Heimskringla - 08.02.1917, Qupperneq 4
•‘.I
liJiiMSKBINGLA
WINNIPEG, 8. FEBRÚAR, 1917
HEIMSKTJINGLA
(Stofnun 1886)
Kemur út á hverjum Fimtudegl.
tttgefendur og eigendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
VertJ blatJslns í Canada og Bandaríkjun-
um $2.00 um árit5 (fyrirfram borgah). Sent
tll lslands $2.00 (fyrirfram borgatJ).
Allar borganir sendist rátJsmanni blatS-
■lns. Póst eba banka ávísanir stýllst til The
Vlking Press, Ltd.
M. J. SKAPTASON, Ritstjóri
S. D. B. STEPHANSON, ráósmaóur.
Skrifstofa:
729 SHERBROOKE 8TREET., WINNIPEG.
P.O. Box 3171 TalHfml Garry 4110
HEIMSKRINGLA er kærkominn
gestur íslenzku hermönnun-
um. Vér sendum hana til vina yð-
ar hvar sem er í Evrópu, á hverri
viku, fyrir að eins 75c í 6 mánuÖi
eða $1.50 í 12 mánuði
Box 3171. THE VIKING PRESS Ltd
Fjörbrot Þjóðverja.
—0—
....Loksins kemur það sem heimurinn allur hef-
ur búist við, kviðan sem menn máttu sjá fyrir
að fyrri eða síðar myndi fyrir koma. Þegar
þýzkir voru stöðvaðir af Bretum og Frökkum
suðvestur af Paris, og hraktir aftur yfir ána
Marne og enn lengra norður yfir Aisne. Þeg-
ar þeir fóru að spúa eitri og Iogandi eldi á
Frakkland, þegar þeir hröktu Serba úr föður-
landi sínu og drápu menn og konur og börn,
þegar Rússar stöðvuðu þá í hinum miklu
flóum þegar þeir brutust yfir Rúmeníu en
voru stöðvaðir við Sereth. Þetta var alt
svo eðlilegt. Hvar sem menn voru óvið-
búnir að mæta þeim eins og Frakkar og Bret-
ar í fyrstunni sigruðu þeir, þar sem þjóðirnar
voru fátækar, fámennar og illa vopnaðar eins
og Belgar og Serbar og Rúmenar þá unnu þeir
sigur og drápu fólkið, brendu borgirnar, stálu
eignunum og nú síðast fluttu fölkið í þræl-
dóm. Ofstopinn var svo yfirgnæfandi, sam-
vizkan algjörlega engin, sjálfselskan svo tak-
markalaus, eigingirnin svo óseðjandi. Þeir
voru sem guðir úr neðri heimum er áttu öll
löndin, allan heiminn og gátu farið með þess-
ar óæðri verur eins og þeir vildu. Við
grimdarverkin hrökk þeim aldrei tár af hvarmi
því að þá var gleðin mest þegar grátstunur
og eymdarvein aumingjanna, sem þeir kvöldu
létu þeim í augum. Ekki einungis Fvröpa
öll heldur allur heimur átti að sigrast — sig-
rast í Guðs nafni, rænast í Guðs nafni. Hvað
áttu þessi hundspott rétt á sér hugsuðu þeir,
þessi hundspott, sem dirfðust að rísa á móti
Guðs útvöldu er þeir komu að taka eigur
þeirra, svívirða konur þeirra, drepa og eyði-
leggja, brenna og myrða börn og stúlkur ung-
ar. Þessi skríll átti engan rétt á sér. Hinir
útvöidu áttu einir alt þetta og gátu tekið sitt
hvenær sem þeir vildu, drepið rusl þetta hve-
nær sem þeir vildu. Af þessum sigurvinn-
ingum sínum yfir óviðbúnum eða illi útbúnum
og skotfæralitlum þjóðum fyltust þeir ofsa
drambi. Þeir gátu sigrað allan heim —
nema Bretana.
» Bretar sátu þarna út á eyjuttni ög þeír kom-
ust ekki yfir pollinn. Þeir fóru að hata þá,
þjóðin öll fór að hata og hatrið óx með hverj-
um degi. Hvílík himingleði hefði það ekki
verið að geta troðið á Bretanum, slitið hann
sundur lim fyrir lim, heyrt sætan himneskan
pminn af kvalaópum hans og neyðarveinum,
troðið stálbryddum skónum á höfuð honum
og séð blóðblandmn heilann spýtast út undan
göddunum. Marga tugi ára voru þeir búnir
að leggja það niður hvað þeir skyldu gjöra
þegar þeir kæmu hervæddir til Englands. •—
Börnunum ungu voru þeir búnir að kenna svo
vel Iandafræði að þau þektu hvern hól og
hæð og læki og götur allar bæja í milli. Þeir
ætluðu ekki að villast þegar þangað kæmi.
En nú dregst það og Bretinn bölvaður,
bannar þeim aðflutninga alla. Og sigur-
vinningar eru á þrotum. Verdun var þeim
kjafshögg svo að tennur brotnuðu í höfði,
Rússinn var þeim argasta tröll, ítalir voru
þeim erfiðir og Frakkar ósigrandi. Og Bret-
inn var að verða þeim erfiðari og erfiðari,
allar nýlendurnar stóðu með Bretum sem einn
maður. Fáeinir Canadamenn stöðvuðu þá
við Ypres. Þeir brutu hergarða þeirra hvað
eftir annað og loks sáu þeir að sigurinn var
óhugsandi.
Ófarirnar blöstu nú við þeim, sulturinn var
farinn að éta úr þeim merginn. Ógnanirnar,
manndrápin og morðin voru hætt að skelfa
menn. Menn voru fyrir löngu farnir að
skoða þá sem óarga dýr, bandóð og trylt af
grimd og morðlöngun. Þeir voru búnir fyrir
löngu að hugsa sér hvað gjöra skyldi þegar í
hið harðasta færi þá var að kasta öllum
böndum siðgæðis og menningar og drepa,
drepa svo að blóðelfurnar rynnu um heim all-
an, drepa alla sem hægt væri þó að þeir væru
alveg saklausir, alveg vopnlausir, þó að börn
væru ung á móðurbrjósti. Hálft þriðja ár
hafa þeir verið að búa þetta út núna því að
alt er fyrirhugað og vandlega hugsað hjá |
Þjóðverjum og nú er sagt að þeir hafi 300— j
300 fyrirtaks neðansjávarbáta, sem geta jafn-
vel sökt herskipum þó að þeir séu sjálfir í
kafi, sumir segja að þeir hafi 800 nýja neð- |
ansjávarbáta.
Mörgum manni hryllir hugur við þessu, nema
Bretum og Frökkum, þeir hafa einlægt átt von
á þessu. Þetta er mark um að þeir örvænti
um sigur, en vita að þeir eru búnir að gjöra j
svo illa fyrir sér, að þeir eigi litla vægð í j
vændum, en grimdin nóg og hatrið óslökk- j
vandi.
Það er konungsvaldið, hervaldið og höfð- j
ingja valdið, sem nú er að berjast fyrir yfir-
ráðum á seinast hólmanum. Vilhjálmur veit
að hans ætt er frá völdum ef að hann tapar,
aðallinn þýzki og höfðingjarnir vita að só-
síalistar muni taka á þeim ómjúkum höndum
ef að þeir bíði ósigur. Og nú ætla þeir að
hræða heim allan og sésstaklega Bandaríkin
til að ganga á milli og útvega þeim frið. Vér
óskum ekki að Bandaríkin fari í nokkurt stríð,
nema að verja strandir sínar. En friðar
ættu þau ekki að biðja morðvörgunum og
ræningjunum, þá er virðing þeirra farin á
komandi tímum. Og fólkið í Bandaríkjun-
um vill það ekki, vér erum sannfærðir um
það. Þjóðverjar verða að standa eður falla
á sínum eigin gjörðum.
-----o-----
HoIIand og Danmörk.
Það er vitaskuld að þýzkir geta gjört eitt
og annað ennþá. Þeir geta barist út þetta
árið að líkindum. Þeir geta tekið Holland,
og nú er sagt að þeir séu að safna liði á
landamærum þar. Þeir geta tekið þar kvik-
fénað allan og kormat þann, sem til er í
landinu og lifað á því einn eða tvo mánuði
kanske þrjá.
Þeir geta svo auðveldlega tekið Danmörku
á tveimur eða þremur dögum og lifað á byrgð-
um Dana um tíma. En ef að þeir skyldu nú
taka Danmörku og halda ríkinu, eða lama
svo flota Breta alténd í bráð að þeir gætu
farið að sigla um sjóinn. Þetta er ekki
óhugsandi. En hvað yrði þá um gamla
Island ? Vafalaust þættust þýzkir eiga það,
þegar þeir væru búnir að taka Danmörku.
Þeir færu norður þangað óðara og tækju
landið, og fengju þeir þá vilja sinn Islend-
ingarnir, sem hlyntir eru þýzkum en hata
Breta. Hvert mundi þá nokkur þjóð hendi
lyfta til að losa þá undan Þjóðverjum?—
Engin, ef þýzkir vinna sigur. Eða ekki
þekkjum vér hana þegar Bretar eru frá. —
Væri það óskemtilegur dagur, að þurfa að
lýsa því, að þýzkir hefðu ísland herskyldi
tekið.
----o-----
Kappkeyrzlan.
Loksins er hún búin þessi kappkeyrsla
eða kapphlaup á sjötta hundrað mílur og þess-
ir búnir að vinna sem getið er um á öðrum
stað í blaðinu. Landarnir voru teknir á
lestina þegar þeir hættu og voru komnir á
undan til St. Paul.
Það skyldi enginn maður hugsa sér að
þetta hafi verið létt verk eða barnaleikur.
Þetta er hið lengsta kapphlaup sem nokkurn
tíma hefur reynt verið í heimi. Tíðin var
hin grimmasta sem hér hefur verið í 20 ár,
einlægt frost og snjóar og skaflar sem brjót-
ast þurfti í gegnum og það ekki á nokkrum
mílum aðeins heldur dag eftir dag á 522
mílum. Engir væsklar, engir hálfþroskaðir
menn, engir óharðnaðir unglingar þurfa að
reyna þetta, engin þrekmenni með þungum
líkama. Til þess að sigra þessa örðugleika
þarf hraustan og marghertan líkama og vöðva
stálslegið þrek og viljakraft, sem aldrei lætur
bugast, þó að vonir allar séu á reyki eða
virðast á þrotum vera, og þessi vilji að halda
út til sigurs verður að vera óbilandi, hvað sem
á dynur. Það er sálin, sem verður að halda
líkamanum uppi og getur oft haldið honum
uppi, þó að kraftar líkamans séu á þrotum.
Og enn er eitt, menn verða að leggja þetta
vel niður fyrir sér áður en byrjað er, svo
að menn noti alla möguleika, forðist alla
óþarfa áreynzlu, komist hverja míluna, hverja
dagleiðina með því, að eyða sem allra minst
kröftum sínum, sem mögulegt er, en komast
þó svo langt áfram sem hægt er.
Landarnir sem tóku þátt í kappkeyrzlunni
tóku fyrst örðugasta verkið að brjóta leiðina
á undan, meiri hluta leiðarinnar, og óefað
allan versta hluta hennar, hinir áttu svo miklu
léttara að fara í slóð þeirra. Þetta veit j
hver sá, sem nokkurn tíma hefur brotið leið
í snjónum og ófærð hér í landi eða heima á
Islandi. Þeir gerðu það snildariega, og 1
það er ætlun vor að ekki einn maður af I
hverjum tíu þúsund Islendingum hér í Amer- j
íku hefði gjört það betur eða dugað eins vel. j
Og þessir sem sigurinn unnu mega þakka þeim
það Íslendingunum að þeir unnu sigurinn. j
Þeir hefðu ekki komið á þeim tíma, sem þeir
komu og að líkindum ekki komið fyrri en
hátíðin var um garð gengin í St. Paul, ef að
landarmr hefðu ekki brotið brautma á undan,
nærri alla leiðina, eða meiri hluta hennar.
En með þessu áframhaldi hafa landarnir of-
þreytt sig og hunda, og hafa máske ekki ver-
ið nógu hraustir að heilsu að þola þetta. Vér
hefðum gjarnan kosið að þeir hefðu sigrað,
en því verður nú að taka sem er, og þó að
þeir ynnu ekki þá verða þeir taldir í flokki
hinna frægustu hlaupamanna álfu þessarar,
og landinn hefur þó alla daga heiður fyrir
að hafa haft jafnmarga menn í þraut þessari.
En þegar vér minnumst á kappkeyrslu eða
hlaup þessi þá verðum vér að minnast manns-
ins sem einn var og enginn vildi við kannast,
Fred Hartman’s, efnafræðingsins frá Boston.
Hann var stundum á eftir svo Iangt, að allir
héldu hann dottinn úr sögunni. Einn hund-
urinn drapst, annan varð hann stundum að
keyra. Svo vissi enginn fyrri en hann var
kominn á undan öllum, svo viltist hann að
nóttu til og varð á eftir einar I 7 mílur. Svo
er hann aftur kominn á undan, og hefði hann
ekki verið þeim samnátta hinum sem seinast
unnu, þá hefði hann líklega komið á undan
þeim og var þó sagður bilaður í fæti og
kalin á andliti, höndum og fótum. Eg hlýt
að segja að maðurinn sá á virðingu skilið
fyrir þrek og þrautseigju, þó hann' næði ekki
verðlaununum.
------o-----
Loksins hreif brýningin.
Bandaríkin svara nú keisaranum, Wilson
sendir Þýzkalands ráðherran heim og með
honum sveit mikla. Stríð er þó ekki komið
enn þá. En af greinunum í öllum blöðum
sem vér höfum séð er eins og létt hafi þungu
fargi af herðum Bandaríkjamanna. Jafnve
Bryan losnar um tungu og leggur hann orð í
belg og vill berjast meðan nokkur maður
stendur uppi ef að ráðist er á Bandríkin. En
ekki vill hann senda her til Evrópu að berjast
þar, og má vera að hann sé þar réttur nokkuð
Það er sem allir þingmenn, allir helztu menn
Bandaríkjanna séu nú á einu máli af hvaða
flokki, sem þeir eru, að standa með Wilson
°g fylgja honum hvað sem hann gerir. Það
er eins og loftið hafi hreinsast, þar sem skýjin
hengu áður þung í lofti og byrgðu sól og
heiðan himin, er nú heiðskýrt veður og sézt
á fjallatmda og um sveitir fagrar. Vér er-
um þó ekki að óska að Bandaríkin fari í stríð
þetta, en oss hefur verið hlýtt til þeirra og vér
erum Bandarikjaborgari og það gleður oss
meira en vér getum í ljósi látið, að Banda-
ríkin reisi kambinn við þessa ósvífni Vilhjálms
°g vdji ekki Iata hann leika við sig lengur.
Stríðið mikla.
Nú eru reynslu dagar dimmir,
drúpir hnípin sérhver þjóð;
sveima um heiminn gammar grimmir
geystir í tryltum jötunmóð.
Grúfir Helja hauðri yfir,
Hildi jafnan nástæð er,
æstar systur alt sem lifir
ætla nú að helga sér. r
Jafnt á lofti, grund sem græði,
grimmir féndur vegast á,
þvílíkt voða ógnar æði
enginn heyrði fyr né sá.
Rauðar dynja unda elfur £
ægileg við Mirtar sköll,
hamrar dynja, hauðrið skelfur,
hræðast álfar, blikna tröll.
Húnar öllum vörgum verri,
vaða fram í djöfulmóð,
ódæðir í íþrótt hverri
æfðari virðast menskri þjóð.
Alskyns fremja athöfn stirða
árar þeir með grimdar hug;
ræna, brenna, meiða, myrða,
mannúð allri vísa á bug.
Herra þeirra hörmung veldur,
hatari Guðs og náungans,
saklaus margur sárt hans geldur,
seldur valdi harðstjórans.
Tézt hinn blakki sonur synda
sönnu firtur eðli manns
menn um sárt því meiga binda
margir fyrir gjörðir hans.
Nær mun hjaðna haturs Iogi,
heill sem allri bægir frá?
Nær mun friðar-bjartur-bogi
blika þjóðlífs himni á. ■
Þú sem ræður Iandi og Jýði,
Ijóssins faðir himnum á,
láttu öllu lokið stríði,
láttu kærleik sigri ná.
S. J. Jóhannesson.
beint frá
Importers
Vér verzlum með beztu teg-
undir af TE. KAFFI, COCOA
BAKING POWDER, EX-
TRACTS, JELLY POWD-
ER Ojs.fiv. Vér kaupum
beint frá framleiðendum og
spörum bvíalla milliliði og óþarfa kostnað. Getum því selt
beztu vörur á rýmilegu verði.
Þetta félag er myndað og stjórnað
af afturkomnum hermönnum
Mönnunum, sem búnir eru að gjöra sitt í stríði þessu, og
eru i»ú að reyna að byggja upp verzlun og ná í veiðskifta-
vini, — með því að selja ósvikna vöru með sanngjörnu verði.
FÓNIÐ OKKUR í DAG um það sem yður vanhagar um.
Menn vorir munu þá koma, og ef þér eruð ekki alveg ánægð-
ir, — þá skal peningunum skilað aftur tafarlaust.
RETURNED S0LDIERS TEA C0.
708 Boyd Building. Phone: Main 4042
*
Galt rannsóknin
Rannsóknarnefndin sem kend er
við Galt dómara, og lengi er búin
að sitja við rannsókn akuryrkju-
skólans sakar Hon. Robert Rogers
um að hafa stolið eða rænt stjórn
íylkisins svo nemi $8,700.00 til póli-
tízkra mála eða í pólitísku augna-
miði um Dominion kosningarnar
1911. Er það nú borið á hann aö
hann sé að reyna að ljúga sig út
úr sökum þessum, sbr. Free Press
31 jan. kvöldblaðið.
Þegar Hon. Robert Rogers var
sýnd skýrsla Galt nefndarinnar í
Ottawa .30. janúar er sagt hann hafi
lesið hana brosandi.
En svar lians er þetta:
Augsýnilega svíður Commissioner
Galt það, er eg í einlægni sagði blátt
áfram um aístöðu hans sem leigu-
tól Norris-stjórnarinnar, sem nú cr
að safna skoteldum til kosninga-
kviðu Grittanna. En að þvf er eg
bezt fæ séð, er þetta yfirlit yfir
skýrzlu Commissioner Galts, er
hann hefur gefið húsbændum «ín-
um ckki rétt, eða þá að Commission-
er Galt hefur af ásettu ráði og prett-
vísum huga rangfært sannanirnar
og fært úr lagi það sem gjörðist.
En málið sem um er að ræða
stendur þannig, að Carter félagið
hafði gjört tilboð í að byggja stjórn-
arbyggingu (administration build-
ing) akuryrkjuskólans, fyrir rúm
200,000 dollara og var búið að fá
samning þenna. En bygginga-
meistari Hooper fullyrti að ]>eir
hlytu að tapa 30—40 þúsundum
á samning þessum. Litlu seinna
gáfum vér út tilboð að byggja afl-
stöðina (power house). Carter fé-
lagið bauðst til að byggja hana fyrir
60 þúsund doliara, en næst lægsta
boð var 72,000 og lægsta boð í
Wrnnipeg var $75.000 dollarar. —
Þegar tilboðin voru opnuð sagði eg
fulltrúum mínum (deputy) að taka
lægsta hoð. En strax á eftir kom
byggingameistari fylkisins til mín
og mótmælti því að láta Cartcr-fé-
lagið fá samning þenna fyrir $60,000,
því að l>að væri ómögulegt að bygg.
ja afistöðina fyrir þetta.
Og þegar hann var búinn að fara
yfir útreikninga alla, l>á komst
hann að þeirri niðurstöðu, að ó-
mögulegt væri að byggja aflstöðina
fyrir minna en 68 þúsund og nokk-
ur hundruð dollara, eða 8 þúsund
dollurum meiri en Carter-féla^ið
bauðst til að byggja liana fyrir.
En Carter væri að tapa svo miklu
á hinni byggingunni sem áður var
getið, að það væri ekki fylkinu til
hagnaðar eða sóma, að láta hann
hafa þeissa seinni byggingu fyrir
þetta verð.
Kveðst svo Hon. Rohert Rogers
hafa talað við Carter í fóni og sagt
honum orð byggingameistarans. —
Meira kveðst Hon. Robert Rogers
ekki vita um þetta.
Síðan segir Hon. Robcrt Rodgers:
Norris stjórnin hefur eytt hund-
ruðum þúsunda dollara til þess, að
rannsaka gjörðir mínar sem ráðgjafi
í Manitoba í 12 ár, en fann ])ó ekk-
ert sem hún gæti hengt hatt sinn á,
og lit úr vandræðum taka beir Car-
ter samningana og reyna að um-
snúa þeim með því, að ónýta eður
fela áætlanir Hoopers bygginga-
meistara um kostnað aflstöðvarinn-
ar, sem hann hafði reiknað út að
myndi kosta 75,00 dollara. Einnig
hafa þeir tekið burtu (removed from
the filos) áætlun hans um allan
kostnaðinn er hann hafði gjört eftir
að tilboðin öil voru inn komin. En
þær áætlanir sýndu að það var al-
veg ómögulegt að byggja aflstöðina
fyrir minna en 68 þúsund og nokk-
ur hundruð dollara. Sannanirnar
í höndum Galt nefndarinnar sýna
þetta alvag tvímælalaust.
-----------------------------------*-
En hvað snertir tillag Mr. Carters
til konser\Tatívu nefndarinnar £
Dominion kosningunum 1911 þá
kemur það fyrst og fremst ekkert
við fylkismólum. Og svo sór Mr.
Carter það fyrir rétti að eg aldrei
hefði við hann talað eða minst á
kosningatillag og hið saina har eg
sjálfur fram, þetta væri álíka og
Commissioner Galt segði. að- fyrir
það að félagið Tupper, Galt og
Tupper hafi lagt í kosningasjóð, þá
héldi hann nú stöðu sirmi sem
hann nú hefur og fékk fyrir með-
mæli mín.
Grain Growers gefa út nýja
verðskrá.
Á næstu fáum dögum verða marg-
ar þúsundir bænda í Saskjitehewan,.
Manitoba og Alberta, að lesa Grain
Growers nýjustu verðskrá, fyrir árið-
1917. Er hún um hundrað blað-
sfður og inniheklur öll þau verkfæri
og fieira sem landhúnaðurinn þarf-
nast — rétt nýlega prentuð. Yerð-
skrá þessi er nákvæmari og betri en
aðrar áður útgefnar verðskrár þessa
félags, í fyrra og árið þar á undan.
Sérstakt atriði í þassa árs verð-
skrá er að hún gefur mismunandi
vöruverð eftir þvi ‘hvert varan er
send. — F.O.B., Winnipeg, F.O.B.
Regina, F.O.B. Calgary. — Einnig
eru fimm síður um burðargjald og
flutnings-kostnað, svo bóndinn geú
ur auðveldlega skilið hvað hlutur-
inn muni kosta til hans kominn.
Fyrst eru upptaldir plógar —
margar hlaðsfður af þeim — sem
sýna allar tegundir plóga, sem not-
aðir eru í Vestur-Canada. Næst
koma herfi, svo sáðvéiar, ræktunar
vélar, heyvinnu vélar, þreBki-vélar,
mölunar vélar, fanning millur, gas
katlar (gas engines) áburðarfeiti og
olfa, vagnar, létti-kerrur og sleðar,.
aktýgi, pumpur, rjómaskilvindur,.
þvotta vélar, sauma maskínur, girð-
inga vír, — í stuttu sagt er alt upp
talið, sem hóndinn þarfnast.
Þetta verzlunar félag bænda hefir
stofnsett mikla verzlun. Bændur
í vesturlandinu hafa í það gengið,
um 18,000 hluthafendur, og lagt fram
sinn skerf f þessari tilraun til sam-
vinnu. Síðasta ár fjallaði félagið
um 48,000,000 bushels af korni fyrir
um ellefu þúsund viðskifta vini. —
Færði þetta og annað varasjóð þessa
félags upp i $600,000 — sem gerir því
mögulegt að halda áfram þeirri
stefnu sinni,, að kaupa í stórum
innkaupum ogiselja fyrir borgun út
i hönd, geta því fengið allar vörur
fyrir iægra verð nú en fyrir nokk-
ruin árum síðan,, þrátt fyrir yfir-
standandi afarverð á stáli og járni.
Yéla og verkfæra deild félagsins
er nú mikið fullkomnari en áður.
Með vörugeymsluhús f Winnipeg,
Regina og Calgary, er því mögulegt
að sjá um þarfir bænda fyrirfram og
afla sér alls þess, sem bændur þarf-
nast löngu áður en það þarf að
brúkast.
Núverandi ásigkomulag gerir örð-
ugt að hægt sé að ábyrgjast, að það,
sem pantað er, sé sent strax um
liönd, en eins langt og mannlegir
möguleikar ná, mun félagið snúa sár
í hverju einu fyrir viðskiftavini sína
svo alt geti farið sem hezt. Sé
beiðni send um ofannefnda verðskrá
(General Cataiogue E.) verður hún
tafarlaust send. Skrifið strax.
Verðskrá á byggingarvið öllum
hefir einnig verið útgefin af félaginu,
af þeirri deild þess, sem slíkt annast
um. Er hún ætluð fyrir þá, sem
hafa í huga að byggja, og inniheld-
ur alt, sem að húsabyggingum lýt-
ur, byggingarvið alt hygginga-efni.
harðvöru og annað. Einnig alt, sem
úthcimtist í byggingu skólahúsa,
hlöður, o.s.frv. Biðjið um Lumhor
Catalogue E. Sent frítt.