Heimskringla - 10.10.1923, Qupperneq 1
Verðlami
gefio
fyrir
Coupoos
og
Sendi'B eftir verBlista til ®
Roynl Crovrn Soap Ltd.
654 Main St.f Winnipag. Uinbáíir
Verðlaun
gefia
fyrir
Conpuní
og
umbúðir
ROYAU
CROWN
SendlS eftlr verBllsta tll
Hoyal Croun Soap Ltd.
6.V4 Maln St.* AVinnipeg:.
XXXVIII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG. MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 10. OKTÓBER, 1923
NÚMER 2
Stephan G. Stephansson.
Á miðvikudaginn var 3. þ. m.
varð skáldið Stephan G. Stephans-
son sjötugur. Hann er hið lang-
merkasta skáld íslenzku þjóðarinn-
ar §em nu er uppi. Hér er hann
búinn að dvelja vestan iiafsins í 50
ár, og því verið samtíða öllu því er
gerst hefir meðal þjóðar vorrar hér
í landi frá fyrstu landnámstíð.
Fylgst hefir hann með í öllu er
gert hefir verið heinia- á þessum
tfma, og er vanséð að nokkur ís-
lendingur hafi látið sig meira
varða alt, er að einhverju leyti
hefir snert hag þjóðarinnar en
hann. Sumarið 1917 bauð þing og
þjóð honum heim. Dvaldi hann
þá sumarlangt á fslandi sein heið-
ursgestur þjóðarinnar. Fjöldi smá-
rita hefir komið út eftir hann á
ýmsum tínmin. Árið 1909 voru ljóð-
mœli han9 gefin út í heildar út-
gáfu (3 bindum um 900 bls.). Mun
sú útgáfa að mestu uppseld. Mik-
ið og margt hefir hann ort síðan
og hefii' þeim- ljóðum nú verið safn-
að í heild og koma þau út nú inn-
an skamims. Verður þessi viðbót
við fyrri útgáfuna í tveimur bind-
itm, á stærð við fyrri bindin tvö í
Rvíkur útgáfunni, og bundin í
samskonar band. Mynd fylgir
þessu framhaldi ljóðinælanna af
skáldinu er tekin var á þessu ári,
og sýnir hann réít sjötugan. Hkr.
leyfir .sér að flytja skáldinu hinar
hugheilustu árnaðar óskir við
þetta tækfæri, og óskar hún og
vonar að hann eigi enn mörg ár
að baki, og að þjóð vor fái notið
anda hans um langan tíma, og
ljóða, er vei-ið hafa henni sterkasta
hvötin í sannleiks og sjálfstæðis-
baráttunni hér vesian liafsins.
Ganada.
Þrotabú Home Bankans.
Fisher dómari í Ontario hefir
loks skipað skiptaráðanda í þrota-
bú Home bankans er gjaldþrota
varð í haust. fiefir mikið verið
rætt um gjaldþrotið í öllum vest-
anJblöðunuin, því horfur hafa alt-
af versnað með að þeir fái nokkuð
er fé áttu inn í bankanum. V»r
fyrst álitið að eignir bankans
myndi hrökkva sem næst fyrir
skuldum, en nú er það orðið vitan-
legt að svo er ekki. Eiga eigna
skiftin að fara fram 5. des. næstk.
Við yfirheyrzlu bankastjórnarinn-
ar kom það í ljós að stórfé hefði
verið lánað ýmsum landabröskur-
um í Toronto og er að mestu leyti
tapað. Einn hafði fengið um tvær
miljónir mót veði i lóðum í útjarðri
borgarinnar, þvert ofan í bankalög-
gjöfina, er bannar öll veðlán.
Eleira kvað vera þessu líkt nieð
ráðsmensku jbankans. Er það ekki
í fyrsta skifti sem fjárbraskarar í
Ontario hafa steypt peningastnfn-
unum í landinu og fbúar vestur-
fyilkjanna beðið tjón af. Banka-
stjórnin, ásaint yfirbókhaldara og
torseta, hefir verið tekin föst, en
látin iaus gegn $25—50,000 ýeði.
Kemur mál þeirra fyrir rétt, ein-
hverntfma í vetur. Forseti bank-
ams hefir legið veikur síðan hann
varð uppvís að svikum og sfeýrslu-
fölsun og segja fréttir, að hann
muni ekki komast til heilsu aftur.
Prinsinn frá Wales
Hefir verið
Vesturlandið
að ferðast hér um
undanfarnar vikur.
Á hann búgarð mikinn vestur í
Alberta og fór hann þangað um
mánaðamótin síðustu. Til Winni-
peg koin hann í vikunni sem leið
og dvaldi um kyrt hér í tvo daga.
Var ihann til heimilis hjá Sir. Au-
gust Nanton. Var honum haldlð
þar fjöiment kveðju samsæti á
miðvikudagskveldið var, tóku þá
háskóla stúdentar sig til og gengu
þangað í fylkingu og æptu fyrir
dyrum úti. Var þe-tta innsetning-
arkvöld nýsveina við háskólann.
Gekk konungsson, er hann heyrði
bekkjar ópin kveða við fyrir utan,
tram á hússvalimar, ávarpaði nem-
endurna nokkrum orðum og óskaði
þeim til lieilia við námið.
•
David Lloyd George,
Fyrverandi forsætisráðhera Breta,
Lloyd George er nýkominn hingað
til lands, ásamt konu sinni og
dóttur. Ráðgerir hann að ferðast
fram og aftur um landið og flytja
fyrirlestra á ýmsum stöðum. Til
Winnipeg er hann væntanlegur á
laugardaginn kemur, verður hann
gestur fylkisstjórans, og tefur hér
fram yfir vikulokin. Laugardags-
kveldið flytur hann fyrirlestur í
Olympic skautaskálanum. Er þar
seturúm fyrir liðug 5,000 manns.
Aðgangur verður seldur og arður
samkomunnar látinn ganga í fá-
tækrasjóð ibæjarins. Fyrir rúmum
20 árum síðan heimsótti hann
Winnipeg. Það var á þeim tíma
er ihann sætti mestum andmælum
heimafyrir, fyrir andstöðuna gegn
Búastríðinu. Var þá ekki slegið
upp veizlum við komu hans. Hélt
hann til hjá einum landa sínum hér
í bæ, handverksmanni velskuin, er
i
bjó í vestur bænum, fremur fátæk-
um.
Slys á Rauðá.
Á föstudagskveldið var vildi það
slys til á Rauðá norðan við Sel-
krk, að dráttarskipið Areliibald er
var á leið upp til Selkirk varð fyr-
ir árekstri af öðru dráttaskipi er
var á norðurleið. Brotnuðu bæði
skipin, og sökk hið fyrnefnda á
skammri stundu, en varð þó dregið
upp undir nusturbakka áriunar.
Tveir menn biðu bana á skipinu,
voru staddir inn í véla klefanum
er áreksturinn varð, urðu jveir fyrir
gufu og sjóðandi vatni er skipsvél-
in sprakk og náðist eigi til þeirra
í tíma svo þeim yrði bjargað Hét
annai' hinna látnu, Stevvvart, átti
heima í Selkirk, kvongaður maður
en barnslaus, en liinn hét liiobert
Dewar skozkur maður og fyrir
sköinimi kominn hingað til lands.
Hörrækt í Manitoba.
Forsetisráðherra Bracken skýrir
frá því að farið hafi verið fram á
við stjórnina að hún styddpað því
að tekin yrði upp hörrækt út á
milli vatna hér í fylkinu. Vill til-
lögumaður að hör sé ræktaður til
vefnaðar, og komið sé upp spuna-
vélum og vefnaðar verkstæðum
annað hvort í Winnipeg eða þá
þar norður frá. Álítur hann að
bændum gæti orði mikill hagur
að þessu ef þessi iðnaðúr kæmist á
fót, og eig af veita eins og sakir
standa nú með kornmarkaðinn. Er
land þar talið gott til hörræktar
og hör uppskrean tryggari þar en
hveitið.
Hveitiflutningur.
Hveitiflutningur ihefir verið mun
meiri úr Vesturlandinu á þessu
liausti austur að stórvötnum og til
hafnarbæja, en hann var um sama
leyti í fyrra. Með Can. Pac. braut-
inn voru send 3'/a. miljón bushel
síðastl. laugaixiag og með ríkis-
brautinni- 2% million. Ber þetta
vott um að uppskera hefir orðið
meiri en ibúist yar við framan af í
haust, ætti það að bæta nokkuð
úr viðskiftatregðunni þó verðið
sé lágt.
Vínsalan og Hótelin.
Um það hefir verið deilt síðan
vínsölulögin nýju gengu í gildi hér
í fylkinu á þessu sumri, hvort eig-
endur ihóteia og greiðsöluhúsa
mætti kaupa og hafa áfengi undir
hendi. Úr þessu hefir nú verið
leyst með lögregiludómi er kveð-
inn var upp f Gretua á laugardag-
inn var. Fundust þar í hóteli
miklar byrgðir af öli og var eigandi
kærður. Fyrir réttinum var hann
sýknaður undir þeirra grein lag-
anna, að fylkisbúum væri heimilt
að hafa ölföng á heimiilum sínum,
en hótelið hlyti að skoðast heimili
hins kærða fyrst hann byggi þar.
Fáheyrð mannvonzka og grimd.
Fyrir sakaréttinum í Brandon
hefir staðið yfir málsókn þessa
daga er valdið hefir almennan við-
bjóð meðal fólks héi- í fylkinu.
Hjón að nafni Goring er búa út í
bygð nokkrar míiur frá Brandon,
tóku stúlkubai'n að nafni Laura
Ellman í fóstur til sín síðastl.
haust. Faðir bamsins var heimil-
islaus, og eftir því sem fram hefir
komið við réttarhaldið, ráðlítll og
öreigi. Var hann þar f- vinnu
vestra og kyntist hjónum þessum,
er buðu honum að taka af honum
barnið. Kom ihann því svo fyrir
hjá þeim, og segir ekki af því
nieira, fyrr en á áliðnum vetri í
fyrra, að barnið komst í burtu frá
þessuin fóstur foreldrum og til ná-
? rnna hjóna er búa þar all fjær :>
' ar það þá svo til reika að það
var »l:kert n' ms sár og meiðsli, o;r
heita mátti klæðlaust. Var það
skaðkalið á ihandleggjum og fót
um og auk þess blátt og m&rið auð-
sjáanlega eftir barsmíð. Voru dott-
in isór á bæði hendur og fætur
undan kalinu og á mjöðm og hnjá-
kolla svo að undrun þótti sæta að
það skyldi komast þessa leið.
Annað augað var nær þv-í sokkið i
bólgu liellu er huidi hálft andlit-
ið. Horað var það og hungrað svo
það var nær máttvana. Var sótt
j til þess hjúkrunarkona og er lýsing
i hennar fyrir réttinum á því hvern-
I ig barnið var útlítandi, ein hin
! hryllilegasta. Eftir nokkra grenzl-
; an spurðist til -föðursins e.' þá var
í hér í bænum og var 'barnið sent
| hingað inn og flutt strax á spítala.
Hefir það svo verið þar í alt sum-
! ar, og er eigi alibata enn og verð-
I ur aldrei. Er það liaft eftir lækn-
i unurn að það verði kryplingur ör-
kumlaður alla æfi. Eftir langan
j rekstur lét hið opinbera loks hefja
rannsókn í þessu máli og færa
fóstur-foreldrana fyrir rétt. Kom
það þá upp að l úsfreyjan hafði
hvað eftir annað mísþyrmt barn-
inu, liarið það og stundum lokað
það úti eftir að kuldar voru komn-
' ir, látið það ganga berfætt á gadd-
inum og í snjónuin og svelt það.
Að sfðustu, fyrir einhver smábreki
hafði hún skipað þv.í úr fataræfl-
unum, steypt yfir það helköldu
vatni og rekið það svo út klæð-
Jaust. Þetta var í mestu hörkun-
um í fyrra. Kól það þá bæði á
höndum og fótum. Það sem bjarg-
aði lífi þess var, að það áræddi að
strjúka þá rétt á eftir og konist til
manna. Fyrir réttinum afsökuðu
hjón þessi sig með því að þau
væri fátæk og faðirinn hefði ekk-
ert goldið með barninu. Eftir því
sem séð verður, hefir hið opinibera
sótt inálið fremur dræmt, þvf dóin-
arinn sýknaði hjónin þó hann jafn-
framt lýsti því yfir að þau væri
hegningarverð. En svo mikla óá-
nægju hefir dómur þessi vakið að
helztu blöð hér í bænum hafa skor-
að á dómismiálaráðgjafann að iáta
rannsaka málið á ný og gera það
lýðum ljóst, að réttvísin láti sig
eigi síður varða hversu tarið sé
með varnarlausa og snauða mrai-
aðarleysingja en þá err fleiri eiga
til eftirmála ef til kasta kemur.
Ur bænum.
Ritstjóri “Hkr.” brá sér vestur
til Lundar á mánudaginn var í er-
indum blaðsins. Dvelur liann þar
vestra nokkra daga, og vonast til
að fá tækifæri að tala við sem
flesta kaupendur blaðsins. Fer
hann ferð þessa í innheimtu erind-
um og svo til þess að kynnast
mönnum og málefnum þar um
sióðir. Vlonast útgefendur til að
erindi hans verði hvarvetna vel
tekið og að áskrifendum að blað-
inu fjölgi stórum þar vestra við
komu hans.
Séra Eyjóilfur Melan frá Gimli er
staddur hér í bænum þessa daga.
Fór hann austur til Pine Vahcy á
laugardaginn og flutti þar messu
um helgina.
Það slys vildi til í Árliorg síð-
astl. miðvikudagskvöld að hr.
Eiríkur Bárðarson, póstmeistari á
Bifröst varð fyrir áfalli er hann
beið bana af. Fregnir af slysi
þessu eru nokkuð ónákvæmar enn
þá, og skýring lækna eigi birt enn.
A þriðjudagsmorguni'nn 9. þ. m.
andaðist á Almenna sjúkraihúsinu
hér f ibænum húsfrú María Bjarna-
dóttir Torfasonar frá Siglunesi,
Man. Hún var gift Jóni Hávarðs-
syni og bjuggu þau þar nyrðra.
Hún var kona á unga aldri og liin
myndarlegasta.
Frá Piney komu hingað til bæjar-
ins á þriðjudaginn var 9. þ. m.
Bjöm Thorvaldsson og sonur hans,
og Thorsteinn Pétursson prentari.
Ekkert sögðu þeir tíðinda þaðan
að austan, nema góða iíðan manna.
þar allánn fram eítir því sein kraft-
arnir leyfa.
Mrs. Jóhanna Sigríður Benson,
kona Mr. B. K. Benson í Vancouver,
B. C., lézt þ. 24. sept á sjúkrahúsi
borgarinnar. Banamein hennar var
kraibbamein. Hún var jarðsett 28.
sept. s. 1. Jóhanna sái. var systir
Paul Joihnsons rafmagnsfræðings í
Winnipeg. Hinnar 'látnu verður
nánar getið síðar.
Laugardaginn 1. sept., voru gefin
saman í hjónaband af séra B. B.
Jónssyni, Magnús G. Magnússon
og Haldóra Hemnann bæði frá
Winnipeg. Hjónavígslan fór fram
hjá systur brúðurinnar að heimili
Mr. og Mrs. J. K. ólafssyni Garð-
ar N. Dak. Viðstaddir voru nokkr-
ir nánustu ættingjar brúðlhjón-
anna; að giftingunni aflokinni
voru frambórnar rausnariegar veit-
ingar og ekkert til sparað að gera
alt svo fu'llkomið og ánægjulegt
sem frekast var hægt að kjósa. Að
samsætinu loknu lögðu brúðhjón-
in á stað til síns fyrirhugaða fram-
tíðar heimilis, sem er í London,
Ont., og fylgja þeiin hugiheilar
hamingjuóskir frá vandainönnuin
og vinum þeirra umi blessun og far-
sæla framtíð. — Vissra orsaka
vegna hefir dregist að geta um
þetta.
Á föstudaginn 5. þ. m. andaðist
hér á Almenna sjúkrahúslnu Frí-
mann Jónasson eftir uppskurð er á
honnm var gerður þá um morgun-
inn. Hann var um þrítugt kvænt-
ur en barnlaus og bjuggu þau
hjónin sunnan við Gimii. Hann
var sonur Benedikts heitins Jónas-
sonar og önnu Torfadóttur konu
hans, er lengi bjuggu á Akri sunn-
an við Gimli.
Fund heldur Ungmennafélag
Sairtbandssafnaðar í. fundarsal
kirkjunnar á laugardagskx’eldið
kemur 13. þ. m. Áríðandi að allir
sæki og komi á tíma. Fundurinn
byrjar kl. 8.
Hr. Sigurgeir Stefánsson frá
Selkirk var staddur í bænum á
þriðjudaginn. Engar sérstakar
fréttir sagði ihann að norðan. Mr.
Stefánsson hefir tekið að sér in”
heiiintu fyrii' “Hkr.” í Selkirk og eru
kaupendur íblaðsins beðnir að taka
erindi hans vel og greiðlega er
hann kemur að heimsækja þá.
Frú María Straumfjörð kom hing-
að til bæjar vostan frá Lundar í gær
þar sem hún hefir dvalið í sumar
hjá tengdafólki sJnu. Leggur hún
af stað í dag vestur til Eugene
Oregon, þangað sem maður henn-
ar iflutti í sumar, Jóhann gullsmið-
uin Strauinfjörð er gullfangaverzl-
una hafði hér í inörg ár á Sargent
Ave. Setjast þau þar að og hef-
ir Jóhann byrjað þar á hinu saina
handverki sínu.
Fyrirle&tra flytur séra Jónas A.
Srgurðsson um jijóðræknismál á
eftirfarandi stöðum í næstu viku:
Arborg, í kirkjunni á mánudags-
kvöldið þ. 15. þ. m. kl. 8.30; Víðir
Hall þriðjudaginn þ. 16. kl. 2 e. h.
Frainnes Hall að kvöldi sama dags
kl. 8.30; Geysir Hall miðvikudag-
inn þ. 17. kl. 2 e. h.; Riverton, f
kirkjunni að kvöldi sama dags kl.
8.30; Breiðuvíkur kirkju fimtudag-
Inn þ. 18. kl. 2 e. h.; Árnes sama
dag að kveldinu kl. 8.30; Gimli
föstudagskvölið þ. 19. kL 8.30.
Óhætt mun vera að fullyrða að
erindi þessi verða bæði fræðandi
og uppbyggileg og ættu sem flestir
að sækja þessar saankomur, hverr-
ar skoðana sem menn kunna að
vera með viðhald okkar þjóðernis
í þessu landi.
Ekki verður seldur inngangur að
samkomum ]iessum, en mönnum
verður gefið tækifæri á einn eða
annan hátt að stiðja að þeim mál-
um, sem Þjóðræknisfélagið hefur
með ihönduim.
A. P. J.
Á þriðjudaginn 2. þ. m. héldu
nokkrir af yngra fólki Sambands-
safnaðar og All Souls Únítarakirkj-
unnar hér í bæ hr. Ingilberg H.
Borgfjörð samsæti í fundarsal All
Souls kirkjunnar, í tilefni af því að ,
hann var að fara ur bænum vetrar-
langt. Gerir hann ráð fyrir að
dvelja austur í Port Arthur í vetur
og aðstoða föður sirm þar, við
byggingar er The McDiarmid Oon-
ttruction Co., er að reisa þar á ýms-
um sböðum eystra Fylgja honuin
þangað árnaðar óskir allra hans
mörgu vina, úr hópi yngri manna
hér í bæ.
Mr. og Mrs. John Lingholt frá
Big Point, Man., eru stödd hér í
borginni. Mr. Lingholt var skor-
inn upp við sjónleysi af Dr. Jóni
Siefánssyni.
Þjóðræknismáiið er allra íslend-
inga, ættu þeir því hver og einn
að leggja því alt það lið sem þeir
geta. Nú í næstu viku er ráðgert,
sem sjá má af auglýsingu f blaðinu,
að farin verði fyrirlestra ferð uun
Nýja ísland, tii þess að vekja al-
mennan áhuga fyrir þessu máli,
og kynna mönnum þar starf Þjóð-
ræknisfélagsins. Fyrirlestra flytur
séra Jónas A. Sigurðsson fyrver.
forseti Þjóðræknisfélagsins, en með
honum verða honum til aðstoðar
hr. Árni Eggertsson varaforseti og
hr. Ásmmndur P. Jóhannesson fé-
hirðir félagsins. Því má treysta að
Ný-íslendingar sæki þessa fyrir-
lestra, og að þeir láti það ekki
bregðast fremur nú en endranær
að sýna í veikinu að þeir vilji Is-
lendingar vera. Bezt fá þeir
sýnt það við þetta tækifæri með
þvf að ganga í félagið. Og drjúgast
verður þjóðræknisstarfið ef alþjóð
íslemdinga hér vildi taka höndum
saman og vinna að tilgangi félags-
ins. Eigi getur virðulegra verk-
efni en það, og má hver vera stolt-
ur af að starfa að því og leggja sig
íslenzka stúdentafélagið heldur
fund, þann hinn fyrsta á þessu
starfsári, í fundarsal Fyrstu lút.
kirkju við Victor St., laugardags-
kv. 13. okt., kl. 8.30.
Sunnudaginn 30. sept. síðastl. var
þeim hjónum Mr. og Mrs. Högna
Guðmundssyni í Laufási við Lund-
ar f Álftavatnsbygð, ásamt Eiríki
Guðmundssyni bróður Högna,
Iialdið mjög ánægjulegt samsæti af
sveitungum þeirra og vinum. Til-
efnið var að þeir bræður hafa bú-
ið þar f bygð um nær því aldar-
þriðung og verið hinir hjálpsöm-
ustu greiðamerm til hvers er miðað
hefir bygðarmönnum til hagsældar.
Hefir heimilið jafnan verið hið
gestrisnasta og iþeir bræður jafnan
til allra góðra verka búnir er
þeirra hefir verið leitað. Var þessa
rækilega minst við þetta tækifæri.
Hr. Guðmundur Þórðarson frá
Pine Valley, Man., var staddur hér
f bæ um síðustu helgi. Ko4n liann
hingað til þess að kveðja dóttur
sína frú Þórey Straumfjörð, er
flytja er ihéðan alfari vestur að
hafi. Flutti maður hennar vestur
í sumar en hún hefir dvalið hér
síðan og stundað kennslustörf.
Hr. Þorvaldur Þórarinsson bók-
sali við íslendingafljót kom
snögga Æerð hingað til bæjar á
mánudaginn. Fréttir sagði hann
fáar þaðan að norðaa, aðrar én
góða veðráttu og sæmilega almenna
líðan.