Alþýðublaðið - 07.03.1921, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
6ammis6lar og hzlar beztir og ððýrastir hjí QvanabergsbrxBram.
€rlenð simskeyti.
Khöfn, 5. mars
Þjóðverjar og Bandaaienn.
Simað er fra London, að Lloyd
George hafi svarað Simons því,
að bandamenn hlusti gjarna á
sérhverja sanngjarna kröfu, sem
stafi af erfiðleikum Þýskalands.
Hann geti á hinn bóginn ekki
þolað það, að leikið sé bak við
tjöldin með friðarsamningsna.
Svo framarlega sem bandamenn
hafi ekki fengið boð um það í
síðasta lagi á mánudag (f dag),
að Þjóðverjar gangi að skilmai
unum, sem settir voru í París,
eða komið með tillögur um á
hvern hátt þeir ætli að halda
það, sem þeir voru skyldaðir til
með Versalasamningunum, muni
þeir taka til sinna ráða og her-
taka Ruhrhéraðið, Diisseldorf og
ieiri borgir á eystri bakka Rfnar.
Enn fremur muni þeir leggja hald
á Rínartoliinn og taka innflutn-
ingsgjald af þýskum vörum.
Simons hefir svarað, að það sé
engin leið til þess að hægt sé að
svara á mánudaginn.
Stefaa Hardings,
Símað er frá Washington, að
Harding forseti hafi f ræðu er
hann hélt, þegar hann tók við
forsetatign, sagt að stefna sín
væri að Bandarikin skiftu sér ekki
af innri máiefnum Evrópu, að
hann væri reiðubúinn ti! þess að
láta Bandaríkin taka þátt í fundi,
þar sem samið væri um að draga
úr vopnaviðbúnaði; enn fremur
kvað hann verndunartoila (yri;
areerískan iðaað æskilega, og að
hernaðarþjóðirnar yrðu að greiða
að fullu herlánin sem þær tóku á
striðsárunum.
IsL-þýzku stúdentaskiftin.
í haust var þess getið hér í
blaðinu, að í ráði væri að koma
á stúdentaskiftum við Þjóðverja,
þannig að ísl. stúdentar eða kandi-
datar, sem vildu stunda nám f
Þýzkalandi, gætu dvalið þar i
nokkurn tíma, sér að kostnaðar-
lausu, sem gestir efnaðra þýzkra
fjölskylda, gegn þvf að þýzkir
stúdentar, sem vildu leita hingað,
nytu hér sömu kjara.
Bæði hér á landi og í Þýzka
landi hefir þessari hugmynd verið
tekið mjög vel, t. d bauðst þeg
ar í stað maður hér f bænum til
þess að taka á heimili sitt þýzkan
stúdent og kosta hann hér að öllu
leyti í hálft eða heilt ár. Einn g
hafa aðrir heitið stuðningi sinum,
t. d. hefir Eimskipafélag fslands
lofað að fly'ja stúdentana fyrir
halft fjargjald á skipum sinum.
f Þýzkalandi hafa undirtektir
manna sömuleiðis verið ágætar;
hafa þegar ýmsir háskólamenn
þar heitið málinu öllu fylgi sfnu
og lofað að greiða götu ísl. náms-
manna þar í landi eftir mætti.
Nú þegar hafa borist umsóknir
frá 4 þýzkum stúdentum, sem
stunda norræn fræði, um dvöl hér
næstkomandi skólaár.
Engum getur dulist að þetta
mál getur haft mikla þýðingu fyr-
ir þjóð vora og menningu. Hing-
að til hafa stúdentar vorir, sem
utan hafa farið, nær eingöngu
sótt mentun slna til Danmeikur,
enda hefir sambandi þjóðanna ver-
ið svo varið að annað var ekki
hentara, fjárhagslega séð.
Menning vor hefir þannig orðið
fyrir mestum áhrifum frá Dan-
mörku. Heimsmenningin hefir á
leið sinni til vor fyrst gengið í
gegnum hendur Dana; beint sam-
band við megin menningarlindir
heimsins hefir ekkert verið. Eg
læt hvern sjálfráðan að dæma
hversu holt þetta hefir verið fsl.
menningu.
Með nýju sambandslögunum
féllu niður hlunnindi þau, sem
ísl. stúdentar höfðu í Höfn, og
sem drógu þá þangað, nfi. Garð-
styrkurinn. Má því búast við að
þeir hér eftir leggi leið sína að
miðstöðvum menningarinnar meir
en verið hefir.
Þessi stúdentaskifti eru fyrsti
vísirinn. Auk þess fjárhags- og
menningarstyrks, sem ísl. náms-
mönnum veitist með þessu, auka
þessi stúdentaskifti álit vort og
viuáttusambönd út á við. Þeir er-
lendir stúdentar, sem hingað
mundu leyta, stunda norræn fræði
og mundu verða forverðir islenzkr-
ar menuingar erlendis og vísir
málsvarar vorir þar, er stundir
líða fram.
Það er því vonandi að þessi
byrjun eigi sér fagra framtíð og
að námsmenn vorið nemi e'gi að-
eins land i Þýzkalandi heldur og
i Eoglandi, Ameriku og víðar,
þar sem væniegt er til menta-
fanga og frama.
E.g.
Krlend mynt.
Khöfn, 5. marz.
Pund sterling (1) kr. 22,55
Dollar (1) — 5,78
Þýzk mörk (100) — 9 60
Frankar (100) — 41.75
Sænskar krónur (100) — 129,00
Norskar krónur (100) —• 95,50
Um ðag'ura og vegiira.
Eldnr kviknaðí í hafnarsmiðj-
unum suðr undir Öskjuhlíð á laug-
ardaginn. Var slökkviiiðið hvatt
tii hjálpar og slökti það eldinn
áður en verulegur skaði hlaut jtf-
Aðalíaudur Búnaðarfólagsins
verður haidinn annað kvöid,sbr.
augi. á öðrum stað.
Bjónahand. . Ungirú Kristín
Norðmann og Páll ísólfsson!|organ-
snilhngur voru gefin saman f hjóna-
band á Iaugardaginn.
UnglingBstúlka óskast nú
þegar í hæga vist suður með sjó
um 2—3 mánaða tíma. Hátt kaup!
Upplýsingar Lindarg. i D (uppi).
K aupid
Alþýðublaði^!