Heimskringla - 10.10.1918, Blaðsíða 5

Heimskringla - 10.10.1918, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 10. OKTÓBER 1918 HEIMSKRINGLA 5. BLAÐSIÐA Er hann eínn ihinn víðförlasti Is- lendimgur. iStiltur og eftirtektasam- ur. Er kominn af Skarðsættum og Möðruvalla sýslumönnum og síðar af BoMioltisætt og Sauðhólaferjuætt- um. Er fornlesinn og aflar sér fróð- leiks. Björn bóndi var inni í Winnipeg. Þótti mér miður að hitta hann ekki h'eima. Við erum all-kunnugir. Bjönm er kominn frá Skarðsverjum gegn uni Möðrudalspresta, Sölva prest gamla og Gunnlaug prest son hans, og frá Jóni Gunnlaugssyni á Skjöldól'fs&töðum, ættfræðingi, einn- ig frá Skinnastaðamönnum, Einari, Jóni og Einari, prostum. Enginn maður, sem eg þekki, ber eins glögg ættar einkenni Skarðsverjanna, sem Björn. Séð hefi eg ,þó ættarein- kenni á fjölda manna hér, bæði góð og ill, síðan eg kyntist ættfeðra- lýsingum og ævisöguatriðum þeirra bumir menn halda það staka heimisku, að ætternisfesta og ein kenni séu auðsæ. Þeim skeikar þar herfilega. Er vonandi það eigi ekki langt í land að sú fræði verði stund- uð, sem vfsindagrein. Hefir Steinn Dofri viturlega bent á nýmæli þessi, eigi alls fyrir löngu. Björn býr f steinsteypu stórhýsi. Fjós hefir hann nýbygt, sex hundr- uð fet á iengd. Sáðlönd hefir hann víðfeðmnust þar um bygðir. 1 öiíu er Bjöm bóndi stór. - Kona hans er Guðrún Guðmundsdóttir Bjarna- sonar f Brautartungu f Lundar- reykjadal. Er hún fjórði liður frá Þorsteini presti Sveinbjarnarsyni í Hestsþingum í Andakíl. Þorsteinn prestur var sömu séttar og Dr. Sveiwbjörn Egilsison, faðir Benedikts Gröndals þjóðskálds. Húsfrú Guð- ]un lét fylgja mér næsta dag norður bygð. fxá bjart veður og gott.Sá eg þá bygðina betur en áður. Komst eg alla leið til Páls Kjernested. Með lionum var eg enn rúma viku. Há fylgdi hann mér austur á Dog Oreek P.O. Skildum við eftir langa og góða samveru. Þar fann eg Björn son Guðmundar Jónssonar og fór heim með honum. • .Guðmundur. Jónsson er hálf- bróðir Jóns ,fná Sleðbrjót. Hefir bú- ið þarna all-lengi. Búinn að búa vel um sig. Hann er góður smiður og verkmaður mikill. Við erum tals- vert kunnugir. l>á eg hjá honum beztu inóttökur. Hann kom eigi eim úr smíðavinnu ifyr en eg var genginn til rekkju Við áttum samt tal við um kveldið. Þar var eg þar til slðia næsta kveld. Guðmundur er ræðinn 0g skemtilegur, lesinn og fróður um margt. Var ærið hneigð ur fyrir lærdóm og skóiagöngu á æsku skeiði, en fararefni leyfðu ekki. Hann heldur áfram að lesa, og auðga anda sinn, eins framt og heimilisstörf leyfa. Hann er sá eini maður, sem frætt hefir mig um munnmælasögur eða minjar forn- «ogu úr Hróanstungu austur. Guðmundur er sonur Jóns bónda Hlíðarihúsum, Jónssonar s. st., jarnasonar á Ekru, Eirfkssonar á F'ossvöllum Móðir Guðnvundar var { ^!íður FHmdc'nsdóttir, Jónssonar ögruhlíð, sömu ættar og Guðrún kona Jóns frá Sleðbrjót. Kona Guð- mundar er Jónína Björnsdóttir í Husey, Hallaso'nar á Nefbjarnar- s'toðum, Björnssonar, Halldórssonar presfs í Þirigrnúla, kominn frá Óiafi presti Guðmundssyni sálmaskéldi á bauðanesi. Börn þeirra Guðmundar og Jónínu eru: 1. Jóhanna (á Geir- 'nn S. Pétursson og börn); 2. Sigríð- ur (máliaua); 3. Jón (lhérnum); 4. iBorn (heima); 5. Málmfríður (f W-P«g; 6. Guðrún (heima); 7. Eirík- Ur *he™a); 8. Jón Sigurðsson (skíró- ur svo, heima); 9. Stefanía (heima); mistu barn fjögra ára. Húsakynni eru góð hjá Guðmundi oig úthýsi. Hann hefir sögunar- vél og mikinn unninn við. Húsin standa á öldu; er frítt og þriiflegt ring, útsýni falleg vestur á akur- >nn og út yfir engjarnar vestur og norður. Mun eg nefna Guðmund °g bæ hans: Guðmundur á Víði- mýri; ~ Guðmundur er hár rnaður *ívalv»xinn, einarður á svip og a egur f viðmóti, og ræðinn vel. Hann fylgdi mér um kveldið norður a Dog Creek. Voru viðtökur ágætar og að íslenzkum höfðingja sið. Stefán Stefánsson á Dog Creek var onnum kafinn, <>g gátum við lítið amð saman, vöktum þó fram eftir. v'ð erum talsvert kunnugir. Eg þurfti að fara með póstinum næsta morgun snemma láleiðis yi jám- brautar. Gat þess vegna ekki talað v Stefán nándar nærri það sem eg ætlaði. Verður það að bíða seinni tíma eða fara að forgörðum. Þá fór eg austur næsta morgun með Bill Monkroan, þ. e. pósturinn. Hann er kynblendingur, roskinn og ráðinn. Kann frá mörgu að segja og miðjan' <,*tétTvi^lHI****<* aU^já, eftHáð Pebbte Beaoh m.O:, þaf fir úr !haf? l0Slð 'alt þetta stóra letUr- <*»*♦ föruneyti hans. Þar ihjá ingjafólk mitt frá 'W.þóg.'j þ?ngað vestutXwa-er Joið, Sigvaldi Sigurðsson, Steinssonar frá Harðbak á Sléttu, Hékonarsonar, Þors'teinssonar é Grjótnesi. Kona Þorsteins var dóttir séra Steféns Lárussonar Schevings í Presthólum, sem kominni var frá Jórunni bisk- upsdóttur frá Hóium, og Steini biskuiii Jónssyni,— Seinni kona Sig- valda er Margrét Þóninn Ámadótt ir, .Jónssonar, Bjarnasonar í Litlu- Breiðuvík 1 Borgarfirði austur. Var Arni og hans fólk komið frá .Jóni gainia panfíis Jónssyni í Skriðu. Móðir Margrétar Þórunnar er Krist- jama Sigfúsdóttir, Kristjánssonar: en Helga Sigfúsdóttir kona Krist- jáns, var komin frá þeim Glæsibæj- ar prestuni, séra Sigfúsi Þorláksson- ar prests o.s.fiv. Er sú ætt komin ofan frá Lofti ríka é Möðruvöllum og Skarðsverjum. 'Sigvaldi hefir bygt lagiegt íbúðar- hús nú þegar, grafið brunn, bygt fjós og útihúsr Hefir hanm afkastað ftiiklu á jafn naumum tíma. Verði lánið og heilsan með, er framtíðin á- litleg. — Gott og alúðlegt var til fólks þe«sa að koma að vanda. Daginn eftir fór eg að Pebble Beach. Þar ibýr Kristján Eiríksson, phttormssonar, Guttormssonar f Sunnudal í Vopnafirði, Guðimindar- sohar prests f Hofteigi, Ingimundar- sonar smiðs í Fremstafelli f Kinn, kóminn fré ívari feðnina á Bjarna sböðum f Bárðardal. Kona Krist- jáns er María Marteinsdóttir Jóns- sonay; er komin af Hellisfjarðarætt- inni alþektu é Austfjörðum. Krist ján er póstafgreiðslumaður, og hefir búið þarna í mörg ár. Er efnamað- ur. Þau eiga 4 syni fullorðna, Stef- án og Halldór (giftir), Þórarinn theima), Jóhaún (í hernum). Hjón þessi eru skrafhreif og ágæt heim að sækja. — Um kveldið fór eg með Þórarni austur á M'uJvihill. Hann ér ræðirin og lipur og íslenzkur í húð og hár. Þótti mér ékjósaniegt við hann að ræða. - Förin um bygð þessa var ákjósan- leg að öllu leyti. Eg fór að afla mér upplýsinga um ættfræði og eldri sagnir. Bjóst eg eigi við meiri eftir- tekju eni reyndin varð é. Allir voru fúsir að láta mér í té það sem þeir framast vissu og þektu til. Mestu þótti mér skifta, að fólk þar er hé- íslenzkt og ann þekkingu ættsagna og ættvísi. Mun sú reyndin á, er ald- ir renna, að sumir munu í bygðum þessum vera eins skírir é sögublöð- unum, sem margir þeir, sem hátt er hossað á ritvellinum, út um hvipp- irrn og hvappinn. Margir landnem- ar eru liðnir undir lok og þeir sið- ustu é förum. En það eru íslenzku landnemarnir, sem eru efniviðir og máttarviðir í sögu ísiendinga í landi þessu. Hinir eru áframhaldið og viðbótin. Varðar mestu til orða og verka, að undirstaðan rétt sé fund- in. Héraðssögur eða bygöasögur eru auðvitað góðar. En skorti sögu frumbúanna, eru þær höfuðlausar og léttmeti. Sögur eða þættir ein- istaklinganna þarf að rita fyrst af öllum sögum, og síðan héraðssögur, sem er blómgun og framþi-oski sveitanna og manna þeirra, sem bera hana á herðum. Að þesisu sinni fjölyrði eg eigi meira um söguritan íslendinga í Vesturtheimi. En .margt týnist, ef tírnans er ekki gætt í þessu efni. Leiðréttingar í greininni: “Úr mannheimum”. —1 fyrsta blaði hofir rangprentast: — náðarsekki, les: váðarsekki; agt, les: sagt; Siver Bay, les: Silver Bay; Gott og gleðilegt, ies: Gott og glað- legt; Vaigerður Steinsdóttir, les: Valgerður Steindórsdóttir. — I öðru blaði: áður, satt er það, lesr áður. Satt er það.; kalk að innan, les: kalkað inman.; Föðurföður og móð- urnjóðir, les: föðurföður og föður- móður.; é ávöðum, les: é hévöðum.; eitt hefir vevið selt síðan, ies: eitt- hvað hefir verið selt síðan.; Var þeim góð veiðin þar af fugli, le«: vaf þeim góð veiður þar af fugli.; Einar sýslumaður Halldórsson, les: Einar sýslumaður Magnússon; Ket- listfyni, sýshrmanni, les: Ketiisisyni.; Siguislónssyni, les: Sigurjónssyni. Stórletur <<Voraldar,, (Aðsent.) Eftir að hafa lesið alt stóra letrið í síðustu “Voröld”, þetta óskapa hróp til Islendinga hér, um hjálp í viðlögum, sem að sjéltsögðu og und- antekniingarlaust væri nú vænst af b'laðinu—blaði "fólksins” og “frels- isins’l’ blaði kvenna, bænda og verkalýðs, iblaðinu “ykkar”, “mái- gagninu” holla og góða, sem eigin- mérj hug gömul vfsa, er nafnkendúr sl^ dlhgtif' einn til forna (Sölvi '■ tíel-ffistíh ] 'orti um sjáifan isig. Marg- ir munu kannast við vísuna og liljóðar hún þannig: “Eg or gull og gersemi og gimsteinn unaðsríkur; eg er djésn og dýrmæti og drotni sjélfum líkur.” Ur bæ og bygð. Sparið, til þess að geta keypt “Victory Bonds.” Fundarlaun. Á laugardaginn var um hádegis- leytið týndist silfur úrfesti (fob) á Maryland str. eöa Sargent .ave. á leið ofan að 8herbrooke str., eða á Sargent strætisvagninum, og svo á ieiðinni fré horni Notre Dame ave. og yfir á pósthúsið. Festin var úr silfurmillum að heiman. Finnandi beðinn að skila til séra Rögnv. Pét- urssonar að 660 Maryland str. gegn góðum fundarlaunum. Samkoma Jóns Sigurðssonar fé- lagsins á Wonderland. Eins og til stóð og auglýst hafði veriS, var samkoma þessi haldin sunnudagskveldið þann 29. sept. Var alveg húsfyllir og mun flest, ef ekki alt, hafa veriS Islendingar. Sýnir þatS betur en flest annaS, hvílíkum vinsældum félagið á að fagna. Enda er það eigi meira en að maklegleikum, því starf þess pr ómetanlegt á öllum sviðum, er a?f hjálp og aðstoð lýtur til burtufar- inna íslenzkra hermanna og að- standenda þeirra, er heima fyrir eru. Þó samkoman væri á óvenju- legum tíma á sunnudagskveldi og byrjaði eigi fyr en eftir kl. 9, var samt aðsóknin þessi. Séra Rún. Marteinsson hafði forsæti og bauS fólk velkomiS meS lipri ræSu. Þá var samspil, er þessir tóku þátt í: Mrs. Clark (Clara Oddson), Mr. Oddson og Miss Ottenson. Var þá sungiS hiS góSkunna lag “FriSþjófur og Björn”, af þeim Pétri Pálmasyni og Halldóri Jónssyni. Fylgdi þá fyrirlestur (á ensku) um ísland, fund þess, byggingu, stjórnarskip- un og sögu, er ungfrú HólmfríSur Árnadóttir, kenslukona frá New York., flutti. /\S honum loknum’ voru sýndar myndir af ýmsum stöSum á Islandi, og skýrSi fyrir- lesarinn þær. Voru myndirnar glöggar og hafSi fólk hina mestu ánægju af þeim. ASVmyndasýn- ingunni lokinni sungu þær ungfrú Thorwaldson og Hermann, “Sól- setursljóS” og loks var sungiS margraddaS “Ó guS vors lands.” Enginn inngangur var seldur, en leitaS frjálsra samskota, og kom saman, aS frádregnum kostnaði, er eigi var stór, því þeir Hyde bræSur, eigendur leikhússins, léSu þaS endurgjaldslaust, rúmir $71. AHan undirbúning fyrir þessa samkomu, hafSi forseti Jóns Sig- urSssonar félagsins, Mrs. J. B. Skaptason, á hendi, og var þaS mikiS verk. En verk eigi meira, en hún hefir gert fyrir félagiS frá því fyrsta aS þaS var stofnaS. Er þaS verk unniS á þann hátt og meS svo óeigingjörnu móti, aS viSurkenning á þaS sannarlega skiliS. öllum þ eim, sem aSstoSuSu viS samkomuna, en sérstaklega þeim sem skemtu tilheyrendum, biSur félagiS íslenzku blöSin, “Lög- berg” og “Heimskringlu”, aS flytja sitt innilegasta þakklæti. Enn fremur fundarstjóra og konu hans. Óskar þaS svo meS tilhjálp allra góSra manna og kvenna nær og fjær aS fá haldiS áfram starfi sínu á þessum vetri, og ef únt er í enn rííara mæli en áSur. R. P. Sparið, til þess að geta keypt "Victory Bonds.” ------o------- SOKKAGJAFIR til Jóns Sigurðssonar félagsins. Frá Kvenfélagi í Árborg, Man., 30 pör; Mrs. Guðr. Friðriksson, Wpg„ 12 pör; Mrs. Lovísu Benson, Wpg„ 3 pör; Mrs. Sigurj. Axdal, Wynyard, 5 pör; Mrs. Böðv. Laxda), Wpg„ 1 p«r; Mrs. Thorb. Jónsson, Brú P.O., 1 par; Mrs. Sv. Lfndal, Markland P. O., 7 pör; Miss E. B. Johnson, Wyn- yard, 1 par; Mrs. G. Jóhannsson, 794 Vietor St„ 1 par. Þessar konur hafa prjónað fyrir fé- lagið; Mrs. Guðrún Friðriksson 6 pör; Mrs. Jón Samson 5 pör, Mrs. J. Björnsson, 4 pör; Mrs. B. Dalmann, 1 par; Miss Eph. Guðmundsson 1 par; Miss Guðbj. Patrick, 2 pör; Miss Thorg. Thordarson, 1 par; Mrs. Joiteha Guðraundédöt.tir, 2 pör. t Honurnar é Retel„h»Ja, typgfc og, jprjóniað 16 por af sffkkum og hefir okkuf verið-ftééK’én eTn gámla kon- an, sem (þó er blind, hafi prjónað þriðja hundrað pör af eokkum sfðan stríðið byrjaði. Það er lofsvert verk. Mrs. Nanna Bjerring, Mrs. iStein- ,imn Sigurðsson og Mrs. Anderson, allar í Winnipeg, liafa spunnið mik- ið af ull fyrir félagið. Svo hefir okkur borist í hendur stór kassi, sem kvenféiagið "Stoð” í Wynyard hefr sent féiaginu. Kass- inn er fullur af “Fruit Cake,” sem kemur sér sériega vel fyrir jótlakass- ana drengjanna, Alt þetta er okk- ur svo mikii aðstoð og hjálp að við fáum því ekki iýst, hvað við erum hjartanlega þakklétar fyrir það. Félagskonur eru beðnar að hjálpa til að ibúa um bögglania ifyrir her- roeninina alla þessa viku, eftir há- egi og að kveldinu, í fundarsal únft- ara hússins á horni Sherbrooke og Sargent stræta. Guðrún Skaptason. Sparið, til þess að geta keypt “Victory Bonds.” -------o------ Til húifrtí Helga Davidton. Eins og broshýr börn við komum. —Brottför þin þó setji’ oss hljóða.— Til að gleðjast, til að þakka, til að kveðja húsið góða. Þú varst okkur öllum móðir. Ástúð þin mun vara i minnum. Líklegt er að lifs á vegi líka hennar aldrei finnum. Þínir mjúku móður vængir mörgum hlýtt um hjarta gjörðu. Þá þú breiddir yfir alla, er að þínum dyrum börðu. Það var líkt og Islands andi yfir þessu húsi svili, til að bjarga blómum sínum breytinganna úr ofsa drifi. Hér var íslenik hugsjón heiðruð hana aldrei kúgun temur. Vandamenn og vinir hennar viku hingað öðrum fremur. Hún þér þakkar. Hún þín saknar, Hún n ú — lítið borgað getur — En á hennar heiðurs degi — hún mun launa starf þitt betur. Við þökkum þér fóstur og fórnir og starf í frelsis og mannúðar nafni. Við gleymum því ekki, en sem góðan arf það geymum i minninga safni. Við söknum þín likt eins og lítil börn, sem leika á skilnaðar strönd. En aldrei framar um enni þeim. . strýkur hin ástríka móðurhönd. Við kveðjum þig, konan mæta, — en kökkur í hálsi er! Unaður, ástríki og friður til eilífðar fylgi þér. JÓNAS STEFANSSON, frá Kaldbak. Tilkynning um arf. Gloniboro, 20. ágúst 1918. Eg undirakrifaður hefi til umráða arf Conrads heitins Sigtryggssonar. er féll á vígstöðvuum á Erakklandi vorið 1917. Oonrad heitinn var son- ur Sigtryggs Sigtryggssonar, er var bóndi á Hóli í Köldukinn í S. Þing- eyjarsýsiu á lslandi, dáinn fyrir fá- um árum. Eg hefi skrifað til ætt- ingjanna, en ekkert svar fengið. Systkini Oonrads heitins (alsystkini og hálfsystkini) og stjúpmóðir hans, sem samkvæmt erfðaskránni eiga að jöfnum ihlutföllum tilkall til arfsins, eru hér með ámint um og beðin að gjöra undirrituðum aðvart við fyrsta tækifæri, svo hægt sé að skifta arfinum. óskað er eftir að ættingj- arnir sinini þessu hið allra fyrsta. Virðingarfylst, G. J. Oleson, Glenboro P. O., 1—3 Manitoba, Canada. á H. Methusalems HEFIR N0 TIL SÖLU NÝJAR HUÓMPLÖTUR (Records) Isleazk, Dönsk, Norsk og Ssnsk iög VERÐ: 00 cts. COLUMBIA HUÓMVÉLAR frá $27—$300. Skrifið eftir VerSIistum SWAN Manufactarmg Co. | Pi,„ ! ei[«m->]07j Sargent Ave. ,,sn°' * KOL! Talsími Garry 2620 KOL! D. D. Wood & Sons, Ltd. Office og Yards: Ross Ave., homi Arlington Stk. Félagið sem hefir góðan eldivið og ágœta afgreiðslu. Reglubundin afgreiSsla Ábyrgst að menn verSi ánægSir. ELDIVIÐUR! ELDIVIÐUR! STORKOSTLEG ÚTSALA KARLA OG KVENNA VETRAR FATNAÐI, MATVÖRU, JÁRNVÖRU, LEIR-VARNINGI, SKÓFATNAÐI, O S. FRV. SALAN BYRJAR LAUGARDAGINN 12.0KT0BER OG STENDUR YFIR TIL 1. NOVEMBER 1918. Allir, sem kaupa fyrir $10.00 eSa meira, fá aS gjöf vörur upp á 2 /i % af þeirri upphæS er þeir kaupa fyrir. Þeir sem kaupa upp á $25 eSa meira, fá 5 % atj gjöf. Hæsta verS borgaS fyrir allar afurSir bænda — I>ar meS hveiti, hafra o.s.frv. Arborg Farmers Supply Co. Malinsky & Glassman, Props. ARBORG, - - - Manitoba BORÐVIÐUR SASH, DOORS AND MOULDINbS. ViS höfum fullkomnar birgSir af öllum tegundum VerSskrá verSur send hverjum þeim er þess óskar THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. Henry A»e. East, Winnipeg, Man„ Telephone: Main 2511 LOÐSKINN! HÚÐIRí ÍTLL! Ef þér viljið hljóta fljótustu skil á andvirði og hæsta verð tyrir lóðskinn, húðir, ull og fl. sendið þetta til. Frank Massin, Brandon, Man. Dept H. Skrifið eftir prísum og shipping tags. RJOMI KEYPTUR Vér æskjum eftir viðskiftavinum, gömlum og nýjum, A þessu sumri. — Rjómasendingum sint á jafn-skilvislegan hátt og áður. Hæsta verð borgað og borgun send strax og vér höfum meðtekið rjómann. SKRIFIÐ OSS EFTIR ÖLLUM UPPLÝSINGUM Um áreiðanleik vorn vísum vér til Union B&nk og viðskilta- vina vorra annara. Neínið Heimskringlu er, þér skrilið oss. MANITOBA CREAMERY CO. LTD. 609 WiUiam Ave. Winnipeg, Manitoba. Allskonar prentun fljótt og vel af hendi leysL — Verki frá utanbeej- armönnum sérstakur gaumur gef- mn. — Verðið sanngjamt, verki? gott Yiking Press, Limited dt«^s U 729 Sberbrooke St. 11 P. 0. B*x 3171 '*'■ Wmnipef, ManitoU.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.