Heimskringla - 07.07.1926, Side 5
WINNIPEG, 7. JÚLÍ 1926.
HEIMSKRI N G L A
6. BLAÐSIÐA,
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
K A U P I Ð A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
Birgðir: Henry Ave. East. Phone A 6356
Skrifstofa: 5. Cólfi, Bank of Híamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
því, að síðasta kirkjuþing heföi gert
samþykt um það, að nota vikublaðið
Hcimskringlu sem mest og bezt aS
unt væri, til þess að kynna stefnu og
starf Kirkjufélagsins og annara
slíkra félaga hér í álfu. Áleit hann,
þótt nokkrar heföu orðiö fram-
kvæmdirnar, hefSu þær verig minni
en átt heföi aö vera. Séra R. Pét-
ursson tók í-sama strenginn og rakti
nokkuð sögu þessarar viöleitni. KvaíS
hann. þaö nijög æskilegt aö Kirkju-
félagið hefði fastan fréttaritara, til
þess að rita um mál sín í nefnt blað.
Áleit hann engan mann til þess hæf-
ari en séra G. Arnason, fyrir kunn-
ugleika og lesturs sakir. Mæltist
hann til þess að mega leggja til, að
séra G. Árnasyni lyrði falið starf
þetta fyrir næsta ár. Var það sam-
þykt. Varð séra G. Arnason við til-
mælum þingsins.
Mr. Ágúst Eyjólfsson tók til máls
um boðskap Þjóðræknisfélagsins til
íslenzku safnaðanna um ungmenna-
söngkenslu, eins og þá, er Mr. Br.
Þorláksson hefir haft með höndum
undanfarin ár. Samkvæmt tillögu
hans var málið tekið á dagskrá, og
í það kosin þessi nefnd: Mrs. G. John
son, Mr. A. Eyjólfsson og Mrs. S.
Finnbogason.
Samkvæmt tillögu frá séra R. Pét-
urssyni, samþykti þingið að fela for-
seta að senda mentamáladeild Mani-
tobafylkis þakkarávarp, fyrir réttindi
þau, er hún hefði veitt íslenzkri
tungu i miðskólum fylkisins.
Mrs. H. V. Renne6se lagði til að
þingið greiddi séra A. E. Kristjáns-
syni þakkaratkvæði, svo sem þeiin
manninum, sem með þeim fremstu,
eða fremstur, staðið í baráttunni
fyrir réttindum íslenzkrar tungu i
Manitobafylki. Reis þingheimur úr
sætum sínum til samþykkis.
Fundi slitið.
Að kvöldi sama dags flutti dr.
S. E. Björnsson fyrirlestur um
“Kirkju og Kristindóm’’.
7. þingfundur hófsl þriðjudagfnn
29. júní 1926, á sama stað, kl. 10.30
fyrir hádegi.
Svohljóðandi nefndarálit helgisiða
málsins var samþykt:
“Nefndin leggur til að milliþinga-
nefndinni, sem verið hefir í þessu
máli, sé falið að halda starfinu á-
fram og fullgera verk það, er henni
var upphaflega falið á hendur.’
Samþykt var að fela ritara að fá
þau helgisiðafrufnvörp, er þegar eru
tilbúin, fjölrituð á kosnað Kirkjufé-
lagsins, og senda afrit af hverju
þeirra til ritara hvers safnaðar. Bauð
Mr. Gísli P. Mágnússon að vélrita
frumvörpin, félaginu að kosnaðar-
lausu og var því tekið með þökkum.
Svohljóðandi nefndarálit um út-
breiðslu- og prestþjónustumál var
samþykt umræðulaust:
“Nefndin leggur til
1. Að útbreiðslumálum félagsins sé
sint svo sem auðið verður á þessu
komandi ári, og heimsæki prestar þess
og erindrekar þau bygðarlög, senx,
engrar fastrar prestþjónustu njóta.
En með því að vérk þetta hefir óhjá-
kvæmilega nokkurn kostnað í för
með sér, skal Kirkjufélagið hafa
framkvæmdir í því, að koma upp
styrktarsjóði fyrir þetta mál, er
nefnast skal “Gtbreiðslusjóður Hins
Sameinaða Kirkjufélags Islendinga
í Norður-Ameríku”.
2. Með tilliti til þeirra safnaða
innan Kirkjufélagsins, er ekki njóta
fastrar prestþjónustu, og þeirra safn-
aða, er myndast kunna á árinu, fer
Kirkjufélagið fram á það, að söfn-
uðir þeir, er fastrar prestþjónustu
njóta, sýni sömu tilhliðriinarsemi og
á undanförnum árum, svo að prest-
um félagsins sé gert mögulegt að
sinna þessu útbreiðslustaríi að ein-
hverju leyti. Þessa beiðni flyjti fé-
lagsstjórnin við hlutaðeigandi presta
og safnaðarnefndir.
3. Kirkjufélagsstjórnin skal reyna
að sjá svo til, að eigi verði fluttar
færri en sex messur á ári í neinum
söfnuði innan Kirkjufélagsins.”
Fjármál voru næst á dagskrá. Var
áætlun fjármálanefndar upplesin. —
Þótti Mr. G. P. Magnússyni að nefnd
in hefði gengið fram hjá nauðsyn-
legum útgjaldaliðum. Séra R. Pét-
ursson kvað ljóst, að nefndin vildi
ekki leggja til um önnur útgjöld en
þau, er félagssjóðurinn leyfði. Ber-
sýnilega þyrfti að safna meiru fé
en því, sem ætla mætti að inn kæmi
með beinum tillögum úr safnaðar-
sjóðum; mælti ræðumaður með sam-
komuhaldi. — Sérá G. Arnason. á-
leit ekki 10 dollara safnaðartillag
hátt, þótt ef til vill væri það nógu
hátt fyrir gjaldþol minstu safnað-
anna. Ef til vill mætti líka með
léttu móti hafa saman upphæð, sem
munaði, með einskonar "nefskatti’’,
er t. d. næmi 50c á “nef”. Mr. A/
Þórðarsyni gazt miður að því ný-
mæli. Mr. A. E. Skagfeld kvað efa-
laust að nefskattur yrði til þess að
fækka nefjum innan félagsins! Mr.
Sig. Magnússon áleit að. nýmæli þetta
reyndist vel í sinni bygð (Piney).
Mr. G. P. Magnússon áleit heppileg-
ast að setja söfnuðunum í sjálfsvald,
með hverjuúi hætti þeir öfluðu þess
fjár, er þeir kvnnu að vilja leggja
fram. Mr. A. Eyjólfsson mælti með
nefskattinum, en Mrs. Oddfríður
Johnson á móti. Séra G. Arnason
mælti með hvorutveggja, samkomum
og skatti. Séra Fr. Friðriksson
kvaðst ætla að reyna nýmælið í sinni
bygð og hugði gott til. Gerði þá
Mr. A. E. Skagfeld fyrirspurn um
það, hvort ekki væri rétt, ef stofna
ætti “útbreiðslusjóð” fyrir félags-
málin, að fulltrúarnir riðu þar á
vaðið og stofnuðu sjóðinn. — Mrs.
R. Davíðssön spurði, hvort ekki væri
ráðlegt að þingið beindi þeim til-
mælum til kvenfélaganna, að gang-
ast fyrir einni samkomu hvert árlega,
félagssjóðnum til eflihgar. — Miss
H. Kristjánsson áleit, að þegar nú
kæmi til fjársöfnunar fyrir útgáfur
kenslubóka, væri réttmætt að sunnu-
dagaskólarnir tæku þátt í þeirri söfn-
un. Forseti lýsti þeim skilningi sin-
um, að réttasta aðferðin væri sú, að
senda söfnuðunum sundurliðaða á-
ætlun um nauðsynlegar fjárþarfir fé-
lagsins, fela féhirði það starf, svo
og viðeigandi innköllun fjárins; réðu
svo söfnuðir og einstaklingar hvað
þei^ gerðu. — Mrs. H. V. Rennesse
kvað tiundir úreltar og skattaálögur
óvinsælar; þar senj hing vegar kirkju
.félagsstörfin yrðu ekki unnin án
fjár, vildi hún fela fulltrúum hvers
safnaðar að gangast fyrir frjálsum
samskotum, hverjum í sinni bygð. —»
Var að lokum samþykt að vísa nefnd-
arálitinu til baka til nefndarinnar.
Fundi slitið.
8. þingfundur var settur sama dag
og á sama stað, kl. 2 e. h.
Svohljóðandi endurnýjað álit fjár-
málanefndar var samþykt:
“Nefndin gerir ráð fyrir og legg-
ur til um eftirfylgjandi tekjur og
útgjöld:
Tekjur:
Peningar í sjóði $140.95
Tillag frá:
Winnipeg-söfnuði .... 50.00
Quill Lake söfnuði 25.00
Grunnavatnssö f nuði... 10.00
'Mary Hill söfnuði ... 10.00
Árnessöfnuði 10.00
Piney-söfnuði 10.00
Árborgar-söfnuði .... 10.00
Gimli-söfnuði 10.00
Riverton-söfnuði 10.00
Oak Point söfnuði ... t. 10.00
Langruth-söfnuði .... 10.00
$315.95
Ugjöld:
Tímaritssjóður $ 50.00
Ferðakostnaður við útbrqiðslu-
störf '. 100.00
Sunnudagaskólamál .... 150.00
Ritföng ..................... 15.95
$315.95’
Nefndin mælir ennfremur með, í
sambandi við útgáfu íslenzkra
kenslubóka fyrir sunnudagaskólana,
að þeir söfnuðir, er óska eftir slíkum
bókum, styrki útgáfu þeirra eftir
megni fjárhagslega, og svo fljótt sem
þeim er unt.”
Nefndin, sem kosin var til þess að
gera tillögur um "Inngöngu safnaða
og samband við utanfélagssöfnuði”,
lagði fram eftirfarandi álit:
“Með því að það eru þegar nokkr-
ir söfnuðir, sem í öllum verulegum
atriðum eru fylgjandi hinum sömu
trúarskoðunum og Kirkjufélag vort,
en hafa þó enn ekki inn í félagið
gengfð, og með því að það er bæði
söfnuðunum og kirkjufélaginu ómet-
anlegur styrkur, að sem flestir þess-
ara safnaða gangi inn í sambandið,
og þar eð grundvallarlög Kirkjufé-
lagsins gera aðeins ráð fyrir umsókn
frá safnaðanna hálfu, án nokkúrrar
hvatningar frá Kirkjufélaginu, — þá
leggur nefndin til:
1. Að félagsstjórnin. sé beðin, á
þessu næstkomandi starfsári, að hafa
tal af nefndum söfnuðum og öðrum
þeim, er kynnu að verða stofnaðir á
árinu, og leitast við, á þann hátt, sem
hún telur heppilegastan, að fá þá til
þess að ganga inn í félagssambandið.
2. 9é eitthvað því til fyrirstöðu að
söfnuðir þessir geti gengíð inn í
Kirkjufélagið, þá beri félagsstjórn-
ingi engu að síður, að leiðbeina þeim
i starfi sinu og styrkja þá á allan
þann hátt, sem henni er unt, og
söfnuðurnir kunna hð óska eftir.”
Var nefndarálitið samþykt.
Viðvíkjandi málaleitun íslenzku I.
O. G. T. stúknanna í Manitoba, var
þetta nefndarálitjsamþykt:
“I fyrsta lagi viljum vér hvetja til
þess sterklega, að sunnudagaskóla-
kennarar og umsjónarmen.n sunnu-
dagaskóla geti sitt ítrasta til þess að
veita nemendum sunnudagaskólanna
rétta fræðslu um skaðsemi áfengis-
nautnar/
I öðru lagi: Þrátt fyrir það, að
við viðurkennum að bindindismálið
ætti að hafa óskiftan stuðning kirkj-
unnar, viljum við. ekkí að neinum
presti þessa kirkiufélags séu gefnar
neinar fyrirskipanir um prédikanir
um það mál. Eigi að siður viljum
við mæla með því, að prestar félags-
ins ljái málinu allan þann stuðning,
sem þeir geta, enda teljum við víst,
að þeim sé það ljúft.
Mrs. G. Johnson las upp nefndar-
álit söngkenslumálanefndar, og gat
þess um leið, að hr. Jón Friðfinns-
son, söngkennari, hefði stofnað barna
kór í Arnesbygðinni með góðum á-
rangri. Var nefndarálitið á þessa
leið og samþykt:
“1. Nefndin álitur að söngkensla
sé nauðsynjamál, fyrir þá sök að
sönglist er ein hin fegursta og sið-
hreinasta list, sem kunn er; er hún
ánægjulind, bæði þeim sem iðka hana
og á hana hlýða; er heilnæm fyrir
líkamann, eflir félagsskap og miðar
að Viðhaldi íslenzkrar tungu.
2. Nefndin. álítur söngkensluna i
eðli sínu sameiginlegt áhugamál allra
íslenzkra félaga vestan hafs, og beri
því öllum flokkum og félögum að
taka saman höndum um það.
3. Nefndin mælir með því að sér-
hvert íslenzkt bygðarlag rannsaki
söngkrafta sína, og áhuga manna og
fórnfýsi í þessu máli, og tilkynni síð-
an þjóðræknisfélaginu niðurstöð-
urnar; reyni tjóðræknisfélagið að
útvega þangað sem þess gerist þörf,
hæfa söngkennara.
4. Nefndin álítur æskilegt, að
Þjóðræknisfélagið ráði Mr. Br. Þor-
láksson í þjónustu sína, eins og próf.
S. K. Hall leggur til i báðum íslenzku
blöðunum fvrir nokkru síðan.”
Mr. A. E. .Skagfeld vakti máls á
samskotum i "útbreiðslusjóðinn”, og
bauð fram $3.00. Séra R. Pétursson
benti á, að ef til vill væru menn ekki
viðbúnir slíkum samskotum; lofórð,
sem goldin væru seinna,' kæmu þá að
sama haldi. Samþykt var að láta
lista liggja frammi, og skunduðu
menn þegar til áskrifta. Nam sam-
skotaupphæðin eftir skamma, stund
43 dollurum. *
Séra R. Pétursson tók til máls um
að gestur þingsins, Stephan G.
Stephansson skáld, hefði ’setið á
kirkjuþingi fyrir 40 árum síðan,
þá kjörinn erindreki fyrir Park-
1 söfnuð, fyrsta söfnuð ilslendinga í
Norður-Dakota. Hefði hann farið á
þing þetta til þess, að mæla með þvi
að konur hefðu jafnrétti við karl-
menn i “Hinu Ev. Lút. Kirkjufélagi
Islendinga í Vesturiheimi”. Síðan
væri liðinn langur tími, en æfinlega
hefði skáldið verið að prédika og
starfa í þarfir andlegs og trúarlegs
margar líkingar því, til sönnunar. —
Kirkja sem ber ógóð boð millum
manna, og kennir fylgjendum sínum
bæn Fariseans í Musterinu, fetar ekki
í spor Meistarans. Þá er það heldur
ekki kristindómur, að sitja hjá og
hafa ekkert til hinna sameiginlegu vel-
ferðarmála samtíðarinnar að leggja,
frelsis. Hefðu nú ræðumaður og j annað en Jordóma og fyrirdæming
forsetinn mælst til þess við Mr. allra andlegra samvinnutilrauna. All-
Stephansson, að hann ritaði nafn sittjir eru miskunnsamir Samvérjar og
á fundarbók Kirkjufélagsins, og léti [ eiga skilið að vera nafngreindir i
erindi fylgja. guðspjöllunum, nema fyrir pening-
Samþykt var að taka 10 minútna ana tvo og .viðsmjörið.
fundarhlé. Ritaði þá Stephan G.
nafn sitt í fundarfókina, og er-
indið og las síðan upp. A fundarbók-
inni stendur þetta skrifað með rit-
hendi haws:
, “Fjörutíu árum síðar.”
— Sbr. “Locksley Hall Forty Years
After”, eftir Tennyson.
Mér hefir orðið mílan drjúg
Milli kirkjuþinga I
Þótt nú bjóðist betri trú
Bygðum Islendinga.
Staddur á kirkjuþingi Sambands-
manna, 29. júní 1926.
Stephan G. Stephansson.”
Lestrinum var tekið með fögnuði.
Ávarpaði síðan íorseti skáldið nokkr
um hlýjum og velvöldum orðum.
Gieiddi þingheimur því virðingar-
atkvæði með því að rísa á fætur.
Samkvæmt tillögu séra R. Péturs-
sonar, studdri af Mr. A. E. Skag-
feld, var stjórnarnefnd Kirkjtifélags-
ins öll í einu, og í einu hljóði, end-
urkosin — svo og yfirskpðunarmenn.
Fundi slitið. (
9. þingfundur liófst kl. 8.30 sama
dag og á sama stað, með því að séra
Friðrik A. Friðriksson flutti fyrir-
lestur um “Frjálsa kirkju”.
Að fyrirlestrinum loknum var sam
þykt að senda forseta Kirkjufélagsins,
séra Ragnari E. Kvaran, heillaóska-
skeyti símleiðis, og varaforseta falin
sending þess.
Fór þá fram þingslitaathöfn.
Þakkaði forseti hinar ágætu við-
tökur, er þingmenn. hefðu fengið
hjá Gimlibúum. Vottuðu aðrir þing-
gestir þakldæti sitt með þvi að rísa
á fætur.
Séra Fr. Friðriksson flutti þá bæn
Sálmurinn nr. 43 var sunginn.
Lýsti þá forseti þingslitum.
* * *
En þótt þingi væri slitið, voru
menn ekki á því, að kveðjast — og
skilja að svo stöddu. Enn á ný
höfðu hinar ötulu konur Ikejarins
verið að verki, og bul|u þær nú þing-
gestum öllum, og öllu því fjölmenni,
Þriðja erindið flutti séra Friðrik
j A. Friðriksson frá Wynyard, síðasta
' þingdag, að kvöldi þess 29. ^Jefndi
I hann það “Frjáls kirkja”. Gerði
jhann glögga grein fyrir því, hvað
frjáls kirkja er, og að hverju leyti
fyrirkomul. kirkjunnar skamtar henni
frelsi. Játningabundin, kirkja er í
eðli sínu ófrjáls, og það sem lakara
er, andstæðingur alls skoðanafrelsis.
Skýrði hann það með mörgum og
ljósum dæmum. Frjáls kirkja er sú
kirkja er engar skorður eru settar með
ytri lagaboðum, eða innri vitsmuna-
játningum, er hamla þröska hennar,
og staðbinda hana við eitthvert á-
kveðið menningarstig mannlífsins.
Hún hefir skilyrði til að vaxa, til
að. fylgjast með og til að helga sér
hvern nýjan sannleika, sem heimur-
inn fær uppgötvað. Hún er mann-
úðleg, hún er vinsamleg allri fram-
fara- og jafnaðarvfcileitni man.na.
Hún varðveitir anda Meistarans um
allar aldir, hvað sem orðalagi og i-
myndan lærisveinanna líður á einum
eða öðrum tima.
Erindi þessi verða að likindum öll
birt á sinum tíma, og er því óþarfi
að skýra frekar frá efni þeirra en
hér er gert. v Þau eru og þess verð,
skýrt og skemtilega rituð, sanngjörn
og öfgalaus ,og fræðandi um þau
efni, er þau fjalla um.
Meðal helztu mála, er afgreidd
voru frá þinginu, eru þessi:
1. Stofnun trúmálatímarits, er kost-
að verður af kirkjufélaginu og látið
koma út mánaðarlega. Er til þess
ætlast að byrjuð verði útgáfa þess
á þessu hausti. -Var kosin í það 9
manna nefnd, er safna á ofurlitlu
stofnfé til að hripda þessu af stað,
og er svo ætlast 'til, að ritið beri sig
sjálft eftir það.
2. Að velja hæfan mann eða konu
til þess að leggja fyrir sig nám í
trúarbragðafræðslu við hinn alkunna
trúfræðsluskóla “The Tuckerman
School of Religion” í Boston. Býr
skóli þessi nemendur sína undir það,
að segja kennurum til við sunnudags-
skólahald, og koma skipulagi á trú-
er statt var við þingslitin, til sam-1 arbragðauppfræðslu í Söfnuðunum.
kvæmis. í samkomuhúsinu við hliðina
á 'kirkjunni. Heiðsursgestur sam-
kvæmisins var Stephan G. Steph-
ansson skáld. Bæjarstjóri Einar J.
Jónasson ávarpaði gestina í byrjun
og stýrði samkvæminu. Eftir ávat;p
forseta, söng kór blandaðra radda
(Jón Friðfinnsson: Vögguljóð). Þá
tók heiðursgesturinn til máls. Þá lék
Mr. Franklin Olson einspil á forte-
piano (Rachmaninoff : Prelude). Þá
töluðu: Séra A. E. Kristjánsson, séra
G. Arnason, Mr. G. Fjeldsted, Mrs.
Oddfríður Johnson, Mrs. F. Swan-
son, Mr. Guðni Thorsteinsson og séra
R. Pétursson. Þá söng kórið (Con-
radi: Nú breiðist yfir hauður). Að
endingu sungu allir af afli miklu
“Eldgamla Isafold” og “God Save
the King”.
Samkvæmið var einkar ánægjulegt.
Söngurinn tókst vel, ræðurnar voru
samfléttað gaman og alvara, og veit-
ingar kvennanna voru hvorki verri
né betri en. menn áttu von á — þ. e.
a. s. — ágœtar! — Þegar okkuð tar
komið fram yfir miðnætti, mátti sjá
ferðasnið á sumum, en ekki öllum.
Svo bjart og hlýtt var yfir þessari
samverustund, að menn voru ekkert
að flýta sér heim.
Kæra þökk, Gimli-konur og menn
fyrir viðtökurnar!
Fr. A. Fr.
Kirkjuþingið á Gimli.
(Frh. frá 1. bls.
samtíðarinnar, en prestarnir, er marga
hverja skortir alla þekkingu í þeim
efnum, Fyrirlesarinn gerði það vel
ljóst, að það er oft sitt hvað, kirkja
eða kristindómur. Dró hann 4ram
Er gert ráð fyrir að kirkjufélagið
veiti styrk til námsins, og að því
loknu taki nemandann í sína þjón-
ustu. Líklega er engri fræðslu jafn-
ábótavant og trúarþragðafráeðslunni
í sunnudagsskólum yfirleitt. Er þetta
því eitt hið þarfasta spor í umbótaátt.
er stígið hefir verið í hinni kirkju-
Iegu starfsemi hér vestra.
3. Utbreiðslumál. Kirkjufélagið
tekur að sér að sjá um, að hverjum
söfnuði, sem nú er innan félagsins,
eða kann að verða stofnaður á ár-
inu, séu trygðar að minsta kosti 6
messur á ári.
4. Stofnun allsherjar sambands
meðal hinna ýmsu kvenfélaga innan
kirkjufélagsins.
Það kom í ljós við skýrslur, sem
lesnar voru, að fimm söfnuðir hafa
myndast á árinu fyrir útbreiðslustarf
félagsins. Þá heffr og ein kirkja ver-
ið reist — kirkja safnaðarins í Ar-
nesi. Var kirkja þessi bygð síðast-
liðið sumar og vígð sunnudaginn 22.
ágúst s.I.
Sérstaka ánægju veitti það þing-
mönnum og gestum, að með þeim sat
út alt þingið, skáldið góðkunna,
Stephan G. Stephansson. feiðasta
þingdag var tekið fundarhlé, ritaði
skáldið þá nafn sitt á fundarbók fé-
lagsins, og erindi fyrir ofan, ávarp-
aði þingheim, árnaði starfi félagsins
allra heilla á komandi árum, og bað
félagsmenn að vera þess ávalt minn-
uga, að reynast trúir köllun hinna
frjálsu skoðanamála og víkja aldrei
frá málstað sannleikans. Kom mörg-
um þá í hug, er á mál hans hlýddu,
orð er hann hafði áður kveðið til
þessa félagsskapar:
"Þótt heimskan endist elstu mönn-
um betur,
fíún yfirlifað sannlcikann ei getur.”
og með sjálfum sér unnu þess há-
tíðleg heit, eftir megni að leitast viö
að fylgja fyrirmælum skáldsins.
Öll samvinna var hin ljúfasta á
þinginu, og þó eigi í felur farið með
neitt, er mönnum bjó í huga. Sögðu
allir hið sama um það, að ánægju-
legri stund hefðu þeir eigi átt lengi,
en dagana seni þeir dvöldu á þing-
inu.
-------—x----------
Hveitisamlagið.
Samlag verður myndað í Ontario.
Samkvæmt ákvörðun, sem tekin
var á stjórnarnefndarfundi United
Farmers Co-operative Co. Ltd., 17.
júní s. I., byrjar félagið tafarlaust
að starfa að myndun Hveitisamlags
í Ontario, sem er ætlast til að verði
einn liður Hveitisamlags Canada, er
nú stendu^, saman af samlögunum í
Manitoba, Saskatchewan og Alberta.
Að líkindum starfar Mr. Colin H.
Burnell, ritari aðalsölndeildarinnar,
með stjórnarnefndinni, við stofnunina,
eftir því sem tími og ástæður levfa.
Sem stendur er Mr. J. S. Jeffrey, ráðs
maður hveitideildar United Farmers
Co-operative Company, að ferðast u m
vesturfylkm til að kynna sér fyrir
komulagið. '
Samvinnusamkotna.
Hin önnur árlega samvinnusamkoma
sem er sótt af meðlimum allra land-
búnaðar- og samvinnufélaga í Sask-
atchewan. verður haldin í Stadium í
Regina á fimtudaginn 29. júlí.
Forsefi verður A. J. McPhail, for-
seti Hveitisamlaganna i Canada. —
Aðalræðumaðurinn verður Dr. Theo-
dore Macklin, hagfræðingur við há-
skólann í Wisconsin. Hlíjómlieika-
flokkur Goldstream Guards skemtír
með hljóðfæraslætti á samkomunni.
* ¥ ¥
Lesendum stendur til boða a'ö
senda fyrirspurnir viðvíkjandi Sam-
laginu til blaðsins, og verður þeim
þá svarað í þessum dálk.
--------—x---------
Fjœr og nœr.
Nefndin, sem stendur fyrir skemti
ferð Independent Labor Party, til
Grand Beach þann 24. júlí n. k.,
biður að þess sé getið, að þeir sem
einhverra orsaka vegna geta ekki far
ið með morgunlestinni kl. 9, geti
notað farbréfin, sem nefndin selur,
á lestinni, sem fer kl. 1.30 e. h. Ef
nógu margir fara, sem líkindi eru til,.
verður sérstök lest leigð um morgun-
inn til þess að allir geti orðið sam-
ferða.
IV. lvens, 'Gen.-Sec.
Dr. Tweed tannlæknir, verður í
Arborg miðvikudaginn og fimtudag-
inn 14. og 15. júlí.
KENNARI OSKAST.
Umsóknum um kennarastöðu fyrir
Diana S. D. No. 1355, Manitoba,
verður veitt móttaka til 20. júlí n.k.
Starfið er frá 1. september til enda
námsskeiðsins og frá 1. febrjúar til
30. júní 1927. — Umsækjendur skýri
frá hve mikla reynslu þeir hafi óg
hve mikið kaup þeir vilji fá, en
verða að hafa annars eða þriðja
flokks kennaraskírteini fyrir Mani-
toba. Frekari upplýsingar gefnar ef
æskt er.
Magnús Tait,
Sec.-Treas.
P. O. Box 145,
Antler, Sask.
IVANTED.
A man, preferably an inventor, who
can invest $1,000 in an invention for
a half interest. Phone or write to:
bigfús Gíslason, 636 fargent Ave.,
Winnipeg, Man. Phone B 8143.
Swedish Amcrican Linc.
E.s. Drottningholm sigldi frá G5t«?
borg á hádegi á fimtudaginn. Var
með 158 farþega til Halifax. Lendir
þar að líkindum á morgun.
Ncandinavian-Amcrican Line.
E.s. Frederik VIII. sigldi frá New
York þann 22. f. m. með fjölda far-
þega. Lenti í Kristianssand fimtu-
daginn 1. júlí.
i