Heimskringla - 03.05.1922, Blaðsíða 1

Heimskringla - 03.05.1922, Blaðsíða 1
NÚMER 31 WINNIPEG, MANITOBÁ, MIÐVIKUDAGINN 3. MAI, 1922 XXXVI. AR .... CAMDA “Radio”-ræíur Blaðið “Tribune” Hér í bæ, sem hefir komið upp hjá sér radio skeytastöð, bauð leiðtogum stjórn málaflokkanna að nota stöð sma til að flytja ræður frá. John T. Haig þingmaður og fyrrum leið- togi íhaldsmanna var hinn fyrsti til þess og hélt sína ræðu s. 1. fimtudag. Þeir er samband höfðu við stöðina, sögðust hafa heyrt mjög greinilega til ræðumannsins. T. F. Dixon leiðtogi verkamanna-1 flokksins heldur ræðu með þessum bætti mjög bráðlega og einnig Norris stjórnarformaður og Burn- «11 leiðtogi bændaflokksins. Byng kemur til Brandon. Landstjóri Canada, Baron Byng, «r mælt að setja muni hina árlegu sumarsýningu í Brandon sem byrj- ar síðustu vikuna í júlí, n. k. og fólksfleira fylki en Man. og Alta. — Til eftirlauna og styrks ýmislegs voru veittar 4 miljónir dala; lj/2 miljón til vinnulausra hermanna; $400,000 til atvinnu- lausra manna undir eftirliti verka- máladeildar stjórnarinnar. Kostn- aður við móttöku landstjórans, var 20,500. Kostnaður fulltrúans frá Canada á friðarfundinum var $25,000. Og aðrar $25,000 voru veittir fulltrúum Canada á Gen- úafundinum. Til útfarar Sir Sam Hughes voru $2,200 veittir. Þetta getur nú alt saman heitið lítill fróðleikur og~ leiðinlegt aflestrar. En þegar til alls kemur, er það nú samt það hvernig fé landsins er varið, sem nokkru skiftir alla. Bifreiðum fjölgar. I Manitoba er nú sagt að séu 39,240 bifreiðar; 12,133 af þeim eru í Winipeg. Árið 1908 voru aðeins 418 bifreiðar til í öllu fylkinu. Læknafundur. Læknar í Bandaríkjunum og Canada hafa ákveðið að hafa þing hér í Winnipeg dagana frá 20. til 23. júní n. k.; verða fyrirlestrar fluttir um nýjustu undrin öll í þessari grein vísindanna, læknis- fræðinni. Undirbúningur er mikill því við fjölmenni er búist. C. P. R. félagið hefir síðastliðnar tvær vikur tekið talsvert af folki í vmnu í Vesturfylkjunum; í Bnt- ish Columbia hafa 1500 manns fengið vinnu og einnig margir í Manitoba að sagt er. Vorvinna hjá bændum er og að byrja og hefir það aflað nokkrum atvinnu. Betur að rætast fari eitthvað úr atvinnuleysinu. Flugvélar sem hafist geta á flug af sjó, verða notaðar til þess að flytja atkvæðakassana á milli frá stöð- um fram með Winmpeg-vatm í, næstu fylkiskosningum, að sagt er. Dómari Sæti Metcalfes, í áfrýjunarrétti Manitoba, hefir Pendergast dóm- ari hlotið. En sæli Pendergast í yfirdómi (King Bench) hlýtur afl- ur John E. Adamson lögmaður, sem um þingmenzku sótti í Gimli kjördæmi í síðustu kosningum. Sambandsþingið Járnbrauta-málið var til um- ræðu fyrstu daga vikunnar. En engin ákvæði hafa enn verið tek- in, um hvað gera skuli í því máli. En ekki lýst Hannah vel á að lækka burðaigjöldin um 30— 40% ; sagði hann að tekjuhalli kerfisms hefði síðastliðið ár ver- ið um 70 miljónir dala, og hver hann yrði á komandi an, ef tekj- ur félagsins yrðu færðar niður eins og sumir vildu, sagðist hann ekki þora að eiga við að reikna. Þessa yfirtsandandi viku heldur stjórnin ráðstefnu um þetta mál og verður það eflaust að henni lokinni aftur lagt fyrir þingið. — Önnur mál þessa s. 1. viku lutu að fjárveitingum til Indíána og ým- islegs annars. Var samþykt að veita til velferðar Indíánanna í Ontario og Quebec $183,115. $661,092 í Manitoba, Sask. og Alberta, $264,240 í British Col- umbia, $15,000 í Yukon. Mjög var kvatt til að stuðla að mentun Indíánabarna á skólum. — Til opinberra bygginga í Manitoba voru veittir $40,500; í Saskat- chewan $27,000, í Alberta $31,- 000; var það talið ójafnt skift af þingmanninum frá Kindersley, þar sem Saskatchewan væri stærra Handagangur í öskjunni. Allir stjórnmálaflokkarnir í Manitoba eru að hafa fundi þessa viku hér í bænum. íhaldsmenn byrjuðu á mánudagskvöldið var og stendur fundur þeirra yfir enn; er ekki lokið þegar þetta er skrif- að. Hinir flokkarnir byrja sína fundii á þriðjudag og miðviku- dag. Fréttir af þeim verða að bíða næsta blaðs. -----o------ BANDARÍKIN. Verkfall kolanámumanna. Ekkert virðist Iagast með verk- fall þeirra sem vinna við kolanám- ur í Bandaríkjunum og er nú verk- fall þetta búið að standa yfir á annan mánuð. Verkfall þetta staf- aði aðallega af því að námueig- endur vildu færa kaupgjald niður en verkamannafélag námumanna neitaði að ganga að og gerði verk- fall. Um 680,000 manns hafa tekið þátt í verkfallinu og ér sagt að þeir muni geta haldið út enn um langan tíma og hafa þeir þó tapað í kaupgjaldi fram til þessa tíma hvað nemur alt að tuttugu og fimm miljónum dollara. Drykkjuskapur löglegur í kirkjum. Samkvæmt dómsúrskurði frá hæsta rétti er leyfilegt að neyta allskonar áfengis eða vínanda við altarisgöngu í kirkjum innan Bandaríkjanna. Skuldir þjóðarinnar vaxa. Ríkisskuldin er 23 sinnum meiri nú en hún var árið 1917, en þá var hún nálægt einni biljón dollara. Þessar upplýsingar veitti Eliot Wodsworth aðstoðarfjár- málaritari í ræðu er hann hélt á fundi hins sameinaða bankastjóra- félags er haldinn var í Chicago nú nýlega. Manntjónið í Fort Worth flóðinu. Flóðaldan sem steyptist yfir bæinn Fort Worth í Texas á þriðju daginn í s. 1. viku er sagt að hafi orðið tíu manns að bana, gjört 2,500 heimislausa og orsakað eignatjón er nemur yfir tvær milj- ónir. Móðir Percy Grainger dáin. Mrs. Rose Grainger, í White Plains, N. Y., móðir söngfræðings- ins mikla, Percy Aldridge Grain- ger, dó 1. maí, s. 1.; féll hún út um glugga á byggingu í New York; fallið var feiknamikið, því konan var stödd í sal nokkrum á 18 Iofti byggingarinnar er slysið átti sér stað. Um orsakir þess vita menn að öðru leyti ógerla. BRETLAND Irland. Síðastliðinn föstudag voru ein eða fleiri fjölskyldur í Cork myrt- ar; voru þær í röð fremstu borg- ara þar. Er haldið að líflát þeirra hafi verið framið í hefndarskyni fyrir morð Owen Macmahon fjöl- skyldunnar í Belfast á mánudag í sömu viku. Bráðabirgðarstjórnin á írlandi hefir lofast að láta ekk- ert ósparað til þess að ná morð- ingjunum og láta lögin yfir þá ganga. Sem vonlegt er, vekja þessi leynimorð ótta á Irlandi, því óvíst er á hverjum þau verða látin bitna. England. I Englandi er maður staddur frá Ástralíu er Hon. A. K. Trethowan heitir; er hann formaður hveiti- söluráðs í Ástralíu sem stofnað er af bændum, og er einmitt í er- indagerðum í sambandi við það í Englandi. Áform hans er að fá sem flest hveitiræktarlönd til að gangast fyrir samtökum um sölu á hveiti, til þess að koma í veg fyrir gróðabrall á þeirri vöru. Hann kemur til Canada og Banda- ríkjanna seinni hluta júnímánaðar og hefir beðið Crerar að stofna til fundar með það fyrir augum, að efna hér til samtaka í þessu efni. “Það fást altaf jafnmörg brauð úr einum mæli af hveitikorni,” segir hann, “og að verðið á því sé eitt í dag og annað á morgun, er aðeins til þess, að hafa fé af bóndanum, en auðga kornsalana. I Ástralíu studdi stjórnin þessi samtök í fyrstu,” segir hann, “en hún þurfti þess ekki lengi.” Þetta áform — ef í fram- kvæmd kemst, sem líklegt er tal- ið — er sagt að gerbreyti korn- sölurekstri hér sem annarsstaðar. —------o------ ÖNNUR LÖND. Genúa. Það virðist sem heldur sé að greiðast úr flækju málanna á Gen- úafundinum. Eins og áður hefir verið skýrt frá.voru Frakkar einna erfiðastir viðureignar í samnings- leitinni við Rússa. En nú hefir Lloyd George fundið upp það ráð, eiginlega viðskiftasamning við Rússa. Þó Frakkar hafi ekki enn samþykt þá tillögu eru miklar lík- ur til, að samkomulag fáist með þessu. I samningum Vestur-Evr- ópu þjóðanna eru ákveðnar upp- hæðir þær, er þær vilja lána Rússlandi. Bretar hafa samþykt á þingi að veita Rússum 50 miljón punda lán; Japar 6 miljón Yen, (1 yen = 50c) ; Belgía 250 milj- ónir franka; Frakkar vilja ekki ákveða neina upphæð. En þó lán þessi virðist að nokkru samkvæm hugmyndinni er ráð var gert fyrir að viðskifti við Rússand yrðu bygð á, eru Rússar þess varir, að auk þess sem þau eru svo lá, að þeim þykja þau varla koma til greina, þá er samt annað verra við samningana frá sjónarmiði Rússa. I þeim er ekki tekið fram að Vestur-þjóðirnar viðurkenni stjórnskipulag Rússa. En bæði það og svo hitt, hvað lán þessi eru lág, er haldið að verði til þess, að Rússar líti ekki við samn- ingunum. Samt verður ef til vill fundinn miðlunarvegur í því máli enn. Yfirleitt er afar erfitt að sjá hvernig málinu á fundi þessum reiðir af. Það virðist svo skamt milli sátta og friðrofs, einkum að því er Frakka snertir, að eining eða samhugur fulltrúanna virðist hanga á örmjóum þræði. að Bretar og Frakkar geri sam- Ukranía. Átakanlegt kvað það vera hve ^olland sýnir Ukraniu mikinn ó- rétt og ágengni. Dr. Eugene Petru- shevich forseti þessa litla lýðveld- is, sem stofnað var 1918, er í út- legð, en í hans stað stjórna Pól verjar landinu. Þeir létu þjóðina sverja sér hollustu eyða nauðuga og demdu á hana 20 biljón marka skatti til viðhalds pólska hernum auk ráðríkni og frekju sýnda í ótal mörgum öðrum greinum. Það er talað um nauðsyn á vernd smá- ríkja og sumar stórþjóðirnar þykjast hafa þá stefnu efst á blaði sínu. En hví leyfa þær annað eins hróplegt ranglæti og þetta? Ukraniumenn í Ameríku hafa sent Bretum og Bandaríkjastjórn- inni áskoranir að skerast í leik með þjóðinni sem þarna er verið að undiroka. Einnig hefir áskor- rnmemmm :mt'"•jwu.: un verið send til Genúafundarins* að hefjast handa og skakká þenn- an grimma leik sem Pólverjar eru þarna á ferðinni með. — Er lík- legt að stórþjóðirnar geri sér ekki þá skömmað horfa aðgerðarlausar á þetta lengur. Hljómleikar af hvað tegund sem eru, þykjaj siðspillandi í Kurdistan. Ekkert um hernað. Tchicherin formaður rússensku sendinefndarinnar á Genúafundin- um hefir lýst því afdráttarlaust yfir, til þess að reyna að sefa reiði Frakka, að það sé ekki með einu orði minst á hernað eða hernaðar- samtök í samningnum milli Rússa og Þjóðverja. ----------x--------- ÍSLAND _ I Eftir nýkomnum “Degi” frá Akureyfi. Æfisaga Matthíasar Jochumssonar rituð af honum sjálfum í síð- ustu árum æfi hans, kemur bráð- um út. Stgr. læknir sonur skálds- ins býr undir prentun, en Þorst. Gíslason kostar útgáfuna. Enginn vafi er á því, að þetta verður við- brigða skemtileg bók og fróðleg og mun marga fýsa að eignast hana. Þingfréttir. Stefnuræða hins nýja forsætis- ráðherra snérist mest um fjár- hagsmálin. Taldi hann enga leið að komast úr kröggunum aðra en að spara af alefli, auka fram- leiðslu og takmarka mjög vöru- kaup þjóðarinnar frá útlöndum. Frumvarp um að fresta fram- kvæmd barnafræðslulaganna kom ið til annarar umræðu eftir þriggja daga harða sennu. — Aðalandi þess, að niðurfalli um sinn opin- berar styrkveitingar til barna- fræðslu nema að einhverju leyti í kaupstöðum og um leið séu ung- lingaskólar styrktir að nokkrum mun. Breytingartillaga komin fram frá Magnúsi Guðmundssyni um að fræðslulögin séu látin gilda, en að dýrtíðaruppbótinni sé velt yfir á bæjar og sveitarfélög í réttu hlutfalli við framlög þeirra til barnafræðslunnar. Önnur breyt.t. við þetta þess efnis, að um leið sé sveitarfélögunum gefin heimild, Frumv. sparnaðarnefndar um að fella niður lögboðna fræðslu leggja niður dósentsembættið í grísku og prófessorsembættið í hagnýtri sálarfræði komin til 2. umr. Afráðið er að senda Einar H. Kvaran og Svein Björnsson suð- ur til Spánar til frekari samninga- gerða og fresta afgreiðslu bann- lagarýmkunarfrv. stjórnarinnar fyrv. Fjárveitingaenfnd býst við að skila áliti sínu seint í þessari viku. Áskorun komin fram frá kaupm. í Reykjavík, óundirskrif- uð, en talin vera frá yfir 300 kjós- endum um, að leggja niður Lands- verzlunina, afnema öll innflutnings höft, setja engin höft á verzlun yfir höfuð, hætta einkasölu á tó- baki og að ríkið hafi enga einka- sölu með höndum af neinu tagi. Magnús Kristjánsson var kosinn forseti sameinaðs þings í stað Sig. Eggerz. * - . Dánardægur. Látinn er 2. þ. m. að heimili sínu Mjóadal í Bólstaðarhlíðar- hreppi í Húnavatnssýslu öldungur- inn Guðmundur Erlendsson, hrepp stjóri, á 75. aldursári. Guðmundur var faðir Sigurðar skólameistara. Hann var lengi hreppstjóri, af- Vigfús Halldórsson Huga til Kafsins svo heitt feldir þú — Víðir samt varð þér ei varanlegt bú — Ósklausri æfi er ágætar* þó, þurlendis þreyja við þrá út’á sjó. Ást þín til Ægis var alls eigi kyn, Sorg ykkar sveipaði samskonar skin. Hlýlega hjúpar ’ann harmadjúp sitt Blíðviðris brosi, eins björtu’ og var þitt. Oft gerðust aðrir, af ofurkapps trú, Hraps útí háska til hvatari en þú — Fæstir þeir finnast, ef fleygi berst á, Strengdir við stýrið í strand-reki af sjá! Hnígið í hrannir svo hefðir, með ró, Hinzta stríð hefðir þú háð út’á sjó — Sama með sinnið, á síðustu höf Lagðiru, á landi, til lægis í gröf! Clfurinn óskar, og á festir trú: Hugarins húfi, að halda sem þú — Ver þú sæll, vinur! Eg veifa að þér hönd Sam-mæla söngs míns, frá sólarlags-strönd. Stephan G.— 22.-4. '22 I »secooaecaoc«os8waooM9a Morgunn Sé eg mildan morgunroða mjúka gylla skýjahnoða; líkt sem fljóti floti gnoða fram um himins regindjúp, vafinn röðulroða-hjúp. Geislar fæddir bjarmabárum brotna í skærum næturtárum, litmerlandi á léttum gárum lónin tæru, kyr og gljúp. Eins og byggi úr brendu gulli brú á lónin, kyr og gljúp. Yfir rökkvu austursvæði, yst við sjónbaug láð og flæði sem í björtu báli stæði, boðar röðull komu sín; þokast hægt og hægt í sýn. Leifturflaugar lætur geysa, liðar nætur undan þeysa. Dagsins byrjar dýrðleg reisa; drotning hans nú risin skín. Nú er drotning dagsins risin, dásamleg í veldi skín. Alt sem lifir bregður blundi, blíðum fagnar lífshöfundi. Fugl, í dvala draums er undi, dregur undan vængnum nef, fer að syngja fagnaðsstef. Endurnýjað alt í heimi er sem fjærst úr víðum geimi ómar sætir ofan streymi æðri heims úr tónavef. Sætir ómar ofan svífi æðri heims úr tónavef. Morgunsunna, bjarta, blíða, bros þú hlýtt til vorra lýða. Hjörtun sem af kvöl og kvíða kveinuðu um dimma nótt græð þú vel og gjör þeim rótt. Misklíðir á mannlífssviði, morgunn, sefa þínum friði. Bróðurkærleik bezt að liði blíða geisla sendu drótt. snertu hjörtun hlýjum geisla, hugblæ þýðan vektu drótt. Vek þú upp, frá illum draumi, alla sem í tryltum glaumi fljóta eins crg fis með straumi fáskiftnir um líf og hag; svalla um nótt, en sofa um dag. Lát þá skilja að lífið krefur liðs af þeim sem afl það gefur. Þeim sem skylduverk sitt vanda verður rótt um sólarlag. Þeim sem skylduverk sitt vanda veri heiður. Góðan dag! 3 —B. Þ. »oooce9909s<»ooðso9eseseðc SiE zsm*. - wm r zm burða dugnaðarmaður og gáfað- ur. Einnig barst sú fregn, að móð ir Sigurðar skólameistara, Ingi- björg Sigurðardóttir í Mjóadal sé líka dáin úr lungnabólgu, 74 ára gömul. Þau hjónin veiktust bæði á sömu klukkustundinni og eru bæði liðin. Er ljúf tilhugsun um samfylgd þeirra hjóna lífs og lið- inna, þó sviplegt sé fráfall þeirra ættmennum. Látinn er á heimili sínu Þóru- stöðum í Kaupangssveit 28. febr. s. 1. Páll Jónsson bróðir Halldórs heitins Jónssonar bankagjaldkera. Páll bjó lengi á Litlu-Tjörnum í Ljósavatnsskarði en þær eru í þjóðbraut. Hann var mörgum kunnur og hinn vinsælasti maður. Látinn er á heimili sínu Hall- dórsstöðum í Laxárdal í Þingeyj- arsýslu 20. f. m. Þórarinn Jónsson bóndi, 56 ára gamall. Nýlega er og látinn Magnús Sigurðsson að Naustum, rúmlega miðaldra mað- ur.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.