Heimskringla - 06.06.1918, Síða 8
8. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. JÚNI 1918
Úr bæ og bygð.
K. Skardal frá Baldur, Man., var
hér gestur síðast liðna viku.
Björgvin ísberg frá Baldur, var
hér á ferð skömrrm fyrir síðustu
helgi.
Sigurður Anderson frá Argyle kom
til borgarinnar í lok síðustu viku
til þess að sjá bróður sinn, sem nú
er hér í hernurn.
Friðrik Helgason frá Argyle kom
hingað nýlega og bjóst við að inn-
ritast í flugliðið.
Stórt loftherbergi til leigu að 724
Beverley stræti. Leigan sanngjörn.
Safnaðarfundur verður haldinn í
Skjaldiborg á sunnudagskvöldið 9.
]r.m. Áríðandi að allir mæti. — Þ.
Tóiriasson (ritari).
Pte. Sigurður Sigmar, frá Argyle,
kom til borgarinnar seinni part síð-
ustu viku til þess að taka upp störf
sín affcur í hernum.
E. Guðmundsson frá Bifröst P.O.,
kom til Winnipeg á fimtudaginn í
]>eim erindagerðum að reyna að fá
undanþágu frá herþjónustu.
f Rauðakross sjóðinn hafa borist
nýlega frá kvenfél.aginu “Hlínf’ að
Markiand Man., $10 og frá kvenfél.
“Frækorn” að Otto Man., $15. — T.
E. Thorsteinsson.
Mr. Árni Sigurðssom, sem starfað
hefir nokkur ór undanfarin hjá Col-
urrubia Press, lagði á stað um miðja
þessa viku áleiðis til Stillwater, Sask.
og verður hann þar í surnar við
smíðar. Fjölskylda hans dvelur þó
hér í bænum að svo stöddu.
Ernest Hermann Marteinsson frá
Hnausa, Man., og Imgibjörg Guð-
mundína Thorsttinsson frá West-
bourne, voru gefin saman í hjóna-
band 21. maí síðaistl. af séra Rúnólfi
Marteinssyni á heimili hans.
Ensk blöð segja nú særða á
vígvöllum Frakklands þessa íslend-
inga:
Lieut. B. Stefánsson frá Winnipeg.
S. Thorsteimsson, frá Stony Hill.
Teggi Thorsteinsson, Deer Lodge.
Árna Thorlacius, Winnipeg.
—Seinusfcu fréttir segja S. Thor-
sfceinsson, frá Stony Hill, dáinn af
sárum.
Þær systurnar, Mrs. J. Sigtryggs-
son og Mrs. G. Baehman, úr Argyle-
bygð, komu til bæjarins á mánu-
daginn í síðustu viku, og fóru heim-
leiðis aftur síðastliðinn mámudag.
Aðal erindið var að leita til tann-
læknis hér, og að heimsækja gamla
vini og venzlafólk.
Sigurður Sigurðsson, frá Lundar,
var hér á ferð í byrjun vikunnar.
Kom harnn með konu sína til lækn-
inga og verður hún stunduð af Dr.
B. J. Brandssyni. Sigurður sagði út-
litið með uppskeru f sínu bygðar-
lagi yfirleitt gott, þrátt fyrir und-
angengna kulda og þurka því að
svo komnu hefði þefcta hvorugt
hnekt hveiti eða öðru.
Jónas Sfcefánsson frá Kaldbak, er
lesendumir kannast við af ljóðum
hans, var hér á ferð nýlega. Hefir
hann sfcundað fiskiveiðar í Mikley í
Nýja íslandi í vetur og vor, og eftir
að hafa dvalið hér nokkra daga
bjóst hann við að halda til Argylo
HVER ER
TANNLÆKNIR
YÐAR?
Varanlegir <Crowns,
og Tannfyllingar
—búnar til úr beztu efnum.
—-sterklega bygðar, þar sem
roest reynir á.
—þægilegt að bíta með þeim.
—fagurlega tilbúnar. /þsy
—ending ábyrgst. Tk /
K.Thomsen
(Afturkominn hermaður)
SKANDINAVISKUR
SKRADDARI
552 Portage Ave., Winnipeg
KYENNA og KARLA
FATNAÐIR HREINS-
AÐIR, PRESSAÐIR
og LAGAÐIR.
20 ARA REYNSLA
ALT VERK ÁBYRGST
Loðföt sniðin og löguð.
Fatnaðir og Yfirhafnir
Saumuð úr Vönduðu Efni
með nýjasta tízku sniði.
RÝMILEGIR PRÍSAR
til þess að dvelja þar yfir uppskeru-
tímann.
Jón Goodman frá Argyle bygð var
hér á ferð í vikunRi sem leið. Sagði
hann al'a sáningu búna þar, þó í
mörguin tilfellum hefði hún reynst
bændum því nær ofurefli sökum
mamneklunnar. Allir vopmfærir
menn eru nú teknir í herinn, sem
von er, og kemur þetta allhart nið-
ur á bændunum.
Skemtikvöld.
Kvenfélagið “Björk” hefir skemti-
kvöld að heimili Mr. og Mrs. L. S.
Sumarliðason, 487 Arlington str. á
laugai'dagskvöldið kemur, þamm 8.
þ.m. Allir velkomnir.
Prentvilla á einum stað var í
greininni “Um folenzkt þjóðerni”,
sem birtist í blaðinu 23. f.m. Á blað-
síðu 7, 2. dálki stóð “bylgjur” fyrir
“byljum”. Þetta eru lesendurnir
beðnir að athuga.
Gleymið ekki deginum. — Þið iðr-
uðust þess lengi, ef þið gleymduð
fimtudeginum 6. júnf n.k., þvf þá
hefir Únítara kvenfélagið hlutasölu
(bazaar) í samkomusal kirkjunnar,
á horninu á Sherbrooke og Sargent
stræta. Þar verða margir smekkleg-
ir skrautgripir til sölu, einnig verð-
ur þar heima tilbúið brauð, kaffi og
fleira, alt með lægra verði en fólk á
að venjast nú á dögum. Gleðjið ykk-
ur með því að koma og njóta þess,
sem kvenfélagið hefir að bjóða 6.
júmí. — Salan opnast klukkan hálf-
þrjú og verður opin til kl. 11 að
kveldinu.
Jóns Sigurðsosnar félagið þakkar
fyrir þessar gjafir: — Frá Mrs. S.
Balduinson, Narrows, Man., $5; Mrs.
Thurfði Long, Wpg., $5; ónefndri í
Wpg. $1, Eir. Guðmundssyni, Mary
Hill P.O., $5: Únítara söfn. að Mary
Hill P.O. $15; G T. stúk. “Einingin”
i Selkirk $27.5.— Safnað af Mrs. A. K.
Maxon, Markerville: Mrs. Plummer
$2: Mrs. Guðbj. Neva, Hill P.O., $1:
Mr. Th. Hunfjord 50c.; Mr. Thorir
Hunfjord 50c; Mr. Hannes Hafstein
50c.: Mr. Jónas Hunford 50c. (alls $5).
—f gjafalista frá Winnipegosis hefir
inisprentast frá Guðbj. Johnson $3,
em á að vera $5.
Rury Arnason,
635 Furby St., Winnipeg.
Jakob Lindal, bóndi í grend við
Wynyard, kom til borgarinnar á
inánudaginn og bjóst við að dvelja
hér þangað til í iok vikunnar. Ekki
kvað hann manneklu hafa háð sán-
ingu þar vestra til tilfinnanlegs
skaða og síðan veðrátta breyttist
til betra væru horfur þar nú yfir-
leitt góðar. Sagði hanm bújarða-
sölu töluverða eiga sér stað og væru
bújarðir þar einlægt að hækka í
verði.
Fyrir stuttu síðan var auglýst, að
Dorcas félagið ætlaði að sýna leik,
sem neifnist “Lighfchouse Nan,” í
Goodte-mplara salnum til arðs fyrir
kvenmanna hjálparféiag 223. her-
deiidarinnar. Að sýna þemna leik
og vanda jafnvel til hans útheimti
mikið tímatap og fyrirhöfn fyrir
meðlimi Dorcas félagsins og hafa
þeir nú afhent féhirði kvenmanna
hjálparfélagsins $100, ágóða af leik
þessum. Fyrir þessa höfðinglegu
gjöf er blaðið beðið að færa þeim
innilegasta þakklæti þeirra, sem
móti henni tóku.
Takið eftir.
HVALBEINS VUL-
CANITE TANN-
SETTI MÍN, Hvert
—gefa affcur ungiegt útlit.
—rétt og vísindalega gerðar.
—paasa vel í munni.
—þekkjast ekki frá yðar eigfn
tönnum.
—þægiiegar tii brúks.
—ljómandi vel smíðaðar.
—ending ábyrgst.
DR. ROBINSON
Tannlæknir og Félagar hana
BIRKS BLDG, WINNIPEG
Sjöunda-dags Adventistar halda
sína árlegu tjaldbúða-samkomu í
River Park, Winnipeg, frá 20. til 30.
júní. — Ein islenzk samkoma veröur
haldin á hverjum degi. Allir eru
boðnir og velkomnir. Prédikun á
ensku fer fram tvisvar á dag. Þess-
ar samkomur verða mjög fræðandi
og uppbyggjandi fyrir alla, sem vilja
öðlast þekkingu á Guðs orði og
sannleikanum fyrir þenna tíma.
Komið vinir, og öðlist dýpri reynslu.
—Þeir sem búa utan borgar og ætla
að leigja tjöld til að vera í, eru vin-
samlegast beðir að skrifa undirrit-
uðum.
Virðingarfylst,
DAVIÐ GUÐBRANDSSON,
819—21 Somerset Block,
Winnipeg, Man.
Gjafalfotimn yfir samskot til Egg.
Johnson, Beckville, varð að bíða nmður
næsta blaðs vegna rúmleysis.
ÍSLANDS FRÉTTIR.
(“Vfair” 25. apr. til 1. maf.)
í bréfi frá bónda, sem nýlega birt-
ist í blaðinu “Degi”, er sagt svo frá
ástæðum bænda í Eyjafirði:
“Það eru miklar líkur til, að efna-
legar ástæður bænda liér í firðinum
yfirleitt hafi ekki frá ómunatíð verið
betri en einmitt nú, og hygg eg að
fieiri héruð landsins gætu sagt hið
sama, bara ef menn væru ekki orðn-
ir blindir af þessum blaða sultar-
söng.”
-----o------
“Járnkrossinnmeð gull-
um geislum,,
Eftir fyrstu hríðina, sem Þjóðverj-
ar gerðu á vesturvígstöðvunum í
vor, sæmdi keisarinn Hindemburg
yfirhershöfðingja ofannefndu heið-
ursmerki, sem er tignasta járnkross-
iríerkið. Samtimis var Ludendorff
marskálkur sæmdur stórkrossi járn-
k ross o rð u nna r.
“POWDRPAINT”
Nýr farvi fyrir imnan eða utan
húss málningu. Kostar ihelmingi
minna en -olíumiál og endist tvisv-
ar sinnum eins lengi. Er að eins
iblandað út f vatn og myndar
gler harða húð á veggnum. Sér-
staklega hentugt á inmiveggi, því
]>að þolir þvott. Skrifið eftir lit-
spjöldum og öllum uppiýsingum.
Skrifið oss einnig þá yður van-
hagar um trjávið, Cement, plast-
ur og kalk, — einnig salt í vagn-
hlössum.
McCOLLOM LUMBER AND
SUPPLY CO.
Merchants Bank, WINNIPEG
Geislakrossinn hefir að eins einn
fengið áður. Það var
j Blucher fursti, eftir orustuna við
I Napoleon mikla við Belle-Alliance.
En stórkrossinn hafa fjórir núlif-
andi menn hiotið á undan Duden-
dorff, þeir Hindemburg, Leopold
prinz af Bayern, Mackensen og —
keisarinn sjálfur.—Vísir.
--------------------
Fagurt
heimili
til sölu
Réfct við Scotia stræti á Kil-
donan Ave. 9 herbergi, 214
tasía á hæð; harðviðar gólf;
steingrunnur undir ÖJlu hús-
inu; 80 tunnu regnvatns áma;
miðstöðvar hitun og rafmagms
eldstæði; 330 feta nefcluktar
svalir. Þetta hús er skamt frá
Rauðánni, nálægt skóla og
einum fegursta lystigarði borg-
arimnar. Lóðin er 100 fet á
breidd, fögur tré , góður garð-
ur; hús fyrir tvær bifreiðar,
einnig fjós og bænsna hús.
Verðið á þessari eign er $7,500,
skuld á eigninni $2,500. Vil
selja með $500 niðurborgun, og
afganginn eftir samningum.
Myirndi iíka taka til greina
skifti Ifyrir land í góðu á-
standi og með öllu tilheyrandi
ef vildi.
Hugh Rennie,
ÍW>2 C'onfederation Izife Bldg:.
Winnlpeg:.
Dept. H
TIL SÖLU
w—_______________________________________t
Gar-Scott 25-H.P. Compound Traction Engine, Separator
með Self-Feeder og Blower. Kostar $3,500. Borgist $500
í peningum og rýmilegir skilmálar á afborgunum. SkrifiS til
ADVERTISER,
Dpt. H, 902 Confederation Life Bldg, Winnipeg, Man.
RJOMI KEYPTUR
Vér æskjum eftir viðskiftavinum, gömlum og nýjum, á
þessu sumri. — Rjómasendingum sint á jafn-skilvíslegan hátt
og áður. Hæsta verð borgað og borgun send strax og vér
höfum meðtekið rjómann.
SKRIFIÐ OSS EFTIR ÖLLUM UPPLÝSINGUM
Um áreiöanleik vorn vísum vér til Union Bank og viðskifta-
vina vorra annara. Nefnið Heimskringlu er, þér skrifið oss.
MANITOBA CREAMERY CO. LTD.
509 William Ave. Winnipeg, Manitoba.
Heilsu-böÖ og Tyrkncsk böð.
Varna Lungnaveiklun,
Styrkja líkamann gegn flestum sjúkdómum — Heilsu-æfing-
ar, Rafmagns-geisla böð.
Komið og Reynið Böðin.
449 MAIN STR. Beint á móti Union bankanum
•— ’ ..................................
r
\
“CERTIFIED ICE”
Þegar þú þarft ÍS, skaltu ávalt
hafa hugfast að panta
"CERTIFIED ICE"
Hreinn og heilnæmur, hvernig
sem notaður er.
------------ —---------------------------- V.___________
ÞÆGILEGIR BORGUNAR SKILMÁLAR:
1. 10% afsláttur fyrir peninga út í hönd.
2. Smáborganir greiðast 15. maí, 15. júní, og afgangurinn
2. júlí.
VERÐ HANS FYRIR 1918:
Fyrir alt sumarið, frá 1. maí til 30. september, þrisvar sinnum á
viku, nema frá 15. júnf til 15. ágúst, þegar hann verður keyrður
heiin til yðar á hverjum degi:
10 pund að meðaltali á dag.................. $11.00
10 pund að meðaltali á dag, og 10 pund dagl. í 2 mán 14.00
20 pund að meðaltali á dag.................... 16.00
30 pund að meðaltali á dag.................. 20.00
Ef afhentur í fakápinn, en ekki við dymar, $1.50 að auk. .
The Arctic Ice Go., Limited
156 Bell Ave., og 201 Lindsay Bldg.
Phone Ft. Rouge 981.
BORÐVIÐUR MOULDINGS.
ViS höfum fullkomnar birgðir af öllum tegundum
VerSskrá verður aend hverjum þeim er þesa óskar
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Henry Ave. Eaat, Winnipeg, Man., Telephone: Main 2511
BEZTU LJOSMYNDIRNAR
eru búnar til
í ljósmynda-
stofu Martels
264j/2 PORTAGE AVE.
16 ára æfing í ljósmynda-
gerð. Prísar rýmilegir,—
alt frá $1.00 tylftin og
upp. Sérstaklega góðar
myndir teknar af börnum.
Komið og sjáið sýnishorn
vor og stofur.
Martel’s Studio
264V2 Portage Avenue (Uppi yfir 15c búðinni nýrri)