Heimskringla - 28.11.1918, Side 4
4. BLAÐSIÐA
HEIMSKKuiOLa
WINNIPEG, 28. NOV. 1918
H EIMSKKINGLA
(Stofnu® 188ð)
Kemur út á hverjum Ftmtuðeet.
CtBefenttur og etgendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
Verh blatJslne í Canada og BandartkJ-
um $2.00 um áritS (fyrtrfram borgatt).
nt til lslands $2.00 (fyrirfram borgatS).
állar borgamtr sendtst rátismannl blatja-
Pðst etSa banka ávísanir stíllst tll
•e Vlklng Press, L.td.
O. T. Johnson, ritstjóri
3. D. B. Stephanson, ráSsmaSur
Skrtfstofn:
72* 8HBRBROOKE STRBET, WIPfTTIPEG
P. ». Box 3171 TaUlml Garry 411*
WINNIPEG, MANITOBA, 28. NÓV. 1918
Bretinn gefur
aldrei eftir,
Það er alkunnugt, hversu þrautseigur og
fylginn sér Bretinn er við alt það, er hann
tekur sér fyrir hendur. Að falla heldur með
heiðri en gefast upp, hefir verið stefna hans,
og þess vegna hefir honum orðið svo mikið
ágengt, að hverju sem hann hefir snúið sér.
Hinir djörfu sjómenn hans hafa siglt skipum
sínum í hvern afkima veraldar, og með sjó-
flota sínum hefir hann ef svo mætti að orði
kveða girt hnöttinn; landkönnunar og ný-
lendumenn hans hafa sýnt sömu þrautseigj-
una og hvarvetna yfirbugað alla örðugleika,
villimenn og óblíða náttúru, unz landkönn-
unarsvæðin voru orðin að blómlegum og
friðsælum bústöðum brezkra manna.
Aldrei hefir þó reynt meira á þolrif Bret-
ans eri hinu síðasta og ægilegasta heims-
stríði Og sagan mun bera þess ljósan vott,
að fyrir þolgæði og íórnfýsi þjóðarinnar
brezku á sjó og landi, er nú hið ægiilega her-
vald Prússans, brotið á bak aftur svo al-
gerlega, að vonandi stingur það ekki upp
höfðinu aftur um langt ókomið skeið. Um
þetta efni farast blaðinu Louisville (Ken-
tucky) Herald nýlega orð meðal annars á
þessa leið:
“Ef Vilhjálmur keisari hefði verið fréim-
sýnn, þá hefði hann mátt skjálfa á beinuiv-
um — eins og þjóðsagan segir að hinir
dauðu geri, ef stigið er á leiði þeirra — þeg-
ar hann fékk vitneskju um það, að spæjarar
hans hefðu gabbað hann og að hinir harð-
snúnu Bretar hefðu afráðið að Ieggja Frökk-
um lið, hvað sem það kostaði. Bretar eiga
sér þá sögu að baki, er skelfa má hinn drotn-
unargjarnasta harðstjóra. Þeir komu Philip
Spánarkonungi á kné, þeir skerðu vald Lúð-
víks mikla á Frakklancfi, og þeir beittu sér
á móti Napóleoni mikla og létu hann aldrei
í friði þar til sigur var unninn. — Það er
mergurinn málsins, — þeir sleppa aldrei taki
því er þeir ná. Stórbretaland og nýlendur
þess sendu fleiri en átta og hálfa miljón her-
manna á vígvöllinn. Ef vér (Bandar.) hefð-
um gjört eins vel, hefðum vér þurft að senda
fimtán miljónir hermanna — ekki færri.
Þúsundir af vorum drengjum munu koma
til baka heilir á húfi, vegna þess þúsundir
bræðra vorra frá brezku eyjunum hafa mist
líf sitt og limu — og hafa kent oss að berj-
ast. Bretar og Frakkar héldu óvinunum á
landi og brezki flotinn varði höfin.
Þetta er sá sannleikur, sem Ameríka varla
vill alment viðurkenna. En þetta er nú samt
sannleikurinn.
Fyrir alt þetta borguðu þeir í ríkum mæli.
Naumast er það heimili til á Bretlandi, sem
ekki á eina gröf á Frakklandi eða í Belgíu,
—engin sú gata þar til, að ekki haltrist um
hana limlestir menn til daglegra starfa sinna.
Og skýrslurnar sanna, að fleiri féllu og
særðust tiltölulega af hermönnum Breta
sjálfra, en af hermönnum þeim, er úr ný-
lendum þeirra komu,- og þar með er ein
svartasta lygi hinna óskammfeilnu Þjóðverja
til baka rekin.
En hví erum vér að rifja þelta upp?
Vegna þess, að framlag Breta er ýmist vé-
fengt eða dárað, vegna þess sannleika, að
skip þeirra hafa fært kol, matvæli og vopna-
forða til ítala og Frakka — svo vér ekki
nefnum Bandaríkin sjálf, — og enginn segír
neitt um þetta, og vegna þess að Bretland,
sem í byrjun var svo að segja hermanna-
laust, varð jafnoki Frakklands á vígvellin-
um, en fær ekki maklega viðurkenningu. —
Brezk flutningsskip, varin af brezkum bryn-
drekum, fluttu Bandaríkja hermennina yfir
hafið. Ef þér haldið þetta ofsagt, þá skul-
um vér í samráði við Baker hermálastjóra
taka af svo sem 15 prócent, en þá er líka
nóg gefið eftir.
Hvar hafa Bretar ekki barist? Zuez-
skurðurinn var í hættu, Bretar vörðu hann.
Þjóðverj'ar áttu skipastöðvar í Kyrrahafs-
eyjum, Bretar sáu fyrir þeim. Rússland bað
um hjálp gegn um Hellusund, Bretar gerðu
sitt ítrasta að veita hana. Taka þurfti þétt
í taumana við Tigris-fljótið, Bretar voru til
staðar. Bretar voru í Saloniki. Brezk skip
sigldu um Hadría hafið. Brezku nýlendu-
hermennirnir losuðu Afríku undan ánauð
Þjóðverja. Bretar eru nú að færa sig suð-
ur frá Archangel á Rússlandi og þeir eru líka
komnir til Vladivostok.
Sagan er sönn. Bretar hafa vissulega
lengt stríðið, hafa ekki sýnt sig neitt líklega
til að gefa eftir það allra minsta, gætu hæg-
lega rýmkað um skilmálana, sveigt þá ofur-
lítið til. En þeim kemur slíkt alls ekki til
hugar.
Þetta er þrautseigja Bretans, og fast-
heldni mundu sumir segja. Og vér skulum
ekkert þrátta um það. Þröngsýnir, klunna-
legir, önuglyndir. Gott og vel. En þar sem
þeir taka í, er ekki strax slept aftur. Munið
það. Þess vegna nú, er Rússinn vaknar að
nýju, finnur hann Bretann við hlið sér; þess
vegna er það líka, að Portúgal sem minnist
þess að það þurfti aðstoðar Bretans við
löngu fyrir daga Napóleons, leggur honum
nú lið sitt í fullu trausti um góða samvinnu.
Bretinn er svo einstaklega Iaus við alt
sjálfshól. Hernn gortar ekki af afrekum sín-
um. Að eins framkvæmir það, sem hann
tekur sér fyrir hendur, og svo veit heimur-
inn ekki meira um það frá hans hálfu. —
Áttatíu þúsundir hermanna sendi hann til
Frakklands fyrst,—alt sem til var—, en hann
hundrað faldaði það á ótrúlega stuttum tíma.
Vér Bandaríkjamenn eigum Bretum miklu
meira að þakka, en alment er viðurkent, og
alt það bezta er í oss sjálfum býr, höfum vér
að erfðum tekið frá þeim.”
(S.D.B.S.)
Sumarnótt á Seltjarnarnesi.
Kyrlát kvöldstund ríkir,
kaldir vindar sofa.
Sumarskrauti sveipuð
sveit er ljúf og fögur.
Unn í arma bjarta
ástríkt barn sitt vefur.
Samband þeirra signir
sól, og ljúft þau kyssir.
Bak við Unnaranna
útsýni er fagurt:
Fjöll og sjávarsveitir
sjónum blasa móti.
Fram við Ránarríki
röðul fjöll ei hylja,
Bjart er yfir býlum,
brosir alt við sólu.
Fuglamergðin fríða
farin er að blunda,
en samt heyrist ómur
angurblíður, þýður
líða í lofti tæru
lygnar bárur yfir:
Klukka í hafi hringir
helgra sem til tíða.
Úti’ á eyðiskeri
er hún til að beina
brögnum leið um bárur,
blindsker svo þeir varist.
Valt er þar á fleyi,
feigð er öllum búin.
Hug til hæða’ að lyfta
hringing þessi’ oss kenni.
4
Nótt er þegar nálæg,
næturfriður hvílir
yfir ö’Ilu á foldu,
eygló þó að skíni.
Sveitin sólarríka,
sértu blessun vafin.
Friður guðs æ faðmi
fólk þitt, láð og strendur.
' Jóhanna S. Jónsdóttir.
—19. Júní.
- -—— —-----------—----------- ———►
Eftir stríðið.
Margt er nú talað og skrifað um afleið-
ingar stríðsins hér í Canada, og virðist sumt
af því vera á harla Iitlum rökum bygt. Þeir
sem halda því fram, að hart verði í ári og at-
vinnuleysi og örbirgð muni þjá fólk vort, hafa
ekki Ijóslega gert sér grein fyrir öllum þeim
feikna auðsuppsprettum, er Canada á yfir að
ráða og nú munu verða notaðar meira en
nokkru sinni áður.
Þeir partar Evrópu, sem hin skelfilega
eyðilegging styrjaldanna dundi yfir, munu
þarfnast ótölulega margra miljóna dollara
virði af allskonar vörum og efnum til upp-
byggingar landanna, þar til alt er komið í
sæmilega gott lag aftur. Jafnvel í hlutlausu
löndunum hefir mestallur varaforði af ýmsum
vörum alveg gengið upp, svo einnig þau
þurfa að gera stórkostleg inn kaup þegar
í stað.
Feikna birgðar af trjáviði og öðrum bygg-
ingarefnum þarf að senda til að byggja upp
eyddu sveitaþorpin og borgirnar í Frakklandi,
Belgíu og Serbíu Canada hefir gnægð af
slíku til að selja.
Járnbrautir á þessum svæðum vanhagar
um^brautarteina, dráttvélar, flutningsvagna
og ótal margt fleira. Canada getur lagt alt
það til. Nálega hver einasta brú á orustu-
svæðum Frakklands og Belgíu var sprengd
upp og eyðilögð. Þær þurfa allar að byggj-
ast upp aftur. Það útheimtir stórkostlega
mikið af stáli og steinlími (cement). Canada
hefir þessi efni í ríkum mæli.
Alls konar vinnuvélar í hinar mörgu verk-
smiðjur, er eyðilögðust af kúlum og spreng-
ingum, þurfa að fást að, og ættu verksmiðjur
Canada að geta lagt til eitthvað af þeim.
Stórkostlega mikið eyðilagðist af akur-
yrkjuverkfærum í öllum stríðslöndum. Can-
ada ætti að standa vel að vígi með að upp-
fylla eitthvað af þörfunum í þeim efnum.
Búfénaði stríðslandanna hefir fækkað svo,
að tiltölulega lítið er eftir. Þar ætti því að
vera arðberandi markaður fyrir gripabændur
Canada í mörg ókomin ár.
I einu orði, — það eru hundrað vegir fyrir
Canada að verða að liði við endurreisn Ev-
rópu eftir stríðið. Vér höfum náttúrunytj-
arnar, vér höfum verksmiðjurnar, og vér höf-
um vinnu gefið, áhugasamt fólk — vér höf-
um þúsundir ekra af ónumdu landi, er fram-
leitt getur mikinn forða af fæðutegundum, og
þúsundir afturkominna hermanna munu setj-
ast að á þessu landi, svo framarlega að stjórn-
in setur skilyrðin sæmilega aðgengileg.
Lítil ástæðá virðist því vera til víls og hug-
sýki yfir komandi tíma. Canada er gnægt-
arinnar land. Hagsæld og velmegun hljóta
að ríkja í framtíðinni, svo framarlega sem
fólkið er samtaka í að notfæra sér auðinn,
sem í landinu felst.
(Lausl. þýtt úr Pree Press.—S.D.BJS.)
*----------------— ---------------——«♦
Svartidauði—Pestin.
Eftir Stgr. Matthíasson.
(EimreiSin 1905.)
Latneska orSið "pestis" þýðir drepsótt,
og var áður viðhaft um allskonar sjúkdóms-
faraldur, er olli miklum manndauða; en nú á
tímum táknum vér meS því orði sérstakan
sjúkdóm, og er það nsestum óbreytt notað í
flestum tungumálum.
Pestin er austurlenzkur sjúkdómur, sem frá
einmuna tíð hefir gjört vart við sig austur í
Asíu, einkum sunnan við Baikalvatnið og í
Suður-Thibet. Frá þessum aðalheimkynnum
sínum hefir hún svo lengi sem sögur fara af
létt sér upp við og við og farið út yfÍT löndin
til að faekka fólkinu.
Indland, Persía og Kína verða árlega fyrir
heimsóknum hennar, og um langan tíma hefir
hún legið í landi á Indlandi og aldrei horfið
þaðan til fulls. Einkum hefir mikið borið
á henni síðustu árin, og það svo, að stjórnin
á Indlandi raeður ekkert við og veit eigi
hvemig alt ætlar að lenda, ef veikin heldur
áfram með álíka hraða og hingað til; því að
manndauðinn af pest, sem árið 1900 var að
eins rúm'lega 90,000 árlega, hefir smám sam-
an aukist, svo að síðustu árið 1904 var hún
orðin rúmlega ein miljón, og er það feikilega
mikið á Indlandi einu.
Á fyrri öldpm gerði pestin oft vart við sig
í Evrópu, en nú má heita að menn þekki
hana að eins að nafninu til.
Fyrsta skifti, sem vér höfum áreiðanlega
vissu um að pestin hafi geysað um Evrópu,
var á dögum Justinians keisara, á sjöttu öld
eftir Kr. En langmerkasta farsóttin var sú,
sem gekk yfir alla álfu vora á 14. og 15. öld
og var kölluð Svartidauði og ýmsum öðrum
nöfnum. Svo er sagt, að þá hafi dáið um
25 miljónir manna hér í Evrópu og ef til vill
meira. Eftir þessa feikna plágu gaus pestin
við og við upp í ýmsum borgum hér í álfu
fram eftir 16., 1 7. og 18. öld og gjörði ákaf-
an usla, t.d. í London 1 66"5 og Kaupmanna-
höfn 1711; en í lok 1 8. aldar hverfur pestin
algjörlega héðan úr álfu og hefir síðan að
eins gjört vart við sig einstaka sinnum í hafn-
arborgum, sem bein viðskifti hafa vð Aust-
urlönd; en með duglegum sóttvarnar ráðstöf-
unum hefir aetíð tekist að hefta íár hennar. ;
Þannig barst hún til Oporto 1 899 og Glasgow
1900, en náði svo sem engri útbreiðslu.
Flestum mun enn vera í fersku minni sá
felmtur, sem greip fólk, er það fréttist að
pestin gaus upp á spítala í Vínarborg I 898.
Sóttin hófst þannig, að einn af spítalaþjónun-
um braut glas, er hafði að geyma kjötseyði
með lifandi bakteríum, sem einn af læknun-
um hafði flutt með sér til athugunar austan
úr Asíu. Þjónninn sýktist eftir fáa daga af
skæðri pest og sýkti frá sér bæði hjúkrunar-
konu þá, er stundaði hann og lækninn, sem
vitjaði hans, og öll þrjú dóu. Til allrar ham-
ingju tókst að hefta frekari út-
breiðslu veikinnar, en þetta kendi
mönnum meiri varkárni en áður og
sýndi hve vekin getur verið ákaf-
lega sóttnæm.
Pestin orsakast af ofurlítilli
plöntu eða bakteríu, sem franski
læknirinn Yersin og japanskur
læknir, Kitasato, fundu hvor í sínu
lagi, þegar veikin gekk í Hong-
kong 1 894. í líkama sjúklinganna,
en einkum í bólgnum eitlum, úir
og grúir af þessum agnar smáu
sníkjugestum, sem fyrst er hægt
að sjá með góðri smásjá, er stækk-
ar mörg hundruð sinnum. Til þess
að lögun þeirra sjáist betur, verður
að lita þær með skærum bláum
eða rauðum lit. Aðferðin er fólg-
in í því, að lítill blóð- eða graftrar-
dropi er látinn þoma inn á gler-
plötu. Síðan er helt yfir hana
nokkrum dropum af rauðu eða
bláu bleki, og litast þá bakteríu-
urnar og sjást sem rauðir eða bláir
dílar eða prik. Þessi litla sótt-
kveikja berst nú frá sjúklingnum
til hinna heilbrigðu, er nærri þeim
koma, með hægu móti, því bæði
getur hún borist út í andrúmsloftið
frá lungum sjúklingsins þegar hann
hóstar og þaðan niður í lungu heil-
brigðra og einnig beinleiðis til hör-
unds þeirra, er snerta sjúklingana
eða þá hluti, sem nærr þeim hafa
korrtið. En í hörundinu eru ætíð
ýmsar smáskeinur, sem eru ósýni-
legar berum augum en nógu stórar
til þess að bakterían komist inn
í líkamann.
Enn fremur geta bæði flugur,
flær og lýs flutt sóttnæmið mann
frá manni.
Það eru nú eigi eingöngu menn,
er sýkjast af pest, heldur líka rott-
ur, mýs og jafnvel kettir, og getur
því veikin eins og auðskilð er út-
breiðst með ýmsu móti. Einkum
eru rotturnar illræmdar og hefir
það hvað eftir annað komið í Ijós,
að jafnskjótt og pestin byrjar að
geysa meðal manna, eiga rottumar
við sama ófögnuð að búa og deyja
unnvörpum. Fyrir nókkrum árum
síðan gerði pestin hvað eftir ann-
að vart við sig í borginni Odessa,
án þess menn vissu til að nokkurt
skip eða ferðamenn hefðu flutt
hana með sér. Við nánari rann-
sókn kom svo í ljós, að pestin staf-
aði frá rottum, er einkum héldu sig
í vissum neðauijarðargöngum und-
ir borginni. En þessi neðanjarðar-
göng voru auk þess hæli ýmsra fá-
tækra og drýkkfeldra ræfla, sem
lifðu á flælkingi og höfðust þar við
á næturnar. Þeir sýktust af rott-
unum og sýktu síðan aðra. Með
því að útrýma rottunum tókst að
stemma stigu fyrir pestinni.
Á öllum skipum, sem koma
austan úr Asíu, er haft strangt eft-
irlit með að ekki flytjist rottur.
Bakterían þrífst bezt þar sem
sóðaskapur drotnar og þar sem
loftið er fremlur rakt og í meðal-
lagi heitt; í miklum hita og kulda
deyja bakteríumar og sóttin
hjaðnar.
Reynslan hefir sýnt, að Evrópu-
menn sýkjast miklu síður en aust-
urlandaþjóðir, og skal eg seinna
minnast á orsökina til þess. Svo
er talið, að af 100 Evrópumönn-
um sýkist að eins 30, þegar sóttin
er skæð, en hins vegar af 100
Hindúum 80.
pODD'S NÝRNA PILLUR, (óðM
(yrir allakonar nýrnaveikL
Ug ajf&utVolKl. buauí
iudiiey L*iijs, öoe. asJijan, sex osk>
ur íyrir 0, hjá óiinm lyfsötuni
eóa írA Dodd’s Medieine Oo., LuL
Toronto, Ont.
Eftir að sottnæmið hefir verið
að búa um sig í líkamanum 2—7
daga, hefst veikin með ákafri
köldu — skyndilega — og byrjax
með þvi megn hitaveiki, sem helzt
nokkra daga með höfuð verk,
svinna, óráði og verkjum hér og
hvar í líkamanum. Síðan bólgna
eitlar í nárunum eða undir hönd-
unum og verða að stórum ákaf-
lega viðkvæmum bólguhnútum.
Oftast deyja sjúklingarnir á 2.—5.
degi í áköfum hita, 40—42 C., án
þess að grafi í eitlunum; en stund-
um grefur í þeim og þá batnar
sjúklingum eigi ósjaldan. Þegar
maður svo einu sinni hefir staðist
veikina, er sá hinn sami ómóttæki-
legur fyrir hana í annað sinn.
Stundum og í einstaka landfara-
sóttum af pest, næstum eingöngu,
legst veikin á lungun. Svarti-
dauði var aðallega lungnapest, og
er sú tegund veikinnar vön að vera
afar mannskæð.
Nafnið “Svartidauði” er komið
til af því, að sagt var að sum líkin
yrðu svört, en það einkenni getuur
komið í ljós með ýmsa aðra
skæða hita sjúkdóma, svo sem
taugaveiki o.fl., og stafar af því.
að æðaveggirnir verða meirir og
geta eigi haldið blóðinu í skefjum,
sem svo hleypur út í hörundið,
eins og þegar menn fá glóðarauga,
Vanalega deyja þetta 60—70
prct. af þeim sen\ sýkjast af pest,
en þó er talsverður munur á skað-
semi hinna einstöku sótta. T. d.
var pestin í Hongkong 1894 svo
skæð, að 93 prct. dóu af hinum
sjúku. Menn þekkja engin meðul
er að fullu gagni komi gegn pest-
i inni.
Bæði Yersin og Haffkine hafa
búið til bóluefni til varnar veik-
inni og virðist það gjöra hana
miklu mildari, ef rétt er með farið.
Sömuleiðis hafa þeir reynt að
lækna hana með pest serum á lík-
an hátt og bamaveiki, en ekki hef-
ir enn fengist full vissa fyrir gæð-
um þess meðals. Bæði þessir lækn-
ar, sem nú eru nefndir, og ýmsir
aðrir, enskir, þýzkir og franskir
ladknar, hafa lagt sig í mestu lífs-
hættu við tilraunir sínar til að
lækna pestina, og hafa þeir stund-
um átt við hina mestu erviöleika
að stríða í að fá fólkið þar eystra
ti'l að gangast undir lækninga tii-
raunirnar. — Á seinni árum hafa
t.nglendingar bygt pestspítala i öll
um borgum sínum í Asíu og víð-
ar til þess að geta einangrað vand-
lega alla þá, sem sýkjast af pest.
Til kaupenda Heimskringlu:
HAUSTIÐ er uppskerutími blaðsins, — undir
kaupendunum er þa5 komið, hvernig “út-
koman” verður. Viljum vér því biðja aDa
þá, er skulda blaðmu og ekki hafa aDareiðu borgað
til vor eða innheimtumanna vorra, að muna nu eftir
oss á þessu hausti. Sérstaklega viljum vér biðja þá,
sem skulda oss fyrir fleiri ár, að láta nú ekki bregðast
að minka þsr skuldir. Oss munar um, þótt lítið konti
frá hverjum, því “safnast þegar saman kemur.” —
Munið það, vinir, að Heimskringla þarf peninga sinna
við> og látið ekki dragast að greiða áskriftargjöld
yðar.
S. D. B. STEPHANSON,
Ráðsmaður.
1 ................■....................... .....