Heimskringla - 24.10.1918, Blaðsíða 5

Heimskringla - 24.10.1918, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 24. OK.TÓBER 1918 5. BLAÐSfÐA HEIMSKRINGLA "C Vatosaflið í Þjórsá. Lögréttu hefir verið sent nýútkom- ið rit á norsku með eftirfylgjandi titli: “Yandkraften' i Tlhjorsá Elv, íslanid. Pianer for Utibygning av 6 Kraftanlæg. Ved Ingeniör G. Sæt- ersmoen. Kristjania. Gröndahl & Söns Bogtrykkeri, 1918.” Höf. hcfir fyrir hlutafélagið Títan rann.sakað fossaflið í Þjórsá í þrjú sumur, 1915, 1916 og 1917, og mælt og kortiagt Jandsvæðið umhverfis foss- ana. Sogist hann hafa niotið við þetta aðstoðar bæði norskra verk- fræðinga, sem komið hafa mieð hon- uim hingað, og íslenzkra verkfræð- inga. Árangurinn af þessum rann- sóknum er sá, að hann hefir lagt fram fyrir félagið áætlanir um afl- stöðvabyggingar á 5 stöðum við Þjórsá hjá Urriðafossi, Hestafossi, Þjórsárholti, Skarði og Búrfelli, og svo hjá Hrauneyjarfossi í Tungná. Bókin byrjar á nokkrum almenn- um upplýsingum um Island, veður- lag, jarðmyndun, atvfnnuvegi, sam- göngur o. s. frv. Þar næst er ná- kvæm iýsing á Þjórsá, frá upptök- um að ósi, og á straumfláka henn- ar. En Þjórsá myndast af tveimur ám, Bfrl-Þjórsá, sem hefir upptök á Sprengisandi, og Tungná, sem kem- ur úr Vatnajökli. Prá samrensli áa þessara og niður að Þjórsárósi eru 95 kílóm. I straumfláka þeirra eru eru bæði Piskivötnin og Þórisvatn, o& rennur ivaldakvísl úr Þórisvatni 1 Tungná. Þjórsá er vatnsmesta 'á Islands og mismunur á vatnsmagni á ýmsum tfmum er tiltölulega mjög lítill. Hún verður minst í mars og apríl. Þóris- vötnin eiga að verða vatnsgeymirar, er tekð sé úr þegar vatnið í ánni er minst og eru ráðgerð mannvirki til Þess að stífla útrensli úr vötnunum. Vegalengd frá Reykjavík að liin- um fyrirhuguðu aflstöðvum er þessi: að Urriðafossi 67.5 kílóm., að Hestafossi 78.5, Þjórsárholti 94.3, að •Skarði 98.5, Burfelli 118.8 og Hraun- eyjarfos.si 145 kílóm. Nothæift 'fall á hverri um sig af aflstöðvunum er þetta: Urriðafossi 30 m., Hestafossi 18, Þjórsárholti 18, Skarði 13, Búrfelli 111 og Hrauneyj- arfossi 96 m. Samanlagt afl allra 6 stöðvanna verður 5 raánuði ársins 697,000 turbinh.kr., og 7 mánuði árs- in® 1,114,000 turbinh.kr. Nokkuð af þessu afli verður án efa notað til þess að fraimleiða áburðarefni handa íslandi sjálfu, segir höf„ og er líklegt, að það verði til þeas að fleygja fram biinaði f landinu, er hægt verður að framleiða þar á- burðarefni á ódýran hátt, eins og þarna mundi eiga sér stað. Verk- smiðjur til þeirrar framleiðslu hygg- ur hann mundu verða reistar við aflstöðvarnar. En mestur Ihluti aflsins segir hann þó að verða tnundi notaður til þess að framleiða útflutniinigsvöru, fyrst og fremst á- burðarefni. Það alf ætlar hann að leitt mundi verða til næstu og beztu hafnar og notað þar. Gerir hann ráð fyrir, að það yrði leitt til Reykjavíkur, með því að ihaifnar- gerðir yrðu of dýrar auítan fjalls, og bendir þá á Skerjafjörð sem út'flutn- bigshöfn afurðanna. Kæst þessu eru i ritinu iýsingar á aflstöðvunum, hverri um sig. Eins °® áður er sýnt, er Búrfellsstöðin ráðgerð lang.stærst, og umíbúnaður °g maimvirki verða þar lang mest. Yrði það of laiigt mál, að lýsa hér beim mannvirkjaáætlunum, sem b’ain eru settar i ritinu. En hér skal tekið upp aðalefni þess, sem höf. seKir um járnbrautalagningar í sam- bandi við fyrirtækið. Hann segir að Þjórsárfyrirtækið tiundi verða til þass að ihrinda í framkvæmd hinum ráðgerðu járn- brautalagniiiiiguim iiér á landi, eigi eins vegna iðnaðarins, sem rísi UPP kring urn aflstöðvarnar sjá'ifar, heldur og vegna þeirra framíara, seim búast megi við að íslenzkur landbúnað :ir iaki, er hann eigi kcist á nógum áburði til jarðræktar og fái fullkomin samgöngutæki, er setji landbúnaðarhéruðin í samband við höfuð«‘aðinn og góða höfn. Höf. t-elur eðlilegast að landið og félagið, sem aflstöðvarnar ræki, Jegðu í fé- laSi járnbraut itil Reykjavíkur. Annars seg hann, að bein nauð- syn sé ekki á þeissari járnbrautar- lagningu í þarfir aflstöðváfélagsins, b- e. til flutnings á verkfærum þess °g byggingarefnum, Iþví að flytja mætti þetta upp á Eyrarbakka eða Stokkseyri og Jeggja síðan járn- brautir þaðan austur að Þjórsá og UPP með ihenni til hinna fyrirhug- uðu stöðva, og lætur hann fylgja á- mtilanir um 'þær brautalagningar. bað er gert ráð fyrir að þær kosti 3,909,000 kr. En þótt aflstöðvafél'ag- ið legði þessar brautir í sínar þarifir, þá telur hann isamt líklegt, að það einnig legði eitthvað fram til járn- brautar frá Þjórsá til Reykjavlkur. Kostn'aðuir við aflstöðvabygginíg- arnar, þegar þær eru að fullu gerð- ar, er áætlaður þannig f anlljónum króna: Við Urriðafoss 24.5, við Hestafoss 21.6, við Þjórsárholt 22.00, við Skarð 18.8, við Búrfell 66.8, við Hrauneyjarfoss 31.6. Er þá bygg- ingarkostnaðurinn 'alls 185,300,000 kv. Áflieiðslan til Reykjavíkur er áætl- uð að kosta 91,600,000 kr„ isvo að all- ur kostnaðurinn verður 276,900.000. Það er að sjálfsögðu ekki liugsun- in að byggja upp allar þessar stöð'v- ar í einu, heldur smátt og smátt, og verður þá að. líkinduin byrjað á stöðinni við Urriðafoss.—Lögrétta. Reykjavík, 11. sept. 1918. Einhver hreyfing virðist vera kom- in á það NorðanlancLs, að koma þar á fót nýju berklahæli, og hafa fundir verið haldnir til styrktar því. Kvöldið 3. þ.m. var Laugarnes- spftalinn allur raflýstur 1 fyrsta skifti, allur í ljóahafi, og fólk horfði á hann með undrun, vissi ekki hvað uim var að vera. Jensen rafmagns- fræðimgur var að neyna ljóstækin og virtist alt ganga vel. En í spftalan- um, þar sem menn höfðu hlakkað til þessara 'þörfu uimbóta, voru allir á stjá og fögnuðu nýja ljósinu. Einar H. Kvaran skáld hefir á ferðum sínum um Norðurland og Austurland í suimar haldið fyrir- lestra og upplestra á 22 stöðum. Hafa þeir alstaðar verið vel sóttir, enda þótt hann oft yrði að taka tii þeirra virka daga og þetta væri á rnosta annatfmia sveitanna. Hann fór lengst til Páskrúðsfjarðar. Á Sauðárkróki lá hann veikur nokkra daga. Héðan fór hanm landveg, en söldi ihesta sína á Auisturlandi og kom þaðan sjóveg. Frú hans var með honum alla leiðina. Úr PljótshWð er skrifað 28. ágúst: “Héðan er að frétta grasbrest svo mikinn að gamlir menn segja hann aldrei jafn mikinn síðan grasleysis- árið 1881, og lítur sem stendur mjög illa út, því nú er óslitin rigningatíð búin að vera á aðra viku og í dag ekki vinnuveður. — Síðastl. sunnu- dag hélt ungmennafél. “Þórsmörk” hér í Pljótshlíð samkomu á Þverár- bökkum fram af Hlíðarenda. Var samkoman allvel sótt. Þar prédik- aði séra Eggert Pálsson prófastur og mæltlst vel að vanda. Voru svo ýms- ar íþróttir sýndar, svo sem kapp- hlaup og hás tökk. Bezt glíindi Guð- jón Úlfarsson frá Múlakoti, on kapp- hlaupið og h'ástökikið vann Jón Árnason í Valsdal. Einnig voru þar reyndir ihestar. 1. verðlaun fyrir stökkhest fékk Tómas Sigurðsso.n hreppstjóri á Barkarstöðum, en 2. verðlaun Jón Sigurðsson í Árkvöm. Fyrir skeiðhesta fékk fyrstu og önniir verðlaun Valdimar Böðvars- son á Botni, og þóttú þeir afbragðs- góðir og annar ekki nema 5 vetra.” —Lögrétta. Skýrsla er komin út um störf land- sfmans 1917. Tekjur iþað ár hafa verið kr. 498,362.65, en gjöld kr. 282,- 472.77. Bæði tekjur og gjöld hafa farið iangt fram úr áætlun á fjár- lögum. Björn Jósefsson, settur héraðs- iæknir í Axarfjarðar héraði, hefir verið skipaður héraðslæknir í Húsa- víkur héraði í stað Guðm. Thorodd- een læknis, frá 1. okt. næstkomandi. —ísafold. (Eftir Vísi frá 14,—18. sept.) 'Sæsíminn komst í samt lag í gær (13.) og hafði mikið að starfa það .souSi eftir var dagsins. Um 300 skeyti höfðu safnast ifyrir meðani á síma- slitiinúm stóð. “Jón Arason” heitir inýkominn mót- orbátur mjög stór ög fallegur. Hann H. Methusalems HEFIR NO TIL SÖLU NÝJAR HUÓMPLÖTUR (Records) íslenzk, Dönsk, Norsk og Sænsk lög VERÐ: 00 cts. CCLUMBIA HUÖMVÉLAR frá $27—$300. Skrifið eftir Verðlistum SWAN Manufacturing Co. Fhone Sh. 971 676 Sargent Ave. er eign ht. Hólar og kom fyrir nokkru til Seyðisfjarðar. Þaðan var liann þrjár vikur til Víkur í Mýr- dal. Þaðan dró Víðirhann til Vest- mannaeyja, en Jón forsoti dró hann hingað. Vélin er eitthvað skakt sett niður og er nú verið að taka hana upp og lagfæra. Þurkar liafa verið hér undanfarna daga og var “há” víða bundin inn af túnum í gær. Bóka- og pappínsverzlun nafa þeir stofnað í félagi Guðm. Gamalíelsson og Theódór Árnason fiðluleikari. Búð 'þeirra er í Austurstræti 17 og var opinuð í gær (14.). Botnvörpungar Kveldúlfs, Snorri Sturluson og Snorri Goði, eru farnir að veiða í ís, en Skallaigrímur mun fara til veiða mjög bráðlega. Samkvæmt augl. í blaðinu í dag er hámarksverð á kartöflum ákveðið 38 aura pr. kg. í heildsölu en 44 au. í smásölu. Kartöflur fóru margir að taka upp í gær, vegna hinna óvæntu og hörðu froista, sem verið hafa undanfarnar nætur. Þeir garðeigendur, sem Vfsir átti tal við, bjuggust tæplega við meðaluppskeru. “Ljóst var út að líta” í gærmorg- iln; öll fjöll hvít niður undir miðj- ar> hiíðar. En sá snjór er nú að mestu horfinn. Veðrið f dag (17): Hiti í Vest- hmannaeyjum 2.3 , hér 2.1, Isafirði 3.2, Akureyri 1, Grímsstöðum frost 2, Seyðisfirði froist 0.3. Snjór á Seyð- Isfirði og Akureyri. Hæg norðanátt um land alt. Raflýsingin við höfnina verður síðbúnari en búist var við Líklega verður ekki kveikt fyr en um mám aðamót. ■Vltanuni á Vitastíg hefir verið breytt í haust. Hann er nú orðinn bloss-viti og sýnir þrflitt ljós: rautt, gult og grænt. Vegaíbót er verið að gera innarlega á Laugaiveginum, og verður henni haldið áfram inn undr rnýja Hafnar- fjarðarveginn. Hún er f því fólgin, að vegurlnn er lagður smáhnullung- um, sem grjótmulningi er stráð yfir og honum síðan þjappað niður með nýja götuvaltaranum, sem landsjóð- ur fékk frá Vesturheimi í sumar. Vegur þessi verður bæði betri og traustari en aðrir akvegir hér á landi. “ Ekkert Meltingarleysi fyrir Oss.” Enginn metSlimur fjölskyldunnar þarf ati þjást af meltingarleysi, slæmum höfut5verk, et5a uppþembu og brjóstsvit5a, o. s. frv., ef hann et5a hún brúkar Chamberlain’s Stomach and Liver Tablets. Þær verka magann og þarmana, styrkja lifrina og fjörga allan líkam- ann. Taktu eina at5 kvöldi og þá lít5ur þér vel at5 morgni. Fást hjá öllum lyfsölum á 25c. et5a met5 pósti frá Chnmberlain Medicine Coinpnny, Toronto. 16 CHAMBERLAINS TABIETS KOL! Vér erum reiðubúnir að veita fljóta afgreiðslu á Hörðum og Linum Kolum, af beztu tegundum. Ef þér hafið ekki allareiðu pantað kol fyrir veturinn, þá finnið oss. — Vér gjörum yður ánægða. Telephone Garry 2620 D. D. Wood & Sons, Ltd. Office og Yards: Ross Ave., homi Arlington Str. ug- BORÐVIÐUR SASH, DOORS AND MOULDINGS. Við höfum fullkomnar birgðir af öllum tegundum VerSskrá verSur send hverjum þeim er þess óskar THE EMP/RE SASH & DOOR CO., LTD. Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Teiephone: Main 2511 LOÐSKINN! HÚÐIRí ITLL2 Ef þér viljið hljóta fljótustu skil & andvirði og hæsta verð fyrir lóðskinn, húðir, ull og fl. sendið þetta tiL Frank Massin, Brandon, Man. Dept H. Skrifið eftir prfsum og shipping tags. Prentun Allskonar prentun fljótt og vel af hendi leyst. — Verki frá utanbæj- armönnum sérstakur gaumur gef- inn. — Verðið sanngjamt, verkið gott. The Yiking Press, Limited 729 Sherbrooke St. P. 0. Box 3171 Winnipeg, Manitoba. HIIIMIIMIUIIINIMIimiUlllinltlllll iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiininiiiiniiiiiiiiiiiiimiiiiuiiiiiáiiiii niuHinuiiiiuuHiiiiiiimiiiiiiimi.imiiHniiiuiiiinniuiiiHiMiiuuiuuiiiiniiiiMtMniii r Orar. MIIIUIIINUUUIIIIIHIIIIIIIIU I. Kvöldskuggar. Skuggarnir lengjast, það líSur að nótt. Limbúinn þagnar og alt verður rótt. Útraenan hjalar í hreimblíSum róm — himneska ‘söngva’-—vi8 grátandi blóm. — Þökk sé þér, deyjandi dagur. Silkimjúkt, höfgandi húmblæjulín hnígur er síðasti ljósbjarminn dvín. SorgþjáS sem fagnandi—dreymandi drótt drjúpir nú höfði að barmi þér, nótt, — blessaði friðarins faðmur. — Hugurinn leitandi líður á braut leiðin er opin í framtíðarskaut — þar sem að eldur hins ókomna brann áður var dvalið, en nú er sem hann skelfist — hann leitar þess liðna. II. Bæn. » Æskan klöknar, þegar harmar þjaka — þegar sorgin hjartað sker. Vorið bjarta, viltu við mér taka? — Vefja mig að barmi þér? Veittu fróun þeim, sem þrá og vaka, það er hjartans bæn frá mér. Stiltu, lægðu úfið harma hafið hretin öll um andans lönd. Færðu’ oss gull, sem enn er geymt og grafið — guði vígt — í óskaströnd. — Yfir landið ljú'fri minning vafið leið mig — drauma hönd. X. — Lögrétta. TRÉSMIÐIR. Hin mikla borg, sem blasir við, í brögum titluð hjarta lands, með bursta fjöld og fögur rið og flesta liti regnbogans — er mest að þakka þeirri stétt, sem þingar hér í félagöhring; sé torg þar skakt og gata grett, þeir gallar skella’ á “verkfræðing”. Við hagleiks glym og Kandtök snögg býr höfuðborgin ár og síð, við sagarbrag og hamarshögg við Kefilhvin og axarstríð. Hún býr við gnótt og auðnuefnd með yfirgragðið frítt og slétt, er setur hverja sendinefnd í samningsskapið þýtt og létt. — Eins gerir stéttin gripi þá, sem glæða drjúgum kærleikann, já, fæstar stúlkur staðist fá þau stig — en það er “kommóðan”. Því vissra svanna "hjarta’ og hönd" vinst höldum bezt með þeirri gjöf; hún hnýtti ótal hjónábönd, sem héldu fram í dauða’ og gröf. En aðrir hafa lært þá list að lappa við þau mæðuskip , er Ránardætur reka’ úr vist sem ræfilflök og lekahrip. Þeir lækna trútt hvern ljóð og hæng, unz líkt þeir skila knerri’ úr vör sem garpur rísi’ af sóttarsæng með sjáldrið hraust og þrótt og fjör. I hverri þraut og glóð og gný mun giftan fylgja þeirri stétt, sem hefir lag og hug á því að hefla störfin trútt og rétt. Hún þarf ei mas um málstað sinn í myrkraskotum smeyk og bleik, en eignast sæmdar-orðstírinn með upplitsdjörfum heiðarleik. Jak. Thor. — Lögrétta.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.