Heimskringla - 09.07.1919, Blaðsíða 4

Heimskringla - 09.07.1919, Blaðsíða 4
^ V-* WlN'NIrLG, 9. JÚLI 1919 Skýring Lloyd George á friðarsamningunum Lloyd George, stjórnarráðherra Engtands, flutti nýlega (3. þ. m.) ræðu fyrir neðri mál- stofu brezka þingsins, er gekk aðallega út á að skýra ýms atriði friðarsamninganna. Lýsti hann samningunum sem þeim “þýðingar- mestu skjölum, er brezka ríkið hefði nokk- urntíma sett innsigli sitt undir”. Einnig til kynti hann nú brezka þinginu, svo engum vafa er lengur bundið, að fyrverandi Þýzka landskeisari verði dreginn fyrir aómstól áður en langt um líður og rannsókn hafin gegn honum í sambandi við tildrög stríðsins. Var tilkynningu þeirri fagnað með dynjandi fagn- aðarlátum. Eins og vænta mátti, hlaut Lloyd George hina beztu áheyrn við þetta tækifæri. Þing salurinn var troðfuilur og svo virðist, sem færri hafi komist.að en vildu. Mörg stór menni voru þarna til staðar, sendiherrar Jap- ana, ítalíu, Frakklands og Bandaríkjanna, og margir aðrir háttstandandi aðkoiAugestir. Segja fréttirnar að tilfelli þetta hafi mint á sumar “stóru ræðurnar” sem, haidnar voru á meðan stríðið stóð yfir. Þrátt fyrir þó hann nú bæri á sér þreytu merki eftir undan gengið erfiði í París, flutti Lloyd George ræðu sína skörulega og, eins og honum er sér- kenniiegt, sló sér með köflum niður á eldfjör uga medskuspretti. _ ^ .«*. Landeignum skilaó. Um svæði þau, sem tekin hefðu verið frá Þýzkalandi, sagði hann að með þeim hætti hefði þeim verið skilað tii réttra eigenda Þanmg hefði Alsace-Lorraine héruðunum ver ið aftur skilað til Frakklands og “Schleswig- Holstein” til Danmerkur. Svæði þessi hefðu Þjóðverjar tekið undir sig tneð valdi og hald- ið þeim gagnstætt vilja íbúanna. Sama væri að segja um Póliand, sem tætt hefði verið til agna af rússneskum, austurrískum og prúss- neskum einveldisstóium. Engin þessara svæða tilheyrði ÞýzkaJandi með réttu. £n þá stefnu kvað hann brezku sendi- herranefndina hafa tekið, að yeita öfluga mótspyrnu hverri tilraun að hneppa svæði mestmegnis bygð af Þjóðverjum undir pólska stjórn. Af siíku fengi ekkert gott stafað, og miðaði eingöngu að stofnun annars “Alsace Lorraine” í Evrópu. “Það er skoðun mín að engir hafi ástæðu til að halda friðarsamningana óréttláta gagn vart Þýzkalandi,” hélt Lloyd George áfram, “utan þeim finnist að réttlætið hafi veiið Þjóðverja megin í stríðinu. Sé tifiit tekið til hvers þýzki herinn var notaður, fær enginn skoðað það óréttlæti að hann sé uppleystur og afvopnaður. Ef bandaþjóðirnar hefðu látið tilleiðast að skila nýlendunum þýzku, eftir að hafa fengið jafn augljósar ssmnanir um hörmulega meðferð Þjóðverja á íbúunum og tilraunir íbúa þessara. að öðlast meira frelsi, þá hefðu þær verið að bregðast skyldu sinni og því trausti, sem til þeirra er borið.” % mál þessa manns, sé settur í London og máls- rannsókn öll fari þar fram. “Þeim, sem sekir dæmast í sambandi við hryðjuverk kafbátanna, ætti að hegna. For- ingjum þessara kafbáta hefði átt að vera vit- anlegt að þeir myndu skoðast persónulega á- byrgðarfullir fyrir brot sín á viðteknum hernaðarlögum. ” Á það lagði Lloyd George mikla áherzlu, að ekki væri í hefndarskyni, “þó viðhöfð sé öll varúð með því markmiði að fyrirbyggja endurtekning þessa stríðs og stuðla til að hið vonda dæmi Þýzkalands megi öðrum drotn- unargjörnum valdhöfum og þjóðum að varn- aði verða.” Kvað hann þjóð Þýzkalands hafa samþykt stríðið og því áríðandi að samn- ingarnir sýndu, svo ekki væri um að villast, hvað þær þjóðir mættu eiga í vændum, sem hrintu af stokkunum óvæntum hernaðarárás- um gegn nágrannaþjóðum sínum. Þegar ræðumaður skýrði frá þeirri sam- þykt Englands og Bandaríkjanna, að ljá Frökkum liðsinni ef á þá yrði ráðist, þá dundi við lófaklapp mikið um allan þingsalinn. Skýrði hann frá þessu er hann ræddi ýmsar tryggingar friðarsamninganna, og kvaðst ein- læglega vona að þetta mætti engri mótspyrnu frá hálfu brezka þingsins. Lófaklappið mikla, er hann hlaut, var svar þingfulltrúanna. Væntanleg málsrannsókn. Viðvíkjandi því að málsrannsókn sé hafin gegn þeim, sem ábyrgð1 bera á tildrögum stríðsins, komst Lloyd George meðal annars þannig að orði: “Ef varna á að stríð eigi sér stað, þá verður að skoða þá menn, sem fyrirhuga þau og undirbúa, sem persónulega ábyrgðarfulla fyrir gerðum sínurn. Þess vegna hafa bandaþjóðimar ákveðið máls- lannsókn gegn þeim mémni, sem mesta á- byrgðin vafalaust hvílir á — að þeirra dómi að minsta kosti. Verður hann kærður u:n að hafa'rofið löghelga samninga, er honuir. bar að hlíta, og þannig orsakað stríðið. “Aðferð þessi er óvenj. !eg og er ieitt til slíks að hugsa — því hefði þetta verið títt áð- ur, þá hefðu átt sér stað færri stríð. Og em- róma úrskurður bandaþjóðanna var, að d' stóll sá — alþjóðadómstóll — er fjalia á um Alþjóðabandalagið. Slíkar tryggingar kvað hann hafa verið veittar Frökkum með samþykt alþjóðabanda- Iagsins. Meðal annars komst hann svo að orði: “Á því tímabili, sem enn er í ferskú minni, hafa Þjóðverjar tvisvar hafið hernað á hendur Frökkum. Með fjörutíu miljónir ■ íbúa andspænis óvinveittri þjóð, sem telur sextíu eða sjötíu miljónir íbúa, er sízt að undra þó Frakkar líti kvíðvænlega til þeirrar stundar, þegar her^karar Bretlands og Banda- ríkjanna eru burtu teknir. — Eg er því engán vegin samþykkur að samningár þessir votti vantraust á alþjóðabandalaginu. Þegar alt kemur til alls hefir bandalag þetta ekki mik ið gildi, ef öflugar þjóðir standa því ekki að baki, sem viðbúnar eru að brjóta niður allar hernaðarárásir.” Alþjóðabandalagið kvað hann vera trygg- ingu framtíðarfriðar, umfangsmikla og álit- lega tilraun, en sem þó ekki yrði möguleg ut- an vissrá skilyrða. Án afvopnunar (disarma- ment) yrðu örlög alþjóðasambandsins söm og annara samninga; því myndi feykt verða um koll við fyrstu stríðs storma. Vissulega verðskuldaði þessi “tilraun (ex- periment) ” stuðnmg allra friðelskandi þjóða. Ef alþjóðabandalagið hefði verið til árið 1914, þá hefði Þýzkalandi og Austurríki orð- ið torsóttara að hrinda af stað stríði. En hefði það tekist — þá hefðu Bandaríkin taf- arlaust hafið þátttöku í hildarleiknum, í stað þess að tveimur árum liðnum. Að veita Þjóðverjum tafarlaust ínngöngu í bandalagið, á meðan svo mörg mál í sam- bandi við stríðið voru óútkljáð, hefði ekki verið rétt að farið. Undir þýzku þjóðinni sjálfri væri nú komið, að flýta fyrir inntöku- degi sínum í friðarsamband þjóðanna, og sýna, að eldar hinnar miklu styrjaldar hefðu náð að hreinsa sál hennar. Þess fyr sem Þýzkaland gengi í sambandið því betra fyrir Þjóðverja sjálfa og heim allan. Næst skýrði Lloyd George all-ítarlega frá þeim ráðstöfunum, sem gerðar voru viðkom- andi nýlendunum þýzku. Sömuleiðis mintist hann á alþjóða Verkamannaþingið og ráðstaf • anir þar að lútandi. — Lýsti hann svo í fáum og skýrum dráttum þátttöku Breta í stríðinu. Kvað hann hið mikia þjóðfélag, sem nefnt væri brezka ríkið, ekki enn hafa fulla með- vitund um þann umfangsmikla þátt er það befði átt í framkvæmdum öllum á meðan stríðið stóð yfir. — I ræðulok sagði hann: Það er réttnefnd sigursaga. Látum oss gleðjast — en þó ekki vaða í þeirri villu, að þrautir vorar séu allar á enda. Látum oss heldur fagna í þeim anda, að fyrstu og verstu þrautirnar séu um garð gengnar og að vér, með þeirri hugprýði og staðfestu, er stuðlaði að sigri vorum, getum Iitið róle^ir til fram- tíðarinnar. Látum oss ekki á ótímabæran hátt eyða kröftum vorum í baráttu gegn hver öðnim. Því það get eg sagt í allri alvöru, að ef ér eigum að bjarga landi voru frá að sligast undir þeim byrðum, sem á því hvíla, verðum vér að nota aHa vora krafta og færa til fylstu afnota aílla auðlegð lands vors og brezka ríkisins.” allega um erlenda þjóðflokka hér í landi. Talar Dr. Anderson þar af góðri þekkingu, þar sem hann í síðastliðin tólf ár hefir starfað hér á meðal erlendra þjóðflokka, bæði sem kennari og skóla-umsjónarmaður. Hann er nú meðlimur mentamáladeildar Saskatche- wan fylkis og á heima í Regina. I þessari ræðu sinni lýsir hann all-ítarlega hinum ýmsu útlendu kynflokkum, er nú búa í Canada, sem hann þekkir svo vel sökum síns langvarandi starfs þeirra á meðal. — Um ís- lendinga hefir hann þetta að segja: “Enginn vandi er á ferðum hvað Islendinga snertir. Þeir eru í röð beztu borgara í Can- ada og hafa verið fljótir til að skipa þann sess. > Fer eg ekki rétt með þegar eg segi að dómsmálaráðherra fylkis yðar sé Islendingur? Og er ekki íslenzkur kennari starfandi við há- skóla yðar? Þjóðflokkur þessi ber höfuð og herðar yfir aðra innflytjendur. Ungu mennirnir íslenzku brugðust göfuglega við herkallinu. Engir reyndust hugprúðari hermenn og margir þeirra lögðu Iífið í sölurnar í þarfir frelsis- ins. Sú velþóknun, sem eg hefi svo oft í Ijós látið gagnvart þjóðflokki þessum, hefir kom- ið mörgum til að halda að eg væri Islending- ur sjálfur. — þýzkt skólaráð eitt var mér stórlega reitt fyrir að vera mótfallinn að þýzk börn gengju á sérskóla (private school). Um mig komst þá einn meðiimur þess þannig að orði: “Hann er Islendingur sjálfur, hvað seriv oóru Iióur . Ja, sagói annar, og skozkur líka.” — Ummæli þe^sa manns mega vera íslending- um gleðiefni. Það er ekki svo oft að íslend- ingar eru teknir fram yfir alla aðra! Og í þetta sinn eru það íslenzku hermennirnir, er sjálfviljuglega buðu sig fram í þarfir fóstur- landsins, sem stærsta orðstírinn hljóta. Eng- um mun heldur blandast hugur um, að slíkt sé fyllilega verðskuldað frá þeirra hálfu. ■— Eins eru þeim nú valin hrósmæli, sem fljótir hafa verið að semjá sig að landssiðum og vel og drengilega hafa rutt braut sína í fóstur- landinu nýja. En enginn skyldi halda að þeir, sem heillast hafa látið af hálftryltum æsingamönnum til mótspyrnu gegn öllu, sem verið er að gera og óhugs á öllu hérlendu, eigi nokkuð í þessu hrósi. Svíum og Norðmönnum bar Anderson einn- ig góða söguna, sömuleiðis Ungverjum, Serb- um, Pólverjum og fleirum. Enga þessa þjóð- flokka virðist hann þó hafa í jafnmiklu af- haldi og íslendinga, að dæma af þessari ræðu hans. Það er þegar kemur til Doukhobora, Men- onita og Rutheníumanna, að vandræðin byrja. I Saskatchewan fylki eru nú sex þúsundir í- búa af Doðkhobora kynstofninum; voru áð- ur níu þúsundir, en hefir fækkað. Allir þess- ir sfðast nefndu þjóðflokkar eru hinir treg- ustu að semja sig að landssiðum og vilja helzt einangra sig sem mest frá öðrum borgurum. • Þeir eru hinn bezti jarðvegur fyrir æsingar af öllu tagi og margir hverjir því algerlega mót- fallnir, að börn þeirra gangi á hérlenda skóla. Þar af ieiðandi virðast þeir alt annað en glæsilegur efniviður í góða Canada borgara. Bendingar Dr. Andersons í þessu sam- bandi, þar sem hann er málum þessum jafn kunnugur, eru óneitanlega mikils virði. I fyrsta Iagi leggur hann áherzlu á mentun barnanna, og áð ráðnir séu tiJMcenslunnar Canadiskir kennarar; í öðru lagi leggur hann til, að hafðar séu höndur í hári öfga- og æs- ingamanna, sem alt hérlent hafa á homum sér, og að þeir séu gerðir landrækir. Um þessa öfgagjörnu og æstu “leiðtoga” fer Dr. Anderson óvægum orðum. Enda er manni í hans stöðu fyllilega augljós sú hætta, sem af þeim stafar. Endalausar æsingar miða ekki að öðru en innbyrðis baráttu og ófriði. Eigi Canada ekki að verða að öðru Mexico eða Rússlémch, verður fyr eða síðar að taka í taumana. WÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI P.O. Box 923, Winnipeg, Manitoba. I stjörnarnefnd félagsins eru: Séra Rögnraldnr Pétnrsaon, forseti 650 Maryland str., Winnipeg; Jön J. Bildfell, vara-forseti, 2106 Portage ave., Wpg.; Sig. Jöl. Jöbnnnesxon, skrifari, 957 Ingersoll str., Wpg.; Aag. I. Blundahl, vara-skrifani, Wynyard, Sask.; S. D. B. Stephanson, fjármála- ritan, 729 Sherbrooke str., Wpg.; Steffin Einarsaon, vara-fjármálaritari, Arborg, Man.; Asm. P. Jöhannsson, gjaldkeri, 796 Victor str., Wpg.; sérá Albert Kristjfinsson, vara-gjaldk., I,undar, Man.; og Signrbjörn Slgur- jönsson, skjalavöröur, 724 Beverley str., Wpg. Fastafundl hefir nefndin fjðröa föstudagskv. hvers mðnabar. fallnir samhygSarverkfalli. Verk pressumanna” gátu ráSsmenn og meSeigendur blaSa. leyst af hönd- um án þess aS skoSast “verkfalls- brjótar (scábs)”. — Vill Sig. Júl. sanna meS rökum, blaSur út í loft- iS er þýSingarlaust, aS “verkfalls- brjótar (scabs)” hafi unniS aS Heimskringlu á meSan verkfalIiS stóS yfir? Geri hann þetta ekki, stendur hann afhjúpaSur ósann- indamaSur fyrir framan lesendur blaSs síns. Voröld veitir örSugt aS láta Heimskringlu njóta sannmælis; heiftar- og haturshugur ritstjóra hennar ber dómgreind hans ofur- liSi. Spánný þýSing birti^t í síSustu Voröld á The Royal North West Mounted Police, þar sem liS þaS þaS er nefnt á íslenzku "Kletta- fjallaliSiS”. Afar frumleg þýS- ing -og vottur um afburSa ensku- kunnáttu!! LagSur sá víStæki skilningur í orSiS “mounted” aS þar sé ekki eingöngu átt viS fjöll, heldur “Klettafjöllin” !!! ÓráSin gáta: HvaS var Vor- öld aS gera á meSan verkfalliS stóS'yfir, var hún aS heyja öfluga baráttu í þágu verkalýSsins — eSa sat hún heima? Voröld virSist skoSa vanþókn- un gegn óréttlátum Iandslögum, sem komi í ljós í uppreistum (ri- ots?), dýrmætt þjóSareinkenni Islendinga! Tilfærir sem helztu rök fyrir þessu flótta forfeSra vorra undan ofríkislögum Harald- ar konungs hárfagra. — En sann- ar ekki þetta einmitt hiS gagn- stæSa. Voru ekki forfeSur vor- tollarnir eru allir hærri ý918 heldur en árið á undan, en bar er aðgæt- sndi, að inargir tollar hafa verið hækkaðir fyrir skemstu. Dýrtíðin í Reykjavík. Eins og að undanförnu flytja Hag- tíðindin skýrslu um sinásöluverð í Reykjavík. Sézt á þessari skýfslu, að það er síður en svo, að dýrtíðin fari minkandi, eins og inargir höfðu l>ó vonað. 1 skýrslunni eru taldar 57 tegundir matvæla. Hafa þær að meðaltali hækkað í verði um 219%» síðan f stríðsbyrjun, um 13% síðan í fyrravor og um 2% á síðasta árs- fjórðungi. Að vísu voru ekki allar þær matvörutegundir fáanlegar í aprfl, sem taldar eru í skýrslunni, og hafa þær sem ekki fengu.st, ver- ið taldar með sama verði 'eins og þá er þær fengust síðast. En eftir verða þá 49 tegundir matvæla, er hinar eru frá dregnar, og hafa þær að ineðaitali hækkað um 227% síð- an stríðið byrjaði. Manntal í Reykjavík. 1 lok nóvembermánaðar .fór fram manntal hér f bæ og reyndist mann- fjöldinn 15,328. í fyrra voru íbúar iiorgarinnar 15,020. Hefir fólkinu því fjölgað um 308 manns eða 2,1 prct. síðastliðið ár. Er sú hækkun lícið minni tiltöluiega heldur en ér- ið áður, þrátt fyrir hinn mikla manndauða, sem-hér varð af völdum inflúenzunnar áður en manntalið fór fram. fór fram.«-Morg.bl. Nýja St. Helena Tii Hoiiands telst eyja ein, sem W ieringen heitir. Hennar hefir ver- ið aðditlu getið áður, en nú er hún orðin fræg vegna þess, að þar dvel-' ur Yilhjálmur fyrverandi ríkiserf- ingi Þjóðverja. Og nú er hún köll- uð “nýja St. Helena.” ' Innan um alt það skraf, sem nú er um hin miklu vandamálefni frið- arráðstefnunnar, heyrist þó alt af minst á “keisarann” og “kelsarason- ir, með því aS vilja heldur flýja úr lnn • óg margir eru þeir blaða- landi burt en standa í gagnlausum ™.enn’ 8eln f“rif ,hafa fil Wieringen uppreistum (r.ots) he.ma fyr.r, aS um f at]egðinni. Flestir hafa þeir Pillur. íslendingum hrósað. BlaðiS Manitoba Free Press birti nýlega ræðu, sem Dr. J. T. M. Anderson frá Sas- katchewan flutti á ársþingi mentamálafélags- ins (Educationd Association) hér í Manitoba. Umræðuefni hans við þetta tækifæri var “Canacfianization” og fjallar ræða h*ns að- Hvers vegna var Voröld eina blaSiS í Winnipeg, sem lá í lamasessi á meSan verk- falliS stóS yfir? VerkamannablaSiS, sem áSur kom út bara einu sinni á viku, kom þá út daglega. sýna hygni og andlega yfirburSi? Ef sumir “niSjamir” hér vestra færu þar aS dæmi þeirra, væri nú minna um einkisverSar og meS öllu gagnslausar æsingar á meSal þeirra. — — FarSu heim, og lærSu betur, Siggi sæll. Frentvi.Iur eru öllum hvimleiS- ar — einna hörmulegast sóma þær sér þó í afbragSsvel rituSum grein- um eftir óSmæringinn snjalla, St. G. St. Þar eru þær alveg drep- andi.! Ur Hagtíðindum Islands Innfluttar vörur 1918. Samkvæmt skýrslu í nýútkomnum Hagtlðindum sézt það, að árið 1918 hefir verið flutt inn til Reykjavík- ur miklu meira af vínföngum heldur en árið á undan. Af sterkum drykkjum, svo sem vínanda, rommi kognac o. fl., hefir verið flutt inn helmingi1 meira, á rauðvíni, messu Gaman er aS þeim mönnum, sem, þegar bardaginn er um garS genginn, leggja út á “Blondins þráS mælskunnar” til þess aS rétt- læta heigulskap sinn og ómensku! eSa hvaS gat gengiS aS Voraldaritstjóranum annaS en ómenska? Líklega hefir honum ekki fundist verkamannablaSiS vera ac fara í gegnum “hendur verkfallsbrjóta (scabs)”. Stílsetjarar og prentamr tóku engan þátt í verkiallinu, voru viS atkvæSagreiSslu mót- :l‘rí JUVimnttx'Á'- ■' ; '■■"■•■'■•■ ¥> '■'■■■' wíni, ávaxtasafa og fleiri þessháttar drykkjum hefir innflutningurinn nær fimmfaldast og á öðrufn vín föngum og súrum berjasafa hefir innflutningurinn freklega þrefald ast. Aífcur á móti hefir innflutning ur á öli minkað drjúgum. 'Af tó- baki hefir fluzt töluvert minna inn heldur en 1917; en af vindlum og vindlingum þrefalt meira. Inn- flutningnr á kaffi hefir ekki verið þriðjungur á við árið á undan og á sykri ekki nærri helmingur. Aftur á móti hefir innflutningur á kaffi- bæti verið heldur meiri og eins á te og brjóstsykri og miklu meiri á súkkulaði og sérstaklega kakaó. Af vörutolisvörum var flutt töluvert rninna inn til Reykjavíkur heldur en árið á undan. Þó hefir verið flufct inn töluvert meira af vefnaðar vöru og nokkru meira af salti. Tollar. Tollarnir í Reykjavfk hafa numið alls rúml. 1 milj. króna árið 1918 á móts við rúml. 1,1 milj. árið 1917. Kaffi- og sykurtollurinn hefir ekki verið nema 319 þús. kr. árið 1918 á méts við 709 þús. kr. 1917. Hinir ■ ■ ó 'M , . . komið þaðan jafnær aftur. Þó lán- aðist dönskum blaðamanni að ná tali af ríkiserfingjanum. Þeir hitt- ist fyrst úti í veitingastofu — einu veitingastofunni, sem til er á eynni. Það var í kalsaveðri og Vilhjálmur kom þangað inn eftir litgöngu og l>að um koníak. Húsmóðirin var að fægja stóla og börð úr “pólitúr” og þefinn af því lagði um alt herberg- ið. Vilhjálmur settist á knattborð, en er hann sá, að nýr gestur var kominn, varð hann svo feginn, að hann gleymdi koníakinu, og þegar hann fór, stóð óhreyft staupið, er . húsfreyja hafði helt barmafult og sett á knattborðið hjá honum. Hlaðamaðurinn lýsir honum svo, að hann hafi verið í knébuxum og með tréskó á fótum, eins og tfðkast í Hollandi. Fingurnir voru gulir af sígarettureyk — því að Vilhjálmur reykir afarmikið og er sí og æ að kveikja sér í sígarettu, en fleygir henni jaþiharða*i.' Þess vegna var gerð handa honum sérstök tegund af sígarettum. Eru þær með löngu munnstykki — en sama sem engu tóbaki — og er guilið “W” letrað á hverja þeirra. Þessar sígarettur á hann og hefir enn, og eru þær hon- um bezta dægradvölin. Blaðamaðurinn vildi fá Vilhjálm til þess að leysa ofan af skjóðunni, en komst fljótt að raun um það, a« hvorki vildi hann láta hafa eftir sér vegna hollenzku stjórnarinnar. og eigi heldur mátti hann það Henni er ekki mikið um hina tignu þýzku gesti, sem hún hefir fengið, og vill láta eins lítið á því bera og unt er, að hún hýsi þá. — Sjáið þér, mælti Vilhjálmur, og tók upp úr vasa sínum ameríska marghleypu, .þessa hérna hefi eg til þess að halda frá mér forvitnum blaöainönnum, Við getum talað saman sem kunningjar, en þér meg- ið ekki hafa neitt eftir mér. — Hvort mór leiðist hér? Þér getið því nærri! Hér get eg engar íþróttir iðkað (hann er gamall og kunnur í- 3róttamaður). Eyjan er ekki stærri en svo, að eg hleyp hana enda á milli á einni klukkustund. En hér er ágætis fólk, bætti hann við. Sein- ast í morgun sat eg með fiskimönn- unum inni í sjóbúð og rabbaði við þá. Eg er þegar farinn að tala hol- lenzku. Og eg h«fi farið með þeim

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.