Heimskringla - 28.03.1918, Side 6
6. BLAÐSiÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 28. MARZ 1918
r
VILTUR VEGAR ^ Rex Beach
Þegar Kirk var farinn að venjast ögn við alt
Jjarna inni, tók hann að líta í kringum sig. Kom
honum alt frekar einkennilega fyrir sjónir og veitti
Jjví einna fyrst eftirtekt, að engar myndir voru á
veggjunum. Húsmununum, sem virtust fornir og
vandaðir, var raðað í ferhyrning í stofunni, og á
miðju gólfinu stóð gríðarstór leirkrukka, skreytt
margvíslegu útflúri. Upp við einn vegginn var
skápur úr útskornum mahóníviði og á efstu hyllu
hans var raðað skeljum og ýmsum fásénum munum.
Hér og þar á gólfinu stóðu líkneski af öllu tagi og
með mismunandi staerðum, sum þeirra úr vandað-
asta postulíni, en önnur úr vanalegu leirkeraefni. I
einu horni stofunnar var líkneski úr lituðu postulíni
af tígrisdýri í fullri staerð, grimdarlegu mjög og sem
virtist í þann veginn að stökkva á bráð sína. Augu
Jjess voru úr gleri, galopin og starandi — alveg eins
og augu fraendans frá Guatemala — og var þetta
ekki aðlaðandi sjón í augum ókunnugs aðkom-
anda. Kom sér nú vel, að Kirk var taugasterkur
maður, en ekki var þó neitt, sem fyrir augu hans
fcar þarna inni, uppörvandi fyrir hann eða hressandi.
Út á hvað umræðurnar gengu við þetta tæki-
færi, gat hann aldrei eftir á glöggvað sig með neinni
vissu. Þegar töluvert áliðið var orðið kom ind-
verska þjónustukonan hljóðlega inn í stofuna með
stóran silfurbakka á lofti, sem á var raðað smærri
diskum með aldinum. — Skömmu síðar var búið að
breiða stífaðan dúk á kné Kirks og búið að rétta
honum aldina-disk og gaffal, glas af víni og stóra
köku — sem tæpast þoldi, að á hana væri litið,
hvað þá, að hún væíri snert — og með því að hafa
einlægt tvent á lofti í einu, gat hann einhvern veginn
komist slysalaust í gegn um athöfn þessa.
Þegar að tíma þeim leið, að hann tæki að hugsa
til heimferðar, bjóst hann hálfvegis við því, að hon-
um yrði leyft að tala fáein orð einslega við Gertrud-
is áður en hann færi. En slíku var ekki að fagna.
Honum var fylgt til dyra með sömu viðhöfninni og
hann var leiddur til stofu þegar hann kom. Virtist
Kirk þetta einna líkast því, að hjá fólki þessu væri
hann frekar skoðaður fangi en frjáls maður! Var
því ekki laust við, að hann drægi andann léttara
þegar hann loksins var kominn út á götuna aftur.
En endurminningin um hið hlýlega andlit Gertrudis
og meðaumkvunarsvip kom honum þó brátt til þess
að gleyma öllum undangengnum þrautum. Hann
gekk yfir götuna í áttina heimleiðis og er hann var
kominn upp á gangstéttina hinu megin, leit hann um
öxl sér í áttina til Garavels hússins og sá þá bregða
fyrir mannsmynd í myrkrinu fyrir aftan sig og sem
var í þann veginn að hverfa út í skugga hliðargöt-
unnar. Auðsjáanlega hafði Allan ekki getað staðist
freistinguna og hafði veitt honum eftirför í þeirri
von — að geta heyrt hann flytja bónorðið! Kirk
brosti og tók að hraða göngu sinni, en þegar heim
kom, varð hann meir en lítið hissa að hitta Allan
þar fyrir, sitjandi rólegan eins og ekkert hefði í
skorist. ?
“Hvernig gaztu komist heim á undan mér?”
spurði Kirk hann.
“Eg hefi beðið hér með mestu óþreyju síðan þú
fórst. Á mig rann þó einu sinni blundur og dreymdi
mig—”
“Veittir þú mér ekki eftirför?”
“Nei, herra. Slíkt gæti eg ekki látið um mig
spyrjast.”
Kirk þóttist vita, að svertinginn myndi satt segja
og komst því að þeirri niðurstöðu, að einhver hefði
verið að njósna um ferðir hans. En ekki virtist
honum þetta alvarlegt eða þýðingarvert og hætti
|jví brátt að hugsa um það.
“Og hverju svaraði kvenmaður þessi þeirri til-
lögu þinni, að hún giftist þér?” spurði nú Allan.
“Guði sé lof — hann einn veit hvaða kvalir eg verð
að þola, ef þú segir mér ekki tafarlaust hið sanna.”
“Það varð ekkert úr bónorðinu í þetta sinn.
Heil samkunda af skyldfólki hennar var einlægt í
stofunni. Sat fólk þetta í keltu minni alt kvöldið.”
“Ef til vill er þetta Iánlegt, eftir alt saman.
Senorita þessi er afar auðug, og eyðslusemi hennar
gæti sett okkur alveg á höfuðið.”
Kirk gat einhvern veginn losast við sinn þrákelkn-
islega þjón á endanum og gekk þó tafarlaust til hvílu
---til þess að láta sig dreyma feimnislegar spánskar
stúlkur, sem huldu sig á bak við ófrýnilegar kerling-
ar og horfðu þaðan til hans, stór postulíns tígrisdýr,
sem hógu tryllingslega við spaugsyrði hans, og
Guatemala frændur, sem stöðugt blindu á hann
kolsvörtum augum, galopnum og starandi.
• ’ )
XXII. KAPITULI.
Runnels hafði að vísu búist við breytingum á
stjórn brautarinnar, eins og hann hafði sagt, en þó
«
var eins og honum yrði hverft við, er hann kom til
skrifstofu sinnar einn morgun og varð þess vísari —
að hann væri orðinn einn af helztu meðlimum
stjórnaráðsins og falin öll æðsta umsjón við braut-
ina. Dróg hann ékki að senda eftir Kirk, sem tók
gleðifréttum þessum með mesta jafnaðargeði.
“Ekki er þetta þó alveg fastákveðið,” sagði
Runnels og leit skarplega til hans. “Það á að reyna
okkur, og ef við gefumst vel, fáum við að halda
þessum stöðum, annars ekki.”
“Eg mun reyna að gera mitt bezta.”
"Eg er nú orðinn Blakely hlutskarpari, þrátt fyr-
ir Jolson gamla, og kvíði því engu. Umskifti þessi
komu þó fyr en eg átti von og nú er við, þú og eg,
erum teknir að halda hér um stjórnvölinn, verðum
við að sýna umheiminum, hvað í okkur býr.”
Kirk hneigði sig. “Þú verðskuldar þeta fyllilega,
en hve mig snertir, er mér óskiljanlegt hvernig á því
stendur, að eg kemst upp á við svo fljótt og fyrir-
hafnarlítið. Margir hér eru mér fróðari í öllu, sem
að stöðu þessari lýtur og hæfari til að skipa hana.
Eg hlýt að vera lánsmaður.”
“Heldur þú virkilega, að þetta sé hepni eða
lán?” mælti Runnels og leit til hans eins og forviða.
“Eg er ekki nógu mikill sjálfbyrgingur, til þess
að halda þetta orsakast sökum gáfna minna og
hæfileika.” ?
“Það eru Cortlandts hjónin, sem standa á bak
við -þetta alt. Þau hafa lagt á öll ráðin með þetta
og eiga stærsta þáttinn í breytingunum — virðast
hafa gert þetta mest þín vegna, en þó stend eg og
aðrir hér engu síður í þakkarskuld við þau.”
“Er þú segir ‘þau’, býst eg við þú eigir eingöngu
við ‘frú Cortlandt’.”
“Auðvitað. Ekki má þó alveg ganga fram hjá
manni hennar. Hann var í raun og veru mikið við
þetta riðinn og svo mikið er víst, að hefði hann
snúist á móti þessu, þá hefði það ekki komist í
gegn að svo stöddu.”
“Eg get ekki neitað, að grunur um þetta hefir
gripið mig stundum,” mælti Kirk og var hugsandi,”
“en var þó að vona, að mér myndi hepnast að kom-
ast hér áfram af sjálfsdáðum.”
Runnels hló. “Hefðir þú ekki reynst jafnvel,
þá hefði þetta aldrei getað átt sér stað. En þetta
er stjómar starf og engir af okkur nægilega vel
gefnir til þess—að komast upp á við af sjálfsdáðum.
Til þess þyrftum við að vera meir en menskir. Ef
ekki hefði verið fyrir afskift þeirra Cortlandts, hefðu
einhverjir aðrir, með áhrif að baki sér, fengið þess-
ar stöður. Athugum Blakely, til dæmis. Hann er
enginn garpur og öll þekking hans á starfsmálum
brautarinnar frekar bágborin, en hann er tengda-
bróðir Jolsons og þetta gerir mismun sem nægir.
Hann var því sjálfsagður að skipa þessa stöðu, ef
vinir okkar hefðu ekki komið til sögunnar. Láttu
samvizkuna lúra í friði og kærðu þig kollóttan, þó
önnur öfl en þitt eigið hafi komið þessu til leiðar.”
“Eg vildi gjarnan við gætum sýnt þeim Cort-
landts hjónum einhverja viðurkenningu þess, sem
þau hafa fyrir okkur gert; en ekki fáum við þakkað
henni neitt, án þess að gera lítið úr honum um leið.
Þakklæti okkar verður að birtast í gegn um hann.”
“Hví ekki að bjóða honum til kvöldverðar ein-
hvern tíma áður langt líður og tjá honum þá hrein-
skilnislega þakklæti okkar? Vafalaust er hann sá
maður, að taka þessu vel og myndi þetta engu síð-
ur votta konu hans þakklætishug okkar.”
“Ágætt—eg skal tafarlaust minnast á þetta við
samverkamenn okkar. En nú finst mér svo komið,
viðeigandi sé að aðstoðar ráðsmaður brautarinnar
taki í hönd þess, sem nú er seztur við aðal stjórn-
völinn, og árni honum allra heilla.”
Runnels tók þétt og innilega í hina útréttu hönd
Kirks.
“Heyrðu, Anthony,” mælti hann. “Við erum
ungir enn þá og höfum nú fengið góða byrjun. Hafi
eg eitthvað, sem þig skortir, og þú eitthvað, sem
mig ákortir, þá ætti samvinna okakr að geta borið
bezta árangur. Við ættum að geta orðið járnbraut-
areigendur sjálfir með tíð og tíma, eða hvað finst
þér? ”
“Slíkt væri óumflýjanleg afleiðing af orsök.”
Þrunginn af áhuga tók Kirk að sinna hinum
nýju skyldustörfum. Honum duldist ekki, að hann
hafði stigið risaskref upp á við, en þótti lakast, hve
mikið þetta væri frú Cortlandt að þakka! Þó fanst
honum sjálfsagt hann hljóta sjálfur að eiga einhvern
þátt í þessu — annars hefði honum tæplega verið
veitt jafn vandasöm og ábyrgðarmikil staða, og
ánægjuauki var honum sú tilhugsun, að í baráttu
sinni áfram við brautina hefði hann aldrei stjakað
neinum manni úr vegi; fyrirrennarar hans höfðu
annað hvort sjálfviljuglega verið að hætta eða þeir
hefðu verið að fá hækkun sjálfir.--------Og í sam-
bandi við þetta alt gleymdi Kirk ekki að taka til
greina, hve mikil áhrif þetta gaeti haft á banka-
stjórann, Anders Garavel.
En staðan nýja færði honum nýjar þrautir og
áhyggjur. Runnels aðstoðaði hann eftir föngum, en
létti þó lítið undir með honum — var önnum kafinn
sjálfur — og í fyrsta sinni á æfinni fékk nú Kirk að
reyna, hve mikil ábyrgð þýddi. Svefntími hans varð
styttri; hann varð nú að taka á öllum sínum kröft-
um og mátti hvergi af draga; hann varð að reka
sjálfan sig áfram með járnhendi. Þó störf hans væru
örðug og margbrotin, var öðru nær, en hann vildi
uppgefast og hans mikla æskumannsþrek og óbilandi
gerði það líka að verkum, að oft fékk hann afkast-
að feikilega miklu. Sömuleiðis var hann svo vand-
virkur við öll sín störf, að Runnels hafði fáa starfs-
menn þekt honum fremri.
Einn árangur höfðu hans miklu áhyggjur, sem
hann var þakklátur fyrir; þær aðskildu hann og frú
Cortlandt og komu honum til að gleyma hinum leiða
atburði, er þau síðast voru saman. Enn þá gerði
þetta honum þó gramt í geði, kæmi það upp í huga
hans. Ekki fann hann mikla ástæðu til þess að á-
saka sjálfan sig—því þó hann játaði, að hafa gleymt
sér allra snöggvast kóldið góða á Taboga-
ey, þá hafði hann aldrei farið lengra í sakirnar, en
að skoða hana vin sinn. Háttalag hennar í skógin-
um hafði því komið honum meir en lítið á óvart.
Er hann nú hnugsaði um þetta eftir á, virtist honum
það nærri óskiljanlegt, en um þýðingu orða hennar
hafði þó ekki verið að villast. Aldrei hafði hann
séð hana jafn æsta og kæruleysislega og við þetta
tælkifæri. Með viljaþreki og með því að leggja sig
allan eftir starfi sínu fékk hann samt sem áður smátt
og smátt hrakið þessar leiðu endurminningar úr
huga sfnum.
Skömmu eftir umskiftin við brautina, fékk hann
hlýlega orðað skeyti frá Garavel bankastjóra og
árnaðaróskir, og nokkru seinna fékk hann frá
þeim sama boð til kveldverðar, sem hann þáði
þakksamlega.
Kvöld þetta varð honum þó til nýrra vonbrigða,
því ekki var honum leyft að tala eitt orð við Gert-
rudis einslega, og varð að láta sér nægja að horfa á
hana. En þó öll fjölskyldan væri þarna viðstödd
eins og í fyrra sinn, þá varð Kirk brátt var við það
sér til mestu nndrunar, að alt annar svipur var nú
yfir fólki þessu en áður og viðmót þess að mun þýð-
ara f hans garð. Ekki duldist honum þó, að enn
væri verið að rannsaka hann og athuga — rann-
sókninni væri enn ekki lokið; enn hélt Garavel fjöl-
skyldan honum í mátulegri fjarlægð* sem sýndi ljós-
lega að enn vaéri hann ekki búinn að vinna sér fult
traust hennar.
Seinna um kvöldið fóru allir úr stofunni nema
Gertrudis og gamla konan, sem áður hefir verið frá
skýrt, og af því Kirk vissi að kerling skildi ekki eitt
orð í tungu hans, ávarpaði hann Gertrudis á ensku
og reyndi að bera sig til eins eðlilega og honum var
unt.
“Eg var sorgbitin þín vegna, Senor,” var svar
hennar gegn hálf-spaugilegri kvörtun hans, “síðast
þegar þú varst hér. Það leyndi sér ekki, að þú varst
mjög skelkaður.”
“Ekki var það, en eg varð fyrir miklum von-
brigðum. Eg hélt eg myndi fá að tala við þig eins-
lega.”
“Ó, slíkt er aldrei leyft.”
“Aldrei leyft? Hve nær fæ eg þá tækifæri til
að biðja þig að giftast mér?”
Ungfrú Garavel varð eldrauð í framan og huldi
andlitið á bak við blævæ/ng sinn. “Að dæma af
þeirri litlu viðkynningu, sem eg hefi af þér, finst mér
þú vera líklegur til þess að spyrja þeirrar heimsku-
legu spurningar við hvaða tækifæri sem er,” mælti
hún.
"Eg vildi feginn þú leiðbeindir mér, kendir mér
siði ykkar.”
“Hvað fýsir þig helzt að fá að vita?”
“Hvers vegna umkringir öll fjölskyldan mig
þannig? Eg 'kem ekki hingað með því markmiði
að stela héryneinu — til þess að ganga úr skugga um
það, má leita í vösum mínum áður en eg fer!”
“Fólk mitt er ef til vill að gera tilraun að kynn-
ast þér, að reyna að komast eftir, hvaða mann þú
munir hafa að geyma.”
"En hver sem væri, myndi finna til samvizku-
bits, að baka vesalings fólkinu allar þessar á-
hyggjur.”
Hún leit til hans með hálf-feimnislegu augna-
ráði. Leggur þú nokkra sérstaka þýðingu í það,
að faðir minn skuli hafa boðið þér til kveld-
verðar? ”
‘ Vitanlega geri eg það — býst við þetta þýði,
að ekki eigi að útiloka mig sökum framkomu minnar
í fyrra sinn. Og eftir að eg er orðinn löggildur með-
limur samfélagsins hér, verður mér að líkindum
leyft að halda áfram ettir vanalegum reglum.”
Hún roðnaði yndislega í annað sinn. “Þar sem
þú ert svo fáfróður viðkomandi siðum okkar, ættir
þú að leita þér frekari upplýsinga við fyrstu hent-
ugleika. Eg ráðlegg þér að læra sem fyrst spanska
tungu.”
“Vilt þú vera kennari minn? Eg skal koma á
hverju kveldi.”
Hún svaraði engu, því nú var gamla konan farin
að gerast forvitin, og hófst því löng samræða á
spönsku, sem Kirk skildi ekki. Gekk hann ekki að
því gruflandi, að kerling myndi vera þarna á verði
og undi þéssu afar illa.
Þegar að þeim tíma leið, að hún vildi frá þeim
fara og taka á sig náðir, þrammaði hún með tignar-
svip miklum til dyranna og hrópaði þar á Stephaniu,
og leið þá ekki á löngu að hin stórskorna svarta
þerna Gertrudis gert vart við sig. Þá loksins
fékst sú galma til að fara — og sýndi þetta Kirk
ljóslega, hve lítið traust Garavel fjölskyldan bæri til
hans að svo komnu. Þar sem þerna þessi kunni
ensku, varð nú samtal þeirra Gertrudis og hans
þvingaðra og óeðlilegra en áður. Tók hann því áð-
ur langt leið að búast til heimferðar, og þó hann
hefði nú orðið fyrir töluverðum vonbrigðum, sem í
fyrra sinn, var hann ek"ki hið minsta niðurdreginn.
Bónorðið gekk að vísu fremur treglega; þegar hin-
ar örðugu kringumstæður voru teknar til greina,
mátti þó segja, að það gengi eftir öllum vonum.
Næsta dag mætti Kirk Ramón Alfares og við
það tækifæri jókst skilningur hans að miklum mun
á hinum einkennilegu siðum Spánverja. Var Ramón
að bíða fyrir framan skrifstofu hans, sýnilega með
þeim ásetningi að hafa tal af honum. Byrjaði hann
ræðu sína á spönsku og svo var hugaræsing hans
mikil, að hann skalf og titraði á beinum.
“Þú verður að leika þetta alt upp aftur,” varð
Kirk að orði. “Eg er að eins nýbyrjaður að átta
mig á sögninni 'amar’. Af hvaða andlegri sýki þjá-
ist þú í þetta sinn?”
“Ha! Allra snöggvast gleymdi eg fáfræði þinni
—en fyrir þína svívirðilegu breytni verður þú mér
að svara.”
Með mestu ánægju. Til þess eg geti skilið
spurningar þínar, mátt þú ekki vera jafn-óðamála!”
“Skildu það líka,” hélt Spánverjinn áfram, “að
hvað sem fyrir mig kemur, skal þetta aldrei fram
koma. Svo skammarlegur atburður skal sér ekki
stað eiga; um það máttu viss vera, þó síðasti blóð-
dropinn renni úr mínum æðum. Eg hefi fyrirlitið
þig, seno’r, en hefi vanrækt að refsa þér, þar sem eg
hefi haft vandasömum stjórnmálum að sinna. Nú
vil eg fyrir þessa vanrækslu gjalda.” Alfares dróg
andann þungt og var hinn grimmilegasti.
“Eg skil þig ekki. Hvaða gjald áttu við?”
“Jæja, gott og vel — svínið þitt!”
“Engin gaólunöfn — haltu þér við umtalsefnið.”
“Þú hefir mig móðgað,” hrópaði nú Alfares sem
væri hann bandóður; “og nú dirfist þú afskifti hafa
af mínum einkamálum.” Nú færðist Ramón í leik-
arastellingar. "Vertu viðbúinn að berjast á morg-
un."
“Hver skollinn—” hrópaði Kirk undrandi.
“Þetta er þá hólmgönguboð — þú skorar mig á
hólm! þetta er ekki ósvipað og á sér stað í skáld-
sögunum.” Hann hló og við það espaðist Alfares
um allan helmnig. "En, heyrðu, eg vil nú koma með
þá tillögu, að við berjumst með vatnsslöngum aftur.
þú munt hvort sem er hugsa á hefndir síðan eftir
steypibaðið kvöldið góða.”
"Eg kýs að skjóta þig með skammbyssu,” svar-
aði hann hægt. “Gifting þessi skal sér ekki stað
eiga fyr en eg hefi fyrst gengið yfir þinn dauða
skrokk. — Sem heiðvirður maður vil þér þettá tæki-
færi bjóða áður en það verður of seint.”
“Eg þykist vita, að þú hafir verið að drekka.
Það er ótímabært að tala um giftinguna á undan
trúlofuninni — finst þér ekki?”
"Einmitt það! Þú óttast að meðganga sann-
leikann — en ekki með slíku fær þú mig svikið.
öll Panama er nú að tala um trjúlofun þessa til
Senoritu Garavel. — Ætlar þú áskorun minni að
taka, eða verð eg að móðga þig meir?”
Hingað til hafði Kirk eingöngu skoðað þetta
skrípaleik, en nú var farið að síga í hann. “Nei,”
svaraði hann hörkulega. “Eg held þú sért kominn
alveg nógu langt." ;
‘ Þú neitar þá?" æpti Ramón sigrihrósandi. ‘
“Taktu nú eftir,” mælti Kirk. “Eg er búinn að
fá nægju mína af svo góðu.” Hann færði sig áfram
lítið eitt og hopaði þá Spánverjinn aftur á bak með
með sama, sýnilega skelkaður. “Eg tek ekki þátt
í hólmgöngum; slíkt er gagnstætt lögum Iandsins.
I mínu landi skoðast glæpur að drepa mann, undir
öllum kringumstæðum; við bindum ekki neinn á
höndum og fótum óg misþyrmum honum svo unz
hann er nær dauða en lífi.--------Þrátt fyrir morð
þín og manndráp ert þú að stæra þig af því að þú
sért heiðvirður maður--------. Eg get frætt þig á
því, að hólmgöngur eru ‘úr móð’ á meðal heiðvirðra
manna." Hann krepti hnefana ósjálfrátt. “Eg
finn enga löngun hjá mér til þess að meiða þig, Al-
fares, en ef til vill fæ eg ekki við mig ráðið, verðir
þú aftur á vegi mínum.”
Að svo mæltu gekk Kirk á brott og skildi við
hinn, afskræmdan af reiði og muldrandi fyrir munni
sér ýmsar hótanir. Óskiljanlegt var Kirk með öllu
hvernig á því stóð, að tilgangur hans með heim-
sóknunum til Garavels skyldi vera orðinn opinber
svo víða þarna í borginni. Seinna um daginn fékk
hann að vita ástæðuna fyrir því.
Um það bil að hann var að hætta á skrifstof-
unni kom skeyti til hans frá frú Cortlandt, þar sem
hún mæltist til að hann kælmi á fund hennar hið
bráðasta. Sendi hann því eftir kerru og ók til húse
hennar án tafar. Stóð húsið, sem þau Cortlandts
hjón höfðu leigt, niður við ströndina og af aftari
veggsvölum þess mátti sjá sævaröldurnar velta upp
að grunni borgarveggsins. Þetta var yndislegur
staður, innibyrgður að framan af ræktuðu hrís-
kjarri, blómbeðum og vafningsviði. En til beggja
hliða við húsið stóðu, á spánverska vísu, iðnaðar-
mannastofur ýmsar og verzlanir.
Edith lét hann bíða eftir sér nokkur augnablik
áður hún kæmi niður til hans, og var hún þá klædd
í reiðföt og auðsýnilega í þann veginn að leggja af
stað í eina af skemtiferðum sínum út fyrir borgina.