Heimskringla - 29.11.1917, Page 5
5. BLAÐSIÐA
WINNIPEG, 29. NTV. 1917
HEIMSKRINGLA
Til kaupenda Heimskringlu:
Haustið er uppskerutími Heimskringlu, — Undir kaupendum
hennar er það komið hvernig “útkoman” verður. Viljum vér því
biðja þá, er ekki hafa allareiðu greitt andvirði blaðsins, að muna nú
eftir oss á þessu hausti Sérstaklega viljum vér biðja þá, sem skulda
oss fyrir fleiri undanfarin ár, að láta nú ekki bregðast að minka þær
skuldir. Oss munar um, þó lítið komi frá hverjum—því “safnast
þegar saman kemur”. — Kaupendum á þeim stöðvum sem vér ekki
höfum innheimtumenn í, erum vérum þetta leyti að senda reikninga.
Vonum vér að þeim verði vel tekið.—Sé nokkuð athugavert við reikn-
inga vora, erum vér reiðubúnir að lagfæra það.
Alt af eykst útgáfukostnaður blaðsins. — Munið að borga fyrir
Heimskringlu á þessu hausti.
S. D. B. STEPHANSSON.
Samt sem áííur Jinst mér þau
kvæðin bezt f þessu nýja safni, þar
sem yrkisefni er nokkuð ákveðnara.
Er það ef til vill sökum þess, bve
hugur minn er efnisbundinn, og eg
óvanur loftsiglingum.
Hann yrkir um daginn og segir
meðal annars:
3>að fylgir sigur sverði göfugs
manns,
er sannleiksþráin undir rendur
gedur
©g f reisksást í djarfri drenglund
elur,
það drepur enginn beztu vonir
hans:
hann veit, þótt sjálfur hnígi
hann í val,
að hugsjónin hans fagra lifa
skal.
Ekki ber hann Yestur-íslending-
um illa söguna, og ætti þeir að
muna með því að veita bók þess-
arri góðar viðtökur. Skáldið kann-
ast við:
----------endurborinn á
þar aðal móðir vor í góðum
sonuim,
þar frjáls og djört í drengskap
hjörtun slá,
seon drýgja orku’ en treysta’ ei
hvikum vonmn.
f nafni hennar þakka’ eg rækt og
rögg
og rétta sonanhönd í verki og
orði.
Eg veit þér bæruð fyrst af henni
högg,
ef harðbýl áþján leik hér sæi’á
borði.
I*á er kvæði hans um kirkjuna
gott. Guðmundur er trúhneigður
maður, ineð lotningu íyrir hinu
sanna og göfuga, hvar sem hann
verður þess var, og eitt af því, sem
honum er til foráttu fundið, er það
að hanri þræði of mjög alfaravegu.
Samt er hann langt frá að vera
nokkur kreddukrefetingur. Svo
mikið er víst.
þeirra manna, sem nú eru uppi.
Ekki vil eg heyra, að amast sé við
Guðmundi. Yér höfum sízt efni á
þvl. I>að er líkast þvf, að amast
við sunnanvindinum. þegar blær-
inn strýkur mýkst um vangann og
mestur yiiur er í honum.
Er ekki nóg af kaldrænunni samt
f Menzku loftslagi?
Bókin fæst til kaups hjá Finni
Jónssyni.
* 46.
Lúter um Þýzkaland.
Vér höfum lifað þenna mánuð
undir merki Lúters um leið og vér
höfum lifað undir áfagnaðanmerki
Styrjaldarinnar. Margur mun hafa
spurt sjálfan sig: Hvað skyldi
Lúter gamli hafa sagt, ef hann
hefði verið uppi nú og haft þá út-
sýn yfir iífið, sem nútíðarmaðurinn
hefir?
Orðiaus hefði hann ekki verið,
það eitt er víst. l>ví orð átti hann
svo að segja um hverja hreyfingu
og hver litbrigði lífsinis, er samtfð
hans lifði. Alt sem fram fór fjær
eða nær, varð honum að umhugs-
unarefni| og umræðuefni, ef svo
bar undir.
Til eru ummiæli eftir hann í borð-
ræðum hans um Þýzkaland, sem á
þessum tfmum eru næsta eftirtekt-
arverð, og rakst eg á þau um það
leyti, sem eg var að taka saman er-
indi það, er eg flutti um hann 31.
okt. Þau eru á þessa leið:
“Drottinn fer með þjóðir eins og
eg fer með gamla og fúna liimagirð-
ingu. Eg reiti hana upp og gróð-
urset aðra í stað hennar. Einu
sinni fyr á tímum var Þýzkaland
fagurt land og göfugt. En það
átti bráðlega að vera um það sagt.
Fuit Ilium—Ilionsborg er búin að
vera.
Opnið þið kirkjuna upp á gátt
í öllurn hamingju bænum!
Sjá kreddurnar fölvar sem liðið lík
á lausnarans ásjónu skyggja,
þær skipa sér umhverfis altarisbrík
og út þaðan ljótsi byggja.
Og hráslaga dragsúg um hvelfing
og kór
í Ihálfrökkri frá þeim leggur,—
»eð helbrostin augu, starandi, stór,
þær standa þar eins og veggur.
Ef frumkveðum veraidar framsókn
að
og framförum lof vér gjöldum
—á guðfræðin ein að standa í stað
sem steintröll frá liðnum öldum?
Sem ljósperla djúpt í gulldjásn
greypt
í guðfræði trúin skal lýsa
f eidinum guðmóðsins glóskfrð og
steypt,
í igjallþró skal soranum vísa.
Eftirmæiin í bók þessarri eru
gullfaileg flest, svo höfundinum er
sómi að. Þar tekst honum oft að
láta orðin falla svo fast utan um
hugsanir sínar, að öðrum tekst
þar naumast betur. Eftirmælin eft-
fr Björn heitinn Jónsison ráðherra
bera af, enda var efnið gott. Sú
mynd, er hann þar hefir dregið upp
af þeim ágæta forvígismanni þjóð-
ar vorrar, mun lengi lifa, hún er svo
eönn og hver dráttur skýr.
Stórhuga, geiglaus stóð hann fast
ó velli,
sterkur og fremstur jafnt til sókna’
og varna,
hugsjónum trúr og tryggur hélt
hann velli
til þess að rétta bluta landsins
barna,
rökifimur, skýr í riti, snjali f svör-
um,
röggsamur þó að orkan væri á
förum.
íslenzkra jökla íhátign yfir hvarmi
heiðrík og stórfeld lýsti’ af enni og
brúnum;
logandi eldur byltist dýpst f barmi,
bjarmanum sló á fjölda’ af huldum
rúnum.
Harðfylginn var hann hverju
réttu máli,
hjartað hans mótað gull f kær-
leiks báli.
Þótt Guðm. Guðmundsson hefði
ekbert ort nema þetta, hefði nafn
hans orðið uppi, fyrir að hafa lýst
svo rétt einum allra bezta og mesta
mannf, sem uppi hefir verið með
þessarri kynslóð.
Margt fleira gæti verið um bók-
ina að segja. Þeir sem hana nota
til jólaiosturs, fylla huga sinn fögr-
um og yndislegum hugsunum og
heyra um leið þann íslending tala,
sem ef til vill á þýðast tungutak
“Tacitus lýsir forn-Þýzkalandi
mæta vel. Hann hrósar forn-
þjóðverjum lyrir orðheldni. í því
efni tóku þeir öllum þjóðum öðr-
um fram.
“f fomöld stóð Þýzkaland sig vel.
En nú hefir þjóðin látið dygðirnar
dvfna. Hún er orðin hrottaleg,
stærilát og óskammfeilin.
“Þýzbaland er iíkast góðum og
fögrulm hesti, vel öldum. En góðan
reiðmann vantar. Þýzkaland er
auðugt, voldugt, og ágætt land.
“En það brestur illilega góðan
höfuðsmann og stjórnara.
“Eg hugsa oft uin það með hug-
arkvöl, hve ailgerlega Þýzkaland
hafnar öllu réttu ráðlagl í þessit
tilliti.”
Eg hafði gaman af, er eg rakst á
þessi umrnæli Lúters um landið,
sem hann unni svo heitt og átti
svo mikinn þátt 1 að gera frægt.
Mér fundust þau eiga ekkert síður
við það Þýzkaland, sem heiminum
er nú að verða betur kunnugt en
nokkuru sinni áður í mannkyns-
sögunni, en það Þýzkaland, «sem
Lúter þekti og hafði f huga, er
hann lét sér rata orð þessi af
munni.
Hve ólíkur Lúter tutuguistu ald-
ar hefði orðið nafna sínum á
sextándu öld. Hvílíkur leiðtogi
frjálsmannlegra hugsjóna í lýðfrels-
isáttina hann hefði nú orðið.
Hve hann myndi nú lesa hervald-
inu hattinn fullan fyrir hryðju-
verkin og mannúðarleysið, eins og
hann tautaði yfir sams konar at-
hæfi á tímum bændauppreistar-
innar þá.
-------o------
Dánarfregn.
Þann 16. júlf síðastliðinn andað-
ist á “Boyal Jubilee” sjúkrahús-
inu hér f bænum, húsfreyja Helga
Sæmundson, eiginkona ólafs Hall-
dórssonar Sæmundsons að 1418
Pembroke str. hér í bænum; hún
var jörðuð tvcimur dögum síðar í
“Boss Bay” kirkjugarðinum.
Helga sál. lá lengi all-þungt hald-
in, og munu veikindi hennar og
dauði hafa stafað af vondri byltu,
er hún hafði nýlega orðið fyrir, —
samfara elli-lasleika, því hún var
orðin háöldruð kona.
Foreldrar Helgu sál. voru þau
hjónin Árni Magnússon og Margrét
Þorkefedóttir, sem lengi bjuggu í
Brautarholti á Kjalárnesi f Gull-
bringusýslu á íslandi,—hvar Helga
fæddist þ. 25. ágúst 1846.
Systir Helgu var Halldóra, kona
Eiríks Ásmundssonar, sem bjó í
Grjótá í Beykjavík, móðir Áma
kaupmanns Eiríkssonar í Beykja-
vík.—Bróðfr Helgu, sem Þorkell
hét, dó hér, mjög gamall og hrum-
ur, að heimili hennar og ólafs, fyr-
ir allmörgum árurn síðan.
Helga var tvfgift. Fyrri maður
hennar hét Bjarni Eiríkssom, ætt-
aður frá Læk í Melasveit í Borgar-
fjarðarsýslu, og bjuggu þau f
Beykjavík. Þeim varð þriggja
barna auðið, af hverjum tvö dóu f
æsku, en eitt lifir, stúlka, Alríður
að nafni. Helga misti mann sinn
heima á íslandi árið 1882, en flutti
til Vesturheims með Alríði dóttur
sinni, þá 9 ára að aldri, fjórum ár-
um síðar (1886). í þrjú ár' vann
hún, fyrir sér og dóttur sinni í Win-
nipeg, eða þar til þann 23. júlí 1889,
að hún giftfet eftiriifandi manni
sínum, ólafi Halldórssyni, ættuð-
um úr Borgarfjarðarsýslu, — sem
fluzt hafði vestur um haf árinu áð-
ur (1888). Árið 1890 fluttu þau vest-
ur til Seattle, Wash., og bjuggu þar
eitt ár, en fluttu svo hingað til bæj-
arins 1891, og hafa búið hér æ síðan,
Aflrfður, dóttir Helgu, giftist hér
í bænum ,þ. 26. maí 1897, enskum
manni, Joseph Henry Griffitbs að
nafni, og búa þau hér, hvar hann
hefir lengi verið í þjónustu fylkfe-
stjórnarinnar. Þau hjónin hafa
eignast sex mannvænleg börn, og
er elzti sonur þeirra, Leonard Glad-
stone Griffiths, nú 19 ára, en hefir
þó verið í hernum í rúm tvö ár, og
hefi eg minst á ihann í “Heimskr.”
áður. Hann er nú búinn að vera f
rúmt ár á Frakklandi, hefir særst
nokkuð einu sinni, en er nú orðinh
vígfær aftur.
Helga sáL var mikil þrifnaðar- og
dugnaðar-kona, gestrisin — eins og
maður hennar—, greind og fróð um
marga hlutl, enda keyptu þau
hjónin mikið af íslenzkum bókum.
Ólafur hefir einnig verið hinn mesti
hraustleika- og dugnaðar-maður og
var því heimill þeirra æ hið mynd-
arlegasta.
Þeim ólafi og Helgu varð ekki
barna auðið, og er því missir hans
og einstæðingsskapur því tilfinn-
anlegri, oinkum þar sem hann er
nú orðinn gamall maður—kominn
á áttræðisaldurinn, og því eðlilega
farinn að láta ásjá, eftir svo langt
og strangt æffetarf. — Þó má þvf
ekki gleyma,—og það er mikil
raunabót—, að hin myndarlega
stjúpdóttir hans, Mrs. Griffiths,
mun aðstoða hann, í ellinni, eftir
beztu föngum.
Victoria, B.C., 9. nóv. 1917.
J. Asgeir J. Líndal.
Islenzkt fé á Grænlandi
Haustið 1915 voru fluttar 200 ær,
2 hestar og fjárhundur til Græn-
lands. Þessi tveggja ára reynsla er
þannig, að fyrri veturinn 1915—1916
gekk tfé að mestu leyti úti, en síð-
astliðinn vetur getur naumast heit-
ið að fé hafi komið f hús. Fyrri
veturinn var á að gizka meðal vet-
ur, en síðastliðinn vetur var sérlega
góður. Þannig var snjólaust um
alt Græinland fram í marzmánuð.
Þá kom snjófall um alt Grænland,
eni á Suður-Grænlandi var þá kom-
ið vor og sumarhiti, svo að snjóinn
leysti næsta fljótt.
Oa. 40 ára veðurathuganir á Græn-
landi sýna, að þar eru mjög tíð
logn og heiðríkjur. Þar koma þó
að ihaustinu, en þó einkum að vetr-
inum, hvassir stormar. Það eru
ýmist suðvestan vindar, sem blásið
hafa yfir golfstrauminn í Davis-
sundinu, cru heitir líkt og íslenzkir
vestanvindar og fylgir þeim mikið
regn, eða það eru iheitir og mjög
þurrir austanvindar, sem hafa
hitnað og þornað af því að blása
yfir grænflenzka liálendið. Þessir
vindar eru tíðastir á Suður-Græn-
landi, en á Norður-Grænlandi fá
staðviðrin meiri yfirhönd. Á Vest-
ur-Grænlandi fellur ekki snjór
nema af norð-vestlægri átt, og verð-
ur snjófallið mest á útkjálkum, en
margfalt minna f dölunum inni f
landinu.
Fyrir fjárræktartilrauninni á
Grænlandi stendur danskur mað-
ur. Féð var keypt f Skagafirði og
Eyjafirði, rekið suður til Beykja-
víkur um sumarið 1915 og þaðan
flufct sjóveg til Júlíönuvonar, sem
er yzt á útkjálka einum í Eystri-
bygð á Grænlandi. Þar höfðu ver-
ið gerð hús handa fénu og safnað
saman ofurlitlu af heyi. í Júlíönu-
von er gott að sitja íyrir fjármann-
inn, því að þar er dálítið þorp, en
á þessum stað er nær ómögulegt að
safna neinna heyja, vegna þess hve
landið er grýtt og on’gjalaust. Þar
eru og engin forn-íslenzk tún til að |
slá, því á þessum s!að var engin
bygð til forna, enda eru margfalt
betri landbúnaðarskilyrði inni i
dölum. Þar gekk fé í þúsunda tali
úti til forna. Sanna það bæði rann-
sóknir í hinum fornu rústum, svo
og gömul heimildarrit. Inni í döl-
unum eru og sögð mikil engja-
lönd.—lsafold.
-------o--------
Kvörtun og þakkir.
EiDdur fyrir löngu var Dr. Sig.
Júl. Jóhannessyni sent kvæði til
birtingar í Lögbergi. S'.vöi rit-
stjórinn mér frá þessu kvað
þetta vera lofkvæði ti mín. —
Kvæði þetta hefir átt að koma í
blaðinu í síðast liðna fjóra mán-
uði, en er ókomið enn. Það er lfkt
með það og hroppsómaga, sr n eng-
Inn vfll hafa og verð r. úti á 1
flækingi. — Þakka eg höfundinum
innilega fyrir kvæðið, þó eg fái
ef til vill aldrei að sjá það. Eg
fékk að lfta á hornið að bréfi því,
er hann skrifaði ritstjóra Lögbergs
og sá þar, að hanm er sannur son-
ur Islands og ber hlýjan hug í
garð alls, sem fslenzkt er. Einnig
þakka eg Lögbergi fyrir að bera
kvæðið mibt “Hrópið”, en handrit-
ið hefir verið mjög illa lesið og
breytingar gerðar á kvæðinu mjög
til hins verra, og hlýt eg því að
biðja um endurprentun á þvi. —
Vona eg að þessi beiðni mín verði
tekin til greina.
R. J. Davidson.
Landbúnaðarframfarir
á Englandi.
Allar þjóðir hafa nú á ófriðartfm-
unum neyðst til þess að snúa at-
hygli sinni að landbúnaðinum.
Englendingar eru að auka hann
lijá sér f stórum stfi síðan aðflutn-
ingshindrun kafbátanna fór að
sverfa að þeim. Flatarmál ræktaðs
iands hjá þeim var fyrir stríðið 10
miljónir ekra, en. nú á að stækka
það upp í 14 miljónir e(kra, og er
það þá orðið jafnstórt og það var
fyrir 40 árum, en þá voru Englend-
ingar iandbúnaðarþjóð.
Þetta mitola ræktunarverk er
byrjað með kappi og á að komast
f kring á einu ári. Frá byfjun ófrið-
arins hefir ræktaða svæðið þegar
verið stækkað um 700 þús. ekrur og
er það svæði alt notað nú í ár und-
ir umsjón stjórnarinnar. Ekki lít>
inn þátt í framleiðslunni eiga um
500 þús. húsamannaheimili, og hefir
tala þeirra aukist um 300 pct. Þá
eru garðaeigendurnir, sem hafa
tekið til matjurtaræktunar svæði
þar sem áður voru blómsturbeð og
grasfletir. Hve miklu framleiðsla
þeirra nemur, er ekki hægt að segja
með vissu. En þéssi aðferð er al-
menn og hlýtur að auðga að mikl-
um mun matvöruframleiðsluna.
Næsta ár mun landbúnaðarfram-
leiðsla Englands verða eins há og
hún hefir verið nokkru sinni áður,
eða eins há og hún var fyrir 40 ár-
urn, en þá fullnægði hún í flestum
greinum þörfumi landsmanna án
innflutnings. Það er sagt, að stækk-
un hin ræktaða lands heimti auk-
inri vinn'ukraft handa landbúnað-
inum, er nemur 100 þús. manna.
Uppdrættir eru gerðir af öllu land-
inu í þarfir þessa ræktunarfyrir-
tækis,"og svo er sagt fyrir um þáð,
hverjir blettir skuli ræktast og
hvað skuli rækta á hverjum stað.
Stjórnin skuldbindur sig til þess
að sjá fyrir hestum til vinnunnar.
Annars verða allskonar vinnuvélar
mjög notaðar, og stjórnin leggur
til menn, sem stjórna þeim. Alt
verður unnið eftir föstum reglum.
Áburðarofni eiga að flytjast að frá
öðrum heimsálfum.
Þetta sýnir fyrirtækið í stórum
dráttum, en bak við það stendur
öll enska þjóðin. Danskt blað,
sem frá þessu skýrir, segir að’þetta
ræktunarfyrirtæki Englendinga
muni draga ekki Mtið úr markaðin-
um fyrir danskar landbúnaðaraf-
urðir í Englandi, og að hyggilegt
væri fyrir Dani að gefa gætur að
því tíma_Lögrétta.
Nefið Stíflað afKvefi
eða Catarrh?
REYNIÐ ÞETTA!
Sendu cftir Breath-o-Tol In-
haler, minsta og einfaldasta
áhaldi, sem búið er tiL Set+u
eitt lyfblandað hylki, — lagt
til með áhaldinu — f hvern
bollana, ýttu svo bollanum
upp í nasir þér og andfærin
opnast alveg upp, höfuðið
frískast og þú andar frjálst
og reglulega.
Þú losast við ræskingar og
nefstiflu, nasa hor, höfuð-
verk, þurk—erígin andköf á
næturnar, því Breath-o-Tol
tollir dag og nótt og dettur
ekki burtu.
Innhaler og 50 lyfblönduð
hulstur send póstfrftt fyrir
$1.50. — 10 daga reynsla; pen-
ingum skilað aftur, ef þér er-
uð ekki ánægðir.
Bæklingur 602 ÓKEYPIS
Fljót afgreiðsla ábyrgst.
Alvin Sales Co.
P. O. Boz 62—Dept. 502
WINNIPEG, MAN.
Búið tU af
BREATHO TOL OO’Y
Suite 502, 1309 Arch Street,
Philadelphia, Pa.
Séra Jónas Jónasson
sagnaskáld, fór alfarinn af Akur-
eyri með fjölskyldu sinni um mið-
jan september í haust og settist að
á Útskálum lijá séra Friðriki syni
sínum. “Akureyrarbæ er miikill
missir að séra Jónasi,” segir Norð-
urland frá 20. sept. “Hann hefir svo
Oft brugðið kindli sínum yfir efn-
isliyggju fjöldans, að kunnugt var
orðið, að hann réði yfir þeim vita,
er gat varpað ijósgeislum langt og
vfðs vegar.” Akureyringar ætluðu
að halda honum kveðjusamsæti og
fólki hans, en úr því varð ekki
vegna þess, að hann var ekki heill
heilsu. Hefir hann verið 32 ár f
héraðinu, jrar af síðasta áratuginn,
eða þar um bil, á Akureyri. Séra
Matth. Jochumisson kvaddi þau
hjónin með kvæði, sem þetta er
upphaf að:
“Heiðruðu hjón,
sem héðan tfarið
fátæk af forða 1
fjár og heilsu:
Auðugri ykkur
af öllu góðu
fluttust fá hjón
úr firði þessum.”
(Lögrj.).
------o---------
STÖKTTR.
Skyldi nokkur éta vilja súpuna
sanga,
soðna niður lengst íram á óþrita-
tanga?
Lögberg hefir traustið á Laurier
og Manga,
en lfkblæjumar dökku þó yfir
þeim hanga.
Svika mörgu þroskuðu eplin nú
anga,
á aldinviðum mælskunnar tæflandi
hanga;
þeim skal út í almenning óvita
pranga—
til útbýtingar fengu og leigðu þetr
Manga.
Gjörði ’ann áður riokkru sinni
rétta hlið ranga?
Reyni enginn neitt til að hnýta i
Manga;
en leggi hann út frá Lögberginga
Lauriers tanga,
leið og ströng mun verða honum
síðasta ganga.
Atkvæðin hann ölhi heldur fýsir
að fanga;
fer á Gránu móðri, því ekki skal
ganga;
leggur út á Gak Foint og Lundar,
út þangað
við Laurierites og bændadætur
verður nú mangað.
J. G. G.
BRUNI.
HúsiS var afskekt, — ilt aS leigja,
En á sköttum var lítil sveigja.
Bölvans árferði á alla lund.
Þetta var gisinn gargans hjallur,
gluggaskældur og dyrahallur,
rottukastali og rakadallur.
Kjallarans ætt var ilt aS þola,
og efsta loftiS var "spólu” hola;
stopul afgjöld, en stöSugt þrusk.
MiSlofts-ágóSann árinn hirSi:
Uppgjafa-sýsli, landsins byrSi,
sem engum borgaSi eyrisvirSi.
Eflaust vefengja enginn þyrSi
aS eigandans neyS var jötunbyrSi.
Fjármálaskorti og ráSlaust rangl,
ÞaS varS tunglskin í tómlætinu,
er tók Kann fyrst eftir snjallræSinu,
andvökunótt í náttmyrkrinu.
Honum virtist sem "vátryggingin”
vildi ólm aS þau “settu upp hringinn”.
Hún var brosandi og hneigSi ,sig:
"Komdu nú burt frá þrautum þínum,
þigSu af mér staup af lánsins vínum;
svalaSu þér á sjóSum mínum.”
Þá var lagt út í laumuspi'iS;
lýsi jóSlaS um neSsta þiliS. --
Nú kom svitinn og hik og hlé.
Aumkvun hjalaSi’ um hugarranninn
aS hart væri aS leika suma þanninn.
Þótt syndlaust væri viS sýslumanuinn.
“En þaS er nú svona, guS minn góSur,
eg get ekki þolaS klafa’ og tjóSur,
skuldir, refjar og rottugang.
Slepp eg ekki’ inn englaskara,
þótt altsaman hyskiS láti’ eg fara?
Þú ætlast fráleitt til fyrirvara.”
/
Stormur rar úti, «n stilt var inni,
og steinhljóS algert h'já forsjóninni.
Máninn skimaSi’ um skýja göfc.
Hvarflandi ljós meS hvimi og rjáli
hvíslaSi aS spónum leyndarmál^-------
Og húsiS var alt > björtu báli
í bruna hafSi menn lengi langaS,
svo lýSurinn allur hentist þangatt. —
Einsamall slapp þar eigandinn.
En hér var mannh fsins happavegur
hálfvegis talinn grunsamlegur.
I augu horfSist sá “hólpni” tregur.
ÞaS er garSur meS örlög-ís«,
er eldar grunsemda í múgum rfsa
og svella umhverfis sekan mann.
Þá eru ónýtt öll hans vígi.
Úthaldslaus verSur hverskyns lýgi
og viljans tæring á versta stigi.
AS dýrindis “æra” dytti í möla
og dýflissuna var fært aS þola.
Hitt varS kveljandi kvíSaþraut,
sem háSi' ’onum allan æviveginn:
aS yrSi sál hans í þrætur dregin
viS sýslumannshrokann — hinu megin.
Jakob Thorarensen.
—Skírnir.