Heimskringla - 22.07.1925, Síða 1
VERÐLAUN GEFIBT FVHIH
COUPONS OG UIBCÐIR
ROYAt,
CROWN
— Sendit5 eftir vertilista til —
ROYAL CR0WN SOAP LTD.^
654 Main Street Winnipeg.
VERÐLAVN GEFIN FYRIR
COUPONS OG IIMBÍ8IR
ROYAt,
CROWN
— SendiTS eftir vertilista til —
ROYAL CROWN SOAP LTD.^
654 Main Street Winnipeg.
XXXIX. ÁRGANGUR.
WIKNIPBG, MAKITOBA, MIÐVIKUDAGIKN 22. JÚLÍ, 1925.
NÚMER 43
MiSvikudagsmorguninn í fyrri viku
lagSi riddaralögreglan hald á bækur
aldinastórsalanna Nash Brothers á
Ross Avenue. Fjórar verzlanir urðu
þannig úti: Sterling Fruit félagiö :
Rcigers Fruit félagið: Dingle and
Stewart og Bright Emery félagið.
Auk þess voru rannsakaðar skrifstof-
ur hjá Mutual Brokers, Nash Share-
hclders og Mutual Purchase félag-
íuu, sem öll star*'la í viðskiftasam-
bandi við Nash Brothers.
Þessar aðgerðir stjórnarinnar eru
átangur af starfi rannsóknarnefnd-
ar þeirrar, er kend er við Duncan, og
skipuð var í fyrra til þess að grensl-
ast eftir því, hvort ólögleg stórsölu-
samtök ættu sér stað nieðal aldinasala
í Vestur-Canada. Hefir sambands-
stjórnin verið sein til aðgerða í
þessu efni, því langt er síðan að
lu.fndin lauk rannsóknum sínum. —
Nú hefir stjórnin skipað J. C. Mc-
Ruer, K. C. til þess að fara með
tnálið á hendur Nash Brothers, af
hálfu stjórnarinnar. Hefir hann leit
aö til Bracken forsætisráðherra og
Craig dómsmálaráðherra, til þess að
vita, hvern þátt Manitobastjórnin
viidi í þessu eiga. Svöruðu þeir, að
ráð öll og dáð, sem þeir-hefðu undir
rifjum, væru velkomin, en þeir gætu
ekki mælt með því að Manitobafylki
legði fram fé til málsins, þar eð það
væri sambandsstjórnarinniar einnar
að hafa það til meðferðar.
F'rá Halifax er simað 17. þ. m., að
fjlkislögreglan í Nova Scotia hafi
fengið skipun frá stjórninni, um að
rýma verkfallssvæðið í Cape Breton,
en þangað sendi Armstrongstjórnin
um 100 lögregluliðs í júnímánuði til
JiM við ‘'Besco” (British Empire
Steel Corporation). — Sömuleiðis
hermir skeytið, að forsætisráðherr-
ann nýi, E. N. Rhodes og Harrington
námuráðherta og opinberra verka,
fri í þessari viku til Cape Breton,
til ráðagerða og samninga við ráðs-
tnenn “Besco” og United Mine
Workers of America” í 26. umdæmi.
— Sannast hér að “nýir vendir sópa
bezt”. En vonandi er, að Rhodes láti
ekki við það eitt sitja að sanna þenna
rnáishátt, heldur beri gæfu til þess
að afmá þenna smánarblett, er fylkið
hefir orðið fyrir af völdum “Besco .
Á sunnudagsmorguninn var lézt að
beimili sínu í Quebec, Louis Nazaire
Begin kardínáli, erkibiskup í Quebec
og æðsti maður rómversik-kaþólsku
kirkjunnar í Canada. Hann var 85
ái a að aldri.
Aðgangsprófum að miðskólum er
lckið. Hœsta einkunn af öllum í
fylkinu fékk Edna Schofield frá Sel-
kirk, 907 stig (1000 er það hæsta sem
hægt er að fá). Næst var Kathleen
Helen Smith, frá Rollins, með 895
stig. Þriðja í röðinni er Sigrún
Thorsteinsson, íslenzk stúlka, er hlaut
881 stig.
C. N. R. hefir ákveðið að hraða
sem mest brautarlagningunni til Pine
Fslls, nú er ákveðið hefir verið að
byggja pappírsmylnuna við Fort Al-
exander. — Sambandsstjórnin veitti
$475,000 í fyrra til þessarar braut-
argerðar. Áætlað er að brautin liggi
frá Beconia, sem er 48 mílur frá
Winnipeg og 10 mílur frá Grand
Beach . Tilboð um brautarlagningu
eiga að vera komin um hádegi í dag.
Brautin á að vera fullgerð 1. nóvem-
bei, og 500 manna þarf með við
lagninguna.
Aðfaranótt föstudagsins 18. júlí
kom upp eldur í smiðju í Bowden-
þorpinu, milli Olds og Innisfail í
AÍberta, og læsti sig þaðan í hlöðu
þar nálægt. Áður en nokkuð varð
aðgert stóð hún í björtu báli, og
flugu neistar og logandi heyviskar
un- allan bæinn og kveiktu í víðsveg-
ar, svo að hann varð eitt eldhaf á
örskömmum tíma, þrátt fyrir allar
tilraunir slökkviliðsifls frá Innisfail,
er kom til hjálpar. Langmestur hluti
þcrpsins brann og eru 300 mann-
eskjur þar húsnæðislausar.
Frá Ottawa er símað 18. júlí, að
alt ráðuneytið ætli að setjast á rök-.
stóla 27. þ. m. Mun aðallega eiga
að fjalla um, hvort ganga skuli til
kosninga í haust eða eigi. Er sagt
að stjórnin hafi verið alráðin í því
að ganga til kosninga, eftir að víst
varð tim sigur Dunningstjórnarinnar
í Saskatchewan. En ófarir Arm-
strongs í Nova Scotia hafa eitthvað
kælt blóðið. Er nú talið sennilegt
að ekkert verði afráðið, fyr en útséð
er um kosningarnar í New Bruns-
wick, sent eiga að fara fram 10. ágúst.
Sigri liberalar þar, mun gengið til
sambandskosninga í haust, annars
tæplega.
Á mánttdaginn í vikunni sent leið
henti stórslys á Manitobavatni. Bát-
urinn “Ethel” hefir verið í förum frá
Steep Rock og Narrows, til bygðanna
vestan við norðurhluta vatnsins. Bát-
urinn var eign kaupntannanna á Steep
Rock, Snidals og Long, og nokkurra
bænda þar i héröðunttm, flest íslend-
inga. Þegar báturinn var hjá Guynem-
e,- þenna mánudag, varð sprenging
í vélarrútninu. Tveir menn voru í
bátnum, Eirikur og Björn. synir Guð
mt'tidar Jónssonar á Vogar. Eiríkur
var í véiarrúminu og skaðbrendist, er
sprengingin varð. Logtiðu á honum
ÖU fötin, en þó komst hann upp og
fleygði sér þegar í vatnið. Náði
Björn bróðir hans honurn á smábát,
er vélarbátnum fylgdi. Var hann
fluttur á Misericordia spitalann hér
t bænum. Er hann úr allri hættu nú,
og þykja undur, því tæplega eða ekki
ætlitðu læknar honum líf fyrst í stað.
— Vélarbáturinn brann til kaldra
kola og sökk. Mun hann hafa verið
óvátrygður og talinn 3000 dala virði.
Þeir George M. Seaman, frá Sea-
n>an pappírsfélaginu, og E. W. Bac-
kus, frá Backus-Brooks pappírsfélag- >
inu, kveðast albúnir að setja á stofn
250 tonna pappírsmylnu fyrir $5,000-
000, einhversstaðar t umdæmi Winnt-
pegborgar, ef sambandsstjórnin vilji
ábyrgjast þeirn nægilegan rétt til
skógarhöggs og vatnsorku. Áætlað
er að búa aðeins til blaðapappír, og
selja alt ^ent hægt er hér í Canada, en
flytja afganginn til Bandarikjanna.
Fái þeir gert samninginn við stjórn-
ina, á að byrja tafarlaust á að
byggja, og er áætlað að mylnan geti
þá framleitt 125 tonn, eða helminginn
af allri framleiðslunni eftir 20 mán-
uðt . Webb borgarstjóri i Winnipeg
hefir verið mjög starfandi að því,
að fá málsmetandi menn i lið með sér
til þess að skora á Ottawastjórnina
að láta þetta tækifæri ekki ganga úr
greipum Winnipegborgar.
Frá Ottawa er símað 18. júlí, að
járnbrautarnefndin hafi ákveðið að
nýr taxti skyldi settur um flutnings-
gjöld nálægt 1. október í haust.
----------x—.---------
Fjallkonan.
Stcfanía R. Sigurðsson.
Á fundi llslendingadagsriefndar-
ir.nar á mánudagskvöldið var, voru
talin Fjallkonuatkvæðin, og fóru
leikar svo, að ungfrú Stefanía R.
Sigurðsson hlaut heiðurinn, þann
að vera Fjallkona á næsta íslendinga
degi hér í Winnipeg.
Til húsfrú “N”
AuSa húsiS á Aberdeen.
Þá geng eg um Aberdeen götu,
það gremur á stundum mig,
að heyra hænurnar kjökra
og hanann að kalla á þig.
Og blómin úr gluggunum gægj-
ast
— gul eru blöðin og hörð.
Það er auðséð þau ætla’ eklti’
að þrífast
á eintómu vatni og jörð.
Eg hefi’ ekki mætt þínum
manni,
en mig skal ei undra par —
þó hann eins og blómin og
hænsnin,
hugsi’ um hvað vantar þar —
Ilöndin, sem heimili stýrði
og höfðingsskapur binn var,
það sem kotið að kóngshöllu
gerði
og krýndi þig drotn.ing þar.
S- J. Scheving.
8TJ0RNMALAFRETTIR
FRÁ ÝMSUM LÖNDUM.
BA NDA R/K/N.
FJÁRMÁL.
Tekjuafgangur: — Ekki verður
annað sagt en að vel hafi verið búið
í fjárhagslegu tilliti, hér fyrir sunn-
an okkur, á fjárhagstimabilinu 1924
—25. Samkvæmt skýrslu frá Mell-
on fjárntálaráðherra hafa tekjur
numið $3,780,148,684.42, en útgjöld
$3,529,643,446.09. Tekjuafgangur
fjárhagstímabilsinsi hefir þvi numið
$250,505,238.33.
Afborgun: — Ríkisskuldir námu
$2(>,516,193,887.00 í lok fjárhagstíma
biisin^. Hafði grynkað á súpunni
urii $735,000,000. Var það gert með
þrennu móti. Sameinað þing sam-
þvkti $466.000,000 til afborgana, all-
ur ágóðinn fór einnig til þeirra, og
18,000,000 voru teknir úr ríkissjóði.
OTLENDAR SKULDIR.
Italia: — ítalir kvartá' sáran und-
an því, að Bandaríkin skuli nú vera
farin að gera alvöru úr þvi að ganga
eftir skuldum sínum. Þeir sendu sér
fræðing, Mario Alberti á fund Mel-
lcns fjármálaráðherra. til þess að
semja um þá tvö þúsund miljón dali,
sun ítalir skulda Bandarikjunum. —
Eítir nokkurt skraf var samningun-
ttm frestað þangað til í ágúst. Var
það vegna þess að Mellon var ó-
sveigjanlegur og krafðist þess að
Italir borguðu hlutfallslega í algerðu
samræmi við Breta, nema fullar sann
anir fengjust fyrir því, að þeir gætu
ekki borgað. Alberti var ekki við
• þeirri kröfu búinn heiman að. Kvað
Italíu vera eina rikið i Nórðurálfu,
sen: eyddi minna til hers og flota nú,
en fyrir ófriðinn mikla. (Þetta er
ar.ðvitað helber vitleysa hjá Alberti,
sbr. Þýzkaland, Austurríki, og að
líkindum Rússland. Hann hefði átt
að segja Bandamenn.). Hærri skatt-
ar myndu reka auðmenn út úr land-
inu, og þyngja fjárhag þess. En
Mellon sat við sinn keip og heimt-
að; sannanir. Og nú mun Alberti
hafa farið heim til Italíu til þess að
ná i þær.
Frakkland: — Daeschner sendi-
herra Frakka í Washington, skýrði
Mellon frá því, að Frakkar myndu
senda nefnd manna í september, til
þess að semja um skuld sína við
Bandarikin, sem nemur fjögur þús-
und miljónum dala. Haft er á orði
að fjármálagarpurinn og ráðherrann
Caillaux myndi verða í broddi nefnd
ar'nnar. Það er þó jalið vafasamt í
Paris, þar eð alt er enn á ringulreið
meðal stjórnmálaflokkanna í þinginu.
Rússland: — AUs eiga Bandaríkin
tólí þúsund miljón dali útistandandi
hjri ýmsum vinum sínum frá ófriðar-
árunum. Þar á meðal standa á bók-
utr, fúmlega $250,000,000, sem Rúss-
land er skrifað fyrir. Þetta lán tók
C2arstjórr$in og stjójrn Ketrenskysj,
sem svo skamma stund sat að völd-
um Vonlítið mun vera að krefja
Rússa um þá skuld, þvi eins og ekki
er með öllu óeðlilegt, hefir Soviet-
stjcrnin með öllu neitað að bera
nokkra ábyrgð á gerðum fyrirrenn-
ara sinna. Litil huggun er það, að
rússneskur maður, að nafni Serge
Ughet, sem var fjármálaritari við
rússnesku sendisveitina i Bandaríkj-
unum í tíð Czarins, vann nýlega
skaðabótamál á hendur járnbrautar-
félagi í Barfdaríkjunum, og fékk
$850,000 greidda. Þessa upphæð
hirti Bandaríkjastjórnin, þar eð Mr.
Ughet dæmdist að hafa unnið máfið
fvrir Czarstjórnina, sem einu sinni
var, en ekki fyrir sjálfan sig.
OLtA.
Oliuhákarlinn Doheny fékk nýlega
stórblaðamann inn á skrifstofu sína
í Los Angeles, og fól honum að túlka
raunir sínar fyrir alþjóð; hve ó-
réttlátum ásökunum hann hefði orð-
ið fyrir í sambandi við olíuleigu-
samningana og alt það hneyksli, er
af því spanst. Blaðamaðurinn spann
úr þessu viðtali 11 blaðadálka, og sá
svo um að þeim yrði dreift út um
landið. Samkvæmt þeirri sögu, sem
þar er sögð, er Doheny hvítur eins
og nýþvegið og vel verkað lambskinn.
Henn var þó ófáanlegur til þess að
minnast nokkuð á 100,000 dalina, er
einhvernvegin flutu yfir í greipar
fráfarandi inanríkisráðgjafa Fall.
Kveðst Doheny ekkert um þau við-
skifti segja nú, samkvæmt ráðlegg-
ingum lögmanna sinna, þar eð hann
á bráðlega að koma fyrir réttinn, á-
kærður um samsæri til þess að svíkja
fé af stjórninni. — En annars segist
hann hafa verið knúður af einskærri
föðurlandsást, til þess að gera alt
sem hann gerði í sambandi við þessi
olíumál, og hafi hann ávalt haft hag
V orhugir
Jafnan vakir vorhuganna
veður-næma lund,
sem að vildu vorsins gróður
vaxinn hverja stund;
þeirra, sem í hugar-heimum
heilög græða blóm,
þau, er lifa ávalt ofar
illum skapadóm.
En þótt þeim lífið löngum bjóði
lítinn sumaryl,
vænta þeir að vorsins sigur
verði jafnan til;
spinna úr vorsins instu ómum
andans meginþátt,
og við sókn að sjónarhæðum
setja markið hátt.
Engin þótt þeim veginn vísi
“ vitabirtan heið,
og mörg hafi vonin einnig orðið
úti á þeirra leið,
hafa þeir tendrað lífs að lögum
ljós í andans heim,
sem að skína í vilja og verki
vorhuginum þeim.
Því er skylt til vegs að virða
vorhuganna starf;
þeirra, er vildu gjarnast gefa
gulli dýrri arf
þann er felst í andans auði —
Auður hverri sál —
sem við Ijósbrot andans elda
eilíft skilur mál.
\
¥ * #
Aukist víðsýn vorhuganna
um veldi guðs og manns.
Náá sérhvað réttum rótum,
í ríki gróandans. —
Það er helzt að vorið vaggi
vonum þeim í draum,
sem þó eftir á að standast
allra tíða straum.
SigríSur Guðmundsdóttir.
]
þjóöarinnar fyrir augum í öllum
þeim samningum, en ekki sinn eigin.
Mun siðar veröa nánar minst á þessa
gteinargerö þeirra félaga.
Bretaveldi.
NEÐRI MÁLSTOFAN.
Vantraustsyfirlýsing. — Ramsay
MacDonald, fyrv. forsætisráðherra,
bar fram vantraustsyfirlýsingu á
hendur stjórninni, sökum aSgeröa-
leysis hennar i þá átt, að ráða fram
úr atvinnuleysinu, er færi sivaxandi.
Baldwin forsætisráðherra tók til
máls, og b^ð þingmenn að vera ró-
lega. Hann benti á það, að atvinnu-
leysið orsakaðist að nokkru leyti af
lagabreytingu í Bandarikjunum, sem
getðu það að verkum, að nú flyttu
aðeins 130,000 úr landi árlega, í stað
200,000, sem áður hefðu farið. Hann
játaði fúslega, að ástandið væri að
ýmsu leyti ískyggilegt, en þóttist þó
sjá ýmislegan bata fyrir margar iðn-
aðarvörur, -sem til nauðsynja heyrðu,
t. d. fatnað, skó og húsgögn. Hann
vildi halda þvi fram, að yfirleitt
hefði kaupþol almennings ekki rýrn-
að (hlátur á verkamannabekknum).
Hann gaf litla eða enga skýringu
um það, hvað stjórnin hefði í hyggju
að gera til þess að létta-af atvinnu-
levsinu. Sagði aðeins, að nauðsyn-
legt væri, að vísindi og iðnaður tækju
betur höndum saman, en hingaðtil
hefði verið gert. Verkamannaflokk-
inum þótti svarið magurt og lítið á
því að græða, en vantraustsyfirlýs-
ingin var feld með 230 atkv. meiri-
hluta.
ATVINNULEYSIÐ.
Atvinnuleysið, sem altaf er að
tr.agfnast, er nú efst á baugi, hvar
sem tveir menn hittast á Englandi.
Skal hér skýrt frá því, er segja má
aö sé afstaða hinna tveggja mann-
felagsflokka, auðvaldsins og iðnrek-
endanna á aðra hlið, og verkamanna
flokksins á hina.
Auðvald og iðnrekendur: — Þess-
ir flokkar, er samnefna mætti
öndvegisflokkinn, líta svo á
rnálið, að nauðsynlegt sé að setja nið
itr kaup verkamanna og lengja vinnu-
timann, til þess að innlendur iðnaður
geti staðist samkepnina við útlend-
an markað, sem veltir vörum sínum
inn yfir landið. Öndvegisflokkurinn
heldur því fram, að á meðan að
framleiðslukostnaður sé jafnhár og
hann er nú, hljóti öllum viðskiftum
aö hraka og atvinnuleysi að aukast.
Verkamannaflokkurinn heldur því
ftam aftur á móti, að þó að kaup sé
hærra nú en 1913, þá sé dýrara að
lifa nú en þá, en þeirri kauphækkun
nemi. Þess vegna sé ófært að lækka
kaupið við verkamenn. Verði að
koma fjárhag rtkisins í betra horf
með öðru móti: nefskatti og hærri
tekjuskatti á stóriðnaðarmenn og
fjarmálahákarla, en nú sé. Geti iðn-
aðurinn með því móti vel borið verð-
lækkun, án kauplækkunar verka-
manna.
/
é