Heimskringla - 21.06.1917, Blaðsíða 2

Heimskringla - 21.06.1917, Blaðsíða 2
2. BLAÐ6ÍÐA HEIM8KBINQLA WINNIPEG, 21. JÚNÍ 1917 — Keisaravaldið þýzka Eftir síra F. J. Bergmann. ____________I___________) (Framh.) 15. Sundurliman Pólverjalands. Þegar styrjöld þessari loks var lokið, var Eriðrik mikli búinn að fá nóg, ekki síður en aðrir. Helm- ingur ríkisára hans hafði til bess gengið, að berjast. Hann hafði bætt við Prússland stóru og auð- ugu héraði, sem jók að miklum mun auðlegð ríkisins og var þvf trygging gegn árásum óvinanna. Hann hafði sannfært Prússa sjálfa og yfirleitt allar þjóðir Norðurálfu um, að prússneski herinn væri ó- sigrandi, þegar ihainn hefði annan eins fyrirliða. Hvorki nokkurt eitt ríki né heldur ríkja sambönd myndi láta sér finnast það sérlega árennilegt, að ráðast á Prússland. Samt var Friðrik konungur enn ekki ánægður með það, sem hann hafði komist yfir af löndum. Hann ágirntist enn vestur Prússland. En það var sá hluti pólska konungs- ríkisins, sem lá á milli Branden- burg og austur Prússlands. En hann var hæst ánægður með að bíða hentugs tíma. Enda fekk hann þessu til leiðar komið á næstu tíu árum, án þess nokkuru blóði væri út helt. iSundurliman Pólverjalands var ef til vill ljótasti leikurinn, sem framinn hefir verið á stjórnmála- sviðinu og sögur fara af. Pólverj-a- land hafði til allrar óhamingju grundvallarlög, sem komu í veg fyr- ir reglulegt stjórnarskipulag. Sam- kvæmt þeim var landið kjörgengt einveldi, en þetfca kjörgengi gerði landið að leiksoppi hinna annarra velda umhverfis. Katrín Rússa- drotning hafði stutt þar til valda einn skjólstæðing sinn og gerrt landið um leið að eins konar rúss- nesku skattlandi. Þá risu ættjarð- arvinirnir upp á Póllandi. Þessa uppreist leituðust Tyrkir við að efla sem mest, til þess að vinna Rússum sem mest tjón. Rússar réðust inn á Tyrkland. Austurríki bjóst til að grípa í taumana. 1 lok sjö ára strfðsins slitn- að upp úr bandalaginu milli Prússa og Englendinga. Fanst Friðriki mikla, að hann þar vera ranglátlega svikinn í trygðum af Englendingum og einsetti sér að treysta þeim aldrei framar. Pitt treysti hann algerlega og að fullu. En reynslan sýndi, að samkvæmt brezku stjórnairskipulagi mátti ekki við þvf búast, að öllum stjórn- arleiðtogum Breta væri jafn-gott að treysta. Tók hann þá til að á- Allra Síðasta Tœkifæri Þessi auglýsing kemur ekki aftur, notið því þetta tækifæri nú! vinna sér hylli og traust Rússa. Hann gerði náið bandaliag við keis- arainnuna rússnesku. Em vildi samt sem áður ekki eins og þá var ástatt, fara að eiga í nýjum ófriði við Austurríki hennar vegna. Hjá þessu reyndi hamn að komast með því að leggja það til, að sundur- lima eignir annara, án þess að til hernaðar kæmi. Þessu vildi hann til leiðar koma með samkomulagi á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Pólverjaland átti að verða synda- hafurinn. Ekki átti það að verða afmáð með öllu. Enn átti að verða Pólverjaland á landabréfi Norður- álfu, jafnvel Pólverjaland, sem alt annað væri, en nafnið tómt. En hvort þessarra þriggja stórvelda átti að fá töluverðan skika, er lá upp 'að landamærum hvors um sig. JSá skerfurinn, sem Prússlandi átti að hlotnast, var nærri alt svæðið, sem lá milli Austur-Prússlands og Brandenborgar. Samt átti hafnar- borgin Danzig að vera undan skil- in, og bærinn Thorn við Weichsel- fljótið var enn utan landamæra Prússlands. Ofur lítil þríhyrna milli Vestur-Prússlands og Slesíu var eftir, fyrir landagræðgi eftir- manns Friðrik mikla að seðja sig á. Bæði héröðin, Slesía og Vestur- Prússland, voru héröð, sem Friðrik II. bætti við konungsríki sitt. Báðum þessum héröðum hreint og beint rændi hann,—tók þau með ofbeldi af veikari nágrönnum, hvort með sínum hætti. Hann hafði þá afsökun eina, að á öðru þurfti hann að halda til þess að gera konungsríki sitt að samfeldri heild, þar sem hitt var Prússlandi ómissandi, ef það átti nokkuru sinni að verða annað en þriðja flokks veldi. 16. Á friðartímum. Eftir sjö ára stríðið, var fjárhag- ur landsins komin á heljar þröm. Konupgur lét þá bræða silfrið í höllum sínum til peninga-sláttu. Pommern og Neumark leysti hann undan skattskyldii í tvö ár, Slesíu í sex mánuði. Hann útvegaði mörgum aðalsmanni, sem orðinn var öreigi útsæðiskorn, til að hrinda akuryrkjunni aiftur af stað. Ekki leið á löngu áður en allir hestar, sem notaðir höfðu verið við herinn, voru komnir í hendur bænda víðs vegar um Prússland. Þeim, sem þurftu að endurreisa hús sfn, útvegaði konungur fé. Berlínar-bankinn kom fjárhag landsins aftur á fastan fót. Alt þetta sá hann sjálfur um og hafði eftirlit með öllu. 1 skatta-álögum sínum var Frið- rik mikli ekki eins heppinn og í öðrum stjórnarstörfum. Hann tók þar Frakkland til fy'rirmyndar. En skattar og skattheimta var með þeim hætti, að alls konar harðdrægni komst þar að, og afl- aði það konungi eigi lítilla óvin- sælda. Óánægj-an með þetta var megn í landinu og konungi var fyllilega um hana kunnugt. Út af óánægju þessari varð hann samt ekki vondur, en tók henni með mestu stillingu. Sú saga er af honum sögð, að dag einn reið hann eftir Jaeger Strasse og sá þar heilmikinn múg manns saman kominn. “Gættu að hvað það er,” sagði konungur við þjóninn, sem með honum reið. “Þeir hafa slegið einhverju upp um yðar hátign,” sagði þjónninn, er hann kom aftur. Friðrik reið á- fram og sá þar skrípamynd af sjálf- um sér. Á mynd þessari var kon- ungurinn með mjög döpru bragði sitjandi á stóli, með kaffikvörn á milli hnjánna, malaði kappsam- lega, en tíndi upp með hinni með mestu nákvæmni hverja kaffi- baun, sem hrynja kunni niður um leið og hann malaði. “Færðu mynd- ina neðar,” sagði konungur við þjóninn, “svo enginn þurfi að fá ríg í hálsinn við að horfa á hana.” En naumast höfðu orðin fallið konunginum af vörum, fyrr en þau breiddust út meðal múgsins, sem þarna var staddur. Þá dundu fagnaðaróp og húrra-hróp fyrir konunginúm við. Múgurinn reif skrípamyndina niður og reif hana í smátt. Og þegar konungur reið brottu hægt og gætilega, hrópaði múgurinn á eftir honum: “Lifi Friðrik konungur vor vel og lengi!” Fjöldi sagna er til um Friðrik II., en fáar þeirra eru eins vel rökstuddar og þessi. Friðrik mikla var ant mjög um réttarfar í löndum sínum. Leiður var harjn samt oft á seinlæti og lagakrókum dómstólanna. Eitt sinn fanst honum að malari einn, Arnold að nafni, hefði orðið fyrir ranglæti, en það var fátæklingur. Hann rak dómarana, lét þá sitja í eins árs fangelsi, neyddi þá til að greiða malaranum af eigin fé það tjón, sem hann hafði beðið. Sýnir það hve ant hann lét sér um, að rétti fátæklinganna væri ekki hall- að. Hann nefndi sjálfan sig mála- færslumann fátæklinganna. Sögn er til um annan malara. Yind- mylnan hans stóð á bletti, sem konungur vildi bæta við garðinn sinn. Maðurinn þvertók fyrir, að hann vildi selja. “Ekki fyrir hvað sem í boði væri?” segir konungur. “Gæti ekki konungur tekið af þér blettinn fyrir ekki neitt?” — “Höf- um við ekki hæstarétt í Berlin?” svaraði malarinn. Sjaldan eða aldrei hafði konungi þótt jafn- vænt um nokkurt svar og þetta. Enda varð það að orðtaki um <alt Þýzkaland. s Friðrik annar bjó í Potsdam ná- lægt Berlín. Á sumrum fór hann á fætur fyrir kl. 5 árdegis og settist þá á skrifstofu sína; á vetrum reis hann kl. 6 úr rekkju. Vann hann þar stöðugt, þangað til kl. 11 f.h. Stundum greip hann til flautunn- ar, sem hann lék á með list, sér til hvildar og til að örfa hugsanir sínar. Frá klukkan 11 til 12 var hann við heræfingar. Þá settist hann að borðum stundvíslega og át miðlegisverð til kl. 2. Bæði kunni hann vel að njóta vistanna og svo var honum yndi að lengja borðhaldið með fjörugum viðrs^ð- um. Að því búnu tók hann aftur til starfa og leit yfir fyrirskipanir og skjöl, er hann hafði sagt fyrir um að morgni. Ritaði hann þá oft á spázíuna eða fyrir neðan athuga- seandir, oft og tíðum meinfyndin hnittinyrði. En er þeim störfum var lokið, tók hann að fást við ýms bókmentaleg störf sér til skemtunar. Milli sex og sjö átti hann tal við vini sína, eða lét lesa sér eitthvað. Trakkneskur maður, La Mettrie, hafði það embætti á hendi um nokÉurn tíma. Kluklc- an sjö hlýddi konungur á fagran söng og hljómlist. Hálf átta sett- ist hann að kveldverði, sem oft stóð yfir fram að miðnætti. Kon- ungur át og drakk vel að borðum, en gætti þess þó vandlega, þar sem annars staðar, að kostnaður yrði ekki fram úr hófi. Mátti ekki ganga meira en svo sem $5,500 til búrs og eldhúss árlega. Að kveld- verði hafði konungur oft vildustu vini sína kring um sig. En eftir- tektarvert er, að oftast voru það Frakkar. Hann heimtaði það, að hver segði það sem honum bjó í brjósti. Þegnum sínum gaf hann leyfi til að tala og rita það, sem þeim sýndist, og kvaðst ánægður með, ef hann að eins mætti gera það sem honum sýndist. En svo var meinfyndni konungs sárbeitt og hlífðarlaust, og oft þótti naum- ast við vært. Og leyfði einhver sér að svara fullum hálsi, komst hann fljótt að raun um, að full- komið málfrelsi átti sér stað ein- ungis öðrum megin. Við hirð Friðriks sást kvenfólk sjaldan. Yar margt um það sagt og skýrt á ýmsa vegu, en virðist eigi hafa verið af neinum lélegum ástæðum. Saonbúðin við drotn- inguna var fáskiftin og til heim- sóknar við hana kom konungur fremur sjaldan. En er um það er dæmt, verður eftir þvf að muna, að honum hafði verið þrýst til ráða- hagsins af föður hans, mjög á móti vilja sínum. En vel sá hann um hana og lét hana hafa alls nægtir; gaf hún ávalt helming þess, sem henni var ætlað, í líknarþarfir. í viðmóti sýndi konungur henni á- valt hina mestu virðingu og kurt- eisi. Hún var að mörgu hin göf- ugasta kona^ en alls ekki glæsileg hið ytra. Hún var höfundur nokk- Í3 a cð -tf tao *» ® ® fi, A 3 £ M * . M eð X ko cð A Q 2 'S - » 3 ct c« a * 3 H M Q - 2 - m -o B 'T « > v3 ÍO JSs •|»s | B * > *o '<• T3 'O '3 2 HO 4) *o cd • <4 OC.5 a a -EiS '53 5 ö -Q- v« cö ^3 ö bc a C «# <u •r *o o. -S'&S 0 2 2 oð a >- *o ► "5 '« 'O < Z • rW (——8 m \i—i ^ • U <8 ^4 Xu •% viS & SH -TO <0 'S *o .'S, - e 'í0 — u: « *o xo cð O c S w g B c ;ZS C 4-* .-c -o v B 00 S. o Vi %% O 00 CQ D ^3 O - O o CG 'íð » e 3 K> 00 io ■ C 00 co oj í* Q. . P P 00 „ G S 3 ÍO C B-S c c v i> bo v "S c • H S* i X O CQ O oJ urra bóka, ekki siður en konungur og voru þær ritaðar á frakkneska fcungu, en eigi þýzku, eins og hans; þótti þó nokkuð til þeirra koma í þá tíð. Friðrik annar haifði þýzka tungu og þýzkar bókmentir í litlum met- um. Frakkneskar bókmentir voru um þetta leyti hinar glæsilegustu, en þýzkar bókmentir naumast fæddar Þær hófust fyrst á efri ríkistjórnarárum Friðriks. En þá var hann orðinn of gamall maður til þess að kunna að skilja og meta. Samt sem áður befir hann í einni ritgerð spáð glæsilegum við- gangi þýzkra bókmenta í ókominni tíð. Sjálfur mælti hann stöðugt á frakkneska tungu, og hafði þann metnað mestan, að verða talinn með frakkneskum höfundum. Skáldslkapur er til eftir hann sem svo lítið þykir til koma, að nú sé lftt læsilegur. En yfir stíl hans í óbundnu máli, hvílir einhver kyr- lát einfeldni; yfir honum er tign- arsvipur, sem ber vott um hina á- gætu hæfileika, er konungur lét í ljós í athöfnum sfnum. Konungur hafði bréfaskifti mik- il við frakkneska höfunda og fekk marga þeirra til að taka sér ból- festu í Berlín. Þangað kom frakk- neski höfundurinn Voltaire 1752, fyrir þrábeiðni konungs, og var tek- ið á móti honum eins og konung- menni. En eigi hepnaðist sam- búðin sérlega vel; hvorugur óx í á- liti hins. Alt endaði með skelf- ingu, eftir þriggja ára dvöl í Pots- dam. Á leiðinni út úr landinu var Voltaiie tekinn fastur í Frankfurt og reyndi að komast þaðan huldu höfði, eins og frægt er orðið. 17. Prússland og Austurríki. María Theresía Austurríkisdrotn- ing lézt. Jósef II. sonur hennar tók við keisaratign. Hann var ötull og framkvæmdarsamur keisari og leitaðist við að koma á margs kon- ar uinbótum í löndum sínum. Hann bar lotningu mikla fyrir Friðrik II. Sóttu þeir hvor annan heim eins og beztu vinir. Jósef II. sótti Friðrik heim f Neisse í Slesíu 1769 og endurgalt Friðrik þá heim- sókn með annarri árið eftir. Jósef var opinskár og einlægur. Friðrik gætinn og varasamur. Honum stóð stuggur af metnaðargirni og dugnaði Jósefs. Hélt hann, að Prússlandi gæti einhvern tíma stafað hætta af. Eftir að fundum þeirra hafði á þenna hátt borið saman, lét Friðrik hengja upp mynd af keisananum í herbergjum sínum og var því veitt eftirtekt af vinum hans. “Ó já,” sagði konung- ur, “eg má til með að hafa auga á honum, þesum unga manni.” Er auðsætt, að hann befir grunað, að einhvern tíma gæti þeim lent saman. Úr þeim grunsemdum varð samt ekkert, þangað til árið 1777. Þá lézt kjörfurstinn í Bæjaralandi, Maxemilian Jósef, barnlaus. Not- aði þá Jósef keisari tækifærið og varp eign sinni á mestan hluta landa hians. Falzgreifinn, sem var kjörfursti um leið, og löglegur erfingi að Bæjaralandi, gerði samninga, er eigi voru álitnir rétt- mætir af eftirmanni hans„ Karli, greifa af Zweibrucken. Skaut hann máli sfnu til Friðriks II. Honum fanst ekki vert að Austurríki skyldi flá þar feitan gölt og auka veldi sitt. Gekk hann því í lið með Karli greifa og setti keisaran- um stólinn fyrir dyrnar. Eigi ætl- aði Friðrik II. sér að lenda í hern- aði í þetta sinn, en samt fór svo, að hann varð að skera upp herör í júlí 1778 og brjótast inn yfir landa- mæri Bæheims með miklum her. Eigi lenti í neinni allsherjar or- ustu. Og eftir all-mikinn drátt og alls konar þóf, var samningurinn, sem kendur er við Teschen, undir- ritaður 13. maí 1779. Fekk Austur- ríki ofurlitla sneið, héraðið kring um Burgau, eni Prússland lands- höfðingjadæmin, sem kend eru við Franken. Eins og við var að búast, var ein- lægt grunf á því góða milli Aust- urríkis og Prússlands. Friðrik mikli var ávalt fullur afbrýðissemi, þar sem veldi Austuriíkis var ann- ars vegar. Valdafýkn Austurríkis áleit Friðrik að Norðurálfu sta.faði meiri hætta af en nokkuru öðru. Aftur sýnist hann ekki hafa komið auga á skýflókann, sem upp var að draga í Frakklandi. Hann var Frakkavinur svo mikill, að hann kom ekki auga á neina þættu úr þeirri átt. Alla stjórnartíð sína hafði hann átt í höggi við Austur- ríki. Honum var það áhugamálið stærsta, að hnekkja ofurdrambi þess sem mest. Tækist það, áleit hann Prússlandi óhætt. í þessa átt miðaði síðasta stór- fyrirtæki hans. Árið 1785 gekst hann fyrir að mynda Þjóðhöfð- ingjasambandið þýzka — Fuers- tenbund.—Urðu þeir býsna marg- ir, sem í það gengu. Átti það að koma í veg fyrir, að keisarinn bryti grundvallarlög rfkisheildarinúar. Hin látlausa staTfsemi Jósefs II. virtist Friðriki benda í þá átt. Eigi sá keisarinn sér fært að beitast á móti svo mörgum og voldugum höfðingjum, sem í félagi þessu voru. Fyrir því fórust landaskift- in fyrirhuguðu fyrir. En eftir dauða Friðriks sundraðist þjóð- höfðingjafélag þetta. Frá sögulegu sjónarmiði hefir samt félag þetta töluverða merk- ingu. Það er fyrsta opinbera til- raiin af hálfu Prússlands, til þess að gerast leiðtogi alls Þýzkalands. En nú var ekki langt eftir. Frið- rik II. lézt 17. ág. 1786, og hafði þá átt lengi friði að fagna. Var það almannamál, að tveir dagar eins og Friðrik mikli kunni að nota þá bezt, væri jafn-gildir heilu ári, eins og það er notað af fjöldanum. 18. Manngildi. Friðrik annar var einn allra merkasti og nýtasti einvaldskon- ungur, sem mannkynssagan kann frá að segja, Hann var konungur í 46 ár. Af þeim var réttur helm- ingur friðarár. Hann skifti ríkis- árum sínum jafnt milli friðar og hernaðar. Aðal-styttur ríkisstjórn- ar hans var herinn og féhirzlan. Með miklum sparnaði fekk hann því til leiðar komið, að skilja eftir sjötíu miljónir dala í féhirzlunni, sem er íeikna upphæð. Við lát hans mun herinn hafa verið 200,- 000 manns, æfður með þeirri dæma- fáu vandvirkni, sem einkendi öll störf hans. Hann var lang-snjall- asti hershöfðingi sinnar tíðar, stór- vitur maður, en ekki að sama skapi samvizkusamur, er um hags- muni lannarra var að ræða. Mikil viðburðaöld var í þann veginn að renna upp, er hann lézt, og Skygðu þeir um stund á frægð hans. Nú er bilið orðið svo langt í milli, að vér fáum séð hann í réttu ljósi. Þegar vér afhugum alt hlutdrægni- laust, verðum vér þess varir, að þarna höfum vér fyrir oss eitt af mestu stórmennum nýju sögunnar. Einn hinna nýrri þýzkra sagn- ritara hefir komist svo að orði um hann: “Friðrik, Prússakonungur, hefir orðið að þýzkri þjóðhetju, þótt bann hafi lítið sótzt eftir þeim heiðri. Hann kunni ekki að meta þann frama, er fyrir þjóðinni lá, sem dáði hann og lét skáld sín yrkja honum lof. En vilja sinn lét hann verða lög frá Austursjó til Mundíufjalla. Hohenzollern-ættin hafði enn ekki drýgt örlög sín. Heil öld varð að líða áður vilji þýzkrar þjóðar gerði hana að líf- verði heiðurs síns og valds, og óf örlög sín sainan við örlög hennar. Leiðin, sem eftir var farið að því markmiði, var sú leið, sem kjör- furstinn mikli og Friðrik mikli höfðu markað niður—leið ofbeld- is og harðýðgi, sem flest ríki nú- tímans hafa ferðast eftir.” Friðriki mikla var vel í hendur búið af forfeðrum sínum, því verð- ur ekki neitað. Hann gerði Prúss- land að stórveldi í fyrstu röð, þótt það væri minna land en nokkurt annað, er þar földust. Til að koma þessu til leiðar, hafði herinn verið honum það verkfæri, sem dugði. Menn bans fóru hvert sem hann skipaði þeim og gerðu hvað sem hann bauð. Sjálfur var hann lang- snjallasti hershöfðingi sinna tíma. Hann ríkti eins og harðstjóri, en í þeim einlæga tilgangi, að láta alt miða þjóð sinni til velferðar. Þjóð- in ihafði sjálf svo sem ekkert að segja. Einvaldurinn einn vissi, hvað henni var fyrir beztu og það lét hann hana fá. Hvort þjóðin sjálf áleit það gott eða ilt, gerði ekkert til. Alt var hér, eins og gefur að skilja, undir hæfileikum einvalds- ins komið: innsýn hans, fram- kvæmda fimleik, einbeitni og ein- lægni. Eftir hans dag rann upp alt annað en glæsilegt tímabil fyr- ir einveldið þýzka. En það var sök- um þess, að þá naut hans ekki lengur við, sem verið hafði bæði sverð landsins og skjöldur. Þá varð einvaldsstjórnin þýzba sér til all-mikillar háðungar. Hlutdeild Prússlands í sögu Norðurálfu var fremur léleg, unz nýr andi reis upp með þjóðinni sjálfri. Þá bar flóðald- an mikla, sem upp reis, Hohenzol- lern-einvaldinn á baki sér. En hún var sterkari en svo, að bans stýris- taumar héldu. Friðrik mikli skoðaði sig sem helzta þjón ríkisins. En í raun og veru var hann einungis þjónn Prússlands en alls ekki þjónn alls Þýzkalands. Þess vegna á hann naumast skilið, að vera skoðaður persónugerfing hins þýzka þjóð- aranda. Þýzka þjóðarandanum bar hann ekki mikla lotningu fyrir og skildi naumast til hlítar. önnur erfisögn hefir um hann myndast, sem lítið hefir við að (Fraanh. á 3. bls.) GISLI GOODMAN TINSHIBIIR. VerkatœBl:—Horni Toronto Bt. eg Notre Dame Ave. Pkune HelanUto Gnrrj 28S8 Garrr 809 J. J. B/LDFELL FASTEIGNASALI. Unlon Bnnk 5th. Floor lf«. IM Solur hús og lótíir, og annaiV þar aV lútandi. Útvegar penlngaláa e.fl. Phoie Maln 2685. v-_______ J TH. JOHNSON, Úrmakari og Gullsmiður Selur giftingaleyfisbréf. Sérstakt athyffli veitt pöntunum og viógrjöróum útan af landi. 248 Main St. - Phone M. 6406 J. J. Swanson H. G. Hlnrikaaon J. J. SWANSON & CO. fasteignasalah o« [■rnlnxa ■IW.F. Talnfmi Kala 2697 Cor. Portaee aad Garry, Wlaaia#( MARKET HOTEL 14« Prlar tmm Strtet á nótl marknlliani Bestu vlnföng’, vindlar og a«- hlynlnp góZ. íslenkur veitinga- maöur N. Halldórsson, letökein- Ir lslendingum. P. O’CÖNNKL, Eigandi WtiBlfcs Arnl Anderson E. P. Qarland GARLAND & ANDERSON LCGFRÆBISGAR. Phone Uala 1661 491 KUctric Railway Chambori. Taleiml: Main 5302. Dr. J. G. Snidal TANNLÆXNIR. 614 SOMERSET BLK. Portaee Avenue. WINNIPEG Dr. G. J. Gis/ason Phynlclan and Surseoa Athygli veitt Augna, Eyrna og Kverka SJúkdómum. Asamt innvortis sjúkdómum og upp- skurTJi. 18 Soath 3rd St., Grand ForBra, N.D. Dr. J. Steíánsson 401 BOYD BUII.DING Hornl Portare Ave. o( Edmonton St. Stundar elngrönsu augna, eyrna, nef og kverka-sjúkdóma. Er all hitta tri kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til t ,.h. Phone: Main 3088. Heimlll: 105 Oliria St. Tals. G. 2815 Vér höfum fullar blrsSir hrein- ustu lyfja og meSala. KomiR meö lyfsetSla yhar hineaS, vér gerum mebulin nákvæmlega eftir ávísan læknlsins. Vér slnnum utanevelta pöntunum og seljum giftlngaleyfi. : : : : COLCLEUGH & CO. Notre I)nme A Shcrbrooke Sta. Phona Garry 2ÓÖ0—2691 A. S. BARDAL selur líkklstur og annast um út- farir. Allur útbúnaSur sá bestl. Ennfremur selur bann allskonar minnisvaröa og legsteina. : : 813 SHERBROOKE ST. Pheae G. 2152 WINNIPEG ÁGRIP AF REGLUGJÖR9 um heimiliu’éttarlend í CaRada og NorSvestnrlandinB. Hver fjölskyldufatSir e3a hver karl- maöur sem er 18 ára, sem var brezkur þegn i byrjun strltisins og hefir veriti þaö silan, e*a sem er þegn BandaþjótS- anna etSa óhátSrar þjötSar, getur tekltl helmliisrétt á fjórtSunr úr sectlon af ó- teknu stjórnarlandi í Manltoba, Sas- katchewan etSa Alberta. Umsækjandl vertSur sjálfur atS koma á landskrlf- stofu stjornarinnar etSa undirskrlfstofu hennar í því hératii. 1 umboBi annars Skyideri—Sex mánatla ábútS og rsektun má taka land undir vissum skllyrtSum. landslns á hverju af þremur árum. í vlssum hérutSum getur hver land- Tandnemi fengitS forkaupsrétt á fjðrtS- unri sectionar metS fram iandl sínu. VertS: 13.00 fyrlr hverja ekru. Skyldur: Sex mánatSa ábútS á hverju hinna næstu þrtrrJa ára eftir hann hefir hlotitS elgnarbréf fyrlr heimilisréttar- landl sínu or auk þess ræktatS 50 ekrur á hinu seinna iandl. Forkaups- réttar bréf retur landnemi fengitS um leitS or hann fær heimlIisréttarbréfitS, en þó meti vissum skiiyrtSum.. LanJnemi, sem fengitS heflr heimilis- réttarland, en retur ekki fenritS for- kaupsrétt (pre-emptlon) retur keypt heimiiisréttarland I vlssum hérutSum. VertS $8.00 ekran. VertSur ats búa á iandinu sex mánutSi af hverju af þrem- ur árum. rækta 50 ekrur og byrrja hús, sem sé $300.00 virtSi. Þeir sem hafa skrifatS sir fyrir heim- illsréttarlandi, rota unnit5 landbúnats- arvinnu hjá bændum I Canada áritS 1917 or tíml sá reiknast sem skyldu- tfmi á landi þeirra, undir vissum skil- yrtSum. lierar stjórnarlönd eru aurlýst etsa tilkynt á annan hátt. reta heimkomnir hermenn, sem veritS hafa I herþjónustu eriendls or fenritS hafa heitiarlera lausn, fenrltS eins dars forranr* rétt til atS skrifa sir fyrlr heimiiisréttar- land! á landskrifstofu hératSslns (en ekkf á undlrskrifstofu). Uau.narbréf vertiur hann atS reta sýnt skrifstofu- stjðranum. W. W. COHT, Deputy Mlnister of the Xnterior. BlötS, sem flytja aurlýsinru þessa 1 heimlldarlcysi, fá cnga borgun fyrir.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.