sagði Major Gordon beim,
hvernig Canadamennirnir hefðu
haldið tanganum eða horninu við
Ypres mánuð eftir mánuð; löngu
eftir að skotgrafirnar þar voru,
orðnar morðgildra ein. Lét hann I
mikið yfir því, að 43 herdeildin I
(battalion) hefði unnið sér þarj
frægð og frama. Sagði hann, að)
aldrei myndi fyrnast hreystin og)
hugprýðin, sem Canadamennirnir
sýndu þar.
Lýsti hann svo ferð sinni til víg-
vallanna við Somme, og hvernig
Prakkar og Bretar liefðu smátt og
smátt náð yfirráðum yfir Þjóðverja
bæði stórskotaliðið, fótgönguliðið j
og þó einkum flugmannasveitirnar.
Rúmenar.
En einna fróðlegast þótti mönn-
um það, sem hann sagði um
Rúmena og ástand þeirra.
Hvað Rúmena snertir þá hefir
hver maður sína útskýringu um
það hvernig þar hafi til gengið.
Eyrst, býst eg við, að þýzkir hafi
ætlað að þar væri tækifæri að
vinna léttan en dýrðlegan sigur.
Herskarar Rúmena voru nýir og
óreyndir í stríðinu, og langtum
ver búnir að vopnum öllum en hin-
ir þýzku hermenn. Og þegar þýzk-
ir loks fóru móti þeim, þá höfðu
þeir langt um meira og betra stór-
skotalið, hrausta og vel æfða her-
menn og alt betra og fullkomnara
en Rúmenar.
Rúmenar hörfuðu undan fet fyr-
ir fet, og mflu eftir mílu, og börð-
ust um hvert fótmái, en pössuðu
það að iáta Þjóðverja aldrei ná
haldi á herflokkunum. En þýzkir
eru búnir að ná öllum vesturhluta
Rúmeniu (Wallaehi). En þó að
þeir næðu landinu, hafa þeir ekki
náð her Rúmena og ekki getað
eyðllagt hann.
1 öðru lagi vil eg geta þess, som
vér eiginlega megum ekki ræða op-
inberlega, nema að þvi leyti, sem
það er opinbert orðið fyrir öliurn
heimi. En það er þesífi óskiljanlegi
sljóleiki Rússa, að koma ekki
Rúmenum til hjálpar f tæka tíð.
En það vitum vér aliir, að ekki alls
fyrir löngu réðist byltingamaður
einn á þingi Rússa á skrifstofu-
stjórn Rússa heima og sakaði fjiiid.i
háttstandandi manna um það að
þeir væru keyptir með þýzku guíli.
Urðu Rússar þá svo æstir og reiðir,
að þeir ráku úr embættum alla
menn sem grunaðir voru. Þeir
hreinsuðu fyrir dyrum heima hjá
sér, og nú ætla eg að Rússar fyrst
fari að geta notið sín og lagt fram
alla sína feikna-krafta til stríðsins.
Og eg er viss um það að brezkir
stjórnmálamenn eru nú miklu ó-
hultari og óhræddari um Rússa en
nokkru sinni áður en strfðið byrj-
aði.
Hann skorar á menn að ha’.da nú
saman.
Nú er enginn sérstakur stjórn-
málaflokkur til orðinn á Englandi.
Æðri sem lægri standa nú saman á
sama pallinúm, og rís nú enginn
yfir annan, en allir vilja vinna að
hinu eina og sama marki. Og hið
sama vona eg að eigi sér stað hér í
Canada.--------án vér verðum eitt-
hvað að gjöra og það skjótlega.
Vér verðum aliir að vera með eín-
um huga. Alt Canada verður að
vera með einum huga, þá getum vér
fylgst saman til sigurs, vér getum
seilst cftir honum ef að vér gjörum
oss verðuga þess, að sigra. —
Or bréfi frá herbúðum
Shoreham Camp, England.
Á jóladaginn 1916.
Herra ritstjóri, M. J. Skaptason,
Winnipeg, Man.
Eg þakka þér kærlega fyrir hvað
þú ert hugulsamur að senda mér
Hcimskringlu, eg fæ hana nú altaf
einú sinni í viku, og þykir mér
mjög vænt um það, því þar sér
maður nokkurnveginn hvernig
ykkur líður heima í Canada.
Af okkur félögum er alt þolanlegt
að frétta. Við erum nú búnir að
vera hér á Englandi í fimm vikur
og hefir okkur liðið vel, allir búnir
að fá sex daga frí, sem kallað er
konungsfríið. Við skemtum okkur
ágætlega, ferðuðumst hér um Eng-
land, fjöldinn fór til London, sum-
ir til Skotlands, aðrir til Irlands
o.s.frv.
Eerðin hingað til Englands var
1 alla staði hin skemtilegasta; við
fengum ágætt sjóveður alla leið.
Að vísu veit piaður ekki mikið af
því þótt sjórinn ygli sig dálftið,
þegar maður er um borð á öðru
eins skipi og við vorum á. Það
skip var 11 hundruð fet á lengd
og stærðin öll eftir því; á því voru
sex dekk, og voru þau öll merkt
eftir stafrofi: a, b, c, d, e, f; við
vorum á c dekki. A og b dekk
eru höfð til þess að ganga um
þau sér til hreSsingar, og á b dekki
eru borðsalir miklir og stórir, sem
nærri má geta, j>vf skip þetta get-
ur flutt 10,000 menn. 1 þetta skifti
voru á því 7 herdeildir frá Canada,
auk skipverja, sem munu vera nær
1,000 að tölu. Okkar herdeild var
sú eina frá Manitoba, hinar voru
víðsvegar að frá Austur Canada.
— Skip þetta hið mikla heitir
Olympia.
Við fórum frá Halifax kl. 4 e. h.
]>ann 14. nóvember. Um kvöldið
var hverjum manni fengið sund-
belti og þau mátti maður ekki
taka af sér alla leið, það lá stór
sekt vð því. Til Liverpool ko.mum
við að kveldi þess 19. nóv., eftir 5
sólarhringa og 5 klukkutíma ferða-
lag, en á skipinu vorum við látnir
vera 3 dægur, áður en við vorum
tokn«- í land. Var okkur sagt að
það væri fyrir það að það væru
ekki vagnar til staðar, til þess að
flytja okkur frá Liverpool tii her-
búða þessara; vorum við 9 klukku-
tíma á leiðinni. Þessar járnbraut:
arlestir eru mjög svo hraðskreiðar,
en ekki vorum við neitt hrifnir af
fyrirkomulaginu á þeim. Vagnarn
ir eru smáir, taka 16 manns, og er
hver þcirra hóifaður í tvent svo að
ekki eru nema 8 menn í hverju
hóifi og er þar mjög þröngt fyrir
þessa 8 menn, sem ætlast er til að
séu í þeim.
Tíðarfar sfðan við komum hing-
að hefir verið mjög votviðrasamt,
svo að varla hefir komið dagur
sem ekki hefir rignt. Við erum
æfðir á hverjum degi, sunnudáfea
jafnt sem aðra daga. Þetta er
fyrsti frídagur okkar síðan við
fórum frá St. John.
Áður en margar vikur lfða býst
eg við að þið fréttir til okkar yfir
á Frakklandi einhversstaðar.
Tveir af þessum fáu Islendingum
sem eru í þessari herdeild hafa
fengið stöður sem yfirmenn
(Corporals), þeir eru Skafti V.
Eyford og Carl Þorsteinsson.
Eg man nú ekki eftir fleiru f
þetta skiftí, en sendi þér línu við
tækifæri. Eg bið Heimskringlu að
bera kæra kveðju frá okkur fs-
lendingum í 222. herdeildinni frá
Canada, til alira kunningja okkar
og vina.
Með vinsemd,
Jón Jónsson,
frá Piney, Man.
Pte John Johnson
Reg. No 292253, C. Company
222nd Batt., C.E.F.,
Army Post Office,
London, England.
Hatrið Þýzka.
Bláðið Daily Chronicle fékk eftir
fylgjandi bréf frá fregnrita sfnum
og Jeggur hann æru sína í veð að
sönn sé fregnin:
Það er samtal Hollendings og Þjóð
verja og skrifaði Hollendingurinn
upp samtalið undir eins og þeir
skildu.
Samtalið var á þessa leið:
“Já,’ sagði þjóðverjinn, “Við erum
sigraðir—sigraðir af sultinum, en
ekki með vopnum. Enginn maður
í heimi getur sagt að við séum með
vopnum sigraðir. Við höfum unn-
ið bardagana. En sulturinn hef-
ur yfirbugað okkur. Við sveltum
og það er England, England og
engin þjóð önnur, sem hefur gjört
það. Þessvegna skulum (við til
eilífSar hata England og hefna okk.
ur á Englandi.
Hið eina en stórvægilega glap-
ræði okkar var það, að fioti okkar
var ekki nógu stór. En við sverjum
þann dýrasta eiðinn, að eftir þrjú
ár skuli flotinn okkar verSa stærri
og voldugri, en floti Breta hefur
nokkurntíma verið eða getur nokk
urntíma orðið. Við sverjum þatin
dýrastan eiðinn — aldrei — aldrei
framar skuiu Bretar hafa þjóðirnar
undir vængjum sínum, eins Qg þeir
hafa þær nú. Þá verSa Bretar að
standa einir, eða því sem næst. Og
þá skulum við mynda þjóða-sam-
band svo voldugt og sterkt, að við
verðum vissir um að eyöileggja
Breta og troða þá og land þeirra
undir fótum vorum. Flotinn rwðst
á landið og herskarar óteljandi vaða
um landið. ÞaS er f þessum til-
gangi einum að við höfum sparað
flotann í stríði þessu. Að þremur
árum liðnum byrjum viS aftur slag-
inn og ráðumst á England og þá
skulum við eyðileggja alt landið.
ViS játum öllum kostum þeirra.
Á þessari stundu þegar friSurinn
er á allra vörum skulum við minn-
ast Englands. Við munum fyrst
blekkja þá með því að látast ekki
vilja þiggja þessa friðarkosti þeirra,
en við ætlum að ganga aS öllum
kostum þeirra. Við erum jafnvel
fiisir til þess að selja og svfkja Tyrki
og láta Rússa hafa Miklagarð. Við
ætlum að selja og svíkja Austur-
ríki 0g láta Rúmaníu hafa Trans
sylvaníu. Við ætíum að selja o<g
svfkja Ferdinand Bulgara konung
og látum hann standa einan upp!
móti óvinum sínum. Við látui'
Frakka hafa aftur Elsas o" l/0*l!
ringen. Við ætiurn jafnvel að frnm-
selja keisarann ef sð það verð
heimtað. Þá getum viS og hljótum
að fá friðinn.
En þegar búið er að undirskrifa
friðinn og binda hann svardögum,
þá tökum við til aftur aS tryggja
nýjan flota, og innan þriggja ára
getum við byrjað aftur, og þá—þá
skulum við verða hundrað sinnum
sterkari en nú.
Eftir sögu fregnritans var þetta
enginn ómerkur maður og eins mun
þessi hugsun ekki einstök vera
heldur útbreidd meSal allra auð-
manna baróna og fyrirmanna þjóð-
verja. Samvizka, eiðar og réttlæti
koma hér ekki til greina.
Ljóðmœli Þorskabíts.
Þeir útsölumenn að þessari ljóða-
bók, sem ekki hafa þegar sent mér
andvirði seldra bóka, eru beðnir að
gjöra það íyrir 15. desember næstk.
— Einnig eru allir beðnir að senda
mér til baka aliar óscldar bækur,
sem þeir liafa.
S. D. B. STEPHANSON,
Box 3171, Winnipeg.
¥-------------------------------------------*
KRISTINN STEFÁNSSON
Kvatt nú hefir kaldan heim
kvæðamaður slyngur.
Þekti skáldsins hróðrar hreim
hver einn Islendingur.
(2-10-’16) J.A.J.L.
JON HRAFNDAL JOHNSON
Meinleg örlög margan hrjá
mann og ræna dögum.
THOMPSON COMMISSION CO.
*
316-18-20 Hargrave Street
Winnipeg, Man.
Vér borgum eftirfylgjandi vöruverð þessa viku:—
.Tárna-rusl, 100 pund ............................... 40c
No. 1 saltaðar húðir, pundið .........................19c
Hest-liúðir, hver .............................|3.00—$5.00
Hérar (drawn), hver ................................. 25c
Hérar (dressed), hver .............................. 30c
Smáir hérar, tylftin frá .........................30c—60c
No. 1 úlfa skinn, hvert .......................$5.00—$6.00
Hænsni, pundið ...................................... 14e
Stórar hænur, pundið ................................ 14e
Andir og gæsir, pundið ................)..............15c
Boots and Shoes (Rubber), pundið ...................ý%
Auto tires, pundið ..........................j...........4*4
Kopar vír, pundið ....................................I8c
Bras-rusl (red), pundið ..............................I5c
Vér borgum hæsta markaðsverð fyrir allar tegundir loð-
skinna.
Svfn, yfir 100 pund, pundið ......................13c
Svín, ekki 100 pund, pundið ..:..............i. .....12c
Svín (rough or stags), pundið ...................... llc
Vér borgum flutningsgjald á öllum húðum, rubber rusli
og málmi, ef sent er 300 pund eða meira. Borgar sig bezt,
að tína sem mest saman og senda sem mest í einu.
Sá var löngum cndir á
íslendinga sögum.
Þ. E.
I hópum stórum Heljar til
halda menn nú óðum.
Fólki gengur fátt í vil;
fækkar vinum góðum.
Þar á meðal þjóðin vor
þétt nú tapar mönnum,
sem oft gengu gagnleg spor
gegnum líf—í önnum.
Aldni vinur, emn varst þú
af þeim nýtu sveinum,
sem vér margir syrgjum nú
sálar inst í leynum.
Engum hlífir Ægir flár;
engra bæn hann skeytir.
lslendingum svöðu sár
svikull oft hann veitir.
jm
Iðjumaður einstakur
alla tíma varstu
Ei samt þóttir auðugúr,
upp því litið skarstu.
Flest í heimi öfugt er;
ei sín fjöldinn nýtur:
Sáir einn en annar sker
upp—og gróðann hlýtur
Gjörvileiki og gæfa fer
götur stundum tyennar.
Fæstum annars auðnast hér
ávalt fylgi hennar.
» , , :
Um flest, sem snerti feðra-grund
fróður varstu’ og ræðinn.
Geymdir þú, með glaðri lund,
gömlu’ og nýju fræðin.
m' .,
Einlægt var þín örugg trú
á Islands framtíð góða.
Og margt að heiman hafðir þú
hugðnæmt til að bjóða.
Ötull sonur æ þú varst
okkar gömlu móður.
Svip og hjarta hennar barst:
hreinskilinn og góður.
Sem bros-hýr, frjáls og falslaus snót
fagnar sveini blíðum,
svo börnum þú og blómum mót’
breiddir faðminn tíðum.
Engil-blíða brosið þitt
og blessuð hjartans gæðin,
glöddu marg-oft geðið mitt,
sem góð-skáldanna kvæðin.
Aldrei reiðan eg þig sá
öllu lífs- í -róti.
Þín æ heið og hýr var brá
hvað sem gekk á móti.
Einkar vinsæll varstu því,
vildir að öllu hlúa.—
Glöðu’ og hreinn geði í
gæði ótal búa.
“Islendingur” þakkar þér
það, sem vanstu honum.
þér dýra kveðju’; eg dapur ber,
frá dætrum hans og sonum.
Og góða kynning þakka’ eg þér
þrjá í ára tugi.—
Aldrei ferðu’ úr minni mér
mikli ofur-hugi.
(Sept. 1916) J. Ásgeir J. Lirdal
HtÐIR OG SKINN.
Seljið ekki húðir og skinn heima lijá yður; þér fáið ekki hæsta verð. Eg borga frá 17—24c fyrir pd. eftir gæðum. Biðjið um frían verðlista og shipping tags. F. W. KUHN, 908 Ingersoll Street. Winnipeg, Man.
A. McKeHar
The Farmers’ Market
241 Main Street. WINNIPEG
Bœndur, takið eftir!
Yér kaupum allar tegundir FUGLUM, EGG, SMJÖR o, s.
frv. Einnig SVÍN, lifandi eða dauð, sem vigta frá 80 til 300 pd.
hvert. Hæsta markaðsverð æfinlega borgar, og peningar send-
ir um hæl.
Skriftið við velþektan og áreiðanlegan mann, og maðurinn
er: MacKELLAR.
♦ ♦
n
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
H
tt
U
n
1
♦t
§
t-f
f ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦ ♦
♦♦
♦ t
♦ ♦
♦ t
♦ ♦
♦ ♦
♦ t
♦ ♦
♦ ♦
n
♦♦
♦ ♦
t+
♦ ♦
♦ ♦
♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■*♦♦♦ ♦♦ ♦-♦♦♦♦♦♦-♦♦♦♦♦♦♦ 4 4 4 4 4 ♦♦♦♦♦♦♦♦♦ •
V;ér kennum
PITM AN
Hraðritun.
I vér í:ennum
Success | ?,R. pc
! ;K O. IÍUn.
BUSINESS C0LLF.GE
Horninu á Portage og Edmonton
Winnipeg
Man.
DEILDIR AF SKÓLANUM FRÁ HAFI TÍL IIAFS.
Tækifæri
Það er stöðug eftirspurn
eftir fólki, sem útskrifas!
hefir frá SUCCESS skólan-
um. Hundruð af bókhöldur-
um. Hraðriturum, Skrif-
stofustjórum og Skrifurum
geta nú fengið stöður. —
Byrjið í dag að undirbúa
yður. Takið tækifærin, sem
berast upp í hendur yðar.
Leggið fé í mentun, — ef
þér gjörið það, þá borgar
það svo margfalda rentu, og
vandamenn yðar og vinir
verða stoltir af yður. —
SOCCESS skólinn er tilbú-
inn að undirbúa yður fyrir
tækifærin.
SKRIFIÐ YÐUR
STRAX I DAGI
INN
YfirburSir
Beztu meðmæiin eru til-
trú fólksins. Það skrifa sig
árlega fleiri stúdentar inn í
SUCCESS, en í alla aðra
verzlunar skóla Winnipeg
borgar samantalda. Skóli
vor er æfinlega á undan öll-
um öðrum í nýjustu hug-
myndum og tækjum, sem
kenslunni við kemur. “Bil-
legir” og “Prívat” skólar
eru “dýrir” á hvaða “prís”
sem cr. Allar vorar kenslu-
greinar eru kendar af sér-
íræðingum. Húspláss og á-
höld öll er margfalt bctra
en á öðrum skólum. Stund-
aðu nám á SUCCESS skól-
anuin. Hann hefir gjört —
success í starfi sínu
frá byrjun. — SUCCESS
vinnur.
n
n
♦♦
♦♦
♦♦
::
n
♦♦
n
♦♦
♦♦
♦4
♦ I
♦ <
♦ i
* i
* i
♦ •<
SUCCESS skólinn heldur hæstu verðlaunum fyrir vélrituw
í öllu Canada.
SKRIFIÐ YÐUR INN HVENÆR SEM ER.
Skrifiö eftir skólaskrá vorri.
Success Husiness College, I td.
F. G. GARBUTT, Pres.
I). F. FERGUSON. Prin -
» ♦ -4 4- * ♦ * "