Heimskringla


Heimskringla - 07.06.1917, Qupperneq 4

Heimskringla - 07.06.1917, Qupperneq 4
4. BLAÐSÍÐA HEIMSKv-ríGLA WINKIPEG, 7. JÚNÍ 1917 HEIMSKRINGLA (StnfnnS ÍKKS) Kemur ðt & hverjum Flmtuðegl. tHgefendur og elrendur: THE VIKING PRESS, LTD. VerO hlatislns 1 Canada og Bandarikjun- am »2.00 um áriS (fyrirfram boreaC). Sent til lslands Í2.00 (fyrirfram borgaS). Allar borganlr sendlst ráSsmanni blaS- slns. Póst eSa banka ávísanir stýlist til The Viking Press, Ltd. O. T. Johnson, ritstjóri S. D. B. Stephanson, ráðsmaSur Skrlfstofa: TS» SHERBROOKG STHEET., WIRRIPKG. P.O. Bnx 3171 Talslml Garry 4110 WINNIPEG, MANITOBA, 7. JÚNl 1917 Austur-íslenzku tímaritin. Oft hafa kvartanir heyrst um það hjá Is- lendingum hér vestra, að engin íslenzk tíma- rit skuli vera gefin út hér í álfu, sem hægt væri að jafna við helztu tímaritin á Islandi. Kvartanir þessar hafa komið frá þeim, sem mest er ant um velferð íslenzkar tungu og við- hald íslenzkrar þjóðar hér í landi. Þessir mienn hafa verið vakandi af áhuga og hafa því orðið fyrstir til þess að sjá, að ekkert myndi betur vekja hér íslenzkt hugmyndalíf og glæða meir þrá uppvaxandi kynslóðar til þess að kynnast íslenzkum bókmentum, en gott íslenzkt tímarit. Flestum, sem nokkuð út í málið hugsa, verður þetta skiljanlegt. Samt mega menn ekki vera of kröfuharðir. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að Vestur-Islendingar geti að svo komnu gefið út tímarit, sem þoli nokk- urn samanburð við beztu tímaritin á Islandi. Alt er hér á bernskuskeiði enn þá og komið undir náð framtíðarinnar. Enn þá eiga flest sérmál íslendinga langt í land til þess að geta komist í viðunanlegt horf. Tímarit geta ekki verið með “bókmenta- legu sniði” utan að þeim standi menn, sem aflað hafa sér góðrar mentunar. Engin þjóð á mentamenn, ef hún á ekki skóla. — Vestur- Islendingar hafa engan íslenzkan skóla átt fyr en til skamms tíma. Þeir Islendingar, sem gengið hafa hér mentaveginn, hafa orðið að stunda nám sitt við enska skóla, frá barna- skólunum til æðri skólanna, og flestum þess- um mönnum hefir því orðið enskan tamari en íslenzkan. Þó stöku undantekningar eigi sér stað, þá eru þær sára-fáar. Og á meðan ekki fæst einhver bót við þessu, er ekki við góðu að búast. Hjá öllum þjóðum eru mentamennirnir aðal-afltaugar békmentanna og vísindanna. Þeir bregða upp þeim ljósum, sem lýsa fjöld- anum leið. Einna björtust eru Ijós þessi oft í tímaritunum. Tímaritið “Fjölnir, ’ sem ís- lenzkir nlentamenn gáfu út forðum daga, lagði fyrsta grundvöll íslenzkra nútíðar bók- menta. Vestur-Islendingar eiga ekki neina “Fjölnismenn” og hafa aldrei átt. Yngri mentamenn Vestur-Islendinga geta ekki skoðast afltaugar íslenzkra bókmenta. Af þessum mönnum eru prestarnir þeir einu, sem nokkuð verulega leggja rækt við ís- lenzkuna. En af því prestar rita sjaldan urr) annað en trúmál, er ekki mikils bókmenta- starfs að vænta úr þeirri átt. Utlitið er því ekki glæsilegt hjá oss Vest- ur-lslendingum. Af yngri mönnum eigum vér að svo komnu ekkert söguskáld, sem neitt kveði að. Vér eigum tvö eða þrjú ljóð- skáld á meðal yngri manna, og mesta urmul af hagyrðingum. En eigum ekkert tíma- rit til þess að tegla til og hefla efnisviðinn unga. — Vér eigum engan “Fjölni“ og enga “Fjölnismenn”. Islenzki skólinn, sem nú er hér stofnaður, er spor í góða átt. Að honum standa dug- andi menn, sem bera velferð íslenzkrar þjóðar einlæglega fyrir brjósti. En verka- hringur þeirra er þó takmarkaður, af því þeir miða alt við velferð vissra trúarbragða. Hætt er því við, að skóli þessi eigi örðugt uppdráttar og njóti sín ef til vill aldrei eins og skyldi. Öðru máli hefði verið að gegna, ef skóli þessi hefði verið stofnaður þannig, að hann hefði getað notið stuðnings heildarinnar af Vestur-Islendingum. Þá hefði framtíðin ver- ið bjartari og fegri fram undan. Skóli þessi hefði þá í nájægri framtíð getað orðið afl- stöð íslenzks þjóðernis og íslenzkra bók- menta. En með því fyrirkomulagi, sem nú er, verða áhrif þessa skóla afar takmörkuð. Vér Islendingar erum svo fámennir, að vér verðum allir að hallast á sömu sveifina í öllum sameiginlegum velferðarmálum, ef hún á nokkuð að þokast. Þjóðernismálið er sameiginlegt mál allra Islendinga, hverra trúarskoðana sem eru, og hefðu þeir því átt að vinna að því í sameiningu og leggja til síðu ailan trúarríg og flokkadrátt. 1 öðru eins máli megum vér ekki við því, að kröft- unum sé sundrað. Sameiginlega og samhentir hefðu Vestur- Islendmgar vel getað borið emn skóla. En það sama verður ekki sagt um tvo eða fleiri skóla—æins og nú er rás straumsins. Til þess að bera margar æðri skólastofnanir svo vel fari, erum vér of fámennir. Hætt er því við, að langur tími verði að líða þangað til mentamál íslendinga hér í landi færist í við- unanlegt horf. Góð tímarit eignumst vér ekki á meðan vér eigum ekki völ mentaðra manna, sérfræðinga og prófessora — sem gott vald hafa á íslenzkri tungu -— til þess að rita í þau og annast þau að öllu leyti. En þó langt verði þessa að bíða, þurfum vér ekki að vera á flæðiskeri staddir. Vér höfum austuríslenzku tímaritin. Helztu tímarit Austur-lslendinga eru þannig úr garði ger, að þau eru hin ákjósan- legustu í alla staði. Að þeim standa ment- uðustu meim íslenzku þjóðarinnar og helztu skáldin og rithöfundarnir. Tímarit þessi eru því hvert öðru vandaðra að efni og formi og hafa ætíð meðferðis meira og minna “innlegg” í bókmentasjóð þjóðarinnar. Þessi tímarit ættu Vestur-lslendingar að kaupa og lesa. Það er ekki nóg að þau séu keypt af lestrarfélögum víðsvegar um land- ið og gangi þannig manna á milli. Þau verða að lesast oftar en einu sinni, ef hafa skal af þeim full not. Til þess að vel fari, þurfa þau að komast í bókasafn hvers einasta vestur-íslenzks heimilis.--— Þrjú tímarit hafa oss nýlega borist austan um haf, tímaritin Iðunn, Eimreiðin og Skírn- ir. Eins og vænta má, eru þessi tímarit hvert öðru vandaðra að efni og frágangi. Yfirlit yfir efni Eimreiðarinnar er birt á öðr- um stað í blaðinu. Efnisskrá Skírnis og eins Iðunnar verður birt síðar, er rúm leyfir. Austur-íslenzku tímaritin verðskulda það fyllilega, að þeim sé gaumur gefinn. Á meðan Vestur-lslendingar eiga völ á öðrum eins tímaritum, eru þeir ekki í dauð- anum staddir—þótt þeir eigi ekki önnur eins tímarit sjálfir. *----------—...—-------—------------------b Lögbergs-skrumið og Saskat- chewan málin. 1 síðasta blaði Lögbergs læzt ritstjórinn vera að fræða menn um stjórnmálasögu Saskatchewan-fylkis, síðan þarverandi stjórn tók við. Þarf auðvitað ekki að taka það fram, að saga er það engin, heldur eintóm- ur tilbúningur, gripinn gjörsamlega úr lausu lofti. Bæri nýrra við, ef sögu gæti hann sagt, er nokkuð væri að marka. Byrjar hann fyrst á því er fylkið er mynd- að og gengur inn í ríkissambandið, að hvert framfarasporið hafi verið stigið af öðru. Auðvitað gleymir hann að geta fyrsta spors- ins, sem stigið var, er allar auðsuppsprettur fylkisins voru afhentar sambandsstjórninni, svo að fylkisbúar hafa þar engin ráð yfir. Fyrir þetta var þegin fjárupphæð svo lít- ilfjörleg, að ekki getur talist til neins. En það var fyrsta hugsun hinnar nýju stjórnar, eins og verið hefir hugsun hennar fram til þess síðasta, að koma eignum fylkisins í peninga, sem hún hefði svo ráð yfir og gæti farið með eins og henni sýndist. En fé þetta hrökk skamt, einsog árlega tillagið, er fylkið hefir fengið úr sambandssjóði—og er það þó all álitleg upphæð—því á ári hverju hefir stjórnin tekið til iáns hjá auðfélögum að jafnaði tvær miljónir dollara, eða í tólf ár- in, sem hún hefir setið, $25,500,000, sem hún er búin að eyða auk allra tekja og skatta, sem nema munu ríflega öðru eins. Á tólf árum eru þá allar þessar miijónir eyddar og fylkið komið í þær skuldir, er það seint mun sjá út úr. Þess utan hvílir á fylkinu voða þung ábyrgð á skuldabréfum fyrir Can. North. járnbrautina eða þá félaga McKenzie og Mann, sem alræmdastir fjár- glæframenn eru hér í landi. Upphæð skulda- bréfanna, sem fylkið er búið að ábyrgjast, mun að líkindum vera komið alt upp í $50,- 000,000,—því fyrir þrem árum síðan, þeg- ar þessir gróðabrallsmenn leituðu lántöku hjá sambandinu, veturinn 1914, þá var upp- hæðin, sem Sask. stoð i abyrgð fyrir, sem næst orðin þetta. Og þá fór Scott stjórnar- ráðherra austur til Ottawa og lýsti því yfir, að ef ekki væri hlaupið undir bagga með járnbrautarfélaginu og lánið veitt, sem farið var fram á, og félagið yrði gjaldþrota, yrði Sask fylki gjaldþrota um leið, ef það ætti að svara allri þeirri ábyrgð, sem það stæði í fyrir félagið. Þá var nú svona komið ráðs- menskunni og batnaði þó ekki eftir það. Þetta er fyrsta sporið í framfarasögunni, og eiginlega eina sporið, því öll hafa eftir þessu farið. Það er því sjáanlegur sannleikur í þessari grein ritstj.—“sé rakin stjórnarfars- saga Sask. fylkis, síðan það varð til og hún borin saman við fyrstu kaflana í sögu ann- ara fylkja hér í Canada, þá kemur það fyrst í ljós, hve vel og viturlega valið var við fyrstu kosningar og ávalt síðan”! Já, fylkinu hefir nú “vel og viturlega” verið komið á hausinn,—afhentar allar auðsupp- sprettur þess, sambandinu, en tekið lán á lán ofan meðan nokkur peningur fékst, unz svo er komið, að tekjur hrökkva ekki fyrir vöxtum á lánum. En hvað er svo til að sýna í eignum eða fylkisstofnunum á móti þessari skuldasúpu? Það er næsta lítið, þegar til alls kemur. Lögberg bendir á háskólann í Saskatoon, telur hann eitt af framfara fyrirtækjum stjórnarinnar. Þó það væri nú, að eitthvað sæist eftir af öllum þessum peningum. Naumast var hægt að eyða þeim, svo að ekkert yrði gjört. Vitanlega er háskólinn nauðsynjastofnun, en svo er það trúlegt, að hann hefði verið settur á fót hverjir sem við völdin hefði verið. Auðvitað er það þakka- vert, að stjórninni þóknaðist að reisa þá stofnun í stað einhvers annars fyrir þá pen- inga, sem til hans voru kostaðir, en sú upp- hæð er næsta lítil—$1,750.000,—af allri lántökunni. Er hrósað happi yfir, hvað hann hafi kostað lítið og mikill sparnaður í frammi hafður. En hafi sparnaður verið hafður í þessu atriði, mun það þá vera eini gjaldlið- urinn, sem stjórnin getur hælt sér af að hafa kostað. Kemur þá Iíka sá sparnaður mak- legast niður—á aðal mentastofnun fylkis- ins! Það að valist hafa þangað gáfaðir og mikilhæfir menn, er skólaráðinu að þakka. En það er sitt hvað, stjórnin eða skólaráðið. Þá er minst á í umræddri Lögbergs grein, “að samgöngur séu aðal lífsskilyrði allra þjóða.” Auðvitað, og samgöngur eru efldar með vegagjörðum. En á vegagjörðir stjórn- arinnar minnist ritstj. ekkert, eins og það sé viðkvæmt efni. En því ekki að benda á þær framfarir? Einmitt í þeim framförum, eða öllu heldur hvað stjórninni fór fram í að kosta miklu til vegagjörða, án þess þó að nokkrir vegir væri gjörðir, er þess að leita, hvað orðið hafi af miklum hluta af lánsfénu. Rennustokkar kosta margar þúsundir doll- ara, brýr hlaupa upp á $100,000, sem upp- haflega voru metnar á þriðjung þeirrar upp- hæðar, og svo eru Job (Brown) borgaðar $70,000 til eftirhts. það er verið að reyna að bæta samgöngurnar, það er ekki hægt að neita því, en það virðist í fljótu bragði frem- ur vera samgöngur milli fylkissjóðsins og stjórnargæðinganna, heldur en samgöngur á landi manna á millum. Það nægir að benda á eitt dæmi, upp á þessa vegabótar sparsemi. Árið 1914 var samþykt að leggja brú yfir Weed Lake, suð- ur af bænum Broadview. Brúin var hundrað feta löng. Þann 7. nóv. var félag, er nefnd- ist Parson Construction Co., í Regina, beðið að gjöra tilboð í að smíða brúna. Brúin átti að vera steinsteypu-bogi. Tveim dögum síðar sendir félagið tilboð sitt Mr. F. J. Robinson vegaumsjónarmanni stjórnarinn- ar, og segist skuli gjöra þetta verk og leggja alt til fyrir $34,533. Nokkrum dögum síðar ákvað stjórnin að breyta brúarlaginu og láta byggja stólpabrú. Var það gjört til þess að færa niður kosfnað á verkinu. Nú kemur aft- ur annað tilboð frá sama félagi og segist það hafa yfirvegað allar breytingar á brúar- laginu og kosti brúin nú $69,000, eða helm- ingi meira. Engir aðrir voru látnir gjöra boð í þetta verk. Semur svo stjórnin við þetta félag um verkið með samningi, er dag- settur var 2. des. 1914. Réði félagið þarna alveg hvað hvert atriði kostaði í sambandi við verkið og ekkert athugað, hvort það væri sanngjarnlega metið eða ekki. Þannig var fyrir eftirilit ætlaðir $12,000 á stöplabrúnni, en á bogabrúnni og í fyrstu áætlun voru $5,000 ætlaðir til þessa. Þá voru ætlaðir $20 fyrir hvert tenings “yard’ af mold, er grafa þyrfti, og $15 fyrir fethæðina af stein- steypu í stöplunum; en áður var steinsteyp- an metin á $10 fethæðin. Munu nú flestir skilja, hvernig þessari verðhæð var varið og hve sanngjörn hún var. En svo fer nú fleira þar eftir, fyrst með útborganir til þeirra, er verkið höfðu, og svo með mat á verkinu sjálfu. Þann 30. nóv. eða tveim dögum áður en samningur er gjörður við félagið, borgar stjórnin því $1,500—fyrir gröft! Var þá ekki farið að stinga upp eina reku. Þá er og strikað út úr samningnum, að félagið borgi eftirlitsmanni, sem þó er vanalegt. 1 7. des. eru aftur borgaðir $2,500 fyrir gröft og 4. jan. 1915 enn $5,000 fyrir hið sama. Fyrir ofaníburð við brúarendann borgaði stjórnin fyrir 17,627 vagnhlöss, 75c. fyrir hlassið. Um 1,000 fet var að flytja mold- ina, og var hún öll tekin úr hól ofan við, þar sem brúin var sett. Er því álit verkfræðinga, að 18 til 23 cent. fyrir hlassið hefði verið stífasta borgun. Á þessu eina atriði var þá almenningur svikinn um $7,500, en félaginu gefið það. Þá var að meta gröftinn, sem gjöra þurfti fyrir stólpum, og úrskurðaði um- sjónarmaður stjórnarinnar að mæla skyldi frá yfirborði vatns og niður. Var þá borgað fyrir gröft á vatni, $20 fyrir hvert tenings “yard.\ og er það full sómasamleg borgun, þó illa gangi í vatni, þegar fara á að stinga! Með öllum þesum og ótal fleiru, kostaði brúin um það hún var full- gjör $104,000, í stað þess sem upphaflega var áwtlað rúmar $34,- 000. Munar það að eins $70,000, sem stjórn og félag stela af al- menningi. Það ristir margur breiða lengju af annars skinni, og svo var með stjórnina, sem Lögb. segir “að gætt hafi hinnar mestu varfærni í fjár- útlátum, hafandi það á meðvitund- inni, að hún væri að fara með fé fólksins.” Það er engin lygi, að hún hefir haft það á meðvitund- inni, því naumast hefðu stjórnend- urnir borgað þessa upphæð úr eig- in vasa, þó örlátir séu. Og sjáan- legt er það, að stjórn, sem bruðlar jafnmiklu út við hvert verk, sem hún lætur gjöra, lætur sér ant um samgöngur, — þessi “lífsskilyrði allra þjóða.” Ef þetta væri eina dæmið um vegagjörðar afglöp hennar, væri síður tilefni að segja mikið, en þetta er að eins eitt af mörgum. Og það er í bruðl í sam- bandi við vegagjörðirnar, sem stór hluti af lánsfénu hefir gengið, að líkindum mikið stærri en sá, sem variíf hefir verið til háskólans. Þá er símamálið,—og það er eftirtektar vert, að Lögb. minnist eingöngu á það í sambandi við samgöngumálin, að síminn auki sérlega mikið á samgöngur, mun fáum til hugar koma nema Lögb,- ritstj., því fæstu verður ekið eftir vírunum. En hitt er rétt, að sím- inn er til mikilla þæginda og eflir samband manna á millum. En í því máli hefir stjórninni farið alveg eins og í vegagjörðarmálinu. Lögb. segir, “að stjórnin hafi haft glöggva meðvitund um það, að ekki var nóg að stofna síma- stöðvar í bæjunum; það var fólkið úti á landsbygðinni, sem hún bar fyrir brjósti. Auðvitað, og hvern- ig bar hún það fyrir brjósti? Að ná í það til að leggja á það þunga skatta. Það er í fáum orðum efni málsins. Það er rétt, að 1908 er byrjað að stofna símafélög í sveit- um. Það er rétt, að stjórnin bauðst til að leggja til staura, ekki ókeypis, heidur kostaða af fylkis- fé. En ýms sveitafélög sættu ekki þessum kjörum, heldur iögðu sér til staurana sjálf. En hvað skeði þá? Þeim hinum sömu símafélögum var neitað um samband við hin önnur félög og bæi, sem stjórnin hafði umsjá yfir. Margur skyldi þó ætla, að stjórninni hefði þótt vænt um, að þurfa ekki að Ieggja til staur- ana gefins, en því var ekki að heilsa. Stauragjöfinni( !) fylgdi semsé ananð, en það var, að bænd- ur seldu henni í hendur umsjón og eftirlit og lagningu allra símalína. Gat hún þá sett á hvorttveggja það verð, sem henni sýndist. Og það hefir hún gjört. Verið er að telja bændum trú um, að þeir eigi þessi símakerfi; en sannleikurinn er sá, að þeir eiga minna en ekkert í þeim. Á eignir þeirra er lagður skattur frá 12—20 ár, og um það að hann er allur greiddur, þarf að bygga kerfið upp að nýju, sam- kvæmt því sem stjórnar umsjónar- maður talsíma hefir sjálfur áætlað. En þá er búið að borga fast að því 7 sinnum meira fyrir kerfið, en það hefði þurft að kosta. Reynsla þeirra sveitarfélaga, sem bygt hafa sín eigin símakerfi, haft alt eftirlit með þeim sjálf og ekkert til stjórnarinnar sótt, sannar, að $35.00 á hvern notanda borgað- ir í eitt skifti, borga kerfið, og er þá ekki annað en eftirlit og viðhald að borga úr því. En þar sem stjórnin hefir eftirlitið, er gjaldið $18—$20 á ári og þess utan $.00 skattur lagður á öll lönd, sem símalínur fara með- fram. Stefna stjórnarinnar í símamál- utan $6.00 skattur lagður á öll þau sveitafélög, er lagt hafa sinn eigin síma, en tekið þau inn í síma sambandið með því eina móti, að hún bygði símakerfi hjá þeim að nýju og ónýtti það sem fyrir var. En sína eigin gæðinga hefir hún ávalt sett fyrir verkið og ráðið gjörsamlega sjálf öllum kostnaði. Er kostnaðar áætlun hefir verið fengin frá þeim, sem fyrir verki hennar standa, hefir kostnaður á- valt verið talinn helmingi hærriv en sveitafélögin hafa getað gjört. það fyrir. Með þessu fyrirkomulagi hefir stjórnin getað smeygt skatti á al- menning sem nemur afar upphæð á ári, en upphæðinni getur hún varið hvernig sem henni sýnist, og mun mest af því fé ganga í kosn- ingasjóð. í stað þessa fyrirkomulags, sem gjörsamlega er óhafandi og fylgir svo mikil Iævísi, bjóða conserva- tívar þjóðeign allra talsíma og borga fyrir þá að eins þeir, er þá nota. En aðferð stjórnarinnar er sú, að leika á bændur og láta sem þeir eigi alt saman, en þó verða símakerfin aldrei þeirra, hversu lengi sem þeir halda áfram að borga. Það er svipað eins og ef hún seldi þeim hest, og léti.alt af halda áfram að borga hann þang- að til hann væri dauður, þá fyrst yrði hann þeirra eign; en þá þyrfti að kaupa annan á sama hátt. Talsíminn er nauðsynlegur, en fyrirkomulag stjórnarinnar á hon- um er ónauðsynlegt og óhafandi. Þarf eigi mikið fjárhyggjuvit tií að sjá það. Saga Sask. fylkis undir núver- andi stjórn, er ekki mikil fram- farasaga. Síður en svo, heldur afturfarasaga, og hún ljót. Fyrst selur Scott allar auðsupp- sprettur fylkisins fyrir fáeina doll- ara. Svo hleypir hann fylkinu í ábyrgð fyrir járnbrautarfélag þeirra McKenzie og Mann og ját- ar sjálfur vorið 1914, að fylkið sé gjaldþrota, ef það þurfi að niæta þeirri ábyrgð. Svo hleður hann skuld á skuld ofan unz fylk- isskuldin er orðin $25,500,000. Svo verða helztu ráðanautar hans uppvísir að svikum og mútum og lenda í tukthúsinu. Og loks verð- ur hann sjálfur að fara frá með skömm og skríða í felur! Allar réttarbætur sem fengist hafa, hef- ir orðið að þröngva stjórn hans til að veita. Með talsímanum hefir hann Iagt meginhluta bænda í ánauð, fyrir langt tímabil. Með öllum þeim sköttum sem á búend- um hvíla í Sask., mun sanni nær, að hvergi á bygðu bóli séu útsvör jafn-há. Með sköttum eru land- búendur látnir kosta skólahald bæjarbúa, hvað þá annað. En lakast er þó af öllu, að þrátt fyrir alla þessa skatta, að eigi skuli fást þau hlunnindi, sem í staðinn er heitið, svo sem haglsábyrgð, sæmileg símanot o. fl. Hvar þær tutugu og fimm og hálf miljón doll. eru niðurkomn- ar, sem fylkið skuldar, mun stjórninni verða erfitt að svara, Fyrir þeim finnast engar eignir, svo teljandi sé, engar umbætur, sem heitið geta. Alt hefir yerið jafn svikið. Dómhúsin litlu út um landið, er kosta áttu svo tug- um þúsunda skifti, eru hrörleg og auðvirðileg timburskrifli, sem bú- ið er falli, þegar minst varir. Þetta er stjórnin, sem er að biðja um endurkosningu, og þyk- ist eiga það skilið. Eigi þarf þá mikið til að vinna, ef hún á það skilið. Og ótrúlega verður nokk- ur Islendingur svo lítilþægur, að kjósa hana. »— —-———---------------------—h EINMITT N0 er bezti tmi að gerast kaupaadi aS Heims- kringlu. 'Sjá auglýsiugu vora á öSnua staS í blaSinu. V v fx

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.